Lögberg - 08.06.1899, Blaðsíða 4

Lögberg - 08.06.1899, Blaðsíða 4
r * 4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 8 JUNÍ. 1í99. I.ÖGBERG. Gefiö dt aS 309Elgin Ave.,WiNNiPEG,MAN af The Lögbf.rg Print’g & Publising Co’y (Incorporated May 27,1890) , Ritstjóri (Editor); Sigtr. Jónasson. Business Manager: M. Paulson. AUGLÝSINGAR: Smá-auglýsingar í eltt skifti 25c. fyrir 30 orcJ ecJa 1 } ml. dalkslengdar, 75 cts um mánndinn. A stwrri auglýsingnm um lengri tíma, afsláttur efiir samningi. EÚSTAD\-SKIFTI kaupenda verður a<J tilkynna sk^ iflega og geta.um fyrveraudi bÚ6tad jafnfram Utanáskript til afgreidslustofubladsins er: The Logberg Printing & Publishing Co. P. O. Box 585 _ Winnipeg,Man. Utanáskrip ttil rltstjórans er: JBditor Lögberg, P *0. Box 585, Winnipeg, Man. _ Samkvæmt landslögum er uppsögn kaupenda á >iadiógild,nema hannsje skaldlaus, þegar hann seg rupp.—Ef kaupandi, sem er í skuld við blaðið flytu ▼ stferlum, án þess að tilkynna heimilaskiptin, þá er pað lyrir dómstólunum álitin sýnileg sönnumfyrr rettvísum tilgangi. FIMMTUDAGINN, 8. JÚNÍ 1899. pjód'iniimiugardags-inálið. Eins ojT ýmsir lesendur vorir kannast við, liéldu íslendingar í Ar- gyle-hygð fund í fyrra vor (fyrir liðugu ári síðan), og samþyktu þá að halda hinn 17. júní sem þjóðminn- ingardag, eða íslendingadag, hjá sér nú í ár og buðu íslendingum sem aðliyllast 17. júni, bæði hér í Winni- peg og víðar, að sækja þessa hátíð sína. Framkvæmdarnefnd „Seytj- ánda júní-félagsins“ hér í Winnipeg hafði nú komist að þeirri niðurstöðu, að ráða félagsmönnum og öðrum hér í Winnipeg, sem aðhyllast 17. júni, til þess að hafa ekkert hátíðarhald hér í bænum þann dag í ár, heldur sæta boði Argyle-búa og halda dag- inn með þeim. En svo héldu Argyle-íslending- ar almennan fund með sér þann 30. f. m. (inaf), og var ágreiningsmálið um íslendingadaginn rætt þar ýtar- lega. Fundurinn komst að þeirri niðurstöðu, að það væri Vestur-ísl. til vansæmdar að halda tvo þjóð- minningardaga á ári og í minningu uui mismunandi sögulega viðburði, og samþykti því, að halda enga há- tíð hinn 17. júní í ár. Og svo kaus furidurinn þriggja manna nefnd, til að vinna að því að Vestur-íslending- ar kæmu sér saman um einn saineig- inlegan þjóðminningardag, og hefur nefnd þessi tilkynt framkvæmdar- nefnd „Seytjánda júní-félagsins“ þessa niðurstöðu og skorað á hana að vinna að því, að 17. júní-menn haldi enga hátíð í ár. Argyle-nefnd- in hefur enn fremur látið oss vita, að hún ætli mjög bráðlega að senda báðum ísl. blöðunum hér (Lögb. og Hkr.) áskoruu til allra Vesturísl. um, að halda engan þjóðminningar- dag í ár, og beðið oss að skýra frá niðurstöðunni, sem Argyle-fundur- inn komst að, í þessu blaði. "Otaf þessu hafði framkvæmdar- nefnd , Seytjánda júní-félagsins“ t'und með sér nýlega og komst að þeirri niðurstöðu, að stefna Argyle- fundarins væri mjög skynsamleg og heppileg og að það væri rétt að sinna tillögum fundarins, og sam- þykti því að ráða 17. júní-mönnum til að verða við áskorun Argyle- nefndarinnar, í von um að henni kynni að hepnast að greiða fram úr ágreiningsmálinu um þjóðminn- ingardaginn. Framkvæmdarnefnd „Seytjánda