Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.07.1914, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.07.1914, Qupperneq 2
134 .ÞJOÐV ILJINN. XXVIII', 38.-39’ ÞJÓÐVILJINN. Vorð árgangsins (minnst 60 arkir) 3 kr. 60 a., erlendis 4 kr. 60 a. og i Ameriku doll.: 1,60. Borgist fyrir júnimánaðarlok. Uppsögn skrifleg ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 30. dag júnímánaðar og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína yrir hlaðið. Og þá þarf eigi að sökum að spyrja, að því er til peningavaxtanna kemur. Mörgum mun það enn ininnisstætt, hversu ísl. bsendur, verkamenn o. fl. o. fl. urðu um hríð að borga mun hærri banka- vexti, en áður var, vegna ófriðarins, þ. e. óargadýrs hátternisins, á Balkanskag- anum. Og nú eigum vér þá enn að hirtast að nýjn, lítilmagnarnir, af því að vér megnum eigi að hepta styrjalda-ófögnuð- inn, sem byrjaður er milli Serba og Aust- urríkismanna, og öðrum var eigi sídur skylt að fyrirbyggja, enda oss um fœr- ati, sem engin höfum tökin. En verst af öllu er þó, bætist það nú hér ofan á, að ýms stórveldanna — vegna þarfa hersins og til þess að vita sér og sínum, sem bezt borgið, hvað sem í skerst — faia ad finna upp á þvi, ad banna útflutning ýmsrar nauðsynja- vöru, sem enginn má án vera. Fari svo, þá er íllt, að vera eigi byrg- ari en vér Islendingar erum. En svo er þó komið, að ýms brezk verzlunarfélög hafa þegar neitad að sinna vörupöntunum að svo stöddu. Hver brögð verða að þessu, verður eigi sagt frekar, sem stendur. Betur að hér rættist og betur úr, en á horfist. Nýr ráðherra skipaður. 21. júlí þ. á. veitti Christian konuug- ur X. hr. H. Hafstein lausn frá ráðherra- embættinu og tjáði honum þakkir sínar, sem venja er orðin. Sama dag skipaði konungur síðán Sigurd sýslumann Eggerz, alþm. Vestur- Skaptfellinga, sem ráðherra íslands. Englendingurinn dr. A. M. Low hefur nýlega fundið upp tæki til þess, að þeir, sem sím-samtal eiga, geti þá og séð hvor annan, ef vilja. Tæki þessi gerir hann sér og von um, að geta sett svo í samband við þráðlausu •íma-samtals-áhöldin, að séð verði þegar, ef skip er í hættu á sjónum, í hverju háskinn er fólginn, — þ. e. allt séð, sem þar gerist. Fregnir frá Alþingi. II. Bjargráðasjóðslögin. Á þingfundi neðri deildar (20. júlí þ. á.) varð sú niðurstaðan, að breyta í engu bjargráðasjóðslögunum að þessu sinni, en að skora á hinn bóginn á bjarg- ráðasjóðsstjórnina, að leita álits allra sveitarnefnda á landinu um málið, er rætt verður þá á Alþingi næst (1914). Meiri hluti nefndar, er neðri deild skipaði, hafði þó lagt það til, að lögun- um væri þegar breytt í þá átt, að fé það, er hrepparnir (og bæjarfélögin) gjalda, yrði þegar séreign hvers þeirra. — En tillaga þessi náði þó, sem fyr segir, eigi fram að ganga, — var felld í deildinni með 13 atkv. gegn 7. Kosning borgarstjóra í Reykjavík. Frumvarpið um kosningu borgarstjóra í Reykjavík gekk mótstöðulaust og um- ræðulítið gegnum neðri deild, — gert ráð fyrir, að hann sé kosinn af öllum at- kvæðisbærum borgurum kaupstaðarins, enda hafi minnst 50 kjósendur mælt með kosningu hans. Nýr verzlunarstaður. (Stóra-Fjarðarhorn í Strandasýslu). Frv. um löggildingu