Lögberg - 26.10.1911, Síða 1
#i$6ef q.
24. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 26. OKTÓBER 1911
NUMER 43
t
I
Dr. Moritz Halldórsson
látinn
Dr. Halldórsson andaðist að heimili sínu í Park
River, N. Dak., fimtudagskvöldið 19. þ. m. Banamein
hans var heilablóðfall, er hann fékk 1 svefni nokkrum
dögum áður. Séra N. Stgr. Thorláksson fór suður um
helgina til að jarðsyngja hann. Dr. Halldórsson var á
sextugs aldri; lætur eftir sig ekkju, ættaða frá Danmörku,
og fimm börn. Hans verður nánara minst síðar.
Róstur í þýzka þinginu.
Kanzlari mótmælir tolllækkun.
Fólksfjöldi í helztu borgum
Canada.
Elsti Indíáni í Banda-
Óánœgja járnbrauta-
þjóna á Englandi.
Nýtt verkfall í vændum.
Óánægja járnbrautaþjóna á
Englandi er að vaxa. Þeir geta
ekki gert sér að góðu úrskurð
járnbrautamálanefndarinnar um
deilumál þeirra og vinnuveitenda.
Sérstaklega þykir járnbrauta-
þjónum það óhæfilegt ákvæði í. á-
liti nefndarinnar að þeir skuli
skuldbinda sig til að halda áfram
að vinna við sömu kjör sem þeir
hafa nú þangað til 19- Júlí I9'2-
Er það ætlan mauna, að þetta
nefndirálit verði því fremur til
að auka ófrið en til að stuðla að
friði. Járnbrautaþjónar eru hin-
ir æfustu og segjast verða að fá
hærri verkalaun en þeir hafi, að
öðrum kosti ætli þeir að gera
nýtt verkfall og svo víðtækt að
járnbrautalestir verði stöðvaðar
um endilangt England.
Nýtt Suez-skurðar-
hneyksli.
Hluthafi dregur sér $200,000
Það þykir miklum tíðindum
sæta í París að nýlega er sannað
að einn af starfsmönnum Suez-
skuröar-félagsins hefir dregið sér
um $200,000. Starfsmaður þessi
hafði verið talinn mjög svo heið-
arlegur maður, og hafði haft til
umráða mikið af hlutum Suez-
skurðarfélagsins, og' er sagt að
hann hafi selt þá hluti og notað
andvirðið til ,a8 greiða ýmsar
skuldir er hann lcemst í við fjár-
málabrall. Fjárglæframaður
þessi hefir horfið og er lögreglan
að leita hans.
ríkjunum.
96 ára. Aldrei barist gegn
hvítum mönnum.
Sitting Elk heitir elzti Indí-
áni í Bandaríkjunum. Hann var
fyrrum höföingi Ogjallah Sioux-
anna. Nýs1<eS kom hann til Den-
ver og gisti þar ýmsa hvíta menn.
Hrósar hann sér af því, að hafa
aldrei farið á hendur þeim með
ófriöi. Hann hefir marga áratugi
veriö foringi kynflokks síns, en
sýnt meiri vitsmuni en margir aör-
ir Indfána höfðingjjar. Honum
skildist það þegar í stað, að Indí-
áriar mundu aldrei mega reisa
rönd við hvítum mönnum og kom
sér því ávalt hjá því að fara,méð
ófrið á hendur þeim. Sitting Elk
er nú 96 ára gamall og hefir aldrei
neytt áfengis. Hann reykir aftur
á móti vindlinga en telur það hina
einu óhófsemi, er hann hafi tekið
eftir hvítum mönnum.
Vínsölubanrá í Ontario.
Borden á suðurvegum.
Borden stjórnarformaður hefir
leitað á suðurvegu eftir kosninga-
styrjöldina. Œtlar hann að ferð-
ast víða um Bandaríkin sér til
hressingar og heilsubótar og vera
í þvf ferðalagi til mánaðarloka.
Með honum fór frú hans. Foster
verzlunarmálaráðgjafi gegnir for-
sætisráðherraembættinu í fjar-
veru herra Rordens.
Styrjöldin í Tripolis.
Arabar berjast gegn ítölum.
