Lögberg - 10.02.1916, Blaðsíða 1
Þetta pláss í blaðinu
er til sölu.
Vér viljum kaupa
allskonar brúkaðar skólabækur, bæSi fyrir barna-
skóla og alla hærri skóla. Hæsta verS borgaS fyrlr
þær. Einnig seljum vér eSa skiftum viS yður &
öllum öSrum bókum, gömlum sem nýjum.
“Ye Olde Book Shop”, 253 Notre Dame Ave.
Gegnt Grace Chureh. Tala. G. 3116
29. ARGANGUR
WINNIPEG. MANITOBA, FIMTUDAGINN 10. FEBRÚAR 1916
NÚMER 6
ÍSLENZKIR ATKVÆÐAMENN ^
H. HALLDÓRSS'ON
Hann er fædddr 27. Janúar 1875, aiS ÞórustöSum í Önundarfiröi.
Foreldrar: Halldór GuSmundsson og Guðrún Jónsdóttir kona hans. Faöir
Halldórs var talinn framkvæmdarmesti bóndi i sv'eit sinni; bjargaöi til
dæmis frá skepnudauÖa á mörgum heimilum i haröindunum 1886.
Halldór útskrifaöist af gagnfræöaskólanum i Flensborg 1895, fór til
Kaupmannahafnar og tók þar próf á verzlunarskóla Rasmusens 1897. Fór
þá til íslands aftur, en lagði af staö næsta ár tíl Melbourne í Ástralíu. Var
alveg félaus er þangaö kom, fór i vinnu til bónda úti á landi fyrir 7 shill-
ings og 6 pence á mánuði; þótti það lágt og hætti eftir tvær vikur. Gerði
hann þá samning við félag um þáö aö hreinsa skóg á 100 ekrum lands, fyrir
12>4 shilling ekruna og fékk menn sér til hjálpar. Vann hann við ýmsa
samningsvinnu í 9 mánuði; fór síðan til Melbourné aftur; komst á skrif-
stofu hjá manni, sem RobinsonTiét og var formaður fyrir námufélagi; var
þar í 9 mánuði. Þá sendi félagið hann til Tasmamiu i námuvinnu! og fékk
hann þar 8 shillings á dag; var þar 1 ár; þá hætti félagið störfum. Fór
Halldúr þá í v'innu til bræðslufélags og var hjá þvi í 15 mánuði. Þar fann
hann upp endurbót á bræðsluáhöldum og fékk hærri laun og betri stcVðu
fyrir verkið. Málmurinm haföi runniö út úr bræöslukatlinum þannig, aö
hann skemdi olíuna; en þetta lagaöi Halldór. Hafði hann eftir pað 9
shillings á dag. Nokkru síðar fór hann til Melbourne aftur og gerðist um-
boðssali fyrir verzlunarfélag. Við það var hann þangað til 1905; þá sendi
félagið hann til Nýja Sjálands og vann hann þar fyrir það í 3 ár og var þar
deildarstjóri fyrir Jjað.
Hingað kom hann 1908 og lagði þegar $6,000 i fasteignaverzlun með
Arna Eggetrsson. Næsta ár byrjaði hann á eigin reikning og hefir rekið
þá atvinnu hér síðan. Hann mun hafa bygt fleiri hús en flestir eða nokkr-
ir aðrir landar, alls um 200, þar á meðal nokkur stórhýsi. Halldór hefir
ferðast svo að segja urn allan heim og ætti hann að Jiafa frá mörgu að
segja til þess að rita fróðlega ferðabók.
Halldór er kvæntur danskri konu, er Laura Larson heitir, og eiga
þau saman 4 börn.
Sauðfé t Utah
Samkvæmt nýútkomnum skýrsl-
um eru 2,000,000 sauðfjár í ríkinu
Utah, og er J>að talið $9,000,000
virði. Árið sem leið gaf þetta fé
af sér í ull $3,000,000, og kjöt af fé
sem var slátrað var $4,000,000 virði.
Vörður um þinghúsið
Vegna hinna stórkostlegu slysa
sem rekið liafa hvert annað í Can-
ada að undanförnu, bœði í Ottawa
og víðar, hefir sterkur hervörður
verið skipuður í þinghúsinu hér,
bæði úti og inni. Þykir svo út líta
sem flokkur manna sé að verki i
landinu til þess að gera ýms spjöll.