júní-félagsins“ hefur því falið oss að skýra frá hvaða niður- stöðu hún hefur komist að, og skor- ar á alla 17. júní-menn að verða við áskorun Argyle-nefndarinnar um,að hætta við að halda nokkra þjóðhá- tíð hinn 17. júní í ár. Áskorun Argyle-nefndarinnar kemur vonandi í næsta blaði. Ágrip Af ræðu fjármála-ráðgjafa McMillans í Manitoba-þinginu hinn 80. marz 1899. (Niðurl.) TFKJUR AF FYLKISLANDI. „Tekjur vorar af fylkislandi voru árið sem leið $22,146.23. Nú höfum vér reglulega stjórnardeild, sem sér um fylkislanda-málefnin. Auðvitað er það einungis votlendi, sem fylkið á. Árið sem leið voru seldar 25,967 ekrur, og vur verðið frá 2 til 8 doll. ekran, og jafnaði verðið sig því upp með $3.41 á ekr- una. Vér vonum að hafa meiri tekjur af landi þessu í framtíðinni, þareð vér höfum nú sérstaka deild til að annast þau, sem mun á hyggi- legan og skynsaman hátt láta þessa tekjugrein verða að sem mestu gagni- Útgjöldin árid 1898 voru $836,160.23. Af þessari upp- hæð fóru $81,036.30 1 kostnað við stjórnina sjálfa, og var það minni upphæð en nokkurt undanfarið ár síðan 1891; í dómgæzlu-kostnab (ad- ministration of justice) $88,528.01, og hefur þessi kostnaður aukist fyr- ir þá sök, að fólksfjöldinn hefur aukist og glæpamál þess vegna íjölgað. Peningaveitingar á árinu námu $293,853 52. Mestur hlutinn af þessari upphæð gekk auðvitað til alþýðuskólanna (Jbarnaskólanna), nefnilega $205,867.81; þar næst voru veitingar til styrktar akuryrkju- málefnum, er námu í alt $20,749.64, nefnil. til búnaðar-félaga hinna ýmsu kjördæma $13,865.14, til iönaðar- sýningarinnar í Winnipeg $3,500, til akuryrkju- og lista-sýningarinn- ar í Brandon $2,000, til bændafél., mjólkui bóta-félaga og annara því- líkra fólaga $1,384.50; veitingar til góðgerða-stofnana voru $33,254.56, nefnil. til almenna spítalans í Winni- peg $15,150.30, til St. Boniface-spít- alans $10,303.93, til Brandon-spítal- ans $4,882.31, til Morden-spítalans $1,288.12, til frelsunar-heimilis sálu- hjálpar-hersins $250, til kvenna- heimilisins $250, til barna-heimilis- ins $500, til fanga-aðstoðarfélagsins $125. Til opinberra verka var var- ið $57,052.27, nefnil. veitingar til sveitafélaga í peningum $33,281.61; og til nýlenduvega-lagninga ogtil brúabygginga $26,570.77; til við- halds fylkisstofnunum $95,396.81; til viðhalds dómhúsum, fangelsum, þinghúsi, stjórnar-skrifstofunum o. s. frv. 819,303.56. í alt var varið í opinberraverka-deildinni $190,286.- 19. í akuryrkjumála-deildinni var eytt: til kenslu í mjólkurbúskap (ostagerð, smjörgerð o. s. frv.) $6,- 929.03; í sambandi við veikindi í húsdýrum &3,65í.65; til að líta eftir að uppræta illgresi $1,619.39; ýmis- leg útgjöld í sambandi við akuryrkju voru $2,663.99. Útgjöldin til þess- ara hluta námu í alt $14,368.06. Til innflutningamála gengu $20,- 682.40. Hagsmunirnir af þessari út- gjaldagrein eru auðsæir. það er nú þegar byrjaður meiri innflutningur þetta ár en nokkurn tíma hefur átt sér stað. Tilraunir akuryrkju- og innflutningamála-deildarinnar hafa hepnast mjög vel undanfarin ár í Ontario-fylkinu og í ríkjunum fyrir sunnan landamærin. þar eð þingið og yfirskoðunarnefndin mun yfirfara sérhverja útgjaldagrein í fylkis- reikningunum nákvæmlega, og þar eð ég hef farið svo nákvæmlega út í þessi mál undanfarin ár, þá er ekki nauðsynlegt að ég segi fleira við- víkjandi útgjöldunum. 