Lögberg - 14.08.1913, Blaðsíða 8

Lögberg - 14.08.1913, Blaðsíða 8
9 LÖGBEEG, FIMTUDAGINN 14. Ágúst 1913. Þegar þér komi^ til Winnipeg þá látið e k k i undan dragaat að finna Mr. H. A. Nott, augnafræðing. Látið skoða og reyna I yður augun, og fáið hin b e z t viðeigandi o g þægílegustu gleraugu. Limited H. A. NOTT, Optician 313 Portage Ave. Úr bænum Guðsþjónustur veröa haldnar í Wynyard og Kandahar sunnudaginn 17. Ágúst. í Wynyard byrjar guös- þjónusta kl. 12 á hádegi og í Kanda- har kl. 3 e. h. H. S. Fimtudaginn 31. Júlí lézt ekkjan Medonia Gu'ömundsdóttir í hárri elli, nærri 88 ára aö aldri, á heimili sonar síns Ragúels Johnson, í grend viö Mozart. Hin látna var ættuö úr Húnavatnssýslu, en haföi búiö hér í landi um 14 ár. Herra Guðm. M. Bjarnason, málari aö 309 Simcoe stræti, hefir nýlega fengiö sér bifreið. Munu nú vera um 20 bifreiðir, sem íslendingar í Winnipeg eiga. Herra Stefán Stefánsson, kaup- maöur frá Dog Creek P. O., var á ferð hér um helgina og lét vel af líðan manna þar nyrðra, og útliti yfirleitt, einkum eftir aö þorna fór um. Ung og lipur stúlka, nýkomin af Is- landi óskar eftir góðri vist hjá ís- lenzku fólki. Ritstj. vísar á. Séra N. Stgr. Thorláksson er til heimilis hjá Mr. og Mrs. Jósef John- son, 774 Victor stræti, og veröur þar meðan hann þjónar Fyrsta lúterska söfnuði. Talsími Gariy 3579. Herra Thorleifur Jackson frá Sel- kirk var hér á ferð fyrir helgina á leið suöur i Dakota, og dvelur hann þar um tíma. Vér viljum benda lesendum á orö- sending frá herra Jónasi Pálssyni músíkkennara, sem birt er annarsstaö- ar í blaðinu. Hann gerir þar grein fyrir nýrri og ódýrari kenslu-tilsögn, en hann hefir tíðkað; hann ræður sér aðstoðar kennara, en lítur þó eftir kenslunni sjálfur. Óskar hann eftir að músíknemendur finni sig að máli. Mr. Pálsson er talinn ötull og dugleg- ur kennari. Þeir bræöur Friðbjöm og Magnús Magnússynir frá Leslie, Sask., voru hér á ferð í vikunni. Þær systur, Helga og Guðrún Eg- ilsson, dætur Gísla Egilssonar við Calder, Sask., voru í kynnisferð hér í Winnipeg um siðustu helgi. i«iiininiw 111 mn 11 n 1111111 ‘iii > “DAUFIR TÍMAR” er rétti tíminn tll aff ná f gófinr hygílnKalóliir, vei inn f borginnl. Þeir er knupa nú og kaupa hyKjji- leRa munu Którgrælía á þvf. I.AtiTS «-kki peningrnna lÍKííja iðjulausa. Et i nokkrum efa hvar sé bezt ab kaupa, þá finniS migr eSa skrifiS Paul Johnston 312-314 Xanton Bulldlng A hornl Main og Portage. Talsími: Main 320 SNOWDRIFT BRAUÐ er vel bakað brauð, alveg eins f miðju eins og að utan Er létt í sér og bragðgott, og kemur það til af því að það er búið til í beztu vélum og bakað í beztu ofn- Hjálp í neyð. Meðtekið í samskotasjóð Sigurlaug- ar Guðmundsdóttur í Reykjavík: Mrs. O. Freeman...............$2.00 J. Sigfússon, Selkirk ......... 1.00 Mrs. T. Björnsson, Geysir..... 1.00 Sig. Sveinbjörnsson, Wpeg...... 2.00 Frá ónefndum................... 1.00 Frá ónefndri................... 0.50 Miss G. Guðnason, Span. Fork' 1.00 Mr. og Mrs. B.B.Sveinss. Sp.F. 1.00 Mrs. Stefanía Jones, Minneota 3.00 G. Helgason, Swan River....... 1.00 Mrs. K. Thorsteinsson, Wpg... 2.00 Mrs. G. Gíslason, Wpg.......... 1.00 Th. Gíslason, Winnipegosis .... 2.00 $18.50 Áður auglýst ............