Lögberg - 05.03.1914, Qupperneq 8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN
5. MARZ 1914.
Notið tækifœrið.
Allir þeir sem kaupa
vörur í búð minni eftir 1.
Janúar fyrir peninga út í
hönd fá
5 prct.
afslátt af dollarnum
B. ÁRNASON,
Sargent og Victor. St.
Talsimi: Shcrbrooke 112 0
Ur bænum
Tvö herbergi til leigu að 473 Tor-
onto stræti.
Herra Sveinn kaupmaöur Thor-
waldssón við Icelandic River, hefir
veriö útnefndur til þingmensku af
hálfu conservatíva í Gimli kjördæmi.
Meö Marzbyrjun hlýnaöi í veöri
og hafa verið bjartviöri síöustu daga,
sólbráö um daga og nokkur nætur-
frost.
Bænafundir veröa í sunnudags
skólasal Fyrstu lút. kirkju meðan á
föstunni stendur og á eftir þeim
bandalagsfundir eins og venja hefir
verið til.
Herra C. J. Vopnfjörð, málari, að
666 Maryland stræti, fór í ferðalag
eftir helgina, til ýmsra staöa í Sas-
katchewan, og ætlar aö vera burtu
um þriggja vikna tíma.
Herra Einar Páll Jónsson er ný-
kominn vestan frá Wynyard eftir
þriggja mánaða dvöl þar. Vetur
einmuna góður þar vestra, nema
frosthart síöastliöinn mánuö eins og
hér. Almenn heilbrigöi og vellíðan.
Einar ætlar aö dvelja hér í borginni
um tíma.
Næsta laugardagskveld, þann 7. þ.
m., verður Stúdentafélagsfundur hald-
inn í Únítara salnum kl. 8 síðdegis.
Meðlimir eru beönir að fjölmenna.
Fólk er beðið að athuga vel aug-
lýsinguna um leikritið Lénharður
fógeti, sem birtist á öðrum stað
þessu blaði. Allir, sem hafa lesið
leikritið, munu þess fullvísir, að' það
sé skemtilegt og fari vel á leiksviði.
Þann dóm fékk það líka einróma í
Reykjavíkurblöðunum, er það var
leikið í Reykjavík í vetur. Enginn
inn Islendingur hér í bæ ætti að
sleppa tækifærinu að sjá það. I
næsta blaði verða birt ummæli nokk-
urra Reykjavíkurblaðanna um leik-
inn.
THORLACIUS & HANSON
mála hús og skreyta
Leggja veggjapappír, lita veggi (kalsomine) og gera
alskonar fínni málningu o. fl.
Tals. Main 4984 39 Martha St. Winnipeg
Stúkan Hekla er að undirbúa
skemtisamkomu, sem verður haldin
föstudagskveldið 13. þ.m. í fundarsal
stúkunnar. Til samkomu þessarar
verður mjög vel vandað. Séra Fr.
Friðiksson og hr. Jóhann G. Jó-
hannsson flytja ræður, einnig verð-
ur söngur, hljóðfærasláttur, gaman-
leikur, dans o.fl. á skemtiskránni, er
verður auglýst í næsta blaði.
Forstöðunefndin.
Þann 20. Jan. s.l. lézt Jón Einars-
son, fult áttræður að aldri, til heim-
ilis hjá Jóni bónda Pálssyni við ís-
lendingafljót. Jón var Borgfirðing-
ur að ætt, en mun hafa verið í Hafn-
arfirði síðustu árin sem hann var á
íslandi. Sonarsonur Jóns er Tímó-
theus Böðvarsson bóndi í Fögruhlíð
í Geysisbygð. Böðvar flutti aldrei
vestur. Hann fórst á fiskiskipinu
“Geir” í fyrra, svo og sonur hans
einn og tengdasonur.—Jarðarför Jóns
fór fram 28. Jan. Séra Carl J. Ólson
jarðsöng.
