Lögberg - 05.03.1914, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. MARZ 1914.
S
Rœða
dr. Guðm. Finnbogasonar
í samsæti fyrir J. J. Bildfell,
kaldin í Rvík 1. Febr. 1914.
Þeir eru fáir staðirrlir i sögun-
um okkar, sem viö lesum með
meiri athygli eða eru skemtilegri
en þeir, sem segja frá íslendingum
erlendis. Hún er t. d. góS frá-
sögnin um Brjánsbardaga í Njálu
en minnistæðast verður þatj sem
segir frá Þorsteini Síðu-Hallssyni:
“Þorsteinn Siðu-Hallsson nam
staðar, þá er allir flýðu, ok batt
skóþveng sinn. Þá spurði Ker-
þjálfaðr, því hann rynni eigi.
“Þyí”, sagöi Þorsteinn, ‘at eg tek
e'gi heim 'i kveld, þar sem ek á
heima út á íslandi”. Hver íslend-
ingur,, sem þetta les, mun rétta ögn
úr sér um leið. Það snertir við
streng sem liggur djúpt. þjóðar-
metnaðinum, gleðinni yfir íslend-
ingseðlinu. Ósjálfrátt finst manui
það. skemtilegt, að það var íslend-
ingux, sem varð ekki meira við þó
allir flýðu í kringum hann en svo,
að hann dundaði við að binda sko-
þveng sinn. Og enn skemtilegra
er svarið, mótað af andriki og
þótta. Menn flýja af hræöslu, en
ÞorjteÍnn læzt ekki skilja aðra
giída' ástæðu til að renna en þá, að
vilja komast heim, og Iætur þess
getið, að hánn sé íslendingur. Það
er eins og hann segði: “Eg flý
ekki. af því að eg er íslendingur’.
Vér mtindum dáðst að sliku
svari þó maðurinn hefði ekki verið
Islendingur, en oss mundi naumast
þykja eins vænt um það, vegna
þess að “ann hver s’inu” og vér
þykjumst réttbornir erfingjar þess
sem íslenzkt er, hvar sem það birt-
ist Sé nokkur heimsborgari í
þeim skilningi, að hann telji sér
ekki eitt þjóðerni öðru kærara, þá
er sá maður allra landa kvikindi
og mun naumast skapa nokkuð
það' er nokkur þjóð hefði ágirnd
á. Því þjóðerniö er “háttur” sem
menn eru ortir undir, eða mót sem
menn eru steyptir í. Undir sama
ltætti má kveða misvel, það fer
eftir efni og meðferð. í sama
móti má steypa misgóða gripi, það
fer eftir þvi hve hreinn málmurinn
er og hvernig á er haldiö. En
' þjóðemislaus maður væri “hátt-
leysa” ein, eða eins og ómótaður
málmur.
Enginn getur flúið frá þjóðerni
sínu. Hver maður liefir það í
sér eins og kvæöið “háttinn” eða
málmurinn mótið. Hitt er hverj-
um manni ætlað, að yrkja sjálfan
sig sem bezt innan þeirra tak-
marka, sem “hátturinn” setur hon-
um, og það er metnaður hverrar
heilbrigðrar þjóðar, að sú drápa,
ec synir hennar og dætur yrkja
hver sitt erindið í, verði svo dýr
og andrík, svo efnishög og inn-
fjálg, að aðrar þjóðir hlusti á.
Þjóðem:sbaráttan um heim allan
er slikt kvæðakapp. Og sú þjóðin
mundi þykjast mest, sem kvæði
hinar í kútinn.
Þess vegna er það, að hver þjóð
hefir vakandi auga á þvf, hvemig
börn hennar reynast meðal annara
þjóða. Þess vegna lesum vér með
svo mikilli athygli það sem sagt er
af utanferðum forfeðra vorra í
sögunum og þess vegna þykir oss
svo vænt um að heyra af velgengni
Vestur-fslendinga. Vér höfum'það
jafnt og forfeður vorir á tilfinn-
ingunni, að enginn sé fullreyndur
í sinu fööurlandi, að kostir þjóð-
emis vors komi ekki til fulls í ljós
fyr en það fær að reyna sig við
önnur þjóðern'. Menn mæla ekki
hörku steinsins á alveg sams kon-
ar steinum, heldur á frábrugðnum
steinum, og einkenni gimsteinsins
er að hann skefur af öllum öðrum.
