Lögberg - 13.08.1914, Qupperneq 1
27. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 13. ÁGÚST 1914
NÚMER 33
STÓRKOSTLEGT MANNFALL SEGJA
FRJETTIR AF STRÍDINU í EVRÓPU
Skuldir Canada aukast Aðalatriði stríðsins.
um $67,000,000
í skýrslum Canada, sem eru ný-
lega komnar út, sést það meöal
annars, að skuldir ríkisins hafa
aukist í ár um sextíu og sjö mil-
jónir dollara.
Alvörumál.
"MetS hin hræ6ilegu dæmi í
Evrópu fyrir augum sér, mun
þjóðin í Canada sjá svo um, atS á
þessjm vniklu Vesturlandssléttum
sé ekki hver höndin uppi á móti
annari. Hún mun sjá um aö þar
sé ekki haldiS viö fomum fjand-
skap og sundrungarefnum og auk-
inn eöa glæddur þjóöarrígur. Hliö
vor eru opin þeim sem hingaö vilja
leita frá Evrópu og flýja harö-
stjórnina þar; en þegar þeir koma
hingað veröa þeir aö gleyma og
leggja niður fæö þá, sem á milli
þejrra hefir verið; kæfa alt hatur.
sem ein þjóö hefir haft á annari
og veröa sannir canadiskir borg-
arar, ekki aðeins í oröi kveönu.
heldur umfram alt í verki og sann-
leika. Sé þess ekki gætt strang-
lega aö þetta takist, þá má cana-
diska þjóöin búast við því innan
50 ára, sem nú hefir gert
Evrópu aö orustuvelli.’’
Þessi eftirtektaverða grein er
rriöurlag á langri ritgerö í Free
Press á laugardaginn, og er hún
nákvæmlega í samræmi við skoð-
un þessa blaðs. Aöfarirnar í sam-
bandi viö stríðið em þess eðlis, aö
stórhætta er á borgarastríði hér
meðaí hinna ýmsu þjóðbrota, og
hver sem blæs að þeim kolum að
auka stríðsandann, hann er sekur
í því máli. Islendingar eiga að
láta sér ant um að verða nytsamir
og sannir borgarar þessa lands, og
þa,ð g)eta þeir bezt með þeirri
stefnu sem Free Press lýsir í þeim
fáu orðum, áem að ofan eru til-
færð; með því að hjálpa til að
auka samúð á meðan þessi mikla
þjóð er að fæðast. Það skal því
endurtekið hér, sem sagt var í síð-
asta blaði, að íslendingar, ættu að
vera svo trúir canadiskir borgarar.
að skifta sér ekkert af þátttöku t
þessu striði, hvorki til né frá.
Sérstaklega vegna þess að Eng-
lendingum hefir ekki verið sagt
stríð á hendur að fyrra bragði og
þetta er ekki stríð til þess að
verja þeirra land eða þeirra þjóð.
William Jennings Bryan
hefir lýst þvi yfir að hann verði
hér eftir eindreginn með atkvæðis-
rétti kvenna. Eru það talin ein-
hver mestu sigurmerki fyrir kven
28. júní var Ferdinand rikiserf-
ingi í Austurríki og kona hans
myrt, og þaö kent stúdent frá
Servíu.
23. júli sendi Austurríkisstjórn-
in skeyti til Servíustjómarinnar.
þar sem þess er krafist, að æsing-
ar gegn Austurríki af hálfu
Servíumanna, séu bældar niður og
einnig þess að Austurríki sé leyft
aö rannsaka mál Servíumana
þeirra, sem álitið sé að hafi verið
við málið riðnir óbeinlínis. Er
svar heimtað innan 48 klukku-
stunda.
24. júlí lýsir Rússastjórn þvi
yfir að hún geti ekki látið kröfur
Austurríkismanna afskiftalausar;
krefst hún þess að Servíumönnum
sé gefinn lengri frestur til að
hugsa svar þeirra.