Það hefir helzt markvert gerst
i styrjöldinni í Tripólis að Arabar
hafa nú tekiö þátt í henni og geng-
ið í lið með Tyrkjum en móti ítöl-
um. Gerðu Italir atlögu mót
stórskotaliði Tyrkja og hersveit-
um Araba, en þeir tóku svo hraust-
lega á móti að ítalir létu undan
siga, eftir að þeir höfðu mist um
fimtiu manns. Tyrkir náðu og
nokkrum af skotfærum og vistum.
Frézt hefir að stóronista hafi
orðið milli ítala og Tyrkja æði-
langt upp í landi þar er aðalstöðvar
hers Tyrkja og- Araba eru, en
engar fréttir eru enn komnar af
þeirri viðureign.
Atkvæðagreiðsla fer fram í Jan.
I Ontario fylki fer fram mikil
atkvæðagreiðsla um vínsölubann í
Janúarmánuði næstkomandi. Fer
atkvæðagreiðslan fram í áttatiu og
þremur sveitafélögum og bæjum
alls. Á þessu svæði eru nú 278
vínsalar. Þorrinþ a£ þeim er í
bæjum og þorpum. Bindindis-
menn gera sér góðar vonir um, að
bera hærra 'lilut 1 þessari atkvæða-
greiðslu.
Eftirmaður páfans.
Þær fréttir berast frá Róma-
borg, að Píus páfi X. muni kjósa
sér til eftirmanns Rompolli kardí-
nála. Rompolli kardínáli er hinn
mikilhæfasti maður og hefir um
hríð hlotið miklar virðingar af
páfa.
Róstusamt er á þýzka þinginu
um þessar mundir. Hafa frjáls-
lyndir þingmenn og jafnaðarmenn
skorað fastlega á stjórnina að færa
niður tolla á innfluttum matvæl-
im til að draga úr ofverði þvi sem
er á öllum lifsnauðsynjum þar í
landi. Kanzlarinn, von Beth-
mann Hollweg svaraði þeim áskor-
unum á mánudaginn var. Kvað
hann þess engan kost, að stjórnin
gæti lækkað toll á innfluttum mat-
vælum. Vildi hann halda því
fram, að það yrði að eins haguP
verzlanar miðlum en ekki þeim er
varninginn brúkuðu sjálfir.
Hvatti hann bændur til að stunda
meir kvikfjárrækt en þeir hefðu
gert; sagði hann að Þýzkaland
yrði eftirleiðis að spila upp á
eigin. spýtur er hvorki Bandarík-
in eða Rússlánd vildu ganga
að hagkvæmlegum verzlunarsamn-
ingum. Jafnaðarmenn pg frjáls-
lyndir þingmenn kunnu svari
þessu afar illa og urðu af þessu
mestu róstur i þinginu. Heimt-
uðu þeir hiklaust að stjórnin tæki
þegar í stað toll af innfluttu kjöti
frá Bandaríkjunum, og fóru stór
orð á milli og heitingar.
Hér á eftir er talinn fólksfjöldi
í helztu bæjum Canada eftir nýja
nianntalinu:
I Manitoba: —
Utbreiðsla kaþólskrar
kirkju.
22,300,000 kaþólskir í Ameríku
Hagfræðingur nbkkur ítalskur,
sem Stradelli heitir, hefir nýskeð
gefið út skýrslu um útbreiðslu
kaþólskrar trúar víðsvegar um
heim. Heldur hann þvi fram, að
rómversk-kaþólska kirkjan sé aö
fá meiri og meiri útbreiðslu í öll-
um löndum heims. — Árið 1800
voru á Englandi 120,000 kaþ..
en 2.000,000 árið 1900. Á Þýika-
landi hækkaði tala þeirra úr 6,000-
000 upp í meir en 20,000,000 og
á Hollandi frá 300,000 upp í i,-
800,000. Fr: Rússlandi vjantaði
ítarlegar skýrslur, en skýrslur sið-
ustu fimm ára báru það með sér,
að kaþólskum hafði fjölgað þar í
landi þann tíma að eins um 230.-
000. í Afríku voru því nær engir
kaþólskir menn um aldamótin
1800, en nú eru þeir um 850,000.
