Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.03.1909, Blaðsíða 1
Verð árgangsinn (minnst
90 arkir) 3 kr. 50 aur.;
erlendú 4 kr. 50 aurog
I Amerííu doll.: 1.50.
Borgist fyrir júnlmán-
aðarlok.
ÞJÓÐVILJINN.
_ _|= TxJTTUöASTI 08 ÞRIÐJI ÁE8AN8UB. =1-
^_9wt|=R?TSTJÓEI: SKÚLI THORODPSEN. =!■
TJppsiign slcrijleg ogild
nema komið sé til útgdý-
anda fyrir 30. dag jún-
mánaðar, og kaupandi
samhliða uppsögninni
borgi skuld sína fyrir
blaðið.
M 13.
ReYKJAVÍK, 19. MARZ.
1909.
ÚtlöndL.
—o—
Helztu tíðindi frá útlöndum eru:
Danmörk. Hervarnamálið er nú aðal-
málið á dagskrá þings og þjóðar. — Hef-
ir umbótaflokkurinn yfirleitt verið Neer-
^aanfs-ráðaneytinu qrðugur, og eruýmsir
8f helztu mönnum flokksins algerlega
móthverfir hervarna-frumvarpinu, en
hægriinenn hafa tekið því fegins hendi.
— Er eigi ólíklegt, að mál þetta valdi
þvi, að flokkaskipunin á þingi Dana breyt-
ist; en sumir spá því, að það verði Neer-
gaards-ráðaneytinu að falli — Frumvarp-
ið hefir nú verið falið þingnefnd til í-
hugunar.
22. febr. var í Kaupmannahöfn tek-
inn fastur maður nokkur, sern sakaður er
um, að hafa veitt tveim kvennmönnum
banati’lræði með svipuðum hætti, sem
kvennamorðin i Berlín hafa nýskeð verið
framin; en þrælmenni þessi hafa beitt
samskonar kviðskurði, sem „Jakob kvið-
skeriu beitti í Lundúnum fyrir nokkrum
árum.
Aðfaranóttina 21. febr. gerðist sá at-
burður í geðveikrahæli í Middelfart, að
geðveikur sjúklingur veitti öðrum sjúkl-
ingi bana. — Hefir atburður þessi valdið
því, að all-miklar umræður hafa orðið í
dönskum blöðum um meðferð á sjúkling-
um í geðveikrahæium, og umý.r iskonar
óreglu, er þar þykir hafa brytt á.
Ballottí, þorparinn, sem framdi morð-
ið í Höjbjergsgaard í vetur, hefir verið
dæmdur til dauða, en félagar hans í
margra ára typtunarhúsvinnu — — —
Norogur. Ráðgert er, að Friðþjófur
Nansen fari rannsóknarferð norður í höf
á komanda sumri, og kemur hann ef til
viil við á íslandi á þeirri ferð sinni. ---
Svíþjóð. Anton Nítson, er varpaði
sprengikúlu i Malmö, og dæmdur hafði
verið til dauða, hefir verið náðaður af
Qustav konungi V., og hegningunni breytt
í æfilanga þrælkunarvinnu.
27. febr. samþykkti neðri málstofa
sænska rikisþingsins 1 einu hljoði askor-
un til stjórnarinnar þess efnis, að nema
dauðahegningu úr lögum, en talið liklegt,
að þeirri áskorun verði ekki sinnt, með
því að efri málstofan vill, að dauðahegn-
ingunni só haldið. — — —
Þýzkaland. Nýlega er kominn út
pési, þar sem ráðist er harðlega á Biilow,
ríkiskanzlara.'— Heitir pésinn: rBulow
fursti og Villijálmur IIa, og þar er Bulow
gefið að sök, að hann hafi sjálfur verið
undirrótin að rekistefnunni, sem varð út
af ummælum keisara í vetur (um heilræði
og vinarþel keisara í garð Breta, er Búa-
ófriðurinn var á dagskrá o. fl); segir í
pósanum, að Búlow hafi sjálfur samið
greinina i enska blaðinu „Daily Telegrafu, .
til þess að gera Yilhjálm keisara ískyggi-
legan í augum þjóðarinnar, og geta sjálf-
! ur komið fram, sem verndari þjóðarinnar
gegn sjálfræði keisara. — — —
Frakkland. Frægur skripamynda-teikn-
ari, Coran d’ Aclie að nafni, er nýlega
látinn. — Hann var ákafur andstæðingur
Dreyfusar, og þeirra er hans máli fylgdu,
og fengu þeir þvi óspart að kenna a
teikningum hans. — — —
Balkanskaginn. Bretastjórn hef ir boð-
izt til þess, að miðla málum milli Tyrkja ^
og Búlgara, að því er snertir skaðabætur,
er Búlgarar skuli greiða Tyrkjum, og
hafa báðir inálsaðilar tekið því tilboði vel.
Ferdínand, Búlgara-fursti, brá sér ný
skeð til Pétursborgar, og var fagnað þar
ágætlega, sem þjóðhöfðingja sæmir, þótt
stórveldin hafi að vísu enn eigi viður-
kennt konungs- eða keisaranafn það, er
hann vill taka sér.
