Lögberg - 02.03.1916, Qupperneq 1
Peerless Bakeries
Hcildsöluverzlua
Búa til beztu tegundir af •ætabrauði. Ekkert sparað
til að hafa það «em Ijúffengast. G ftingar kökur búnar
og prýddar sérstaklega vel af manni s* m ei meistaii íþ irri
ið •. Kringlur og tvíbökur einnig til sölu Pa tanir fiá
verzlunarmönnum út um landið fljótt afgreiddar.
C. HJALMARSQN, Eigandi,
1 1 56-8 Ineorsoll St. - Tals. Q. 4140
Vér viljum kaupa
allskonar brúkaíar skólabækur, bæ8l fyrlr barna-
sköla og alla hærri sköla. Hæsta verö borgað fyrir
þær. Einnig seljum vér eSa skiftum vi8 y8ur &
öllum öSrum bökum, gömlum sem nýjum.
“Ye Olde BookShop”, 2S3 Notre Dame Ave.
Gegnt Grace Church, Tals. G. 3118
29. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 2. MARZ 1916
NÚMER 9
Tyrkir krefjast friðar.
Fréttir frá Miklagaröi segja
upphlaup þar. Krefjast Tyrkir
þess aö friöur sé saminn, og jókst
sú krafa um allan helming þegar
Rússar tóku bæinn Erzerum, eins
og getið var um í síðasta blaöi.
Kvað Tyrkjastjórnin eiga fult í
fangi meö aö halda þjóöinni svo í
skefjum aö ekki leiði til vandræöa.
Portúgal lœtur til sín
taka.
Portugal hefir nýlega hertekið
um 50 gufuskip fverzlunarskip)
frá Þjóðverjum og slegið yfir þau
íinni hendi. Er sigf ao þcir muni
rf til vill taka 80 i viöbót. hyrst
tóku þeir 38 fyrr.i mtövikudag sein
lágu í Tangus ánni, og á fimtudag-
inn tóku þeir 11 hjá Sa nt Vincent.
Á ýmsum öörum höfnum Portugals
eru um 80 þýzk og Austurrísk skip
sem taliö er víst aö þeir muni taka.
Alls eru þessi skip til samans 150,-
000 smálestir. Hefir þetta valdiö
mikilli hreyfingu á Þýzkalandi og
er tal ö afarmikið gerræöi af hlut-
lausu landi. Þykir ekki ólíklegt að
til striðs muni leiða.
Hiti í þinginu í Wash-
ington.
Þjóðverjar hafa lýst því yfir aö
innan skamms taff þeir upp þann
siö aö sökkva öllum skipum í At-
lanzhafi, vopn hafi meöferö-
is. Hafa þeir krafist þess að
Bandaríkjastjórnin vari þegna sína
við aö ferðast á slíkum skipum og
neiti ábyrgð á lífi þeirra. Frum-
varp hefir verið boriö upp í þing-
inu í Washington þess efnið aö þaö
sé gert, en forsetinn er því gersam-
lega mótfallinn. William Jennings
Bryan telur þetta mjög sanngjarnt;
heldur hann því' fram að Banda-
ríkjamenn hafi nóg tækifæj'i (til
aö ferðast á öðrum sk'pum og sé
þaö einungis að gera tilraun til að
stofna ríkinu í hættu aö ferðast
meö þeim skipum sem um er að
ræða.
Samsæriskæra.
Ýmsir fulltrúar Þjóðverja og
Tyrkja hafa verið kærðir í San
Francisco um það að ganga í sam-
særi til að stöðva útflutning á her-
vörum í Bandaríkjunum, og þannig
að brjóta hlutleysi landsins.
Aðalmennirnir í þessu samsæri
eru þessir: William barón von
Brucken, þýzkur ræðlsmaður i San
Francisco. J. L. Bley, tollræðis-
maður. Maurice A. Hall, aðalræð-
ismaður Tyrkja í San Francisco.