Eins og högum vorum er háttað
hér heima, geta aldrei allar þær
gáfur. sem í þjóðinni búa. komið
hér í Ijós og riotiö s’m til fulls, og
sízt þær, sem sérstaklegastar voru
og fágætastar. Þær gáfur verðum
vér því nauðugir viljugir að senda
á heimsmarkaðinn, þar sem eftir-
spurain er. Og það er mín trú, að
sá flokkur íslendinga, sem sezt
hefir að 1 Ameríku, sé oss ekki
m'nst verður vegna þess að vér
höfum þar eins konar mælikvarða
á íslenzkt þjóðerni. Vér sjáum
þar hvað íslendingar duga í sam-
anburði við aðrar þjóðir, og vér
sjáum þar hvers virði íslendingum
er arfurinn þeirra, þegar þeir fá
að bera hann saman við auðæfi
annara þjóða. Sú reynsla, sem
þegar er fengin í þessu efni, er
sannarlega gleðileg. Alt bendir á
að Vestur-íslendingar reynist þeim
gáfum og mannkosthm gæddir, að
þeir hafi alment traust og virð-
ingu þeirra þjóða, er þe:r starfa
þar með, og að þeir á ýmsum svið-
um séu þeim snjallari, ef tekið er
tillit t’.l þess, hve fámennur flokk-
ur þeirra er. En hitt er ekki minna
at5. síá. hve rík ástin á ætt-
lörðinni ogr ollu þvi sem íslenzkt er
'fir í brjóstum þeirra og hvernig
beir sýna hana f verkintt hvenær
sem tækifæri er til. Þ'að hefir ekki
sannast á þeim, að svo fyrnist ást-
ir sem fundir. Hitt mun heldur,
aö ísland sé hvergi fegra en í
endurminningum og þrá Vestur-
fslendinga. Vér eignm mörg gull-
fögur ættjarðarljóð, en varla neitt
yndislegra en kvæöið íslendinga-
dags-ræðu” eftir Stephan G. Steph-
ansson. Þar er þetta :
Yfir heim eða himin
Hvort sem hugar þ’in önd,
Skreyta fossar og fjalls-hlið
Öll þín framtíðar lönd!
Fjarst í eiliföar útsæ
Vakir eylendan þín:
Nóttlaus vor-aldar veröld
Þar sent víðsýnið skín.
Stephan G. Stephansson er einn
vottur þess hvaða kyngikraftur býr
i íslenzktt þjóðerni og tungu.
Hann fér héðan um tvítugt, er
bóndi alla æfi og þó eltt af höfuð-
skáldum vorum. Hjá engttm er
stuðlabergið íslenzkara, en kraftar
hans hafa magnast og fengið meira
svifrúm við að þroskast í nýrri
álfu, þó kjörin væru erfiö. það er
ekki lítill skerfur sem hann og
ýmsir aðrir Vestur-Islendingar
hafa lagt til bókmenta vorra, auk
þess sem þeir stvrkja þær óbeinlin-
is.með kaupum sínum. Stundum
er talað um það, að íslenzkt þjóð-
erni geti aldrei orðið langlift í
Ameriku. Úr því mun framtíðin
skera. Það er um líf- þjóöernisins
eins og e’nstaklingsins: Hver
heilbrigður maður reynir að lifa
sem lengst, og eng'nn drepur sig í
dag af því hann viti ekki nema
hann kunni að deyja á morgun. Og
meðan Vestur-íslendingar em lík-
ir þv’i sem þeir eru nú, má telja þá
blómlega kv:sti á þjóðmeiði ís-
lands.
