Lögberg - 16.06.1904, Blaðsíða 4

Lögberg - 16.06.1904, Blaðsíða 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. Júní 1904. ÍTögbeiq cor. Williara Are.|& Nei a St. ®irtnipcg, JHan. M. PAt’LSOV.Eclitor, J. A. BLONDAL, Bcis. Manager. UTANÁSKRIFT : The L.ÖGBERG PR'MING & ILBLCo.. P. O, Box 136., Winnipeg, Man. Fjármálaræða Mr. Fieldings. Hinn 7. þ. m. hélt Mr. Fielding fjármálaræöu sína í Dominion- þinginu og kom þar fram, þa5 sem reyndar við var búist, a5 aldrei sí5an Laurier-stjórnin kom til valda hefir fjárhagur Canada staöiö í meiri blóma en nú. Þetta er í áttunda sinn sem sú stjórn, gegn um Mr. Fielding, gerirþjó5- inni reikning fyrir ráösmensku sinni. Og þeir, sem þeim reikn- ingsskap hafa veitt eít rtekt, vita, aö hann hefir sýnt batnandi fjár- hag og blómlegra ástand í Can- ada meö hverjil árinu. Á síöasta fjárhagsári, sem endaöi 30- Júní 1903, var tekjuafgangurinn $14,- 345,166, og er þaö meira en á nokkuru öðru ári í sögu Canada. Og á þessu yfirstandandi ári er búist viö að tekjuafgangurinn verði enn þá meiri eða $16,500,- 000, og minkar þá þjóöskuldin um hálfa éttundu miljón dollara. Á átján árunum, sem’ afturhalds- menn voru viö völdin, var tekju- afgangur aö meöaltali á hverju ári (þrátt fyrir tekjuhalla sum ár- in) $544,000. En síðan Laurier- stjórnin kom til valda áriö 1896 hefir tekjuafgangurinn verið aö meðalta'i árlega $7,235,000. Á átta stjórnarárum Laurier-stjórn- arinnar hefir þjóöskuldin aukist um $14,111,296, og minkaö um $15,196,000. Svo aö þrátt fyrir öll hin miklu fyrirtæki stjórnar- innar og allan hinn margvíslega og mikla kostnað í tilefni af opn- un Yukon-landsins, hluttöku Can- ada í Suður-Afríkustríðinu og margt fleira. þá hefir þjóðskuldin minkaö aö meðaltali um $135,- 624 á ári. En á átján ára tíma- bilinu, sem afturhaldsmenn sátu aö völdum, óx skuldin aö meðal- ta'i á ári um $6,563,000. Áriö 1896 var þjóöskuldin $50 á hvern mann, en 1. Júlí 1904 verður hún komin niöur í $46. Viöskifti Canada við umheiminn voru: Árið 1873.....$217,000,000 “ 1883.....$230,000,000 “ 1893.....$247,000,000 “ 1903.....$467,000,000 Skýrsla yfir innflytjendur á ár- inu 1903 sýna, aö alls höföu flutt til Canada 134,380 manns, þar af 50,000 frá Bretlandseyjunum, 48,000 frá meginlandi Norðurálf- unnar og 46,000 frá Bandaríkjun- um; og alt bendir til þess, aö engu minni innflutningur veröi nú í ár. Tollmálið. Mr. Fielding sagöi, aö áöur en tolllöggjöfinni yröi til jnuna breytt ætlaöi stjóinii sér aö viðhafa sömu aöferöina og og um áriö (1897), þá að ferðast um og fá nákvæmar upplýsingar um þaö hvers konar breytingar viö eiga. En hann gaf í skyn, aö tollur mundi ekki verða jafnhár gagn- vart öllum löndum, heldur þrenns- konar: Hæstur á vörum frá þeim löndunum, sem gera sér far um aö bola út canadískar vörur meö háum tollum—hátollalöndunum; aftur lægri tollur á vörum þeirra þjóða sem lægri innflutningstolla! hafa, og enn þá lægstur þegar um 1 sérstaKa viðskiftasarnninga er að ræöa. Yfirskoöun þessi og nauð- synlegar breytingar á