Lögberg - 24.09.1892, Síða 1

Lögberg - 24.09.1892, Síða 1
Lögberg er gefið út hvern miSvikudag og laugardag af THF. LÖGBF.RG PRINTING & PUBLISHING CO. Skrifslofa: AfgreiSsl ° stofa: PrentsmiSja 573 Main Str., Winnipag Han. Kt; $2,co uni irift (; JsUidi 0 1 r Borgist fyrirfram.—Einstiik númer 5 c. Lögbkkg is published every Wednestay and Saturday by Tnr. Lögberg printing & pubi.ish inc co at 573 írain Str., Winnipog Man. ubseription price: $í,ÖO a year payakle n advance. Single cayies 5 c. 5. Ar. WINNIPEO, MAN., LAUGAEDAOINNU- SEPTEMBER 1892 GEYSI MIKIL JAKKA-MOTTLA S ALA. Nykomnar byrgðir af dömu- og barna vetrar-möttlum og jökkum, innfluttar frá Berlin, París og London.' Dömn Jakkar á $2.75, 3.50 og 5.00 °g upp. Barna vetrarkápur og Jakk- ar á $1.50, 2.60,2.75 og upp. Billegasti staður að kaupa „Dry Goods“ er lijá fill'Sln & Oo. 344 Main St. FRJETTIR Kólekan. í New York gera menn sjer allt af betri og betri vonir um, að takast muni að varna útbreiðslu kólerunnar. Rngir hafa dáið eða sýkzt af pestinni f>ar í barginni, síðan síðasta blað vort kom út. í Topeka í Kansas eru menn all- hræddir um, að kóieran muni þangað komin. Nokkrir menn ltafa sýkzt par af veiki, s«m að minnsta kosti líkist mjög kóleru, byrjar með ofsalegum niðurgangi, og þar á eptir koma iðra- kvalir og áköf uppaala. Engir hafa pó enn dáið par úr þessari sýki. Frá Montreal er ritað 20. þ. m. „Ef sveitirnar umhverfis Montraal fá kóleru, pá verður það ekki pví að kenna, að þær liaii vanrækt að hafa varúð í frammi. Af pTí að þyzka gufuskipið Wandrahn liggur í sótt- verði á höfninni hefur bæjarstjórinu I Longueuill skipað lögregluliðinu og slökkviliðinu í röð fram með ánni. Enginn inaður, sem mælir á þýzka tungu fær að lenda, og á flóðgarðinum er g-ufuvjel reiðubúin til að hella ▼atnsstraumum yfir hvern vesaiings Djóðv.rja, sem kynni að reyna að ganga á land þar.“ Fjelag t’anada-lækna hefur verið að halda fund í Ottawa nú í vikunni og var kóleran umræðuafnið par einn daginn, eins og nærri má geta. Car- ling, ráðherra innanlanditnála, var 4 fnndinum og hjelt ræðu. Hann skýrði frá varnarráðstöfunum þeim s«m gerð- ar hafa verið gegn því að sýkin kom- ist, inn í landið, eða útbreiðist, ef hún kenaur, sagði, að menn byggjust við henni alvarlega með "orinu, og að stjórnin vasri við því búin, enda mundi ekkert verða til sparað að verjast. Óskaði jafnframt eptir bendingum úr sem allra flestum áttum. Einn lasknir frá Victoria, B. C., kvartaði undan því að só.ttvarnar-ráðstafanir á Kyrrahafi- ströadinni væru ófullkomnar, og skor- aði mjög fastlega á stjórnina, að banna allan Kínverja-innflutning til Victoríu, «f kóUran skyldi gera vart við sig í Kína. í Ilamborg heldur kóleran áfram, en er þó ekki eins voðaleg hina síð- ustu daga eins og að undanförnu. Á fimmtudagi«n,síðastadaginn,semmenn vita um, þegar þetta er skrifað, sfkt- ust ekki neaia423 af pestinni og 158 dóu; 291 kólerusjúklingar voru grafn- ir og 2,777 lágu á spítölunum. Ofan á kóleruna í borginni hefur nú bastzt allskæð taugaveiki, haldið að um 300 manns