Kristj án Octo Goodman
Hann er fæddur 1. október 1896
hér í bænum; foreldrar hans eru
þatt Kristján (Guðmundsson- Good-
man og Jónína Magnúsdóttir.
Komu þau frá Hafnarfirði á ís-
landi 1886. Þau eiga heima að 576
Agnes stræti.
Kristján innritaðist í “Imperial
Motor Transport” 11. janúar þ.á.,
og lagði af stað áleiðis til Englands
5. febrúar með þeim hóp, sem þá
fór.
Bruni í Wadena.
“Wynyard Advance” getur þess
3. febrúar að hin stóra verzlunar-
búð F. E. Vatnsdals hafi brunnið
til kaldra kola á sunnudagsmorgun-
inn 23. janúar. Búðin var vátrygð
að nokkru, en skaðinn samt mikill.
BITAR
Telegram hefir skift um höfuð-
föt; lagt niður gömlu húfuna og
sett upp samskonar hatt og Tribune.
— Það er eins og þegar ÞórðUr
gamli Alamala var dubbaður upp
með pípuhatt af Birni Olsen.
Aðeins tvö bréf sem Lögbergi
hafa borist í síðastliðna 4 mánuði
hafa lýst óánægju yfir blaðinu.
Annar bréfritarinn vill ekkert hafa
um pólitík, ekkert um kvenréttindi.
ekkert um bindindi, ekkert um hcil-
brigði, ekkert iim búnað, enga bita
og ekkert fyrir börn; bara striðs-
fréttir og ekkert annað— og hann
tekur það sérstaklega fram að sér sé
sama hvort fréttirnar séu sanrar
eða lognar.
Conservativar. mynduðu nýja
menn úr öllum gömlu mönnunum í
fyrra og nú hefir Telegram gert
það sama, skift um eigendur, en eru
])ó þeir sömu. — Gottsveinn gamli
krítaði einu sinni hvíta blesu fram-
an í brúnan hest, sem hann stal, til
Jiess aö hann þektist ekki.
Sem dæmi upp á það hversu fljótt
Ivögberg kemur með fréttii má
geta þess að maður kvæntist hér í
bænum nýlega og las Jrað í Lögbergi
rétt áður en presturinn gaf hjónin
saman að þau væru að gifta sig.
Það hringlar hátt í Kringlu-
kvörnum í dag — stendur i bælið
ritstjórans.
Þinghúsið í Ottawa
brennur til kaldra kola
Einhver stórkostlegasti bruni í sögu
landsins að mörgu leyti. Sjö manns
brenna til dauðs, þar á meðal einn
þingmaður. 50,000 bindi af bók-
um brunnin.
Á fimtudagskveldið flaug sú
fregn út um allan heim að þinghús-
ið í Ottawa stæði í björtu báli, og
eftir tiltölulega stuttan tima var
það brunnið til kaldra kola. Áuk
byggingarinnar sjálfrar brann þar
bókasafn mikið og mörg verðmæt
skjöl.
Sjö manns mistu lífið og voru
t>eir þessir:
Frú Morin frá Ouebec. Frú
Henry Bray, einnig frá Quebec, sem |
báðar voru gestir hjá þingstjóran-!
um. Alphonso Desjardines lögreglu-
|>jónn og sonur hans'. Maður að
nafni Robert Fanning. J. B. R.
Lepland aðstoðarritari neðri mál-
stofunnar og B. B. Law liberal
þingmaður frá Yarmouth.
Þessir eru þeir sem menn vita
með vissu að fórust, en auk þess
er álitið að þeir hafi verið fleiri.
Allmargir meiddust auk ]>eirra sem
dóu, þar á meðal skaðbrendist Mar-
tin Burrell aðstoðar ráðherra bún-
aðarmála bæði á andliti og höndum.
Walter Hill matreiðslumaður
brendist hættulega á baki. Berry
slökkviliðsmaður var nærri kafnað-
ur og auk ]>ess skaðfrosinn á hönd-
unum.
Margar getgátur eru um það
hver hafi verið orsök brunans.
Halda sumir að hann sé af völdum
Þjóðverja eða þýzk sinnaðra
manna; þykjast jafnvel hafa heyrt
heitingar í þá átt að þetta yrði fram-
kvæmt; sumir þykjast hafa séð ó-
kunna menn í þinghúsinu grun-
semdarlega, sem þeir halda að hafi
verið við þetta riðnir.
