Lögberg - 02.07.1914, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. JCLÍ 1914.
1
Veiztu það?
Veiztu þaS aö um $7,000,000
(sjö miljónir dollara) er eytt fyr-
ir áfengi í Manitoba á hverju ári,
aSeins í gistihúsum? Væri þess-.
ari upphæð varið til mentunar, þá
hrykki hún til þess að menta á
æðri skólum 2,000 unga menn og
konur. Væri þessari sömu upphæö
varið til þess aö byggja heimili,
nægöi hún fyrir 2,000 hús, sem
kostuöu $2,300 hvert.
Glæpamaöur væri sá talinn, og
hann voðalegur, sem legði eldi og
brenndi upp 2,000 heimiLi, en sá
sem að þvi er valdur að jafnmiklu
fé er eytt í þessu fylki i brennivin
og til þess þarf aö byggja 2,000
heimili, er enn þá stærri glæpa-
maöur. Og hvers vegna?.
Sá sem tapar heimili sínu i eldi,
getur sloppið við alt annan en
stundar óþægindi og fjártjón. Sá
sem tapar fé sinu á vínsölukrán-
um, getur það ekki. Hann tapar
einnig miklu, af manndómi sinurn,
hæfileikum; manngildi sínu og
áliti.
Veistu þaS að tala þirra, sem í
fangelsi eru settir í Winnipeg á
hverju ári, er 8383, og að af þeirri
tölu eru 6235 settir inn fyrir
drykkjuskap, beinlinis eða óbein-
linis?
Veiztu þaS, að i Winnipeg eru
75 drykkjuskólar, og i Manitoba-
fylki 243? Þessar glæpastofnan-
ir, þessar manndrápsholur, eru
leyfðar meðatkvæði hinnar svo
kölluðu kristnu þjóðar þessa lands.
Veiztu hvað þú hefir á samvizk-
unni, þegar þú greiðir atkvæði
þitt með þessum drykkjuskólum?
Veictu þaS, aö allar þessar 243
drykkjustiur, eru líka heildsölu-
hús? Þar getur hver sem vill
keypt heilan pott af brennivíni,
eins oft og honum sýnist, og fariö
með hann hvert sem honum þókn-
ast?
Veiztu þaS, aS áriS 1902 breytti
Roblinstjóniin 'þannig vínsólulög '
um í fylkinu, aS hvert gistihús
var þannig einnig gert aS stór-
söluverzlun (sjá 9 síðu lagannaj.
Veiztu þetta?
Veiztu þaS. að í Manitoba eru
153 sveitir og að aðeins 30 bæir
geta fengiö eöa haft heildsöluleyfi.
Með öörum orðum, að ef vínsala
er afnumin á gistihúsum. þá er
algert vínsölubann í allri mynd af-
numiö i 123 sveitum?
Veiztu þaS, aö þegar búið er að
afnema vinsölu á gistihúsum. þá
verður haldið áfram aö vinna meö
héraðsbannlögum, til þess að af-
nema heildsöluna, þar sem hún er?
Veiztu þaS, að vínsölulögin í
Manitoba eru i tveimur deildum.
Önnur deildin heimilar að vínsölu-
leyfi sé veitt ef viss skilyrði séu
uppfylt. Hin deildin heimilar að
vínsala sé bönnuð, með vissum
skilyrðum.
Veiztu þaS, að afnám brenni-
vinssölu á gistihúsum fer fram á
þaö að ekki sé lengur hægt eða
löglegt að veita leyfi á þessum
stöðum, en á sama tima verði hér-
aðsbanninu haldið áfram óbreyttu,
þar sem þaö er, og heimild áskiliij
til þess aö koma því á, þar sem
það er ekki?
Veiztu þetta? Láttu ekki villa
þér ]>ar sjónir. Roblinsmenn
segja þér, að ef afnám vinsölu á
gistihúsum sé borið undir atkvæði
og felt, þá séu héraðsbannlögin
numin úr gildi.
betta er bein visvitandi lýgi.