Ráðaneytisskipti eru nýlega um garð
gengin i Serbíu, og heitir nýi forsætis-
ráðherrann Novalcovitsch. — Talið er, að
ráðaneyti þetta muni eigi eins fjandsam-
legt gegn Austurriki, sem fráfarandi ráða-
neyti var.
Fregnir frá Serbíu þykja yfirleitt frem-
ur óábyggilegar, segja snmar fregnir, að
þeir séu að verða afhuga ófriði, en aðrar
fregnir, að þeir muni aldrei víkja frá
þeim kröfum sÍGunt, að fá landskika í
stað Bosníu og Herzegovinu. — Sendi-
herrum stórveldanna segja þeir sitt hverj-
um um fyrirætlanir sínar. — — —
Bandaríkin. Nýji forsetinn, laft, er
nú tekinn við völdum, og hefir hann lýst
því yfir, að hann inuni fylgja sömu stjórn-
málastefnu, sem Roosevelt, sérstaklega að
því er til Japana i Kalíforníu kemur, sem
og gegn stórgróðafélögunum.
Aukaþing ráðgerir hann, að kalla sam-
an, til að fjalla um tollmálin.
Til viðbótar framángreindum erlend-
um tiðindum, má enn fremur geta þessara:
Danmörk. Atvinnulausir menn héldu
alls fimm fundi í Kaupmannaböfn 24.
febrúar, og taldist þeim þar svo til, að
þá gengju alls 25 þús. verkmanna atvinnu-
lausir í Damnörku, og vilja þeir, að ríkið
sjái hverjum þeirra fyrir 20 kr. tekjum
á viku hverri, meðan er atvinnuleysið
stendur yfir. — Gerðu þeir sendimenn
á fund A7eeryaarJ-ráðaneytisins, til að
fara ofangreindu fram, og lofaði hann að
sjá um, að flýtt yrði fyrir ýmsum bygg-
inga-fyrirtækjum af hálfu ríkisins, og kvað
þingið að öðru leyti mundu hlaupaurdir
bagga, sem tök væru á.
Fulltrúar póstþjóna í Danmörku héldu
fund i Kaupmannahöfn 21.—23. febr., til
þess að ræða ýms mál, er þá varða. —
Noregur. Eptir tiliögum Castberg's
dómsmálaráðherra, hefir stjómin Jagt fyrir
þingið frumvarp þess efnis, að veita ó-
skilgetnum börnum sömu réttindi, sem
skilgetnum börnum, bæði að þvi er erfða-
rétt eptir föðurinn snerrir, og heimild
barnsins, til að bera ættarnafD föður þess.
— Barninu á og að veita uppeldi, er
sómir stöðu þess foreldranna, sem betur
er sett. — Enn fremur auka og lögin
skyldur barnsföðursins gegn móðurinni
að mun.
Siðustu daga febrúarmánaðar stakk
bólusótt sér niður í grennd við Bergen,
og höfðu alls 22 sýkzt, er síðast fréttist.
Þýzkaland. Bóndi nokkur, Friedrich
Theil að nafni, sem heima á í ítanda í
Sachsen-Altenburg, og nýlega varð hálf-
áttræður, hefir numið upp á eigin spitur
grísku, hebraisku, latínu, saDskrit, arabisku,
og tleygletur, og 71 árs að aldri fór hann
að nema ensku, og kvað nú vera vel að
sér í því tungumáli. — — —
Balkanskaginn. Tveir menn voru ný-
lega teknir fastir i Bulgaríu, sem mælt
er, að hafi ætlað sór að myrða Ferdínand
fursta, er hann kæmi heim úr Bússlands-
för sinni.
Mælt er, að Serbar geri sér von um
hjálp Rússa, ef í hart fer milli þeirra og
Austurríkismanna, enda hafa ýms blöð
alslafneska flokksins á Rússlandi verið
all-harðorð i garð Austurríkismanna, og
telja Bússland sjálfkjörinn vörð smá-ríkj-
anna á Balkanskaga. — — —
Rússland. 15 pólitiskir glæpamenn svo
nefndir, er dæmdir höfðu verið til Síberíu-
vistar, reyndu nýlega að flýja frá borg-
inni Irkutsk, en náðust, og voru dæmdir
til dauða. Tóku þeir þá allir inn eitur,
og beið einn þeirra bana, en hinir urðu
hættulega sjúkir, og var dauðadóm þeirra
þá breytt, en eigi er þess getið, að þeir
losni úr útleggðinni.
Með því að Rússakeisara mislíkuðu
ummæli forseta finnska landsþingsins, er
hann svaraði ávarpi keisara til þingsÍDS,
og tjáði þjóðina áhyggjufulla yfir þvi, að
mál Finna væru eigi borin fyrir keisara
á lögskipaðan hátt, þá var þing Finna
nýlega rofið, og eiga kosningar að fara
fram í mai, en þing að koma saman a&
nýju 1. júni næstk. — — —
Bandaríkin. Frú Vanderbilt hefir ný-
lega gefið eina milljón dollara, til að
byggja fyrirmyndarbústaði handa 350
verkraanna-fjölskyldum í New-York.
Griskur raaður í Omaha réð lögreglu-
manni nýlega bana, og reiddust ýmsir
borgarbúa því svo freklega, að 3 þúsundir
þeirra ætluðu að ráða á Grikki, sem þar
búa, en særðu i misgripum ýmsa Rúmena
og ítala. — — —