Lögberg - 20.08.1914, Blaðsíða 5

Lögberg - 20.08.1914, Blaðsíða 5
LÖGBERÖ, FIMTUDAGINN 20. ÁGÚST 1914. The Empire Sash & Door Co. ------------- Limited ---------- HENRY AVE. EAST - WINNIPEG VIÐUR ”LATH“ ÞAKSPÓNN Fljót afgreiðsla. Abyrgst að kaupendur séu ánægðir THE ALBERT &0U&H SUPPLY CO. BYGGINGAEFNI OG ALLAR VIÐARTEGUNDIR OFFICE: 411 TRIBUNE BUHjDING - - PHONE: MAIN 1246 WARE HOUSE: WALL SREET. PHONE: SHERBROOKE 2665 minni íslands; þaS hefir veriö hans hlutverk síöan fyrst að hann kom hér, og er þaö sterk sönnun þess, aö hann leysir þann starfa vel af hendi. Kristján Jónsson talaöi fyrir minni Canada, en prófessorinn mælti nokk- ur lofsyröi um Vestur-íslendinga og stefnuskrá búnaðarskólans í Olds. ísland held eg hann þekki ekkert; gott ef hann veit hvar þaö er á hnettinum, en ræöan var löng og skörulega flutt. Ekki ætla eg mér þá dul aö þylja efnið úr ræðum ræöu- mannanna á Islendingadagpnn; en eitt atriði get eg ekki annaö en minst á í formálanum fyrir minni íslands. Hann saman stóö af smá-atriðum, sem oft var hlegið aö. Eitt var um fyrstu þjóöhátíð íslendinga í Mil- waukee í Wisconsin í Bandaríkjun- um 1874. Einn af áheyrendum þeirr- ar hátíðar var nú forseti dagsins, á fertugasta þjóöhátiðar-afmæli sinu og Vestur-íslendinga. Þar höföu öll stórmenni Vestur-íslendinga þá ver- ið saman komin og forseti þeirrar há- tíðar var að sögn Ólafur Ölafsson frá Espihóli. Sagnritaíinn hans O. S. Thorgeirssonar í almanökunum, ætti að ná i sagnir, ræður og nýort kvæði ef til eru af þeirri fyrstu þjóðhátíð Vestur-lslendinga 1874; ef hann er ekki búinn að því. Tíðarfar heitt og þurt; haglstorm- ur æddi hér yfir 28. Júlí; skemdi og eyðilagði akra meira og minna beggja megin Red Deer árinnar, en þó mest suðaustur af bænum Innisfail; í bæn- um til dæmis brotnuðu um 250 rúður, blómabeð og kálgarðar eyðilögðust; nokkrir landar með fram ánni urðii fyrir talsverðum skemdum á ökrum, kálgörðum og engi; hjá mér sprengdi haglið kornið af stönginni og hjá ná- grönnum mínum. Kornskurður byrjaði hér 6. Ágúst hjá tveim bændum, en alment held eg! hann byrji um miðjan mánuðinn eða [ seinna. Heyskapur gengur vel; nýt- ing góð, harðvelli sízt; strá lágt, en axið býsna gott, þar sem það er ó- skemt. Olíu-“boomið” dó út með stríðs- fréttunum; öll lán af tekin. /. Björnsson. betta cr lausleg þýðing á grcininni, sem Björnson getur um. Markerville, 4. ágúst 1914. í gær var enn þá haldinn íslenzkur þjóðminningardagur hér. Engir bænd- ur voru við heyvinnu, þrátt fyrir það, þótt glaða sólskin væri allan daginn, en allir vörðu deginum til skemtunar á hátíð Islendinga, sem er gleðifólk niikið, eins og aðrir Skandinavar. Það virðist samt vera næsta undar- legt, að þessi þjóð skuli halda eins há- tíðlegan annan ágúst og hún gerir; daginn sem er sameiningardagur ís- lands við Danmörku; því íslenzkar bókmentir skýra svo frá, að þjóðin sé mjög óánægð með sambandið; því í staðinn fyrir vernd og frelsi, eins og ■heitið var möð sambandslögunum, hef ir