25. júlí fer sendiherra Austur-
rikismanna frá Belgrad. Servía
safnar saman liði. Her Austur-
ríkismanna fer að landamærum
Servíu. Rússar byrja að safna
saman 5 herdeildum. Þýzkaland
samþykkir kröfur Austurríkis-
manna á hendurServiumönnum.
26. júslí. Servía svarar kröfum
Austurríkismanna; gengur inn á
þær allar að undanskilinni þeirri
einni, að leyfa Austurríkismönniun
rannsókn á máli þeirra Servíu-
manna, er grunaðir séu um óbeina
þátttöku í morðinu. Það atriði
vilja þeir leggja undir álit friðar-
Mið- Inefndarinnar i Hagne. Austur-
riki telur svarið ófullnægjandi.
Her er safnað saman í Þýzka-
landi, Frakklandi og Rússlandi.
Englendingar byrja að búa flota
sinn til stríðs.
27. júlí. Þjóðverjar senda Rúss-
um spurningu um það hvort þeir
séu að búast til hernaðar; Rússar
svara því neitandi; en endurtaka
kröfur sínar fyrir hönd Servíu.
j Grey jarl stingur upp á því að
fulltrúar mæti frá Englandi.
Þýzkalandi, Frakklandi og ítalíu,
til þess að semja um frið, Frakkar
og Italir fallast á það, en Þjóð-
verjar draga að svara.
28. júlí. Austurríki segir Servíu
stríð á hendur. Rús'sland neitar
þeirri uppástungu Þjóðverja að
Rússar láti málið afskiftalaust.
Þýzkaland neitar uppástungu Grey
jarls um friðarsamninga. Allar
þessar þjóðir byrja hersöfnun.
Rússland skipar að safna saman
öllum sínum herafla.
30- júlí. Þjóðverjar, Frakkar.
Rússar og Englendingar keppast
hverir við aðra að búa sig til
stríðs. öll verzlun í öllum heimi
kemst á ringulreið.
31. júlí. Austurríki lætur safna
saman öllum sínum her. Reynt
að miðla málum í síðasta skifti án
nokkurs árangurs.
1. ágúst. Þjóðverjar segja
Rússum stríð á hendur. Hersveit-
ir þjóðverja ráðast inn í Luxen-
burg á leið sinni til landamæra
Frakklands. Frakkar skipa al-
menna hersöfnun. Italir lýsa því
Úr bygðum
Islendinga.
Vatnabygðir.
Hér hefir verið talsvert um
dýrðir að undanfömu. Séra Friö-
rik Friðriksson frá Reykjavík-
dvaldi hér vestra um mánaðartíma.
prédikaði og hélt fyrirlestra á
stóð. Það virtist vera sjálfsögð
kurteisis- og þjóðernisskylda að loka
búðum á meðan, til þess að draga á
engan hátt frá athygli hátíðarinnar.
Frá Prince Rupert.
Timar eru daufir hér yfir ah.
en allar líkur til þess að hér verði
góðir tímar þegar kemur fram á
haustið, eða þessi næstu tvö árin.
Það er svo margt sem bendir til
þess, brautin o. fl. — Þirír landar
hafa sett hér upp matsöluhús, þeir
T. J. Clemens frá Winnipeg, Ölaf-
Frá Islandi.
ýmsum stööum. Hann virðist vera itr Bjömsson frá Vancouver og
maður sem vinnur sér hylli allra, Fred Thorarinsson frá Blain. Þeir
er honum kynnast, og er uppbygg-1 gera ráð fyrir að stækka plássið
ing að þeim mönnum, hvar sem' vegna vaxandi viðskifta.
þeir eru. Eg fylgi engum safnað-i ---------
arflokki, og veit því lítið hvað ger-
ist í þeim málum, en á séra Friðrik
vildi eg hlusta, vegna þeirra sagna.
sem af honum höfðu farið; enda
sé eg ekki eftir þeirri stund. Hann
sýnist eiga opinn veg að hjarta
hvers manns. Annars býst eg við ■ sonar Danakonungs hefir tekiö
að nánar verði þér skrifað um j inntökupróf í háskólann í Kaup-
hann og starf hans hér af ein-! mannahöfn.
hverjum, sem það liggur nær en
mér. Þá komu þeir hingað prest- j Morley lávarður og John Bums,
Almennar fréttir.
