Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.03.1911, Qupperneq 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.03.1911, Qupperneq 6
46 Þjóðviljtnn. XXV., 11.—12. k. Að borgunin til íorðabúrsbænda (sam- anb. atafl. f.) sé greidd þeim ekki síðar en á næstu vorbreppskilum í breppnum, og sam'ð þá um leið við þá eða aðra um heyforða næsta vetur. V erzlunarbækur. Vtðaukalög um verzlunarbækur hefur Jon Óiafseon borið fram í neðri deild, og eru þar sett hegningar-ákvæði (sektir, fangelsi, missir verzlunarleyfis), sé ékvæð- um laganna um verzlunarbækur eigi fullnægt Lögin um verzlunarbækur hefðu að voru áliti betur verið ósamin, auka störf að mun, og baka leiðindi, án þess vinn- ingurinn bæti það upp að nokkrum mun. Jóns Sig'urðssonar minnisvarðinn. Minnisvarðanefntlio, þ. e. nefndin, er gengst fyrir samskotum til minnisvarða Jóns sáluga Sigurðssonar, hefir nú orðið ásátt um, að fela Rin- ari myndhöggvara Jónssyni, að húa til líkneskið. Htúlka borfln. Týnd niður um ís. Stúlkan Quðrún Helgadóttir búandi að Jörfa í Húnavatnssýslu, lagði ný' skeð af stað heiman að frá sér, og hefir síðan ekkert til hennar spurzt. Telja menn líklegt, að hún hafl farizt niður um ís á svo nefndri Dalsá. Náinugröptur i Rauðukömbum. Frakkneskt félag kvað hafa falað all-stórt af- réttarland f svo nefndum Rauðukömbum. Sagt er, að félagið ætli að reyna þar, að grafa eptir málmum. Sauðárkrókslieknishérað. Um Saúðárkrókslæknishérað, sem nú er ó- veitt, hafa þsssir læknar sótt: Friðjón Jensson, HaVdór Stefánsson, Ingólfur Qíslason, Jónas Krist- jánsson og Magnús Jóhannesson. Uikli skáli á Þinyvöllum. Landstjórnin hefir nýlega selt br. Sigmundi Sveinssyni í Valhöli á Þingvöllum svo nefndan „Mikla skáia“, er |reistur var vegna konungs- komunnar árið 1907. Kaupverðið var þrjú þúsund krónur. Hr. Sigmundur Sveinsson ráðgerir, að kaupa gistihúsið Valhöll á Þingvöllum af félaginu, jsem nú er eigandi þess, og nota síðan viðinn úr Mikla- skála. til að stækka Valhöll svo, að þar verði góður gisti- og sumardvalar-staður. Tveir bændur verða úti í Húnavatnssýslu. Það hörmulega slys varð ný skeð, iið tveir hændur í Húnavatnssýslu, Björn Kristóierssyn á Hnausum og Björn'lSigurðsson á Litlu-GHljá, er lögðu af stað heim til sín, úr verzlunarstaðn-. um Blönduósi, að kvöldi 27. f. m. (febrúar) hrepptu verstu hlindhrlð, og urðu háðir úti. Björn heitinn var hróðir Sigurðar heitins á Húnstöðum, er dó voEoiflega 27. janúar þ. á., sbr. 6. nr. blaðs vors þ. á. — Hann var .real- stúdent, groindur maður, og vel metin, kvænt- ur ísfirzkri konu Söru Þorleifsdóttur úr Arnardal. Björn sálugi Kristófersson var hróðir Péturs heitins á Sjávarhorg, og einnig i röð merkari hænda í Hinavatnssýslu. Menn drukkna. Prakkneskur botnverpingur, sem er að veiðum hér við land, missti nýskeð fjóra menn útbyrðis, og drukknuðu allir. Tveir menn fórust og nýskeð af fiskiskipinu „Súlan“, er gengur til fiskjar frá Eyjafirði. Maður varð utf. Maður nokkur, Einar Sigurðsson að nafni, tómt- húsmaður úr Reyk avík, er lagt hafði á stað héðan suður f Hafnarfjirð 4. þ. m. (marz), fannst litlu síðar örendur á Hafnarfjarðarveginum, — lá lfkið þar þvert yfir götuna, og sáust á þvl talsverð meiðslí. Líkið fannst á veginum, er skammt var til Hafnarfjarðarhraunsins. Væntaniega hafa raeiðslin stafað af byltu, en eigi af hinu, að maðurinn hafi hlotið raeiðsl- in af manna völdura. Ýmsar málaleitanir til alþingis. Prá Jóhannesi