Lögberg - 26.11.1914, Side 1
iilefi
27. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 26. NÓVEMBER 1914
NÚMER
Þjóðverjum hnekkt á Póllandi.
Bretar neyta herskipa og loftfara
SJÓORUSTA í NÁND. VANDRÆÐI MEÐ TYRKJUM
Serbar þrotnir.
Til Petrograd sendu Serbar
mann, aö biöja Rússa hjálpar.
Hann skýröi frá því, aö her þeirra
i Serbiu væri mjög saman gang-
inn, væri ekki nema ioö þúsundir
nú oröiö, en 300 þúsundir var
hann aö tölu, þegar stríöiö hófst.
Tveir þriöjungar eru aö velli lagð-
ir og landiö komiö í þrot, og viö
því búiö, aö Austurríkis menn
vaöi yfir þaö og leggi það tindir
sig. Rússar gengust vel undir
þessa málaleitan og munu senda
þeim liö, ella fara herferð suöur
yfir Karpata fjöll, og kúga þarmeö
hina til þess að létta sókn af
Serbum.
Sundurlyndi með Tyrkjum.
Magnaö sundurlyndi er sagt í
Miklagaröi og svo svæsnir flokka-
drættir, aö viö voöa liggur. Jafn-
vel sendiherra Þjóöverja er ekki
óhultur um líf sitt. Margir hátt-
settir herforingjar una því illa, aö
þýzkir fyrirliðar skuli vera hæst-
ráðandi þar og eru til teknir
Chuksi Pasha, sá er stýröi vöm í
Adrianopel, gegn Búlgörum og
Serbum, svo og einn af sonum
Abdul Hamids. Þaö mun láta
nærri, aö samsæri sé myndað* 1 gegn
Ungtyrkjum, er helzt ráða því, að
Tyrkir gengu i liö með Þjóöverj-
um. Samsæri hefir komizt upp,
er miöaði aö því, aö drepa hers-
höfðingjann Sanders, hinn þýzka
mann, er hefir æztu hervöld með
Tyrkjum.
Seinasta tiltæki Tyrkjaiis er
þaö, aö senda herskip í Donárósa,
þarsem Rúmenia á lönd aö, og er
tilætlunin sú sögö, aö fá Rúmen-
inga til þess að' gera annaöhvort,
skerast í leik meö Þjóðverjum eöa
hinum.
Annað tiltæki Tyrkjans er það,
aö þeir skutu á bát frá einu her-
skipi, er Tennessee heitir og
Bandaríkin eiga viö litlu Asiu
strendur. Báturinn varö aö flýja,
en sendiherra Bandamatina heimt-
ar aö Tyrkjastjórn afsaki þetta
brot á alþjóða venju. Herskipiö
leitaöi frá löndum Tyrkja og
liggur undir ey í Grikklandshafi,
þartil málið útkljáist á einhvem
veg. — Tyrkir hafa nú haft sig úr
klípunni meö þeirri skýringu, aö
skotin hafi veriö í því skyni send,
að vara bátinn við sprengiduflum,
er á höfnina var stráö og láta
Bandamenn sér þá skýringu nægja.
Frá Berlin em feginsögur sagð-
ar um afrek Tyrkjahers í bardög-
um viö Rússa í Kákasus löndum,
svo og aö þeir hafi haldið liöi alla
leiö aö Suez skurði, barizt þar við
Breta og sigrað i þeim viðskiftum,
en alt er þaö boriö til baka. Aftur
á móti er þaö satt, aö Bretar hafa
tvívegis sigraö hersveitir Tyrkja
á þeim skaga, er fjalliöl Sinai
stendur á, og tekið herskildi borg
eina er Tyrkir höföu lið í og
vopnabyrgðir, og er vel líklegt, aö
Arabía verði á valdi Breta, áður en
langt um Iiöur, enda vilja Arabar
heldur standa undir þeirra stjórn
en Tyrkjans. Herliði hafa og
Bretar skotið á Iand í Jaffa, sem
er hafnarbær Jerúsalems borgar,
en á Gyöingalandi hafa Tyrkjar
dregið saman allmikið lið.
/ Afríku.
Þar hafa Þjóðverjar her úti á
tveim stööum, vestan á álfunni,
sunnantil og í landeignum sínum
hinum miklu austan til i álfunni.