eða fleiri muni vera lagztir í henni, og er það mest kennt fátækt þeirri Og eymd, sem á sjer stað meðal verkalyisins. Sagt er, að aldrei í sögu Hamborgar muni fátæklingar þar hafa átt eins bágt og nú, og neyð- in fer stöðugt vaxandi. Nálega allar atvinnugrainir bæjarins liggja í dái, og þúsundir af verkamönnum, seai ekk«rt hafa á að treysta, nema sitt daglega strit, fyrir sig og fjölskyldur sínar, geta ekki unnið sje inn nokkurn skilding. CANADA. Bóluveikin er komin upp í Port Arthur. Um miðja þessa viku dó maður par úr henni, og síðan hafa tveir sykzt. Fulltrúar frá hinum ymsu deild- um af biskupakirkjunni ensku i Ca- nada hafa setið á þiugi í Montreal fyr- irfarandi daga, og verið að sameina þær í eina aðaldeild. Þinginu er enn ekki slitið. Fólk pað iem g«ngið hefur út úr Sáluhjálparheruum í Toronto hefur nú stofnað nyjan trúarbragðaflokk, lem kallar «ig „United Christian Workers.“ Foringinn fjrir uppreist- inni í Sáluhjálparlmrnum, Philpottað nafni, hefur verið gerður að forseta þessa nýja trúarilokks. Bautouche, ofurlítið sjó þorp í N«w Brunswick. brann sro að segja allt til kaldra kola þ. 22. þ. m. Hald- ið að einliverjir fantar hafi kveikt i því viljandi. Engin búð er eptir I bænum og 6 hótell, sem voru, fórust öll.______________________ Mr. Greenway, stjórnarformaður Manitoba er um þessar mundir í Ott- awa til þess að bera ráð sín saman við Detvdney, ráðherra innflutningsmál- anna. Sem stendur hafa sambands- stjórnin, Manitobastjórnin og Kyrra- hafsbrautar-fjelagið canadiska hvert sína agenta á Stórbretalandi og hjer og þar annars staðar til þess að fá inn- flytjendur. Mr. Greenway þykir sam- vinnan inilli þessara agenta ekki vera sem bezt, og hyggur að meira mætti til v«gar koma og með minna kostn- aði, ef samtökin væru betri. Búizt er við, að liann muni komast að samn- ingum í því efni við Mr. Dewdney. í tilefni af embættis-afsögn Ab- botts, setn menn búast við áður «n langt um líður, hefur mikið verið tal- að um að taka Meredith, leiðtoga stjórnarandstwðinganna í Ontario- þinginu, inn í sambandsriðaueytið, og allmiklar líkur til að það kunni að verða g«rt. t>að er allmerkilegt at- riði fyrir þá skuld, að það er alkunn- ugt að Meredith er mótfallinn tví- skipta. skólafyrirkomulaginu, hvar sem pað er hjer í Canada, og fyrir því hef- ur hann lent í ónáð hjá kaþólsku kirkjunni. Sagt er að fjrr hafi kom- ið til orða að taka hann inn í ráðaneyt- ið í Ottawa, en yfirmenn kaþólsku kirkjunnar liafi fengið því afstyrt. Verði liann nú gerður að ráðherra, þá pyðir það vafalaust pað, að stjórnin ætlar ekki að hlutast neitt til um skólamál Manitobafylkis. Það virðist s«m sje alveg óútkljáð enn, livernig stjórnin ætlar að snúa sjer í því máli, að minnita kosti li«fur það ekki ver- ið látið wppskátt, svo að nokk- ur trúaaður sje á það leggjandi. Dað liggur við að segja megi, að allt af koníi annan daginn fregn um að hún ætli að taka í strenginn með kaþólskum mönnum, og gvo liinn daginn, að hún ætli að láta skólamál- ið afskiptalaust. Eitt er áreiðanlegt: að itjórnin er