Lesið sjálfir og sannfærist um
það.
Veiztu þaS, að atkvæði um af-
nám vínsölu á gistihúsum, eiga
aðeins við þá staði, þar sem. vin-
sala á sér stað. Atkvæðin eru um
það, hvort levfa eigi. aö vínsala
á gistihúsum, þar sem hún er,
haldi áfram eða sé afnumin. Það
hefir því alls engin áhrif á þau
svæði, sem ekki selja vin,
Láttu ekki villa þér sjónir í
þessu atriSi. Lestu sjálfur laga-
frumvarpið.
Veiztu þaS, að bindindisfólkið
hefir í 12 ár beðið Roblin að
breyta héraðsbannlögunum og bæta
þau, en hann hefir altaf daufheyrst
við bænum þeirra?
Veiztu þaS, að Roblin hefir gert
bindindismönnum það eins erfitt
og í hans vakli stóð, aö koma á
héraðsbanni ?
Veiztu þaS, að Roblin hefir beitt
bindindisfólkið brögöum með laga-
flækjum, til þess að þóknast
brennivínsvaldinu ?
Veiztu þaS, að á síðastliðnum 7
árum hafa héraðsbannlög verið
eyðilögð með tilstilli Roblins yfir
7o sinnum, eða 10 sinnum á hverju
ári ?
Vciztu þaS, að Roblin hefir veitt
brennivínsleyfi í tugum héraða,
í>ar sem héraðsbúar hafa sjálfir
mælt á móti því að leyfi væri veitt?
Vciztu þaS, að vínsöluleyfi í
Manitoba hafa fjölgað frá 171
upp 'i 323 síðaní Roblinsjtórnin
tók við völdum, þótt fólkinu hafi
ekki fjölgað nema um 57%.
Vinsöluleyfum hefir fjölgað miklu
meira en fólkinu.
Veiztu þaS, að ef ekki gengi
fljótar að fá héraðsbann, en meö
Roblinaðferðinni, þá tæki það
Manitoba 60 ár aö koma þvi á í
öllum sveitum. Se.rtíu ár! Ertu
ánægöur með það?
Veiztu þaS, að fyrir tveimur ár-
um báöu 21,000 kjósenda stjórn-
ina að leyfa atkvæðagreiðslu um
afnám vinsölu á gistihúsum?
Veiztu það aö þetta eru 30% af
öllum greiddum atkvæðum við síð-
ustu kosningar ? Veiztu þaö aö
með þessa bænarskrá (undirritaða
af 21,000), komu á þingið 2,000
manns? Og veiztu það, að sam-
kvæmt skipun Roblinstjórnarinn-
ar, voru greidd atkvæði á móti þvi
að þessi sanngjarna og sjálfsagða
beiðni væri leyfð?
Veiztu þaS, aö bindindismenn
hafa, ár eftir ár, sent nefnd eftir
nefnd, og bænarskrá eftir bænar-
skrá, og beðið ákveðið um afnám
vinsölu á gistihúsum? Veiztu það
að þessi beiðni var endurtekin í
ár? Veiztu það að Roblin hefir
ávalt neitað þessari kröfu? Veiztu
það að þegar1 bindindismennimir
þreyttust á Roblin, þá báðu þeir
Norris um það sama. Veiztu það,
aö hann hefir, sem leiðtogi Fram-
sóknarflokksins og með sem-
þykki hans, heitið þvi að veita
i þessa beiðni og leyfa atkvæða-
greiðslu um þaö og veita það, ef
hann kæmst að stjóm. Roblin var
beöinn aö leyfa atkvæðagreiðslu
í um þaö og veita þaö ef þaö yröi
I samþykt. Hann sagSi nei. Norris
I var beðinn að leyfa atkvæði um
j þaö, ef hann kæmist að, og veita
j j)að ef þaö yrði samþykt, og hann
| svaraSi já.
Veiztu þaS, að öll bindindis- og
siðbótafélög í fylkinu, hafa fallist
á aö fylgja Norris, vegna þess að
liann vill veita þetta?
