Lögberg - 20.04.1916, Page 6
6
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. APRIL 1916
PURITyFLOUR
- “ More Bread and Better Bread”
Frá íslandi.
Hjónavígslur, fœðingar og mann-
dauði 1914.
Hjónavigslur.
/\rið 1914 var tala giftinga hér
á landi 493. Er það lík tala og
næstu árin á undan. Árið 1913
voru giftingar 494 og 1912 497, en
árið 1911 voru þær 517 og voru þá
með mesta móti. Samanborið við
mannfjölda hvers árs komu 5.6
giftingar á hvert þúsund landsbúa
árið 1914, 5.7 árið 1913 og 1912,
en 6.0 árið 1911. Giftingarnar
verða þannig fátíðari ár frá ári og
s.vnast orðnar tiltölulega færri hér
hekiur en í nokkru öðru landi í
Norðurálfunni, að írlandi undan-
skildu. Á írlandi eru giftingar
taldar fátiðastar hér í álfu. Árið
19x3 voru þær 5.0 á hvert þúsund
landsbúa. 1 Svíþjóð og Noregi eru
giftingar einnig í fæsta lagi. Árið
1913 komu þó 5.9 á hvert 1000
landsbúa í Svíþjóð og 6.3 í Noregi.
Sama ár komu í Danmörku 7.2
giftingar á hvert þúsund lands-
manna og er það líka minna heldur
en í flestum stærri löndum álfunn.
ar.
Fœðingar.
Árið 19x4 fæddust lifandi 2,333
böm hér á landi, þar af 1,201 svein-
ar og 1,132 meyjar. Er það rúmu
100 fleira en árið á undan. Þá
fæddust lifandi 2,216 böm, árið
1912 2,234 og árið 1911 2,105. Sam-
anborið við mannfjölda komu á
hvert þúsund landsbúa 1914 26.5
lifandi fædd böm, en árið 1913
komu á hvert þúsund 25.4, árið
1912 25.8 og 1911 sama tala. Hafa
þannig fæðst tiltölulega fleiri böm
1914 heldur en næstu árin á undan,
en yfirleitt hafa samt fæðingamar
orðið fátíðari á síðari árum. 1901
til 1910 komu að meðaltali 27.8
lifandi fædd böm á hvert þúsund
landsbúa og síöasta áratug nítjándu
aldarinnar jafnvel 31.2 Hins sama
hefir orðið vart í flestum menning-
arlöndunum, en einna mest þó á
Frakklandi. Þar komu aðeins 18.8
lifandi fædd börn á hvert þúsund
landsbúa árið 1913, en næst Frakk-
landi ganga að þessu Belgía, Ir-
land, England, Sviss og Norður-
lönd. Á íslandi er tíðleiki fæðing-
anna líkastur því sem er í Dan-
mörku og í nágrannalöndunum
Noregi og Skotlandi. 1 Danmörku
komu 1913 25.6 lifandi fædd böm
á hvert þúsund landsmanna, á Skot-
landi 25.5 og í Noregi 25.2. í öll-
um öðrum löndum Norðurálfunnar
en þeim, sem nefnd hafa verið, eru
fæðingar tíðari heldur en á ís-
landi.
Af lifandi fæddum bömum hér
á landi árið 1914 voru 333 eða
14.3% óskilgetin. Er það óvenju-
lega margt, því að 1913 voru að eins
12.8% og 19x2 12.2% og 1911
13% óskilgetin börn. Árin 1901 til
1910 voru að meðaltali 13.3% óskil-
getin, 1891—1900 16.6%.
Af fæðingum 1914 vom 25 tví-
bura fæðingar, en 1913 voru þær
34 og tvær þríbura fæðingar og
1912 33 tvíbura fæðingar og 1 þrí-
bura fæðing.
Andvana fædd börn árið 1914
voru 56. Er það það fæsta, sem
verið hefir á nokkru ári á þessari
öld. Árið J913 fæddust andvana
84 böm, 1912 76 og 1911 63. Árin
1901—10 voru andvana fæddir að
meðaltali 71 á ári, en 1891—1900
79-
Manndauði.