Charles Crowley, leynilögreglu-
maður í Bandaríkjunum, sem kærð-
ur er um að hafa veitt Þjóðverj-
um upplýsingar. Philip R. Thay-
er, formaður Norður- og Suður-
gufuskipafélagsins, eigendur skips-
ins Sacramento, sem til þess var
búið að flytja vistir til þýzkra
skipa'á Kyrrahafsströndinni og C.
D. Bunker, einn af tollheimtu-
mönnum Bandaríkjanna.
Hvernig þessum kærum lyktar
eða hvernig samsærismönnunum
verður hegnt, er enn ekki hægt að
segja; málið er ekki svo langt á
leiö komið.
Liberal þingmaður
kosinn.
í sambandi við hervörukaup og
fjárdrátt varð J. R. Fallis con-
servative þingmaður fyrir kjör-
dæmið Peel að segja af sér þing-
mensku. Aukakosning fór þar
fram á föstudaginn. Var Fallis
aftur í kjöri, en liberal þingfmanns-
efnið er á móti honum sótti heitir
Lowe og var hann kjörinn með
325 atkvæða meiri hluta.
Dr. Guðmundur Finnbogason
kemur vestur.
Dr. Guðm. Finnbogason frá
R-eykjavík á íslandi er væntanleg-
ur hingað vestur seint í apríl eða
snemma í maí mánuði næstk.
Er búi&t v'ð að hann ferðist um
bygðir íslendinga og með fyrir-
lestrum og viðtali við fólk, glæði
áhuga fyrir Jóns bjarnasonar skóla.
Dr. G. F. er í fremstu röð íslenzkra
lærdómsmanna, áheyrilegur ræöu-
maður og eirikar alþýðlegur í við-
móti og umgengni og hugsa menn
gott til komu hans. Ferða-áætlun
hans um íslendinga-bvgðirnar verð-
ur á sínum tíma auglýst í blöðun-
um.
Nemendur
frá Jóns Bjarnasonar skóla, sem
farið hafa í herinn.
Allir nemendur eiga á öllum tím-
um og alstaðar að gjöra skyldu
sína; en á tímum sorga og skelf-
inga verður þetta augljósara en
ella. Það er eitt atriði sem sýnir
hvern^j forsjón Guðs getur notaö
jafnvel hið illa til einhvers góðs.
Vér íslendingar höfum komið
hingað til Canada til þess að veita
því hið bezta sem vér eigum og
ætti hér að koma að góðu haldi hin
íslenzka þrautseigja og hið i&lenzka
drenglyndi. Þetta land þarf þess
með, hvort heláur er heima fyrir
eða á vígvellinum.
Um það viljum vér ekkert segja
livort einn eða annar á að þjóna
land nu sem friðarmaður eða her-
maður. Kall skyldunnar verður
að koma til hvers einstaklings, og
hann að ráða það við beztu sam-
vizku, hvar vegur skyldunnar fyr-
ir hann liggi.
Þrír piltar úr Jóns Bjarnasonar
skóla, án þess þó að skólinn segði
nokkuð um það hvar skylda þeirra
lægi, hafa sjálfir komist að þeirri
n ðurstöðu að skyldan bjóði þeim
að þjóna landinu á vígvellinum.
Er burtför þeirra úr skólanum
stórt tap fyrir hann, því þeir voru
meðal þeirra allra efnilegustu nem-
enda; en eins tap er annars gróði.
Wilheím, Gilbert, Sigurður
Dálítið skilnaðarsamsæti hélt
skólinn þessum nemendum föstu-
daginn, 11. febr. Var þar ýmis-
legt til skemtunar. Aðal ávarþ til
pltanna flutti skólastjóri.
Þrtr fyrverandi nemendur skól-
ans voru áður gengnir í herinn,
Konráð K. Johnson, E. G. Bald-
winsson og Ólafur Bardal, og er
hinn fyrstnefndi nú búinn að vera
marga mánuði i skotgröfunum á
Frakklandi, en i þetta sinn fóru frá
oss þrír sem nú skal skýrt frá og
fylgja myndir þeirra þessum línum.