Danmörk sogið merg og blóð úr ts- lenzku þjóðinni með þungum skatta- álögum og niðurlægingu fyrir ísland, bæði félagslega og stjórnarfarslega. Svo virðist sem betur ætti við að Is- lendingar héldu sorgarhátíð 2. ágúst, til þess að láta í ljósi vanþóknun sina á sambandinu, sem svifti þá frelsi, en að halda gleðihátíð í minningu þess að þeir hafi á móti vonum sínuni ver- ið rændir frelsi og sjálfstæði sem þjóð og heimilum þeirra og þjóðlífi þannig stofnað í háska. Má vera að einhver íslenzkur mentamaður geti gefið heim- spekilega skýringu á því, að Islending- ar halda almenna gleðihátíð til minn- ingar um þetta. Má vera, að þrátt fyrir hnefaréttinn, sem þeir hafa þannig verið beittir af sterkari þjóð, sem þó er þeim nákomin, þá telji þeir það vænlegra til sigurs að gleyma misgjörðum hinnar sterkari systur og hugsi sér að keppa að hærra takmarki frelsis og framfara og vinna það þannig með jafnaðargeði, sem ekki var hægt að vinna með afli. Má vera að þeir á þennan hátt ætli að láta Dani skammast sín fyrir fyrri gjörðir og gefa eftir af þeim ástæðum.” Athugasemd.—Þótt undarlegt megi virðast, þá er þetta að sumu leyti sama skoðun, sem fram er haldið af sumum íslendingum. Þeim finst það óviðurkvæmilegt að halda hátíð í minningu þess að ísland fékk stjórn- arskrá, sem þjóðin er ekki ánægð með °K vill breyta. En þetta er misskiln- mgur. Þjóðin heldur þessa hátíð í minningu þess, að með þeirri stjórn- arskrá sem þá fékst, fengust hinar fyrstu stjórnarbætur á íslandi sem teljandi séu; frá þeim tíma má telja aÖ ísland hafi fæðst í þeim skilningi að það hefði nokkur ráð. Þá var lagður aðalgrundvöllur að sjálfstæðis- möguleikum íslands og á hann hefir verið bygt og er verið að byggja og verður haldið áfram að byggja. Það er í minningu þess að hátíðin er hald- in, og það er sannarlega þess vert. Það atriði greinarinnar, að íslandi sé ofþyngt með sköttum frá Dana hálfu, þarf ekki að ræða; allir Islend- ingar vita að því er alls ekki þannig varið nú. Samband íslands við Danmörku er yfirleitt fullkomlega eins frjálslegt og samband Canada við England, og meira að segja að sumu leyti enn þá frjálsara. A Iftavatnsbygð. Lík af ókendum manni, sem allar líkur benda til að hafi verið myrtur, fanst í heyhrúgu sem kveikt hafði veríð í skamt frá Deer Horn, á fimtu-* daginn var. Gat var á hauskúpunni eftir skammbyssuskot, og hlaðin skammbyssa fanst skamt frá líkinu. Líkið var brunnið að miklu leyti og auðséð var, að hey hafði verið borið á líkið og síðan kveikt í. Vel þótti þeim hafa tekist, leik- fimisfélögunum héðan á Islendinga- daginn, ekki meiri æfingu en þeir hafa haft; sýnir það berlega, að hér eru hraustir menn, sem mikils má af vænta í framtíðinni, enda munu þeir hafa það í hyggju, að auka heldur við sigurlaunin. Barnastúka með 28 meðlimum var stofnuð hér fyrir nokkru af Mrs. B. Blöndal frá Winnipeg. Nýja bifreið keypti Dr. Blöndal fyrir skemstu. Mun hann hafa hennar fulla þörf, því hann hefir allmikla aðsókn, enda hefir hann getið