Lögberg - 05.03.1914, Page 1
THE EMPIRE SASH & DOOR CO.( LTD.
Henry Ave. East, - - Winnipeg, Ma.n.
VIÐUR, LATH,
ÞAKSPÖNN.
Fljót afgreiðsla. Ábyrgst að vel líki.
THE EMPIRE SASH & DOOR CO.( LTD.
Hertry Ave. East. - - Winnipcg, Man•
VIÐUR, LATH,
ÞAKSPÓNN
Fljót afgieiðsla. Ábyrgst að vel líki.
27. ARGANGUR
Ofbeldi Rússastjórnar.
Fréttir ganga af því að Norð-
menn, og einkum Svíar treysti
landvarnir sínar sem bezt þeir geta
og flota sinn slíkt hið sama, vegna
hræðslu viö hiö áleitna ríkisbákn
i nágrenn:nu að norðan og austan.
Yfirgangur Rússa á Finnlandi fer
æ í vöxt, og er auösær tilgðangur-
:nn, sá, að kæfa niöur þjóöerni
Finnanna og Svianna, sem þar í
iandi búa. Stjórnarskrá Finna er
gersamlega fótum tnoöin og stjórn
iandsins má heita tekin úr höndum
þe:rra. Yfirdómarar i Viborg sem
reyndu aö vernda réttinda lands-
ins voru settir í dýflissu. Rúss-
nesk'-n bankar og verzlanir eru
stofnaöar og efldar i Finnlandi,
gagnstætt landslögum, en Firnum
bannaö aö setjast aö i Rússlandi.
Tungu sinni rnega þeir ekki halda,
allir embættismenn eiga aö kunna
rússnesku og enginn má fá aögang
aö háskólum landsins nema hann
kunni þaö mál. En rússneskir em-
bættismenn, sem sífelt er fjölgað
þar í landi, þurfa hvorki að kunna
finsku né sænsku. Aö málfrelsi og
ritfrelsi er sífeldlega hert. Ár:ö
sem leið vöru 374 blöö og tímarit
dæmd í sektir er námyu 70 þús-
und dölum, 226 blöö voru gsrð
upptæk og sextíu og þrír ritstjórar
voru settir í fangelsi. Mörg önn-
ur dæmi mætti telja um harðræði
er Rússa stjórn sýnir ýmsum þjóö-
flokkum í landinu og sanna öll
sömu söguna, aö hún treður tungu
þeirra og þjóöerni undir fótum.
Jarðskjálftar.
Jarðskjálfta hefir oröiö vart á
austur strönd Ameríku í mánuöin-
um sem leiö, þó aö hvergi hafi orö-
iö skemdir svo teljandi sé, og
sumstaðar vissu menn ' ekki af
þeim af ööru en því, að jarö-
skjálfta mælirinn sagöi til. Meö
því hugvitsamlega áhaldi hafa
menun komizt að þvi, að hræring-
ar eru ákaflega tíöar. Þær koma
einsog kunnugt er, af því, aö jarð-
skorpan er aö dragast saman. Á
sumum stööum hækkar hún, á
öörum fer hún lækkandi. Alstað-
ar er sjálft grjótið á hreyfingu,
og helzt í stórum fjallgörðum.
Þær hrevfingar eru frámunalega
hægar og seinar, en látlausar. Jarö-
skjálftar veröa þar nærri sem
brestir eöa hröp veröa í skorpunni,
og er tíðast á mararbotni, nálægt
ströndum stórra landa, þarsem
fjallgaröar eru á landi og smásíga.
En víöa finnast sprungur, þarsem
jarðlög hafa brostið sundur og
barmarnir svo missigið, og jarðlög
gengið í víxl. Ljósast dæmi um
jarðskjálfta af þessum völdum
hafa menn frá Japan, er hræring-
arnar miklu komu þar árið 1891»
er orsökuðust af slíkri sprungu, 50
mílna langri. f þessum stórsprung-
um hrapa og færast úr stað
feikna mikil skriðuföll og titrar þá
jarðskorpan alt í kring, jafnvel
langar leiðir, þó ekki veröi vart
við það, nema á hrærmga mælira.
Ljósan hvarf.