í kvæði Mr. Markússonar eftir
Pál heitinn Sigfússon er prentvilla á
einum stað. Þar stendur daganna
fyrir stundanna í vísuorðinu: Þú
starfaðir dyggur á stundanna braut.
Miss Guðrún Þórarinsdóttir, sem
um mörg ár hefir unnið í brauðsölu-
búð hr. G. P. Thordarsonar, fór í
gær (miðv.d.J áleiðis vestur að
Kyrrahafi. Hún ætlar að dvelja þar
framvegis, ef henni geðjast að lofts-
lagi og öðru þar vestra. Hún mun
ætla til Seattle, þar sem hún á
frændfólk og vini.
GOTT HÚS fæst nú keypt á Agnes
St. norðarlega á mjög sanngjörnu
verði. Húsið er hlýtt; 3 rúmgóð
svefnherbergi; baðstofa og setuklefi í
tvennu lagi; anddyri við inngang og
björt dagstofa; gott ‘furnace’ og góð-
ur órakur kjallari; afturhluti lóðar
inngirtur; fallegt tré framan við hús-
ið. Nánari upplýsingar gefur S. Sig-
urjónsson að 689 Agnes St.
Aðfaranótt síðastliðins þriðjudags
andaðist á Grace Hospital Mrs.
Jóhanna Eggertsson, kona Ólafs
Eggertssonar hér í bæ. Banameinið
var lífhimnubólga eftir nýafstaðinn
barnsburð. Jóhanna sál. var ein af
merkustu yngri konum íslenzkum héí
í borg, og missir hennar ekkjumann-
inum þungur harmur og öllum kunn-
,ugum er hið sviplega fráfall harm-
tíðindi. Útfararguðsþjónusta byrj-
ar kl. iol/2 á föstudagsmorgun frá
Fyrstu lút. kirkju. Þaðan fer lík-
fylgdin til Selkirk með sporvagni frá
St. John, Hin látna verður jarð-
sungin í grafreit lúterska safnaðar-
ins í Selkirk.
1850 að ofan-nefndum bæ, Bræðra-
brekku. Foreldrar hans voru þau
Jón Jóhannesson og Guðrún Magn-
úsdóttir, valinkunn hjón, er þar
bjuggu. Hjá þeim var hann þar-
til hann tók við búmu, er hann 8.
Júlí 1874, gekk að eiga eftirlifandi
ekkju sína Ingveldi, dóttur Samú-
els Eiríkssonar frá Márskeldu í
Dalasýslu og Guðlaugar Brands-
dóttur, konu hans. Árið 1884
fluttust þau svo þaðan vestur um
haf og bjuggu einlægt síðan í
Gardarbygð, eins og áðúr er sagt.
Fjögra barna varð þeim . auðið.
Tveir drengir dóu komungir, ann-
ar á íslandi hinn hér vestra. Tveir
komust til fullorðins ára, Jón og
Samúel.. Dó Jón fyrir 6 árum frá
konu og 5 komungum börnum. En
Samúel hefir verið heima hjá for-
eldrum sinum, ásamt fóstursyni
þeirra Jóni Hjartarsyni, sem er
systursonur Odds heitins. — Þrjú
ungmenni önnur ólust upp hjá
þeim hjónum fram efir fermingu,
og nutu kærleiksríkrar foreldra-
umhyggju, eins og börn þeirra
væru. — Af systkinum Odds sál.
eru aðeins tvær systur á lifi, Ólöf,
gift kona á íslandi og Elizabet,
kona Alberts Samúelssonar í
Gardarbygð.
Oddur sál. var yfirlætislaus
maður, fáskiftinn og orðfár, dag.-
farsgóður í allri umgengni og al-
úðlegur í framkomu. Naut hann
sín ætíð bezt heimafyrir, enda
auðnaðist honum rrœð hjálp sinnar
•góðu konu að gera heimilið að
sannri fyrirmynd. Frá frumbýl-
ingsárunum í fátækt til hinna síð*-
ustu ára, þegar hann var einn af
efnuðustu mönnum bygðarinnar,
bar heimilið hin sömu einkenni
gestrisni, hjálpsemi, vinsældar og
sóma. Eru þeir margir, sem nutu
þeirra hjóna að í erfiðleikum, og
um góðverk þeirra hin mörgu má
óhætt segjfe, <að blýleikurinn og
ástúðin var ætfð höfðingslundinni
samfara. Trygðin Hka frábær.