$26.50 Nú samtals.........$45-00 Jónas Pálsson er nú byrjaður aftur á piano-kenslu Háttvirtu íslendingar! Eg er þá loks tilbúinn aftur að veita nemendum móttöku. Ekki finst mér viðeigandi að hafa langan formála, að eins mætti geta þess, að kennarar þeir sem eg lærði hjá í Evrópu, voru menn, sem löngu eru orðnir við- urkendir að kenna aðeins þær aðferð- ir, sem nútíminn veit praktskastar og beztar. Oft hefi eg orðið var við umkvart- anir á liðnum árum að kensla mín vær.i svo dýr, að fátækara fólkið gæti ekki notið hennar; en nú verður þetta ekki lengur til fyrirstöðu. í þetta sinn hefi eg mér aðstoðarkennara, sem kenna sömu aðferðir og eg geri sjálf- ur og og algerlega undir minni um- sjón og eftirliti, en samt fyrir mjög sanngjörn laun. Eg vona því að allir þeir, nær og fjær, sem annars bera traust til mín í starfi mínu, hvort held- ur fátækir eða fjáðir, ungir eða aldn- ir, langt eða skamt á veg komnir, finni mig að máli áður þeir ráða sig ann- arsstaðar. Vel má vera það borgi sig og kost- ar ekkert. Þessi aðferð, að kennarar vinni í sameiningu, er mikið tíðkuð á Þýzka- landi og gefst mjög vel. Eg vona sterklega, að verk mín og meðkennara minna beri góðan ávöxt í framtíðinni, en auðvitað verður að biða með þolinmæði eftir dómi reynslu og tíma. Virðingarfylst, JÓNAS PALSSON, 450 Victor Str., Winnipeg. Talsími: Sherbr. 1179. Frá Spanish Fork er skrifað 5. þ.m: “í gær dó Jón Þorgeirsson, í Provo City, og munu frétaritararnir geta hans að verðugleikum síðar.” Nýlega er látinn í Selkirk Jóhannes Einarsson ættaður af Tjörnesi. Hann bjó lengi hinu mesta myndarbúi á Hrafnsstöðum í Vopnafirði, en flutt- ist vestur um haf fyrir átta árvim. Settist hann þá að í Selkirk hjá dóttur sinni Halldóru og þar dó hann. önn- ur dóttir hans er í Selkirk, Mrs. Frí- mann Jóhannsson. Jóhannes heitinn var hinn mesti myndarmaður. Hann var 81 árs er hann lézt og var jarð- sunginn af séra N. Stg. Thorlákssyni. Séra Sigurður S. Christopherson er fyrir skemstu kominn hingað til borg- ar úr missíónarferð frá Swan River. Þar var hann um tíma og biður Lög- berg að færa Swan River íslendingum sem hann var hjá innilegar þakkir sín- ar fyrir góðar og hlýjar viðtökur. Uppskeruhorfur segir hann mjög góð- ar. Rigningar allmiklar í Júlí, en nú farið að þorna um aftur. Mr. Alb. C. Johnson fór í vikunni sem leið ásamt tveim elztu dætrum sínum í skemtiferð vestur á Kyrra- haísströnd. Hingað til borgar komu nýskeð frá Duluth Thorir Bjarnason, Jón Thor- steinsson og dætur hans tvær til að heimsækja vini og kunningja. Fóru heimleiðis aftur álaugardaginn var. --------1---------- Til sölu Fjögur hús milli Sargent og Well- ington: Nr. 1000 og 1002 Sherburn St (tvíhýsi).... $6,500 1012 Sherburn St. $1,900 972 Ingersoll St. . . $3,400 980 Ingersoll St.. . . 