Þar hafa þeir haft liðsafnað og
unniö sigur í omstu nokkurri móti
Bretum, en ekki eru nákvæmar
fregnir komnar af þeim viðskift-
um. Auk þess er aö telja ófríð
þann er reistur var af Þjóðverja
völdum meðal Búanna. þó að mjög
sé minna úr honum orðið, en til
stóð. De Wet er á flótta, sjálfur
særöur og fylgdarmemi hans á
tvístringi. Hefir Bretastjórn eng-
ar áhyggjur af úrslitunum þar.
1 Morocco hafa Márar byrjað
ófrið gegn Frökkttm, fjallaþjóö
nokkur herská, er loks var sigruð
og á flótta rekin við mikinn mann-
skaða, en allmikið lið þurfti til þess
að lokum.
A Prakklandi.
Þar hefir verið barizt á sumum
stööum meö sama ákafa og áöur.
Upp frá sjó i Belgiu, við Yser-
fljót* hefir orðið nokkurt hlé á
sókninni vegna þess, að land er þar
alt undir vatni, og ómögulegt að
koma liði um landiöí. Þar hafa
geysað rigningar og byljir á víxl
og frost allmikið síðustu dagana.
Þýzkir hafa kallað þangaö verk-
fræðinga sína hina snjö'.lustu, aö
finna ráð til þess aö koma liði yfir
ófæru þessa, en ekki er það fund-
iö ennþá. Englendingar nota fær-
iö til aö hvíla liö sitt og veita því
aðhlynning.
Hjá Soissons og Rheims gerðu
Þjóöverjar áhlaup mjög snörp, en
unnu ekki á. Enn austar, í
Argomre skógi, gerðu þeir harða
hríö og segjast hafa unnið þar á,
en ekki vilja Frakkar kannast við
þaö. Þaö virðist vera fyrirætlun
bandamanna að veita viðnám þar
sem nú er barizt, og peun er hent-
ugast, vegna þess að þeir eiga
skamt aö sækja vistir og liðsauka,
en Þjóöverjar eiga langt að sækja
hvorttveggja.
Mjög halda Frakkar nú fast á
liðsafnaði, svo aö miljónum skiftir
í viðbót við það sem á vígvelli er.
Er það ætlun þeirra, aö hafa svo
margt liðið, aö þeir geti skift oft
um á vigvelli og sent fram óþreytt
liö sem oftast, svo og haft varalið
ef í nauðir rekur. Aö ekki er bú-
ist viö’ skjótum enda á ófriðnum,
má sjá á því, aö Bretar hafa leigt
húsnæöi til þriggja ára í Parisar-
borg, fyrir herstjóm sína. Margtí
þykir og benda til, að stríöinu
Ijúki ekki skjótlega, nema óvænt
atvik komi fyrir.
Viðureign á Póllandi.
Þar var frá horfið, er Þjóö-
verja her og Austurríkis fór á
hæli undan Rússum, eftir stórar
orustur. Hinir þýzku gerðu hið
mesta hervirki á undanhaldinu,
bmtu allar brýr, smáar og stórar,
eyddu jámbrautum og símum og
bmtu jafnvel alla símastaura, er
þeir náðu til. Var því Rússum
seinfarið að elta flóttann, en sóttu
þó ákaflega eftir honum. Þegar
minst varði snérnst hinir þýzku
við, með öllum þeim liðsafla, er
þeim haföi verið sendur, og gerðu
sem snúðugast áhlaup á Rússa.
[yögöu þá saman liði sinu, þeir
Ilindenburg, norðan úr Eystra
Prússlandi, og krónprinsinn. Urðu
Rússar fyrst ofurliði bomir, þeir
er flóttann höfðu rekiö, hörfuðu
undan langan veg, og létu allmik-
iö lið, en viðnám veittu þeir hart
og stöðvuðu loks hinn geysta her
Þjóðverjanna um 50 milur frá
Warsaw. Þar er síöan barizt i
viggirtum stöðvum, í tungunni
milli fljótanna Vistula og Warthe,
meö höröum atgangi, og eru Rúss-
ar ömggir mjög. Þýzkir þykjast
hafa búiö um sig svo rambyggi-
lega, með fljótin á báðar hendur,
aö ekki verði að þeim komist. en
á bak við sig hafa þeir nóg tæki
til að koma að sér vistum og
vopnum og liði sem með þarf.