Langmest hefir þó kaþólskum
fjölgað í Bandaríkjunum.i Á síð-
astliðinni öld öndverðri voru þar
um 40000 kaþólskra manna, en
eru nú orðnar 22,500.000. Sama
er að segja um Ástralíu. Þ'ar var
varla nokkur maður kaþólskur um
1800, en nú eru kaþólskir þ^r
orðnif um 1,600,000.
Byltingin í Kína.
Uppreisnarinenn vinna tvö ný
fylki.
Byltingin í Kína er að vaxa og
færast út. Hafa uppreisnarmenn
náð fótfestu i fjórum hinna átján
fylkja, en þau eru: Sze Chuen,
þar sem byltingin hófst; Hu Peh,
þar er Wu Chang höfuðborg; Hu
Nan og Kiang Zu. Ef þeir ná
undir sig Nankingborg, en á því
eru allar horfur, þá mundu þeir
enn ná yfirtökum í tveimur rylkj-
um í viðbót fylkjunum Kian Su
og Ngan-Hivei. — En það er nán-
ara af byltingunum áð segja, að
uppreisnarmenn höfðu á mánudag
inn var náð undir sig tveimur
fjölmennum borgum, Chang Sha i
Hu Nan fylki og Nan Ohang, sem
er höfuðborg i Kiang Li fylki; um
leið og þeir náðu yfirráðum i
þessum borgum, hafa þeir náð
undir sig báðum fylkjunum, sem
þær eru i, en þau eru tvöfalt víð-
áttumeiri og fólksfleiri en hin fylk
in sem þeir höfðu náð yfirráðum
yfir áður. íbúar Chang Sha eru
um 300,000 og er borgin miðstöð
allrar verzlunar á járnbrautinni
milli Hankow og Canton. I Nan
Chang eru 100.000 íbúar. Sú borg
er um 200 mílur suður af Hankow.
—Uppreisnarmenn eru a!t af að
að ná meiri og meiri fótfestu og
! allur Yang Tse dalurinn að lenda
á þeirra vald. Engar fregnir liafa
enn borist um uppreisn í Nanking.
sem er um 200 mílur frá Shanghai
en líklegt að þess verði ekki langt
að bíða að sú borg falli i þeirra
hendur, því að setulið stjórnarinn-
ar er sagt ótrútt og mun mestalt
ganga í lið nieð uppreisnarmönn-
um er á reynir. Nanking «r eigi
að eins mikill verzlunarbær heldur
og aðalstöð setuliðsins í miðju
Kína, og ef sú borg lenti í höndum
uppreisnarmanna yrði það stjórn-
inni hið langmesta tjón, er enn
hefir orðið i þessum ófriði. —
Stjórnin hefir gert ráðstafanir til
að veita byltingamönnum viðnám
1 Changhai. Horfurnar yíir höf-
uð binar ískyggilegustu, og er al-
ment svo litið á, að ef stjórninni
hepnast ekki að bæla uppreisnina
niður, þá muni byltingin breiðast
út um mikinn hluta alls ríkisins.—
Flóttamenn hvaðanæfa fly^rkjast
til Shanghai, og segist þeim flest-
öllum svo frá, sem alþýða sé fylgj
andi byltingamönnum, og sé greitt
fyrir þeim viðast hvar eftir föng-
um. — Starfsmál öll eru í hinni
mestu óreglu, og fréttaþræðir
höggnir viða svo að fréttir eru
mjög- óljósar. — Síðustu fréttir
segja. að stótveldin hafi í hyggju
að skerast \ uppreisnina eða að
fela Japönum að stilla til friðar.
Brandon • • 13.837
Portage la Prairie.. .. • • 5.885
St. Boniface • • 7.717
Winnipeg •• 135.430
í Saskatchewan:—
Moose Jaw • • 13.825
Prince Alebert .. .. .. 6.254
Regina
Saskatoon
í Alberta:—
Calgary • • 43,736
Edmonton
Lethbridge
Medicine Hat • • 5i572
Strathcona • • 5.580
í British Columbia
Nanaimo • • 8,305
Nelson • • 4,474
N. Westminster .. .. • • 13.394
Prince Rupert • • 4-771
Point Grey •• 4319
Vanrouver • • 100,333
Vancouver (nyrðrij.. . . .. 778x
Vancouver (syðrij .. .. 16,021
Victoria .. 31,620
í Ontario:—
Cobalt • .. • • 5,629
Fort William
Golt
Hamilton . . 81,148
Kenora 6,152
Kingston .. 18,815
London . . 46.177
Ottawa • • 86,340
Owen Sound ■ • 12,555
Port Arthur 11,216
Toronto • 376.240
Windsor . . 17,819
Hull \ • • 17,585
Montreal
Ouebec . . 78067
Sherbrooke • • 16,405
Three Rivers .. 14,441
í N. Brunswick:
Moncton .. 11.329
St. Tohn • • 42,363
t Nova Srot.ri :—
Halifax . . 46,081
Minnisvarði Michaeis
Servetus.