sér góðan orðstýr hér í sumar. Norður Dakota. Magnús Johnson Dondi nálægt bænum Adams várð fyrir eldingu fyrra föstudag, þar sem hann var að slá akur sinn, og dó samstund- is. Fyrra föstudag andaðist Dóm- hildur Stefánsdóttir Johnson á Mauntain hjá bróður sínum Ar- mann Stefánssyni. Hún hafði verið veik í sex mánuði og dó1 úr krabbameini. Mrs. Johnson var 42 ára gömul og kom heiman frá íslandi fyrir þremur árum til þess að stunda föður sinn, sem heima á 'hjá Ármann syni sínum og er 92 ára gamall. Þresking byrjaði alment í Norð- ttr Dakota þann 14. ágúst. Hveiti sem búið er að þreskja er mest númer 1. VatnabygQir. Heilmikið hefir gengið á í Wynyard að undanförnu; lög- reglustjórinn hefir fengið hverja kæruna á fætur annari; sumar fyrir áflog, aðrar fyrir meiðsli. Óvíst hvernig fer. Lögreglustjór- inn er írskur og heitir McNamee. Samkomuhús hefir verið bygt á Kandahar og var þar 'haldin fyrsta samkoma 5. ágúst. Var mikil þörf á þessu húsi. Nýlega er látinn Stefán Johnson nálægt Kandahar. Hann var rétt um áttrætt. Hafði hann orðið fyrir slysi fyrir fjórum árum og aldrei náð sér eftir það. Johnson var faðir J. G. Stefánssonar bónda og átti hann heima hjá honum. Hann lætur eftir sig ekkju og tvo syni, Magnús sem heima á í Selkirk og Johnson sem hann átti Jieima hjá. Samkomuhús hefir nýlega ver- ið bygt í Wynyard og er það þriðja samkomuhúsið þar í bœnum. Kristján Anderson frá Kristnesi og Maria Ólafson frá Quill Plains voru gefin saman í hjónaband af séra Háraldi Sigmar að heimili foreldra brúðarinnar 14. júlí s. 1. Samdægurs héldu þau til Winni- peg og dvöldu þar viku tíma. Er Kristján nú seztur að á heimilis- réttarlandi sínu 4 mílur austúr af Leslie. Nýja-Island. Heiðraði ritstjóri Lögbergs:— Viltu gjöra svo vel og lána eft- irfylgjandi línum rúm í þínu heiðraða blaði, þvi það er fremur sjaldan, sem fréttapistlar sjást í blöðunum úr þessu bygðarlagi. Er þó bygð þessi mörgum Islendinga- bygðum blómlegri og fegri, og kannske fult svo sögurik og hinar. Það er ekki meimng mín að skrifa langa fréttagrein, því til þess er eg lítt hæfur; en aðal or- sökin fyrir því að eg drap niður pennanum er sú, að nýtt félag hefir verið stofnað hér, sem eg álit þess virði að minst sé á opin-) berlega. Þetta félag, sem er grein út úr komyrkjumannafélaginu var myndað hér snemma í vor, og er nefnt eftir bygðinni, eða “Geysir Branch”,. Voru fjöldamargir við- staddir á þeim stofnfundi, og gengu allfléstir inn um leið, og síðan hafa meðlitnir bæzt við á hverjum fundi. Maður var sendur frá Winnipeg, til þess að stofn- setja þetta félag, ásamt annari deild sem hann stotnaði í Víðir- bygð. Hann útskýrði stefnu, vöxt og viðgang komyrkjumanna fé- lagsins í þessum þrem sléttufylkj- um, og gat um þá örðugleika, sem það hefði átt við að stríða í byrjun;! um þær ýmsu umbætur, sem! snertu verzlun bænda, sem það hefði til leiðar komið, og alla þá mótspymu sem það hefði fengið frá jámbrautar- og mylnufélögum og jafnvel frá stjóminni, sem vanalega