Lögberg - 25.03.1897, Síða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 25. MABZ 1897.
7
SVIKIN.
Framh. frá 2. bls.
IV.
Svo leið tlminn undur mjftklega,
að Ástu fannst, og loks kom kveldið
kins 30. júní—kvöldið fyrirbinn fyrir-
bugaða brúðkaupsdag. Brúðarskartið
var löngu fullgert, „giptingar kakan“
var J>egar keypt, og ekkert var ógert,
utau hin helga athöfn, til J>ess að
Harrington og Ásta væru einn maður
að guðs og manna lögum.
Klukkan sjö um kveldið fór Sig-
riður út I bæinn, og sagðist mundi
koma seint heim, f>ví hún hefði svo
íjarskalega mikið að sysla. Ásta var
F>ví ein heima og beið óf>reyjufull
eptir unnusta sínum; hún var viss um
að hann mundi koma, en hann' kom
nú seinna en hann var vanur. Klukk-
an sló átta og ekki kom liann. Ásta
stóð við gluggan á litlu stofunni og
einblíndi út á götuna, pangað til
klukkan sló níu—og enn kom hann
ekki. Svo kveikti hún á lampanum,
tók siðan upp brúðarskartið og fór í
J>að, til að sjá enn einu sinDÍ, hvernig
í>að færi sjer. Þegar hún var nýbú-
tn að pví var lokið upp dyrunum og
unnusti hennar staðnæmdist frammi
fyrrir henni, horfði á hana um stund
brosandi, tók hana svo í fang sjer og
kyssti hana. Svo seitust þau niður á
legubekkinn hlið við hlið; hann lagði
annan handlegginn utan um hana, og
hún hallaði höfðinu upp að brjósti
hans. Eptir litla stund fór hann að
tala við hana um hinar björtu fram-
tlðar-horfur þeirra. Hann 1/sti svo
fagurlega fyrir lienni hinu þægilega
°g fríðsama heimili, sem hún yrði
sezt að f eptir fáa daga; þar væri allt
uú þegar tilreitt, sem hún gæti óskað
eptir, og allt væri f>ar svo unaðsríkt.
Ö, hvað hann skyldi verða henni
elskulegur! Ó, hvað liann elskaði
hana heitt! Ó, hvað hún væri nú
yndisleg, og blómleg og fiíð! Ó,
hvað f>að væri sælt að elska og vera
elskaður f>ar, sem maður væri umvaf-
inn þægindum lífsins og fegurð og
unaðsemd. Já, sambúð þeirra skyldi
allt af vera eintómur friður, eintóm
sæla, og eintóm ást og blíðu-atlot.
Aldrei annað, nei, aldrei, alclrei, aldrei!
Svo kyssti hann hana aptur og
aptur; en grúfði húu sig betur og fast-
ar inn í barm hans. Og allt af hjelt
hann áfram að leiða henni fyrir sjónir
hina unaðsfullu ókomnu æfi hennar;
°g allt af varð framtíðin bjartari og
hjartari fyrir hugskotsjónum hennar;
hún einblíudi á þessa Ijómandi og
sælufullu fraintíð; hún sá ekkert ann-
að f>á í svipinn, og hún gleymdi öllu
öðru—gleyœdi f>ví jafnvel, að hún
ætti eptir að gipta sig. Hún var J>eg-
ar komin í stóra skrauthýsið í New
^ork, og farin að njóta hinna marg-
hreyttu unað&emda, sem auður og
upphefð getur látið í tje. Og svo
fjell húu smátt og smátt í einhverja
öumræðilega værð; hún fór að hætta
geta hugsað; hún heyrði að eins
hin mjúku, indælu orð unuusta síns;
ó, f>au voru svo átakanlega mjúk
°g bllð, og svo gegnum-smjúgandi!
Og hún gat ekki annað en hlust-
að á mjúku oiðin, og horft á fögru
°g margbreyttu myndina, sem hann
var allt af að skýra betur og glöggar
fyrir hngskotsjónum hennar.