Sigurður Jónsson Eiríksson er
fæddur 23. júní 1893, í Mýrasýslu
á íslandi. Faðir hans Jón Eiríks-
son kom frá íslandi 1900, býr nú
í Grunnavatnsbygð í Manitoba, en
móðir, Ingibjörg Þorkelsdóttir, er
dáin. Sigurður hefir notið til-
sagnar barnaskóalnna við Vestfold,
á Westley College og nú síðast á
Jóns Bjarnasonar skóla. Þar inn-
ritaðist hann haustið 1914, og leysti
af hendi próf úr öðrum bekk
(Tart I.J síðastliðlð vor með I B
einkunn.
Gilbert J. Jónsson er fæddur 15.
sept. 1899 í Winnipeg, þar sem for-
eldrar hans, Filippus Jónsson, ætt-
aður úr Rangárvallasýslu og Þór-
dís Þorsteinsdóttir, ættuð úr Borg-
arfjaröarsýslu, þá áttu heima. Þau
komu frá Islandi fyrir meir en 25
árum, en nú allmörg ár hafa þau
búið í grend við Stony Hill póst-
hús í Grunnavatnsbygð. Fékk hann
fræðslu á Stony Lake barnaskólan-
um og svo á Jóns Bjarnasonar
skóla. Þar innirtaðist hann haust-
ið 1913 og var einn af fyrstu nem-
endunum. Siðast •liðið vor stóðst
hann próf úr öðrum bekk (Tart I)
með I B einkunn.
Wilhelm M. Kristjánsson er
fæddur 20. des. 1896 að Ottó í
Grunnavatns-bygð. Búa þar enn
foreldrar hans Magnús Kristjáns-
son og kona hans Margrét Daníels-
dóttir. Hafa þau búið þar um 25
ár. Wilhelm fór i barnaskólann í
nágrenni hans og síðastliðið haust
innr taðist hann í annan bekk Jóns
Bjarnasnoar skóla.
Allir þessir piltar hafa getið sér
góðan orðstir i skólanum, og eru
þeir alilr beztu mannsefni. Hug-
heiar óskir skólafólksins alls fvlgja
þeim livert sem þeir fara.
Ofsastormur.
og stórsjór var í kringum Bret-
landseyjar fyrra þriðju 'ag. Fórust
nokkur skip og stór skemdir urðu
bæði á sjó og landi; tiu manns
mistu lífið og allmargir meiddust.
Ekkjan og drengurinn hennar.
Hún sterklega höndum heldur
um hjartkæra drenginn sinn
og þrýstir að þrungnu brjósti
og þerrar sér tár af kinn,
og þerrar sér tár af kinn,
Hví grætur hún ? barnið brosir —
hví brosir hún ekki sjálf?
Þvi gæfan og gleðin hennar
í gröfinni liggur hálf,
í gröfinni liggur hálf.
Hún hugsar um falin forlög
og framtíð hins unga manns, —
og sárust í móður minn ng
ér myndin af föður hans,
er myndin af föður hans,
En kærleik og gáfum gæddur
frá guðshendi var hann þó;
en morðinginn bak við borðið
með brennivínsglasið hló,
með brennivinsglasið hló,
Hann freistaðist, féll um siðir, —
hún fékk það í jólagjöf,
að hagræða liðnu líki —
hann liggur í kaldri gröf —
hann liggur í kaldri gröf.
Hún biður um aðstoð okkar,
um atkvæði mitt og þitt,
frá bölvun og valdi vínsins
að varðveita bamið sitt.
að varðveita barnið sitt,
Með ungbamið ekkjan grætur,
í óvissu hjartað slær;
en morðinginn bak við borðið
með brennivínsglasið hlær,
með brennivínsglasið hlær.
Sig. Júl. Jóhannesson.
KVŒÐI
Eftir Goethe.
petta er bezt.
Um Paradís yfunglið birtu brá.
Hvar blundaði Adam Jehóva sá.
pá lagði ’ann Evu hans við hlið
og hana svæfði í næturfrið.
par lágu þau bæði limafríð,
hið ljómanda drottins völundarsmíð.
