Lögberg - 23.04.1908, Blaðsíða 1
«HÉR viljum koma oss í kynni viC lesendur
^ þessa blaös. Vel má vera, aö þetta sé í
fyrsta sinn, sem þér heyriO oss nefnda, en
oss langar að kynnast yður nánar. Vér höfum
þenna stað næsta ár, lesið hann. Þetta er bænda-
félag. Sendið oss eina vagnhleöslu korns og vér
munum útvega yður hæsta verð, og taka að eins i
cent á bush. í ómakslaun. Sendiö korn yðar til
The Grain Growers Grain Company, Ltd.
WINNIPEG, MAN.
»»»»»»»»»»»»»»»»»»9»»»»»»»»»»»»a
D.' E.'Adams Coal Co.
. i
KOL'og^VIÐUR
Vér seljum kol og við í smákaupúm frá
5 kolabyrgjum í bænum.
Skrifstofa: 224 BANNATYNE AVE.
WINNIPEG.
21. AR.
Fréttir.
Fyikisþinginu í Ontario var slit-
iíS 14. þ. m.
Stjórnir Breta og Bandaríkja
eru aS semja um að fela gerðar-
dómnum í Haag atS skera úr á-
greiningi er milli ber um skilning
á samningunum, sem gertiir voru
1818 um fiskiveiðarnar viS New-
foundland.
Hlé hefir oríitS á sambandsþing-
inu um páskana eins og venja er
til.. RátSgjafarnir hafa samt veriS
önnum kafnir við ýms mikilsvarð-
andi mál, er fyrir þinginu eru.
'Þar á mebal umbætur á “Civil
Service”, Hudsonsflóa brautarmál-
ið, landfrumvarp Sir Olivers, sem
betSitS hefir frá því á síðasta Þingi,
frumvarp um stækkun fylkjanna,
og samgöngurnar fyrirhuguðu um
lönd Btetakonungs þvert yfir
hnöttinn. Ráðaneytið kvað ætla að
hafa athugað öll þessi mikilvægu
mál ítarlega þegar þingið kemur
saman aftur.
Fréttir frá Nicaragua lýðveldinu
herma frá Því, að þar hafi fjöldi
manna verið tekinn af lífi út af
pólitískri misklið. Sagt er að eitt-
hvað sjötiu eða áttatiu manns hafi
verið skotnir samkvæmt skipun
Zelaya forseta, af pólitískum sök-
um. Þó að stjórnarflokkurinn telji
frið um ríkið, er sagt að byltinga-
hugur sé mikill í mönnum í ýms-
um héruðum þar.
Hinn 16. þ.m. samþykti fólks-
þingið danska frumvarp stjórnar-
innar um atkvæðisrétt, með 64 at-
kvæðum gegn 35. Það ákveður, að
allir skattgreiðendur, bæði karlar
og konur, sem eru orðnir tuttugu
og fimm ára og allar konur giftar
skattgreiðendum skuli hafa atkvæð
isrétt i öllum sveitakosningum.
Mannskaðar miklir hafa nýlega
orðið af vatnsflóðum í Kína. í
einu héraði þar fórust 15. Þ. m.
um tvö þúsund manns áð þvi er
sagt er.
Roosevelt forseti hefir nýlega
lagt fyrir þingið einn boðskap sinn
Þess efnis, að herfloti Bandaríkja-
manna verði aukinn og bætt við
hann fjórum nýjum herskipum og
stórum. Kvaðst hann hafa búist
við að friðarþingið í Haag mundi
koma því til leiðar, að stórveldin
hættu því að auka við herskipa-
stól sinn, en með þvi að hið gagn-
stæða væri uppi á teningunum,
kvað hann Bandamenn eigi mega
annað, en fylgjast með öðrum
þjóðum.
Játvarður Bretakonungur kom
heim til Englands 16. Þ. m. frá
Biarritz á Frakklandi. Ýmsir laga-
snápar hafa verið að finna að Því,
að skipun ráðaneytísforsetans hafi
eigi verið formleg, ‘þar eð hann
hafi verið skipaður meðan konung-
tir var utan endimarka rikis síns.
Konungshjónin brezku lögðu aft-
ur á stað 20. þ. m. í kynnisför til
Kaupmannahafnar, Stokkhólms og
Kristjaniu.
Þeir sem kunnugastir eru telja
líklegt, að þingi Bandamanna verði
slitið um 0- næsta mánaðar og að
þangað til verði hægt að koma af
flestu Þvi, er nú liggur brýnt fyrir
á þinginu.