Svo fór hann allt í einu að
®trjúka augabrjfrnar og augnalokin á
Astu, með þeirri hendiuni, sem ekki
var utau um hana. Og hann strauk
augnalokin svo makalaust hægt og
ft'júklega, og hann hjelt allt af áfram
að tala á tneðan, en allt af í lægri og
lægri róm, og allt af með meiri og
“'eiri blíðu.
Og allt af færðist hún i sætari
værð; svo varð værðin að notalegum
fivala, og loksins varð dvaliun að
Svefn-móki.
„C>ú eit að sofnn, elskan mín—
yndið mitt“, sagði hann; „æ, noíðu
sofðu vært, elskuleg — sofðu—
®ofðu ofurlitla stund. t>að er svo
sætt að sofna, þegar maður er syfjað-
Ur> f>að er svo unaðsfullt að dreyma—
að dreyma um ást, að dreyma um
J>ann, sem maður elskar svo heitt.
Já, sofðu dálitla stund, yndið mitt
besta—jeg skal vaka yfir f>jer og
kyssa f>ig sofandi, ástin mfn. Sofðu
vært—sofðu og láttu J>ig dreyma.
Já, nú sefurðu—nú dreymir f>ig ‘.
Svo hallaði hann henni út af á
legubekkinn og settist fyrir framan
hana; og alltaf hjelt hmn áfram sínu
ljúHingsmáli. Hann tós svo vinstri
Jiönd hennar, og með dæmrlausri lip-
urð og varkárni náði hann trúlofunai-
hringnum fram af fingrinum; svo tók
hann með sömu lipurðinni og var-
kárninni gullmenið af hálsi hennar,
og ljet hvorutveggja í vasa sinn.
Svo laut hann ofan að henni sem
snöggvast til að sjá, hvort hún væri
nú verulega sofnuð, og Jogar hann
var viss um, að hún var sofnuð, J>á
læddist hann að dyrunum, opnaði f>ær
hljóðlega og skauzt út I náttmyrkrið.
Ásta lá eptir hreifingarlaus á
legubekknum. Hún var, sem menn
segja, milli svefns og vöku. Hún
varð vör við allt J>að, sem fram fór —
að hann tók af henni hringinn og
menið — en hún gat f>ó ómögulega
hreift sig. Henni fannst svo sætt að
sofa, og J>ó svaf hún ekki eiginlega,
en hugsunar-afl hennar var algerlega
í dái.
Sem sagt, hún vissi af f>ví, að
Harrington tók af henni hringinn og
menið og fór út með f>að, og henni
fannst f>að alls ekkert undarlegt, f>á í
svipinn. Eða með öðrumorðum: hún
var í J>ví ástandi, að hún gat ekki
hugsað eða hreift sig, en vissi J>ó af
sjer, og varð f>ess vör, sem fram fór í
kringum hana.
Það er alls ekki sjaldgæft, að
veikbyggt fólk —jafnvel s^nilega
hraustir menn—-lendi I þannig lagað
ástand undir vissum kringum stæðam;
og margir vita hvað J>að er, sem menn
kalla: „milli svefns og vöku“.
Harrington hafði komið í þvotta-
húsið kl. 15 mínútur eptir 9, og fór
f>aðan aptur hjer um bil kl. 11 um
nóttina, svo hann hefur haft nær því
tvo tíma til að láta ljúflingsmál sitt
hnfa á Ástu. En fáum mínútum
eptir að hann fór, kom Sigríður heim,
og ennþá lá Ásta I sama mókinu á
legubekknum. Svo vakti Sigtíður
hana, eða öllu heldur dreif hana upp
af legubekknum, til að fara að hátta.
Ásta var eitthv?ið svo undarleg;
hún minntist ekkert á komu Harring-
tons, og ekki heldur ljet hún í ljósi,
að hringurinn og menið væri horfið.