Suður á Good stræti hér í bæ.
varö kona léttari einn daginn, og
sat yfir henni kona er hún hafði
kynst vestur í landi. Þánn dag var
hún ein heima, meö því að maður
hennar hafði farið aö leita sér að
vinnu. Þegar bóndinn kom heim
liggur kona hans í rúminu, orðin
léttari, en barnið var horfið og
ljósmóöirin líka, en miða hafði hún
skiliö eftir, er á stóö, að hún skyldi
sjá fyrir barninu fyrst um sinn.
Ljósmóðurina haföi konan kallað
heim til sín gegnum talsíma, en
ekki gat hún munað númerið þeg-
ar bóndinn og lögreglan fóru að
rannsaka málið. Ekki vissi hún
heldur hvar hún átti heima, en
^orska hélt hún hana vera, og bún-
jognum gat hún lýst. Málið þykir
iskyggriiegt og er undir rannsókn
lögreglunnar. Hjónin heita Jones
°2r eru fátæk, búin að vera gift í
tvö ár og var þetta þeirra fyrsta
harn.
: Stjórn Bandaríkja ætlar sér
A^t ^era m'hlar járnbrautir í
Alaska og hefir í hvggju að flvtja
þangað^ áhöld frá Panama, svo og
verkafólk, söm þar var orðh'ð
verkum vant.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN
Eitthvað stendur til.
Það er aimennur orðrómur orð-
inn austur i landi, að ejtthvað mik-
iö standi til meðal járnbrauta fé-
laganna. C. N. R. er í fjárþröng
að vanda og hefir Mackenzie
gengið hart að stjórn nni í Ottawa,
að fá meira lán úr landssjóði til
að fullgera brautina um þyert
landið. Svo er að sja, sem ein-
hver snuröa sé á því, aldrei þessu
vant, og var fjármála ráðgjafinn
látinn lýsa því opinberlega, þegar
hann var nýbúinn aö taka yfir 20
miljón dala lán á Engiandi, meö
háum rentum, að stjórmn mundi
ekki framar taka lán á lands'ns
kostnað og ábyrgö, handa járn-
brautum. Rétt í sömu svipan kom
Sir Thomas Shaugnessy, æzti
stjórnari C. P. R., til Ottawa, og
þáöi veizlu hjá vinum sfnum í
stjórninni, ásamt gömlum og ötul-
um lögmönnum C. P. R. á Ottawa
þ'ngi, svo sem J. Á. M. Aikins úr
Winnipeg. Útaf þessu og nokkr-
um öðrum líkum þykjast menn
vita, aö eitthvað standi til. C. P.
R. á í handraöanum 250 miljón
dala, sem eru tiltækar, hvenær sem
á þarf aö halda, og vill margur
halda, að' þær veröi brúkaöar til að
kaupa C. N. R. félagið meö húö
og hári, ef færi gefst. Hyerjar
sem lyktir verða á því máli, þá er
því almennt trúaö, aö þetta standi
til, og það þó aö aðstandendur og
v'nir C. N. R., svo sem stjómin
hér í fylki, hafi margsinnis lýst því
og lofað, aö aldrei skyk’i af sam-
einingu þessara tveggja félaga
veröa. Sagt er þaö, aö ein aðal
orsök þess aö C. N. R- fær ekki
lán á Englandi nú sem stendur.
sé sú, aö Canada stjórn hefir tekið
70 miljón dala lán í London, á
fimm mánuðum, og hafi við þaö1
félögum og einstökum mönnum
hér í landi verið gert ómögulegt aö
fá lán. Mörgum getum er leitt um
þaö, hvað stjórninni hafi gengið til
allra þessara stóru lána gegn há-
um vöxtum.
Bertillon dauður.
Dauöur er í Parísarborg Bertil-
lon sá er fann ráö ð til aö þekkja
menn af fingraförum þeirra, meö
því aö rákirnar á gómunum breyt-
ast ekki, og eru ólíkar, á öllum
manneskjum, þá var það ráð hans
aö taka myndir af þessu á öllum
glæpamönnum, sem komust í hend-
ur lögreglunnar, og var eftir þaö
auðvelt að þekkja þá aftur, ef
fingraför sáust eftir þá. Hann
lét líka mæla höfuðkúpuna og
löngutöng á þeim glæpamönnum er
hann haföi með að gera, og þótti
þaö óbrigðult á fullvöxnum mönn-
um. Hans aðferð er tekin upp í
öllum stórborgum í víðri veröld.