Sagt er að Roosevelt foreeti ætli
að ferðast til Evrópu á næsta ári,
eftir að hann hefir lagt niður em-
bætti sitt. Hann kvað ætla að ferð-
Winnipeg, Man.,
T
Fimtudaginn, 23. Apiíl 1908.
NR. 17
ast meðal annars til skandinavisku
landanna.
í St. Caihterines, Ont., brann 16.
þ. m. hnifa- og áhalda-verksmiðja
kend við Whitman & Barpes iðn-
aðarfélagið í Chicago, og útibú frá
því. Tjónið af eldinum metið
$i 50,000.
Hon. W. H. Cushing, ráðgjafi
opinberra verka i Alberta, kom
austan frá Montreal 20. þ. m., en
þar hafði hann verið að gera út um
fullnaðarsamninga á talþráðakaup
um Bell-félagsins í Alberta fylki.
í viðtali við blaðamenn vestra lýsti
Cushing yfir því, að verðið að öllu
samtöldu mundi verða eitthvað um
$675,000.
Roald Amundsen heimskautafari
er nú á leið til Noregs og þegar
hann kemur þangað kvað hann
strax ætla að fara að undirbúa sig
undir næsta leiðangur sinn norður
í höf. í þá för ætlar hann 1910.
Svo sem kunnugt er ætlar hann að
láta tamda isbirni ganga fyrir sleð-
um sínum, þegar eigi verður leng-
ur farið á skipi. Milli þrjátíu og
fjörutíu ísbirni kvað hann ætla að
hafa með sér og er Þegar farið að
temja þá. — Nýtt skip ætlar hann
að láta smíða til þessarar farar, og
vanda til þess sem bezt. Hann kvað
ætla að leggja á stað i leiðangurinn
frá San Francisco, qg hafa með sér
nægan forða til fleiri ára.
Á sunnudaginn var kom Banda-
ríkjaflotinn til Los Angeles. Hon-
um var tekið þar með kostum og
kynjum.
í síðustu viku taldist ýeim, sem
standa fyrir kosningaleiðan^ri
Tafts, svo til, að af fulltrúum þá
kosnum mundu 240 greiða atkvæði
með honum. Svertingjum alment
kvað ekki vera um að styðja Taft
til kosninga eða Roosevelt. Þeir
hallast að Foraker eða Knox eftir
því sem samþykt var á fundi
Svertingja úr 37 ríkjum, er þeir
áttu með sér í Philadelphia . Á rík-
isflokksfundi samveldismanna í
Massachusetts var samþykt að
taka ekki fram fyrir hendurnar á
fulltrúum til útnefningafundsins,
heldur skyldi Þeim í sjálfsvald sett
hvern þeir kysu, en allmikill hluti
þeirra er með Taft. í New york
ríkinu hafa sarhveldismenn og átt
fund meö sér. Þeir gáfu fulltrú-
um sínum skipun um að kjósa
Hughes ríkisstjóra á útnefningar-
fundinum.
Skýrslur þær, sem umboðsmenn
i Alberta, Sask. og Manitoba hafa
sent innflutningsmála- stjórnard. í
Ottawa, bera það með sér, að á
þessu sumri verði sáð i tuttugu
prct. fleiri ekrur f þeim þremur
fylkjum heldur en i fyrra. — Að
sáðlöndin eru nú víðáttumeiri er
einkum þvi að þakka hve mikið
hefir komið hingað til lands á ár-
inu af úýjum innflytjendum. Það
halda menn að þeim mun fleiri
muni flytja hingað frá Vestur-
Bandarikjum í ár, sem innflutning-
ar austan um haf réni. En líklegt
er að þeir innflutningar minki held
ur vegna nýja ákvæðisins í inn-
flutningalögunum um að hver inn-
flytjandi verði að eiga tuttugu og
fimm dollara er hann stígur hér á
land, sem eigi á vísa vini hér
fyrir, er greiði fyrir honum eða
hafi fengið vist loforð um atvinnu.
í Fargo í N. D. var 90 stiga hiti
21. þ .m. Það er meiri hiti en
menn mima eftir að hafi komið í
Aprílmáttuði um mörg ár.
Voðalegt járnbrautarslys varð í
grend við borgina Melbourne í
Astralíu á sunnudaginn var. Um
fjörutiu manns létust en særðust
milli áttatiu og níutíu.
Dominionstjórnin ætlar.aðgefl
fimtán Þúsund doll. i ferðakostnað
iþróttamönnum frá Canacfa, er ætla
til Olympsku leikjanna 'v Lunij^n-
um i sumar. Safnast hefir þegar
nm nitján Þús. doll. sjóður, en á-
ætlað að Þurfi frá þrjátiu og firnm
til fjörutíu þúsund dollara.