1 FJÁRLAGA-FRUMVARPINU eru ekki miklar breytingar frá því sem verið hefur undanfarin ár. í á- ætlaninni yfir tekjur fylkisins er gert ráð fyrir að inn komi $300,000 úr skólalanda-sjóði fylkisins (í Ott- awa), og það er gert ráð fyrir að tekjurnar af mýrlendi fylkisins auk- ist talsvert. Vér gerum ráð fyrir að auka veitingarnar til alþýðuskól- anna um $50,000, svo að veitingar til þeirra verði í alt $250,000 á yfir- standandi ári. Allar hinar aðrar peninga-veitÍDgar til almennings, sem ætíð hafa verið miklar hjá þess- ari stjórn, verða enn auknar sam- kvæmt frumvarpinu. það er sann- arlega æskilegt, að vér fáum þá hjálp hjá samhands-stjórninni.er vér höfum beðið um, nefnilega part af skólalanda-sjóði fylkisins, sem er í höndum hennar. það verður ómögu- legt að halda áfram hinum mikla penÍDgastyrk til alþýðuskólanna, nema vér njótum einhverra hags- muna af hinum miklu eignum, sem sérstaklega hafa verið ákveðnar skólum þessum til stuðnings. Vér höfum einungis fengið úr sjóði þess- um 15 til 20 cent á hvert skólabarn að undanfömu, en fjárveitingarnar úr fylkissjóði hafa numið frá 4 til 5 doll. á hvert barn á ári. Kringum- stæðurnar eru svipaðar kringum- stæðum þess manns sem hefur erft auð, er nemur mörgum milljónum dollara, en sem stritar af öllum mætti til að spara fé handa börnum sinum og barna-börnum. Ég hef reynt, með því sem ég hef sagt, að gefa stutt yfirlit yfir fjarmálastjórn fylkisins, en nú ætla ég að fara nokkrum orðum urn ann- að efni. þessi stjóra hefur setið að völdum í hérum bil 11 ár, undir for- ustu forsætisráðgjafans Mr. Green- way’s, og hefur stjórain á þessu timabili sýnt svo mikinn dugnað og framkvæmdarsemi fylkinu til fram- fara, að það er ekki hægt að finna neitt SEM JAFNAST VID þAD í CANADA. Sem maður, er hefur verið í sam- verki með Mr. Greenway meiripart- inn af þessu tímabili, finst mér að það hvíla á mér sú skylda að segja, að hann hefur ætíð haft brennandi löngun til að vinna að framförum og velgengni fylkisins. Hann tók upp óþröngsýna, frjálslynda og fram- farasama stsfnu, og enginn maður hefir unnið af meiri trúmensku að því verki, sem hann hafði tekið sér fyr- ir hendur. Hann var ekki einasta gæddur þeirri skíru og þroskuðu dómgreind, ásamt æfingu og reynslu, sein gerði honum mögulegt að taka þá stefnu sem bezt væri fallin til að koma fram óskum hans og vonum fylki þessu viðvíkjandi, heldur var hann einnig gæddur þeim fram- kvæmdar-hæfilegleikum er gerði honum mögulegt að framfylgja þeirri framfara-stefnu, sem hefur átt svo mikin þátt í að hin náttúrlegu gæði fylkisins hafa orðið notuð, þótt kringumstæðurnar væru stundum alt annað en hvetjandi. Ég segi að þær hafi stundum verið alt annað en kvetjandi, því á undanförnum tíu árum höfum vér gengið i gegnum tímabil, sem verzlunardeyfð og fjárþröng átti sér stað hór eins og í öðrum löndum. Óvanalega lágf verð á bændavöru átti sér stað i nokkur ár samfieytt. Vér höfum orðið að berjast útaf flutninga-spurs- málinu, sem