í standandi vandræðum; prótestantar í austurfylkjunum verða æfir og uppvægir, þ«gar á það er minnzt að fara að neyða kapólikum alpyðuskólum, styrktum af almenn- ings fje, upp á Manitoba; og kaþólsk- ir menn krefjast þess harðlega af stjórninni, að hún rjetti hluta sinn, »em þeir segja að hafi verið fyrir borð borinn með rangsUittni af Manitoba- stjórninni og leyndarráði Breta. Svo fast er þetta mál sótt frá báðum hlið- um, að það þarf sjálfsagt mjög mikla lægni «g stjórnkænsku til þess að láta það ekki verða til að rjúfa aptur- ha.ldsflokkinn til fulls. BANDARÍKIN. öruggar kvennrjettarkonur hj«ldu fund í Washington nú í vikunni, og tilnefndu iln eigin forseta- og vara- forseta-efni fyrir Candaríkin. For- seta-efai þeirra heitir Mrs. Victoria Woodhull Martin,og er frá New York, og varaforseta-efnii Mrs. L. Stow frá Californíu. Ekki höfðu þær afráðið, þegar síðast frjettist, í hverjum ríkj- unum pær sjerstaklega ætla að leita atkvæða fjrir forseta-efni sín. Kóleran er farin að hafa áhrif á vinnukonukaup í New York. At- vinnu-stofurnar þar hafa stöðugt liaft nóg á boðstólum af írskum, þyzkum og svisineskum stúlkum, nykomnum til landsins. En með þrí *ð alveg befur tekið fjrir þann innflutning vegna kólerunnar, er vinnukonu-ekla orðin mikil í borginni. Fram að þessu hausti hefur verið auðvelt að fá stúlk- ur til »ð gera almenn vinnukonuverk fyrir $14 um mánuðinn. Nú er kaup- ið komið upp í $16, $18 og $20. Samkvæmt ny-útkomnum skýrsl- um akuryrkjumála-stjórnarinnar í Washington, verður hveitiuppskera Bandaríkjanna í ár lijer um bil í með- allagi. Hafra-uppskeran þar á móti verður mjög ryr, svo að menn vita ekki til að hún hafi nema einu sinni verið eins lítil. Sömuleiðis eru kart- öflur einkar ryrar, hafa að eins tvisvar verið ryrari. Fj rir nokkrum árum síðan lystu Mormónar í Utah yfir því, að þeir hefðu horfið frá fjölkvæniskenning- unni. Samt sem áður á fjölkvæmið sjer þar enn stað, eptir því sem skyrt var frá nú í vikunni af nefnd þeirri sem rannsaka á ástandið í Utali. Á síðasta ári hafa 69 menn verið dæmd- ir þar fyrir fjölkvæmi. Annars lætur nefndin, af framförum og hagsæld þar í terrítóríinu. ÚILðND. Nystárlegt ábyrgðarfjelag liefur myndazt í Lundúnum á Englandi. Það ábyrgist mönnnm, að þeir skuli ekki eignast tvíbura nj« þríbura. Kvæntnr maður, sem á von á að eignast barn, borjar 5 pd. aterl. fyrir ábyrgðarskjal sitt. Eigi svo kona lians tvíbura, fær hann £50. En eigi hún þríbura, fær hann £75. Á miðvikudasrinn var voru 100 ár liðin síðan lyðveldi var itofnað á Frakklandi í stjórnarbjltingunni miklu, og var mikið um dyrðir í París í tilefni af því afmæli. Meðal annars óku menn um borgina í tveim pró- sessium í 18. aldar búningi, og voru þar syndir ymsir af helztu mönnum þeirrar aldar, þar á meðal Washing- ton. Allt hátíðarhaldið er sagt að hafi kostað uin $60.000. ARABISKT ÆVINTÝRI urn kóleru-hrœðsluna. Preitur nokkur reið asna sínum til borgar einnar. Allt í einu kom hann auga á eitthvert hræðilegt fer- líkan, sem honum virtist mundi vera á leiðinni til sömu borgarinnar. Piest- urinn varð svo yfirkominn af hræðslu, að það lá við, að hann rnissti m«ðvit- undina, en að l«kum herti hann upp hugann og hrópaði til ófreskjunnar : Iíver ert þú, og livert ertu að fara?