Hann var frægur maöur og mjög
vinsæll í sinu landi, þangaötil hann
komst í Dreyfus máliö og vildi
sanna sök þess marg-umtalaða
manns, og fékk óvild margra, þeg-
ar því máli var snúið viö. BertilLn
haföi þá stöðu í París, að þekkja
aftur plæpamenn er í lögreglunnar
greipar komnst, og í þeirri stöðu
náði hann frægð sinni.
Mikil uppskera.
Kaupmannaráðið í Port Arthur
hefir nýlega gert nokkuð svo ný-
stárlegt, að flest blöð geta þess.
Það bauð til veizlu bóndamanni
nokkrum frá Ontario, Arthur
Sitch, frá Thunder Bay, er unnið
haföi hæstu verðlaUn af öllum
bændum í Ontario, fyrir þaö að
græða meira á einni ekru, heldúr
en nokkur annar. Þessi ungi
bóndi fékk af ekru sinni 427
bushel af kartöflum, eða 100
bushelum meir heldur en sá sem
næstur honum komst, og 314
bushelum meir, heldur en vanalega
fæst úr ekru hverri að meðaltali,
yfir alt fylkið. Ágóði hans af
þeirri einu ekru var $231.45. Þessi
fyrirmyndar jarðræktar maður
mun vera af þýzkum ættum, og er
orðinn vel þektur um alt sitt fylki,
þó ungur sé og aldrei hafi farið
aö heiman, fyrir að skara fram úr
öllum öðrum í ötulleik og fyrir-
hyggju í búskapnum.
Skúli Sigfússon
þingmannsefni í St. George.
Á fjölmúnnum fundi, sem hald-
inn var í Ashern 25. Febr. og full-
trúar sóttu til úr öllum pörtum St.
George kjördæmis, var útnefndur
sem þingmannsefni liberala í kjör-
dæminu herra Skúli Sigfússon,
kaupmaður á Lundar. Yfir hundr-
aö' fulltrúar voru viðstaddir og út-
nefndu þeir Skúla í einu hljóöi til
að sækja til þingsætis í næstu al-
mennu fylkiskosningum. Á fund-
inum töluöu, auk þingmannsefnis-
ins, þingmennirnir Vinkler og S.
Hart Green og ýmsir aörir, og
komu ræöur allra í einn staö niður,
að styöja af ýtrasta megni hinn vin-
sæla og valinkunna sæmdarmann
til sigurs í kosningar baráttunni.
Formaður félags liberala í kjör-
dæminu, G. G. Serkau, kaupmað-
ur á Ashern, var einnig í kjöri, en
dró s:g til baka og kvaöst mundu
veita Skúla Sigfússyni alt þaö
fylgi, sem hann orkaði.
Kominn aftur úr suður-
för.
Fyrir tveim eöa þrem árum
lagöi brezkur liösforingi upp til aö
ná suöurhe'imskauti, og um sama
leyti tóku þrír aðrir sig til í sama
erindi, einn frá Japan og varö
þeim litið ágengt, þó vel væri út-
búinn; kómst hann heill heim aft-
ur, meö litla frægö. Hinum
brezka reiddi svo af, se)m öllum er
kunnugt, aö hann komst þangað
sem hann ætlaði sér, en varö úfii
á leiðinni til baka, og er sagt, að
vistaskortur hafi orð:ð honum og
hans félögum að fjörtjóni. Roald
Amundsen komst heill á húfi til
baka, með sína Norðmenn, að af-
loknu erindi. Hlinn fjóröi, sem
lagöi upp um likt leyti, var gerður
út af Ástralíu stjórn, og skyldi
kanna ýmsa staði, er óþektir voru
þar syðra. Formaður fararinnar,
Dr. Mawson, er nýlega kominn
aftur og segir sögu af ferð sinni,
sem hér skal stuttlega skýrt frá.
Dr. Mawson skildi við lið sitt
og vetrarbúöir og hélt af staö í
könnunarför, með tverm félögum
sínum, vísindamanni frá Sviss-
landi, er hét Dr. Mertz og fyrirliöa
úr brezka hernum, er hét N'nnis.
