Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.04.1909, Page 2
74
ÞjÓÐVILJÍNN.
XXIII., 19.
gengi fyrir, ef hann vildi kaupa, að verð
jarðarinnar var hækkað úr 8200 í 12000 kr.
En þótfc sú breytingartillaga þeirra væri
samþykkfc, greiddu þeir þó engu að síð-
ur atkvæði gegn sölu jarðarinnar.
Verð jarðarinnar verður að öllum lik-
indum fært niður í 10,000 kr í efri deild.
Wýtt lœknishórað í Vestur-lsafjarðarsýslu.
Efri deild hefir samþykkt frumvarp
um skipting Vestur-lsafjarðarsýslu í tvö
læknishéruð, og verða læknasetur á í>ing-
eyri og á Flateyri.
Málið eigi komið til umræðu í neðri
deild enn.
Mat jarðabóta á Vestfjörðum
því máli var vísað til landbúnaðar-
nefndarinnar á þÍDgfundi neðri deildar
20. apríl.
íslandsbanki.
Penmgamálanefndin ber fram frv. þess
efnis, að kaupa hlutabréf í Islandsbanka
fyrir allt að 2 millj. króaa, og borga með
allt að 101 kr. hundraðið.
Borgunin greiðist í landssjóðsskulda-
bréfum, er greiddir eru af 4}j2°j0 ársvext-
ir, og kaupir íslandsbanki þau fyrir að
minDsta kosti 98 kr. hundraðið.
Af landssjóðsskuldabréfunum innleysir
landssjóður ^ á ári hverju, í fyrsta
skipti í des. 1910, en getur þó leyst þau
öll inn eptir 1. júlí 1919.
Nýtt læknishérað í Strandasýslu.
Efri deild hefir fallizt á, að í Stranda-
sýslu verði þessi tvö læknishóruð:
1. 7i'eykjarfjarðarhérab: Árneshreppur, og
nyrðri hluti Kaldrananeshrepps að
Bjarnarnesi. — Læknissetur á Reykj-
arfirði.
2. Hölmavíkurhérað: Syðri hluti Kald-
rananeshrepps frá Bjaroarnesi, Hróf-
bergshreppur, Kirkjubólshreppur, Fells-
hreppur og Óspakseyrarhreppur. —
Læknissetur á Hólmavík.
Neðri deiid hefir enn eigi fjallað neifct
um þet!a mál.
Lending í Bolungarvík.
Þingsályktunin um það, að verkfræð-
ingur verði sem fyrst látinn skoða, og
gera tillögur um nauðsynlegar umbætur
á lendingunni í Bolungarvík var sam-
þykkt í neðri deild 20. april.
Almenni menntaskólinn.
Kennslumálanefnd neðri deildar ber
fram svo látandi tillögu til þÍDgsálykt-
unar:
Neðri deild Alþingis ályktar aö skora á stjórn-
ina að láta sem fyrst endurskoða og bæta reglu-
gerð hins almenna mentaskúla, og gera tafar-
laust þá breytingu, að fella burt efra aldurs-
takmarkið, sem nefnt er í 18. gr. í bráðabirgðar-
reglugerð fyrir hinn almenna menntaskóla í
Reykjavík, 9. septbr. 1904, og slíkt hið sama
neðra aldurstakmarkið um viðtöku í lærdóms-
deildina, og enn að breyta nú þegar 12. gr. svo
að nemendur utan skólans megi ganga undir
öll próf skólans.
Enn skorar deildin á stjórnina að koma á
samræmi um námstíma og aldurstakmark milli
hins almenna menntaskóla og gagnfræðaskólans
á Akureyri.
Þingsáiyktun þessi fær væntanlega
góðan byr á þingi, enda hér uin brýna !
nauðsyn að ræða.
Thore-félagið: Landssjóður hluthafl.,
Hálf millj. króna.
