Lögberg - 25.06.1914, Page 1
27. ARGANGUR
WINNIPEG. MANITOBA, FIMTUDAGINN 25. JÚNÍ 1914
NÚMER 26
ILT
í AD STJDRNARSK1FTI VERDI
JUU n. k.
Símatala á nefndarstof-
um Th. H. Johnsons í
Mið-Winnipeg.
Aðal-Nefndarstofa:
(Vlain: 5356
•' 5357
“ 5358
Nefndarstofa á Notre Dame
(nálæg t Sherbrooke)
Oarry 2792
“ 2793
“ 2794-
Nefndarstofa á Logan Ave.
Garry 1 641
Til kjósenda í
Mið-Winnipeg.
Winnipeg 22. júni 1914.
K;eru herrar!
Eg leyfi mér aö ávarpa yöur fá-
einum orðum, viðvíkjandi pólitíska
ástandinu yfir höfuð; og sérstak-
lega í yðar eigin kjördæmi. Það
er ekki ætlun mín aö skrifa langt
mál, né fara út í smáatriði. Eg
ætla að revna að hafa ávarp mitt
stutt, en greinilegt .
Arið 1907 var kjórdæmið Vest-
ur-Winnipeg myndað með lögum.
Kjósendumir völdu mig við fylk-
iskosningarnar sama ár.
Mér var sýnt sama traust 1
kjördæminu. Hvernig mér
hefir tekist að vinna að mál-
um kjösenda í fjölmennasta kjör-
_dæmi iylkisins, sem þmgmaður
yðar; um Jtað verðið þér að dæma
sjálfir.
Hinn afar mikli vöxtur Winni-
pegborgar á árunum 1907—1914,
var óhjákvæmileg orsök þess, að
fulltrúum bæjarins á þingi varð
að fjölga.
Winnipegborg hefir þvi tveím
þingmönnum fleiri en aður var.
Þessir auka þingmenn hafa verið
gefnir Suður- og Norður-Winni-
peg. En samkvæmt sinni óvin-
veittu stefnu gagnvart yður, hefir
stjórnin synjað yður um hlutfalls-
lega eða sanngjarna þingmanna-
tölu frá yðar parti bæjarins. Þar
eru aðeins tveir fulltrúar, en fólks-
talan nálega helmingur allra
Winnipegbúa.
Eg hefi dregið athvgli að þess-
urn rangindum, bæði á þingi og
á opinberum fundurn. En stjórn-
in hélt fast við ósanngirni sína,
og tróð þannig á rétti yðar í þessu
efni.
Kjördæmið Vestur-Winnipeg
hefir verið afnumið, til þess að
þeir, sem völdin hafa, gætu komið
fram rangindum sínum ef mögu-
legt væri.
Iiið nýja kjördæmi, sem þér
hafið verið settir i, og fulltrúa-
réttur yðar, liafa verið sniðin og
löguð þannig af þessum sömu
mönnum, að þeir gæti sem bezt
komið fram ójöfnuði sinum gagn-
vart yður.
Hvcrnig lýst yður á þettaf
Þessi sameinuðu kjördæmi hafa
á almennu þingi boðið mér út-
nefningu sina, og eg hefi þegið
hana. Og nú kem eg til vðar og
beiðist sama styrktar og sama
trausts, sem Jiér hafið veitt mcr
að undanförnu.
Eftir þvi sem i minu valdi hef-
ir staðið, hefi eg reynt að vinna
hag kjósendum minum og kjör-
dæmi sameiginlega í þessi sjö ár,
sem eg hefi átt sæti á löggjafar-
þingi.
Winnipeg hefir á þeini tíma átt
marga harða skorpu við stjórnina
og löggjöfina. til þess að ná rétti
sinum og koma fram sanngjörn-
um lögum. Eg held mér sé óhætt
að fullyrða |>að, án þess að oflof
verði talið, að eg hefi 'aldrei legið
á liði minu í J>arfir kjördæmisins
eða bæjarins, þegar á þessum hríð-
um hefir staðið.