Afhjúpaður í Geneva.
Minnisvarði Michaels Servetus’
hins nafnfræga spænska læknis,
var nýskeð afhjúpaður í Vienne á
Frakklandi. Michael þessi var
uppi á 16. öld og er hann frægast-
ur fyrir það, að hann varð fyrstur
manna til að gera rétta grein fyrir
hringferð blóðsins, en hann var
sakaður um villutrú og brendur á
báli í Geneva 1555' Afhjúpun
þessa minnisvarða hefir verið
frestað hvað eftir annað siðastlið-
in tvö ár vegna þess ao stallurtnn
undir likneskið hefir eigi verið
fullgerður. Veizla mikil og mann-
fagnaður var á eftir. Fjórða
minnisvarðann á að reisa Servetus
í Geneva, en þrír hafa þegar verið
reistir á Frakklandi.
Brezka þingið. "
Kom saman 23. þ. m.
Brezka þingið kom saman 23. þ.
m. Aðal frumvarpið sem fyrir því
liggur er tryggingar frumvarp
Lloyd-George. Þegar hann bar
fyrst upp fru.mvarpið óskaði hann
eftir að það væri gagnrýnt itar-
lega. Það hefir og orðið. Verka-
menn hafa andmælt því, og þótt
sem sér vera lögð þar helzt til
þung byrði á herðar. Aðrir hafa
haldið því fram, að vinnuveitend-
ur og rikið ættu að bera aukaálög-
urnar. í annan stað þykir vinnu-
veitendum sem þeim sé of mikið í-
þyngt með frumvarpinu. Enn aðr-
ir vilja að ríkið sé algerlega und-
an'þegið .þessum álöjgum. Samt
Verkbanninu lokið. „JJ1-- Ch[;. J°íns°n,fri
Baldur, Man., eru stodd her 1 bæn-
-.t ,, . , . „ „ . um um þessar mundir.
Verkbanm þvi er nu að mestuj 1
leyti lokið, sem nýja stjórnin skip-
aði fyrir um við Transcontinental
brautina og Hudsonsflóa brautina.
Sumir verkstjórarnir voru fjarver-
andi þegar skipunin kom að hætta Hon. Robert Rogers innanrikis-
verkinu, svo að starfinu yar ekki rásgjafi verður kosinn gagnsókn-
Bráðlega er búist við. að strætis-
vagnar renni allar nætur hér í
Winnipegbæ.
hætlu hjá þeim, en aðrir sintu ekki
skipununum og héldu starfinu á-
fram. Þeir Mr. King og Mr.
Vopni létu báðir hætta þeim störf-
um, sem þeir höfðu tekið að sér,
arlaust hér í Winnipeg kjördæm-
inu á föstudaginn kemur.
Laugardagteskqílinn byrjar í
sunnudagsskólasal Fyrstu lútersku
en eru nú aftur .teknir til starfa. kirkju kl. 2 siðdegis á laugardag-
Mr. McArthur hefir fengið leyfi inn kemur. Allir íslenzkir ung-
til að halda áfraan starfi við Hud-
sonsflóa brautina, svo að minna
verður úr þessu verkbanni en búist
var við í fyrstu. Þetta tiltæki var
þó nóg til þess, að verkamenn
mistu atvinnu nokkra daga.
Dr. Cook í Kaupmannahöfn,
Eins og menn muna, fór Dr.