Þeir höfðu tvo sleða meö hundum,
en SVisslendingur var mikill skíða-
maöur og rann á skíðum sínum í
fararbroddi, skyldi velja leiöina og
gera hina vara viö, ef hættulegar
sprungur yröu á leiö þeirra. Nú
héldu þeir áfram langar leiðir,
þartd einn daginn, aö Jæir fóru
yfir gjá nokkra, er þeir kpmust
yfir auöveldlega, sá sem á skíðún-
um rann og Dr. Mawson á hunda-
sleða sínum. Ninnis fór síöastur
og var vænn spölur á milli. Eftir
stund verður Mawson litið aftur
og sér þá hvergi Ninnis, Snýr þá
til baka að gjánni og ter að leita
hans. Gjá:n var svo djúp, aö
hvergi sá í botn. Loks heyrðu
þeir félagar ýlfur og vein og sáu
þá hvar einn hundurinn lá á syllu
í gjánni, og voru þar hjá honum
brot af sleðanum og eitthvaö af
dóti. Svo djúpt var niður þang-
aö, aö engin ráö voru til aö síga
svo djúpt niður, og uröu þeir fé-
lagar aö fara svo búnir frá þess-
um slysastað. Vistir þeirra voni
flestar á sleðá. þefm, sem þannig
fórst, svo aö þeir tóku þaé ráö,
að snúa þegar aftur og leita til
vetrarbúða sem fljótast. Þeir tóku
þegar að draga við sig matinn, sem
eftir var, en sáu þó skjótt, að
hann mundi skamt duga. Hund-
arnir horuöust niður, því að ekk-
ert var til handa þe;m, var því
engin næring í keti þairra, er menn-
irnir tóku að slátra þeim, Er
skemst af aö segja, að Dr. Meretz
þoldi ekki þetta harörétti, veiktist
og dó. Dr. Mawson drógst eftir
það áfram með veikum burðum,
unz hann hitti á vistaskýli, er
menn hans höfðu gert, þeir er leit-
að höfðu þeirra félaga dauðaleit,
hrestist þá svo mikið, að hann
komst óskemdur til vetrarbúðanna.
— Af árangri ferðarinnar er það
helzt sagt, að þdr félagar hafi
kannaö strendur fastalandslns við
suðurskaut, á ýmsum stöðum, er
rrænn þektu ekki áðúr.
Samsöngur
og samkoma var haldin í Fyrstu
lútersku kirkju á laugardags
kveldiö var, sem fjögra manna
söngflokkurinn “Franklin” stóð
fyrir með aðstoð þessara: Miss
Clara (Oddson, Mrs. Alex Johnson,
Miss Martha Anderson, Mr. Alex
Johnson og ennfremur aðstoðaði
söngflokkur fjögra stúlkna úr
Bandalaginu.
Mr. og Mrs. Alex Johnson sungu
saman lagið “Down the Vale”, hún
meö soprano, hann með baritone
rödd. Þaö er altaf skemtilegt aö
heyra þau syngja, svo fallögar
raddir og vel samstiltar.
Miss Clara Oddson spilaði tvö
lög á fiðlu. og þótti ágætlega vel
takast. Hún hefir mjög góðan
listarsmekk og fer stöðugt fram.
Oss má þykja mikið' til koma að
svo h’stfengin mær er vor á meðal,
með eins miklum hæfileikum Qg
hún hefir.
Miss Martha AndersOn söng hið
nýja lag Sveinbjörnssons “Fáninn”
og var því ágætlega tekið. Miss
Andersön hefir mjög mikla rödd
og fagra, enda er hún nú ráðin til
að syngja á “Wonderland Theatre”
Stúlknakór Bandalagsins söng
tvö lög, mjög svo lagleg. Þó aö
ekki hafi þær haft stöðugar æfing-
ar nýlega, voru þessi lög vel sam-
æfö, og er óskandi og vonandi aö
þær haldi áfram að sinna söngn-
um og veiti mönnum þá ánægju aö
láta til sin heyra sem oftast hér
eftir.
Mr. Paul Bardal Jr. söng úin-
samall e:tt lag, meö sinni djúpu og
hljómmiklu bassarödd, og tókst
mjög vel. Hið sama má segja um
fiðluspil herra Theo. Árnasonar,
er lék lag eftir Próf. S. K. Hall, á
fiðlu sína. Mr. Árnason er ný-
kominn af íslandi, aö heita má, en
hefir á þeim stutta tlma, sem hann
hefir dvaliö hér, getiö sér vinsæld
og góðan orðstír sem listaamður og
kennari í fiðluspili.