“ Ófreikjaa svaraði: „Jeg er kóleran. Guð sendi mig til borgarinnar til þess að tortlma öll- um syndurunum þar“. „Hvað eru margir syndarar í borg- inni ?“ „500“, svaraði ófreskjan. „Vinn pú þá eið að pví“, sagði presturinn, „að þú ætlir ekki að tor- tíma fleirum en þessum 500“. Ófreskjan vann eiðinn frammi fyrir guðsmantii þessum. Preiturinn tók ferlíkanið því næst upp á asna sinn og flwtti það sjálfur til borgarinnar. Þar kvöddust þau, en samt ljet presturinn ófreskjuna apt- ur endurtaka eið sinn. Nokkru síðar hj«lt presturinn á- fram ferð sinni, en áður en liann fór úr bænum, leitaði liann sjer upplys- inga um, hve margir af íbúum bæjar- ins hefðu látizt af kólerunni. „3,000“, var lionum sagt. „Og bölvaður draug»rinn“, hróp- aði presturinn, „pú hefur pá svikið mig“. Nokkra síðar mætti liann ófreskj- unni á förnum vegi. Hann ávítti hana þá liarðlega og dró ekki af því, sem honum bjó í bijósti. En ófreskjan sór þess dýran eið, að liún hefði hald- ið loforð sitt, og ekki svipt burt nema 500 mönnum. ' „Allir hinir“, bætti ófreskjan við, „dóu úr hræðslu og engu öðru“. HITT OG DETTA. — Að ári á að g«fa páfanum fá- sjeða gjöf—hásæti úr gulli. Hinir æðstu kaþólsku klerkar hvervetna um heiminn leggja saman í gjöfina. Hún á að kosta 500,000 franka. — Degar kompónistinn Aime Maill- ard var í skóla,var honuui einu sínni á- satnt sambekkingum sínum s«tt fyrir af málsnildar-kennaranum að skrifa ritgerð með fyrirsögninni “Lof iðju- lejsisins. “Degar komið var að því, að skila skyldi stílunum, gerðu allir það nema Maillard. “Jeg hef ekk«rt fengið frá þjer“ sagði kennarinn. „Hjer er það,“ svaraði Maillard, Nr. 68. Lj erept --o-- Opnað I dag! geysi byrgðir af Ijerepja dúkum sendarCraig & Co. beina leið frá Belfost, írlandi Blakkaðirogóblakk- aðir borðdúkar og printdúkar, mjög fallegir og á öllum prísum. Durkur og þurkuefni og leir- tau dúkar, það billegasta i bænum. “Browo Hollandi“ af öllum tegundum Agætir ljerepts vasaklúta. Djer sparið töluverða peninga með því að kaupa þessar vöru* tegundir hjá oss. Detta eru vörur sem stór-kaup- mennirnir græða mikið á. Með því að flytja vörurnar inn beint frá verk- smiðjunum p&spör- urn vjer yður þenn- an ágóða. Hugsið þessvegna um yðar eigin hagnað og kaupið af oss boið- dúka, pentadúka, vasaklúta gardínur og allar tegundir af “Lin«n“ dúk- vöru. GEO.CRAIG 522,524,526 MAIN STR lagði pappírsstranga á borð keunar- ans, og fór svo aptur í sæti sitt. Kennarinn rakti sundur blöðin, hvert eptir annað; en hann sá ekkerv annað en óskrifaðar síðurnar. Svo sneri hann sjer reiðulega að læri- sveininum og sagði: „Hvað er þetta? ertu að gera gabb að mjer?“ „Nei,“ svaraði Maillard stillilega. „Jeg hjelt að eins, að það æðsta lof, seni jcg gæti lokið á iðjuleysið, væri það áð gera alls ekkert sjálfur.“

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.