Vér erum komnir hér til að
heiöra umboðsmann Vestur-íslend-
inga í eimskipamálinu, og mér hef-
ir verið falið að segja hér nokkur
orð, þó eg sé að því leyti illa til
þess fallinn, að eg þekki herra
Bíldfell minna en margir aðrir hér.
En það sem eg veit um hann er
nóg til þess, að mér er ljúft að
votta honum virðingu og þökk
fyrir það sem hann er, og fyrir
það sem hann hefir gert. Herra
Bildfell er “self-made man”. Hann
hefir ort sig sjálfur, svo eg haldi
mér viö Iikinguna er eg notaði
áðan, og “háttur” hans er íslenzk-
ur. Efnið í æfierindi' sitt hefir
hann fengið sumpart hér heima,
en sumt vestan hafs: í jámbraut-
arvinnu, skógarhöggi, við nám og
kenslu, við gullgröft og allskonar
mannraunir norður í Klondyke, við
fasteignasölu i Winnipeg og alls-
konar trúnaðarstörf í þarfir ís-
Ienzkrar menningar vestanhafs.
Og mér er sagt að erindið sé alt
stillilega kveðið, en fastmælt og
hortittalaust. Síðasta línan sem
komin er af þvi eru afskiftin af
eimskipafélagsmálinu. Herra Bíld-
fell sá að hluttöku Vestur- íslend-
inga i því var teflt í tvísýnu og
hann gerðist til að fara hingað
he:m á sjálfs síns kostnað sem um-
boðsmaður Vestur-íslendinga, þó
um hávetur væri og engar vissar
skipaferðir í tæka tfð frá Englandi
hingað. Og hann kom um jólin
með botnvörpungi. Erindislok
hans era öllum kunn. Hér hefir
komist á það samkomulag að allir
mega vel við una, og framkoma
herra Bíldfells var svo vinnandi,
að eg hygg hann hafi af þessum
fundi hvers manns virðingu og
hylli. Vér þökkum rionum þvi
l hjartanlega fyrir komuna og ósk-
um Vestur-íslendingum til ham-
ingju með slíkan umboðsmann.
Vér biðjum hann að flytja bræðr-
um voram vestanhafs alúðar
kveðju vora með þökk fyrir
drengilega hluttöku þeirra i þessu
máli sem öðram er þeir hafa látið
til sín taka, og vér vonum að með
þessu verki sé hafið nytt timabil 1
samvinnu fslendinga vestan hafs
og austan. Vér vonum að þessi
hluttaka Vestur-íslendinga sé fyr-
irboði þess, að hafið verði minni
og minni fjörður milli frænda, svo
að bráðum komi að því að íslenzkt
vit og drengslund, atorka og auð-
magn hvar sem er í heiminum vinni
saman að því eina marki sem oss
er samboðið, en það er að:
rétta hvað rangt er,
reisa hið fallna,
byggja og bæta
böl með vizku,
gjöra verk sem vara
unz veröld eyðist!
Lifi umboðsmaður Vestur-ís-
lendinga I
—Tsafold.
Yfirlit
■yfvr starfsemi Rcektunarfélags
Norðurlands 1913.
Eftir Jakob H. Líndal, framkv.stj.
Starfsemi félagsins hefir ekki
tekiö miklum breytingum frá því
siðastliðið ár. Viðfangsefnin era
hin sömu. Nokkrum smærri at-
riðum hefr þó verið bætt við, og
störfin aukast ár frá ári. Eg vil
því að þessu sinni geta orðið fá-
orður um þetta efni, en drepa að-
eins á nokkur atriði.
Gróðrartilraunuir.
Eldri tlraunum er haldið áfram.
nokkrum nýjum bætt við. Af þvi
skal nefna: Tilraunir við undir-
búning fræsléttu og sáning á ýms-
um tímum. Sáðt’iminn getur haft
mikil áhrif á, hvemig grasfræs-
sáningn hepnast. Sáðtfmatilraun-
irnar eiga að gefa nanari upplýs-
ingar um þetta atriði. Reitur var
undirbúinn og sáð í hann seint 1
fyrra haust. Annar reitur var
sáður snemma í vor, og liimn
þriðji f vor eftir miðjan Júni.