Og þá kvað ’ann hrærður: “petta er bezt
af því, sem eg gjört hefi, fegurst og mest!”
Og því er þeim sálum sæla mest,
sem svikalaust unnast heitast og bezt,
að vita að hans er handaverk
sú hjartans löngun blíð og sterk,
sem berst með geislum frá auga til auga
og ástin og frelsið hreina lauga. —
Nú hvílir þú, drotins hugsjón hæst,
við hjarta mér inn í faðm minn læst!
Listigarðurinn.
Hvílík íegurð! Líkt og himin heiður
brosir sviðib fjölstirnt lita ljóma.
Áður var hér ber og blásin moldin.
Svo stælir mannsins hugvit aflið æðsta::
Klettar, vötn og laufi grónir lundar
eru hér, og dýrin, fuglar, fiskar.
Tvent gleymdist þó að Edin þetta yrði:
Hjörtu sorgiaus, helgi sunnudagsins.
Sameinað afl.
Ef heildinni treystirðu, hugsa um þá
Heildina í því smáa að sjá.
Linain sýnir fyrst lífsþrótt sinn
þá lögð er stífla í farveginn.
Kr. St.
Bæjarfréttir.
Stefán Anderson frá Leslie, sem
getið var um að farið hefði norð-
ur til Nýja íslands kom þaðan aft-
ur í vikunni sem leið og fór heim
eftir stutta dvöl hér. Með honum
fór systir hans Mrs. P. S. Pálsson
að finna foreldra sina.
Séra Hjörtur Leó frá Lundar
var á ferð í bænum fyrra miðviku-
dag og fór heim aftur á föstudag-
inn.
J. K. Ólafsson frá Gardar og
kona hans hafa verið hér í bænum
halfsmánaðartima, hjá Mr. og Mrs.
Hermann foreldrum Mrs. Ólafs-
son. Þau fóru heim aftur á mánu-
daginn.
I ritgerð Miss Þorstinu Jackson
um Californiu voru þessar tvær
misprentanir. í þriðja dálki stóð:
“Þar fvrir utan voru 42 bygging-
ar, sem tilheyra útlendum kirkj-
um, á að vera ríkjum.
I fjórða dálki stendur: “Einnig
gat maður tekið sér far til Mexico,
tsalnds o. s. frv”, á a, vera trlands.
Pétur Magnússon frá Glenboro,
• sem hér dvaldi nokkra daga og bezt
skemti Winnipegbúum með söng
sinum, fór suður til Chicago í vik-
unni sem leið til þess að finna
Ragnhildi systur sina og tengda-
bróður Guðmund Barnes og fleiri
kunningja. Hann bjóst við að
dvelja þar syðra um tveggja vikna
tíma.
G. R. Goodman frá Kandaþar,
Óskar Melsted frá Wynyard, Al-
fred Syrup frá Wynyard og Sig-
iirður Gíslason frá Kristnesi komu
til bæjarins á föstudaginn; voru
þeir allir að ganga i herinn, 108
deddina.
Mr. H. J. Eggertson hefir vun
þessar mundir góð tök á að útvega
peninga lán út á hús smá og stór
í Winnipegbæ. Lánin -fást með
venjulegum skilmálum hvað snert-
ir vexti og aðra kosti. Óefað
mundi það hagur að sjá Mr. Egg-
ertsson, fyrír þá sem þurfa ný
lán út á hús sin eða endumýja áð-
ur fengin lán.
Eggert Fjeldsted og kona hans
lögðu af stað eftir brúðkaup sitt
9. febr. austur til Montreal, Chi-
cago og fleiri bæja. Eru þau vænt-
anleg heim aftur í næstu viku og
setjast þá að hér í Winnipeg.
Fundinum sem haldast átti að
Árborg 6. marz verður frestað.
/Efintýri á gönguför verður leikið
þar það kvöld.
Þórður Thorsteinsson fsonur
Steingríms' ThorsteinssonarJ er
genginn í herinn; fór í hann i
nóvember í haust.