tolllöggjöf- inni bjóst hann viö aö-mundi geta oröiö næsta ár. En það er ýmislegt, sem tím- inn og kringumstæðurnar hafa sýnt, aö bráörar breytingar þarfn- ast og liggur svo í augum uppi, aö hægt er aö bæta úr án sérstakr- ar rannsóknarnefridar. Eitt meö- al þess.sem breytingar þarf í toll- löggjöfinni, er tollurinn á vissum ullarvefnaöi. Almenn umkvört- un hefir komið fram ekki einasta frá verksmiöjumönnunum heldur mörgum stjórnmálamönnum um það, aö vegna hins mikla afslátt- ar af tollinum á brezkum vörum, flytjist hingað inn ósköpin öll af lélegum ullarvefnaöi, sem ekki sé verður sérstakra hlunninda. Sem stendur er 35 prócent tollur á slíkum vörum, og meö brezka tollafslættinum ekki nema 23 Jý prócent. Til þess að bæta úr þessu er þó ekki meiningin aö færa upp aðaltollinn, heldur gera það aö ákvæði, aö með brezku hlunnindunum fari toJlurinn ekki niöur úr 30 prócent. Undir þenna liö heyra ekki nema vissar tegundir ullarvefnaöar, svo sem þaö er gengur undir nafninu cloths, tweeds, overcoatings og þess konar. Sömu reglunni er fylgt við garn og kaðla. Tollurinn á því er 25 prócent, og meö brezka afslættin- um ekki nema 16^3 prócent. Aö- altollurinn helzt eins og áöur, en lækkar ekki nema niður í 20 pró- cent viö brezka afsláttinn. Þetta haggar þó ekki hlunnindum þeim, sem fiskimenn hafa notið á netja- garni, og nær ekki til hveitibands. Aftur eru aðrar vörur sem Bret- um hafa verið veitt aukin toll- hlunnindi á. Á leirtaui og postu- líni er tollurinn 30 prócent og meö brezka afslættinum ekki ne.ma 20 prócent. Tilgangurinn er aö gera brezku hlunnindin á þessu 50 prócent í staö 33 og færir þaö tollinn niður í 15 pró- cent. Núverandi tollur á rúöu- gleri er 20 prócent og einn þriöji af frá Bretlandi. Hér eftir verö- ur tollurinn á því frá Bretlandi ekki nema 7þ£ prócent. Tollur á fötum og bölum úr tré verður héreftir2 5 prócent, en var áður 20 prócent. Framvegis veröur engin bitggy virt á minna en $40, og top- buggies ekki minna en $50. Graðhesta og merar, sem eru minna en $50 viröi má ekki flytja inn til Canada. Tollur á spegilgleri er 25 og 35 prógent. Tollurinn á vissri teg- und af því verður hér eftir ekki nema 10 prócent. Tollur á hreinsaöri steinolíu hefir verið færður niöur um helm- ing eöa niöur í 2 cent á gallón- una. Aftur hefir stjórnin ákveö- iö aö veita þeim sem framleiða ó- hreinsaða olíu í Canada i)4c. premíu fyrir hverja gallónu; og tollur er algerlega tekinn af ó- hreinsaöri olíu sem brúkast á í staö eldiviðar. Tollur er tekinn af ýmsum efn- um sem notuð eru viö mynda- smíöi, og enn fremur af ferment cultures, sem notað er viö smjör- gerö. Tollur er tekinn af prentpress- um ef samskonar pressur ekki eru búnar til í Canada. Tollur vél er tekinn afum, sem notaöar eru til léreftsgerðar, ef samskonar vélar ekki eru búnar til í Canada. Tollur er tekinn, undir sömu skilyrðum, af vélum, sem notað- ar eru viö tilbúning viss glers og koparsmíöa, sem nú er enginn tollur á. Tollur er tekinn af fölskum tönnum. Tollur er tekinn af quassi juice sem