Hún dreif sig bara ofan í rúm og fór
að sofa. Síðar um nóttina vaknaði
hún með óráði,—talaði um stóra hús-
ið sitt í New York—að J>að væti að
brenna, að f>að væri að sökkva; og
svo kallaði hún á Harrington, hálf-
blíð—hálf gremjufull.
Morguninn eptir vaknaði liún
eins og hún átti að sjer, að f>ví leyti,
sem Sigríður gat sjeð; en hún var f>ó
fámálug og dæmalaust föl f andliti.
Hún minntist enn ekkert á brúðar-
skarti eða brúðkaup; en gerði að eins
pegjandi pað, sem frænka hennar
sagði henni að gera.
Svo leið fram á hádegi, og ekki
kom brúðguminn í lukta vagninum,
sem Sigríður bjóst við að sjá koma
að dyrunum á hverju augnabliki.
Sigríður fór að verða meira og
meira óróleg, fór að verða skjálfheut
og hvít í framan; en Ásta var allt af
svo stillt, eins og hún ætti ekki von
á neinum — eins og hún hugsaði
ekkert.
Svo leið dagur að kveldi, og svo
leið nóttin og næsti dagur kom, en
ekki bólaði 4 brúðgumanum, og ekki
kom brjef eða orðsending frá honum.
I stuttu máli: hann kom aldrei; og
hvorki Ásta nje Sigríður frjettu nokk-
urn tíma neitt um hann framar.
t>að er alls ekki vert—og ef til
vill ekki mögulegt—að lysa geðs-
hræringum Sigríðar fyrst eptir að hún
varð pess vís, að Harrington var far-
inn fyrir fullt og allt. og pegar hún
fór að sjfi, hvernig liann hafði gabbað
pær í öllu tiliiti. En pess skal að
eins getið, að henni pótti langsárast,
að hafa eytt mest öllum peningum
sínurn fyrir brúðarkjólinn. Og hún,
sem var skapstór kona, varð að skeyta
skapi sínu á einhverju; og vesalings
Ásta varð svo fyrir allri bræði fraenku
sinnar. Sigríður kenndi Ástu um að
svona hefði illa til tekist—hún hefði
nefnilega tranað sjer fram við þennan
gcntleman\ tælt hann fyrst og síðan
firrt hann, þegar hæzt stóð húfið,—já,
beinlínis kælt hann og firrt hann með
barnaskap, heimsku og ókurteisi.
Ásta veiktist svo fáum dögum
síðar. Og elskulega frænka hennar
var ekki lengi að hugsa sig um, að
láta flytja hana á sjúkrabúsið;—og
par lá Ásta pungt haldin í margar
vikur.
V.
í>að var ein n dag um vorið—
tveimur árum eptir að Ásta fór til
Winnipeg—að Ólafur í Nesi gekk út
I skóg með öxina sína, og fór að
böggva niður eikurnar, og af pví
vissu allir par í nágrenninu, að illa lá
á honum. Það hafði komið þangað
Ókunnugur maður um daginn, og
hafði setið lengi á eintali við Ólaf.
Svo fór ókunni maðurinn leiðar sinnar,
og Ólafur út í skóg til að höggva; og
allt til kvelds fjellu eikurnar jafnt og
pjett. Svo þegar farið var að dimma,
gekk hann yfir að Bakka, til gamla
Jóns, föður Yilla. Jón var niðri í
fjöru, nykominn af netjum. Ólafur
gekk pangað til hans, heilsaði honum,
fyllti svo pípuna sína og fór að reykja
og bauð síðan Jóni í ptpu; og svo
settust peir báðir niður par I fjörunni
og fóru að tala um tíðina og aflun,
og svo um pað, hvað flugan væri
mi kil. Svo fór Ólafur að spyrja Jón
um pað, hvort stóri ,,dallurinn“ hans
væri nokkuð lekur. Ónei, hann var í
dágóðu standi.