Margrét einkadóttir Valdemars
arnir séra Friðrik Bergmann og
séra Jón Helgason háskólakennari
frá Islandi. Þóttu þeir báðir stór-
ir gestir og góðir og fluttu hér mál
sitt sköruléga.
Sagt er að Asmundur Guð-
mundsson sé að búa sig af stað
alfarinn heim aftur, en í hans stað
er von á nývígðum presti frá Is-
landi. Vonandi að hann fari ekki
að eins og hinir, að hverfa burt
þegar fólkið er farið að kynnast
honum. Asniundur hefir getið sér
góðan orðstýr hér, og er mönnum
eftirsjá að honum.
íslendingadagur var haldinn hér
3. ágúst og fór hann vel fram í
alla staði, að heita mátti. Fólk
sótti daginn víðsvegar að og var
hann mjög fjölmennur. Ræður og
hvæði voru góð. en ekki tel eg uauö
n að fara mörgem orðum um þau
þv! líkkjia bi'-tast hvortveggju i b'.öð-
unum. ,
Upfiíkeruhorfur eru góðar eftir
þvi sem út leit um tíma, en þó held
eg að tæplega geti orðið meðalár. —
Lítið er bygt í bæjum hér í ár, nema
helzt svolítið í Wynyard, enda er það
aðalbærinn milli Yorkton og Saska-
ioon.
Skrítilega þykir okkur ritstjóri
Heimskringlu hafa lesið vínsölu-
bannslögin okkar hér vestur frá, þar
sem hann segir að engin takmörk séu
þar sett vínsölunni. Mér finst þú
ættir að prenta upp í Lögbergi nokkra
kafla úr vínsölulögunum okkar til þess
að fræða starfsbróður þinn, fyrst
hann veit ekki betur en þetta.
Með tíðindum má telja það, að
fiskur hefir veiðst í Foam Lake í
snmar, og er það í fyrsta skifti sem
menn vita til; hefir fiskurinn komið
i vor í vatnavöxtum eftir lækjum úr
stórvötnunum. Þar sem nú er verið
að fiska, var heyjað á þurru þegar
frumbyggjar Vatanbygða komu hing-
að fyrst.
báíir meðal atkvæðamestu stjóm
n álamanna á Englandi, hafa sagt
sig úr stjórninni, vegna þess að
þeir eru andstæðir striðsstefnu
hennar. Þeir eru báðir eindregnir
á móti stríði og heimta frið.
19. Júlí var séra Eggert Pálssyni
á Breiðabólstað haldið fjölment og
virðulegt samsæti í tilefni af því aö
hann hefir verið prestur í 25 ár.
Var honum gefið vandað gullúr með
áletrun: “Séra Eggert Pálsson. I
minningu 25 ára prestskapar. Með
ást og virðingu frá sóknarbörnum
hans.” En konu hans var gefinn
gullhringur með rauðum rúbis steini
og tveim geislasteinum. Innan i
hringinn var grafið: “G.H. 1889-
1914.”
Tíðarfar á íslandi yfirleitt ágætt
þegar síðast fréttist; samt var hafís
í Júlí-mánuði út frá Vestfjörðum og
fórst þar norskt selveiðaskip 6. Júlí.
Voru á því 10 manns, er allir björg-
uðust.
Nýlega er látin frú Ragnhildur
Sverrisson. ekkja S. E. Sverrissonar
í Reykjavík 82 ára gömul.
Feld hefir verið fjárveiting til á-
framhalds á rannsókn í sambandi við
j árnbrautarmálið.
réttindamálið. Um það verða I ^'r Þe'r láti máltn afskiftalaus.
greidd atkvæði í haust í nokkurum ágúst. Þýzkar hersveitir fara
stöðum Bandaríkjanna, þar á með- I y^'r
al í Nebraska, heimaríki Bryans.