Enda var það eitt einkenni Odds
sál. að vera fastur i lund og trúr
sannfæring sinni. Opinberan þátt
í félagsstörfum tók hann lítinn, en
vildi alt gott styðja með ráð og
dáð. Trúmaður var hann eindreg-
inn, og gaf með kyrlátu lífi sínu
fagran vitnisburð um gildi krist-
innar trúar.
Hann va.r jarðsunginn þann 30.
Janúar að viðstöddu h<‘nu mesta
fjölmenni. Auk safnaðarprests
hins framliðna, séra K. K. Ólafs-
sonar, töluðu við útförina séra
Magnús Jónsson og séra Fr. Frið-
riksson. frá REykjavík.
K. K. ö.
Bjarni Th. Johnson, B. A.
Cand. Jur.
Fasteignasala. Innheimta. Vátrygging.
Umboösmaður beztu lánsfélaga í
Canada.
Wyny ^ rd, 8ask.
Paul Johnston
Real Estate
&
Financial Broker
S12-314 Nanton Bulldlng
A hornl Maln og Portage.
Talsími: Maln 32*
Mr. og Mrs. Stefán A. Johnson,
('prentarij, hafa flutt frá 613
Bannatyne Ave. til 884 Ingersoll
St. Þetta eru/ þeir beðnir að at-
huga, sem hafa bréfaviðskifti við
ofangreind hjón.
Hátíðarguðsþjónusta til minn-
ingar um þriggja alda afmæli Hall-
grims Péurssonar verðúr haldin í
Wynyard sunnudaginn 15. Marz.
Sú guðsþjónusta byrjar kl. 2. e. h.
H. Sigmar.
ÞAKKARORÐ.
Öllum þeim, sem sýndu mér hjálp
og hluttekning í hinum langa og
stranga sjúkleik mannsins míns sál-
uga/ bæði með því að hjálpa til að
vaka yfir honum, vera viðstaddir.
jarðarför hans og prýða líkkistuna
blómum, votta eg mínar beztu þakk-
ir; sérstaklega minnist eg þess, að
konur í djáknanefnd Fyrsta lút. safn-;
aðar vitjuðu hans bæði á sjúkrahús-
inu og heima. Ungra stúlkna félag-^
ið “Dorkas”, Mr. B. Finnson og fleiri
er ekki vilja auglýsa nöfn sín, hjálp-
uðu mér með peningagjöfum. öllu |
þessu góða fólki bið eg gjafarann
allra góðra hluta að líkna þegar því |
mest á liggur.
Winnipeg, 752 Beverley St. 2.
Elín Brandson.
lEnharður fógeti
verður leikinn í Good Templ-
arasalnum Miðvikudags og
Fimtudagskveldið 18. og 19.
Marz.
Skemtilegur og fræðandi leikur, ágæt tjöld, fagrir 0g
sjaldséðir búningar.
Verð á sætum verður auglýst í næsta blaði.
31
SNOWDRIFT
BRAUÐ
er vel bakað brauð, alveg
eins 1 miðju ein* og að utan
Elr létt í sér og bragðgott,
og kemur það til af því
að það er búið til í beztu
vélum og bakað 1 beztu of< -
um.
5c brauðið
TheSpeirs-Parnell
Haking Co. Ltd.