Áriö 1914 dóu hér á landi sam-
kvæmt skýrslum presta 1,429
manns. Var það hátt á fjórða
hundrað manns fleira heldur en
næsta ár á undan. Þá dóu 1,060,
en árið 1912 dóu 1,170 og 1911
1,151. Árið 1914 hefir verið ó-
venju mikill manndauði eftir því
sem verið hefir á síðari áram. Af
hverju þúsundi dóu 16.2 Að vísu
er það lítið í samanburði við það,
sem manndauði var á öldinni, sem
leið, en á síðustu áram hefir hann
farið mjög minkandi og árið 1913
var hann langminstur, sem hann
hefir nokkra sinni verið. þá dóu
að eins 12.1 af þúsundi, en árin
næstu þar á undan (1912 og'1911)
dóu 13.5 af þúsundi. Árið 1913
var manndauði í Hollandi 12.3 af
þúsundi, i Danmörku 12.5, í Nor-
egi 13.2, í Svíþjóö 13.6 og á Eng-
landi 13.7. I öðrum löndum Norð-
urálfunnar var manndauði meiri.
Mannfjöldinn á Islandi síðan 1910.
Síðasta allsherjar manntal hér á
landi fór fram 1. des. 1910. Reynd-
ist þá mannfjöldinn 85,183. Mann-
fjöldann á hverju ári síðan má
finna með því að bæta við tölu
fæddra og innfluttra hingað til
lands, en draga frá tölu dáinna og
útfluttra héðan af landi. En þar
er sá hængur á, að ókunnugt er um
tölu innfluttra og útfluttra, nema
þeirra sem flytjast til Vesturheims,
en á undanfarandi áratugum hefir
reynst svo, að útflutningar manna
héðan af landi til annara landa en
Vesturheims hefir hérumbil jafn-
ast á við innflutning hingað til
lands frá þeim löndum, og mun lík-
lega óhætt að gera ráð fyrir, að svo
sé enn. Hagstofan hefir því reikn-
að út mannfjöldann 1. janúar og 1.
8 ó Ii S K I N.
Ótal fagrar yndisstundir
umhyggjan mun vekja’ í sál
þegar litlu, ljúfu blómin
lifna’ úr jörð við sólarbál.
Hljóttu sanna sumargæfu
Sólskins kæri lesarinn!
Ef að þú mig sérð í sumar,
sýndu mér þá garðinn þinn.
borsteinn b. Þorsteinsson.
Tveir barnavinir.
Það eru til tvær bækur, sem
flestir unglingar hafa lesið, og öll-
um þykir vænt um, þegar þeir hafa
lesið þær. Það er “För pílagríms-
ins” og “Robert Crusoe”.
En það eru mörg börn, sem ekki
vita neitt um mennina, sem skrif-
uðu þessar bækur. Það er samt
nokkuð sem allir ættu að vita.
Það á vel við að minnast á þetta
núna, því á mánudaginn kemur 24.
apríl, eru liðin 185 ár síðan sá mað-
ur dó sem skrifaði söguna af
“Robinson Crusoe”. Hann hét
Daniel. Dafoe og var sonur fátæks
kjötsölumanns í Lundúnum á Eng-
landi, en vann lengi í fatasölubúð
þar í bænum. Hann varð síðar há-
lærður maður og mikill stjómmála-
maður og skifti sér af öllu mögu-
legu, sem honum þótti þurfa að
lagfæra.
1 þá daga vora engin dagblöð eins
og núna; menn sem skrifuðu eitt-
hvað og vildu láta fólkið lesa það,
létu þess vegna prenta það í smá-
bæklingum og selja það á götunum
í bænum. Þetta gerði Daniei Dafoe.
Árið 1704 var hann settur í fang-
elsi fyrir það sem hann skrifaði um
stjómmál. En hann var ekki iðju-
laus í fangelsinu, heldur skrifaði
hann þar um hitt og þetta.
Meðal annars skrifaði hann þar
rit á móti kaþólsku trúnni og með
siðabótinni. Hann hefir skrifað
fjölda af sögum og dæmisögum, og
er hann talinn fyrsti maður sem
hafi skrifað reglulegar skáldsögur.