stæði með auðfélögunum. eins lengi og hún sæi sér fært. Aðal tilgangur þessa félags- skapar er að vinna að velferð og heill bændastéttarinnar með öllu löglegu og heiðarlegu móti Fylgj- ast með löggjafaratriðum lands- ins, og beita sínum áhrifum, fsem betur megi fara) með sterkum og velvöldum fulltrúa sendinefndum. Líka til þess að glæða og auka hjá meðlimum víðtækari þekkingu. með stofnun lestrarstofa og ann- ars þess sem gæti orðið til ment- unar og upplýsingar andlega og likamlega. Getur svo þetta félag tekið þátt í velferðarmálum þjóð- arinnar í sambandi við aðalfélagið. Eins getur það verzlað með afurð- ir meðlima sinna og keypt sínar nauðsynjar í gegnum aðalfélagið, eða þá deild þess sem hefir um slíkt að fjalla, og orðið þannig að- njótandi í sanngjömu heildsölu- verði og viðunanlegum markaði. Vil eg minna alla meðlimi þessa félagsskapar á Geysi að athuga þetta, sem hér er minst á, viðvíkj- andi stefnunni, og færaj sér það í nyt; eins umfram alla inuni að sækja vel fundi og styðja félags- skapinn af fremsta megni, því það er sannarlega að vinna fyrir sinni eigin velferð og framtíðarheill. Svo eg skjóti nú inn í nokkru öðru, úr því eg er kominn svona langt; þá hefir tíðarfarið í vor og sumar verið það allra ákjósanleg- asta, og uppskeruhorfur þvi mjög góðar, enda mun ekki af veita, ef við verðum krafðir um margar $50,000,000, fimtíu miljónir, í þessa sjálfsvarnar og föðurlands baráttu brezka ríkisinsj Héðan verða eflaust send mörg járnbrautarhlöss af hveiti, höfr- um og byggi í haust, eða alt að því helmingi meira en i fyrra sumar; og er þá heldur farið að rætast úr fyrir aumingja Nýja-Islandi. Því sú var tíðin, að þeir þurftu frek- ar að kaupa ofan í sig og skepn- ur sínar, en að senda kornvöruna frá sér. Sumir hér um slóðir hafa nú yfir 100 ekrur undir ræktun. Heilsufar manna hefir líka ver- ið hér ágætt. Hraust fólk, og lít- ið fyrir læknirinn að gera. Verð- ur þá sem áður, einn að líða fyrir fjöldann. Það er eitt enn, sem eg vildi lítillega minnast á, áður en eg hætti; og það er þessi stóra mold- veðursalda, sem rís á undan kosn- ingum, og fellur að baki þeirra. Ein sú alda valt að okkur um þess- ar nýafstöðnu kosningar. Svik. lýgi, mútur; allar vammir og skammir sem nöfnum tjáir að nefna, eru þá bomar upp á and- stæðingana og þeir útataðir i þeim. í því augnamiði að glepja fyrir al- múganum og villa honum sjónir. Það kvað nú svo ramt að fúkyrð- um og ókurteisi hér í fundarsat bygðarinnar, að konur, sem við- staddar voru, máttu ganga af fundi. Og er það í fyrsta sinn í þessari bygð, að svo óskammfeilið orðalag hefir átt sér stað á opin- berum fundi, og þó mesta furðan hvaðan það kom, nefnilega frá Skafta Brynjólfssyni. hínum nafn- kunna. Konur bygðarinnar höfðu fjöl- ment á þennan fund, og sýndi það áhuga og félagslyndi; bjugg- ust þær við góðri skemtun, en svo fór, að þær máttu frá hverfa. Og er þetta þó þeirra eigið hús. Þær hafa haldið við sínu félagi, gegn- um þykt og þunt; gegnum heitt og kalt; nú