Pbone Garry 2345-2346
Pappir vafin utan um Kvert brauð
Hallur Hallsson, 75 ára að aldri, |
lézt að Hóli við íslendingafljót þ. 13. j
Feb. sl 1. Bjó áður í Réttarholti í'
Skagafirði. Fluttist vestur um haf
1883. Bjó þá fyrst á Flugustöðum í j
Breiðuvík, en síðan á Björk í Árnes-
bygð. Þar bjó hann til dauðadags. |
Hallur var þrígiftur. Fyrsta kona j
hans var Guðrún Bjamadóttir. j
Þeirra dóttir Lilja, kona Þorsteinsj
Eyjólfssonar á Hóli; hjá þeim varj
Hallur sál. staddur, þegar hann lagð- j
ist banaleguna. Önnur kona Halls
var Jórunn Jóhannesdóttir. Þeirra
synir Jóhannes, heima hjá föður sín-j
um, og Hallur, býr á Bjarkarvöllum j
við ísl.fljót, tengdasonur Hálfdánar
Sigmundssonar er þar býr. Þriðja
kona Halls er Lilja Lárusdóttir. Lif-|
ir hún mann sin ásamt fimm börnum j
þeirra, sem öll eru uppkomin. Elzt
þeirra er Guðrún, gift Axel Melsteð,
bónda í Árnesbygð; þá Vilhjálmur,
Valdimar, Ólöf Jórunn og Anna Sig-
ríður, öll í föðurgarði. Dóttir þeirra
var og Oddný Lára, uppeldisdóttir
O. G. Akranes. Hún lézt 5. Marzj
1909, tæplega 18 ára, úr brjósttær- ^
mgu, til mikils harms foreldrum,
fósturforeldrum (sem þá voru bæði
á lífij og öðrum vinum.—Hallur var
maður hægur, yfirlætislaus, alvöru-
gefinn og vandaður. Jarðarför hans
fór fram þ. 24. Feb. Séra Jóhann
Bjarnason jarðsöng.
ÆIIMINMNG
Sunnudaginn þann 25. Janúar
síðastl. kl. 10 að morgninum, and-
aðist að heimili sínu í Gardarbygð
í Norður Dakota, einn mesti ágæt-
ismaður og búhöldur sveitarinnar,
Oddur Jónsson frá Bræðrabrekku
gamall. í nærfelt þrjá tugi ára var
hann búinn að eiga heima í bygð-
inn<‘, njóta þar almennrar hylli og
virðingar, og var öllum harmdauði,
er hann þektu.
Oddur sál. var fæddur 25. Sept.
Þegar þér kaupið Royal Crown Sápu
þá fáið þér góða, sápu fyrir utan premiur og Royal Crown
Premiur ern eftirsóknarverðar. Þær eru allar gæðamikl-
ar og vísar að falla yður vel í geð. Látið ekki bregðast að
geyma Royal Crown Coupons til þess að eignast premi-
urnar ágætu.
Hér koma myndir af nokkrum premium. ,
111
Budda úr bezta leðrl, meS öll-
um nýjustu sniöum. Skinnfóðr-
aöar og smá budda 1 hverri. —
Ókeypis fyrir 600 R. C. sápu um-
bútSir.
No. 400—ódýr bursti en, rubber-
set—meö tréskaftl. Gefins fyrir
100 R. C. sápu umbúöir.
“Rubberset’
Rakburstar,
Hvert hár
sett I sterkt
togleöur, —
einsog nafn-
iö "rubber-
set’’ bendir
til.— Hárin
falla aldrei
út. Burst-
arnir batna
meö aldrin-
um. Nafnið
á burstun-
um er á-
byrgö fyrir
þvi.
No. 222—
badger hár,
fögru bein
handfangi.
Fæst gefins
fyrir 300 R.
Crown sápu umbúöir.
No. 49—vanaleg hár, fest í
iogleöur 1 laglegu handfangi úr
tré, gefins fyrir 200 Royal
Crown sápu umbúðir.
Matreiðslubók — Góð bók
um matreiðslu, sparsemi á
heimilum, borðsliði, hollustu
i heimilum, etc. í henni eru
2.000 fyrirsagnir, á 600 blað-
síðum. Prentuð á góðan
papplr, vel innbundin I hvttan
oltudúk. 1 stóru átta blaða
broti. Stærð 7%xl0 þuml.