Sennilegt mætti virðast, að haust-
sáði reiturinn hefði oriðð gras-
laus, og svo leit reyndar út fyrst
frani eftir vor'nu, en alt í einu
þaut upp þéttur og vaxtarmikill
gróður, svo reiturinn varð tvísleg-
inn 1 sumar. Reiturinn, sem sáð
var f snemma í vor, spratt eins vel
og var tvísleginn, en það sem sáð
var s’iðast, spratt lakast, og var
ekki slegið. ReitirnV vora í góðri
rækt. Grasfræ’nu var sáð einu
saman, engu byggi né höfram.
Þetta er auðvitað ekki næg
reynsla til þess aö byggja á. Þetta
þarf að endurtakast og sömu réit-
irnir að reynast í fleiri ár. En
af þessu má þó ráða, að haustsán-
ing getur hepnast, að betra muni
vera að sá snemma en seint aö
vorinu, og.að grasfræslétta getur
gefið talsvert af sér þegar sam-
sumars, ef sáð er a hentugum
tíma og góð ræktarskilyröi fyrir
hendi.
Byrjað var enn fremur á fræ-
blöndunar tilraunir í mismun-
andi ræktaða jörð, og reyndar
nokkrar aðferðir til að koma
rækt i illa sprottin tún; þar á
meðal var völtun með gaddvalta,
er stingnr og losar sundtir alla
grasrótina, áburður er svo mulinn
i holurnar jafnóðum. Þessi að-
ferð bar auðsæastan árangur á
fyrsta sumri, en tilraunirnar eru
svo skamt á veg komnar, að um
þær verður ekki dæmt að svo
komnu. Nú eru einnig í byrjun
beifartilraunir á tún. þar sem at-
huguð verða áhrif ýmiskonar bú-
peningsbeitar á grasvöxtinn.
Korntegundir þroskuðuust ó-
vanalega vel. Bæði hafrar og
bygg náði fullum proska, en
mundu þó liafa gefið fremur rýra
uppskéru, ,þó i stærri st’il hefði
verið ræktað. Rúgur mundi einn-
ig hafa þroskast, en hann var eng-
inn til á þeim aldri, aðeins sáð i
sumar til næsta árs.
Kartöfluvöxtur var með betra
móti og kartöflurnar venju frem-
1 ur þroskaöar. f ritgerðinni um
kartöflutilraunimar er nánara um
það atriði. Þess er vert að geta,
því það mun fremur sjaldgæft hér
á landi, að nokkrar kartöfluplönt-
ur báru talsvert þroskuð aldini.
Berin vora græn að lit, l’itið eitt
aflöng. Hið stærsta var 2þ$ cm.
á lengdarveginn og 2 cm. á þykt.
Það vo 7 gr. Því miður gat eg
ekki viitað af hvaða afbrigði berin
voru. Þau fundust í tilraunareit-
unum og voru tekin án þess eg
vissi, en eflaust hafa þau verið af
einhverju bráðþroskaðasta af-
’ brigðinu.
I Rófnauppskeran var heldur
( meiri en undanfarin ár, en þó ekki
eins mikil og út leit fyrir í fyrstu.
Var það að kenna ofmiklum blað-
vexti og stöngulmyndun, er gerði
vart við sig s’iðari; hluta sumars.