T Austur Prússlandi hefir Rúss-
um orðið furðanlega ágengt. Þar
hafa þeir tekiö Gumbinnen og
fleiri staöi úr hendi Þjóðverja, og
em komnir þaö langt, að þeir eiga
eftir 60 milur norður og vestur til
Koenigsberg.
Að öðru Ieyti em fregnir fáar
af þvi svæði. Þykir líklegt að
Rennenkampf bíöi frera, einsog
hann hafði ætlað sér, nema hann
slái sér suður á bóginn og taki í
hnakkann þýzka herinn fyrir
sunnan Vistula.
í Galiziu er enn barizt við vígið
Przmysl, og sverfur þar alla tíð
meir og meir að vamarliðinu, það
hefir boðist til að gefa upp v;giö
með því móti að það fái að halda
vopnum og fara óhindraö til að-
alhers Austurríkis, en því boði hafa
Rússar hafnað, þvkjast hafa ráð
virkismanna í hendi sér. Rúcsar
eru smeykir við kóleru, er í virk-
isu geysar, og viöhafa alla varúð
og sótthreinsanir meðal sinna
manna, er að víginu sækja.
í annan stað berjast Rússar viö
Austurríkismenn lengra vestur,
nálægt Cracow, er sögð er i báli af
skotum Rússanna, og í þriöja lagi
sækja Rússar suður í skörö
Karpatha fjalla og reka á undan
sér allmikið óvina liö1. Haröar
sviftingar verða þar víða, og
þykjast þeir austurrísku hafa bor-
ið hærra hlut á einum stað, en lítt
sér það á hinu breiða baki Rússans.
Meira lið frá Canada.
Yfir 100,000 verður það lið að
tölu, sem í Canada verður alls
safnaö innan skamms. Þar í eru
taldar þær 34 þúsundir sem þegar
em til Englands komnar, 10. þús-
undir sem til gæzlu er haft og
varðhalda á ýmsum stöðum i
landinu, 17 þúsundir sem nú eru
saman komnar, kallað “second
contingent”, og loks á að taka til
að færa saman nýja herdeild, er
send verður til Englands þegar
hægt verður að koma henni þar
niður til æfinga.
Síðustu stríðsfréttir.
Þjóöverja her er á undanhaldi
á ný í Póllandi, á svæðinu milli
fljótanna Wartha og Vistula.
Þýzkir höfðu flutt stórmiklar
vistir og vopnaforða, svo og kaf-
báta, og önnur hergögn til þess að
undirbúa áhlaup á England, til
Zeebmgge i Belgiu. Á mánudag-
inn skaut þar upp brezkum her-
skipum, er skutu á forðabúr og
önnur mannvirki og viöbúnaö
Þjóðverja og lögðu alt við jörðu,
svo aö ekkert var nýtilegt eftir.
Fjögur loftför flugu frá Frakk-
landi til Fridrickshafen, og sendu
sprengikúlur yfir smiða verkstæði
Zeppilins, og gerðu allmikinn
skaða á verkstæö'um og hinu nýj-
asta loftfari, er þar er í smíðum.
Flugleiöin var afarlöng. Tvö af
loftfömnum vom skotin niður af
Þjóðverjum, féll annað í Con-
stance vatnið og mun sá hafa
dmknað. er því stýrði, hitt loftfar-
ið varð að leita til jarðar einhvers-
staðar á Þýzkalandi. Bæöi voru
brezk.
Tólf hundmö lík fundu Bretar
í einni skotgrvfju, er þýzkir höfðu
yfirgefiö í Flanders.
Þingið í Portugal hefir samþykt
að ganga á hólm með bandamönn-
tim og er þar byrjaður liðsafnað-
ur.
Fyrir utan Uraguay, á austur-
strönd Suður-Ameríku er sagt, aö
þýzk og brezk herskip séu að hipa
sig og vænta menn að þar komi til
sjávarorastu bráðlega-
Hið stærsta ríkislán, sem Bret-
land nokkru sinni hefir tekið, er
nemur 1750 miljónum dala, er hú
að fullu innborgað af almenningi í
því landi.
Um 6000 fanga hafa Rússar
tekið' af Austurríkis mönnum t
stóromstu fyrir austan Cracow.
Hreyfing virðist vera á Búlgör-
um, aö ná sneið af Macedoniu
gegn því að veita bandamönnum
liö.