upp í 15 ár. Þær hafa bygt fundarsal fyrir bygðina. Þær hafa rétt nauðstöddum hjálpar- hendur þegar þörf hefir gerst. En samt em þær snoppungaðar; fyrst af stjórninni, í þessu svokall- aða frelsislandi Canada, með því að þeim er neitað um réttinn að taka þátt í landsins heilla- og vel- ferðarmálum, með atkvæðum sin- um. Og svo næst með gífurlegum klúryrðum á almennufn fundum, frá talsmönnum stjómarflokksins. Þegar þær em þar komnar að fræðast um aðferðir stjómarfars- ins. Er þessu nú bót mælandi. Eg segi nei! Yðar einl. G. O. Einarsson. Komizt áfram. meS því aS ganga á. Success Business Óollege á Portage Ave. og Edmonton St., eSa aukaskólana' I Regina, Weyburn, Moose Jaw, Calgary, Lethbrdge, Wetasklwin, Lacombe og Vancouv- er. Nálega allir lslendingar 1 Vestur Canada, sem stúdéra upp á verzlunarveginn, ganga á Success Business College. Oss þykir mikiS til þeirra koma. þeir eru góSlr námsmenn. SendiS strax eftir skðlaskýrslu til skólastjðra, F. G. GARBUTT. President D. F. FERGUSON, Principal. Vinna fyrir 60 menn Sextlu manns geta fengiS aSgang aS læra rakaraiSn undir eins. Tll þess aS verSa fullnuma þarf aS eina 8 vikur. Ahöld ðkeypis og kaup borgaS meSan veriö er aS læra. Nem- endur fá staSi aS enduSu námi fyrir 815 til 520 á viku. Vér höfum hundr- uS af stöSum þar sem þér getiS byrj- aS á eigin reikning. Eftirspum eftir rökuruiu er æfinlega mikll. SkrlfiS eftir ðkeypis llsta eSa komiS ef þér eigiS hægt meS. Til þess aS verBa gðSir rakarar verSiS þér aB skrifast út frá Alþjóða rakarafélaginu. Ó, heim; ó, heim. Ó, hcim; ó, heim, til landsins ljúfa mín, löngun er og hjartans þrá, ég ógna hafsins öldur kljúfa vil eins og fiskur kaldan sjá. Til þess að lita íshafs eyju og ástarblíða frelsismeyju. Sem elding þjóta skruggur, skúrar, og skunda’ um víðan himingeim, — eg vildi, Frón, sem krummi kúra í klettasprungu, fjWa heim, og hjá þér una alla daga og auð og kraft úr björgum draga. Ó, heim; ó, heim i draumlands dali mig dregur hugðnæm töframynd, þars rósum stráður brosir bali og brotnar geisli á jökultind, þars fossins drynja dimmu hljóðin og dafna bezt mín hjarta ljóðin. Ó, heim; ó, heim, æ alt mig dregur, hver æskuminning, fjöllin blá. þar Ægir gamli ýmislegur, er úfinn, sléttur; hraunin grá. Eg alsæll væri ef einu sinni ég Island liti i fjarlægðinni. /. G. Hjaltalín. Almennar fréttir. Félögin neita því að þau beri ábyrgð á gerðum umboðsmanna sinna, en það þykir ekki trúlegt að umboðsmennimir geti gert lög- lega samninga fyrir hönd félag- anna, en félögin beri samt enga ábyrgð á gerðum þeirra. Geysimikill eldur ’hefir verið í bænum Detroit í Michigan að undanfömu og valdið voðalegu eignatjóni. Þegar stríðið byrjaði skipaði Bretakonungur að láta lausar all- ar kvenréttindakonur, sem í fang- elsi voru; en þær lofuðu því aft- ur á móti að leggja niður allar ó- spektir, á meðan á stríðinu stæði. Kvenréttindafélagið lýsti því yfir. að, það hætti á meðan aðalstörfum sínum, en tæki í þess stað að vinna að því að hjálpa