Mrs. Woodrow Wilson
dáin.
Kona Wilsons Bandaríkjafor-
seta lézt á föstudaginn var eftir
nokkurra mánaða legu í tauga-
sjúkdómi.
Stríðs molar.
Konur frá Servíu og Monte-
negro, eru að skrásetja sig til þess
að fara í striðið móti Austurríki.
$24,000,000 í gulli voru sendar
frá Bandaríkjunum til Evrópu
28—29 júlí.
Ráð er gert fyrir að 20,000,000
rnanns verði kallaðar til hemaðar
og helmingur þeirra taki virkilega
þátt í striðinu.
landamæri Frakklands og
smáorustur verða. Hersveitir
Þjóðverja og Rússa mætast á
landamærum þeirra landa, en
mannfall litið. Bretar kalla fram
sjóvarlið og búast til hersötnunar
á landi.
3. Englendingar taka málstað
Frakka og segja Þjóðverjum frá
því að þeir muni veita mótstöðu.
ef ráðist \erði á norður- og vest-
1 rstrcndur Frakklands. Þjóð-
verjar ráðast inn í Bólgíu. Sendi-
herra Þjóðverja fer frá París.
Þjóðverjar senda orðsending til
Belgja og biðja leyfis að mega
láta her sinn fara þar yfir í friði
til Frakklands. Belgir neita því
og Englendingar samþykkja þá
neitun þeirra.
4. ágúst. England sendir Þýzka-
lanli orðsendingu og krefst- þess
að Belgpa sé látin í friði sem óháð.
Þjóðverjar neita því og segja þá
hvorir öðrum stríð á hendur,
Þjóðverjar og Englendingar. Síð-
an hefir alt gengið í þófi.
' Snæljós heitir kvæðasafn Jakobs
Thórarensens, sem verið er að prenta
Stjómin á Englandi hefir sam- ' Gutenberg á kostnaö Jóhanns Jó-
þykt að leggja fram $525,000,000 hannessonar-
ti' herkostnaðar. j Lengdur hefir verið hluta áskrifta-
fresturinn í Eimskipafélagi Islands til
Belgíu konungur er sjálfur her- 1. Nóv. í haust. þannig, að þeir sem
foringi fyrir liði s: u og þykir þá hafa skrifað sig fyrir hlutum í fé-
hugprúður mjög. laginu og greitt þá, öölast að öllu
leyti sömu réttindi og stofnhluthafar.
Þýzkt loftskip kastaði þremur —Þetta er gert vegna peningaskorts
sprengikúlum á víggirta borg á °S harðinda, sem verið hafa í ár.
Frakklandi 3. ágúst og gerði tals- „ , ~.~ . .... „ , .
~ ö . Tvær bifreiöar komu til Reykja-
verðar skemdtr. 1 víkur 22. Júlí, önnur til Jónatans
Heljarmikið mannvirki er það forsteinssonar er það sú fimta sem
sem nylega er lokið 1 Bandardcjun- reis gveins ^ddssonar.
um. Það er skuruðr mnli Þorsk-
höfðaflóa og Buzzardsflóa í rík- Nýr tannlæknir danskur er nýkom-
inu Massachussetts; styttir hann inn til Reykjavíkur, og verður að-
leiðina milli Boston og New York stoðarmaður Brynjólfs Bjömssonar.
um 70 mílur. Skurðurinn var , . ,, , , ...
. „ ' „ ..... I Þyzkur skolakennari kom tu
vigður og opnaður 27. juli; hann Reykjavíkur nýlega og verður þar
er 13 milna langur, 25 feta djúpur vetrarIangt. Hann á að kenna þýzk
og frá 100 fetum til 250 feta fræði við háskólann, og gotnesku.
breiður. I Kann hann íslenzka tungu vel, ritar
I hana ágætlega og talar nokkurn veg-
Maður nokkur í Belgíu, sem inn.
