Lögberg - 04.12.1913, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN
4. Desember 1913.
Kostaboð Lögbergs fyrir nýja
áskrifendur.
Beztu þakkir
til kaupenda Lögbergs, sem hafa
stutt að því, að blaðið hefir uppi-
lialdslaust komið út í viku hverri
á annan aldarfjórðung.
Síðan blaðið hóf göngu sína
hafa vinsældir þess farið vaxandi
með ári hverju og áskrifendum
þess fjölgað. Þetta hefir sannfært
útgefendurna um, að þeir væri að
vinna þarft verk og gefið þeim
djörfung til þess að leggja meira
og meira í sölurnar til þess að gera
blaðið svo vel úr garði, sem efni og
ástæður leyfðu.
Sjálfsagt má eitthvað að blað-
inu finna, enda mun það mega um
flest blöð segja. En enginn mun á-
saka útgefendurna um, að þeir hafi
látið nokkuð það hjá líða, er þeir
gátu gert til þess að blaðið gæti
orðið hlutverki sínu vaxið-
Ákveðnum stefnum hefir Lögberg léð óskert fylgi sitt, af því það
hefir álitið þær hollar landi og lýð. Fyrir það hefir blaðið áunnið sér
virðingu almennings, jafnvel þeirra, sem stefnum þeim eru andvígir.
En til þeSs að geta gert enn betur á komandi tíð, til þess að geta
Játið Lögberg enn betur fullnægja vaxandi kröfrnn, þarf blaðið að fá
í'leiri áskrifendur.
Aldrei hafa útgefendurnir hugsað um peningalegan hagnað af út-
gáfu blaðsins. Alt það, sem innhendist, verður varið til útgáfu þess.
Því meiri tekjur, því betra blað. Geti Lögberg orðið Islendingum hér
vestra til gagns og sóma, er tilganginum náð. Útgefendurnir óska að
vinir blaðsins líti á útgáfu þess sem sitt eigið fyrirtæki, geri sér ant um
það og auki áhrif þess með því að útvega því marga nýja kaupendur.
Prcmia Xr. 1 — Falleg, litil boriS-
klukka, mjög hentug fyrir svefnher-
bergi eSa skrifborÖ, lagleg útlits, eins
og myndin sýnir, og gengur rétt.
SendiB $2.00 fyrir Lögberg í eitt ár og
20 cents fyrir umbúSir og burSargjald
með pðsti. Alls $2.20.
Islendingar þeir, sem liingað komu nokkur fyrstu árin eftir að inn-
flutningur þeirra hingað hófst, gleyma seint þeirri .lítilsvirðingu, er
þeir urðu stundum að þola af hérlendu fólki Þeir v^mi
cmáiv” aís hoir nrfSn að taka. öllu bvf með stil
voru svo “fáir, fá-
tækir, smáir”, að þeir urðu að taka öllu því með stillingu. Þeir urðu
oft að gera sér gott af að sæta ýmislegri at-
1___vinnu, sem þeir sækjast lítið eftir nú, og
*V'/^l|f/,,|/lvoru í mörgu látnir skilja, að þeim bar að
* ■’* W standa skör lægra en hérlendu fólki.
Það væri ógeðfelt að minnast þessa, ef
sömu sögu mætti segja nú. En tímar hafa
breyzt. íslendingum tókst fljótt, þó fáir
væru, að ryðja sér
braut til fjár og frama
í landi þessu. Óhætt
mun að segja að eng-
um þjóðflokk hér,
sem ' jafnilla stóð að
vígi, hefir tekist það
jafnvel. Bæði í háum
stöðum og lágum hafa
íslendingar áunnið sér
virðingu og álit hér-
lendra manna. Þeir
hafa háð örðugan bar-
daga og borið sigur úr
býtum. Þeir hafa rutt
brautina og gert hana
greiðari þeim, sem á
eftir koma. Nú dett-
ur engum í hug að
Premia Nr. 3.—öryggis rak-
hnífur (safety razer), mjög
handhægur; fylgir eitt tvieggj-
aö blaö i hann, sem má kaupa
12 fyrir $1.00. Sendiö $1.00
fyrir Lögberg I 6 mánuSi og
rakhnífinn úkeypis meö pósti.
fyrirverða sig fyrir
Premia Nr. 2—Vasa-
úr i nickel kassa; lít-
ur eins vel út og mörg
$10 úr. Mjög mynd-
arlegt drengja úr. —
SendiÖ $2.00 fyrir Lög-
berg i eitt ár og 5 cts.
t buröargjald.
að vera Islendingur, heldur telja þeir sér það lieiður.