Aðrir telja liklegt að bruninn
hafi orsakast af því að gálauslega
hafi verið kástað vindli og kviknað
í bréfum af þeim ástæðum.
Þinghúsið var bygt á fagurri hæð
þar sem sást út yfir Ottawa fljótið
og var þar einkar fagurt. Var horu-
steinninn að því lagður árið 18Ó0 af
prinsinum af Wales, er síðar varð
Játvarður konungur sjöundi, en
fjórum árum síðar var það opuað
til stjórnar nota. Byggingin kost-
aði $6,000,000.
Fjármálaáætlun Sam-
bandsstjórnarinnar
Thomas White fjármálaráðherra
lagði fram áætlun um tekjur og
gjöld ríkisins fyrir fjárhagstímabil-
ið sem byrjar 1. april næstkomandi,
á föstudaginn var. Útgjöld varu
þar áætluð að verða alls $188,981,-
218. Er það $8,000,000 minna en
árið sem leið.
Til opinberra verka er áætlað
$6,660,607 minna en í fyrra; til
verzlunar og viðskifta og kornhlaða
$1,840,000 minna, til járnbrauta og
skurða $13,260,502 minna.
Fyrir auknar rentur á skuldum
ieru útgjöldin $16,001,253 hærri en
í fyrra og fyrir eftirlaim $915,122
hærra.
$3,000,000 eru áætlaðar til Hud-
sons flóa brautarinnar og kornhlað-
anna; sést það á því að ekki á að
halcla eins örugglega áfram með
það verk og í fyrra, því þá voru
vcittar til jiess $5,500,000. Til
National Transcontinental brautar-
innar eru áætlaöir $1,500,000, fyrir
Quebec brúmar sem enn er verið
að byggja og verður ekki fullgerð
fyrr en 1917, eru veittir $3,450,000.
Áætlun fyrir St. Johns höfnina er
færð niður i $1,000,000 úr $1.500,-
000, og fyrir bætur á höfnum og
ánni í Port Arthur og Fort William
er áætlun færð niður í $1,000,000
úr $1,700,000. Til skipakvíar i
Halifax eru veittir $2,500,000; til
umbóta á höfninni i Quebec'$490,-
000; til skipakvíar í Quebec $1,500,-
ooo1; til þess að l>æta innsiglingu í
Quebec höfninni $700,000. til að
bæta höfnina i Toronto $600,000;
til að bæta skipaleið í Frönsku ánni
$400,000; til að bæta höfnina í Van-
couver $350,000. Til að bæta höfn-
ina i Victoria $1,000,000, og til
skipakvíar í Esqvimalt $200.000.
í Manitoba á að gera það sem hér
segir:
Byggja æfingaherstöö i Alta-
mount fyrir $10,000; opinbera
byggingu i Boissevein fyrir $20,-
000; opinbera byggingu í Brandon
fyrir $80,000; op:nbera byggingu i
Carberrv fyrir $27,000; opinlæra
byggingu i Dominion City fyrir
$18,000; opinbera byggingu í Elk-
horn fyrir $19,000; opinbera bygg-
ingu í Gretna fyrir $25,000; opin-
bera byggingu í Manitau fyrir
$20,000; opinbera byggingu í
Melita fyrir $9,000; opinbera bygg-
ingu í Minstonas fyrir $10,000; op-
inbera bygingu í Norwood Grove
fyrir $19,000. Heræfingaskála í
Potrage La Prairie fyrir $20'.ooo.
Op nbera byggingu í Rivers ffyrir
$20,000. Heræfingaskála í Souris
fyrir $15,000. Hermanna bústað í
Winnipeg fyrir $150,000. Sam-
bandsbyggingu í Winnipeg fyrir
$44,000. Innflutningabyggingu í
Winnipeg fyrir $43,000. Heræf-
inga skála í Norður Winnipeg fyrir
$9,000.
Póststöð “C” í Suður Winnipeg
fyrir $60,000. Póststöð “D” i
Vestur Winnipeg fyrir $75,000.
Póststöð “E” í Winnipeg fyrir
$75,000.
Snjóflóð veldur tjóni.
Northern Pacific járnbrautarlest
var fyrra þriðjudag nálægt Stam-
pede skarði i Klettafjöllunum á leið
frá Seattle, og kom þar á það snjó-
skriða að framan og grófust tveir
vagnarnir og ketillinn í snjóinn og
brotnuðu talsvert. Fjóirr farþegar
meiddust allmikið, en enginn misti
jjifið.