\ eiztu þaö, að allir bindindis-
menn í fylkinu eru því skyldugir
aö greiða atkvæði með Norris 10.
! júií ?
Hver faSir, sem greiSir atkvæSi
mcð Roblinstjórninni 10 . júli,
j grciSir atkvœSi með glötun fyrir
I drenginn sinn; eySilegging fyrir
: lieimili sitt; sorg fyrir konuna
sína; svívirSing fyrir þjóSina sína.
--- 4 ______
| Bitar..............................
Hver bindinéismaður, sem greið-
| ir Roblinstjórninni atkvæði sitt,
svikur bindindisheit sitt.
Hver faSir, sem greiðir Roblin-
stjórninni átkvæöi. svikur þá
skyldu, sem honum ber að rækja
við afkvæmi sitt.
Hver móSir, sem ekki gerir
sitt bezta, til þess að hafa áhrif á
mann sinn, son sinn eða bróður,
svíkur þá skyldu, sem henni er
lögö á lierðar gagnvart bami sínu.
Hver kona og stúlka, sem ekki
man Roblin þaS hvernig hann fer
meö kvenfólkið, með þvi aö hafa
áhrif á alla menn er hún þekkir,
svikst um aö leggja til sinn skerf
kyni sinu til frelsis og bjargar.
ILver miSur eSa kona sem jheyrir
til nokkurri kirkju en greiðir samt
atkvæði -meö Roblinstjórninni, er
hræsnari.
AtkvœSi bindindismanna fyrir
Roblinstjórnina er brot á bindind-
isheiti,
AtkvæSi föður með Roblin-
stjórninni, er brot á föðurskyld-
unni við bamið sitt.
AtkvæSi eiginmanns fyrir Rob-
linstjórnina, eru svik við konu
hans.
Heimskringla segir aö kýrnar
muni greiða atkvæði með Skúla.
Afturhaldsmaður lýsti því yfir há-
tíölega í fyrra, að ef kýr og naut
ættu atkvæði, yrðu þau öll með
'Jaylor. Nú eru þeir hræddir um
aö þeir missi kýrnar, en nautunum
þykjast þeir vissir að halda.
Roblin liefir lýst því yfir nýlega
að Framsóknarmönnum væri
heimilt að tala á fundum sínum i
fáeinar mínútur. Það væri þó
því skilyrði bundiö, að Th. H.
Johnson væri ekki valinn til þess.
— Þetta er mesti heiður, sem
nokkrum stjórnmálamanni hefir
verið sýndur — og mesti heygul-
skapur, sem nokkur stjómarfor-
maður hefir sýnt.
Roblin hélt fund í Weston;
lrann kvað þar beina löggjöf glöt-
un, hvar sem* hún hefði verið
reynd. Bauð hverjum sem vildi
að koma upp á pall og mæla móti.
Dixon þág boðið. En jafnskjótt
sem Roljlin sá þaö, flýði hann of-
an af pallinum og út. — “Svo
hann er þá líka bleyða,” sagði einn
af þeim sem viðstaddir vom.
Skólasókn barna i Manitoba
hefir aukist um 50% ; áöur sóttu
skóla 50%, nú sækja þá 73%, með
öðrum orðum 73% er sama sem
100%. Sjá Heimskringlu 11. júní.
Árið 1899 voru 1000 skólahús í
Manitoba, nú eru þau 1447. Berið
saman fólksfjölda Manitoba þá
og nú og reiknið út hversu margir
íbúar voru þá á hvern skóla og
hversu margir eru á hvern skóla
nú. Það sannar ykkur að fólkinu
hefir fjölgað margfalt meira
en skólunum. Með öðrum orð-
um, mentuninni hefir stórhnignaö.
Greenwaystjórnin lagði $15,000
meira til alþýðuskólanna á hverju
ári, á meðan fólksfæðin var, en
Roblin hefir gjört, eftir að fólk-
inu fjölgaði. Lesið skýrslurnar
þessu til sönnunar.