þeim sem þess þyrftu í sambandi við afleið- ingar stríðsins. Þegar þinginu var slitið á Eng- landi io. ágúst, lýsti Asquith því yfir, að hann hefði góða von um, að geta miðlað svo málum meðal Ira, að allir yrðu sáttir. Svíþjóð og Noregur hafa lýst því yfir, að þau tækju alls engan þátt í stríðinu. Haglstormur mikill kom á sunnudaginn í kring um Portage la Prairie og gerði afarmikinn skaða; hveiti, bygg og hafrar eyði- lögðust; rúður brotnuðu í húsum, hænsni drápust viða og allskonar tjón leiddi af haglinu. Þriggja ára gamall drengur varð fyrir gufuvagni á Winnipeg Beach á mánudaginn og beið bana af. Pilturinn var sonur A. C. Miller, sem heima á að 455 Stiles str. hér í bænum. Konur á Þýzkalandi hafa verið kallaðar til þess af keisarafrúnni að leggja fram alla krafta í þeirra( valdi í herþjónustu. Hvetur hún þær til þess að standa við hlið mönnum sínum, sonum og bræðr- um, föðurlandinu til varnar. Hackin bæjarstjóri í Toronto hefir stungið upp á því við Can- adastjórnina að hún láti plægja 1,000,000 ekrur af landi í vestur- fylkjunum í haust, til þess að tryggja það að uppskera geti orð- ið sem mest að ári. Er talið víst að afarmikil eftirspurn verði eftir hveiti, og því um að gera að akr- ar séu snemma tilbúnir í vor. Páfinn er sagður hættulega veikur. Gufuskip sem G. T. P. félagið átti strandaði í gær í Chatham sundi, rétt fyrir norðan Prince Rupert. Skipið hét Prince Albert. William McKenzie aðalmaður C. N. R. félagsins, er nýkominn frá Englandi. Hann ætlaði að fá lán út á $45,000,000 ábyrgðira, sem Canadastjórnin veitti honum, en var neitað um það. Robert Bickerdike, sambands- þingmaður frá St. Lawrence kjör- dæminu i Montreal, flytur enn frumvarp um afrtám dauðadóma í Canada. Svo segja blöðin i gær að Rússakeisari hafi heitið Gyðingum fullu borgaralegu og trúarbragða- legu frelsi. $10,000,000 í gulli hafa verið lagðir inn á banka í Ottawa, fyr- ir hönd Englandsbanka, til þess að ekki þurfi að óttast peningaskort í bráð, þótt stríðið haldi áfram. Svanberg Guttormsson og Bert- ina Sigurðson, bæði frá Arnesi í Nýja Islandi, voru gefin, saman í hjónaband af séra Bimi B. Jóns- syni að 120 Emily St., síðastliðinn þriðjudag, 18. þ. m. Ekkjan Ingibjörg Sveinsdóttir andaðist að heimili sonar síns. Sveins Sigurðssonar, 576 Simcoe St. á þriðjudagskveldið var. Hún var 86 ára gömul og hafði verið rúmföst fjögur síðustu ár. Börn hennar eru Sveinn og Guðmund- ur hér í borg og Sveinbjörg í Vancouver. — Jarðarförin fer fram frá Fyrstu lútersku kirkju í dag (fimtudag). Frá Islandi komu í gær fmið- vikudag) systurnar frú Kistín Pétursdóttir, ekkja séra Lárusar sáL Halldórssonar fríkirkjuprests og Guðrún Pétursdóttir, ekkja séra Jens sál. Pálssonar; dvelja þær hér um tíma hjá systrum sín- um og öðm venzlafólki. Halldór Jóhannsson frá 848 Banning St., fór norður til Mikl- eyjar í gær, ásamt konu sinni og börnum; ætlar hann að dvelja þar um tveggja vikna tíma hjá Þor- bergi Fjeldsted, tengdaföður sín- um. Eg hafði hugsað mér