bændur nota við vökvun á- vaxta. Brunnborunarvélar og allur þar aö lútandi útbúnaöur viö vatns og olíugröft, Eru hér efti r tollfríar, ef samskonar vélar ekki eru bún- ar til í Canada. ,,Þetta eru allar þær breyting- ar, “ sagði Mr. Fielding, ,,sem viö hugsum okkur aö gera nú viö tolllöggjöfina. En viö höfum aðrar þýöingarmiklar tillögur. ! Skilyrðin breytast, og þaö er skylda stjórnarinnar og þingsins aö taka tillit til þess. Vér Can- adamenn veröum sérstaklega að gefa viðskiftum hátollaþjóðanna gætur, því aö i lágtollalöndunum, til dæmis Euglandi, eru viðskiftin rekin á skaplegan hátt. I slíkum löndum er svo að segja aldrei um dumping að ræöa. “ (Dumping er upprunalega Banda- ríkjaorö, og þýöir hér þaö aö ( ^ hauga vörum inn á útlendan j | markaö og selja þær fyrir minria en markaðsverð til þess aö brjóta j niöur samkepni.) ,,Slílttlítur út| fyrir að vera sjálfsögð afleiðing af hátollafyrirkomulagi, þar sem einokun og samsteypur blómgast, því þaö eru þess kyns öfi sem viö- hafa hina svo nefndu dumping I verzlunaraðferð. Þegar sam- steypurnar hafa náö umráöum yfir' heimamarkaðnum og eiga meiri vörur en þar seljast, þá hauga þær vörunum inn á ná- ^rannamarkaðinn til þess aö reyna aö ná einnig haldi á hon- um. Strangir frjálsverzlunar- menn spyrja, hvaö sé á móti þessu. Gætum viö ábyrgst aö lága verðið héldist lengi eöa alt ! af, þá væri ekkert út á þaö aö 1 setja. En Banda.TÍk]a.-trusts selja ekki vörur í Canada í guðsþakka- skyni. Vörurnar eru sendar hing- aö í þeirri von og í því trausti aö geta meö þeim brotiö niöur inn- lendan iðnað í Canada. Þegar i því takmarki er náö, þá er úti utn lága verðið. Þá kemur dýr- tíö. Þessi dumping er til ills eins og viö ætlum okkur aö reisa i skoröur viö henni. Nítíu prócent af umkvörtun- um verksmiðjumanna eru aöal- lega bygöar á slíkri dumping, en ekki því, að tollurinn sé of lágur. Andstæöingaflokkurinn vill láta bæta úr þessu meö feikna-háum tollum. En viö hugsum okkur j að bæta úr því á þann hátt aö ! leggja sérstakan aukaskatt á slík- j ar vörur. Tollur þessi veröur j mismunurinn á veröi þvísern vör- urnar eru seldar fyrir og þess sem j er sanngjarnt markaÖsverð þeirra j samkvæmt virðingarreglum toll- laganna, Séu vörur seldár fyrir i lægra verö í Canada heldur en í heimalandinu, þar sem þær eru framleiddar, þá skulu þær álítast ! dumping og þannig meöhöndlast, og aukatollurinn svara mismun- i inum. A vissum vörum, sem viö höfum lágan toll á, og eru vernd- aöar meö verðlaunum ekki síöur en tolli, ætti aukatollurinn ekki J aö fara fram úr 15 prócent af virö- j ingarverði, og á annarskonar vör- | um ætti aukatollurinn aö vera 50 prócent af reglulegum tolli. Auka- toliurinn verður þá annaöhvort af þessu tvennu—í fáum tilfell- um 15 prócent af viröingarverði og í öllum öörum tilfellum 50 prócent af tollinum, þannig: $100 hlutur seldur á.. . .$80 Tollur 30prct. af $100.. 30 50 prct. af tollinum..... 