Mætti i þessu sambandi sem
dæmi' geta um afnám pess einok-
unar ákvæðis, sem heimilaði Raf-
magnsbrautafélaginu ótakmarkað
vald. Ennfremur mætti nefna hið
illræmda Reese frumvarp, sem felt
var 1912.
Eg hefi beitt kröftum mínum í
júnginu til þess að berjast á móti
hinni skaðsamlegu talsímastefnu
stjórnarinnar og hinni illræmdu
meðferð hennar á því máli. Það
er ekki nauðsynlegt fyrir mig að
fara út í það í þetta skifti. Hið
háa simagjald og ósanngjama,
minnir yður stöðugt á það.
Eg hefi aldrei láttð tækifæri ó-
notað, þegar um það hefir verið
að ræða, að fá betri lög og full-
komnari gæzlu þeirra laga, sem
vér höfum.
Leyfið mér að minnast örfáum
orðum á helztu umbætur, sem
reynt hefir verið að fá, og sem eg
te! mér heiöur að hafa stutt og
barist fyrir.
Fyrst. Skyldumentun og góð
kensla i enskri tungu í alþýðuskól-
um vorum. >
frar nœst. Tilraun til þess að
fá afnumin “Viðaukalög” Cold-
wells,
Og loksins, liinn ómótmælan-
lega rétt fólksins, til ]>e5s að því
sé leyft að segja álit sitt í öllum
1 stærri málum þegar það æskir, og
sanngjama hlýðni löggjafar-
innar við alþýðuviljann, þegar
liann hefir verið látinn J>annig í
ljósi.
Á ]>essum grundvelli ætti að
fjalla um öll opinber mál og ráða
þeim til lvkta. Og ef til vill engu
máli fremur en vínsölumálinu.
Fram á það hefir verið sýnt
hvað eftir annað, að sú stjóm, sem
þjóðin á nú að dæma, l>efir verið
frámunalega eyðslusöm og bruðl-
að út fé fólksins, þegar um tekj-
ur fylkisins var að ræða.
Stjórnin hefir verið fundin sek
um það að verja fé fólksins sér
til pólitísks hagnaðar. Hún hefir
varið almannafé til þess að halda
sjálfri hér við völd og brotið þann-
ig embættiseyð sinn.
Þegar stjómin reiknaði út kjör-
dæmaskiftinguna og fór með kjör-
dæmi yðar eins og skýrt hefir
verið frá, hafði hún fyrir augum
áhrif og hag vissra flokka, sem eru
undir vemd hennar, og sem hún
ætlast til að hjálpi sér til að halda
völdum við þessar kosningar, ef
hægt sé.
Á þinginu sem útnefndi mig,
vakti eg athygli almennings á
þessu atriði, sem engum getur
dulist, og lagði áherzlu á það. eins
skýrt og skorinort eins og eg gat, í
nafni kjósendanna í Winnipeg-
borg, að þess væri krafist að hinn
áðurnefndi flokkur, héldi sér og
áhrifum sínum frá kosningunum.
Annaðhvort hefir þessi áminn-
ing verið ónauðsynleg. eða hún
hefir verið tekin til greina af hin-
um betri hótelum í Mið-Winnipeg.
En ólifnaöarbæli, sem nefna sig
hóte!, þótt nafnið sé falskt, liafa
sýnt takmarkalausa hluttöku í
kosningabaráttunni. En eigendtir
og gestir hinna alræmdu klúbba
liafa þó látið sér annast tim þetta
og lagt þar fram krafta sina af
alefli.
Vissir þjónar stjórnarinnar hafa
unnið í félagi við verstu hótelin
og klúbbana i kosningabaráttunni
hingað til, og þátttaka þeirra i
skrásetningunni var skörnm og sví-
virðing landi og 1ýð.