hefur mjög mikla þýS- ingu vegna hinnar landafræðislegu afstöðu fylkisins, og þar eð það er akuryrkjufylki, þá hefur það orðið að bera hátollabyrði þá, sem lögð hafði verið á það með því sem köll* uð hefur verið liin þjóðlega stefna (National Policy), sem var fyrir hagsmuni verksmiðju-eigenda í öðr- um fylkjum. Vér höfuin orðið að berjast gegn þessum og öðrum örð- ugleikum. En, herra forseti, vér höfum sigrast á sumu af þessum erfiðleik- um og varist ýmsum öðrum, og fylk* ið er nú að byrja nýtt og bjart veb gengnís-tímabil. það má vera. aö vouir allra hafi ekki ræzt, en þegar vér lítum til baka og berum ástand fylkisins nú saman við ástand þesS fyrir 11 árum síðan, þegar stjórnar* skiftin urðu, þá hljóta menn uð kannast við, að hlekkir hafa verið brotnir af þvf og hindranir yfirunn- ar, sem gefur tryggingu fyrir að framfarir og viðgangur fylkisins verður-meira á næstufimm árum.cn hefði getað átt sér stað á tuttugU árum undir sömu kringumstæðum og voru þegar þessi stjórn tók við völdunum. EINN AF FYRSTU ÁVÖXTUNUM af stjórnar-skiftunum var sá, að sambands-stjórnin hætti að ónýt® járnbrautabygginga-leyfi fylkis- þingsins, sem þýddi það, að járn- brauta-einveldið var brotið á bak aftur hór í vesturhluta Canada. Rétt á eftir því fylgdi það, að North* ern Pacific-járnbrautakeðjan kont hér inn í fylkið og að flutningsgjald á korntegundum, sem fluttar voru út, var fært niður, og einnig flutn- ingsgjald á varningi sem inn var fluttur, og niðurfærzla þessi hcfuf haldið áfram, þangað til vér vitum nú með vissu, að þessa árs uppskcra verður fiutt til Fort William og Du* luth fyrir tíu centum minna hveí hundrað pund, en fyrir 12 árum síðan. þegar saman eru lagðar járn* brautir þær, sem lagðar hafa verið og þær, sem samningur hefur veri'ð gorður um að byggja, þá höfum véí yfir 1,000 mílum meira af járnbraut* um í fylkinu en fyrir ellefu árum síðan. það eru öll líkindi til, innan tveggja ára verði búið að fuH* gera aðra óháða járnbraut austur að Superior-vatni. það, að nýjir koI»' námar liafa verið opnaðir hér * vesturlandinu og að flutningsgjaU yfir höfuð hefur lækkað, heí* ur gert það að verkum, að kol hafa lækkað mjög í verði, sem er mjog 656 lærið, því það voru þrír menn við það, með opna munnana og hnlfana 1 höndunum, sem s&tu í kring- um borðið og gláptu þegar jeg stökk inn í tjaldið. Jeg varð að leggja þá alla að velli áður en þeir vildu lofa mjer að fara með lærið. Hvað segir þfi, Sir William, vilt þfi ekki smakka hið nafntogaða spanska svínsflesk, þó við höfum ekkert nema lækjar- vatnið til að skola því ofan 1 okkur með?“ „Jeg skal þiggja það seinna, Sir 01iver“, sagði gamli riddarinn og þurkaði svitann og rykið af and- litinu. „Við verðum að fara lengra upp í fjöllin áður en við getum verið óhultir u>n okkur. En hver er þarna, Nigel?“ „Það er maður, sem jeg hef tekið til fanga“, svaraði Sir Nigelj „og þar eð hann var 1 konungs- tjaldinu og hið konunglega skjaldmcrki er saumað í hempu hans, þá vona jeg að það sje Spánar-kon- iiugurinn sjálfur.“ , Spánar-konungur!