Nestor Vilmart heitir ogerbanka-í
stjóri, járnbrautakonungur, blaða-
eigandi og íþróttamaður, hefir
verið dæmdur í 10 ára fangdlsi og
$800 sekt, fyrir það að selja of-
hátt hluti í járnbrautarfélagi 1912.
LTpphæðin, sem hann þannig sveik
út, nam $3,400,000.
Nýja Island.
Hér á Gimli logar alt í ófriði út
úr skólamálum. Sundrungin er milli
þeirra B. B. Olsons og Guðna Thor-
steinssonar annars vegar, og Árna
Thordarsonar hins vegar, sem allir
eru í skólanefndinni. Kemur þeim
ekki saman um það, hvort skólinn
skuli fluttur eða hvar bygður og
ýmislegt fleira ber þeim á milli.
Hefir komist svo langt, að málsókn
hefir verið hótað á víxl. Bæjarmenn
eru skiftir og fylgja sumir Árna en
aðrir Olson og Guðna.
Bæjarstjórinn okkar tók á sig rögg
nýlega og kærði bæði hótelin fyrir
óleyfilega vínsölu ; fékk hann þau
bæði sektuð um $200 hvort og á hann
miklar þakkir skilið fyrir þá rögg-
semi..
Um íslendingadaginn þarf eg ekki
að segja margt; hans hefir verið
minst í blaði þinu áður. Að eins lang-
ar mig til að geta þess, að svo er al-
ment litið á að Kristinn Stefánsson
hafi aldrei gert betra kvæði en það,
sem hann flutti þar; eg hefi ekki
mikið vit á skáldskap, en mér finst
það bera af flestum kvæðum, er við
samskonar tækifæri hafa verið flutt.
Þess má geta, að þótt Islendingadag-
urinn færi að flestu leyti vel úr hendi
og mörgu leyti ágpetlega, þá fór það
leiðinlega, að búöum skyldi vera
haldið opnum á meðan á hátiðinni
21 Júli aridaðist Páll Jónsson
stýrimaður á skipinu “Skallagrímur”.
Hann var um fertugt og dó úr lungna
bólgu.
Loftfari sem Gran heitir flaug
30. júlí yfir Norðursjóinn á fjór-
um klukkustundum og 10 mínút-
um. Fór hann að meðaltali 76
milur á klukkutímanum.
Hraðasta flug yfir Alpafjöllin
er það sem átti sér stað 6. ágúst.
Italskur loftfari sem Achillo
Landini heitir og læknir að nafni
Lannpugnani fóru af stað frá Nov-
óra á Italíu kl. 5 að morgninum.
og fóru yfir fjallgarðinn Monte
Posa, sem er 15,217 feta hár. Þeir
komu heilir á húfi til Visp kl.
7.30 og höfðu farið 100 mílur.
Þeir höfðu vilst á leiðinni vegna
skýja, og lá við að þeir létu lífið
af kulda. Stjórnin á Svisslandi
hélt þeim heiðurssamsæti.
Barnadauði hefir minkað afar—
mikið í öllum siðuðum löndum að
undanfömu, nema á Rússlalndi.
Þar hefir hann staðið í stað í 25
ár. Skýrslur, sem nýlega eru
komnar út yfir árin 1900—1911
sýna að af öllum bömum sem fæð-
ast á Rússlandi deyja 25% innan
6 mánaða. Mestur er bamadauð-
inn úti á landinu, hann er þar 88%
Stríðið og Island.
Svo hljóðandi símskeyti kom fyrra mánudag til B. L. Baldwin-
sonar:
“ífceykjavík, 3. Agúet 1914.
Baldwinson,
Winnipeg.
Er það mögulegt, að útvega gufuskip með
matvæli eftir þörfum meðan stríðið stendur
yfir?
Eggerz.”