Til allrar hamingju komst það
ttpp í tíma að þessir menn og þessi
félög, höfðu bundist samsæri til
þess að falsa borgarabréf í svo
stórum stíl að undrun sætir. Varð
þvt minni svikum komið að við
skrásetninguna. en þeir ætluðust til
þótt mikið væri að gert.
Hundruð af slæpingum og föls-
urum voru reknir til baka frá
skrásetningarstöðum af árvökrum
eftirlitsmönnum. Hundruð þeirra
komust samt á kjörskrá, þrátt fyr-
ir árvekni vorra manna.
Httndruð þeirra reyna undir
stjórn hinna verri hótela og klúbba
að hafa áhrif á kosningarnar, og
greiða atkvæði á móti yður.
Af ofangreindum ástæðum og
mörgum öðrum, leita eg til yðar
eftir atkvæðum yðar og óskiftum
áhrifum. Eg leita ekki til yðar sem
flokksmaður, ekki heldur leita eg
til neins sérstaks flokks kjósenda,
heldur i nafni heilbrigðrar skyn-
semi, leita eg til yðar sem manna,
er styðja viljið þau mál, er góðum
og samvizkusömum borgurum
sæmir að styðja.
Hver sem verða kann dómur
fainna virkilegu kjósenda, þá
beygi eg mig viljugur undir hann.
En eg mótmæli því harðlega, og
skal berjast gegn því„ að dóm-
greind borgaranna sé að engu gerð
með svikum og atkvæðafölsun.
Hcrra kjósandi, athugaðu þetta;
rannsakaðu sjálfur; aflaðu þér
sannana.
Þú vilt ekki kasta atkvæði þínu
og áhrifum á vogina. þar sem þú
veizt að hvorttveggja er eyðilagt
með svikum og spillingu. Takið
allir saman höndum. Menn og
lconur af öllum pólitískum flokk-
um; hvaða þjóðar sem þér eruð;
hvaða trúar sem þér eruð; hvaða
stöðu sem þér hafð. Látið þrjár
vikurnar næstu verða hreinsunar-
vikur Winnipegbæjar.
Að endingu skora eg á yður að
fvlkja yður sem einn maður væri
til styrktar sanriri þjóðstjórn. Eg
skora á yður að fylgja siðfágunar-
og umbótastefnu, ti! þess að réttur j
borgaranna megi festa rætur og
rok og regnfall svo mikið, að eng-
in dæmi eru til annars eins.
Vatnsflóðið varð svo mikið i bæj-
um, að göturnar urðu eins og
straumharðar ár, og hreif straum-
urinn með sér fjölda margt fólk,
sem sogðist niður í rennurnar
og stífluðust þær af dauðum
mannabúkum.
íslendingar í Winnipeg.
pnð er spursmálslaust að Thos. H.
Jolmson er lang-atkvæðamesti íslend-
formaðurinn, James Whitney, væri inKuiinii sem . nokkum .tíma .liefir
flokkurinn lofar samskonar bind-
indislöggjöf þar, eins og hann ger-
ir hér. Er talið alveg áreiðanlegt
að hann mundi vinna, ef stjómar-
15. p .m. var allsherjar presta-
]>ing haldið í Jerúsalem höllinni i
Vestminster kirkjunni í London,
til þess að ræða um alheimssam-
band kirkna í þá átt að vinna á
móti drykkjuskap og ósiðferði.
Canada.
Lögreglustjórinn i Kindersley.
James Brennan druknaði 16.
júní. Hann var að baða sig i
tjörn, fékk krampa og kafnaði.
Rannsóknin
reksturinn á
j land”, gengur seint og er flókin. j
verða * óhind raðu r og”Óhin7ranlegt I f™ skipsmanna kom með það
| fyrir retti, að skipið hafi ekki
j látið að stjórn; en þvi er ekki trú-
j að. Yfirmönnum skipsins ber
ekki saman i framburði sínum, og
ekki veikur, eða hefði verið að
undanförnu; haldið ab menn muni
veigra sér við að greiða atkvæði
gegn honum vegna meðaumkvun-
ar, og verði veikindin þannig til
þess að halda honum við völd.