Slik óáran gekk nú í sumar víða
um land. Margir ætla að fræinu
sé um að kenna, en sannanir hefi
eg fyrir, að svo er ekki. Hér í
Tilraunastöðinni var sáð mörgum
gulrófnafræstegundum frá ýmsum
stöðum, og var ekki hægt að gera
þeirra mun í þessu efni. Fræ, sem
reyndist vel i \fyrra og svo sáð
aftur i vor, fór á sömu leið. En
upp af samskonar fræi gætti
njólavaxtarins mjög mismunandi
m kið, eftir sáðtimanum og garö-
stæðinu. Miklu minni eða jafnvel
engar skemdir komu fram, þar
sem seint var plantað eða fræi
sáð: meiri njóli þar sem góð vaxt-
arskilyrði voru en í lélegum görð-
um. Liklegri ástæða ekki fnndin
en kuldamtr í vor með svo mikl-
um sumarhlýindum á eftir. Æitt-
um vér ekki að gefast upp við aö
rækta rófur, þótt svona færi að
þessu sinni. Það er ekki Iíklegt
að það komi fyrir aftur nú fyrst
um sinn.
Trjáræktinni hefir þetta ár orð-
itö hið hagfeldasta. Á nokkrum
reyniplöntum, þeim, er mest höfðu
vaxið í fyrra, kólu reyndar topp-
sprotamir í vor, en nú hafa þær
eftur fengið 12 þuml. til álnar-
langa sprota. Birki hefir viða
vaxið um 12 þuml. og alt upp í
20 þuml. Greni og fura 8—10
þuml., sum tré talsveri meira. í
vor var miklu af plöntum plantað
út úr fræbeðum, og fer þvi félag-
ið smátt og smátt að komast úr
þeirri plöntukreppu, er það hefir
verið í undanfarið.
Nokkrum nýjum trjátegundum
hefir verið sáð. Þar á meðal
nokkrum frá Canada og Alaska í
Ameríku. Hefir félag:ð fengið
gefins þaðan ýmiskonar fræteg-
undir frá félaga sínum Jóni Ein-
arssyni.
í vor var byrjað á tilraunum
með mismunandi undirbúning
jarðvegs fýrir trjárækt.
— Úr ársriti Ræktunarfélags
Norðurlands.
Frá Islandi.
Húsbruni á Húsavík.
Reykjavik 4. Febr.
Aðfaranótt síðastliðins föstudags
kviknaði i húsi sem Sunnuhvoll hét
á Húsavík nyrðra, og áttu þaö
bræður tve’r, Friögeir og Hjálmar
Magnússynir, og bjuggu þeir uppi
'1 húsinu, en þriðja fjölskyldan
niðri. Varð fólkiö niðri fyrst vart
við eldinn, en hann var þá oröinn
magnaður. Bjargaðist fólk:S út
um gluggana, alt nema Hjálmar og
sonur hans á þriðja ári. Hafði
stigi verið settur upp að gluggan-
um og farið inn að leita þeirra, en
þeir fundust ekki. En daginn eft-
ir fundust lík þeirra í rústunum og
hélt Hjálmar drengnum í fanginu.
Kona Hjálmars og tvö eldri börn
þeirra komust úr brunanum.
En sex af þeim sem björguðust,
eru sögð skaðbrend á höndum og
andliti.
Því sem næst engu varð bjargað
úr húsinu. Það hefði verið vátrygt,
en innanstokksmunirnir ekki.
Síðastliðna viku og fram yfir
helgi voru rosar og snjóveður.
Flóabáturinn tafðist frá póstferð í
3 daga. í gær og dag stilt veður
og frostlaust.
I gærmorgvin vildi það slys til á
vélbáti, sem Matth. Þóröarson útg-
maður á og var á leið héðan til
Sandgerðis, að vélstjórinn féll fyr-
ir borð og druknaöi. Hann hét
Jónas Benónísson. Þetta var í
ofsaroki og ókyrrum sjó.
Raflýsing er nú í undirbúningi f
fsaf jarðarkaupstað.
f rokveðrinu í siðastl. viku, þeg-
ar Grandagarðs-virkið skemdist
hér, urðu skaðar á Akranesi af
sjógangi. Sjógarður framan við
verzlunarhús Böðv. Þorvaldssonar
kaupm. brotnaði og bryggja skemd-
ist töluvert i Steinsvör. Einnig
urðu nokkrar skemdir á bátum.
Stykkishólms bryggjan hafði
skemst töluvert í stórviðri nýlega.