1 tilefni af símskeyti þessu kallaði Baldwinson til fundar
heima hjá sér á mánudagskveldið klukkan 8. Voru þar
mættir þessir menn: B. L. Baldwinson, séra í'riðrik
Bergmann, Hjálmar Bergmann, Jón J. Bildfel; Skafti
Brynjólfsson, Thos. H. Johnson, Thorsteinn Oddson,
Magnús Paulson, Hannes Pétursson, Joseph Skaptason,
Olafur S. Thorgeirsson, ritstjóri Heimskringh; og rit-
stjóri Lögbergs. Nokkrir aðrir höfðu ætlað sév að vera
á fundinum, en komu því ekki við.
Samþykt var að fela B. L. Baldwinbon að síma til
dönsku ræðismannanna í Boston og New York og grensl-
ast eftir hvað þeir gætu gert í þessu máli. Sömuleiðis
var lionum falið að senda ráðherra Islands svohljóð-
andi símskeyti:
“Winnipeg, 3. Ágúst 1914
Verið að leitast fyrir um málið við danska
ræðismenn í Boston og New York. Læt yður
vita nánara síðar.
Baldwinson.”
Ekkert ákveðið hefir verið hægt að gera í þessu máli að svc
komnu, en séra Friðrik Bergmann, sem var að fylgja séra Jóní
Helgasyni til skips, var falið á hendur að leita fyrir sér í New York
um það, hverju mögulegt væri að koma til vegar i því efni.
Jóhann Sigurjónsson skáld hefir
lokið við nýtt leikrit, er heitir
Galdra-Loptur. Afhenti hann það
konunglega leikhúsinu 1. Ágúst; sagt
er að hann muni senda til íslands í
haust íslenzka þýðingu af því.
Náttúrufræðisfélagið hélt 25 ára
afmælisfund í Reykjavík 16. Júlí Eru
nú að eins tveir stofnendur þess fé-
lags lifandi, þeir Stefán Stefánsson
skólastjóri á Akureyri og Magnús
Stephensen fyrrverandi landshöfö-
ingi. Á orði er það haft, að gefa út
25 ára afmælisrit félagsins.
Dýravemdarfélag var stofnað i
Reykjavík 13. Júlí. Formaður þess
er Tryggvi Gunnarsson og ritari
Jóh. ögm. Oddsson.
Þjóðhátíð héldu Frakkar á íslandi
fþeir sem þar voru) 14. Júlí.
Strengleikar heita þrjú lög nýkom
in út eftir Jónas Tómasson. Þau eru
samin við Strengleika Guðm. Guð-
mundssonar.
Hlaðafli á Eyjafirði og víðar við
land. z
Heiður Islendingum,
Nokkrir Skandinaviskir blaða-
menn komu til Winnipeg á mánu-
daginn; voru þeir danskir, norsk-
ir, svenskir og finskir. allir frá
Bandaríkjunum, og eru á skemti-
ferð um Vestur-Canada.
Nokkrir Islendingar mættu þeim
hér, og höfðu þeir það á orði, að
gaman væri að fá að heyra sungna
nokkra íslenzka söngva. Gengust
þeir þá fyrir því séra Björn Jóns-
son og Jón Vopni að um 20 söng-
mönnum var safnað saman ogj
sungu þeir nokkur lög.
Söngnum stjórnaði Brynjólfuri
Thorláksson og Steingrímur Hall
lék undir á hl’jóðfæri. Er látið
mikið af því hversu ágætlega söng-
urinn hafi tekist.
Formaður fararinnar hélt ræðu
á eftir og lauk miklu lofsorði á
það, hversu vel hefði verið sungið
og hvílík skemtun það hefði verið
að hlusta á hið hljómfagra og
sterka systumiál hinna annara
skancfinavisku landa — íslenzkuna.
Kvað hann þá stund mundu verða
eina meðal hinna ánægjulegri í
endurminningum þessarar ferðar.
Er það heiður mikill Löndum hér
í bæ að vera svo söngfimir að geta
konrið jafn myndarlega fram, án
undirbúnings, og þeir gerðu í þetta
skifti.
Jón Vopni og séra Björn Jóns-
son fóru með flokknum vestur í
land, séra Björn til Saskatoon en
Vopni líklega alla leið vestur á
Kyrrahafsströnd.
ið sér lengur og dmknaði hann.