Meiri hluti samgöngumálaaefndar neðri
deildar ber fram svo látandi frutnvarp:
1. gr. Landsstjórninni veitist heiraild til að
kaupa hlutabróf í gufuskipafélaginu „Thore“ fyr-
ir 500 þúsund krónur með þeim skilyrðum, sem
hér fara á eptir:
a. að hlutafé félagsins verði 800,000 krónur;
b. að hlutir landssjóðs verði 4°/0 forréttinda-
hlutir.
o. að þessar breytingar verði gerðar á núver-
andi skipastól félagsins:
1. í stað skipanna „Kong Helge“ og „Per-
wie“ komi nýtt skip eða nýlogt með
líkri stœrð og gerð eins og skip fétags-
ins „Sterling“ og með eigi minni hraða.
Þetta skal vera framkvæmt áður en
landssjóður tekur hluti í félaginu.
2. að keypt verði nýtt eða nýlegt skip
með líkri stærð og gerð eins og
skip féiagsins „Sterling“ og með
jafn miklum hraða að minnstá kosti.
3. að keypt verði 2 ný eða nýleg strand-
ferðaskip með hér um bil 150 smá-
lesta larmrúmi, farrúmi. fyrir 10—
15 farþegja á 1. farrými, 20—25 far-
þegja á 2. farrými og með 9 mílna
hraða að minnsta kosti.
4. að útbúin verði kælirúm í 2 skipum
að. minnsta kosti at' framan greind-
um skipastól, sem ganga landa á
milli.
d. að landssjóður eigi rétt á, að leysa til sín
fyrir ákvæðisverð hve nær sem er jhina
almennu hluti í félaginu,
e. að alþingi skipi stjórn félagsins að hálfu —
3 menn, —. og ráðherra íslands sé auk
þess sjálfkjörinn formaður stjórnarinnar,
f. að skip Thore-félagsins, sem nú eru, með
þeirri breytingu, sem ræðir um undir staf-
lið e. 1., verði afhent hinu nýja félagi
tyrir það verð, er þau verða metin.
Matið skal framkvæmt af 3 mönnum, dóm-
kvöddum. af landsyfirrétti íslands,
g. að þær breytingar verði gerðar á lögum j
Thore-félagsins, sem fulltrúar alþingis og j
ráðherra íslands telja nauðsynlegiir til að
tryggja rétt landssjóðs, som forréttinda- j
hluthafa í félaginu. Pélagið hafi vat-nar- j
þing á Islandi.
2. gr. Til þess að kaupa hlutabréf þau, sem j
um getur í 1. gr., voitist landsstjórninni heim- j
ild til að taka 500,000 króna lán, sem afborgist
með jöfnum afborgunurn k 20 árum, og niega
vextir af því eigi fara fram úr 4L/.3°/0 eða sem
því svarar. j
Heimildin til að kaupa hlutabréfin er því
skilyrði bundin, að lán þetta fáist með eigilak- j
ari kjörum.
Það er vilji nýja ráðherrans, sern eigi j
er farið leynt með, að reyna að liamra !
frumvarp þatta gegnum þingið, hvernig
sem það nú lánast.
Öskandi, að tilraunin misheppnaðist.
Seld verzlun.
Stórkaupmaður Thor. E. Tuliníus íKaupmin na-
höfn hefir selt Þórhalli DaníeUsyni verzlun sína
> Höfn í Hornafirði.
Hr. Þórhallur Danielsson hefir áður verið
verzlunarstjóri Tuliniusar í Höfn í Hornafirðf.
log, samþgkkí á alþingi.
—O—
VII. Lög inri viðauka við
iög nóv. 1907, um bæj-
ar stjörn i Hafnarfirði. (Á-
kvæði um skyldu, til að taka sæti í bygg-
ingarnefnd, og í hafnarnefnd, um bygg-
ingarsamþykkt fyrir kaupstaðinu, hafnar-
reglugjörð, er stjórnarráðið setur, sem og
um reglugjörð um notkun vatnsafis o. fl.)