Þegar ritstjóri Sólskins var í
Lundúnaborg í hitteð fyrra, þótti
honum gaman að sjá staðinn, þar
sem höfundur Robinson Crusoe var
grafinn. Sá staður heitir Bunhill
og minnisvarðinn yfir gröf hans er
egyptsk steinsúla eða varði, og það
er gaman fyrir börnin að vita vhern-
ig stendur á þeim minnisvarða.
Fyrir nokkrum árum var upp-
haflegi legsteinninn yfir Daniel
Dafoe orðinn allur brotinn og letr-
ið svo að segja ólæsilegt; þá var
það að blað eitt í Lundúnaborg
stakk upp á því að öll börn bæjar-
ins legðu fram nokkur cent hvert
um sig, til þess að láta reisa minnis-
varða yfir skáldið sem orti Robin-
son Crusoe.
Þessu var vel tekið og börnin
keptu hvert við annað að leggja til
það sem þau gátu; sum vora ósköp
fátæk og gátu ekki látið nema eitt
eða tvö cent, en þau vora svo mörg
bömin í Lundúnaborg að það safn-
aðist fljótt saman og þar var mikið
um dýrðir, þegar minnisvarðinn var
reistur fyrir peninga bamanna.
Þar voru haldnar margar ræður
og minst á skáldið sem hefði skrif-
aö söguna, sem öllum bömum þættí
gaman að lesa.
Þegar Daniel Dafoe var 17 ára
gamall drengur, þá var fullorðinn
maður í fangelsi í Lundúnaborg,
sem var áð skrifa sögu, sem var alt
öðru vísi eh “Robinson Crasoe”, en
samt öllum kær. Sú saga heitir
júlí ár hvert með því að leggja við
mannfjöldann í byrjun hvers miss-
eris tölu fæddra á misserinu, en
draga frá tölu dáinna og útfluttra
til Vesturheims á misserinu. Af
þessum tölum hefir svo aftur verið
reiknaður meðalmannfjöldi á árinu.
Samkvæmt þessu hefir mannfjöld-
inn verið síðan 1910:
Meðal-
1. janfiar 1. jfilt mannfjöldi.
1911. . 85,221 85.502 85.573
1912. . 86,069 86,411 86452
1913- . 86,918 87,287 87.317
1914. • 87,776 88,087 88,122
1915- . 88,539
Ef það skyldi reynast rétt, að út-
flutningur manna til annara landa
en Vesturheims jafnist á við inn-
flutning þaðan eins og að undan-
förnu, þá má gera ráð fyrir
að þessar tölur sýni mann-
fjöldann í heild sipni eins og
hann hefir verið í raun og veru.
Samkvæmt því hefir landsmönnum
fjölgað árið 1911 um 848 manns,
1912 um 489, 1913 um 858 og 1914
um 763. Fjölgunin hefir þannig
orðið minni árið 1914 heldur en ár-
in á undan þrátt fyrir það þótt fæð-
ingar væru óvenjumargar það ár
og Vesturheimsferðir litlar, en
manndauði var þá óvenjumikill og
hefir hann dregið úr fjölguninni.
Samanborið við mannfjölda í byrj-
un hvers árs f jölgaði landsmönnum
árið 1911 um 10.0 af þúsundi, 1912
og 1913 um 9.9 af þús. og 1914 um
8.7 af þús. Til samanburðar má
geta þess, að í Danmörku fjölgaði
landsmönnum 1914—15 um 10.8 af
þús., í Noregi 1914 um 0.5 af þús.,
og í Svíþjóð sama ár um 7.3 af þús.
Mannfjöldann á einstökum stöð-
um á landinu er ómögulegt að
reikna út eftir fæðingum og mann-
dauða, því að flutningarnir frá
einum stað til annars gera sífeldan
glundroða. En á hverju ári í árs-
lok gera prestamir yfirlit yfir
mannfjöldann, hver í sínu presta-
kalli, nema í Reykjavík framkvæm-
ir bæjarfógeti manntalið. Að vísu
er ekki við því að búast, að þetta
prestamanntal sé fyllilega nákvæmt
og það hefir líka sýnt sig, að það
hefir ævinlega verið lægra heldur
en mannfjöldinn hefir verið í raun
og vera. Er það líklega helzt í
kaupstöðunum og stærri kauptún-
unum að fólk skýst undan manntal-
inu. í Landshagsskýrslunum 1912,
bls. 262, er skýrt frá mannfjöldan-
um í hverju prófastsdæmi sam-
kvæmt prestsskýrslunum í árslok
1911.