Fæst gefins fyrlr 176 Royal
Crown sápu umbúðir eða 50c.
óg 25 umbúðir. Burðargj. 25c.
Barnabolli No. 03 — Grafinn, gulli
lagður, með þykkri húð. Stórvænn
gripur. Gefins fyrir 125 Royal Crown
umbúðir. Burðargjald lOc.
I
*»
Næla úr skíru
silfri— Tvlsett
hjarta. ókeypls
fyrtr 100 R. C.
sápu umbúðir.
Sendið eftir ókeypis skrá yfir premiur. Sendið strax
IÍ19 Royal Crown Soaps, Ltd.
PREMIUM DEP’T H.
WINNIPEG, MAN.
ðbe Buö$on'$ Bay Öbmpatiu
IMCORFORATKD lt?0 — *
HIRIKRT K. BUIIIIDOK, fTORKS COMHISSIONKR
Það sem karlmenn aldrei eiga nóg af -— sokkaplögg
Svo að þér ekki gleymið að “The Bay” hefir fengið orð á sig fyrir gæði og þol, þá
skulum vér geta þriggja hinna vinsælustu tegunda, er ganga mjög ört út.
Kartmanna Scotch Heather —
Prjónaðlr úr alullarbandi—engri
annari tegund líkir að þoli. Sér-
stakt verð 3 pör á...... $1.00
Pennans’ Extra þykkir ullar-
sokkar—vei ofnir og mjög þægi-
legir alla tíð fyrir viðkvæman
fót. Sérstakt verð 4 pör. . $1.00
Penman’s gráu UHarsokkar úr
gildu bandi — þeir sokkar eru
vinsælir af þeim mönnum, sem
þurfa mikið áð ganga—5 pör nú
seld fyrir...........$1.00
Vér erum til í á hverjum degi, að sýna yður NÝJU FÖTIN
MED NÝJASTA SNIDI—SEM ALLIR ERU ÁNÆGDÍR MED
Yður skulu verða sýnd nýju fötin án allra látaláta og án þess þér þurfið að kaupa
nokkurn hlut. Þér skuluð líta svo á, að yður sé boðið í heimsókn til að skoða hvað
fremstu skraddarar í Canada og Ameríku hafa sent oss þetta sinni.
Mjög mikið af nýjum Tweeds, nýjum Worsteds og nýjum Navy Blue Serges nú til-
húið.
F'xrr'lY' ^ 1 (S Fyrir Þai5 ver® sýnum vér óvenjulega fögur klæði, búin til úr
1 yril 'p I Vy beztu Tweeds, gráum og brúnleitum. Frágangur og fegurð
þessara fata er frábær.
Fxrviv' <t?n 00 Úr tweeds og Worsteds, með litum sem eru óvanalegir og þokka-
1 y 111 CpZiVy«V_/V_/ legir. Frágangurinn er alveg óvenjulegur $20.00 klæðnaði.
Herðar og uppslög eru vel löguð. Treyja einhnept, semilEnglish snið.
W * d* O C 00 Enginn hörgull á mismunandi fltkum t þessu samsafni, bæði áð
r yril nt, áferð og sniðum. Herðar og brjóst uppslög eru sérstakiega
fallega löguð og hfa þeim, sem prúðbúnir vilja vera.
TIL KARLMANNA SEM HAFA ÆTLAÐ SÉR AÐ KAUPA
NÝJA 0G GÓÐA YFIRHÖFN I MARZ
Niðursett verð er á hinum útvöldustu o g beztu yfirhöfnum, sem í búðinni finnast.
Yfirhafnir sem hafa gengið einna bezt út á þessu misseri.