Roblin lét C. N. R. félagið
byggja járnbraut fyrir sjálfan sig,
til þess aö láta það flytja fyrir sig
sand. Brautin kostaði $5000 á
rníluna, en Roblin lét fylkiö borga
félaginu $10,000 á míluna fyrir
þessa sína eigin braut. Og hann
neitaði að láta rannsaka þetta,
]>egar þess var krafist. Lesið
])ingtíðindin og snnfærist um þetta.
Roblin hefir klifrað með
brezka fánann upp á hverja stöng
i Manitoba, segir Heimskringla.
Hann hefir haft nóg að gera þar.
karlinn. Ekki er það furða, þótt
hann gæti ekki sint mentamálum
fylkisins.
Roblin hefir sýnt aö stjórnn;
getur haft hagnað af peningum;
segir Heimskringla. — Já, hver
efast um það?
"Rpblin hefir verið frumkvöð-
ull aö, og komið á lögum til að
kenna mönnum hvernig megi fá
héraðsleyfi til að selja brennivín,” I
seg r Heimskringla. — Þaö er |
er engin lýgi.
“Roblin hefir aldrei veriö sak-
aður um rán eða stuld á opinberu ;
fé,” segir Heimskringla. Hvað
v:ll hún segja um það, þegar hann |
veitti $10.000 af fylkisfé á hverja
mílu, sem hann lét byggja til að
flytja eftir sand fyrir sjálfan sig
og til einskis annars? Er Roblin
reiðubúinn til að láta rannsaka
það mál?
“Roblin hefir séð fyrir nægu fé
af inntektuni fylkisins, til þess að
reisa miklar og tígulegar bygging-
ar,” segir Heimskringla. — Það
er satt, liann hefir séS fyrir því.
6. febrúar 1914 var stjórnin j
kærð fyrir það, aö embættimsenn!
hennar hefðu á ákveðnum stað og |
tíma, gert sig seka í fölsun, mút- ;
um, og ólöglegum vínveitingum, cg
að stjóniin hefði verndað þessa
glæpamenn. Rannsokn var heimt-
uð, en henni neitað, og svo er
sagt að stjórnin hafi aldrei verið
kærð um glæp þ
“Eg ber ekki ábyrgð á því sem
eg segi í stjómmálum.” — Roblin
undir eið 11. nóv. 1890.
“Eiginkonur og mæður ættu að
vera guði almáttugum þakklátar
fyrir að nú er stjórni í Manitoba,
sem hefir sannað einlægni sína
þegar hún lofaði vínsölubanni.”
Roblin 18. okt. 1900.
“Þaö er alls ekkert vínsölubann
(þessi sömu lög), það er aðeins
lagafrumvarp, sem heimilar frítt
brennivín.”—Roblin 21. jan. 1902.
“Eg hefi aldrei sagt aö það væri'
lagafrumvarp, sem_ heimilaði frítt j
brennivin.”—Roblin 10. marz 1902.
“Bændur eru svo eigingjarnir
að þeir kref jast þess aö senda I
hvéiti sitt sjálfir í vögnum, í stað
])ess aö fara með það til hveitifé-1
laganna á staðinn, aðeins til þess
að fá 1—2 centum meira fyrir
bushelið.”—Roblin 24. okt. 1902.
“Maður i opinberri stöðú, sem
liikar viö eða neitar aö láta rann-
saka opinberlega frammistöðu sína
í smáu sem stóru, nákvæmlega og
fullkomlega, er óverðugur þess að
fólkið treysti honum.”—Roblin 20.
okt. 1908. — Þetta er þó heilagur
sannleikur. — Munið þið eftir
McDonald kosningunni?
“Eg verð að segja það hér í
kveld að séra Dr. C. W. Gordon,
prófessor Blond og prófessor
Osborne. eru ekki eintingis póli-
tiskir (áráðlingar, heldur einnig
siðferðisspiltir "menn. Þeir eru
svívirðing stétt sinni. Eig veit
hvað eg segi." — Roblin 7. marz
1907.