—Hagtiðindi.
Verzlunarviðskiftin milli Islands
og útlanda í heild sinni.
Samkvæmt verzlunarskýrslunum
1913 með þeim leiðréttingum, sem
gerðar hafa verið á þeim eftir toll-
reikningnum, og að því sleptu, sem
þær töldu að- og útflutt af pening-
um, nam verð aðfluttu vörunnar
1913 alls 16.7 milj. kr., en útfluttu
vörunnar 19.1 milj. kr. Samkvæmt
þvi hafa verið fluttar út vörur fyr-
ir 2.4 milj. kr. meira heldur en að-
flutt hefir verið.
Síðustu árin hefir verð aðfluttr-
ar og útfluttrar vöra numið því,
sem hét segir (peningar ekki tald-
ir):
ASfl. kr. Otflutt Útfl.umfr. Útfl. og
aðfl.samt.
1909 9,876 13,129 3,253 23,005
1910 11,323 14,406 3,083 25,729
1911 14,123 15,691 1,568 29,814
1912 15,347 16,558 1,211 3L905
1913 16,718 19,128 2410 35,846
Lengra fram í tímann er verðið,
sem gefið hefir verið upp í verzl-
unarskýrslunum, ekki sambærilegt
að því er aðfluttu vörana snertir,
því að síðan 1909 hefir verið talið
innkaupsverðið að viðbættum flutn-
ingskostnaði til landsins, þ. e. verð
vörunnar þegar hún kemur á land,
en þar á undan var einungis skýrt
frá útsöluverðinu, en þar i felast
bæði tollar þeir, sem greiddir hafa
verið af tollvörum í landssjóð, og
álagning kaupmanna. Til þess að
gera verðupphæð aðfluttu vörannar
fyrir 1909 sambærilegri við upphæð-
ina eftir þann tima hefir í eftirfar-
andi yfirliti verið sett auk útsölu-
verðsins, sem gefið hefir verið upp
i skýrslunum, áætlað verð vörunn-
ar hingað fluttrar, þannig að frá út-
söluverðinu er dregið það sem greitt
hefir verið í tolla og ennfremur
20% af þvi, sem þá er eftir, og er
gert ráð fyrir að það samsvari þvi,
sem lagt hefir verið á vörana. Auð-
vitað er áætlun þessi harla óná-
kvæm, en þó miklu sambærilegri við
síðari ár heldur en útsöluverðið.
Peningar eru ekki taldir, hvorki að-
fluttir né útfluttir.
Verzlunarviðskiftin við útlönd
metin til peninga hafa verið meiri
árið 1913 heldur en nokkurt undan-
farið ár. Námu þau alls ('aðflutt
og útflutt), 35.8 miljónum króna.
Er það tæplega 4 milj. kr. meira
heldur en næsta ár á unclan, 1912.
Á síðari árum hefir viðskiftaveltan
við útlönd verið minst árið 1909.
Síðan ehfir hún altaf aukist ár frá
ári og komst 1911 upp yfir það
sem hún hafði verið mest áður
(1907) og hefir svo vaxið enn meir
siðan og er 1913 orðin yfir 50%
meiri heldur en hún var 1909.
Af aukningu viðskiftaveltunnar
frá 1912 til 1913 fellur 1.4 milj. kr.
á aðfluttu vöruna, en 2.6 milj. á
útfluttu vöruna. Aukningin á
verðmagni aðfluttu vörunnar staf-
ar ekki af hækkun á vöruverði. Að
vísu hefir verð á kolum, salti og
trjávið verið hærra 1913 heldur en
árin á undan, en aftur á móti hefir
verð á kornvörum, steinolíu o. fl.