15 $125 Meö þessu fyrirkomulagi býst stjórnin við aö fyrirbyggja dump- ing að mestu eöa öllu leyti. “ Hernaður Japansmanna. Strfðiö í austuriöndum heldur áfram og jafnframt læging Rússa meö miklum hraða. Vald Rússa á sjónum þar eystra mátti heita að gjöreyddist viö það, aö her- skipinu Petropavlovsk var sökt hjá Port Arthur 13. Apríl og Mak- arofí aömíráll fórst þar með skipi sínu. Hin vísindalega hernaðar- aðferð Togo aömíráls, hin leiknu og áhrifamiklu herkænskubrögð hans, myndar nýjan þátt í sjó- hernaöarsögu heimsins. í fyrsta sinni í sjóorustum notar hann tundurvélar- (torpadoes) og loft- skeytasendingar (vvireless tele- graphy); og þetta hvortveggja leikur í höndum manna hans eins og þar væri um ekkert nýtt að ræöa. Urræöi hans og þrákelkni er hvaö sem annað, hvortveggja framúrskarandi. Engar slíkar sjóorustur hafa verið háöar áöur frá því fyrst að nútíðar herskip komu til sögunnar. Ogsami dugnaðurinn ogíþrótt- in kemur fram hjá Japansmönn- nm á landi. Kuroki hershöfð- ingi kom liði sínu yfir um Yalu- fljótið 2. Maí — sjálfsagt engu meira lið en Rússar höföu þar fyrir — og vann sigur og hrakti Rússa í burtu úr staö sem þeir höfðu sjálfir valiö sér og þar sem þeir höföu búiö vandlega um sig. Áhlaup þetta’ var aðdáanlega undirbúiö, gert á hentugasta tíma og nákvæmlega rétt að öllu fariö —herskipafloti í ármynnipu lát- inn hjálpa landhernum. Japans- menn náðu miklu af fallbyssum og eyðilögðu að miklu leyti þenn- an hluta rússneska hersins. Ó- sigur þessi var sérlega tilfinnan- legur og lægjandi fyrir Rússa. Hinn nákvæmi viöbúnaöur Jap- ansmanna, hin frábæra leikni for- ingjanna og hugrekki liösins (þaö óð framan aö Rússum við þetta tækifæri, móti skothríöinni, og sótti aö þeim meö byssustingjun- um), þaö leiðir tvent í ljós: Að Japansmenn hljóta aö teljast meö helztu herveldum heimsins, bæði á sjó og landi. Þeir hafa lært til hlítar praktíska hernaöaríþrótt. Hitt sem viö þetta leiöist í ljós er, aö Rússar hafa aftur á móti týnt niður hernaðaríþróttinni. Rússnesk skrifstofustjórn hefir gert herinn, bæöi á sjó og landi, duglausan. Ávinningurinn og tapiö viö það, aö orka Japansmanna og ódugn- aöur eða seinlæti Rússa hefir þann- ig opinberast, nær lengra en til yfirstandandi ófriðar; hvernig helzt sem stríðinu lýkur þá hefir slíkt áhrif á álit hvorrar þjóðar fyrir sig í augum heimsins. Und- fariö álit á þeim tekur algjörri breytingu. Þó aldrei nema Rúss- ar vinni sigur aö lokum, þá stend- ur þjóðunum ekki jafnmikill ótti af þeim framvegis eins ogaöund- anförnu. Og þó aldrei nema Japansmenn verði aö lokum und- ir í viðureigninni viö Rússa, þá halda þeir engu aö síður því á- liti, sem þeir nú hafa náö, aö vera í tölu hinna mest dugandi þjóöa heimsins. Hernaöaraöferö þeirra, síðan stríö þetta hófst, hefir tekið öllu ööru fram á síðari tímum, sem sögur fara af. Eftir því sem stríðið stendur lengur yfir og Japansmenn vinna hvern frægan sigurinn eftir ann- an, á sjó og landi, eftir því veita menn stríöinu meiri og meiri eft- irtekt og brjóta heilann yfir því, hvernig fara muni. Þaö má svo kalla, aö Rússar hafi mist bæöi Port Arthur og Vladivostock, og