“Enginn getur með sanni sagt.
að Manitoba pólitík sé ekki hrein.”
—Roblin í sept. 1912.
“Eg vil ekki sjá konur saurga
sig á því að eiga við pólitík, eins
og hún er skitug.”-^Roblin i sept.
1912.
Við skiftum á rjóma skilvindum
okkar fyrir MAGNET
Þessi setning er sögð svo oft við
okkur að við álítum það rétt að láta hana
koma út á prent, og segja hvernig á því
stendur að allur fjöldi bændanna í Vest-
urlandinu.hefir tekiö þaðráð að lofa hin-
um skilvindunum að hvíla sig og fá sér
MAGNET í staðinn.
Þejr hafa gert það af sömu ástæð-
um, bóndi góður, eins og þú mundir
þurfa til þess að láta ónýtan vinnumann
tara í burt og fá þér annan sem þú vissir
að kynni aS vitina og gerði það án þess
uð eyða tímanutn iil ónýtis.
Dað héfir borgað sig
fvrir þá að gera þetta.
Þessvegna hefir MAGNET skilvind-
an ekki verið búin til einungis til þess að geta selt hana ódýrt
heldur aðallega til þess að geta selt fullkomna vél, þá beztn
sem mannleg hugsun getur uppfnndið, með stuðningi fullkomn-
ustu reynzlu.
Það borgar sig fyrir þig að kaupa hana nú án þess að hugsa um verðið, og
hún er svo ódýr að hver einasti bóndi á hægt með að kaupa hana ef hann hefir
kýr á annað borð, og eitthvað handa skilvindunni að vinna.
Hún er búin til af Canadamönnum, sem .,t>ér hafið jafnan hjá yður“ eins og
t>á fátaeku. Þetta þýðir það að hvað lítið sem kann að skemmast í vélinni, þá er
hægt að fá það lagað hvenær sem er, það verður gert í ræsta sölustað við þig.
Við skulum sanna hvert einasta lofsorð sem við segjum um MAGNET ski!-
vinduna. Sánna það heima hjá yður á okkar eigin kostnað.
The Petrie Manufacturing Co., Limited
Aðal akrifstofa og verkstæði: Hamilton, Canada
Vancouver. Calgary. Kegina. Winnipeg. Hamilton. Montreal. St. John
“Bein löggjöf ef í ströngu sam-
ræmi viö öll brezk lög og stjórnar-
skrá þessa lands.”—Roblin 1902.
“Bein löggjöf er andstæö öllum
brezkum lögum og beint brot á
stjórnarskrá þessa lands.'—Roblin
I9r4-
Allir muna eftir hver náttúra
fvlgdi kertinu hans Norna-Gests.
— Um leiö og þaö brann út, hætti
karlinn aö vera til. Samskonar
kert^ kvað Roblin eiga. Þaö
brennur út 10. júlí næstkomandi,
og þá hættir hann líka aö vera til
i pólitískum skilningi!
SKRtTLUR.
Dominion Hotel
S23 Main St. - Winnipeg
Björn B. Halldórsson, eigandi
Bifreið fyrir gesti
Sími Main 1 131. . Dagsfæði $1.25
A: “Mikill snillings málari er ■
hún Ethel.”
B: "Af hverju veiztu þaö?"
A:“Eg sé það frarnan í henni.”
1. Innbrotsþjófur: “Hvaö er að
sjá þig í framan? þú ert allur (
hruflaður og marinn.”
2. Innbrotsþjófur: "Eg var svo
óheppinn aö brjótast inn í hús í
nótt, þar sem konan vakti og beið
eftir manriinum stnum, og hún
viltist á okkur.
Guðjón Erlendsson
var fæddur þann 25. desember
1857 aö Böömóösstöðum í Laug-
ardal í Árnessýslu. Foreldrar
hans voru þau hjónin Erlendur
Erlendsson og Margrét Ingimun l-
ardóttir frá Böðmóðsstööum.