Verksmiðja brennur.
Stórkostlegur eldur kom upp í
Ottawa á laugardaginn i verk-
smiðju þar, sem verið var að búa
til stríðsvörur fyrir stjórnina. Fé-
lagið sem verksmiðjuna átti heitir
Grant, Holden & Graham Co.,
verksmiðjan brann svo að segja til
kaldra kola og er skaðinn metinn á
$20,000. Enginn veit um ástæðu
brunans'.
Eimskipafélag Islands
Hlutasölunefndin hér áttti fund
með sér á mánudagskveldið var til
að ræða um möguleika á að inn-
heimta ógoldið hlutafé Vestur-ís-
lendinga, sem allra fyrst, og til að
fá nýja hluthafa í Eimskipafélagið,
svo að vér getum sem fyrst fullgert
þá 200,000 króna upphæð, sem vér
gengiunst fyrir að safna hér vestra
til stofnfjár félagsins. Sömuleiðis
til að gera ráðstafanir til undirbún-
ings fundarins sem hér á að halda í
næstu viku til að kjósa sendimann
til að vera á aðalfundi félagsins í
Reykjavík í júní n.k., og til að eiga
sæti í stjórnamefnd þess um næstu
tvö ár. — Fundurinn ályktaöi:
1. Að kjörfundurinn skal hald-
inn á miðvikudagskveldið 16. þ.m.
að 696 Sargent Ave. á suðvestur
honri Sargent og Victor St.
2. Hann á að byrja stundvíslega
kl. 7 og skal þá strax gengið til at-
kvæða um þá, sem hluthafar æskja
að mæti á ársfundi félagsins í
Reykjavík í júní n.k. Finnig verða
þá líka greidd atkvæði um þá sem
hluthafar óska aö setja í stjórnar-
nefnd félagsins næstu tvö ár. —
Atkvæðagreiðslunni skal lokið kl. 9
og verður þá strax tekið að telja at-
kvæðin og fundi ekki slitið fyr en
því er lokið. Þá verða og talin at-
kvæði allra þe'rra hluthafa í félag-
inu, sem búa í hinum ýmsu bvgðar-
lögum hér vestra og sem nú dag-
lega eru að senda umboðs- og kjör-
seðla sína til nefndarinnar hér.
3. Allir þeir sem hafa fullborg-
að hlutafé sitt eiga atkvæði á þess-
um fundi, þótt þeir hafi ekki fengið
hlutaskirteini sín frá íslandi. Sömu-
leiðis eiga allir þeir atkvæðisrétt á
fundinum, sem svo mikið hafa
goldið af hlutafé sínu að það full-
borgi einn eða fleiri hluti og er þá
atkvæðamagn þeirra í réttum hlut-
föllum við hlutatölu þá sem þeir
teljast hafa borgað að fullu.
Af hlutafé því sem íslendingar
hafa ritað sig fyrir eru nú borgað-
ar til féhirðis hér 166 þúsund kr.
Þar af sendar til íslands 161 þús.
kr., en 5 þús'. kr. hér hjá féhirði.
Hluthafar í Winnipeg eiga ennþá
ógoldnar hartnær 26. þús. krónur
af þeirri upphæð, sem þeir hafa ver-
ið ritaðir fyrir, og í bygðunum víða
eru stórar upphæðir ógoldnar.
Nefndin óskar að allir sem geta
greitt alt eða einhvern hluta af
hlutafé sínu geri það fyrir fundinn
og einnig að þeir sem vilja styrkja
félagið með hlutakaupum geri það
sem fyrst.
Þess skal getið að í bréfi því sem
fyrir skömmu var sent út um sveit-
irnar, ásamt með umboðs- og kjör-
seðlum, hafði eg af vangá ekki rit-
að nema 14 nöfn nefndarmanna.
Gieymst hafði þar nafn herra J. T.
Bergmanns, sem er fimtándi maður
í nefndinni, og er hann hér með
beðinn velvirð'ngar á þeirri vangá,
sem mér einum er um að kenna.
Nefndin óskar að sem flestir hlut-
hafar, sem þess eiga kost, sæki
fundinn.
Winnipeg, 8. febrúar 1916.
B. L. Baldwinson, ritari.
Vinnur $20,800 skaða-
bætur.
Maður að nafni Michael Killilea
var í vinnu hjá J. P .Morgan
þegar Frank Holt eða Eric Muent-
er skaut á hann 13. júlí í sumar.