Samt telja’ margir sigurinn vís-
an hinum, þvi hugir manna eru
óðum að snúast frá brennivíns-
valdinu þar eins og hér.
Fludsonsflóabrautinni miðar all-
vel áfram; verið að leggja stálið
og vinna að því mörg hundruð
manns. Er það talsverð hjálp
verkamönnum, því erfitt er að fá
1 j vinnú. Þeir fá þar $45 í kaup á
mánuði og viðurværi. ef þeir eru
í málinu útaf á- \ vanir járnbrautarvinnu.
“Empress of Ire-1________________________
skift scr 11Í stjórniiiáliini ■ Vestur-
hciini.. .pað ictti ekki að þuría að
iiiiiina yður á livílíkt ranglæti það
væri þjóð vorri cf nokkur. íslcntl-
ing'ur gTCÍddi atkvæði á inóti lionum
10. Jiilí-. Aldrci licfir nokkur stjórn- !
málamaður vcrlð lagður eins í ein- :
clti af nokkuri'i stjórn eins og' Hob- j
lin liefir gert við Jolinson. Ástæð- j
urnar eru tvær. .önnur sú að liann er
mcð framförum landsins og rétti l'ylk-
isins, liin sú, að liann cr fslendingur.
MVNIO pAD íSLENDINGAR.
anna og voru sungin falleg lög á
milli. Verðlaunaskrá yfir íþróttir,
sem þar fóru fram, er birt á öðr-
um stað í blaðinu.
Hér meðfylgjandi getið þér les-
ið aðalatriðin í stefnu þeirri, sem
eg fylgi.
Eg bið yður að lesa þau ög
íhuga þau samvizkusamlega.
Yðar einl.
THOS. H. JOHNSON.
Það er kominn tími til að brevta
um, greiðið’atkvæði með því
Almennar fréttir.
Bandaríkin.
sumir hafa orðið talsvert tvísaga;
er það að líkindum "remur af fáti,
sem á þá hefir komið, þegar slys-
ið bar að höndum en nokkru
öðru. Skipstjórinn af “Empress”
heldur því stöðugd fram, að skipið
“Storstad” hafi farið með fullri
ferð og kennir því Anderson for-
manni þess um alt. Anderson aft-
ur á móti kveður það ósannindi;
segir “Storstad” hafa farið afar-
hægt, enda liggi það í augum uppi,
því ef það hefði verið á fullri
j ferð, þá segir hann að það hefði
Járnbrautarlest C. N. R. félags- j skift “Empress” i tvent og farið
ins fór öll út af spori fyrra mið- viðstöðulaust í gegnum hana.
vikudag, 10 mílur frá Grand
Forks. Vagnarnir fóru flestir á
hliðina og brotnuðu allir, en aðeins
einn. maður meiddist til muna.
Ýfir höfuð virðist alþýða manna
vera með C. P. R. félaginu í
þessu máli; en flestir þeirra, sem
] þekkingu hafa á siglingum og sjó-
j lögum, með hinu félaginu. Hann-
Maður að riafni \\ inthrop Ames 1 es Pétursson, Islendingurinn sem
hét nýlega $10,000 verðlaunum | af komst( ber C- p R- jlla
söguna
fyrir 1>e2ta trumsamið leikrit. j sambandi við slysið og kveður
Stúlka sem Alice !>rown lieitir, j j)ajj bafa g£rt sér far um að fá
°g er 57 '<ira gömul, lilaut þessi; a|]a farþega tj] ag halda áfram
verðlaun. Hún á heinm í Boston. I fergjnn; austur um haf, auðsjáan-
1646 manns reyndu að ná 1 | |ega ; þv; sbyni að koma þeim á
Týndi somirinn.