Fluttist hann meö foreldrum sin-
um aö Skálholti í Biskupstungum.
Misti ltann þar fóöur sinn er
hann var 16 ára. Fjórum árum
síðar flutti hann aö Hliöi á Alfta-
nesi og dvaldi þar á ýmsum stöö-
um þar til árið 1885. aö hann
fluttist aö Melshústtm i Bessa-
staðahreppi og giftist þar þar.n
28. september sama ár, eftirlifandi
konu sinni Valgerði Jónsdóttur
Ingimundbrsonar frá Skipholti i
Ytrihrepp í Árnessýslu. Næsta
ALLAN LINE
Konungleg Póstgufuskip
Frá Montreal Frá Halifax
til til
Liverpool og Glasgow Glasgow
FARGJOLD
A FYRSTA PARRÝMI.......$80.00 og upp
Á ÖÐRU FARHÝMÍ.........$47.50 og upp
.4 þRIOJA FARRÝMI......$>11.25 og upp
Fargjald frá fslandi
(Emigration rate)
Fyrir 12 ára og eldri......... $56.1«
“ 5 til 12 ára............. 28.05
“ 2 til 5 ára............... 18,95
“ 1 til 2 ára............... 13. 55
“ börn á 1. ári............. 2.70
Allar frekari upplýsingar um gufuskipaferðimar, far-
bréf 0g fargjöld gefur umboðsmaður vor, H. S. BABDAL,
borni Sherbrooke og Elgin, Winnipeg, sem annaat um far-
gjalda sendingar til Islands fyrir þá sem til haug leit*.
W. R. ALLAN
304 Mhln St., Winnipeg. Aðaluinboðsmjtðnr veiutniiuda.
I
Guöjón sál. var drengur hinn
bezti og engan hef eg hitt, sem
hafði kynst honurn til hlýtar, sem
ekki væri vel til hans, og virðing-
ar naut liann hjá öllum, þeim er
kyntust honum. Bezta sönrun
fyrir því, hvaða álits hann naut,
er sú, að þau 14 ár, er hann bjó
heima, var hann bamaskólakenn-
ari í Bessastaöahrepp og oddviti
þess hrepps og sýslunefndarmaö-
ur um nokkur ár.
Eins og áðnr er getið, flutti
liann vestur um haf með fjöl-
skyldu sína árið 1899. Fór hann
|)’i fyrst til Ingimundar bróöur
síns, er þá bjó að vestanveröu viö
Manitoba vatn. Þar dvaldi hann
einn vetur; næsta vor tóku þeir
bræöur sig upp og fluttu lengra
noröur meö sama vatni ásamt
Eyjólfi bróður sínum og A. J.
Johnson mági þeirra. Þeir sett-
ust aö. þar sem kallað er aö Bluff
og voru þeir fyrstu stofnendur
þeirrar bygöar. Þar bjó hann í
14 ár, og hafði á þeim tíma kom-
ist í góö efni og bygt þar mjög
vandað íveruhús, sem kostaði yfir
$2,000.
Næstliöið sumar fann hann
fyrst til sjúkdóms þess, er leiddi
hann til bana. En aldrei var hann
neitt þjáður. þartil ettir að hann
kom til Winnipeg í lok febrúar
s. 1. Eftir að hann kom til Winni-
peg, dvaldi hann hjá Margrétu
systur sinni og manni hennar,
Árna Pálssyni. Og gerðu þau
hjón alt, sem í þerrra valdi stóð,
til þess að gera honurn hinar síð-
ustu stundir hams bærilegar.
Enda mun hann hvergi frekar hafa
kosið að dvelja, en hjá Margréti
systur sinni, úr þvi hann gat ekki
komist heirn til konu sinnar og
barna.
Eins og áður hefir verið getið,
andaðist Guðjón 29. apríl og var
líkið flutt norður til heimilis
hans og jarösett í grafreit bygö-
arihnar viö hlið sonar hans, Jóns
Þorbergs, er dáinn var fyrir 6 ár-
um; þá 16 ára að aldri. hið efni-
legasta ungmenni.