Bátinn bar inneftir og reynd Gunn-
ar af veikum burðum að róa sér
áfram með höndunum. Loks sást
til hans frá Hvítanesi og brugðu
menn þá við og björguðu honum.
var hann þá svo aðfram kominn
að litíu munaði að hann gæti ekki
haldið sér.
Oddur bóndi var um sextugt.
hafði búið lengi í Melasveit en
fluttist í vor að Súlunesi. Hann
var einkar vel látinn maður. A
allmörg uppkomin böm. Lík hans
er ófundið enn. — ('Visir).
Bi ta r.
Slys.
3000 dalir er goður skildingur
i þessum harðindum fyrir gafna-
gauls .ræður.
Canada stjórnin er í vandræð-
um með vinnu handa fólki og
verður að hætta við opinber nauð-
synjafyrirtæki, en hún getur lagt
fram $100,000,000 (hundrað mil-
jónir dollara) til stríðsins.
Tvö stórmenni hafa lýst þvi yfir
nýlega aö kvenréttmdamálið verði
framvegis þeirra mál; það eru þeir
William Jennings Bryan og rit-
stjóri Heimskringlu. — Tímarnir
breytast og mennirnir með.
Mikill slembilukku maður er
Roblin; þegar alt var komið í ó-
efni hjá honum, og tæplega hægt
fyrir hann að komast hjá rann-
sókn, þá kom striðið til þess að
draga athygli manna frá þvi. —
Ilt hjálpar illum.
Vogatungu 22. júlí.
Á fimtudaginn var fóru feðg-
arnir i Súlunesi, Oddur Gunnars-
1 son bóndi og Gunnar sonur hans
_ . ............ . I kaupstaðarferð út á Akranes með
Deildarforineia skifti eru orðin 1 .. . . ,
tj-'t f , .. ’ ull, fluttu þeir hana a pramma.
Hjalpræðishernum a Islandi. h,r N. ’ . . } , ,, . r. , . .
Edelbo farinn. en í hans stað kominn'0^" eftir heldu þeir heimletðis
bingvísa.
Nú fer deildin allvel að:
Alt er leyft .og bannað,
samþykt, felt og hver veit hvað
hvað ofan í annað.
maður, sem S. Granslund heitir. Sam-
sæti var Edelbo haldið áður en hann
fór.
Nýútkomin skýrsla um simskeyti á
íslandi sýnir það, að tekjumar hafa
sexfaldast síðan 1912 á símtölunum,
en kostnaður aukist miklu minna.
Látinn er úr kíghósta Hersteinn
sonur Jens B. Waage og konu hans.
Hann var hálfs annars árs gamall.
Dr. Orok kvað eiga í þungu
hugarstríði þessa daga um það.
hvort hann eigi að bita í fimtíu
þúsundimar og vera með skömm.
eða bjarga heiðri sínum þannig
að fara með sæmd. “A eg að vera
eða fara, eða gera hvað?” er sagt
að hann rugli nú fyrir munni sér.
$10.000 handa einum til að gefa
kost á sér, $15,000 til annars fyrir
það sama; $3,000 til hins þriðja
fyrir nokkrar slógræður; $50,-
000 til hins fjórða fyrir að fara
og $50,000 til hins fimta fyrir -að
vera. — Það er ekki ofsögum sagt
og höfðu fullfermi af kaupstaðar
varningi. Veður var ágætt, nær
logn, en nokkurt brim í “ósunum”
innundir Hvítanesi. Þegar þang-
að kom fylti pramman hjá þeim
og hvolfdi hann. Þeir komust
báðir á kjöl en þar var mjög ílt
að halda sér og losnuðu þeir frá þótt Baldvin segði það i agents
prammanum hvað eftir annað. ræðu á Islandi, að í Canada væru
Þegar svo hafði gengið lengi dró allir hugsanlegir og óhugsanlegir
svo af Oddi að hann gat ekki hald- atvinnuvegir.