Morgan hafði látið setja kaðal yfir
brú, sem lá hein^ að húsi lians, til
þess að hifreiðar kæmust ekki þar
yfir. Vinnumaður hans kom á hjóli
eftir brúnni og vissi ekki af kaðlin-
um. Meiddi hann sig svo að ságt er
að hann verði steinblindur af.
Hann stefndi Morgan og krafðist
$50,000 skaðabóta, en fékk $20,000
Kviðdómur dæmdi í málinu.
150 ára gömul.
Indiánakona í Bakersfield í Cali-
forniu er nýlega dáin, sem var 150
j ára gömul; hún hét Mary Tecuyas.
I Hún var elzta manneskja af vissum
Indiána flokki, sem nú er svo að
segja útdauður og er kallaður
I Tejonar. Þessi flokkur hefir átt
I heima í dal-einum skamt frá Baker-
field. Meðal þeirra eru enn lifandi
rúmir 20 manns yfir 100 ára.
Hermiþingið.
Hermiþingið er orðið svo mikið
aðdráttarafl að gestir sem í bæinn
koma hyllast til þess að geta veriö
þar. Þannig hafa menn upp á síð-
kastið verið hér degi lengur en þeir
ætluðu upphaflega, ef svo hefir
staðið á að það gæfi þeim tækifæri
til að vera þar. Lúðvík Laxdal frú
Kandahar og Jóhannes Einarsson
frá Lögbergi voru þar á mánudag-
inn meðal annara gesta.
Árs framlenging.
Það er sameiginleg tillaga beggja
leiðtoganna, Bordens og Lauriers,
að kjörtímabil Sambandsstjórnar-
innar sé framlengt um eitt ár, vegna
stríðsins.
Á. S. Bardal
Það þykir alt af vel við eiga að
sýna framan í þá sem að opinberum
inálum vinna. Einn þeirra manna
sem ótrauðast hefir starfað að bind-
indismálinu hc!r á meðal vor um
langan tima, er A. S. Bardal í
Winnipeg.
Hann er fæddur 22. apríl 1866.
Foreldrar hans voru þau Sigurgeir
Pálsson bóndi í Mývatnssveit og
Vigdís kona hans Halldórsdóttir
Jónssonar frá Bjarnastöðum í
Bárðardal. Vigdís móðir- Arin-
bjarnar og Jón Halldórsson faðir
Halldórs sál. Jónssonar bankagjald-
kera og Valgerðar sál. konu séra
Þórhalls biskups voru systkini.
Arinbjörn ólst upp hjá foreldrum
sínum til tvítugs aldurs. Hann kom
til Vesturheims 1886; vann hér al-
genga vinnu fyrstu þrjú árin, bæði
viö járnbrautarlagningar og fleira
og eitt ár hjá hérlendum bónda í
Carberry.. Því næst gerðist hann
ÆTLAR AÐ LEGGJA BAKKUS AÐ VELU
Arinbjörn S. Bardal
ökumaður í Winnipeg, seldi kol og
annan eldivið, flutti fólk og farang-
ur. Því starfi hélt hann áfram í
5 ár. Eftir það byrjaði hann að
vera útfararstjóri; var starf hans í
þeim verkahring fyrst í smáum stíl,
en hefir vaxið ár frá ári, þangað til
hann mun fullkomlega hafa sinn
skerf á við þá sem bezt gera hér í
bæ.
er fallegur vunisburður og það
bezta er að h.mn er alveg sannur.
Það er eitt einkenni Arinbjam-
ar, sem ekki er á allra vitund að oft
þegar aðrir menn leita sér skemt-
ana eftir hita og þunga dagsins, þá
er hann þar sem fæstir vilja koma,
að liðsinna þeim sem afvega hafa
leiðst.
Fyrir 9 árum bygði Bardal stór-
hýsi, sem er þrílyft, 100 fet á langd
og 60 á breidd og áfast við það hest-
hús fyrir 20 hesta. Uppi eru íbúðir
en niðri útfarar stofa og verk-
smiðja. Hefir Páll bróðir hans I
verið lionum ömrur irönri •srðast-
liðin 15 ár og er nú skrifstofustjóri
hjá honum. .
Arinbjörn naut lítillar mentunar
í æsku, eins og flestir þeir sem upp
voru aldir í sveitum á Islandi á
þeim tíma; en þrátt fyrir það hefir
hann aflað sér talsverðrar Jiekking-
ar í ýmsum efnum. Hann liefir
tekið mikinn þátt í félagsmálum.