Séra Fr. Friðriksson flutti tölu,
er var vel tekið. Hann skýrði
stuttlega frá tilefni samkomunnar,
lýsti því, hve fagurt það væri og
skýröi frá hvernig nú horfði viö
og hvaö í ráöi væri, og var tala
hans vel rómuð.
“Franklin” söngflokkurinn söng
nokkur lög bæöi ensk og íslenzk
og er óþarfi að geta þess, að þeim
var vel tekið. Þeir fjórir Frank-
lin-piltar eru allir góðir söngmenn
aö upplagi, æfa sig kappsamlega og
taka miklum framförum. Þaö er
áform þeirra að halda samsöngva
á ýmsum stööum í fylkinu. Þeim
ætti aö vera alstaöar vel tekið, því
að það er ánægja að heyra til
þeirra og fyrirtækið, sem fær arð- ]
inn af starfi þirra, er lofsvúrt í j
alla staði, en þaö er Gamalmenna j
hæli fyrir íslenzkt fólk, sem í
ráöi er að stofna hér í borg.
Hvaðanæfa.
Enskur maöur, er viða hefir far-
iö, er nýlega kominn til Montreal,
og er þar aö útbúa leiðangur til
óbygöanna í norður og aUstur
hluta lands vors. Þessi enski
maður segist hafa komið aö aust-
an sem enginn hvítur maöur hefir
oröiö til fyr en hann, en það er,
aö fara íótgangandi yfir Behrings
sund. Hann segist hafa verið tvo
daga á þeirri leið, meö tveim
fylgdarmönnum af Eskimóa kyni
og hafi kuldinn verið 35 stig. Það
var í Nóvember mánuði. Sundið
er rúm þingmannaleiö á breidd,
36 enskar mílur, frá Prince of
Wales höföa i Alaska til Anvyr
höföa á Kamtchacka í Asiu.
Þrjár eyjar eru i sundinu, óbygð-
ar og skóglausar. Þokur og
suddar eru þar mjög tíöir, enda
mætast þar stríðir straumar frá
Kyrrahafi og Norðurfshafi.
í Saskatoon fanst Kínverji reik-
andi með stórt sár á hálsinum.
Hann var fluttur á spítala og gaf
þar upp öndina eftir nokkra stund.
Áður en hann dó sór hann það, að
vel þektur kaupmaður og póst-
meistari þar í bæ hefði veitt sér
banatilræðið og nefndi hann með
nafni og tilgreindi atvik. Kvið—
dómur gaf þann úrskurð, að veg-
andi væri óþektur maður.
5. MARZ 1914
NÚMER 10
Munið eftir spilafundi íslenzka
Liberal klúbbsins næsta þriðju-
dagskvöld, á venjulegum
stað og tíma.
Byrjað verður að spila á mínútunni kl. 8. Tvenn veiðlaun
gefin. $ 10 verðlaun voru gefin á síðasta fundi.
— Úti í St. Norbert drap maöúr
konu sína á laugardaginn, meö því
rnóti aö berja hana i höfuðið meö
skóbursta skafti. Endinn á skaft-
inu gekk inn úr höfuðbeinum kon-
unnar svo aö hún dó samstundis.
Maðurinn er franskur og dæmdur
sannur að sökinni, að því vlöbættu,
aö hann heföi framið ódæðiö í
brjálæðis kasti.
— Á Þýzkalandi var konu ný-
lega slept úr fangelsi, eftir langa
fangelsis vist, er hún hafði verið
dæmd til, fyrir aö myrða bónda
sinn. Þaö kom upp úr kafinu, er
sveitakona þessi hafði hálfnað
dýflissuvistina, aö hún var ekki
sek um glæpinn, heldur var hún
dæmd eftir líkum ©r spæjari nokk-
ur haföi borið fyrlr rétti.
— Dauður er í London Minto
lávarður, sá er hér var landstjóri
um hríö og síðan varakonungur á
Indlandi, velkendur maður um alt
hiö brezka ríki, lipurmenni, góö-
gjarn og vinsæll, en þótti skorta
skörungsskap í stöðu sinni á Ind-
landi. er uppistand og samsæri
hófust þar í hans stjórnartið.