Úr Álftavatnsnýlendu.
7. Apríl 1908.
Héðan eru engin stórtíðindi að
segja. Tíðin hefir verið óstilt held
ur að undanförnu, en nú eru- farnir
að koma hlýir dagar á milli og
orðið autt á öllu hálendi. Þessa
síðustu daga hefir samt verið kalt.
Gripahöld og heybirgðir yfir höf
uð, hjá íslendingum hér, eru í all-
góðu lagi. Sumir heylitlir, en aft-
ur aðrir sem geta selt hey. Tonnið
af því selt 4 til 5 doll. Hjá Kyn-
blendingum og Englendingum, er
hér búa margir, eru víða ill gripa-
höld og heyskortur.
Sterk hreyfing er hér nú að
koma á sveitarstjórn. Upptök þess
máls eru í Grunnavatnsbygð, og er
hr. Helgi Pálsson ötulastur for-
mælandi þess. Það á að halda
fund í Franklin skólahúsi um það
mál núna í vikunni. Sterk hreyf-
ing er hér á tnóti Því að sveitar-
stjórn kojtíist á, og verið að safna
undirskriftum undir skjal, til að
mótmæla sveitarstjórn. Eigingirn-
in, sundrungarandinn og öfundsýki
vfir imynduðum hagnaði,sem aðrii
kunni, ef til vill að hafa af sveitar-
stjórn, beita öllum vopnum til að
drepa þetta mál, bæði meðal ís-
lendinga, og einkum i flokki Eng-
lendinga. Er það lítill lofsauki
fyrir hina margdýrkuðu brezku
stjórn að Þeir, sem aldir eru upp í
skauti hennar skuli vera fremstir í
flokki að spyrna á móti því, að
komast í lögbundin félagskap, en
vilja heldur fylla flokk Indíána og
kyrtblendinga, sem helzt vilja lifa
stjórnlaust eins og hérarnir í skóg-
inum, til þess eins og hérarnir að
verða ötlum stærri dýrum að bráð.
Þetta sundurlyndi hér er svo
inagnað, að sumir, og enda sumir
beztu mennirnir, sem telja sveitar-
stjórn sjálfsagða, draga sig í hlé
ig láta málið afskiftalaust, þvi
þeim hrís hugur við öllu þessu
sundurlyndi og öllu því striði, sem
það kostar, að ganga á hólm við
alt það lægsta í hugsunarlífi al-
Þýðu hér um féjgsmál. — Og sá,
sem þekkir hugsunarháttinn hér í
þeim efnum, kastar naumast á þá
þungum steini. Vonandi er samt,
þrátt fyrir alt, að gott mál sigri um
síðir, þó það falli ef til vill nú.
Tveir pukursalar vínfanga hafa
verið sektaðir hér fyrir óleyfilega
vín sölu, og sektaðir um smáupp-
hæðir fyrir þá. Að eins handa þeim
til að hlæja að.— Almenningsálitið
hér er sjálfsagt minna ákveöið
móti þeim en sveitarstjórninni. Þó
hún falli, þá stjórna pukursalarnir
hugsunarhætti hinnar uppvaxandi
kynslóðar, og áhrif þeirra á hana
eru ekki síður auðsæ en skólanna,
og færri eru þeir sjálfsagt, sem
vilja hætta í 3. bók hjá þeim, held-
ur en á skóhmum. Skóli Þeirra,
sem selja vín i laumi, er háskóli
kæruleysisins.
En hver ráð eru til þess að út-
rýma hugsunarhætti þeim, er drep-
ur nauðsynjamál eins og sveitar-
stjórn, .en elur upp taumlausa
dansfýsn, ólöglega vinsölu, kæru-
leysi og lágan hugsunarhátt? Að
ámæla tyrír það er ekki einhlitt.
Eina ráðið gegn því er að beztu
mennirnir, eldri og yngti, reyni að
draga hugi æskulýðsins að öðrum
göfugri áhugamálum. Skemtanirn-
ar Þarf æskan að hafa; það er
henni Hfsnauðsyn. En það þurfa
að vera skemtanir, sem eru göfg-
andi og styrkjandi sál og likama.
Má þar til nefna góða sjónleiki.
Söngæfingar, íþróttir, t. d. glímuur
og aflraunir, dans í hófi, 3—4 kl.-
stundir á hverri samkomu á eftir
öðrum skemtunum; það væri hæfi-
leg skemtun. Og margt fleira
mætti telja sem hollar skemtanir.