Fyrir þetta getur unga íslenzka kynslóðin aldrei fullþakkað.
Gildan þátt í þessum umbótum hefir íslenzka blaðamennzkan hér
vestra átt. Lögberg hefir ætíð, eins og því bar, látið sér ant um fram-
farir Islendinga; reynt til þess að benda þeim á það, sem, frá þess
sjónarmiði, var til heilla og framfara. Þess vegna hefir blaðið djörf-
ung til þess að vænta, að hinir yngri Islendingar, sem eru að taka við
taumunum, sem það hlutverk liggur fyrir að halda uppi heiðri og hags-
munum íslenzka þjóðflokksins hér vestra, ljái blaðinu aðstoð sína svo
það geti haldið áfram að leysa hlutverk sitt æ betur og betur af hendi.
Þetta geta þeir gert með því að skrifa sig fyrir blaðinu og lesa það.
Lögberg liefir nú að bjóða betri kostaboð en það hefir áður treyst
sér til að bjóða. Þetta gerir blaðið til þess að fá sem flesta til að lesa
það og af því að reyuslan hefir sýnt, að ef menn byrja að kaupa blaðið,
halda þeir því áfram, er von um að fyrirtækið borgi sig með tímanum.
Lögberg treystir því, að eldri kaupendur blaðsins, sem lengi og
vel hafa staðið með því, uni því þó þeir geti ekki fært sér í nyt kjörkaup
þessi, en minnist þess, að um mörg undanfarin ár hefir verið reynt að
gefa nýjum kaupendum eitthvað aukreitis, þó það hafi verið minna
virði en það, sem nú er boðið-
Þegar þér, sem ekki kaupið blaðið, hafið lesið þetta hér að framan
nákvæmlega, og sem þér eruð óefað samþykkir, þá leggið frá yður blað-
ið og skrifið tafarlaust eftir þ^í og premiu þeirri, er þér veljið, og
sendið andvirðið. Þeir, sem skrifa sig fyrir blaðinu og borga fyrir-
fram fyrir næsta árgang, fá ókeypis það, sem óútkomið er af þessum
árgangi.
-<3
Premia Nr. 4—Lindarpennt (Fountain Pen), má fylla
meÖ þvl aö dýfa pennaendanum I blek og snúa tappa á
hinum endanum, þá sogast blekiö upp I hann. Penninn
er gyltur (gold plated), má láta I pennastöngina hvaða
penna sem vill, af réttri stærÖ. — Sendið $1.00 fyrir Lög-
berg I 6 mánuði og fáið pennan nsendan með pósti 6-
keypis.
pcir sciu scmla o-s $2.00 fyrir Lögbcrg í eltt ár geta, ef þeir iieltlnr vilja, fengið
bæði premiu nr. 3 og 4. — Vilji áskiiftntiur láta senda munina sem áliyrgðar bögla
(Registered) kostar það 5 cent aukreitis.
Engir þeirrn, seni segja upp kaupuni á Iiögbergi ineðan á þessu kostaboði stendur,
geta iiagnýtt sér þcssi vllkjör. — Andvirði sendist til vor oss að kostnaðarlausu.
Ávísanir á banka utan Winnipeg-bæjar að eins teknar með 25c. afföllum.
Koraizt áfram
með þvl að ganga á Success Business College á Portage Ave. og
Edmonton Sts., eða aukaskólana 1 Regina, Moose Jaw, Weyburn,
Calgary, Lethbridge, Wetaskiwin, Lacombe og Vancouver. Nálega
allir lslendingar I Vestur Canada, sem stúdéra upp á verzlunar-
veginn, ganga á Success Business College. Oss þykir mikið til
þeirra koma. peir eru gðöir námsmenn. Sendið strax eftir ó-
keypis skýrslu til skólastjóra, F. G. GARBUTT.
bORSTEINN Jb. f>ORSTEINSSON.
GAMLIR NEISTAR.
XIII.
0TTIST EI!
(l9°9)
Óttist ei, þótt uni ég syngi ásta-nætur.
Þær eru minna drauma dætur,
dekraðar við hjartarætur!
Húmið stundum helkalt ægir huga mínum,
þá er ljúft á ljóssins dýnum
lúra, ást, í faðmi þínum.
Líta sína löngun skrýdda ljóss í myndum,
fagra stíga af frelsislindum—
fullkomnast á sigurtindum.
Von og Þrá mín óðul eiga ofar fjöllum:
í Stóradal á Stjörnuvöllum
stendur borg með þúsund höllum.