Neyðin í Belgiu hefir knúð fólk-
iö til upphlaupa og rána.
Mannaskifti hjá C.P.R
Æzti ráöanautur hjá C. P. R.,
næst sjálfum forsetanum Shaug-
huessy, hefir lagt niöur völd fyrir
vanheilsu sakir. Sá heitir Nichols,
gamall skozkur þjarkur, er lengi
hefir varið sinum dug og þreki, til
aö stjóma félaginu. I hans em-
bætti er skipaöur George Bury, er
hefir stjórnaö framkvæmdum fé-
lagsins hér vestra, frá því Sir
William Whyte lét af stjórninni,
fyrir fám árum síðan. Hann
flytur sig nú til Montreal og tek-
ur við umsjón framkvæmda fé-
lagsins bæöi eystra og vestra.
Vel er af honum látið fyrir skerpu
og röskleik og stjórnsemi og
hyggja Sléttubúar gott til hans
stjórnar vegna kunnugleika hans
á því hvernig hér hagar tit
Svik í Iiði Austurríkis.
Ein aöalorsökin til þess, aö
Rússar unnu svo glæsilegan sigur
í Galizíu og í Bukovinu var sú, aö
landsfólkið var þeim vel sinnaö,
svo og það, að herforingjar þeirra
vom nauða kunnugir landslagi.
Þann kunnugleika höfðu þeir. ekki
af eigin sjón og raun, heldur af
uppdráttum er herforingjaráð
Austurríkis hafði samfð.
Austurríki lét byggja mörg
leynileg smávirki á landamæmm
Bukovinu í fyrra haust. Fám
dögum eftir að sú ráöagerö var
fullgerð, vissu Rússar alt um hana,
út í hörgul. Þeir höföu alstaðar
njósnarmenn, en allra mest reiddu
þeir sig á fyrirliða í her Austur-
ríkis, er voru fúsir til aö ljósta
upp leyndarmálum lands síns fyrir
ríflega þóknun. Flestir af þessurn
herforingjum, er tóku við gulli
Rússans, voru af serbnesku kyni,
og álitu þeir sig gera gott verk
með því að hjálpa þannig frænd-
um sinum, af Slafa kyni, með1 því
að selja þeim í hendur leyndarmál
þess lands, er þeir áttu heima í.
En sumir þeirra ‘voru þó þýzkir í
húö og hár og liöfðu enga afsök-
un. Þeim gekk til ágimd éöa staö-
festuleysi.
Þegar herforingi í liði Austur-
ríkis varö uppvís að þessum svik-
um, sem kom fyrir nokkram sinn-
um, var keisarinn þegar látinn vita
af því, og öll sakargögn lögð fram
fyrir hann. Ef um háttsetta for-
ingja er aö ræöa, lætur keisarinn
máliö ekki koma til dóms, heldur
sendir fjóra af kunningjum svik-
arans, sem traust má bera til, á
fund hans, aö kveldi til, er segja
honum hvemig komið sé. Að því
búnu fá þeir honum hlaðna skam-
byssu og fara svo frá honum.
Tveir þeirra halda vörð fyrir
utan herbergis dyr hans og tveir
úti á stræti, og bíða þess að þeir
heyri skothvellinn, sem merki þess
að hinn fallni vinur þeirra hafi
stytt sér aldur. Ef nóttin líður
án þess, þá fara þeir inn í her-
bergi hans, rétt fyrir dögun, hver
meö sína skambyssu á lofti og miöa
á manninn, sem ekki er aðeins
njósnari, heldur huglaus í þokka-
bót, kveðja hann til þess aö standa
kyrran og mæta bana sínum, og
hleypa síðan allir af í einu, því að
enginn þeirra vill taka á sig einan
þá ábyrgö að framkvæma dauða-
dóm keisarans.
Með þessu móti var hinn al-
ræmdi ofursti Redle af dögum ráö-
inn fyrir tvem áram, er selt hafði
öll leyndarmál herstjómar sinnar,
er hann hafði vfir komist.
Frá íslandi.
Seyðisfirði 3. október.