S. Kjarval hefir alþíngi borizt umsókrr um 2000 kr. styrk, til að auka mennt- un sína í málaralist. Hann hefir beztu meðmæli frá Asgrími mált ara Jónssyni, og hefir látið hengja upp fáein málverk eptir síg í lestrarsal alþingis, og eru þau mjög snotur. Síra Olafur Ólafsson í Hjarðarholti befir sent alþingi umsókn um 2000 kr. árlegan styrk, til þess að halda framhaldsskóla fyrir fermd ung- menni. Skýrir hann frá því, að hann hafi áumliðnu ári byggt skólahús á heimili sínu af eigin efn- um, er kostað hafi, með áhöldum, um 4 þús. krónur, og hafi á síðastl. hausti byrjað að kenna þar 14 nemendum, flestum úr Dalasýslu. Frá Ingvari Eymundssyni Isdal á Seyðisfirði hefir alþingi horizt beiðni um öOOO kr. lán, með ðem vægustum kjörum, tíl að endurreisa tré- srafðaverksmiðju sína. er brann veturinn 1907. — Býður hann veð í húsi, sem hann ætlar sér að byggja, sem og í vélum. Frá Ben. Björnssyni á Húsavík hefir alþingi borizt beiðni um 600 kr. styrk, til að semja kennslubók í þjóðfélagsfræði, tjáist munu hafa 85 „Það er að líkindum af því, að hún er þegar gipta, sagði maðurinn. „Hver eruð þér?u spurði Hallur. „Einmitt sá maðurinn! Constance! Þú hefir eigi sagt manninum, hver eg er!“ Constance var nú orðin öll önnnr, roðin kominn aptur í kinnarnar, og sat hún þegjandaleg, en þó hugs- andi, i legubekknum. „Ert það þú B.alph?u mælti hún. „Þetta er hr. Hallur Gregory, sem eg sagði þér, að hefði hjálpað mér, er bifreiðinni hlekktist áu. „Jeg er yður mjög þakkláturu, mælti Ralph, og rétti Halli höndina, og tók Hallur ósjálfrátt í hana, en tók síðan að sýna á sér fararsnið. Ralph, eiginmaðurinn, sem nú var bominn til sög- unnar, brosti í sífellu, og Constance tók í hönd Halli að skilnaði, og sagði honum að vera sælum á þann bátt, að Halli duldist eigi, að öllu var lokið, sem þeim hafði á milli farið. „Óllu lokið!“ hugsaði hann, er hann gekk heimleiðis í bellandi rigningunni. „Gipt! — og maðurinn djöfull — það laa eg út úr augunum á honum! Yeslings Constance — veslings litla, hugþekka stúlka!“ XVI. Morðið. Af þremenningunum, sem staddir voru í herbergi 90 Mallabir samsinnti því. „Forvitni yðar óx um íallan "helming, er Gregory skýrði frá bví, að eg héti Bevington!u „Alveg rétt!u mælti Mallabar. Haldið áfram!“ „Það er að eius tvennt, er leiðir menn til glæpa, eða heimskupara: peningar og ást!u „Og er skáldlegt! Var það uagfrú Ratray, semjhér var aðal-undirrótin?“ Kenwood vis9i eigi hverju svara skyldi. „Nei, Það var eigi hennar vegna, að eg kom hing- að! En það er hennar vegna, að eg hefi dvalið hér svo lengi!" „Voru það þá peningarnirjsem ginntu yður hingað?u „Já!“ „Peningar Eleanor Ratray?u „Svo má að orði kveða, þó að það værunú reyndar peningar föður hennar!“ mælti Kenwood. „En jeg kýs fremur að byrja á upphafinu!“ „Já, það er réttast!u „Jeg var staddur í Ostende!44 mælti Kenwood, ept- ir dálitla þögn. „Jeg var þar peningalaus. — ÞáJJ hitti eg mann — við köllum hann Spicer! Hann hafði grætt í spilum, og voru þrir raenn með honum, er hann gekk út úr gárðinum, — Jeg sat þar í einu horninu, þar sem skuggsýnt var, — Jeg átti að eins hálfan tranka, ogvar að hugsa um, hvort eg ætti að drekkja mér strax, eða — jæja! Jeg sá, að þeir réðu allir ál hann, og skarst eg þá í leikinn. — Lögðu tveir á flótta, en þriðja hólt eg. — Svona atvikaðist það, að við hittum9t í fyrsta skipti!u „Þér og Spicer?u „Já!u

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.