Aðalsteinn Kristjánsson og kona
hans komu heim á mánudaginn,
eftir langt ferðalag um Evrópu og
Bandaríkin. Hafa þau dvalið í
New York siðan fyrir jól. Utaná-
skrift Aðalsteins er 541 Lipton St.
Guðsþjónusta verður lialdin í
Leslie sunnudaginn 5. marz kl. 12
á hádegi. Spumingar eftir messu.
Fyrirlestur séra Friðriks J.
Bergmanns, sem getið var um i síð-
asta blaði, verður ekki 7. þ. m.,
heldur þriðjudagskveldið 14. marz
kl. 8 í .Tjaldbúðinni, Umræðuefn-
ið verður: “Hvert stefnir?”
Taílfélag var stofnað með ís-
lendingum á þriðjudagskveldið var.
Formaður þess er Sumarliði
Sveinsson, en skrifari Paul John-
son. Félagið heldur fund i kjall-
aranum á Únítara kírkjunni næsta
þriðjudagskveld kl. 8. Þangað ættu
sem flestir islenzkir taflmenn að
koma. Til þess er ætlast aö kapp-
tafl byrji meðal félagsmanna inn-
an skamms, og síðar milli þessa fé-
Iags og annara.
Símon Johnson,' bróðir Mrs. B.
B. Jónsson og þeirra systra lcvænt-
ist fyrir rúmri viku hér í bænum.
Hann gekk að eiga enska stúlku.
Þess var nýlega getið að Sigurð-
ur Árnason hefði dáið í Norður
Dakota. Hann var ungur piltur
nýlega kominn að heiman. Móðir.
hans í Reykjavík hefir beðið Lög-
lærg að flytja O. K. Ólafssyni í
Edinborg hjartans þakklæti fyrir
það mikla göfuglyndi er hann sýndi
syni hennar. Ólafsson flutti hann
á hospital og svo þaðan heim til sín,
annaðist hann að öllu leyti meðan
hann lá og reyndist honum eins og
bezti bróðir, og sá svo algerlega um
jarðarförina; og þó voru þeir al-
veg ókunnugir og vandalausir.
Bæði fyrir það sem Ólafsson gerði
og sérstaklega fyrir það hvernig
hann gerði það, þakkar móðirin
innilega.
Thorsteinn Johnston fiðlukenn-
ari hélt hljómleika samkomu í
Methodista kirkjunni á Maryland
í fyrrakveld. Komu þar fram nem-
endur hans og skemtu ágætlega.
Ávextir þess langa starfs sem
Johnston hefir stundað hér í bæ er
farið að bera mikinn ávöxt. Þeir
eru ekki fáir sem fengið hafa
pientun sina hjá honum í þeirri
grein hljómlistarinnar sem hann
stundar, og þeir fjölga óðum.
Andrés Freeman og fólk hans
kom heim aftur fyrra þriðjudag.
Það hefir dvalið í Los Angeles
síðan í október í haust. Freeman
lá fyrir dauðans dyrum langan tíma
og var ekki hugað lif; en er nú orð-
inn allhress — fram yfir allar von-
ir. Freeman kveðst um langan
tima hafa lagst út af að kveldi með
þeirri vissu að þetta væri sin síð-
asta nótt hér í heimi, og kvað hann
það ólýsanlega tilfinningu. Þegar
dimt var og dapurt að kveldinu
kvaðst hann hafa verið alsáttur
með það að leggjast út af og eiga
ekki von á að vakna aftur, en þeg-
ar morgna tók, sólin skein og hlýir
geislarnir steymdu brosandi inn til
hans, fuglarnir sungu og alt bar
vott um líf og unað, kvað hann
lífsþrána hafa vaknað aftur og
lífsþróttinn með henni; hann kvað
sig þá hafa langað til að halda
áfram að lifa með öllu öðru sem
lifði. Andrés er glaður og þíður í
viðmóti eins og hann á vanda til,
þótt veikindin hafi leikið hann hart.
— Ekki sagði hann neinar fréttir.