— F. D. Monk, sá sem slepti
feitu embætti í stjórn Bordens, af
því að honum fanst stjórnin ekki
halda loforð sín við kjósendur,
hefir nú sagt af sér þingmanns-
stöðu, og ber fyrir sig heilsuleysi.
Kjördæmi hans er afarstórt og
fjölment, og hafði kosið' Monk
alla tíö i 18 ár, meö miklum at-
kvæöá itiun.
— Ritstjóri nokkur eystra, vel
kendur maöur, bjó sig eins og
enskur sveitamaður og lézt vera
nýkominn hingað tíl landsins, vildi
með þessu móti vita sann á því,
hvernig “gröntum” væri tekið hér.
Þegar til Toronto kom, var hann
tekinn fastur, sem' flakkari og
settur í svartholið. Eftir tveggja
daga veru þar, var hann tekinn
fyrir dómara og sagði hann þá
sögu sína. Dómarinn viildi engu
oröi trúa, af því sem hann sagði
og skipaði að halda honum í viku,
þangaötil mál hans væri tekið fynr
á ný; ekki fékk hann að gera boð
til vina sinna. Einn þeirra sá þó
nafns hans getSð, meöal flækinga
í hafti í Toronto og fékk hann út-
leystan. Ritstjórinn er æfareiðiir
dómara þessum, fyrir að hafa beitt
sig rang:ndum og segist skulu hafa
þann mann úr embætti.
— Meöal þeirra morgu staða,
sem hafa oröið fyrir áfelli af
stormum og byljum nýlega, er
Nsw York borg. Þar kom bylur
með ákafri snjókomu um síðustu
lielgi, sem geröi mikinn usla og ná-
lega tepti öll viö'Skifti. Um 16.000
menn voru þar aö snjómokstri
dagana á eftir, og 2500 vagnar,
margar miljónir tunna af vatni
voru brúkaðar til að þýða snjó og
klaka og það þó aö undir eins
hitnaöi í veöri, eftir kastið, og mik-
iö þiðnað af sólbráð. Alt um það
var aöeins hægt að gera aðalgötur
borgarinnar umferðar færar, á öll-
um hliöargötum var nálega kaf-
hlaup. eftir aö tveir sólarhringar
voru liðnir frá kastinu. Járn-
brautarlestir til og frá borginni
urðu aö sitja þar sem komnar voru
og vörusendingar innan borgar
gengu mjög illa, var því skortur
lifsnauösynja á mörgum heimilum
í borginni.
9
— Einn af ráðherrum Quebec
fylkis, Devlin að nafni, er snögg-
lega látinn. Hann var írskur að
kyni og mikill kappi í Liði liberala,
meðal sinna landsmanna austan-
lands. Hann var um stund þing-
maður á Bretlands þingi, og gikk
þar hart fram í liði íra.
— Sex verzlunar búöir og mörg
verzlunar hús eyddust af eldi í
smábæ, sem heitir Chaplin, í Sask-
atchewan, tjón er metíið á 100.000
dali.
— f Calgary vildi slys til með
því undarlega móti, að stúlka steig
ofan á eldspítu, sem kviknaöi á,
hljóp loginn í föt hennar, og stóðu
þau á sömu stundu i björtu báli.
Stúlkan lét líf sitt eftir lítinn tíma,
við mikil harmkvæli.
— Lauzon karl er ekki af baki
dottinn. Hann neitaði að draga
sig til baka sem þingmannsefni f
St. George kjördæmi, nema með
því móti, að hann fengi að bjóða
sig fram annarstaðar. Hann skyldi
“renna” og leggja Taylor að velli,
ef stjórnin leyfði honum ekki að
reyna sig í ööru kjördæmi. Hann
haföi sitt mál meö þráanum, og
er nú útnefndur í La Verandrye,
til aö berjast við Dr. Molloy.
— Mest allra mála hefir að und-
anförnuu rætt verið morð hins
brezka auömanns Bentons, sem
Villa uppreisnarhöföingi í Mexico,
lét taka af lífi, eöa drap sjálfur.
Stjóm uppreisnarmanna aftók að
gera nokkuð fyrir orð Bandaríkja-
stjórnar í því máli, Bretar þóttust
ekki koma því við, að gera gang-
skör aö eftirmáli aö svo stöddu,
en áskyldu sér rétt til að klappa
um eftir á, þegar færi gæfist.
