Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.02.1909, Side 8
36
Þjóbviljinm
XXITL, 8.-9.
Otto Monsted8
danska smjörlíki
er bezt.
Skinun lœknishéraðu.
Síra Kr. Daníehaon ber fram frv. þess efnís
að skipta Vestur-ísafjarðarsýslu í tvö læknishéruð,
og nái annað yfir Auðkúlu-, Þingeyrar- og Mýra-
hreppa, með iæknissetri á Þingeyri, en hittyfir
Mosvalla- og Suðureyrarhreppa, tneð læknissetri
á Flateyri.
Skoðun á síld.
Sig. Wörleif88on ber fram frv. þess efnis, að
ráðherra skipi tvo yfirmatsmenn á síld, annan á
Akureyri, en hinn á Siglufirði, og séu árslaun
hvors um sig 1000 kr. — Undirmatsmenn skulu
og skipaðir, þar sem yfirmatsmenn telja þörf á.
Skoðun skal fram fara á allri nýveiddri slld,
sem ætluð er til útflutnings, og veidd er í herpi-
nót, eða í reknet, og söltuð er í landi, eða við
land.
Saltaða sild geta menn og fengið metna, hafi
hún legið minnst 14 daga í salti.
Lifsábyrgð sjðmanna á ísl. þilskipum.
Fvr. borið fram í neðri deild af þingmönnum
Reykvíkinga, og breytir það í i ýmsum grein-
um ákvæðum laga 10. nóv. 1903 (um lífsábyrgð
fyrir sjómenn).
Þingsályktunartillögur.
Dr. Jón Þorkel88on o, fl. hafa í neðri deild
borið fram þessar þingsályktunartillögur.
1 .Um skipun nefndar, til að rannsaka verzlunar-
og atvinnulöggjöf landsins.
2. Um skipun nefndar, til að ihuga, hvernig greið-
ast og haganlegast verði bætt úr peningavand-
ræðum landsins.
3. Um áskorun til landstjórnar, að leggja fyrir
næsta þing frv. til laga um afnám eptirlauna
allra embættismanna í landinu o. fl.
4. Um skipun nefndar, til að ihuga fiskiveiða-
mál landsins.
6. Um skipun nefndar, til að íhuga samgöngu-
mál landsins.
Enn fremur frá Birni Jönmyni o. fl.
6. Um skipnn nefndar, til að íhuga kennslumál
landsins.
Frá big. Sigurðssyni o. fl.
7, Um skipun nefndar, til að íhuga landbúnaðar-
málefni þjóðarinnar.
8. Um að fela nefnd þeirri, er kosin var til að
ihuga bráðabirgðahækkun á aðflutningsgjaldi,
að taka jafnframt til ibugunar tillögur um
skattamál íslands.
ííý kosning á Seyðisflrði.
Alþingiskosning á að fara fram í Seyðisfjarð-
arkaupstað 9. marz næstk., og er framboðsfrestur
liðinn 3. marz.
Sira Björn Þorláksson hefir gefið kost á sér
við kosninguþessa,ogvæntanlega verðurdr. Valtfr
Guðmundsson þar einnig í kjöri. — Hann situr
nú á Seyðisfirði, fór þangað með „Ceres“ seint
í febrúar.
Drukknun.
9. febr. síðastl. fórst bátur í Keflavík undir
Jökli,og drukknuðu þessir menn.
1. Formaður Loptur Loptsson, ættaður af Skógar-
strönd, tæplega þritugur, kvæntur maður, er
lætur eptir sig nokkur börn, talinn dugnaðar-
maður.
2, Guðm. Hákonarson, bóndi á Stóru-Hellu i Kefla-
vík, ekkjumaður, er átti nokkur börn uppkom-
in. — Hann var sjálfur formaður, en gat eigi
róið bát sínum fyrgreindan dag, með því að
sumir hásetar hans voru veikir, og reri hann
þvi með Lopti.
3. Kristján Jónsson frá;Vörðufelli áJSkógarströnd,.
ógiptur maður innan þrítugs.
4. Hjörtur Magnússon, ókvæntur vinnumaður frá
Beruvík undir Jökli, um tvítugt.
5. Guðjón Nikulá8Son, ókvæntur vinnumaður frá
Sveinsstöðum utan Ennis, um tvitugt.