verið lægra og vegur þar upp á
móti. Aukningin á verðmagninu
ætti þá eingöngu að stafa af aukn-
ingu á aðflutningunum. En þar
við er það að athuga, að árið 1913
gengu vörutollslögin i gildi, og hef-
ir þvi fyrst á því áritærið unt að
bera skýrslurnar um aðfluttar korn-
vörur, steinolíu, sement, kol, salt
og trjávið saman við tollreikning-
ana, en sá samanburður hefir leitt til
þess, að bætt hefir verið við skýrsl-
urnar 1913 nál. 1 y2 milj. kr. virði
af þessum vörum eða heldur meiru
en öll aukningin á verðmagni að
fluttu vörunnar nemur miðað vit
árin á undan. Ef skýrslurnar um
þessar vörar hafa ekki verið betri
1912 heldur en 1913, þá hverfur í
rauninni mismunurinn á aðfluttu
vörunum þessi ár, því að hann staf-
af þá eingöngu af því, að skýrsl-
umar hafa orðið meira leiðréttar
síðara árið heldur en fyrra.
Að því er útfluttu vöruna snertir
stafar verðhækkunin á verðmagni
hennar 1913 að miklu leyti frá
verðhækkun á vöruverði. Það mun
ekki fjarri sanni, að af þessari 2.6
milj. kr. hækkun stafi 2 milj. kr.
frá hækkuðu vöruverði. Flestar
tegundir af fiski og lýsi hafa selst
töluvert hærra verði 1913 helduren
árið á undan og mun ekki fjarri
Iagi, að sú verðhækkun að frádreg-
inni verðlækkun á sumum tegund-
um hafi numið um 1200 þús. kr.
Þó hefir verðhækkun á landbúnað-
arvörum veriö tiltölulega meiri. Á
saltkjöti, ull gæram, hrossum og
dún mun sú verðhækkun samtals
hafa numið um 800 þús. kr. Sam-
kvæmt þessu stafar þá af aukningu
á sjálfum útflutningnum aðeins
rúml. y2 milj. kr. af hækkuninni á
verðmagni útfluttu vörunnar.
Á yfirlitunum á undan um að-
fluttar og útfluttar vörar sést að
útfluttu vörumar hafa æfinlega
verið meira virði heldur en aðfluttu
vörurnar, þegar verð aðfluttu vör-
unnar er miðað við innkaupsverð að
viðbættum flutningskostnaði, en
ekki við útsöluverð. Af þessu má
samt ekki draga þá ályktun, að
landsmenn hafi á hverju ári auk
útfluttu vörannar haft afgang af
viðskiftunum við útlönd, sem þeir
hafi getað lagt upp.
Þegar aðfluttu og útfluttu vör-
unni er jafnað saman verður að
hafa það hugfast, að öllu merri lík-
ur eru til, að vanhöld séu á aðfluttu
vöranni í verzlunarskýrslunum
heldur en þeirri útfluttu, vegna þess
að mestur hluti útfluttu vörannar
eru sjávarafurðir, sem svarað er af
útflutningstolli, en miklu minni
hluti af aðfluttu vörunni era toll-
vörar, en skýrslurnar um tollvör-
uraar eru ábyggilegastar, því að þar
má hafa hliðsjón af tollreikningun-
um og bæta við eftir þeim, þvi sem
vantalið er. Þó hefir þetta batnað
nokkuð við vörutollinn, sem komst
á 1913. Fást nú tollskýrslur um
kornvörur, steinolíu, sement, kol,
salt og trjávið, sem bera má saman
við skýrslurnar. Munar töluvert
um þessar vörar og verður því upp-
hæð aðfluttu vörunnar ábyggilegri
en áður. Annað atriði, sem kemur
til greina, er það, að nokkur hluti
af andvirði útfluttu vörannar renn-
ur alls ekki til landsmanna og verð-
ur því ekki varið til að borga með
aðfluttu vöruna. Hvalveiðarnar og
mikið af síldarveiðunum hér viö
land hefir undanfarin ár verið rek-
in af útlendingum f'Norðmönnum),
sem ekki hafa verið búsettir hér
nema nokkum hluta ársins, en hafa
haft aðalbækistöð sína utanlands.