að senda pilt, sem eg á, til náms á einlivem skóla, þar sem hann yrði fyrir sem beztum áhrifum; því eg tel það mikils vert atriði, þegar um unglinga er að ræða. Eg afréði að senda hann á íslenzka skólann í Skjaldborg, og er eg sannfærð um að það var vel valið. Eftir þeim áhrifum að dæma, sem hann hefir orðið fyrir og eftir öllu, sem eg síðan hefi kynst í sambandi við þann skóla, álit eg að sem flestir islenzkir unglingar ættu að nota sér hann. Eg vil sérstaklega beina þakklæti mínu til séra Runólfs. sem hefir skólastjómina á hendi; hann hefir komið fram þar sem annarsstaðar með dæmafárri lip- urð og mannúð. Ekkja. Ekki hægt að halda áfram með nein opinber verk í Manitoba fyrir féleysi, en nægir peningar í kosn- ingamútur. — Ekki vantar stjórn- semina hér i landi. 15,000 konur á Englandi em að búa sig til hernaðar. Taka þær allar saman höndum; drotningin og Mrs. Pankhurst hvað þá aðrar. Mrs. Pankhurst á að verða her- foringi. Markmiðið er að geta gripið til vopna, ef hermenn skyldu ráðast á vamarlaus heimili og ætla sér að ræna og svívirða konur, eins og oft á sér stað í stríði. Þýzka stjórnin lætur taka foringja jafn - aðarmanna af lífi Dr. Liebknect, leiðtogi Jafnað- amianna á Þýzkalandi, neitaði að fara í hemaðinn, með því að jafn- aðarmenn em andvígir stríðinu. 1 og taldi hann það brot á stefnu þeirra að taka þátt í því, en stjórn- in gerði sér hægt um vik og lét taka hann af lífi án dóms og laga; eru Jafnaðarmenn æfir mjög yfir þessu níðingsverki, sem von er. Sólmyrkur á laugardaginn. 21. þ. m. verður myrkvi á sól að morgninum. Sést hann í sum- um löndum alllengi og er full- kominn myrkvi, t. d. í Alger, á Rússlandi og sumstaðar í Skandi- navisku löndunum. Hér í norður Ameríku sést hann rétt um sólar- uppkomuleytið. Slys. Ungur maður Arthur Stevens varð fyrir bifreið á laugardags- kveldð á hominu á Aðalstræti og Portage Ave. og beið bana af. Atti hann heima að 239 Smith St1 Kona að nafni Mrs. A. L. Nares, frá 252 Roslyn Road ók bifreið- inni eftir götunni; var hún að forðast konu með bami, sem hún var hrædd um að yrðu fyrir bif- reiðinni, en svo illa tókst til að bifreiðin rakst þá á talsímastaur og stóð maðurinn upp við hann. Stevens var 19 ára gamall, kominn hingað til lands fyrir nokkrum árum; vildi slysið til á af- mælisdaginn hans. Hann var námsmaður hér í bænum, en átti enga að hér nema föður sinn. Wonderland. Ur bœnum. Steingrímur Guðnason frá Glenboro, sem getið var um í Lögbergi að skorinn hefði verið upp við krabbameini, andaðist í gærmorgun á Almenna spítalanum. Þorlákur bróðir hans frá Bald- ur hafði verið hjá honum frá þvi á Laugardag; hann hafði þá feng- ið skeyti um það að Steingrímur mundi ekki komast til heilsu aftur og brá við tafarlaust og kom til Winnipeg. Steingrímur sál. var fæddur 1. apríl 1858, á Húsavík í Suður- Þingeyjarsýslu; kom hingað vest- ur 1887. Hann lætur eftir sig ekkju og fósturdóttur. Stríðið. Fréttir af þvi eru allar óáreið- anlegar; aukablöð gefin út af Free Press og