VIII. Lög 111m breytiag á
lögum ÍO. nóv. 1905, nm
bann gogn innflixtningfi á út-
lendu kvikfé.
Ákvæði, er banna að flytja hingað til
lands hunda frá útlöndum.
IX. I^ög nxn breyting á
lög’nm növ. 1907, 3. gr.,
um kennaraskóla í Reykja-
vfli.
Námstíminu í kennaraskólanum byrj-
ar fyrsta vetrardag, og endar siðasta vetr-
ardag.
X. Lög ixtn fiskimat.
1. gr. Allur saltíiskur, sem fluttur er héðan
af landi og fara a til Spánar eða ítaliu, hvort
heidut- beina leið eða um önnur lönd, skal met-
inn og flokkaður optir gæðum af fiskimatsmönu-
um undir umsjón yfirfiskimatsmanns. Yfirfiski-
matsmennirnir skulu einnig h.tfa umsjón með
útskipun, hleðslu og meðfet-ð fiskjarins í útflutn-
ingsskipunum og gefa fyrirskipanir hér að lút-
andi, er þeim er skylt að hlýða, er hlut eiga að
máli. Hverjum fiskfarmi skal fylgja vottorð yf-
irfiskimatsmanns ritað á farmskrárnar.
Nánari reglur um matið og meðferð vörunn-
ar bæli við útskipum og i útflutningsskipunum
skulu settar i crindisbréfum yfirfiskimatsmanna
og fiskimatsmanna, sem stjórnarráðið gefur út.
2. gr. Ráðherrann skipar yfirmatsmennina,
og ekulu þeir hafa aflað sér þekkingar á fiski-
mati, verkun og meðferð fiskjar, annað hvort með
því að hafa starfað sem fiskimatsmenn eða á
annan hátt.
Þeir skulu rita undir eiðstaf, um að þeir vilji
hlýða ákvæðum þeim, sem sett eru viðvikjandi
starfi þeirra, og með alúð og kostgæfni rækja
skyldur þær þær, sem á þeim hvíla i stöðu
þeirra.
3. gr. Þessir yfirfiskimatsmenn skulu þegar
skipaðir og laun þeirra greidd úr landssjóði:
1. Yfirfiskimatsmaðurinn i Reykjavík. Umdæmi
hans skal ná yfir svæðið austan frá Þjórsá
vestur að Öndverðarnesi. Árslaun hans eru
2000 kr. Hann er jafn framt ráðunautur stjórn-
arráðsins í þeim málum, sem viðkoma fiskimati
og fiskverkun.
2. Yfirmatsmaðurinn á ísafirði. Umdœmi bans
skai ná yfir svæðið frá Öndverðarnesi norður
til Reykjarfjarðar í Strandasýslu. Árslaun hans
eru 1800 kr.
3. Yfirfiskimatsmaðurinn á Akureyri. Umdæmi
hans skal ná yfir svæðið frá og með Reykj-
arfirði austur að Langanesi. Arslaun hans eru
1600 kr.
4. Yfirfiskimatsmaðurinn á Seyðisíirði. Umdæmi
hans ska.1 ná norðan frá Langanesi suður að
Hornafirði, að þeim firði meðtöldum. Árslaun
hans eru 1600 kr.
5. Yfirfiskimatsmaðuiinní Yestmannaeyjum. Um-
dæmi hans er Vestmannaeyjar og Vík í Mýr-
dal og árslaun 800 kr.
Tölu yfirfiskimatsmanna má auka með fjár-
veiting á fjérlögum og verður þá gerð nauðsyn-
leg hrevting á umdæmuin þoirra með konungs-
úrskurði.
4. gr. Fiskimatsmenn skipar lögrelustjóri á
hverjum fiskiútflutningsstað svo marga, sem yf-
j ir fiskimatsmaður telur þurfa og eptir tillögum