Stóra-Fjarðar- horns i Kollafirði í Strandasýslu, sem verzlunarstaður, hefur hr. Magnús Pét-' ursson borið fram í efn deild. Toll-lögin. (Tollsvik varði missis verzlunarleyfis). Frv. í þá áttina, er hér að ofan greinir, hefur síra Sig. Stefánsson borið fram í eíri deild. Botnvörpuveiðalögin. Síra Kristinn Daníelsson hefur í efri deild borið fram frv., er fer í þá átt, að hækica sekta-ákvæði laganna um bann gegn botnvörpuveiðum (nr. 86, frá 6. apríl 1898). Vega-Iögin. (Breyting á þeim). Þingmenn Árnesinga og Rangvellinga vilja fá vegalögunum breytt í þá átt, að landssjóður kosti viðhald flutningabraut- arinnar frá Reykjavik austur um Árnes- sýslu yfir Ytri-Rangá í Rangárvallasýslu, svo og viðhald brúnna á téðri leið. Engir aðstoðarlæknar á Akureyri og ísafirði. Guðm. Hannesson vill breyta lækna- skipunarlögunum á þá leið, að hætt sé, að hafa aðstoðarlækna á Akureyri og í Isafjarðarkaupstað, — telur þá óþarfa. Ný flutningabraut. (Hafnarfjarðarvegurinn). Frv. borið fram í efri deild (Kr. Dan.) þess efnis, að vegurinn milii Reykjavíkur og Hafnarfjarðar sé tekinn í tölu flutn- ingabrautanna, og kostaður þá að öllu úr landssjóði. Afnám eptirlauna. Þm.' Barðstrendinga (Hákon Kristó- fersson) |vill að stjórnin leggi fyrirnæsta þing frv. um afnám allra eptirlauna, þ. e. næsta þing eptir það, er nýja stjórnar- skráin fær gildi. Kennara-stóll i Klassiskum fræðum. Frv. þess efnis, að stofna kennara- embætti í fornmáiunum (latínu og grísku) borið fram í efri deild. Kennarinn njóti allra sömu réttinda, sem docentar við háskólann njóta. Flutningsmenn frumvarpsins: Karl Einarsson, Magnús Pétursson og Sig. Stefánsson. Hvalveiðamenn. Síra Sig. Stefánsson hefur i efn deild bonð fram frv. þess efnis, að bannákvæði laganna um hvalveiðamenn frá 22. nóv. 1913 komi eigi til framkvæmda, að því er snertir hvalveiðamennina, sem nú hafa hér fastar stöðvar, enda auki þeir eigi tölu hvalveiðaskipa sinna fram úr því, sem nú er. Þingsköp Alþingis. (Þ. e. breyting á þeim). Frv. um ýmsar breytingar á þing- sköpunum borið fram i neðri deild. Futningsmaður Einar Arnórsson o. fl. Nýtt prestakall. (Hóll í Bolungarvík.) Ritstjóri blaðs þessa (Sk. Th.( hefur í neðri deild borið fram frv. þess efnis, að gera Hólssókn í Bolungarvík að sér- stöku prestakalli. Lögunum þó eigi ætlað að koma til framkvæmda, fyr en prestaskipti verða í Isafjarðarprestakalli. Landsdómurinn. (Breyting á honum.) Frv. í þá átt borið fram i neðri deild af Bjarna frá Vogi og Einari prófessor. Kirkjugarðurinn i Reykjavik. (Eignarnám til stækkunar honum.) Frv. borið fram í neðri deild af þing- mönnum Reykvíkinga, eptxr beiðni bæjar- stjórnar. Löggiltir endurskoðnnarmenn. Sama frumvarpið, sem neðri deild Al- þingis fjallaði um í fyrra, og þá varð eigi útrætt, hefur í ár verið borið fram í neðri deild. Flutningsmaður Bjarni frá Yogi. Dómtúlkar og skjalaþýðendur. Frv. þetta er og uppvakningur frá síðasta Alþingi, Fiutningsmaður Bjarni frá Vogi. Ráðherra-eptirlaunin. (Afnám þeirra.) Frv. í þá átt, að ráðhérra-eptirlaunin skuli afnumÍM, ,er stjórnarskráin fær gildi, borið fram í neðri deild af Guðm. Eggerz, Jóni á Hvanná o. fl.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.