En 10—12 kl.-stunda stritvinna við
dans, eins og hér tiðkast, og það
við fremur klunnalegan dans, það
er drepandi fyrir sál og líkama
unglinganna. Hlutverk hinna eldri
þarf að vera að leiða hina yngri að
hollum skemtunum og framkvæmd
arsömu félagslifi. Mannsandinn
er nú svo gerður, að hann þarf
eitthvert viðfangsefni að hafa til
að glima við. Og ef hann hefir
enga göfuga hugsjón til að berjast
fyrir, þá fer hann að róta í sorp-
inu. Hugsunarhátturinn verður
lágur og kaldur og kærulaus. —
Þetta ætti að vera aðal umhugsun-
arefni allra þeirra er vilja vel, þvi
mannfélagi er þeir búa í.
SkarþhéSinn.
Fréttirfrá íslandi.
Reykjavík, 1. Apríl 1908.
Lárus E. Sveinbjörnsson dóm-
stjóri í landsyfirdóminum hefir i
fyrradag fengiö lausn í náð frá
embætti.
Kristjáni Jónssyni var sama dag
veitt dwustjóraembættið.
Jón Jensson er settur 1 yfirdóm-;
ari, en Eggert Briem skrifstofu-
stjóri 2 yfirdómari.
L. E. Sveinbjörnsson varð dóm-
stjóri 1. Maí 1889, en i yfirdómin-
um hafði hann setið rétt 30 ár,
varð þar meðdómandi 1878.
Um leið og hann fékk lausn frá
embættinu varð hann kommandör
af 1. flokki dannebrogsorðunnar.
Verzlunarblað á að fara að koma
út í vor. Stofnendur þess eru
Grímúlfur H. Ólafsson og Ólafur
Ólafsson verzlunarmenn. Það á að
kosta 3 kr. árg og verða minst 12
blöð á ári, hvert ekki minna en .io
síður. “Ætlun okkar er,” segja út-
gefendurnir í boðsbréfinu, “að blað
ið verði bæði á íslenzku og ensku.”
Blaðið á einúngis að fást við verzl-
unarmál. Ritstjóri þess verður
Grímúlfur H. Ólafsson.
i
Iðnaðarblað eða tímarit á einnig
að byrja að koma hér út í vor. Það
á að koma út fjórum sinnum á ári
og er Iðnaðarmannafélagið útgef-
andi, en ritstjóri verður Rögnvald-
ur Ólafsson húsagerðameistari.
Veðrið er nú mjög gott á degi
hverjum, kyrt og bjart, en nætur-
frost nokkurt.
Áætlun um kostnaðinn við Skeiða-
áveituna er nú komin frá Talbitzer
verkfræðingi og er 200 Þús. kr.
Þaö er mun hærra að tiltölu en við
Flóa-áveituna. Búnaðarritið skýr-
ir sjálfsagt innan skams nánar frá
áætluninni.
(
)
Úti varð um síðastliðin mánaða-
mót Björn Jónsson frá Eystri-
Krókum í Fnjóskadal.
Á fjölmennum fundi,er kjósend-
ur í Romshvalanesshreppi héldu ný
lega í Keflavík, var samþvkt svo-
lújóðandi tillaga frá hr. Guðmundi
Hannessyni:
“Fundurinn lýsir Því yfir, að
hann telur æskilegt að fá aðflutn-
ingsbann á áfengum drykkjum hið
allra fyrsta, og vill af fremsta
megni styðja atkvæðisgreiðslu þá,
er fram á að fara á þessu ári til
undirbúnings því máli.”
*
í stórviðrinu 24. f. m., sem frá
er sagt í síðasta blaði,strandaði eitt
af fiskiskipunum frá Hafnarfirði
við Miðnes. Það var “Kjartan”,
eign Brydesverslunar. Hafði skip-
stjórann fyrst tekið út, úti á rúm-
sjó, og skipið lagðist þar á hliðina,
en Það rétti við aftur og rak þá til
lands. Skipverjar komust allir (18J
af, nema skipstjórinn. Hann hét
Jón Jónsson, ættaður sunnan úr
Njarðvíkum, og lætur eftir sig
ekkju, Arndísi Þorsteinsdóttur,
systur þeirra Þorsteins kaupmanns
i Bakkabúð og séra Bjarna á Siglu-
firði.
“Fálkinn” kom inn hingað í
fyrradag með tvo botnvörpunga, er
hann hafði tekið við veiðar í land-
helgi hér úti i Flóanum. Annar
heitir Chieftain frá Hull, skipstj.