„Heldurðu að pú gætir ljeð mjer
hann fáeina daga?“ spurði Ólafur.
„Jú, jú, pað held jeg víst“, sagði
Jón.
„Mjer kæmi pað einstaklega vel,
—dallurinn minn er svoddan stampur
til gangs og lítill I tilbót“.
„Ætlarðu að biegða pjer nokk-
uð burtu?“
„Ojæja, jeg var að hugsa um, að
skreppa upp eptir“.
„Til Selkirk, vænti jeg?“
„Jeg var hálfpartinn að hugsa
um pað“.
„Kannske þú farir líka alla leið
upp eptir?“
„Já, jafnvel“.
„Að fá pjer vinnu til sláttarins,
b/st jeg við?“
„Og ekki bjfst jeg nú við því“.
„Ja, jæja, pú ætlar að sækja þjer
einn se/ck eða svo, byst jeg við ?
„Jeg hef nú smátt til að kaupa
fyrir, Jón minn“.
„Satt er nú pað. En pá er stúlk-
an“.
„Já, jeg vænti pess“.
„Ojæja, pað er nú svo!“
„Mi jeg taka dallinn, Jón minn?“
„Og pað held jeg vlst, Ólafur
minn“.
„Yertu sæll, Jón minn“.
„Guð veri með pjer, Ólafur minn“.
Svo fór Ólafur heim til sín með
„dallinn“. En þegar dagaði, morg-
uninn eptir, var hann kominn langt
suður á vatnið, og röri mikinn. Hann
var pví kominn áleiðis til Winnipeg;
en hvað hann hann ætlaði að sækja
þangað, vissi enginn, nema hann einn
—jafnvel ekki hún Anna Kristín.
Ölafur 1 jetti ekki ferðum, fyr en
hann kom til Winnipeg. Hann dróg
„dallinn“ upp í hiuum velpekkta lend-
ingarstað, að nr. 6. Svo fjekk hann
einhvern til að vísa sjer á Jemima
stræti, og eptir að hafa gengið pað
fram og aptur um stund, staðnæmdist
hann við framdyrnar á húai einu,
horfði um hiið á tölurnar á dyrastafn
um, fór síðan inn óboðið og gekk rak-
leiðis inn í herbergið næsta. Þar sat
ungur kvennmaður, mjög veiklulegur
með ungbarn í fanginu-—-pessi kvenn-
maður var Ásta dóttir hans. Ólafur
gekk til hennar og kyssti hana, og
klappaði á annan vanga hennar. Ilúa
lagði barnið á rúmið, sem par stóð^
hljóp svo upp um bálsinn 4 föður sín-
um, og grjet sárt og lengi upp við
bringu hans. Hann felldi ekki tár að
sönnu, en þungbúinn var hann og
varir hans titruðu.
Að fáum mínútum liðnum var
hann farinn að raða fötum hennar nið-
ur í gamla, íslonzka kofEortið, sem hún
hafði farið með frá Nyja íslandi fyrir
tveimur árum síðan.
Það var ekki langrar stundar
verk að taka saman eigur Ástu ; og
að klukkuthna liðnum gekk Ólafur
ofan strætið. með kofEortið undir ann
ari hendinni, en dóttir hans gekk á
eptir, með lr'tla barnið sitt í fanginu.
Svo eptir stutta stund, bar „dallurinn“
pau með töluverðum hraða ofan eptir
R íuðá.
Að 48 klukkustundum liðnum
voru pau kotnin inn í snotra bjálka-
húsið í Nesi.
Þegar Anna Kristín vissi fyrir
víst, hvernig allt var nú komið fyrir
dóttur sinni, varð hún í fyrstu ofboðs-
lega æst og gremjufull, en von bráð-
ar lærði hún að sætta sig við petta
„heimilis-böl“, og ljet sjer jafnvel um
munn fara, að hún huggaði sig ein-
verðungu við það, að hún litla dóttur-
dóttir sln væii þó af betra bergi
brotin í föðurættiua. Hún var líka
æfinlega góð við litlu stúlkuna.
