Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.07.1914, Side 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.07.1914, Side 1
ÞJOÐVIL JINN 38.—39. m*. Reykjavík 31. júlí 1914. Hvað segja útl. símskeytin? ÞAU SEGJA: Ól’rið í aðsigi, - Al- baníu-íúrstann í nauð- um, — verkfall í Pét- ursborg. Símfregnir, er borizt hafa nýlega frá útlöndum segja Serba og Austurríkismenn hervæðast í gríð og kergju. Austuríkismenn telja morð hanz Fer- dinand’s og konu hans eiga rót sína að rekja til æsinganna í Serbíu, — þ. e. kenninganna um sameining allra Serba Drauminn um Stór-Serbíu telja þeir verða úr sögunni að hverfa. Og vopnunuin er þá ætlað, að færa Serbum heim sanninn um það, að slíkum draumum þeirra só aldrei ætlað að rætast. Líklega má þá vænta þess, að ófrið- ur byrji þá og þegar. En fari svo, — þá geta Rússar o. fi. orðið þar viðriðnir. Ekki blæs enn byrlega fyrir nýja Al- baníu-furstanum, Vilhjálmi frá Wied. Að vísu tókst honum, er hann (í önd- verðum marzmánuði þ. á.) var seztur að rikjum í Albaníu, vonum bráðar að koma á friði í Norður-Epírus. Hann veitti Epíringum all-frjálslega sjáifstjórn í héraða-, kirkju- og skóla- málum, og létu þeir sér það þá vel lynda og siiðruðu sverðin. En þá tók við annað, — eigi betra. í Albaníu ægir mjög saman ólikum þjóðernum, og kristnir menn þar og Mú- hamedstrúarmenn hata mjög hverir aðra. Furstanum tókst eigi að gera þar öll- um til hæfis, og fór þá svo, að ailt log- aði þar óðar í uppreisnarbáli. ViUijálmur fursti varð að flýja höll sína í Durazzo og koma sér út í ítalskt herskip, til þess að bjarga lífi sínu og sinna þá í svipinn. Hann komst að vísu aptur í land litlu siðar. En uppreisnina fékk hann eigi bælt mður, heldur óx hún hröðum fetum dag frá degi. Og nú mega uppreisnarmennirnir eigi annað heyra, en að hann hrökklist þegar alveg burt úr landinu! Þeir eru þegar orðnir meira en full- saddir af nonum. En hvað gera nú stórveldin, er studdu hann þar til ríkis? Leyfa þau að hann hverfi þaðan og jkomi þar aldrei framar? Váíryggið eigur yðar (hús, húsgögn, vörur o. fl.) fynr eldsvoða í brunabótal'élaginu „General” stofnsett 1885. Aðal-umboðsmaður fyrir Island: Sig. Thoroddsen adjunkt. Umboðsmaður fyrir Norður-ísafjarðar- sýslu er Jón Hróbja'itsson verzlunarstjóri. í>á segja nýjustu símskeytin frá út- löndum enn fremur frá afskaplegu verk- faili i Pétursborg. Yerkfallsmenn þar um 250 þúsundir. í>ar má lögreglan þá halda á spöð- unum um þessar mundir, eigi ekki verra af að hljótast, er minnst varir. En þegar gætt er öfundarinnar og heiptarflóðsins, sem ólgar undir í garð allra, sem betur eru settii, þá má lítið út af bera. Minnsti agnar-neistinn getur orðið að alóslökkvandi loga-báli á hverri stundu. Reynist herliðið þá eigi traust, hvar getur þá lent? Nýr ófrlðnr byrjaður. Serbar og Austurrikismenn berjast. Svo er nú komið — sbr. greinina hér á undan —, að strið er nú byrjað milli Austurríkismanna og Serba. Ófridur inn hófst ad kvöldi laugardags- ins 26. júlí þ. á. Stjórnin í Austurríki hafði krafizt þess, að stjórnin í Serbíu gæfi ákveðin svör og loforð viðvíkjandi skjali frá stjórninni í Austurríki, áður en miðaptan væri kom- inn (þ. e. fyrir kl. 6 e. h.), þá um daginn. Slík svör eða loforð gaf stjórnin í Serbíu eigi svo ákveðin, sem þurfa þótti, og hvarf sendiherra Austurríkismanna þá tafarlaust heimleiðis frá Belgrad, og Austurríkismenn byrjuðu þá þegar stríðið. Daginn eptir, þ. e. sunnudaginn 26. júli þ. á., flýði stjórnin í Serbíu síðan burt úr Belgrad (höfuðborginni) og flutti búslóð sína til Kragujevac. En Kragujevac er borg i miðju landi, nokkiu sunnar en Belgrad — ibúar þar um 16 þús. —, og sátu Serba-furstar þar fyrrum, þ. e. alla hríð til 1842. XXVIII. árg. Yeriiir Evróp-stríð ? Margir eru hræddir um, @ð út af' ó- friðinum milli Austurríkis og Serbíu, geti spunnizt almennur norðurálfn-ófriður, þ. e. ófriður, sem stórveldi álfunnar öll, eða þó nokkur. geta orðið við riðin. Serbar eru skjólstæðingar Rússa, og fregnir hafa þegar borizt þess efnis, að Rússar búi nú og her sinn sem ákafast. En fari svo, að Rússar snúist gegn Austurríkismönnum, geta þá bandamenn Austurríkismanna, Þjóðverjar og ítalir, látið ófriðinn hlutlausan? Og grípi Pjóðverjar til vopna. munu Frakkar, bandamenn Rússa, þá láta tæki- færið ónotað? Munu þeir eigi minnast forns fjandskapar og hyggja þá á hefnd- irnar? Vist er um það, að enn hafa þeir eigi ; gleymt óförunum í fransk-þýzka stríðinu (1870—71). En verði Frakkar við ófriðinn riðnir, þá er líklega mjög hæpið, að vinir þeirra, Bretar, þykist geta haldið að sér höndum. Sem stendur eru horfurnar því svo íllai', sem unnt er. Eigi annað sýnna, en að megnið af norðurálfunni allri, geti, er minnst varir, logað í ófriðarbáli. Vonandi gera þó betri menn þjóðanna, og eigi fátt blaðanna, hvað unnt er, til að hepta að svo fari. En því miður eru horfurnar þó geig- vænlegri, en nokkuru sinni fyr. Engu þorandi að spá í þá áttina, að friðsamlegar skipizt, en á horfist. Afleiðingarnar. (Vörur og peningar stiga i verði.) Ófriðar-óttinn, sem gripið hefur hugi manna í norðurálfunni, hefur þegar, sem vænta mátti, haft að mun lamaiuli á- hrif á peningamarkaðinn og á verzlunina. Komvörur og fleiri nauðsynjavörur hafa þegar hœkkad ad mun i verdi erlendis.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.