Stúlkurnar kátar og kvikar
komu með dýrlegt vín;
Arinbjörn S, Barda! lagði af
I stað í gærmorgun, austur til
j Montreal ; er hann kosinn erindreki
j Goodtemplarafélagsins, til þess að
j mæta þar á ársþingi hinna samein-
| uðu deilda Goodtemplara. Að
[ þinginu afstöðnu fer hann til Sví-
hann hellir því ei, en - hikar, þjógar á Alþjóðaþing Goodtempl-
því hugsi tekur hann bikar , ara> sem haldið verður I Kristjaniu
hið fvrsta sinn tjl sín. j ; Xoregi. Bardal fékk heilla-
skeyti og þakklætisávarp frá sið-
bótaíélagi Manitoba, áður eti hann
lagði af stað; var það honum
verðugur heiður. því hann hefir
lagt á sig mikið fyrir það mál i
seinni tíð.
Sameiginlegir fundir í
Gimli-kjördœmi.
Kreuzborg skólahúsi laugardag-
inn 27. júní, kl. 10 f. h.
Melev skólahúsi mánudaginn 29.
júni, kl. 10 f. h.
Árborg' skólahúsi þriðjudaginn
30. júní kl. 2 e. h.
Fnamnes Hall miðvikudaginn 1.
júlí kl. 2 e. h.
Víðir skóTahúsi fimtudaginn 2.
júli, kl. 10 f. h.
Gimli föstudaginn 3. júlí, kl. 8 e.h.
Húsavikur skólahúsi föstudaginn
3. júlí kl. 3 e. h.
Hnausa skólahúsi mánudaginn
júlí kl. 2 e. h.
Árnes skólahúsi mánudaginn
júli, kl 8 e. h.
Geysir skólahúsi þriðjudaginn
júlí. kl. 10 f. h.
Icel. River skólahúsi þriðjudaginn
6. júlí, kl. 8 e. h.
Hekla skólahúsi miðvikudaginn 8.
júlf, kl. 4 e. h.
Mr. Thorvaldson og Mr. Jónas-
son, verða á öllum þessum fund-
um, og einhverjir fleiri ræðumenn.
4-
4-
6.
“Þú hikar—sem böls þér baki
ef bikar tæmir þann.
Við hyggjum sízt þig saki.”
Og sveinninn kneyf, en að baki
svínstíu fúla fann.
/. R.
. Rúðherra fslanils lir. Hannes Haf-
stcin sajíði .af sér embætti 27. Maí
síðastl. . Konungur hcfir beðið liann
nð gcgna stjórnarstiirfum til þinsts.. .
þessi verðlaun. Tæikrit hennar
heitir “Böm jarðarinnar” og er
um líf nýbyggjanna í Nýja Eng-
landi. Þetta eru hæstu verðlaun,
sem nokkru sinni hafa verið veitt
fvrir Leikrit.
James þingmaður frá ríkinu
Virginia í Bandaríkjunum, hefir
korriið fram með ‘frumvarp um
]>að að Filipps eyjum sé veitt
sjálfstæði. og er talið víst að það
nutni verða samþvkt.
Tímaritið “Indepcndent” leggur
]>að til að stofnaður sé mentaskóli
sérstaklega fyrir ritstjóra og
blaðamenn. Er því haldið fram,
að engin staða sé til meira áríð-
andi og sem krefjist víðtækari
mentunar. en blaðamenska.
Wðalcgur haglstormur kom i
suðvesturhluta Norður-Dakota 11.
maí. Skaðinn er metinn á hálfa
miljón dollara. Fjöldi gripa
drapst og meiddist. Haglið fór
yfir spildu mismunandi brciða, frá
tveimur til tíu mílur. Vetrarrúg-
ur. sem var í blóma og leit óvenju-
lega vel út, gjör eyðilagðist.