Mótorbáturinn “Blikinn”, eign
Antons Jakobsens á Eskifiröi, var
á leið héöan frá Seyðisfiröi úr við-
gerö. Rakst báturinn upp á Mjó-
eyrina í Eskifirði. Báðir menn-
imir, sem á bátnum voru, stuÆu
útbyrðis til aö lösa bátinn af
grunninum. Vélin var i gangi og
þegar báturinn losnað'i, fór hann
fullri ferð aftur á bak. Annar
maöurinn komst til lands, en hinn
ætlaöi að stökkva upp á bátinn en
mistókst, misti hann festu af bátn-
um og dmknaöi; hann var formað-
ur bátsins, Þórður Bjarnason að
nafni; en sá sem komst af, heitir
Þorvaldur Ólafsson og var mótor-
isti á bátnum.
Að kveldi þess 1. p. m. datt
maður út af strandferöaskipinu
Columbus, er lá hér við bryggju,
og draknaöi. Hann hét Engilbert
Guömundsson, sunnlenzkur maö-
ur, er verið haföi í Borgarfirði í
sumar. — Austri.
Akureyri 17. okt.
Góður fiskiafli hér úti á firðin-
Bandaríkin úr leik.
Bandamenn hafa skilist við mál
Mexico manna og kvatt flota sinn
og herlið heim frá því Iandi. Til-
efnið til að þeir sendu herlið og
tóku borgina Vera Craz, var það,
aö Huerta hafði sýnt óvirðing
fána þeirra. Bandamenn tóku bæ-
inn nálega fyrirhafnarlaust, og
hafa haldiö' honum síöan. Þeir
hirtu þar alla tolla og höfðu heim
meö sér, um miljón dala upphæð,
en Frakkar sækja eftir þeim pen-
ingum, með því að tollatekjumar
vom þeim veðsettar til tryggingar
fyrir skuldaborgun af hálfu Mexico
stjórnar. Ekki er friður kominn
á í Mexico, heldur vaða herir aft-
ur og fram um landið, er Villa
stýrir og Zapata og fleiri ræningja
höfðingjar. Carranza hefir og her
úti. Samt er sagt annað veifið,
að friður muni vera þar í nind,
hvaö sem til hæft er í því.
Islenzki Liberal
klúbburinn
Keldur fyrsta fund sinn á þessum vetri ÞRIÐJU-
DAGSKVELDIÐ 1. Des. í Gccdtemplara-Kúsinu
niðri. Stjórn félagsins fyrir Kið kcmandi ár veiður
kosin á þeim fundi. Eru gamlir meðlimir, og þeir
sem í klúbbinn vilja ganga, alvarlega ámintir um að
sækja þennan fund.
Hvaðanæfa.
Njósnari tekinn.
Meðal þeirra fanga af þýzku
kyni, sem geymdir em í Fort
Osborae herskála hér í borginni,
er einn sem tekinn var í bænum Le
Pas í Manitoba. Hann hafði áö-
ur veriö1 í þjónustu hafnarstjómar
í Montreal og haft greiöan aðgang
aðuppdráttum og öðram upplýs-
ingum viðvíkjandi siglinga Ieiðnm
á St. Lawrenie fljóti. Slíkir upp-
drættir höfðu fundizt í fómm
hans, og þykir Iiklegt, að hann sé
njósnari, ef til vill settur út af
þeim yfirvöldum í Þýzkalandi, sem
þeirri starfsemi stjórna um allan
heiminn. Ymislegur onöasveimur
hefir gengið um borgina viðvíkj-
andi þessum fanga, þar á meðal að
herdómur hafi veriö settur til að
dæma hann, og jafnvel að dauða-
dómur yfir honum hafi veriö
kveðinn upp, en þó mun ekki til
þess liafa komið ennþá.
um.
Jón Sigurðsson smiður fanst
dauður í mógröf hér fyrir ofan
bæinn þann 14. okt. Var hann 78
ára aö aldri, ógiftur og með merk-
ari borgurum bæjarins.
í Húsavík sökk uppskipunar-
bátur með 20 tunnum af kjöti við
hliðina á e/s “Douro”. Mönnum
þeim, er ,i bátnum vora, varö
bjargað.
Cr bréfi frá Seyöisfirði 7. okt.
Tíðarfarið hefir verið hið bezta
hér eystra i alt sumar, heyafli
góður yfirleitt, en fiskveiöar geng-
ið> fremur treglega nú upp á síö-
kastið, voru góöar framan af í
sumar. Nú eru margir aðkomu-
menn hér i bænum, haustkauptíö
stendur sem hæst og fjöldi af fé
hér i gæzlu. Nú verður ekkert lif-
andi fé sent hér út eins og áöur
Kaupmenn þora það ekki vegna
stríðsins, en fjárverð er hér mjög
hátt eins og í fyrra. — Enginn
skortur er hér á útlendum vörum,
en þær eru mjög dýrar, miðað viö
þaö sem áður var.