T 1 útlanda fara nú með “Ster-
ling” H. Daníelsson yfirdómari og
Sv. Björnsson lögfr. til þess að
semja um smíöar á skipum Eim-
skipafélagsins.
—Lögrétta.
Reykjavik 5. Febr.
Símað frá Vestmannaeyjum :
f gærmorgun réru um 50 mótor-
bátar til fiskjar úr eyjunum, í
heldur vondu veðri. Einn bátur-
inn, “Geys’r”, fékk línuna í skrúf-
una og varð því að fara þegar til
lands á seglum. Þar var þá ann-
ar bátur við bryggjuna, “ísak”,
hafði hann ekki róið um daginn,
þar sem vélin var í ólagi, en var
nú nýbúið að gera viö hana. Var
þessi bátur þá fenginn t:l að fara
út að ná því, sem eftir var af lín-
unni. Fóru á honum S gurður
Jónsson frá Fagurhóli, sem var
formaður á Geysi, Guðmundur
Guðmundsson frá Bygðarhóli, for-
maSify á ísak, Daníel Bjamason
vélstjóri að austan, Axel Þorkels-
son og Sveinbjörn Kristjánsson
báðir úr Reykjavík. Báturinn kom
ekki aftur fram, en ekki vita menn
hversu hefir að borið um slysið.
ætla sumir að hann hafi fengið
“landfall”, sem kallað er ^brotsjó^
út við sker það, er Bessi heitir, en
aðrir að hann hafi fyllt við hnuna,
en þá hafa menn venjulega opna
lestma og er þá altaf hætt við að
fylli, ef á gefur verulega.
Mennirnir sem fórust voru allir
einhleypir, nema Sigurður Jóns-
son, hann lætur eftir sig konu og
þrjú böm.
, —Vísir.
Reykjavík 14. Jan.
Úr Flatey í Breiðafirði er skrif-
að 3. þ. m.:
“1 vetur hafa óvenjumargir dá-
ið hér á eynni, þar á rqeðal háöldr-
uð kona, Salbjörg að nafni, 100
ára; var ekkja Jóhanns bónda
Eyólfssonar, bróður séra Svein-
bjarnar heitins í Árnesi og Hafliða
heitms í Svefneyjum. Hún hafði
fóstrað Steingrím heitinn Thor-
steinsson skáld í barnæsku hans og
skrifaði hann henni við og við og
sendi henni myndir af sér”.
Hæst útsvar á Akureyri er 1250
kr. Það greiðir Kaupfélag Eyfirð-
inga, sem Hallgrímur Kristinsson
veitir forstöðu. Næst eru Höepfn-
ers verzlun með 1175 kr., D. D.
P. A. með 620 kr., Havsteen á
Oddeyri með 600 kr., Gránufélag-
ið meö 500 kr., en aðrir minna.
alls er jafnað niður nál. 18.700 kr.
á 887 gjaldendur.
Á Seyð'sfirði er jafnað niöur
þetta ár 10 þús. kr. á 262 gjald-
endur. Þessir greiða hæst: Hluta-
félagið Framtíðin 1600 kr., St. Th.
Jónsson og Þórarinn Guömunds-
son kaupmenn 1100 kr., Fr.
Wathne kaupm. 500 kr., Gránufé-
lagiö og Imsland kaupm. 375 kr.,
Jóhannes bæjarfógeti 275 kr. o.
s. frv.
Á Ormstöðum eystra bar það
slys til nýlega, að vinnumaður
bóndans Guðjón draknaði niður
um ís. Var sjálfur á skautum og
ók á undan feér sleöa með 4 börn-
um i. Brast ísinn og tell maður-
inn og e'tt bamanna niöur um ís-
inn. Barninu varð bjargað, en
Guðjóni ekki.
Sagt er að bifreiöum hér f bæ
fjölgi svo í vor, að yfir tylftina
komist, verði 14 alls.