Stjórn uppreisnarmanna hefir lof-
að að rannsaka máliö', en ekki þyk-
ir trúlegt, að sú rannsókn verði
hlutdrægnislaus.
— Suöur í Kyrrahafi var mikill
stormur nýlega, og kom það niður
á eyjum þeim, sem heita Félags-
eyjar. Bylgjur gengu yfir sumar
eyjarnar og sópuðu burt öllu, sem
fyrir var, húsum, trjám og fólki.
Ekki hefir frézt, hve margir hafi
farizt.
— Yfir Ontario. gekk veöur
mikiö í vikubyrjun, sem olli mikl-
um skemdum, einkum af því, að
víða kviknaöi í þökum af neista-
flugi, og brunnu margir sveita-
bæir til kaldra kola, með því móti,
— í sumar leið voru járnbraut-
ir í Canada til samans 30.000 míl-
ur á lengd, og höföu bæzt við þaö
ár 2.577 milur. Ontario hefir mest
af járnbrautum, um 9000 mílur,
Quebec næst, og Manitoba, nálægt
4000 milur hvort. Saskatchewan
hafði aukið mest við' sig á árinu,
um 900 mílur. Alls hafa þessar
brautir kostað, að meðtöldum
gróða þeirra, 1,369 miljónir dala.
Tekjur allra járnbrauta í Canada
voru síðastliöiö ár 257 miljónir
dala. Tekjur á mílu hverja voru
$8.75, sem var nokkru meir en ár-
ð áður.
-Rússastjórn er að gera út leið-
. angur til aö leita í norðurhöfum
að fyrirliðanum Sedoff, sem hóf
íör sína til norðurpóls i Ágústmán-
uði 1912, og var sagt, aö hann ætl-
aöi að nota tamda ísbimi til að
draga sleða sína.
Ur bœnum.
Hinn 25. f. m. andaðist að heim-
ili sinu 569 Simcoe stræti hér í
borg, Magnús Johnson, Skaftfell-
ingur og hafði dvalið hér í landi
um allmörg ár, 61 árs gamall,
dugnaöar maður og vandaður.
Hann lætur eftir sig ekkju og tíu
böm. Jarðarförin fór fram á
laugardaginn. Prestlega þjónustu
framkvæmdu prestamir Dr. Jón
Bjarnason og séra R. MartcSnsson.
Hátíðarguðsþjónusta til minn-
ingar um þriggja alda afmæli
Hallgríms Péturssonar verður
heldin í Mozart sunnudaginn 8.
Marz kl. 1 e. h. Eftir guðsþjón-
ustuna heldur Sléttusöfnuður árs-
fund sinn. Safnaðarmenn beðnir
að fjölmenna.
Rlaðið “The Statesman”, sem gef-
ið er út hér í bænum. flutti nýskeð
mynd af A. S. Bardal útafararstjóra
í tilefni af kosning hans ti! að mæta
á hástúkuþinginu í Kristjaníu í sum-
a. Æfiatriða herra Bardals var get-
iö um leið í blaðinu og farið Vum
hann loflegum oröum aö makleg-
leikum.
Þriöjudaginn, hinn 24. Febr., voru
þau Stefán S. Hofteig frá Minneota,
Minn., og Margrét Benson gefin sam-
an i hjónahand af séra Rún. Mar-
teinssyni að 493 Lipton St. Brúð-
hjónin fóru þegar í heimsókn til
foreldra brúðarinnar að Wild Oak.
Þaðan leggja þau af stað til heimil-
is síns í íslenzku bygðinni í Minne-
sota.
Safnaðarnefnd Fyrsta lút. safnað-
ar biöur þess getið út af sjúkleik Dr.
Jóns Bjarnasonar, að hún óskar þess
að menn ónáði hann alls ekki með
prestsverkum meðan hann er jafn-
veikur og hann er nú. 1 forföllum
hans biður nefndin þess getið, að
séra Friðrik Friöriksson gegni prests
störfum safnaöarins, og menn beönir
að snúa sér með þau til hans. Heim-
ili hans er að 597 Bannatyne Ave.,
hjá h. J. J. Vopna, talsími G. 841.