Frímann B. Anderson hefir
haldiö hér á Akureyn tvo fyrir-
lestra um upptök otnðarins og
Frakkland. — Hefir dvalið í Paris
langvistum svo sem kunnugt er og
fór þaðan eftir að ófriðurinn
byrjaði.
Látnn er Þorvaldur Árnason
bóndi úr Eyjafirði. gamall maður
vel látinn.
Copland og Laxdal em nú; að
setja á stofn hér gosdrykkja og
saftgerðarverksmiöju. Vélamar í
verksmiðjuna koma með Botniu,
ásamt enskum manni er sér um
niðursetning þeirra. Er gert ráð
fyrir að verksmiöjan geti tekið til
starfa fvrir jól í vetur.
Fyrsta steinkirkjan á Suður-
landsundirlendinu var vígð í gær.
Hafa Þykkvabæjarmenn reist
hana. Á eftir héldu sóknarbörn
séra Ólafs í Kálfholti honum og
konu hans samsæti og fluttu hon-
um kvæði.
— Vísir.
Reykjavík 28. október.
Dáinn er 21. okt. Guöhnundur
Guðmundsson bóndí á |Torfalæk í
Húnavatnssýslu.
Silfurmedaliu af 1. ilokki hefir
Frakkastjórn nýlega sæmt Helga
bónda Þórarinsson í Þykkvabæ í
Landbroti fyrir framúrskarandi
dugnað við björgun á frönskum
strandmönnum fyrir 2 ámm.
Nýjar landsímastöðvar voru
opnaðar 16. okt. í Bakkafirði,
Breiödalsvík, Stöðvarfirði, Þórs
höfn og Befunesi, alt 3ja flokks
stöðvar. Að símalagningu til þess-
ara staða hefir verið unnið síðastl
sumar, en sæsímaspotti ólagður
enn yfir Bemfjörð til Djúpavogs
Ný útgáfa af kvæðum Hannesar
Blöndals er og út komin, allstór
bók. Lítil von mun til að þessar
né aðrar bækur komi hingað vest-
ur að svo stöddu, meöan stríðið
stendur sem hæst.
—Þrem vígdrekum, þeim stærstu
er gerast, hefir Frakka stjóm ný-
lega hleypt af stokkunum, þau
heita Normandie, Gascogne og
Flandre; tvö önnur af sama flokki
em í smiöum og heita Beam og
Languedoc. Frakkar eiga fleiri
kafbáta en nokkur önnur þjóð.
— Um allan heim er nú sem
óðast verið að innleiða algert vín-
sölubann. Jafnvel Rússland er
búiö aö banna sölu áfengis. Þaö
þóttu og stór tíöindi. Makalaus
frammistaöa mætti þaö kallast, ef
landar vorir í Bifröst-sveit, af-
nema nú vínbann í sveit sinni.
Vér viljum ekki trúa aö annað
eins geti komiö til mála.
— A Hollandi hafa stórar fiski-
torfur leitaö upp í ár og læki, þar-
sem fiskur hefir aldrei sést fyrri,
og stökkva þeir upp úr vatninu,
einsog á sumardegi. Haldiö er,
að fiskurinn hafi óróast í sjónum,
af þórdunum stórskotanna i Norð-
ursjó.
— Lík Roberts tavarðar var
flutt til London og sett í grafhvelf-
ingu irndir Pálskirkju, þarsem
margir af helztu hershöfðingjum
Breta hvíla.
— í Gilbert Plains kviknaði i
húsi, aö heimilisfólki fjarverandi,
öllu nema tveim bömum er sváfu
í næsta herbergi við eldhúsið.
Mjólkurmaöur varð eldsins var er
hann bar að, var þá annað barniö
svo langt leitt, af því að anda reyk
að sér, að ekki varö lífgaö. Hús-
ið tókst aö verja.
— Sagt er að uppreisnarhöfð-
inginn De Wet hafi verið skotinn
í höfuðið og sé hans fylgjurum
mjög þorrinn kjarkur síöan.
— Hertoginn Buccleuch er
dauöur, 83 ára gamall, einna auð-
ugastur allra skozkra aöalsmanna.