Efnið í þeim eru hin sterku og þolnu skozku Tweeds, Cheviots og ensku kápuefni;
tvíhneptar með breiðum kraga og belti á baki. $25.00 og $27.50 er upphaflegi prísinn
á þeim. Veljið úr þá yfirhöfn sem yður líkar jiessa viku á....................$12.95
Fallegar húur fyrir karl-
menn
Nýkomnar, fallega sniðnar og einkenni-
legar. piö munuð sjá að hver húa er sniðin
með vissu lögulagi og þvi fallegu; fóður úr
silki og svitagjörðin úr egta rússnesku kálf-
skinni — húur, sem ætlaðar eru vel búnum
og vandlátum mönnum.
pær hafa orðiö vinsæiar siöustu hvassviðr-
isdagana.
Margvíslegir litir fyrir .hvern smekk —
bæðl tburðarlausar og litsterkar. Hugsið til
þeirra hjá—“The Bay”—Verð $1.00 til $1.50
Látið oss endurnýja yð-
ar gömlu húsmuni
Margir gamlir liúsmunir eru svo útlítandi,
að mönnum liggur við að kasta þeim burt, þó
ekki þurfi annað til að gera þá nýja heldur
en að gera við þá. Vér endnrnýjuin brúkað-
an húsbúnað, skiftum um úklæði og fægjum
umgerðia og spörum yður peninga.
Vér liöfum margvíslegt efni í húsmuna á-
klæði. Silki á $2 til $5 yardið; tapestry á 75,
eent lil $3.50 yardið og miirg önnur. — Kom-
ist í samband við Drapery deildina, M. 3121.
Föstu-guBsþjónusta í Kandahar
miðvikudaginn n. Marz kl. 2. e. h.
Karlmenn óskast til að læra að
gera við, laga, keyra og jafnvel
endumýja bifreiöar og gas drátt-
arvélar. Nemendur vinna í smá-
flokkum undir tilsögn þaulæföra
kennara, fá sömuleiðis leiSbeining
í að stjórna bifreiðum á götum
bæjarins. Læra verkin með því
að vinna þau, ekki fyrirsagnir af
bókum, heldur verkin eins og þau
eru unnin í smiðju og á þjóðveg-
um. Vér ábyrgjumst þér lærdóm
til að standast hvert stjórnarpróf.
Skrifið eða komið. Omar School
of Trades and Arts 447 Main St.
Winnipeg.
Athuga.
ÁBÝLISJÖRD, nálægt skóla,
pósthúsi og verzlunarstaÖ, fæst
leigð með góðum kjörum. Upp-
lýsingar gefur Gísli Jónsson (á
Laufhóli) Arnes P.O., Man.
FF F F ’l* 'J' ’þ <þ <|' >}' 'h <{< <L ^
Fáheyrt tilboð.
Til sölu þrjár og hálfa milu frá
Lundar, eina milu frá skóla, /2
sec. af góðu plóglandi, tuttugu
ekrur brotnar. Gefur 60 ton af
heyi. Góðar byggingar og góðir
brunnar, $300.00 virði af “fens-
ingum”. Uxa par, vagn, sláttuvél
og hrífa. Sex kýr sem bera allar
í vor og rjóma skilvinda. Alt þetta
fæst fyrir fjögur þúsund dollara.
Einn fjórði partur borgist út. Hitt
eftir samningum. Eitt heimilis-
réttar land má fá við hliðina á
þessum löndum. Eftir frekari
upplýsingum skrifa til
Chris Backman,
Lundar, Man.
Shaws
479 Notre Dame Av.
Stærzta. elzta og
bezt kynta verzlun
með brúkaða muni
í Vestur-Canada.
Alskonar fatnaður
keyptur og seldur
^ Sanngjarnt verö.
* Phone Garry 2 6 6 6
Xf+++++4+4+44+-f •f'f'f'f'f'f'f f f+jj
KENNARA vantar fyrir Norður-
Stjörnu skóla No. 1226, fyrir 6 mán-
uði, frá 15. Apríl til 15. Nóv. Sum-
arfrí yfir Ágústmán. Tilboðum, sem
tilgreina mentastig og kaup sem ósk-
að er eftir, verður veitt móttaka af
undirrituðum' til 1. Apríl næstk. —
Stony Hill, Man., 18. Eebr. 1914.