Harry Kendall Thaw hefir enn
á ný farið þess á leit, að losna ,úr
geðveikrafangelsinu, og er enn þá
neitað um það.
Bvrópa.
Tvö loftskip rákust á 20. júní
skamt frá Vínarborg í Austurríki;
níu manns mistu lífið. Þeir voru
600 fet uppi í lofti þegar slysið
vildi til. Þegar skipin mættust
kviknaði í þeim. og voru mennirn-
ir nærri brunnir til dauðs þegar
til jarðar kom.
Kermit Roosewelt, sonur Theo-
dors Roosevelts, kvæntist 10 júni
Miss Willars dóttur sendiherra
Bandaríkjanna á Spáni. Brúð-
kaupið fór fram í Madrid og var
Roosevelt þar viðstaddur.
Voðastormur geysaði í St.
Lasore héraðinu á Frakklandi á
sunnudaginn; þrumur og eldingar
burt, svo þeir yrðu ekki kallaðir
tif vitnis.
Hudsonsflóa félagið lýsir þvi
yfir í nýútkomnum skýrslum, að í
ár hafi verzlun verið miklu dauf-
ari í allri Canada, en verið hefir
að undanfömu.
Afarmikill haglstormur kom í,
Saskatchewan á fimtudaginn var.
Mestan skaða gerði 'hann í kring-
um Kindersley; fór yfir 15 mílna
breitt svæði og eyðilagði akra,
braut hús og drap gripi. Mann-
tjón varð ekkert.
PólÍtiskt kærumál stendur yfir í
New Brunsvick. L. A. Dugan,
leiðtogi mótflokks stjórnarinnar
hefir kært James Kidd Flemming
stjórnarformann fyrir það, að
hann hafi ekki skilað i fylkis-
fjárhirzluna $1500, sem hann hafi
fengið frá mönnum, er leigt hafi
land til skógarhöggs. Stjórnin 1,111 iar
neitar því harðlega að þetta sé satt.
en nefnd hefir verið skipuð til að
rannsaka málið.
Úr bœnum
Laugardaginn, hinn 20. þ. m.,
voru þau Guðmundur Stefánsson
frá Winnipeg og Jóhanna Sigfús-
son frá Clarkleigh gefin saman í
hjónaband af séra Rúnólfi Mar-
teinssyni að 493 Lipton St.
Á safnaðarfundi, sem haldinn
var 'i Skjaldborgar-söfnuði hinn
15. júní, voru þeir Thorsteinn
Oddson og Gunnlaugur Jóhanns-
son kosnir erindrekar á kirkju-
þing.
Björn Stefánsson Björnssonar
frá Windthurst, Sask. og Ida
Oleva Righ frá Kipling, vom gef-
in saman í hjónaband 10. júní að
Grenfell, Sask.
Á-fegeir Fjelsted kaupm. trá Ar-
borg kom til bæjarins í gær. Er
hann að leita sér lækninga. Alt
tíðindrilaust að norðan.
Á öðrum stað i blaðinu birtist
auglýsing frá þeim P. Johnson og
J. A. Blöndal. Hafa þeir stofnað
hlutafélag meðal Islendinga og
annara með S 100,000 höfuðstól og
byrjað á verzlun jneð alls konar
rafmagnsáhöld. — Þessir menn |
eru báðir vel þektir meðal tslend-
inga. P. Johnson sem áreiðanleg-
ur verzlunarmaður og sérstaklega
fær rafmagnsfræðingur. Hann
hefir fundið upp rafvélar, sem
mikið er látið af. J. A. Blöndal
kannast allir Landar við; hann var
þeim lengi að góðu kunnur sem
ljósmyndari, og nú um fjölda-
mörg ár að undanförnu hefir
hann verið einn af aðalstarfsmönn-
um Lögbergs. Þar ekki annað en
minna á ráðvendni hans þar og
samvizkusemi, til þess að menn
láti hann njóta trausts og viðskifta.