I Midlothian áiti hann jaröir svo
stórar, að vel nam 400,000 ekrum. I
— Vörusendingar geta óhindr-
aðar gengið til Norðurlanda nú
orðið, eftir aö stjórair allra land-
anna hafa bannað að flytja þær
aftur úr landi, áleiöis til Þýzka-;
lands.
—Foringjar verkamanna í Suö-!
ur Afríku, er reknir vom úr lan li
fyrir óspektir, hafa fengið lands-
vist á ný, gegn því loforði að
standa ekki uppi í hárinu á stjóm
inni meðan stríöiö stendur yfir.
Minningarsjóður
Lr. Jóbs Bjarnascnar.
Aður auglýst..........$36,715,00
Frá Icel. River, Man.:—
A. H. Guðmundson .. . .$ 25,00
Victor Eyjólfsson......... 25,00
Th. Thorarinsson.......... 25,00
Thotnas T. Jónasson .. .. 25,00
Sigr. Pálsson............. 25,00
Guðm. M. K. B jömsson .. 25 00
Oddur Ólafson............. 25,00
Ólafur Ólafson............ 25,00
Johann Briem.............. 50,00
Páll F. Vidahn............ 25,00
V. Hálfdánarson........... 15,00
H. Hallson................ 25,00
I-Iálfdán Sigmundsson . .. 25,00
Sigirrður Christopherson .. 5,00
Lárus Th. Bjömsson .. .. 25,00
Guörún Björnsson.......... 25,00
Ónefndur.................. 25,00
Jónas Jónasson............ 25,00
Sigvaldi Bjömsson .. .. 25,00
Frá Arborg, Man.:—
Ásgeir Fjelsted.........$200 00
Sigurbjörn Sigurðson .. .10,00
Halldór Johnson...........ico.oo
S. M. Sigurðson...........200,00
Friðrik Nielsson.......... 25,00
Thordur Helgason.......... 25,00
Met. Jónsson.............. 25,00
Th. Johannsson............ 25,00
P. S. Guðmundsson .. .. 25,00
Thorsteinn Swainson .. .. 25,00
H. Bjömsson............... 25,00
S. M. Brandson........... 25,00
A. F. Reykdal............200,00
Frá Framnes, Man.:— !
Jón Jónsson............. $ 25,00
Th. M. Sigurðson.......... 25,00
Thorarinn Stefánsson .... 25,00
Frá Gimli, Man.:—
Ingibjörg J. Pétursson . . .$ 10,00
Frá Winnipeg, Man.:—
Stefán Einarson......... $ 25,00
Samtals.........$38,185,00
— Ibúar í Ottawa era nú 101,-
687 og hefir fjölgaö um 1500
síðan í fyrra.
— - Þegar þýzkir tóku staðinn
Insterburg eftir aö Rússar hörf-
uöu þaðan, fuúdu þeir mikii af
brauði, er Kósakkar höfðu helt oliti
í, svo að óvinir þeirra gætu eklci
haft þess hot. Þeir þýzku tóku
brauðið og létu fangana, sem þeir
höfðu tekið af liði Rússa, eta það
viöbitslaust.
■ W. J. Tregillus, forseti bún-
aðar sambands bænda í Alberta, dó
i Calgary fyrir nokkrum dögum,
úr taugaveiki.- Hann var nýkom-
inn af Grain Growers fundi hér í
borg, og hafði- flutt þar vel rómað
erindi. Hann var velþektur mað-
ur síðan Grain Growers samtökin
komust á.
Mjóafjaröarprestaka’l í Suður-
Múlasýslu er auglýst laust. He;ma-
|tekjur: Eftirgjald eftir prestssetr-
| ið Kross 180 kr. Veitist frá far-
I dögum 1QT 5.
—Lögrétta.
Islendingadagurinn 1914
Almennur fundur
verður Kaldinn í efri sal Goodtemplara Kússins
íimtudagskvöldið 26. Nóv. 1914,
Byrjar klukkan 8
Tilgangur fundarins er að meÉteka sliýrslur neírd-
arinnar fyrir þetta ár. Einnig veiða veiðlaun í-
þróttamanna afkent, og nefr d kosin fyrir r.æsta ár.
Vonandi er að sem flestir íslendingar veiði viðstadd-
ir á fundinum.
íslendingadagsuefndin 1914.