3,000 Skilm&lar: Í300 til $400 út I hönd. Engin eignaskifti. Engir milligöngumenn. FinniS eigand- ann, kl. 7 til 8 a8 kveldi. F. Johnson, Talsíml: Garry 1428 1002 Sherbum St. Hveitislátur er nú vel byrjaður, og er talin vænleg uppskera víðast hvar i sléttufylkjunum þar sem til spyrst. Mrs. Guðrún Ólafsson frá Reston, Man., var stödd hér x borginni eftir helgina. Frá Kandahar kom hingað til borg- ar um helgina Lúðvík Laxdal og Árni sonur hans; enn fremur Kristján Hjálmarsson kaupmaður og kona hans. Uppskeruhorfur alveg ljómandi góðar í Saskatchewan — varla nokk- urn tíma jafnvel sprottnir og fallegir. akrar þar sem nú. Þeir A. J. Hörgdal, Jón Guðmunds- son cfg Hallgrimur Jósefsson frá Wynyard, Sask., voru hér á ferð á þriðjudaginn. Fyrir helgina kólnaði ofurlitið í veðri og rigndi litilsháttar. Hitar aft- ur mánudag og þriðjudag. Hr. Þorsteinn Oddsson, fyrrum á Húsavík á Isíandi á bréf á skrifstofu Lögbergs. Bréfið er Islandsbréf, var auglýst í síðasta blaði, og óskað eftir að hlutaðeigandi nálgist það sem fyrst. Von er á agentunum, þefim Stefáni Sveinssyni og Friðrik Sveinssyni í næstu viku. Lögðu þeir af stað úr Reykjavík til útlanda 2. Áúst. Með þeim kemur nokkuð af íslenzkum inn- flvtjendum, sumie segja æði margt fólk. Lögberg hefir verið beðið að geta þess, að ef einhverjir væru að hugsa um að fara heim til íslands í þessum mánuði, þá fellur ferð 25. þ.m. og eitthvað af fólki héðan úr bæ, sem þá fer heim til gamla landsins. Herra Sveinn Thompson, aktýgja- sali frá Selkirk, kom um miðja vikuna úr Islandsferð sinni. Hann fór heim í vor. Með honum komu sex vestur- farar úr Reykjavík, en sumir úr Vest- mannaeyjum. Ungur maður reri kænu eftir Rauðá á þriðjudaginn; mótorbátur fór hjá og ruggaði kænan á bárunum frá hon- um þar til henni hvolfdi. Maðurinn sökk strax, að sögn, og náðist ekki líkið fyr en eftir þrjár klukkustundir. Á þriðjudaginn dó ungur maður með því móti, að hann greip um tele- fón vír, er rafmagn var í. Þeir, sem voru að verki með honum, heyrðu hann anda þungt og sáu hann halla sér að vegg, með vírinn í berri hend- inni. Maðurinn dó eftir lítinn tíma. Hann hafði gift sig á föstudaginn | næstan áður. Hr. Klemens Jónasson frá Selkirk leit inn til Lögbergs á miðvikudaginn. ASHDOWN'5 CANOES Basswood, málaðir, 16, 17 og iö feta . $35-00 $40.00 og $45.00 Basswood, olíubomir, 16 og 17 feta..‘..$43-00 og $48.00 Cedar, oliuhornir, 16 feta...............$50.00 Cedar Strips, olíubornir, 16 feta........$55-00 Chestnut, með selgldúk yfir, 16 feta.....$55-00 Sponson, með segldúk yfir, 16 feta.......$75-00 Flutninga Canoes Basswood eða Cedar, með segldúk yfir frá $55.00 til $80.00 Tvenn áhöld með hverjum Canoe. RÖÐRARBÁTAR um. 5c brauðið TheSpeírs-Parnell Baking Co. Ltd. Phone Garry 2345-2346 Pappír vafin utan um hvert brauð Tvístafnaðir úr Clear Cedar Planking Ribbs, með fjögra þumlunga millibili og ger-reyndir að frágangi. Allar stærðir. Skrifið eftir "Canoe Catalog” vorum. Skoðið inn í glugg- ana hjá.......... ASHDOWN’S Brauð gæði. Bezta tegund mjöls, sem bezt er í brauð lVstug, fIngerð, ALVEG HREIN. Svo er Canada brauð Búin til í nýjasta og fullkomnasta \ bakaríi vestanlands, með eftirliti hinna reyndustu manna, þar sem rfkt er gengið eftir „gæðum“, ..hrein- J laeti44 og „hollustu*4. Komið Og sjá- ið sjálf. Seld fyrir sama verð og algeng brauð. Biðjið um CANADA BRAUÐ 5c }iv0f( PHONE: Sherbr. 