Cook til Kaupmannahafnar þegar
hann kom úr heimskautaför sinni,
og af því að menn trúðu sögusögn
hans, fékk hann þar konunglegar
viðtökur, en seinna var Dönum
lagt það ómaklega til lasts, hve vel
þeir hefði fagnað honum. Nú
berast þær fregnir frá Höfn, að
Dr. Cook sé þar stíddur og hafi
gert tilraun til að halda fyrirlest-
ur og skýra enn frá ferðalagi sínu
til norðurheimskautsins. Mikið
fjölmenni þyrptist saman til að
hlýða á hann, og voru sumir hon-
um vinveittir, en miklu fleiri
fjandsamlegir. Og lauk svo eftir
miklar stympingar, köll og óhljóð,
að Cook varð að flýja út úr fund-
arsalnum og leynast út um bak-
lingar velkomnir.
eins og áður.
Ókeypis kensla
I fyrri viku fóru þeir J. J. Vopni,
J. A. Blöndal og G. Thomas í
veiðiför norður að Manitoba vatni.
Þeir fóru i bifreið og voru 3 daga
að heiman. Þeir voru óheppnir
með veður einn daginn. en gekk
ferðin að öðru leyti vel. Þeir
skutu um 100 endur.
Leikhúsið Empress birtir skrá
yfir þá sjónleika, sem þar eru
sýndir vikulega. Þar eru sýndir
margir skemtilegir sjónleikar í
hverri viku, sem vert er að horfa
á. Gefið gaum að auglýsing
þessa leikhúss.
Tveir menn fóru héðan áleiðis
til íslands í gær, Kristinn Eyjólfs-
son frá Candahar og Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, er kom að heiman
i sumar. Búast báðir við að koma
hingað næsta sumar.
sem áður þykir langliklegast aði ,..f
frumvarpiö verði ao logum eftir; m t m ____
aö nokkrar breytingar hafa veriö
á því gerðar. — írsku þingmenn- KoSMIlgar á IsIandÍ.
imir kröfðust þegar í stað að fá|verSa um Jand ftlt næstkomandi
Mrs. E!in María Ólafsson, kona
Óla W. Olafssonar, Elgin Ave„
andaðist hér í bænum þriðjudags-
dyr. Þaðan komst hann með hjálp jkvöldið 24. þ.m. Hún var 58 ára.
lögreglunnar 1 gistihúsið, sem jHennar verður siðar minnst nán-
dvelur í, og mun hann ekki reyna ara.
að halda fleiri fyrirlestra i Kaup-
í Prince Ed. Island:—
Charlottetown..............11,198
Nýi þingforsetinn í Ottawa.
Það er nú fastráðið, að hr. T.
S. Sproule, gamall conservativi
og einn hinna elztu þingmanna í
samlbandsþinginu, verðS þingfor-
seti næst. Dr. Sproule hefir verið
þingmaður í 33 ár og hafa engir
verið jafnlengi aðrir að undan-
teknum Sir Wilfrid Laurier og
Hon. John Haggart. Dr. Spnoule
er vinsæll maður af báðum stjórn-
málaflokkum.
að vita hvenær fVumvarpið ‘ um i, , ,, , .,,U '
Ilaugardag. Flokkaskiftmg
heim,astjórn írlands yrði borið
fyr en í Febrúar i fyrsta lagi.
Bæjarstjórnin hefir látið vinna
rnjög kappsamlega að lagning
ljósavira um bæinn siðan raf-afls-
stöðin tók til starfa. Bænum hafa
borist fjölda margar umsóknir frá
er nu einstökum mönnum, um raflýsing
í • 'r , , 1 nokkuð ógreinilegri en siðast. í heimaltúsum
T,' .Ra'?^fr,r f Tónsson, sem þá var i'
vLa.r .a,5.'T s r'U'.M:, Sjálístt6i™am.a, vart ó-: „ bm 'vo' „m„„ .
er haldið aö ekkert veröi af þvi i ,,, .K v-. T/ „ ,, r I T7- P*m- voru getin saman 1
sattur við Bjorn Jonsson ut ur hjónaband hér j bæ Einar ólafsson
jbankamalmu, og tok við raðgjafa- Qg J6nina jóhannsson
1 . , r. ... i.. :tign með tilstyrk Hannesar Haf-
Atta sinnum umhverhstioröina. . • , •„ , _______
* stems manna og þeirra konung-
Brezkur skipstjóri. sem Green-
street heitir, mun vera flestum
mönnum viðförulli. Hann er nú
njdagður af stað á nýju skipi frá
j Plymouth á Englandi til iNew
j/Tealand. Hann hefir ferðast átta
'sinnum umhverfis jörðina, og með
jgufuskipum og seglskipum um
2,000,000 rnílur og aldrei hlekst á
lí þeim ferðum til nokkurra muna.