Snjólaust alveg á milli Calgary og
Banff og þar verið að brenna sin-
una til þess að varna eldum. í
Los Angeles var 85 stiga hiti t
forsælunni þegar hann fór.
í kvæðaflokki af vorvísum eftir
Stephan G. Slephansson í Eimreið-
inni XXII. ár 1 hefti, bls 14, hefir
önnur hending í “Tvisýna” vilst
um staf og orðið “9vo hróðugt
ljówar söngfuglinn”, en á að vera
“Svo hróðugt ljóJar söngfuglinn”.
Sig. Júl. Jóhannesson talar á
Wild Oak kl. 3. e. h^ á laugardag-
inn (ii íslenzku), aíS Langruth kl.
8 að kveldi sama dags (á Ensku),
og kl. 2 á sunnuda^inn að /Vrnar-
auth (a Ensku), au Otto þann 9.
og Brown þann 11. marz.
Ragnar og Jón Eyjólfsson frá
Lundar komu til bæjarins á þriðju-
daginn og fara heimleiðis aftur á
morgun. Ekk i kváðu þeir það
neitt efamál að bannið yrði þar i
ntiklum meiri hluta, hver einasti
íslendingur þar þvi hlyntur.
“Æfintýri á gönguför” er ein-
hver vinsælasti leikur sem fram
hefir kornið meðal Islendinga. Ar-
borgarmenn ættu að hafa fult hús
bæði þar og við íslendingafljót
þegar þeir leika “Æfintýri á göngu-
för”.
Atkvœðagreiðslan
13. Marz.
Margir viröast vera í efa um það
hverjir hafi rétt til atkvæða um
vínsölubannið og hverjum reglum
verði þar fylgt.
Þetta er ofur einfalt. Atkvæða-
skrárnar sem notaðar voru við síð-
ustu fylkiskosningar verða notaðar
við þetta tækifæri, alveg óbreyttar.
Allir þe-ir sem á kjörskrám voru
þá, eiga atkvæði nú, en engir aðrir.
Aðalatriðið er þaö að allir finni
til þess sem skyldu sina að fara á
atkvæðastaðinn og koma þangað
öllum sem þeir geta haft áhrif á.
Percy Hagel
Hann ferðast nú um og flytur
þrumandi bindindisræður. Er að-
sóknin svo mikil þangaö sem hann
kemur fram að fjöldi verður frá að
hverfa. Fyrsta ræðan sem hann
flutti var í Goodtefnplarahúsinu
fyrra föstudag. Var húsið troð-
fult hálftíma áður en byrja skyldi
og er sagt að um 100 manns hafi
farið frá, sem ekki komust inn.
Ræða Hagels var snjöll, enda er
hann kunnugri öllum krókum
brennivínssalanna en flestir aðrir
og hann hefir liðið skipbrot á virð-
ingu sinni vegna áfengisnautnar.
A því leikur ekki tveimur sögum
að faðir hans hafi dáið fyrir aldur
fram af sorg yfir óförum sonar
síns og var það alt af völdum á-
\
fengisins. Þetta finnur Hagel nú
og v.'ðurkennir fyllilega.
Allmargir vínsalar voru áheyr-
endur hans, og talaði hann stund-
urn beint til þeirra í ræðu sinni.
Meðal annars eru þessi atriði úr
ræðunni:
1. Hvert einasta hótel í Winni-
peg hefir útibú fyrir vændis
kvennahús.
2. Hvert einasta vinsölv.hús er
skóli sem kennir ungum mönnum
að drekka.
3. Vinsalinn er eini maðurinn,
sem fyrirlítur viðskiftavini sina.
Hann gerir það sem hann getur til
þess að láta hann drekka sem mest,
og kastar honum svo út um bak-
dymar, þegar hann er orðinn ó-
sjálfbjarga.
4. Þúsundir manna eru fyrir
dauðans dyrum hér í fylki af tær-
ingu, sem þeir hafa fengið vegna
þeirra kringumstæða sem vín-
nautn og vínverzuln skapar.