Það sem þessir útlendu atvinnurek-
endur hafa fengið fyrir útfluttar
vörur umfram kostnaðinn við rekst-
ur atvinnunnar hér við land hefir
því aldrei runnið inn í landið og
verður ekki talið landsmönnum til
tekna. Hversu miklum hluta af
andvirði útfluttu vörunnar þetta
nemur mun ekki auðvelt að ákveða
með neinni vissu, enda verður ekki
tilraun gerð til þess hér. Auk þess
era fleiri atriði, sem ekki koma í
ljós í skýrslunum um aðfluttar og
útfluttar vörur, en hafa þó áhrif á
greiðslujöfnuðinn milli íslands og
útlanda, svo sem fé það sem útlend-
ir ferðamenn eyða hér, sala á forða
til útlendra skipa hér við land, á-
góði innlendra umboðsmanna, vext-
ir af erlendum verðbréfum o.fl. og
hinsvegar arður af erlendum skuld-
um o.fl. Af þessu er auðsætt, að
eigi nægir aðeins að bera saman
verðmagn aðfluttu vörannar til þess
að sjá hvort landið safnar skuldum
við önnur lönd eða eignast kröfur
á þau.
—Hagskýrslur íslands.
Kynjalyf.
í dálkum Lögbergs, sem fjalla
um heilbrigði, er alllangt mál um
einkaleyfis meðul; þar er úregið
fram verðmæti þeirra og gagnlevsi
sem læknandi lyfja. Enda þótt mér
komi ekki til hugar að mæla með
einkaleyfis lyfjum til lækninga, þá
mun mega finna þeim málsbót. Það
er sagt að itl séu tvær hliðar á
hverju máli, og svo mun vera um
þetta.
Lögberg hefir dregið fram aðra
hliðina, nefnilega þá hliðina sem
sýnir ránsverðið sem á þeim er og
hversu lítils eða einskis virði þau
era sem lyf að lækna sjúkdóma.
Hvað verðið snertir þá veit eg ekki
hvort það er mikið ósanngjamara
á einkaleyfis lyfjum heldur en á
þeim lyfjum sem lyfsalar búa til og
selja. í sambandi við það dettur
mér í hug smá saga, sem eg set hér,
því hún er eins góð í sinni röð og
sagan af kjötseiðinu með veggja-
lúsinni í.
Það kom útlendingur inn í lyfja-
búð og fékk lyfsalanum lyfseðil.
Lyfsalinn tekur við honum, býr til
meðalið, býr um það og leggur það
á borðið og segir: “Sjötíu og fimm
cent”. Útlendingurinn skildi lítið í
málinu og hélt að lyfsalinn meinti
5 cent, tekur meðalið og leggur 5
cent á borðið. Lyfsalinn segir aft-
ur: “Sjötíu og fimm cent”. Út-
lendingurinn ýtir fram 5 centunum.
Lyfsalinn er timakom að reyna að
koma honum í skilning um þetta,
þangað til hann reiðist, gripur 5
centin og fleygir þeim bölvandi í
peningakassann og segir: “Eg
græði þrjú cent á þVí samt”. Það
vita sjálfsagt allir lærðir læknar
nú á dögum að það era aðeins örfá
meðul til, eða þekt enn sem komið
er, sem lækna sérstaka sjúkdóma,
en við flestum sjúkdómtim þekkj-
ast engin lyf enn þá. Það er því
flest af þeim lyfjum sem lyfjabúðir
hafa og selja álíka mikils virði til
lækninga og einkaleyfis lyfin. En
læknar eru nauðbeygðir til að mata
fólkið á þessu, því lyf vill það fá.
Ef eg er veikur, eða held eg sé veik-
ur og leita til læknis og hann lætur
mig engin lyf fá, þá fer eg bara til
þess næsta og svo koll af kolli,
þangað til eg fæ lyf. Þetta veit
læknirinn og fær mér þess vegna
lyfseðil, skrifaðan á því máli sem
eg skil ekki, þvi það er mjög óvist
að ef eg vissi hvað það er sem hann
vísar mér til að taka, að eg tæki það.
Myndi t. d. nokkur taka brauð-
pillur sem lyf til lækninga, ef hann
vissi hvað það væri? Það er aðal-
lega fátæka fólkið sem brúkar og
kaupir einkaleyfis lyfin, og þótt
ránsverð sé á þeim, þá spara þau
samt fátæku fólki stórfé. Allur
fjöldi fólks álítur það sem sjálfsagt
ef einhver verður vesall að útvega
honum meðul sem allra fyrst. Sum-
ir fara strax til læknis, borga hon-
um 2 til 4 dollara fyrir að tala við
hann og fá lyfja tilvísun, en
vesöldin batnar oftast af sjálfu sér.
aðrir kaupa einkaleyfis Iyf, en nið-
urstaðan verður sú sama, krank-
leikinn batnar af sjálfu sér, en sá
sem kaupir einkaleyfis lyfið sparar
sér læknis gjaldið, sem oft er
tilfinnanlegt fyrir þann fátæka.