2018 $1.00 getur stundum sparað $l ,000. Kup ið enga eign fyr en þér hafið leit- að réttra upplýsinga um legu bennar og ígildi. Það erætlun vor að lið- sinna þeim sem Fekkja lítið til fast- eignaverÖ8. Fyrir $1.00 ásamt ná- kvæmri tilsögn skulum vér gefa rétt- ar og áreiðanlegar upplýsingar um hverja eign sem vera skal í Canada, sem þú hefir keypt eða ætlar að kaupa. The INF0RMATI0N BUREAU P.O. Box 87. WINNlPfeG KENNARA vantar til Bjarma skóla Nr. 1461. Kensla varir frá 15. Sept. til 15. Des. þ. á., og byrjar svo aftur 1. Jan. 1914 og stendur 4 til 5 mánuíi. Tilboö, sem tiltaki mentastig og æf- ingu ásamt kaupi, sem æskt er eftir, sendist til undirritahs fyrir 1. Sept. Árborg, Man., í Júlí 1913. GuíSjón Daníelsson, Sec.-Treas. I.O.G.T.—Á föstudagskveldiö 1. þ. m. setti umbohsmaSur stúkunnar Heklu ('ÓIafur BjarnasonJ eftirfylgj- andi meölimi í embætti fyrir ársfjórh- unginn, sem nú er a?S líöa: F.Æ.T.—Guömund Gíslason. Æ.T.—Sveinbjörn Árnason. V. T.—Gróu Magnússon. Rit.—Ástu Austmannn. A.R.—Aðalbjörn Jónasson. F. R.—B. M. Long. G. —Jóhann Vigfússon. K.—Agnesi Jónsdóttur. D.—Þóru Olson. A.D.—Ragnh. Eiríksson. V.—St. Sigurðsson. Ú.V.—B. E. Björnsson. Gildir meðlimir stúkunnar nú 419.— Allir meðlimir í borginni eru vinsam- lega ámintir um, að sækja vel fundi stúkunnar framvegis. Eða til hvers gerast menn meðlimir, ef ekki til að sinna stúkunni og vinna fyrir hana það sem í valdi þeirra stendur. Mál- efnið er gott og göfugt og vel þess virði, að allir rétthugsandi menn og konur berjist fyrir því. Það er kom- inn tími til (og þó fyr hefði veriðj, að útiloka áfengissöluna úr bygðum, bæj- um og borgum, því allsstaðar er hún lands og lýða tjón. Bindindisvinir all- ir, vinnum með einlægni saman í bróð- erni, og þá mun vinnast sigur. B. M. Long. BLAÐIÐ ÞITT! SJÁLF SAGT ánægjulegra að lesa Lögberg ef búið er að borga fyrir það. Viltu aðgæta hvernig sakir standa með blaðið þitt? Athugaðu litla miðann sem límdur er á blaðið þitt, hann sýn- ir upp að hvaða tíma þú hefir borgað Lögberg. Hvaða skollans læti. Nei, nei, eg hef ekki núna hangi- ket fyrir tíma, en strax og eg fæ það skal eg gala það svo hátt, að allir landar heyri. En eg hef á boðstól- um saltað, reykt og nýtt svínaflesk. Nýtt og saltað nautaket og nýtt sauðaket. Svo hef eg allskonar könnumat, já, og tólg og svínafeiti. Auðvitað bara þessa viku nýorpin hænuegg 12 fyrir 25c. Flestalt er það óheyrilega ódýrt hjá ketsalanum ykkar S. 0. G. Helgason Phone: Sherbrooke 85 0 530 Sargent Ave., Winnipeg Company Bestu skraddarar og loðskinna salar. Lita, hreinsa, pressa, gera við og breyta fatnaði. Bezta fata efni. Nýjasta tízka. Komið og skoðið hin nýju haust og vetrar fataefni vor. 866 Sherbrooke St. Fón G. 2220 WINNIPEG I ár tapar bærinn yfir 33 þús. dölum á sýningunni, en alls er hann búinn að tapa á henni um 87 þúsund dölum. íslendingar í Alberta héldu árshátíð sína 2. þ.m. í grend við Markerville bæ. Komu þar saman fimm hundruð manns. Skemtu menn sér hið bezta við ræður og músík og allskyns íþróttir. Kvenfélagið annaðist veit- ingar í Fensölum. Enskt blað, The Province, sem þessar fréttir eru tekn- ar úr, lætur hið bezta af hátíðarhald- inu. KENNARA VANTAR Vantar kennara við Hecland skóla nr. 1277; kenslutími frá 1. September 1913, til 30. Júní Í914. Kennari tiltaki katip og mentastig. Tilboðum verður veitt móttaka til 20. Ágúst 1913. Paul Arnason, Sec. Treas. Isafold, Man.... Það er auðvelt að búa til brauð og pie Það er að öllu leyti komið und- ir mjölinu, sem notað