Verður þá nauðsynlegt — og
raunar þegar orðiö það — að
semja reglugerð um ökuhraða
þe:rra á götum bæjarins, og eink-
um þó tryggja það, að þeir einir
stýri þeim, er vit hafa á þeim og
reynslu nokkra. Erlendis verða
bifreiðarstjórar að ganga undir
próf, áður en þeir fá að stýra
vögnunum. Þeirri tilhögun þarf
og að koma á hér.
Erlingur Pálsson sundkappi fór
til Englands á Snorra goða í fyrra-
dag, til að framast í íþróttum.
—ísafold.
-áhöld
Þessi mynd sýnir
Milwaukee
steínsteypu
Vjel
Spyrjið eftir verði
THE STUART MACHINERY
COMPANY LIMITED.
764 Main St., - - Winniptg, Man
Hlutir keyptir
í ísl. eimskipafélaginu vestanhafs.
Áður auglýst........kr. 166.575
Gísli Jónsson, Narrows .. kr. 50
Indriði Benediktsson Spana-
way Wash............... 100
Thorsteinn G. Isdal, Clover-
dale B. C.............. 100
Aöalbjörn Guðmundsson,
Prince Rupert.......... 150
Arni Eggertsson, Wpg . . 5000
fÁður lofað kr. 10.000).
Rev. F. J. Bergman Wpg .. 1000
Samtals kr. 172.925
Forlög Tibets.
í fána Kínaveldis eru fimm
feldir og merkir einn þeirra Tibet,
en nú mun ekki langt þess að bíða,
að sá feldur verði úr merkinu tek-
inn og Tibet skiljj við Kína. Árið
1904 þótti Bretum sem Rússar
hefðu of mikil völd í því foma höf-
uðbóli Búdda-dýrkunarmnar, og
sendu þá hersveit til Lhasa, höf-
uðborgar landsins, en sveit þeirri
stýrði ofurstinn Younghusband.
Hann tók höfuðborgina á sitt vald,
og höfðu þar ekki hvítir menn
komið áður, svo sögur vitni, nema
einn missionari og tveir kaupmenn-
enda var öllum bannað þar að
koma, utan rétttrúuöum, og lögð
við dauðahegning; svo mikla helgi
höfðu Búddatrúar menn á þessum
stað. Þar sat æzti prestur þeirra,
Dalai Lama, er þeir halda fyrir
heilagan mann, telja hann vera
Búdda endurborinn; þessi páfi
Búdda-manna flýði, tór flakkandi
um Mongoliu en lenti loksins í
Peking. Ekki fékk hann þar þær
viðtökur, sem honum þóttu sér
hæfa og hélt heimleiðis, en Kína-
stjóm sendi herlið með honum að
gæta laga. Eftir nokkurn tíma
gerðust greinar milli hans og hins
kínverska herstjóra og flýði þá
Dalai Lama 1 annað sinn, i þetta
skifti á náðir Breta og hefir siðan
hafst við undir áraburði þeirra á
Indlandi.
Þegar það kom í ljós, að Rússar
ætluðu sér yfirráð í Mongoliu, af-
réðu Bretar að 'láta ekki Tibet
fara sömu leið, heldur leggja
hramminn yfir það, þó gagnstætt
væri gildandi samningum. Um
þetta hafa samningar staðið að
undanfömu milli Indlandsstjómar,
Kínverja og fulltrúa Tibetmanna
og hefir loks gengið saman með
þeim, að sögn. Tibet á að vera að
fullu frjálst undan yfirráðum
Kínaveldis, en Indlands stjórn skaf
ráða landamærum og öðram á-
greinings málum milli landanna;
Innanlands málum í Tibet skal
stjórnað með eftirliti fulltrúa er
hin brezka stjórn Indlands ræður.
Afleiðingin veröur vitanlega sú
að Tibet verður í hendi Breta,
álíka og önnur lönd, er stórþjóðim-
ar hafa tekið undir sinn vemdar
væng fyr og síðar.