Svo er þess að gæta að það er
ekki erfitt að fá vitnisburði frá
fólki sem sumt hefir þjáðst svo
mánuðum eða árum skifti, annað-
hvort af virkilegum eða imynduð-
um veikindum, búið að fara frá
einum lækni til annars og stundum
búið að borga stórfé fyrir lyf og
læknaráðleggingar, en hefir svo
farið að brúka einkaleyfis lyf og
orðið albata á stuttum tima. Auð-
vitað fæst batinn i svoleiðis tilfell-
um fyrir trú eða af tilviljun, en það
er ekki spursmálið, heldur hitt, að
sá sjúki hefir orðið heill. Það virð-
ist annars gagnslítið að ráðast á
brúkun einkaleyfis lyfja, en því
ekki að ráðast á þessa miklu og
heimskulegu lyfja brúkun, sem er
svo almenn. Það gæti ef til vill
verið til gagns að rita um það, ef
það væri gert af manni sem hefði
sérþekking í þeirri grein og sem til-
lit væri tekið til. En eina sjáanlega
ráðið til að vinna bug á þessari
miklu og heimskulegu lyfjabrúkun
sem á sér stað, er að byrja þar sem
ungdómurinn er, kenna unglingun-
um hvað gera þarf og hvað ógert
að láta til þess að uppbyggja og við-
halda hraustum líkama. Væri alt
kapp lagt á að kenna ungdóminum
að uppbyggja og viðhaldá líkamans
heilbrigði, mundi einkaleyfis lyfj-
um, lyfjabúðum og læknum fækka.
Já, og geðveikra hælum líka.
S. Stefánsson.
Dánarfregn-
Hinn 16. marz síðastliðinn lézt
að heimili sínu í Taber í Alberta
Jóhanna Jónsdóttir, kona herra
Péturs Valgarðssonar, eftir stutta
legu í lungnabólgu. Hún var fædd
í Vestmannaeyjum á íslandi 2. maí
1848, og því tæplega 68 ára að aldri
þegar hún lézt. Hún giftist í Vest-
mannaeyjum á unga aldri, hét mað-
ur hennar Guðmundur Guðmunds-
son Hávarðarsonar, áttu þau sam-
an 7 böm. Misti hún mann sinn
1889. Jóhanna átti lengi heima i
Spanish Fork. . Síðan giftist hún
Pétri Valgarðssyni og átti með hon-
um einn son. Þau bjuggu í Alberta.
Jóhanna sál. var jörðuð í Spanish
Fork 21. marz. Hún var vel látin
kona og vinsæl.
STAKA.
Þú varst, Lögberg, ljúfust kveðja,
ljós á vegum horfnrar tíðar;
megirðu lengi lifa og gleðja
Landann — bæði fyr og síðar.
Lúðvík Kristjánsson.
8 6 L 8 K I N.
S
“För pílagrímsins” og maðurinn
sem skrifaði hana hét John Buny-
an. “För Pílagrímsins” er skrifuð
á svo fallegu og fullkomnu máli
að maður gæti haldið að sá sem það
gerði hefði verið hámentaður son-
ur einhvers auðmanns eða embætt-
ismanns. En það var ekki. Faðir
hans var bláfátækur tinsmiður, sem
lifði á því að gera við potta og katla
og pönnur, og John Bunyan stund-
aði sömu iðn. Hann hafði enga
mentun og þegar hann var dreng-
ur var hann ófínn og latur og hugs-
unarlaus og eyddi tímanum til
einskis; en hann var altaf ærlegur,
sannorður og áreiðanlegur. Hann
fæddist árið 1628 og varð hermað-
ur þegar hann var 16 ára gamall.
hann kvæntist þegar hann var tvi-
tugur bláfátækri stúlku, sem ekk-
ert átti til nema tvær bækur, var
Jjað biblían og sálmabók. Konan dó
1665 og lét eftir sig 4 börn. Annað
vita menn ekkert um þessa konu.