Mr. Sigíús Pálsson, 488 Tor-
onto slr., hefir nyiega íengið sér
nytisku ílutningsvagn, sem vera
mun hinn þriðji stærsti 1 bænuin
al þeirri gerð. — Vagn þessi er
hinn bezti sem hugsast getur, til
þess að flytja á stór Imsgögn og
annað þess háttar. Mr. Palson er
að góðu kunnur fyrir dugnað
sinn og vandvirkni við flutninga.
Mr. Sigurður Johnson frá
liamre, Norður Dakota, kom í dag
inn á skrifstofu blaðs vors, og
inntum vér hann tíðinda; en hann
kvað fátt um nýjungar.. Ástæður
fólks suður þar, kvað hann allgóð-
ar; útlit með uppskeru og annan
jarðargróða í bezta lagi. — Þar
hefir verið nóg væta. Mr. John-
son er fulltrúi á kirkjuþingið, sem
i hönd fer, fyrir Melankton-söfn.
Einar Páll Jónsson vmnur við
Lögberg til aðstoðar við rit-
stjórnina fram yfir kosningar.
Tvær stúlkur, Bertha Burns og
Della Westhall voru kærðar á
fimtudaginn var fyrir það að selja
áfengi í leyfisleysi. Þær voru
sektaðar um $100 hvor og máls-
kostnað fyrir óleyfilega vínsölu,
en hitt atriðið þótti ekki full-
sannað.
Ákveðið hefir verið að kenna
hér eftir allar vísindagreinir við
Manitobaháskólann, sem kendar
eru á öðVum fullkomnum háskól-
um. Aðeins sumar þeirra hafa
verið kendar hingað til.
Nálega helmingur af bænum
Carbon i Alberta brann til kaldra
kola á laugardaginn. Meiri part-
ur verzluarhlutans gjöreyddist.
Manntjón varð þó ekki.
Um 200 manns mistu lífið i
námaslysi sem varð x bænum
Hillcrest í Alberta á föstudaginn.
Er það talið eitt með mestu náma-
slysum í Canada. Má heita að
allir faeimilisfeður úr bænum fær-
ust þar. ,
Kosningabaráttan
í Ontariö er
afarheit. Rowell leiðtogi Fram-
sóknarmanna er þar allra fremst-
ur í orustunni, rétt eins og Th. H.
Johnson er hér. Aðalbaráttan þar
er á milli brennivínsmanna og
bindindismanna. Framsóknar-
Kirkjuþing Únítara var haldið
19—20 þ. m. að Lunctar. Man.
Fór þar fram trúmálafundur, fyr-
irlestur og prédikun. Séra Guð-
mundur Árnason fluttí fyrirlest-
ur, var hann umstefnu og starf-
semi W. E. Channig og Theodors
Parker. Séra Albert Kristjáns-
son og séra Guðm. Árnason prédik-
uðu.
Umræðuefnið á trúmálafundin-
Framtíðarkirkjan” og hóf
Skafti Brynjólfsson umræður. I
umræðum tók einnig þátt séra
Albert, séra Guðmundur og Hall-
dór Jpnsson. Þingið var mjög
vej sótt og skemtilegt í alla staði.
Embættismenn félagsins voru
kosnir Skafti Brynjólfsson forseti.
skrifari séra Rögnvaldur Péturs-
son og féhirðir Hannes Pétursson.
Samsæti var þinginu haldið að
afloknum störfum af söfnuðinum
frá Mary HiII og Grunnavatns-
bvgð.
Sjkúli Sigfússon þingmannsefni
Framsóknarflokksins var hér á
ferð áJ’iViðjudaginn. Tíðindalaust
þar vtra; veðrátta hagstæð. Útlit
gott fyrir sigur við kosningarnar.
Stóreflis lögreglustjóra þing
stendur yfir í Winnipeg þessa dag-
ana. Eru þar mættir lögreglu-
stjórar frá öllum þörtum Canada.