T
kjörnu (6). Hann gengur nú til
kosninga í samráöi eða bandalagi kaupjnu
við Heimastjórnarmenn, en í hin-
um flokkinum eru fylgismenn
Björns Jónssonar og Skúla Thor-
oddsens. Þeir eru nú sáttir orðn-
ir, og hjálpast að kosningum.
Engu skal spáð um úrslitin, enda
skamt að biða átekta.
Séra Fr.
J. Bergmann gaf þau saman að
639 Maryland stræti. Myndarleg
veizla var haldin á eftir brúð-
Banaráð við Taft
forseta.
Úr bœnum
Breyting í brezka ráða-
neytinu.
—Nýtt brezkt herskip, eitthvert
hið fegursta, þeirra er enn hefir
verið gert, hljóp af stokkunum í
Portsmouth 9. þ. m. Það heitir
“King George V.”
Um siðustu helgi urðu allmiklar
breytingar i ráðaneyti Asquiths.
Winston Churchill, innanríkismála
ráðgjafi, er orðinn flotamálaráð-
gjafi, en Reginald McKenna hætt-
ir þvi starfi og tekur við embætti
Churchills. Earl Corrington for-
seti búnaðarmála er orðinn ‘iord
privy seal”. C. E. Cobhouse, fjár-
málaritari er skipaður ráðgjafi
hertogadæmisins Lancaster. Sir
Ed. Strackey og Rt. Hon. Alfred
Emmott M.P., hafa verið - gerðir
lávarðar. W. Runciman hættir
formennsku mentamáladeildarinn-
ar, og tekur við búnaðarmála for-
mennsku, en J. A. Pearse tekur við
hans fyrra embætti,
Þessar breytingar hafa ekki
vakið mikla eftirtekt, nema helzt
starfskifti þeirra Winston Church-
ills og McKenna. Unionista blöð-
in halda það verði til þess að út-
gjöld verði minkuð til flotans, þvi
að Churchill er kunnur að spar-
semi. en breytingin kann þó að
eiga sér aðrar orsakir. Báðir
þessir ráðgjafar hafa orðið fyrir
óvinsældum hjá verkamannaflokk-
inum, Mr. Churchill af þvi, að
hann lét nota hersveitir til að
stöðva óeirðir verkfallsmanna í
sumar, en Mr. McKenna af því, aö
hann þykip hafa aukið um of út-
gjöld til flotans.
F réttabréf.
Garðar, N. D., 18. Okt. 1911.
Iíelzt tíðindi héðan eru söng-
skemtan prófessors Sv. Svein-
björnssonar, sem hann hélt fyrsta
jOktóber. Hann hreif áheyrendur
!með sér, einkum þegar hann lék á
{ Frá Santa Barbara i Californiu
berast fréttir um banaráð við Taft
'forseta. Hafði verið gerð tilraun
til að sprengja í loft upp járnbraut
— (arlest er hann ferðaðist á. Frá
Miss Hulda Laxdal kom vestanjdyUamiti hafði verið gengið undir
|úr Saskatchewan um fyrri helgi. {8oo- feta langri járnbrautarbrú,
Hafði dvalið þar hjá ættfólki sinu sem lestin er Taft ferðaðist í fór
síðan i júnimánuði. jum litlu siðar. Því mishepnuðust
-------------- jþessi banaráð að brúarvörðurinn
Lengi minnast menn með gleði Var maður athugull og varkár um
fram það er alment gerist.