Guðjón lætur eftir sig koru og*
Þegar þér þarfnist byggingaefnis eða eldiviðar
þá leitið til
D. D. WOOD & SONS,
-------------LIMITED------------------
Verzla með sand, mulin stein, kalkstein,
límstein, pla*tur, tægjuplastur, brenda
tígulsteina, brendar pípur, sandsteypu-
steina, rennustokka úr gipsi, jarðrennu-
steina, allskonar kol, eldivið og fleira.
Talsímar: Garry 2620 eða 3842
skrifstofa : (]or> j(oss 0g Arlington Str.
•»» t. • • * ■ * t %
OVERLAND
6 börn, frá 6 til 25 ára að aldri.
8 barnanna eru helma hjá móður
sinni, en eitt, drengur 7 ára, er
til fósturs hjá Fr. og Mrs. A.
Pálson. Af 17 systkinum Guðjóns
eru 6 lifandi, þar af eru 2 ár Is-
lar.di, en 4 fyrir vestan haf.
Viö fráfall Guðjóns er stórt
skarö höggviö í Bluff bygöina.
því hann var lífið og sálin í öllu
því, er til framfara horföi fyrir
])á bvgð.
Kkkjan biður blaöiö aö flytja
þeim hjónum, Mr. og Mrs. Pálson,
sitt innilegasta þakklæti fyrir alla
])á umönnun er þau veittu Guö-
jóni sál. í banalegu hans og sömu-
leiðis Þiöriki Eyvindson, fyrir
hina drengilegu hjálp hans við
flutning á líkinu norður.
“ísafold” er beðin að taka upp
þessa æfiminningu.
GuSjón Erlendsson,
vor flutti liann að Kirkjubrú og
reisti þar bú. Eftir tvo ár flutti
hann að Sviðholti og bjó þar i 10
ár; frá Sviðholti fluttist hann aö
Bessastöðum í sömu sveit og þar
bjó hann í 2 ár. Brá hann þá búi
og flutti vestur um liaf.
Guðjón sál. var sérlega vel gef-
inn, haföi mjög góðar námsgáfur,
og minni meö afbrigðum. Til
náms var liann einn vetur hjá séra
Magnúsi Andréssyni aö Gilsbakka.
Annarar mentunar naut hann ekki,
utan þeirrar, er hann aflaði sér
sjálfur. En óhætt mun aö segja
aö hann var fjölfróöari en flestir
samtíöarmenn hans, þeir er ekki
CANAÐIA N NORTHERN RAILWAY
SUMARFERDIR
eftir
STÓRVÖTNUNUM paT”
TIL
AUSTUR CANADA og BANDARIKJANNA
í gegnum Port Arthur og Duluth í sambandi við stóru skipin HURONIC.HAMONIC, NORONIC (nýtt)
Lestin fer frá Winnipeg kl. 6. e.h. og frá Duluth á þriðjud. fimtud. og laugard. kl. 4.S0 e. h.
Fer frá Winnipeg kl. 6 e.h. daglega, og frá Port Arthur á miðvikud., föstud. og laugard. kl. 4 e.h.
Lestin er einnig í sambandi við KYRRAHAFS og VATXA BATANA, frá PORT ARTHUR á sunnud., þriðjud.,
fimtud., föstud. og laugardögum
Canadian Northern brautin á milli Winnipeg og Port Arthur er I gegn um fagurt landslag tll stórvatnanna-
Farþegar I gegn um Port Arthur á “Northern” gufuskipi geta fengið lykla að farþegaherbergjum og að-
göngumiða að matsölum skipanna í Winnipeg áður en farið er af stað, og komið þannig I veg fyrir tafir og
öþægindi. Fæði og rúm á skipunum er innifalið í íargjaldinu.
Fáið allar upplýsingar frá næsta Canadian Northern umboðsmanni eða skrifið
R. CREELMAN,
aðal ferðaumboðsmanni C.N.R. í Winnipeg.