6. Dagóbert Hansson, kvæntur maður, tæplega
þrítugur, lætur eptir sig ekkju, og nokkur
kornung börn.
7. Kristján Guðmundsson, ókvæntur maður, tæp-
lega þritugur, frá Dyngju í Keflavík.
REYKJAVÍK 28. febrúar 1909.
Inndælasta tiðarfar hér syðra nú um hríð,
stillviðri og frostleysur.
Jörð allstaðar marauð í byggðum.
„Vendsyssel11, aukaskíp frá sameinaða gufu-
skipafélaginu, kora bingað frá Kaupmannahöfn
27. þ. m., fermt vörum, sem sendast áttu með
„Lauru“, meðai annars til Vestfjarða, og tekur
„Laura“ við þeim, er hún kemur.
Prentsmiðja Þjóðviljans'
102
leynast í skugga þeirra. — Með gætni sté hann öðrum
fætinum aptur fyrir sig.
„Hver er þar?“ spurði Maggy í sömu svipan.
Nú var allt um seinan, og greip Frank ósjálfrátt
til skammbys8unnar, sem var í vasa hans.
„Hver er það, sem stendur þarna?“ kallaði Maggy
aptur hærra, og í ákveðnari róm, en áður.
Frank sá nú, að einu gilti, hvort hann flýði, eða
stóð kyrr, með því að stúlkan myudi kalla til sjómann-
anna. — Hvað átti hann til bragðs að taka, til að aptra
því, sem bonum var verst við?
Nú voru góð ráð dýr. — Hann gekk fram, og þreif
af sér sjóhattinn.
„Það er jeg!“ stamaði hann frarn úr sér.
Maggy hrökk við, er hún heyrði máiróm hans, og
virtist vera í vafa.
„Þér megið fyrir alla muni eigi kalla á hjálp, Maggy;
— þér þurfið alls ekki að vera hrædd við mig!“
Hún áttaði sig nú.
„Hvað viljið þér?“ spurði hún lágt. „Hversvegna
standið þér fyrir utan gluggann minn ?“
Fyrir utan gluggann hennar. — Þessi misskilning-
ur fannst Frank vera sér óvænt hjálp. — Maggy hugði
að hann hefði verið að stara upp í gluggann hennar. —
Þenna misskilning hennar varð hann að nota sér.
„Jeg varð að fá að tala við yður enn einu sinni,.
Maggy! Jeg — jeg —“
„Bíðið augnablik!“
Að svo mæltu hvarf hún frá glugganum, en kom
aptur lítlu síðar, og hafði þá pjal á herðutn.
„Nú“, mælti hún, og beygði sig út um gluggann.
103
„Hvað viljið þér mér, þar sem þér eruð á gægjum á
næturþeli fyrir utan gluggann minn? [Skýrið frá þvi,
eða jeg kalla á föður minn!"
„Nei, gerið það fyrir engan mun!“ mælti hann, og
tók í höndina á henni. „Jeg skal skýra 'yður frá öllu,
Maggy, en 0kki núna; — það kynni cinhver að koma,.
okkur óvænt“.
„En þér komuð mín vegna?“ mælti hún.
Þetta mælti hún í svo alvarlegum, og innilegum
róm, að Frank gat ekki fengið það af sér, að gabba hana,
þótt hann sæi sig geta haft gott af þvi.
Hann tók því i hönd hennar, og rnælti:
„Nei, Maggy! Jeg kom ekki yðar vegna“.
„Þér eruð þá njósnarmaður!“
„Talið lægra!“ mælti Frank allt í einu, stillilega, en
þó í ákveðnum róm. „Að öðrum kosti getið þér gefið
tilefni til baráttu og blóðsúthellinga.— ímyndið þér yður
að Íe8 gefist strax upp? Fyr skulu nokkrir af þeim falla
er á mig ráða!“
Maggy þagði, og mælti hann þá, blíðari í mál-
rómnum:
„Maggy! Eg bið yður að þegja yfir því, að við
höfum talazt hér við. — A morgun eða hvenær sem þér
viljið, skal eg gefa yður fullnægjandi skýringu! Eruð
þér ánægð með það?“
Maggy þagði, sem fyr.
Inni í húsinu varð nú hávaðasamara, en verið hafði,
og karlmanna raddir heyrðust í gestaherberginu.
„Verið nú fljót að ráða þetta með yður!“ mælti
Frank alúðlega. „Það má enginn timi missast!“