er. Kaupið mjöl sem ávalt reynist jafnvel. OGILVIE’S Royal Household MJEL eru allir ánægðir með. Það er ávalt eins að gæðum, bezta mjöl sem búið er til og drýgsta. Biðjið kaupmanninn um það. 0GILVIE FL0UR MILLS Co. Limited WINNIPEG, VANCOUVER HELL0! Electric Cooko Ný uppfinning Steikir, sýður og “tóstar” fljótar og kostnaðarminna en nokk- ur önnur stó á markaðnum. Enginn hiti frá henni. Engin óhreinindi. — Komið og skoðið þær. — Búnar til af PAUL JOHNSON, 761 Wiliiam Avcl - Tals. Garry 785 ogG. 2379 KENNARA tilboðum til Baldur skóla No. 588 verður veitt móttaka til 25. Ágúst n.k.; um sækjandi verður að hafa 2. flokks skírteini; kensla á að byrja 1. Sept. Umsækjandi tiltaki hvaða kaup hann óskar, greini einnig frá hvað hapn hefir lengi kent og hvar leita megi meðmæla.—Skrifið til B. MARTEINSSON, Sec.-Treas., Hnausa, Man. TVÍBÖKUR I 25 punda kössum eru einkar hent- ug kaup á tvibökum. Þær koma þann. ig óhaggaðar frá bökunarofninum án þess að hafa verið handfjallaðar og settar í poka, sem orsakar að þær molna.—Kaupið kassa næst; þær fást bein tfrá mér eða viðskiftamanna yðar. G. P. THORDARSON, 1156 Ingersoll Str. Tals. Sher. 2022 Gert við alskon ar sauinavélar. R. H0LDEN Nýjar og brúkaðar Saumavélar. Singrer, White, Williams, Raymond, New Home.Domestic.Standard.Wheeler&Wilson 580 Ellice Ave., við Sherbr. St. Winnipeg HOLDEN REALTY Co. Bújayðir og Bæjarlóðir keyptar seldar og teknar í skiftum. 580 Ellice Ave. Talsími Sher. 2022 Rétt við Sherbrooke St. Opið á kveldin FRANK GUY R. HOLDEN Shaws 479 Notre Dame Av. 4.4.4.4.4.4.4.4-4<4> 4.4.4.4.4.4.4.4.4.4. Stærzta, elzta og bezt kynta verzlun með brúkaöa muni í Vestur-Canada. Alskonar fatnaöur keyptur og seldur Sanngjarnt verö. 4.4.4.4.4.4.4.4.4.4.4.4.4.4,4.4.4.4.4.4.4.4 Phone Garry 2 6 6 6 Kenzlutilboð. Undirritaður kennir Islending- um ensku, bókfærslu og reikning fyrir sanngjarnt verð. Til við-i tals milli kl. 7 og 8 síðdegis. Kristján ThejH, Sími: Garry 336. 639 Maryland St. Skóla áhöld Vrentið ekki þess að börnunum gangi vel í skóla nema þau hafi öll þau á- höld sem útheimtast. Vér höfum fu!l- komin áhöld fyrir alla lærisveina— penna, blýanta, þurkleður, skrifbækur o.s.frv., svo og allar bækur sem á skóla brúkast. Segið börnunum að kaupa skólaáhöldin hérna. FRANKWHALEY Urmription 'Ontggtst 724 Sargent Ave., Winnipeg Phone Sherbr. 258 og 1130 KENNARA vantar við Geysir skóla, Nr. 776, frá 15. Sept. til 15. Des. Um- sækjandi tiltaki mentastig og kaup. Tilboðum verður veitt móttaka af undirrituðum til 30. Ágúst 1913. — JÓN PÁLSSON, Sec.-Treas. UNGAR STÚLKUR óskast strax til að læra að setja upp hár og snurfusa neglur. Kaup borg- að meðan lært er. Aðeins fáar vikur þarf til þess. Stöður útveg- aðar eftir að námi er lokið!. Komið og fáið fagurt kver ókeypis og sjáið Canada’s fremstu hár- og handa prýði og fegurðar stofu að 483 Main St., beint á móti City Hall, uppi. 8krifstO'fu Tals. Hoimilis Tals. Main 7723 8hcrb.1704 Miss Dosia C. Haldorson SCIENTIFIC MASSAGE Swedish Sick Gymnasium and Manipula- tions. Diploma Dr. Clod-Hansens Institute Copenhagen, Denmark. Face Massage and EÍectric Treatmenta a Specialty 8uitc 26 8toel Block, 360 Portage Av.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.