Fólkið par í nágrenninu hafði
nóg til að ræða um, næstu fjórar vik-
urnar; pað gat um ekkert annað talað
en Ástu í Nesi og barnið hennar—
pað var ekki minnst á flugur nje
bleytur allan pann mánuð.
„Hún átti erindið til Winnipeg,
stúlkan sú“, sagði blessað fólkið—
fólkið, sem aldrei gastti að Ilísinni í
auga náungans, fyr en pað var búið
að draga bjálkan úr sínu eigin auga,
fólkið, sem aldrei gladdist yfir óláni
annara,—kærleiks-ríka fólkið. Svo
lagði pað undir flatt, hristi höfuðin
undur gætilega, og skellti höndunum
á lærin.
Svo mynduðust ótal sögur um
faðerni barnsins. Sumir sögðu, að
faðirinn væri stórauðugur maður í
Winnipeg, og að hann mundi leggja
ríflega með barninu—pað færi ekki á
vonarvöl Nesfólkið, fyrst um sinn.
Aðrir póttust hafa sannfrjett pað, að
Ásta hefði gipt sig, og maðurinn
hefði svo strokið suður I Bandarlki,
og skilið hana eptir allslausa með
barnið; og enn aðrir — tillögugóðu
mennirnir—gátu pess til, að Villi á
Bakka væri hinn sanni faðir litlu
stúlkunnar í Nesi. Qg allar sögurn-
ar voru líkar pessu.
En smátt og smátt fór fólkið að
verða preytt á að tala um þetta, og
loksins var alveg hætt að minnast á
pað. Og fólkið fjekk eitthvað annað
til að tala um.
Svo liðu tvö ár.
Ásta var alltaf heima í Nesi, og
kom aldrei á pessu tímabili í húsin í
kring. Og allan pann tíma kom
Villi á Bakka aldrei að Nesi. Hann
fór út í vinnu á hverju sumri, var
farinn að komast I góð efni, og var
álitinn eitthvert besta mannsefnið par
í grendinni.
Eitt kveld sem optar gekk Ásta
með litlu stúlkuna sína ofan að vatn-
inu, settist par á bakkan undir píl-
viðar-runna og horfði út á spegilfag-
urt vatnið, og söng lágt kvæði nokk-
urt, sem hún og Villi höfðu opt sung-
ið, þegar pau voru lítil. Svo fór hún
allt i einu að hugsa um Villa. Hún
rifjaði upp í huga sínum allar ánægju
stundirnar, sem hún hafði lifað með
honum I æsku; og svo mundi hún
eptir pví, þegar hann kom að heim-
sækja hana í Winnipeg. Ó, hvað
henni fannst hún hafa verið pá köld
við hann,— hann átti pað pó ekki
skilið af henni! Ó, hvað hún vildi
nú fegin bæta fyrir pá yfirsjón! Og
loksins sagði hún nokkuð hátt: „Æ,
góði Villi ininn, fyrirgefðu mjer“.
Hún var varla búin að sleppa síðasta
orðinu, pegar handleggur var lagður
utan um liana og hún var kysst.
Villi á Bakka var par kominu og
sagði brosandi: „Jeg lief ekkert að
fyrirgefa pjer, Ásta“.
„Villi!“ hrópbði hún.
, Ásta!“ sagði hanu brosandi.
Og hvort sem pau töluðu par
samau lengur eða skemur, pá var pað
eitt víst, að pau voru harð trúlofuð,
þegar pau skildu.
Nokkru síðar voru pau gefin
saman ( hjónaband.
KNDIB.
• •••• • o • o o o
•Relief for
\lJciTig
•'Troubles
In CONSrMPTIOX and nll LVIG
• DIHEAHEH, HPITTIVC, OI KLOOD,
m COVGH, LOHH OF APPETITE,
• ÐEBILITY, tho benefitH «r this
0 artlcle are most manifest.