Eitt
yfir
og hlýjum endurminningum söng-
samkomu Prófessors Sveinbjörns-Ljnn er hann var að ganga
pianó. Undirspil hans við “Ólaf- sonar, sem hann hélt í G. T. húsinu jbrúna svo sem har.s var venja, tók
ur reið með björgum fram”, er al- |siöastl. mánudagskvöld. Húsfyll- fiann eftir manni nokkrum hjá ein-
veg meistaralegt, og á svo vel við ir var Þar sem vænta mátti, og um stólpanum neoan undir brúnni.
kvæðið, það er eins og maður j söngfræðingnum fagnað alúðlega.
heyri hófadyn í íslenzkri hamra- Mrs. S. K. Hall söng tvö sólólög.
gjá. Og þjóðlögin lék hann ogjSéra R. Marteinsson stjórnaði
söng öll með lífi og sál. Nýtt lag 1 samkomunni.
hefir liann sett við kvæðið “Vala-{ -----------
gilsá” eftir H. Hafstein, og söng’ Hr. Gisli Jónsson póstme'istari
hann það og lék á píanó; lagið er a Wild Oak, Man., var hér á ferð
afbragðsfallegt. Séra Lárus Thor-
arensen stýrði samkomunni og tal-
'húsinu,
Nýlega er hér dáinn drengur,
Samúel sonur Alberts Samúelsson-
ar. Hann dó úr botnlangabólgu.
Uppskera. hér á Garðar mjög
góð, en þresking gengið seint
vegna rigninga.”
—Verksmiðjumenn í Bandaríkj-
um telja líklegt, að veturinn. sem
nú er að fara í hönd muni verða
harður 0g snjóasamur.
í vikunni og með honum Þórunn
dóttir hans og maður hennar Mr.
aði nokkur hlýleg orð til prófess-jR- E. Knight frá Cranbrook, B. C.
orsins og flutti honum kvæði. Pró-;Þau hjónin eru nýgift og eru hér
fessor Sveinbjörnsson þakkaði á brúðkaupsferð.
hvorttveggja. Að því búnu var i -------------
sezt að kaffidrykkju i samkomu- Þessir menn komu frá íslandi í
Hann hafði ekki átt von á neinum-
manni þar og kallaði til hans. Sá
sinti því engu en hljóp á brott og
hvarf inn í kjarrið annars vegar
við brúna. Brúarvörðurinn gerði
yfirvöldunum aðvart um þetta;
var síðan hafin rannsókn þegar t
stað og fanst þá dynamítið i hol-
um i báðum miðstólpum brúarinn-
ar. Nóg hafði verið þarna af
dvnamíti til að sprengja brúna alla
í sundur.
Márar og Spánverjar.
Márum og Spánverjum hefir
nýlega lent saman í orustu í norð-
anverðu Morokkó. Gerðu Márar
þar hart áhlaup á hersveitir Spán-
verja fyrir síðustu helgi. Varð
þar hin skæðasta orusta. Spán-
verjar ráku Mára af höndum sér,
en mistu þó margt manna. Þar
féll meðal annara yfirherforingi
þeirra Oronez.
i fyrri viku. Guðmundur Jóiís-
son (á leið til Mountain, N.D.J
Guðjón Friðriksson og kona hans,
öll frá Reykjavík; Paul Robertson,
fNorðmaður kona hans og barn,
og Óskar Sigurðsson, úr Seyðis-
firði.
Hr. Jón Hannesson, Westfold,
Man., er hér staddur í bænum.
Mr. Sam. Gillies, Esq., á bréf á
skrifstofu Lögbergs.
Fleyrst hefir, að eigendaskifti
muni vera í vændum að strætis-
vagnafélaginu hér í WSnnipeg.
Enn er ekki fullvist hverjir kaupi,
en liklegt talið að einhverjir þeirra
séu Bandaríkjamenn.
— Edison uppfundningamanni
hafa verið veitt Nobel verðlaunin
fyrir frábærar framkvæmdir í eðl-
isfræði.
—Ofviðri mikil haifa verið á
Etiglandshafi um síðastliðna helgi.
Hlektist mörgum skipum á, en sum
fórust með allri áhöfn.
—Kóleran heldur áfram að
geysa á ítaliu. Frá 8. til 14. Okt.
sýktust þar 247 manns, en lét-
ust úr sóttinni 91.
—Verkamenn eru að koma á fót
dagblaði i Lundúnum. Blaðið
heitir “The Daily Cityzen”.
Nýlátinn er tóbakskaupmaður
einn brezkur, vellauðugur, sem
Wills hét. Hann lét eftir sig $40,-
000,000. Gaf hann mest alt það
fé góðgerðastofnimum.