Hann hefir stutt af alefli stjómar-
stefnu Liberala og unnið svo að
segja nótt og dag þegar í skorpur
hefir farið fyrir kosningar. Hann
hefir einnig verið öflugnr stuðn-
ingsmaður kirkjuélagsins lúterska
og gegnt þar ýmsum störfum. Hann
er í “Ocjdfellow” félaginu og fyrsti
formaður þess (Trovincial Grand
Master) í Manitoba.
En þar sem mest hefir borið á
Arinbimi og liann mest látið til sín
taka, er í bindindismálinu. Hann
er fclagi stúkunnar Skuld og hefir
verið það yfir 25 ár. Mun hann
j vera fyrsti íslendingur hér vestra
j sem tók lífstíðar skírteini í félaginu.
Hann hefir í sex ár samfleytt verið
j Stórstúku kosningastjóri í Mani-
■ toba og í siðgæzlunefnd fylkisins.
Arinbjöm hefir lagt meira á sig
.fyrir bindindismálið en flestir aðrir
meðal vor — jafnvel meira en nokk-
ur annar. Hann er svo að segja
j reiðubúinn að yfirgefa störf sin og
arðsama vinnu hvenær sem vera
vill, ef þörf er á honum einhvers-
staðar fyrir bindindismálið. Hann
j þýtur svo að segja fylkið á enda,
þegar kosningar eða atkvæða-
greiðsla um áfengi er i nánd. Æjtti
j hann að leggja fram reíkning fyrir
| allan þann tíma og alt það starf sem
j hann hefir látið bindindismálinu i
té, þá væri það álitleg upphæð. Mál-
! efni voru væri vel borgið, ef ósér-
I plægni stjórnaöi störfum margra
I vor á meðal í eins rikulegum mæli
j og Arinbjarnar.
Þegar opnaðar eru dymar á
heimili Arinbjarnar, þá er það
fyrsta sem fyrir manni verður dá-
litið spjald, sem hangir á veggnum,
meö þessum orðum á letmðum:
“Don't trouble trouble, till trouble
troubles you”. Þessi orð lysa Ar-
| inbimi betur en flest annað. Hann
er gleðimaður mikill og er oft við-
brugðið h’átrinum hans Arinbiarn-
ar. En þótt hann sé glcðimaður, þá
á hann til alvöru og hana djúpa.
“Eg vildi engrm hafa í inínum
húsum sem útfararstióra, ef eg
misti einhver.i, annan en hann Ar-
inbjörn” hefi ég heyrt marga segja:
“Það er auðséð og heyrt á öllu að
hann finnur til með manni". Þetla
Arinbjöm er tvíkvæntur; var
fyrri kona hans Sesselja Þorkels-
dóttir og áttu þau tvö börn ; er ann-
að þeirra á lífi, stúlka 20 ára gömul
sem er að nema hjúkrunarfræði
austur í Minneapolis. Síðari kona
hans er Margrét Ingihjörg Ó'afs-
dóttir úr Miðfirði og hafa þau átt
9 börn, eru sjö þeirra á lífi.
Vinnur silfur-medalíu
Kristjana Backnian.
Þriðjud.
28. des. s.l.
hélt stúk-
an “Berg-
lindin’’ nr.
150, I.O.G.
T„ “Silver
Medal Con
t e s t” í
Markland
Hall, Otto
P.O. Meda
liuna vann
systir Miss
Kvæðið er
hún flutti var “The Old Mans
Story. — 1 dómnefnd voru þessir;
Séra Guðmundur Arnason, JMr. Ol-
son og Mr. Sigf. J. Sigfússon, og
var álit þeirra að Miss Backman
hefði leyst hlutverk sitt dæmalaust
vel af hendi. Hér með fylgir mynd
af ungfrúnni og af medalíunni sem
hún vann.
Óskað hafa nokkrir að “Gold
Medal Contest” yrði komið á hér í
borginni innan skamms, og væri
mér ljúft að verða við bón þeirra
isem allra fyrst. Ef allir þeir sem
I.O.G.T. silfur medahu halda, vildu
gefa sig fram, þá skal eg afhenda
]>eim hækur og hjálpa þeim alt er
eg get.
Jónína Lambourne.
850 Banning St.
Phone Garry 2836.