BTthsald ofThe '*D. AL" Kmulsion. I hsTerot
^ rid of a hacking cough which had troubled rae ror
otct • yoer, snd have gained considerably in
a weight. I llked tbls Brnmsion so well 1 waa glnd
w wheu the tiine carae around to take it.
f ^ T. H. WINGHAM, C. E., Montreal
50f, and $1 per Bottle
• DAVIS & LAWREMCE CO., Lto., Montreal
• ••••••••••
Til Nyja-Islands!
Undirskrifaður lætur góðan, upp-
hitaðan sleða ganga á milli N fja-
íslands, Selkirk og Winnipeg. Ferð-
irnar byrja næsta briðjudag (17. þ.m,)
og verður bagað pannig:
Fer frá Selkirk (norður) priðju-
dagsmorgun kl. 7 og kemur að Is-
lendingafljóti miðvikudagskveld kl. 6.
Fer frá íslendingafljóti fimmtu-
dagsmorgun kl. 8 og kemur til Sel-
kirk föstudagskveld kl. 5.
Fer frá Selkirk til Winnipeg á
sunnudaga og fer frá Winnipeg apt-
ur til Selkirk á mánudagsmorgna kl.l.
Sleði pessi flytur ekki póst og
tefst pví ekki á póststöðvum. Geng-
ur reglulega og ferðinni verður fl/tt
allt sem mögulegt er, en farpegjum
pó synd öll tilhliðrunarsemi.
Fargjald hið lægsta, sem b/ðst á
pessari leið.
Helgi Sturlaugsson keyrir sleðann.
Eigandi: Geo, S. Dickinson,
SELKIRK, MAN
Globe Hotel,
148 Princess St. Winnipeo
Gistihús þetta er útbúið með öllum nýjast
útbúnaði. Ágætt fæði, frí baðherbergi og
vínföng og vindlar af beztu tegund. Lýs
upp með gas ljósum og rafmagns-klukk-
ur í öllum herbergjum.
Herbergi og fæði $1,00 á dag. Einstaka
máltíðir eða harbergi yfir nóttina 25 ets
T. DADE,
Eigandi.
Northern
PACIFIC
RAILWAY
GETA SELT TICKET
TIL VESTURS
Til Kooteney plássins,Victoria,Van-
couver, Seattle, Tacoma, Portland, og
samtengist trans-Pacific linum til
Japan og Kína, og strandferða og
skcmmtiskipum til Álaska. Einnig
fljótasta og bezta ferð til San Francisco
og annara California staða. Pullman
ferða Tourist cars alla leið til San
Francisco. Fer frá St. Paul á hverj-
nm Miðvikudegi. Deir sem fara frá
Manitoba ættu að leggja á stað sama
dag. Sjerstakur afsláttur (excursion
rates) á farseðlum allt árið um kring.
TILSUDURS
Hin ágæta braut til Minneapolis,
St. Paul, Chicago, St. Louis o. s. frv.
Eina brautin sem hefur borðstofu og
Pullman svefnvakna.
TIL AUSTURS
Lægsta fargjald til allra stað I aust-
ur Canada og Bandaríkjunuin I gegn-
um St. Paul og Chicago eða vataðleið
frá Duluth. Menn geta haldið stans-
laust áfram eða geta fengið að stanza
í stórbæjunum ef peir vilja.
TILGAMLA LANDSINS
Farseðlar seldir með öllum gufu-
skipalínum, sem fara frá Montreal,
Boston, New York og Philadelphia
til Norðurálfunnar. Einnig til Suður
Ameníku bg Australiu.
Skrifið eptir verði á farseðlum eðá
finnið
H. Swinford,
Gen. Agent,
á horninu á Main og Waterstræturn
Manitoba liótolinu, Winnipeg, Mau,