Herra Jón Hornfjörö frá Fram-
ness P.O. og Sigurður Hlíðdal, voru
staddir hér í bænum í vikunni. Jón
var að finna son sinn Þorstein, sem
fyrir skömmu gekk undir uppskurð
hér á spitalanum.
Á fimtudagskveldiö 5. þ.m. flytur
séra Friörik Friðriksson fyrirlestur
um hina kristilegu starfsemi meöal
æskulýðsins í Reykjavík, sem hann
hefir gengist fyrir og stýrt og
stjórnað frá upphafi. Fyrirlestur-
inn verður haldinn i sunnudagsskóla-
sal Fyrstu lút. kirkju og hefst kl. 8
að kveldi. Aðgangur ókeypis. Vænt-
um vér að fólk fjölmenni til að
hlýða á fyrirlesarann, sem þegar
hefir áunniö sér hylli margra, þó að
hann hafi enn dvalið hér að eins
skamma stund. Efni fyrirlestursins
er og svo nýstárlegt og mikilvægt, að
sem allra flestir ættu aö nota sér
það góða færi, er nú býðst til aö
fræðast um það, af manninum, sem
öllum öðrum Islendingum er um það
fróðari. Komið og fyllið húsið.
Á öðrum stað í blaðinu er auglýs-
ing frá þeim Thorlacius og Hansson,
sem taka að sér að mála og skreyta
hús; annar maðurinn í því félagi er
hinn vel þekti landi vor Björnúlfur
Thorlacíus; hinn er norskur maður.
Væntanlega unna landar vorir þeim
viðskifta, þvi að þeir “gera gott
verk” og eru sanngjarnir í við-
skiftum. Talsími M. 4984.
Herra G. Johnson, sem um átta ára
skeið hefir verið eftirlitsmaður við
innflutningamála byggingarnar hér í
bæ, hefir nýskeð verið sagt upp því
starfi. Conservatíva stjórnin er ið-
in við að sópa liberölum úr embætt-
um.
Það er i ráði að sameina þau tvö
félög, sem aðallega hafa mjólkur-
sölu Winnipeg borgar í hendi sér.
Crescent félagið tekur að sér hús og
áhöld og alla verzlun Carson’s fé-
lagsins og rekur mjólkurverzlunina
undir sínu nafni frá miðjum þessum
mánuöi. Mjólkurprisana lofar hið
nýja félag að lækka þann 1. Apríl
í vor.
Þriðjudaginn hinn 19. Febr., voru
þau Böðvar Helgason Jakobsson frá
Árborg og Guðlaug Eyjólfsson frá
Geysi gefin saman í hjónaband af
séra Rúnólfi Marteinssyni. Vígslu-
athöfnin fór fram að. 420 McGee
stræti, heimili Mr. og Mrs. Fernis, en
Mrs. Fernis er systir brúðarinnar.
Að afstaðinni vígslunni stóð rausn-
arlegt samsæti, sem nokkrir vinir
brúðhjónanna tóku þátt i.
Herra Páll Egilsson harðvöru-
kaupmaður frá Calder, Sask., var
staddur hér í verzlunarerindum eftir
helgina.
Herra Gisli Egilsson frá Lögberg
P. O., kom til borgar eftir helgina og
fór heim með konu sína, er verið
hafði sjúk á spítala hér í borg um
tima.
Séra Jóhann Bjarnason biður þess
getið, að Flóvent Jónsson við Is-
lendingafljót hafi afhent sér $1 til
Sigurlaugar Guðmundsdóttur í Rvík.
AIls þá $8.00, sem bæzt hafa í þann
samskotasjoð og komnir eru í vörzl-
ur séra Jóhanns síðan aðaluppphæð-
in var send heim í vetur.
“Peg o’my Heart” er á Walker
þessa viku, og hefir reynst prýði-
lega vinsæll leikur, hér sem ann-
arsstaðar. Höfundur leiksins bjó
liann til, til þess að ná ástum
stúlku er hann elskaði, og ber leik-
urinn með sér þokka og fegurð,
sem hrífur alla. — “Little Women”
segir fallega og hjartnæma sögu
af lifinu í Ameríku fyrir hálfri
öld, og byrjar sá leikur á Walker
9. Marz. með matinees á fjórum
síðustu dögum vikunnar.