Arthur Múnger. Hann þrætti fyr-
ir brotið og sóru tveir af foringj-
unum á Fálkanum það á hann.
Hann fékk 1,600 kr. sekt. — Hitt
skipið heitir Invicta frá Grimsby,
skipstj. James Westerby. Það
skipið hafði ekki verið að veiðum,
en haft veiöarfæri uppi, og sættist
skipstjóri á að borga 400 kr. sekt
og kostnað.
Þessi síðarnefndi skipstjóri er
gamall sökudólgur og hefir áður
verið dæmdur gegn neitun, af jfir-
rétti, í 1,200 kr. sekt.
Um Viðvíkurprestakall sækja
þeir séra Einar Pálsson í Gaul-
verjabæ, sra Jónmundur Halldórs-
son á Barði, séra Þorleifur Jóns-
son á Skinnastað og Sigurbjörn
A. Gíslason guðfræðiskandídat.
í Reykholtsprestakalli fer kosn-
ing fram 11. þ. m.
Dáinn er 25. f. m. Tómas Guð-
mundsson bóndi á Járngeröjirstöð-
um í Grindavík, fæddur 1859. —
Banameinið var lungnabólga. Læt-
hann eftir sig ekkju og sex börn.
Ekkjan er Margrét Sæmundsdótt-
ir, systir Bjarna Sæmundssonar
kennara. Tómas heitinn var dugn-
aðarmaður og vel metinn. —Lögr.
Jón Rommer Einarsson
heitir íslenzkur maður, sem þessi
myn d er af. Hann hvarf frá
Winnipeg 15. Apríl 1904, var þá
ekki búinn aö vera hér tvö ár, og
hefir ekkert til hans spurst síðan.
Hver sem kynni að geta gefið
nokkrar upplýsingar um hann, er
beðinn að gera það sem fyrst,
vegna móður hans og systur,
Á skrifstofu Lögbergs.
í S L A N D.
Dagur í austri, ísland, sk'm
og enn þá er bjart um fjöllin þín, —
til ljósins benda Þau himinhá
og heimting réttar vors minna’ oss á,
að: alfrjáls skal þjóS í alfrjálsu landi.
Heill sé þér, fold, sem Eggert ólst
og ungan í skauti Tómas fólst,
sem rækt aö erfðum vér fengum frá
og festu’ i brjóstum oss hugsjón þá,
að: alfrjáls skal bjóS í alfrjálsu landi!
Framtíðarland hins frjálsa manns,
vér fléttum þér blóm í sigurkranz
og heitum: aldrei að eira frið
og aldrei fyrri þig skiljast við
en alfrjáls er bjóS í alfrjálsu landi.
Verndi þig drottinnv fagra Frón,
er fjendur þér vilja gæfu-tjón!
— Þótt eldri kraftamir ýti sér,
vér ungu kraftana helgum þér,
uns alfrjáls býr bjóS í alfrjálsu landi!
Guðmundur GuSmundsson.
Kvæði þetta átti að syngja á afmælishátíð Ung-
mennafélagsins á ísafirði 17. Marz. — Ingólfur.
Fyrir tuttugu árum.
fc
1
Á sunnudagskveldið var var ís- ‘
lenzka kirkjan hér svo troðfull af
fólki, sem hún gat verið. Tilefnið
var það, að þá gaf séra JónBjarna- j
son, þau séra Friðrik Bergmann og
Guðrúnu Thorlacius fprests frá
HafsteinsstöðumJ í hjónaband. —
30—40 manns voru í samsæti hjá
séra Jón Bjarnasyni á eftir.
Þrír landar komu hingað frá ís-
landi á sunnudaginn var, einn úr
Reykjavík, Bernhard Guðmunds-
sen, einn af Akranesi, Christens
Thorsteinson og einn af Skaga-
strönd, Sölvi Sölvason. Þeir höfðu
lagt af stað fimm saman frá ís-
landi, en einn sest að í New York,
en annar i Chicago.
Hafið þér séð nýju hattana brúnu? Þeirer“"|k™"^-R|etatIrá
--- Dökkbrúni blærinn og flötu börðin gera þá mjög ásjálega. -
WMITE & MIANAHAN, 500 Main St., Winnipeq.
Hljóöfæri, einstök Iög og nótnabækur.
Og alt sem lýtur aö jnúsík. Vér höfum stærsta og bezta úrval af
birgðum í Canada, af því tagi, úr aö velja. Verölisti ókeypis.
Segiö oss hvaö þér eruð gefinn fyrir.
WHALEY, ROYCE & CO., Ltd., 356 Main St., WINNÍPEG.