E
D
D
Y
S
]>
V
o
T
T
B
O
R
Ð
Eddy’s þvottaborð
hafa sérstakt lag, sem gerir
þvottinn yðar mjög auðveldan.
Og þau er rétt eins gótS og Eddy's eldspitur.
Spara tima
og hæta skap.
E
D
D
Y
S
1>
V
o
T
T
A
B
O
R
Ð
Fara vel meÖ
hendur og föt.
YFIRFRAKKAR
með niðursettu verði-'
Vanal. $25. fyrir $17.50
“ 43. ‘‘ 32.50
“ 30. “ 20.50
“ 22. \“ 15.50
YFIRHAFNIR
með Persian Lamb kraga
Chamois fóðri, Nr. I Melton
Vanalega $60.(0 fyrir $38.50
“ 40.00 “ $25.50
Venjiö yður á að koma til
WHITE & MANAHAN
500 Main Street,
lltlbúsverzlun I Kenora
WINNIPEG
THOS, JACKSON & SON
BYGGINGAEFNI
ÁÐALSKRIFSTOFA og birgSaból 370 COLONY ST
TALS. Sherbr. 62 og 64 WINNIPEG, MAN.
GEYMSLUPLÁSS:
Vesturbœnum: horni Ellice og Wall St., Fón Sherb. 63
í Elmwood: horni Gordon og Levis, Fón, St. John 498
I Ft. Rouge: Pembina Highway og Scotland,
Vér seljum þessi efni íbyggingar:
Múrstein, eement, malað grjót,
(allar stærð.), eldtraustan murstein,
og eldleir, Flue Lining, möl, Hard-
wall Plaster, hár, Keene’s Cement,
hvítt og grátt kalk, hydrated kalk,
viðar og málm lath, gyps, Rubble
stone, Sand, ræsapípur, weeping
drain Tile, ÝVood Fibre Plastur,
Einnig Mortar, rautt, gult, brúnt,
standard og double strength black.
FURNITURE
U i L 4 % t * * f % <• % \
OVERLAND
J. J. Swanson & Co.
Verzla meÖ fasteignir. Sjá um
leigu ^ húsum. Annast lán og
eldsátyrgðir o. fl.
1 ALBERT/\ BLCCK- Fcrtege & Carry
Phone Main 2597
— Varningsmaður, ættaður frá
Sýrlandi, fór um rræð poka sinn og
seldi smávaming í Manitoba, að
sinna landsmanna sið. Hann fanst
rotaður einn daginn, á víðavangi,
og líkið rænt. Misindismaður, hér-
lendur, er tekinn fyrir, og dæmdur
sannitr að sökinni, af kviðdómi.
Gripa- og Korn-hlöðu m
ENDIST LENGST
Kaupið Lögberg og
fylgist með tímanum
Piltar, hér er tæki-
færið
Kaup goldiö meCan þér læriö rakara
i8n I Moler skólum. Vér kennum rak-
ara it5n til fullnustu 4 tveim míinuSum.
Stöður útvegaðar að loknu n4mi, ella
geta menn sett upp rakstofur fyrir
sig sj41fa. Vér getum bent yður 4
vænlega staði. Mikil eftirspurn eftir
rökurum, sem hafa útskrifast fr4
Moler skólum. Varið yður 4 eftlr-
hermum. Komið eða skrifið eftir
nýjum catalogue. Gætið að nafninu
Moler, 4 horni King St. og Pacific
Ave., Winnipeg, eða útibúum I 1709
Road St., Regina, og 230 Simpson St,
Fort William, Ont.
Þér fáið yður rakaðan og kliptan
frítt upp á lofti frá kl. 9 f. h. til I e.b
—Yfirmaður í lögregluliði New
York borgar, Charles Becker, sá
er dæmdur var fyrir morð á á-
hættuspilaranum Rosenthal, hefir
unnið mál sitt fyrir yfirrétti., Þar
var undirdómurinn ónýttur vegna
þess að rannsóknardómarinn hafði
sýnt hlutdrægni undir rekstri máls-
ins, og ekki verið óvilhallur.