skipagöngur til allra hafnanna eru algerlega ómögulegar. Eini vegurinn, sem unt er að flytja liðsafla og vörur eftir, er þessi langa, einsporaða, seinfarna Sí- beríujárnbraut. Hinir fyrstu sigurvinningar Japansmanna á landi benda til þess, að blóðugar orustur veröi háöar í Manchúríu, og standa þá Rússar mun ver að vígi. Japansmenn geta meö hægu móti aukið viö liö sitt og flutt aö hergögn og vistir án þess neitt sé aö óttast frá hendi óvin- anna. Þaö lítur því út fyrir, aö Japansmenn eigi sigur vísan fyrst um sinn. En hvaö svo? Hvernig fer næst? Japansmepn gætu ekki brotist inn á Rússland þó þeir vildu; og Rússar geta haldiö stríö- inu áfram í það óendanlega, ef þíim svo sýnist, jafnvel eftir aö þeir hafa mist Manchúríu. Því er haldið fram, að sómatilfinning Rússa þoli ekki þá miklu lægingu að viðurkenna ósigur. Þeir geta sent hermenn austur Svo aö segja miljónum saman. Á næstu árum geta þeir sent austur annan her- skipaflota.0 Mannafli þeirra og fjárráö er hvortveggja svo að segja takmarkalaust. Skeö getur og, að Rússar grípi til þeirra úrræðk, heldur en að kannast viö ósigur í viðureigninni viö Japansmenn, aö neyða Breta út í stríö meö því að brjótast inn á Indland; eöa þeir koma á al- mennu stríöi út af Balkan-skaga ástandinu. Þeir mundu ekki taka það jafn nærri sér að ganga’ að friðarsamningum ef um almennan ófrið væri aö ræöa eins og ef um Japansmenn eina væri að ræða. Gæfu Bretar eða einhverjir aðrir sig fram til að reyna aö miöla málum og koma friði á eins og sakir nú standa, þá gæti slíkt orö- iö til þess aö kveikja ófriö á ein- hverjum öörum stað. Því aö friðarsamningar nú gætu ekki bygst á öðru en ósigri Rússa. Ástandið er flókið og ekki hægt aö sjá hvar lendir. Vinni ekki Rússar neinn sigur, sem að ein- hverju leyti réttir viö álit þeirra, þá missa þeir viröingu þá og beyg, sem þeim hefir tekist aö koma inn hjá Asíuþjóðunum. Veröi þeir aö viðurkenna ósigur fyrir Japans- mönnum, þá tekur það þá mörg ár aö ná aftur hinu fyrra áliti sínu og haldi í Asíu. Hættan "liggur þess vegna aðallega í því, að ann- aöhvort veröi þetta margra ára stríð eöa þá hitt, aö aörar þjóöir veröi dregnarinn í þaö. Stríö þetta varpar nýju Ijósi á lyndiseinkunnir Japansmanna,, og leiðir margt merkilegt og eftir- tektavert í ljós. Hetjuhugur hermannanna á sjó og landi kem- ur manni ekki á óvart, en sjálfs- fórnarandinn, sem ríkjandi er hjá gjörvallri þjóöinni, vekur undrun og aödáun um heim allan. Þeg- ar Togo aömíráll kallaöi sjálfboða til þess aö manna skipin, sem átti aö sökkva í hafnarmynninu úti fyrir Port Arthur í því skyni aö hneppa þar inni rússneska flotann, þá bauð hver einasti maöur á öll- um japanska flotanum sig fram. Sumir sendu inn skriflega beiðni —og brúkuðu blóö úr sjálfum sér í blekstaö—um að fá að ganga, aö því er virtist, út í opinn dauðann. í einni atrennunni til aö reyna aö loka höfninni, hljóp Hirosa undirforingi upp á rússneskan tundurbát, þegar skip hans sökk, og barðist þar við ofurefli þangaö til hann féll. Að líkindum heföi hann