5. Vinsölukráin er pestarhús,
hún er stór hættulegur staður,
jafnvel þeim sem sterkir viröast.
Það er ómögulegt að vera í pesfar-
húsi án þess' að verða fyrir áhrif-
um pestarinnar.
Rússar taka Kermansah
sem er stórbær í Persiu og héraðið
umhverfis hann. Það skeði á
föstudaginn. Sömuleiðis tóku þeir
þá bæina Ishpir í Kákasus og
Knyss nálægt Erzerum; einnig bæ-
ina Saklme og Kachen þar í grend.
I Svártahafinu söktu Rússar
fjórum skipum fyrir Tyrkjum.
Á Frakklandi.
hefir verið grimm orusta að und-
anfömu; hafa Þjóðverjar verið
þar með ofurefli liðs og keisarinn
sjálfur á vígvellinum. Nokkrir
smábæir hafa fallið þe!m i hendur,
en bandamenn veittu þeim harða
mótstöðu og varð mannfall Þjóð-
verja miklu meira en hinna. Bær-
inn Brabander einn þórra er þeir
tóku.
Mentamálín á þinginu.
Um þau hafa verið harðar um-
ræður og heitar. Stjómin hefir
tekið þá stefnu að afnema meö öllu
tvískiftu kensluna. Rísa Frakkar
upp öndverðir gegn því og sömu-
leiðis Pólverjar. Þeir þingmenn
sem stjórninni hafa fylgt og af
frakknesku bergi eru brotnir hafa
eindregið snúist móti henni í þessu
máli, tveir hafa þegar yfirgefið
flokkinn sökum þess og eru því ó-
háðir í þinginu. Prefoutain leið-
togi afturhaldsmanna hélt langa
ræðu og fylgdi fast fram ntáli sinu.
Það þótti mestum tíð'ndum sæta
að Aimie Benard talaði í þessu máli
Hefir hann setið á þingi í mörg ár
og aldrei látið til sín heyra fyr;
var það allra skoðun að hann væri
mállaus. Nú hefir það reynst á
annan veg og er búist við að hann
láti oftar til stn heyra hér eftir,
þegar hann er kominn upp á lagið.
Dr. Thomton mentamálaróð-
herra fylgir fast fram afnámi allra
mála nema Ensku, þannig að hún
ein skuli notuð við kenslu í alþýðu-
skólum. Þar með er það ekki
bannað að hver þjóð fyrir s'g geti
kent stna tungu á sitt eindæmi.
Tehtr Dr. Thornton það rangt að
veita nokkttrri þjóð sérréttindi i
þessu máii fremur en öðram og þá
stefnu heppilegasta að sameina alla
borgara landsins með einu og sama
tungumáli. Söntu stefnu hefir
Thos. H. Johnson og yfir höfuð
allir |teir sent stjórninni fylgja
nema hinir frönsku. Kveða þeir
Frakka hafa sérstakt tilkall til
hlunninda t þessu tnáli og hóta að
leita liðs hjá sambandsstj óminni
til þess að ónýta lögin ef þau verði
samþykt. Ekkert sýnir það betur
en framkoma stjómarinnar í þessu
efni, hve samvizkusantlega hún ætl-
ar að halda loforð sin við kjósend-
urna. Þetta mál er viðkvæmara
og ef til vill hættulegra fyrir hana
sjálfa en nokkuð annað, óg stjóm
sem ekki hefði að fullu virt fyrri
loforð mundi hafa skoðað huga
sinn tvisvar áður en hún samþykti
þessi lög.
Hlýtur þetta að vtnna stjórninni
svo mikið trausts að jafnvel óvin-
ir hennar bera virðingu fyrir.
Skúli Sigfússon flutti ræðu í
þessu máli, hefir Lögberg ekki rúm
fyrir hana riú, en flytur hana síð-
ar. I fyrrakvöld voru loksins
grcidd atkvæði um mál ð við aðra
umræðu og var afncm tviskiftu
kenslunnar samþykt með 36 at-
kvæðum gegn 8.