“ hrópuðu hinir riddararnir og þyrptust í krÍDgum manninu forviða. „Nei, Nigel“, sagði Sir William Felton, sem rýndi á fangann í hálfdimmunni. ,,Jeg hef sjeð ilenry af Transtamare tvisvar, og jeg er viss um, að þessi maður er ekki hið allra minnsta líkur honum“. „Ef svo er, þá ríð jeg strax til baka til herbfið- auna og sæki konunginn!-1 hrópaði Sir Nigel. „Nei, það skalt þú með engu móti gera“, sagöi Sir William. „Þeir í herbúðunum hafa nfi allir vopn- A'it og cru bfinir við áhlaupi, svo það yjeri óðs manns 646 hú líka hinn síðasti maður af Edricsou-ættinni“, sagði Alleyne. „Og því hafið þjer ekki sagt mjer þetta fyr, Alleyne?“ spurði Sir Nigel. „Mjer fínnst satt að segja að yður hafi farist illa við mig í þessu máli“. „Nei, segið það ekki, göfugi lávarður minn“, sagði Alleyne; „því jeg veit ekki hvort dóttir yðar elskar mig, og við höfum ekki bundist neinum heitum1'. „Sir Nigel hugsaði sig um dálitla stund, en rak síðan upp skellihlátur, og sagði svo: „Viðsánkti Pál! jeg veit ekki því jeg ætti annars að vera að blanda mjer inn í þetta mál; því jeg hef ættð komist að raun um, að lafði Maude er vel fær um að sjá um eigiu málefni stn. Alltaf stðan hfin gat fyrst farið að stappa niður litlu fótunum sfnum, hefur hún haft fram hvað eina sem hana hefur lyst; og ef hfin hefur nfi lagt hug á yður Alleyne, og þjer á hana, þá held jeg að þessi spanski konungur gæti ekki sttaðykkur sundur með öllum þessum sextfu þúsundum manna, sem hann hefur. En jeg ætla nfi Bamt að segja yður það, að jeg vil að þjer verðið fullkominn riddari áður en þjer talið ástamál við dóttur mfna. Jeg hef ætfð sagt, að hún skyldi giptast hugrökkum manni; og, við sálu mfna! Edricsoo, jeg vona, að ef guð gefur yður lff til þess, þá reynist þjer vel í því efni. En það er nóg talað um aðra eins smámuni og þetta, því við höfum verk að vinna, og það er nógur tími til að t&la uin þetta mál þegar við sjáum aptur hina hvltu 660 niður við að drekka ódýrt öl og jeta feítt íleak, beU* ur munt þfi drekka Gascony-vfn og jeta bakað kjöfc á hverjum degi“. „Það veit jeg nfi ekki“, sagði Jón, sparkaðí hjálmi sfnum upp í loptið með fætinum og greip hann með hendinni. „Jeg veit bara það, að hvori sem sfipan er soðin eða ekki, þá ætla jeg að dýf* hjálminum mínum niður í ketilinn nfi strax og fyÚ8, hann með sfipu“. „Hún er nfi búin að sjóða og krauma nógu lengi“, hrópaði Johnston og rak hið harðlega andl>t sitt f gegnum reykinn. Svo var ketillinn strax grip' inn af eldinum og því, sem í honum var, ausið upp * hálfa tylft af stálhjálmum, sem þeir, er áttu þá, hjeldu á milli hnjánna, en mennirnir átu súpuna græðgi®' lega með hornspónum og átu brauðhleifa henni. „Þetta er vont veður fyrir bogana“, sagði Jú° loks um leið og hann saup seinasta dropann úf hjálmi sfnum og varp öndinni þungan. „Bog®* strengir mfnir eru eins linir eins og kýrhali þenO»u morgun“. „Þfi ættir að nudda þá með vatnslími“, sag^1 Johnston. „Manstu ekki eptir þvi, Samkin, að p*^ var blautara en nfi er morguninn sem við báðuö1 orustuna hjá Crécy, og samt man jeg ekki til *^ neitt gengi að bogastrengjunum okkar“. „Mjer er nær að halda“, sagði Símon svaiti, se0* enn hjelt áfram að hvetja sverð sitt í þungum þönkj

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.