Þangað oft á þögla fundi þær mig taka.
Þar, með Ást, er yndi að vaka
án þess þó það megi saka.
Þar er alt, sem auga mitt og andi þráir:
Framtíðin, sem fullsæld spáir—
fegurðin, sem sál mín dáir.
Þar er hún, sem hjartað ann, í hugmynd borin,
Yndið mitt, sem elskar vorin —
engillinn með léttu sporin.
Þar er bæði sól og sumar sætt að dreyma,
þegar vetur hérna heima
hörku mig ei lætur gleyma.
Þaðan á eg þessa fáu þýðu hljóma.
Söngvana, er sætast óma—
safnið minna smáu blóma.
Og þótt neðar, Ást og ég, í okkar heimi
sitjum tungls í glæstum geimi, —
grunar þig oss illa dreymi.
Það er ekkert jlt í því, sem ástin boðar,
þegar fyrst á fjöllin roðar —
furðulöndin sálin skoðar.
Ónei, það er engin hætta, elskanlegir!—
Meðan pabbi og mamma þegir —
meðan eru færir vegir.
-áhöld
Þessi mynd sýnir
Milwaukee
steínsteypu
Vjel
Spyrjið eftir verði
THE STUART MACHINERY
C0MPANY LIMITED.
764 Main St., - - Winnípeg, Man
Fyrir varúðar sakir—
ættuð þér að hætta að brúk+* eitraðar eldspít-
ur. Gætið að sjálfum yður óg fólki yðar. Biðj-
ið því um hinar nýju „SES-QUI“— algerlega
hættulausu
BitfjiS
kauptnennina
um þœr
Eddy’s
Eldspítur
Hinar einu ócltruðu eldspýtur
tilbúnar í Canada
KARLMANNA BUXUR
Hentugar á vorin.
Hentugar til daghgs brúks
Hentugar til vinnu
Hen ugar til spari.
Hver sem kaupir buxur hér,
verður ánægður með kaupin.
Þær eru þokkalegar og end-
ast vel. seldar sanngjarnlega.
Venjiö yöur á aö koma til
WHITE & MANAHAN
500 Main Strcet,
tftlbiisverzlun i Kenora
WINNIPEQ
Til Vestur-Islendinga.
Á síðasta kirkjuþirgi, var sam-
i þykt, samkvæmt tilmælum kvenfé-
lags Fyrsta lút. safnaðar í Wmni-
' peg. að kirkjufélagið tæki að sér
málefni gamalmennahælis þess, er
kvenfélagið hefir um allmörg und-
anfarin ár verið að vinna að að
koma á fót, og var nefnd kosin til
að liafa málið til meðferðar fram
að næsta kirkjn þingi.
Sú nefnd hefir allmikið liugsað
máliö, og langar hana til að geta
lagt fyrir kirkjuþingið tillögur þess
efnis, að þegar á komandi sumri
verði sett á fót íslenzkt gamal-
mennahæli, sem öll íslenzk gamal-
menni hér vestan hafs, er þess
kynnu að þurfa og óska, gætu átt
aðgang að, og gjöra þá stofnun
svo úr garði, að hún yrði gamal-
mennunum gott heimili og Vestur-
íslendingum til sóma.
En til þess aö af því geti orðið
þarf allmikið fé. Eigpir þær, sem
kvenfélagið afhendir kirkjufélag-
inu í þessu skyni nema, samkvæmt
fjárhagsskýrslu þeirri er fram var
lögð, samtals $3401.26. En það
liggur i augum uppi, að allmikið
þarf við • það að bæta, til þess að
unt sé að gera slíka stofnun mynd-
arlega úr garði.
Leyfir nefndin sér þvi að skora
á alla þá meðal þjóðflokks vors,
sem þessu málefni unna, að koma
nú til hjálpar og styrkja þetta
fyrirtæki svo ríflega með frjáls-
um gjöfum, að auðiö verði að
koma því í framkvæmd. Vel finst
oss til fallið, ef kvenfélög og ung-
mennafélög vildu taka að sér að
gangast fyrir samskotum, þessu
góða málefni til stuðnings i íslenzk-
um bygðum. Og það ættu allir að
hafa í huga, sem þetta málefni
vilja styrkja, að gjöra það sem
fyrst; því það er afar áríðandi
fyrir nefndina að fá sem fyrst að
vita, hvers stuðnings hún má vænta
hjá almenningi.