Vilja allar kirkjur og öll félög
í bænum gera svo vel og senda
Lögbei'gi allar fréttir sem þar ger-
ast?
Stefán Thorson bæjarstjóri á
Gimli og kona hans, voru á ferð i
Winnipeg á fimtudagínn. Thor-
son kvað gott útlit fyrir E. John-
son þingmannsefni Framsóknar-
rnanna, eftir því, sem frekast yrði
séð fyrir.
Aðalsteinn Kristjánsson fast-
eignasali og kona hans fóru í
skemtiferð til íslands í gærmorgun.
Búast þau við að veroa 3—4 mán-
uði að minsta kosti. Kona Aðal-
steins er ensk og hlakkar mikið til
ættjarðar manns síns. Sjálfur er
yVðalsteinn vsérstakloga mikill Is-
lendingur.
Skemtun sunnudagaskólanna frá
Fyrsta lúterska söfnuði og Skjald-
borgar- og Selkirk-söfnuði, sem
haldin var i Selkirk á laugardag-
inn, tókst ágætlega vel. Var þar
fjöldi fólks og bama. Tuttugu
ræðvr fluttu allir prestar safnað-
í greininni um Borgfirðinga-
mótið var sú prentvilla að það var
auglýst r. júní, en átti að vera 1.
júíí. Eins var það nefnt listamót,
en átti að vera lystimót.
Dr. Roche ráðherra kom til
Winnipeg á sunnudaginn austan
frá Ottawa, til þess að hjálpa
Roblin við kosningarnar.
Séra J. L- Gordon er í New
York; hann prédikar þar i e'nni
stærstu kirkjunni þangað til 24.
júlí. Þykir mikið til hans koma.
Ferfættum hænuunga var ung-
að út á laugardaginn hjá Herbert
Cook að 717 Winnipeg Ave. Þetta
er merkilegt náttúmafbrigði, og
er talið að unginn muni lifa.
Einar S. Jónasson trá Gimli,
þingmannsefni Framsóknarflokks-
ins, var hér á ferð á fimtudaginn
var. Það lá vel á Einari, var auð-
séð að hann átti von góðs fylgis
og sigurs við kosningamar.
Skipun hefir verið gefin út af
strætisvagnafélaginu um það að
vagnarnir staðnæmist ekki eins
oft og verið hefir; eiga margir
]>eirra að staðnæmast aðeins við
aðra hvora götu. Er þetta ill
breyting og ósæmileg.
Jóhann Sigfússon frá Selkirk
var hér á ferðinni á þriöjudaginn.
Líðan manna kvað hann góða.
Vinna hefir verið næg, en er
fremur að minka. Fiskiafli
fremur tregur, en þó bærilegur.
Sumir kváðu segja að kosninga-
baráttan eigi þátt í því að dauf-
ara sé. en að undanförnu; allir
séu önnum kafnir í pólitískri
hugsun og vinnu.
Laugardaginn, 13. júni, andað-
ist að heimili sínu, 400 Lipton St.,
Sigríður Soffía Einarsson ^29 ára
gömul). Banamein hennar var
lungnatæring. Útför hennar fór
fram frá heimilinu, mánudaginn,
hinn 15. þ. m., og var hún jörðuð
í St. James grafreitnum. Yfir
moldum hennar talaði séra Rún-
ólfur Marteinsson. Hin látna var
dóttir Gunnars Einarssonar, sem
er einn með elztu búendum is-
lenzkum í Winnipeg.
Starfsmannafundur verður hald-
inn í English Block á Notre Dame.
í nefndarstofu Th. H. Johnson.
kl. 8 i kveld. Allir mæti.
Fundur verður hald-
inn að Brú 'í Argyle-
bygð > þriðjudaginn
30. þ. m. kl/2 e. 'h.
Dr. Brandson talar þar.