G. Johnson.
KENNARA vantar við Mary
Hill skóla Nr. 987. Kenslu tími
í 8 mánuði og byrjar 1. Apríl.
Umsækjendur tilgreini kaup,
mentastig, og æfingu sem kennari.
Tiiboð sendist undirrituðum.
S. Sigfusson.
Mary Hill P. O. Man
X Þegar VEIKINOI ganga ♦
!
hjá yður
þá erum vér reiðubúnir að láta yð-
ur hafa meðöl, bæði hrein og fersk.
Sérstaklega lætur 088 vel, að svara
meðölum út á lyfseðla.
Vér seljum Möller’s þorskalýsi.
:
♦
♦
+
t
t
+
+
f+4444444444'l’MrM'4'í'-M'444'i'4
E. J. SKJOLD, Druggist
Tals. C. 4368 Cor. Wellington & Simcoe
KENNARA vantar fyrir Vestri
skóla No. 1669, frá 15. Marz til
15. Júní þ. á. Verður að hafa
mentastig sem mentamála deild
fylkisins gerir sig ánægða með.
Tiltaki kaup og æfingu. Tilboð
tekin til fyrsta Marz næstkomandi.
Framnes, 2. Febrúar 1914.
G. M. BVöndal.
KENNARA vantar fyrir Wall-
halla S. D. No. 2062, frá fyrsta
April til síðasta Oktober 1914.
Umsækjendur tiltaki kaup, menta-
stig, kensluæfing og hvort þeir
geti gefið uppfræðslu í söng.
August Lindal, Sec. Treas.
Holar P. O. Sask.
The King George
TAILORING CO.
Beztu skraddarar og loðskinnasalar. Lita, hreinsa og
pressa, gera við og breyta fatnaði.
Bezta fataefni. Nýjasta tízka
Komiðog skoðið hin nýju fataefni vor.
866 Sherbrooke St. Fón G. 2220
WINNIPEG
COUPON
King Ceorge Tailoring Co. tekur þennan Coupon gildan
sem $5.00 borgun upp í alfatnað, allan Febrúar mánuð.
236 King Street,
W’peg. SarBr'y2590
J. Henderson & Co.
Eina ísl. sklnnavöru búðin í Winnipeg
Vér kaupum og verzlum meC húölr og gærur og allar sortir af dýra-
skinnum, einnig kaupum vér ull og Seneca Root og margt fleira. Borgum
hæsta verð. Fljét afgreiösla.
KENNARA vantar við Nordra
skóla nr. 1047 Wynyard Sask.
Kenslutími 8 mánuðir, frá 1. Apr.
jef kennari fæst svo snemma, 1.
Maí að öðrum kosti. Umsækjandi
tilgreini mentastig og kaup
S. B. Johnson, Sec. Treas.
KENNARA vantar fyrir Stone
Lake skóla nr. 1371, frá 1. Apr.
til j. Nóv. Sumarfrí tvær vikur í
Ágústmánuði. Umsækjandi til-
greini kaup, mentastig og æfingu
og sendi tilboð sin til
Chris Backman, Sec. Treas.
Lundar P. O., Man.
FLzESA í HÁRI
er leiður kvilli, ervitt að ná henni úr
hársverðinum, og samt, ef hún er ekki
tekin burt, þá
VELDUR HÚN HARLOSI
Það er ekki til neins að reyna að end-
urlífga dautt hár; hreinsið hársvörð-
inn og haldið honum hreinum, áður
en hárið fer að losna.
NYAL’S HIRSUTONE
er bezta meðal til að þakla hárinu í
fyrirtaks ástandi. Abyrgst, að hver
flaska reynist vel.
FRANKWHALEY
J3re0£ription 'Brnggtet
Phone Sherbr. 258 og 1130
Horni Sargent og Agnes St.