Eru því allir, sem rétta vilja
hjálparhönd, hvort heldur eru fé-
lög eða einstaklingar, beðnir að
senda gjafir sínar ems fljótt og
ástæður leyfa til herra J. J. Vopna,
Box 3144, Winnipeg, sem er fé-
ihirðir nefndarinnar.
Sömuleiðis eru þeir, sem ein-
hverjar bendingar kunna að vilja
gefa nefndinni, þessu máli við-
víkjandi, beðnir að snúa sér bréf-
lega fyrir nýjár til herra G. P.
Thordarson, 766 Victor St., Winni-
peg, skrifara nefndarinnar.
Fyrir hönd nefndarinnar.
Baldur, Man., 28. Okt. 1913.
Friðrik Hallgrímsson.
Þúsundir
manna, setn orðiö hafa
heilsulitlir, hafa haft stór-
piikiö gagn af hófsamlegri
brúkun á
DREWRYS
Redwood Lager
Hreinasta malt-tonic
Æfinlega eins á bragö
iö og jafn góöur.
REYNIÐ ÞAÐ
ROBINSON
& Co.
Limitcd
Kvenbúningur
Haustkápur ungra stúlkna
$4.50
Yfirhafnir úr klœði banda
kvenfólki, verð . . . $10.00
Svört nærpils úr moire,
heatherbloom og satin, 36
til 42 þml. á lengd . . $1.25
Hvítar treyjur, fyrirtaks
vel sniðnar og saumaðar,
úr bezta efni....$2.50
Náttklæði úr bezta efni,
vel sniðin og saumuð 85c,
Drengja-buxur af ýmsum
lit og gerð á
29c, 55c og i5c
ROBINSON
& Co.
Llmitcd
THOS, JACKSON & SON
BYGGINCiAEFNI
AÐALSKRIFSTOFA og birgðaból 370 COLONY ST
TALS. Sherbr. 62 ok 64 WINNIPEG, MAN.
GEYMSLUPLÁSS:
Vesturbœnum: horni Ellice og Wall St., Fón Sherb. 63
í Elmwood: horni Gordon og Levis, Fón, St. John 498
í Ft. Rouge: Pembina Highway og Scotland,
Vér seljum þessi efni íbyggingar:
Múrstein, cement, malað grjót,
(allar stærð.), eldtraustan múrstein,
og eldleir, Flue Lining, möl, Hard-
wall Plaster, hár, Keene’s Cement,
hvítt og grátt kalk, hydrated kalk,
viðar og málm lath, gyps, Rubble
stone, Sand, ræsapípur, weeping
drain Tile, YVood Fibre Plastur,
Einnig Mortar, rautt, gult, brúnt,
standard og double strength black.
FURNITURE
t«ti
0VERLAND
« AL«• AH0CH
J. J. Swanson & Co.
Verzla með (asteignir. Sjá um
leigu á Kúsum. Annast lán og
eldsál yrgSiPo. fl.
1 ALBERTK BIOCK. Portage & Carry
Phone Main 2597
FORT ROUGE
Pembina ano
Corydon
THEATRE
Hreyfimynda leikhús
Beztu myndir syndar
J JONASSON, eigandi
Eg hefi 320 ekrwr af landi nálægt
Yarbo, Sask. (% sect.J, sem seljast á
með góðum skilmálum; eign i eða um-
hverfis Winnipeg tekin í skiftum. b
landinu eru um qo ekrur plægðar op at
þeim 50 undir akri nú Alt landið inn
girt og á því um þúsund doll. virði at
húsum ásamt góðu vatnsbóli.
5. SIGURJÓNSSON,
689 Agnes Stræti, Winnipeg
Piltar, hér er tæki-
færið
Kaup goldiö meöan þér
læriö rakara iön í Molerskól-
um. Vér kennum ra-ara
iön til fullnustu á tveim mán-
uöum. Stf'Öur útvegaöar
aö loknu námi, ella geta
menn sett upp rakstofur fyi -
ir sig sjálfa. Vér getum bent
yöur á vænlega staöi. Mikil
eftirspurn eltir rökurum sem
hafa útskiifast frá Moler skól
um. Variö ykkur á eftirherm-
1 m. Komiö eöa skrifiö eftir
nýjum catalogue. Gætiö aö
nafninu Moler, á horm King
St. og Pacifc Ave., Winni-
1 peg eöa útibúum ' í 1709
hroad St.. hegina og 230
Simpson St., Ft. William,
I Ont.
Þér fáið yður rakaðan og kliptan
frítt upp á loftifrá kl. 9f.h. til 4 e.h