En það er alment álitið að hún hafi
alveg breytt Bunyan svo að hann
varð mesti reglumaður og allur
fínni í framkomu. Segja margir
að “För pílagrímsins” hefði aldrei
verið skrifuð, ef það hefði ekki ver-
ið fyrir áhrif þessarar bláfátæku
stúlku, sem varð konan hans.
Ruyan var eins og Daniel Dafoe
að því heyti að hann talaði og skrif-
aði mikið á móti ýmsu, sem honum
þótti ljótt, og þess vegna á móti
stjóminni. Hann var þess vegna
tekinn og settur í fangelsi, og þar
var honum haldið í tólf ár. En
hann var þar stöðugt að skrifa. Og
svo þegar hann kom út úr fangels-
inu 1672 fékk hann leyfi til þess
að prédika og var kosinn prestur.
Þremur áram síðar var hann aft-
ur settur í fange'si og var þar þá
I sex mánuði og skrifaði hann þá
fyrsta kaflann af “För pílagríms-
ins”. Hann dó 1688 og var jarð-
aður á sama stað og Daniel Dafoe.
Bókin hans “För pílagrímsins”, hef-
ir verið þýdd á 80 tungumál.
Það sést á þessum tveimur mönn-
um; manninum sem skrifaði
“Robinson Crusoe” og þeim sem
skrifaði “För pilagrimsins” að
maður þarf ekki að vera ríkur eða
af heldra fólki til þess að geta gert
mikið. Þessir menn voru báðir
bláfátækir alþýðudrengir, en samt
hafa þeir í tvö hundruð ár orðið til
þess að skemta og kenna þúsundum
og miljónum af piltum og stúlkum
með bókum sinum.
Munið þið eftir því aö það er
hundrað áttugasta og fimta dánar-
afmæli mannsins sem skrifaði
“Robinson Crusoe” á mánudaginn
kemur, 24. apríl.
Sönn saga frá Þýzkalandi.
Saga var sögð í Lundúnaborg á
Englandi á föstudaginn; hún var
um litla stúlku 8 ára gamla sem hét
Elsa og átti heima á Þýzkalandi.
Hún hafði skrifað bréf og utaná-
skriftin var svona: “Til elskulegs
guðs á himnum”. Hún bað guð að
lofa föður sínum heim úr stríðinu,
því hann hefði verið svo ósköp
lengi í burtu.
Elsa litla á heima skamt frá
Berlin hjá móður sinni og fjórum
systkinum; þeim hefir liðið fjarska
illa síðan faðirinn fór í stríðið:
“Mamma er altaf að gráta”, sagði
Elsa litla í bréfinu til guðs. “Og
eftir þrjár vikur verður afmáeli
hennar og líka hennar Grétu syst-
ULL
jV/lANITOBA-STJÓRNIN tekur að sér að selja
^ull fyrir bændur fylkisins. I fyrra seldi stjórn-
in ull fyrir bændur og fékk 25* cent fyrir pundið að
meðaltali. Með því að flokka ullina og selja bana
í stórum stíl getur stjórnin fengið gott verð fyrir
hana.
Upplýsingaskjal no. 33 [prentað einungis á
ensku] skýrir frá þessu fyriikomulagi. Skrifið [ann-
aðhvort á ensku eða yðar eigin máli] eftir eintaki af
upplýsin/askjalinn. Látið svo einhvern sem les
ensku segja yður hvað þar er sagt.
VALENTINE WINKLER,
Búnaðarráðherra í Manitoba.
Margt smátt gerir eitt stórt
jafnvel þegar um eldspítur er að ræða, þá ættu menn
að hafa augun á smámunum. Viðartegundin, gæði
brennisteinsins, hversu hægt er að kveikja á þeim
EDDY’S ELDSPÍTUR
eru búnar til úr sterkum hreinum furuviði og svo vel
gerðar að í þrim kviknar frábærlega vel. Eddys eld-
spítur hafa verið til sölu í sextíu og fimm ár það er því
ekki að undra þó þetta félag kunni að búa til eldspít-
ur. Það er altaf óhætt að reiða sig á vörur sem Eddy
félagið býr til.