Telegram oft á dag með alls konar fréttum, sem flest- ar eru óvissar; það borið til baka aðra stundina, sem sagt er hina. Eins og Lögberg hefir skýrt frá eru allar herfréttir bannaðar í öllum ófriðarlöndunum. Þær fréttir sem blöðin flytja eru því j flestar búnar til á skrifstofum þeirra eða annarsstaðar; hafa blöðin með þessu móti stórfé út 1 úr fóikinu fyrir verra en ekki neitt, og ætti slíkt að vera bann- að með lögum og hegning lögð við. Á eftir hinni miklu skemtun. sem var á Wonderland vikuna sem leið, hefir leikhúsið nú skemtanir sem ættu að draga að sér jafnvel enn þá fleira fólk næstu viku, en þar var þá. Fimtudaginn og laugardaginn 21. og 22. verða sérstakir dagar og miljón dollara leyndarmálið sýnt; 7. partur. Þessi eina mynd er svo mikils virði, að þú ættir að vera viss um að sjá hana og fýlgja hinni áhrifa- miklu sögu til enda. Þar verður einnig fleira til skemtunar sem þess er virði að sjá og heyra og allir ljúka upp sama munni um. Á mánudaginn og þriðjudaginn 24. og 25 verða sýnd æfintýri fréttastúlkunnar “An ‘Imp’ ” i International Barber College Alexander Ave. Fyrstu dyr vestan riS Main St., Wlnnipeg. 1000 manna, sem oröiö hafa heilsulitlir, hafa haft stór- mikiB gagn af hófsamlegri brúkun á DREWRYS Redwood Lager Hreinasta malt-tonic Æfinlega eins á bragB iB og jafn góBur. REYNIÐ ÞAÐ J. J. BILDFELL FASTEIQn A8ALI Room 520 Union Bank - TEL. 268S Selur hús og lóðir og aunast alt þar aOlútandi. Peningalán Gísli Goodman TINSMIÐUR VERKSTŒÐI: Horni Toronto og Notre Dame Phone Qarry 2988 HelrallU Qarry 89S Thorsteinsson Bros. & Co. Byggja hús, Selja lóðir. Útvega lán og eldsábyrgð. Fónn: M. 2992. 815 Someraet Bldg lleiinaf : G .736. Winnlpeg, Mjuu Þetta erum vér The Coast Lumber Yards, Ltd. 185 Lombard St. Phone Main 765 prjú “yarda” J. J. Swanson & Co. Verzla með fasteignir. Sjá um leigu á húsum. Annast lán og eldsábyrgðir o. fl. 1 ALBERT^ BLOCK- Portage & Carry Phon« Main 2597 W. E. B. DuBOIS Rithöfundur svertingjanna; hinn mikli menta- og lær- dómsmaður, og framúrskar- andi mælskumaður, maður- inn sem allir kannast við fyrir göfgi og hæfileika. Heldur fyrirlestur í Convention Hall í Industrial Bureau, miðviku- daginn 16. September. tveim pörtum. Þessi saga, sem er skrifuð af einu hiftna beztu skálda vorra tíma, er þess eðlis, að hún hlýtur að falla öllum í geð. Á miðvikudaginn og fimtudag- inn 26. og 27. verða sýnd “The Trey O’Hearts”. Er það ný saga í þáttum, eftir Louis Joseph Vance. Þessi saga kemur í staðinn fyrir Lucille Love. sem var enduð í vikunni sem Ieið, er hún jafnvel enn þá skemtilegri og alveg viss að draga að sér at- hygli allra sem leikhúsið sækja. “The Trey O’Hearts” hefir verið undirbúinn án tillits til kostn- aðar, og ættu menn að sækja þann leik frá því fyrsta röð byrjar og þaggað til honum er lokið. Hann er spennandi, fjörugur og við allra hæfi. Sérstakur síðdegisleikur og sýn- ingar handa bömum á laugardag- inn kl .1 e. h.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.