getað komist lífs af með því að synda aö Japönskum bát, sem var rétt viö hendina. Og sjálfsfórn þessi nær ekki einungis til hersins og sjómann- anna. Saga berst hingað frá London af Japanskri konu, sem gift var rússneskum manni og haföi mikla ást a honum, en þeg- ar hún komst aö því, að hann var rússneskur njósnari, þá kom hún því óðara upp um hann og lét " taka hann. * Hefði Vesturlanda- kona gert þetta, sem vafasamt er, þá mundi hun aö öllum líkindum hafa fyrirfariö sér á eftir; en jap- anska konan áleit þetta blátt á- fram skyldu sína og skoðaði alls ekki huga sinn um, hvort hún ætti aö gera það eða ekki. Japansk- ur moröingi, sem dæmdur var til aftöku, átti eftir einn dollar af peningum sem vinir hans höföu gefiö honum til aö kaupasér þæg- indi fyrir í varðhaldinu. • Síöasta kveídiö, sem maöurinn átti aðlifa, ráölagði fangavörðurinn honum að kaupa sér góöa máltfð fyrir peninginn. En morðinginn spuröi hvort hann ekki mætti leggja hann í stríðssjóðinn. Hinn hái stríðsskattur, sem svo miklum þrengingum hefir valdið á meðal íátæklinganna, er greiddur meö mestu ánægju. Margir Japansmenn, sem líkam- legrar óhreysti vegna ekki haía veriö færir um aöganga í herþjón- ustu og berjast fyrir landið sitt og konunginn, hafa tekið þaö svo nærri sér, að þeir hafa ekki getaö lifað og því ráðið sér bana. Jafnhliða hugrekkinu hafa Jap- ansmenn sýnt sérstakt göfuglyndi. Gagnvart föllnum óvinum sínum hafa þeir sýnt fáheyrða kurteisi. Þegar Makaroff aðmíráll fórst meö herskipi sínu Petropavlovsk, þá gengu þeir í prósessíu minningu hans til heiðurs og báru eitt þús- und hvitar pappírsluktir. A einni þeirra stóöu orð þessi rituö: ,, Óhugganlega syrgj um vér rúss- nesku hetjuna Makaroff aðmírál. “ Hvaö sýnir svo þetta? Þetta er ekki eingöngu sjálfsfórnarandí sá, sem svo algengur er á meðal austúrlandaþjóöanna, heldur ein- dregin ákvörðun að vinna landinu sínu sem mest gagn í hverri stööu sem er. Þessi einstaklingsdæmi um hugrekki og sjálfsfórn veröa ef til vill ekki til þess aö vinna stríöiö, en þau sýna hvernig Jap- ansmenn eru. Og þaö, sem þeir sýna meðan á stríöinu stendnr, mun einnig koma fram hjá þeim þegar friður er kominn á og þeir taka sér stöðu á meðal stórþjóö- annna 1 helztu framfara og vel- feröarmálum heimsins. — Worlds Work. LEIÐRÉTTING. I síöustu viku birtum vér í blaði vorugrein úr ,,ísafold“ meö fyr- irsögninrii ,,íslendingurinn í París, “ vegna þess vér bjugg- umst viö, aö margir lesendur Lög- bergs mundu fara nærri um hver mannræfill sá er þó nafniö ekki segi til þess. En í ógáti var þess ekkigetið hvaöan greinin er tekin. Samkvæmt lögum ber aö til- kynna sveitaskrifurum barnsfæð- ingar innan mánaöar frá því þær ske og liggur sékt viö ef því laga- ákvæöi ekki er hlýtt. Bæjar- skrifarinn í Winnipeg hefir nú beðið prestana aö áminna söfn- uðina um það, að eftir þessu veröi stranglega gengiö framvegis, og aö hér eftir verði aö vera tekið fram í téöum skýrslum hér í bæ strætis-heiti og hús-númer.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.