Lögberg - 22.06.1916, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. JUNI 1916
The Swan Manufacturing Co.
býr tii hinar velþektu súgræmur „Swan
Weather Strips“. Gerir við allskonar hús-
gögn. Leysir af hendi ýmiskonar trésmíð-
ar. Sérstök athygli veitt flugnavírsgluggum
hurðum og sólbirgjum (Verandas).
Vinnustofa að 676 Sargent Ave. Tals. S. 494
HALLDOR METHUSALEMS
Ur bænum
Jónas Hallgrímsson og Hallgrím-
ur sonur hans frá Gardar komu til
bæjarins á mánudaginn. Jónas
kom til þess að leita sér lækninga
hjá Dr. Brandsyni.
Þór Lífdann frá Gimli var á ferð
í bænum á þriðjudaginn. Hann
kvað mikinn undirbúning þar
nyrðra undir íslendingadaginn.
Verða þar alls konar íþróttir, svo
sem kaðalspyrna, sund og glímur.
Mörg verðlaun verða gefin, þar á
meðal þrír bikarar og einn skjöldur.
Andlegi partur dagsins er sagt að
ekki verði síður vandaður.
Samsöngur verður haldinn
Fyrstu Iút. kirkjunni á mánudaginn
2 . þ.m. kl. 8,30 e.h. Verður það
undir umsjón söngflokksins. Þar
verða einsöngvar, tvísöngvar og
margsöngvar, alt sérlega vandað.
Þátttakendur verða þessir: Húsfrú
Alex Johnson, ungfrú H. Hermann,
húsfrú S. K. Hall, Paul Bardal,
Alfred Albert, Alex Johnson. Sig-
ríður Friðriksson pianóleikari leik-
ur á hljóðfæri, en Steingrímur Hall
stýrir söngnum. — Þetta fólk er alt
þegt að því að leysa hlutverk sitt
vel af hendi og má ætla að aðkomu-
gestum þyki bera vel í veiði að hafa
tækifæri til að heyra það. Aðgang-
ur er 35 cent.
Guðmundur Jónasson frá Dog
Creek og Guðlaug systir hans komu
til bæjarins á mánudaginn. Þau
voru í kynnisför að finna skvldfólk
og kunningja,
Nafn Ásmundar Guðjónssonar
hafði fallið úr í síðasta blaði, þar
sem taldir eru upp fulltrúar kosnir
á kirkjuþing frá Skjaldborgarsöfn-
uði. Hann var kosinn fyrsti vara-
fulltrúi.
Þessa tuttugu og fimm dollara
gef eg “Betel", í mii
elsku barnið mitt, Maríu Eyjólfs-
dóttur Erlendson, dána 30. april s.I.
niu ára gamla.
1 Mrs. Sigrún' Björnsson
Reykjavík P.O., Man. .
Betel söfn. við Silver Bay
Áheit, Guðjón J. Vopni,
Tantallon, Sask.........$25.00
Fyrir þessar gjafir er hjartanlega
þakkað
/. ]ohannesson,
75 McDermot Ave.
Guðmundur Kristján Stephanson
og Jónína Lilja Friðfinnsson voru
gefin saman í hjónaband af séra B.
B. Jónssyni miðvikudagskveldið 14.
þ.m. að beimili foreldra brúð irinn-
ar, 622 Agnes stræti. — Brúð rin
er dóttir Jóns Friðfinnssonar tón-
skálds, en brúðguminn bróðir G. L.
Stephenson blýsmiðs.
A.alsteinn Kristjánsson fer á
morgun úr bænum og verður fjar-
verandi mánaðartíma. Kristilegt
félag ungra manna hefir boðið hon-
um að dvelja í sumar úti við Þús-
und eyja vatn að sumarbústað
þeirra félaga. Aðalsteinn hefir
verið starfsmaður þessa félags um
langan tima og er í miklu afhaldi
hjá þeim.
Eg hefi nú nægar byrgðir af
“granite” legsteinunum “góðu:
stöðugt við hendina handa öllum,
sem þurfa. Svo nú ætla eg að biðja
þá, sem hafa verið að biðja mig um
legsteina, og þá, sem ætla að fá sér
legsteina í sumar, að finna mig sem
fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að
gera eins vel og aðrir, ef ekki betur.
Yðar einlægur.
A. S. Bardal.
Gjafir til “Betel’
$25.00
$10.00
Vegna veglyndis margra ís-
lenzkr bifreiðareigenda í bænum,
sem síðar verða nefdnir með nöfn-
um, heldur stúkan ‘Jón Sigurðsson’
I.O.D.E skemtiför fyrir hermenn-
ina á heilsubótarhospítalinu í bæn-
um eftir hádegið á laugardaginn
24. júní. Bifreiðarnar sem flytja
hermennina á skemtistaðinn fara
frá báðum hospítölunum kl. 2 e.h.
og eftir að þær hafa farið víðsveg-
ar um bæinn í tvo klukkutíma mæt-
ast þær í Assiniboie skemtigarðin-
um, þar sem kvenfólkið hefir mál-
tið handa herm. Að því afstöðnu
fara fram ýmsir leikir. — Eins
margar félagskonur og geta eru
beðnar að mæta og stuðla að því
að piltarnir geti skemt sér vel. —
Skemtiskráin í garðinum byrjar kl
fjögur e.h.
Nefndin.
Þeir sem kynnu að hafa aflögu
48. tölublað Lögbergs, sem út kom
126. nóvember 1915, geri svo vel að
senda það á skrifstofu blaðsins.
Jón Br-’ndsson frá Gardar, Sig-
urður Jónsson og Jónas Goodman
frá Bantry komu til bæjarins á
mái.udaginn var. Eru þeir allir
að koma til þess að sitja kirkju-
þingið, sem byrjar í dag. Þeir
fóru allir norður til Gimli á
þriðjudaginn að finna gamla kunn-
ingja.
Halldór Jóhannesson trésmiður
kom norðan frá Mikley á sunnudag-
inn. Hann hefir dvalið þar um
tíma að smíða hús fyrir Theodór
Þórðarson. Halldór fer þangað
norður aftur eftir rúman viku
tíma.
Gísli bóndi Magnússon frá Fram-
nesi og dóttir hans komu hingað til
bæjarins á mánudaginn og fóru
heimleiðis aftur á þriðjudag. Gisli
er gamall Winnipegbúi og þekkir
hér marga. Hann lét allvel af lið-
an manna þar nyrðra, en talsverð-
an óhag kvað hann þó vera að
vætum og vegleysum.
Stephan Thorson lögregludómari
frá Gimli var hér á ferð á mánudag-
inn í embættiserindum. Tíðinda-
litið sagði hann þar nyrðra, en
Winnipegbúum óðum að fjölga i
sumarbústöðum sínum.
Séra Carl J. Olson kom norðan
frá Langruth bygðum á mánudag-
inn, var hann þar í kirkjulegum
erindum og hefir nýlega stofnað
þar þrjá söfnuði. Einn að Wild
Oak, sem nefnist “Herðubreið”,
annan í ísafoldarbygð er skírður
var “Trinitatis”, hann var stofn-
aður á þrenningarhátíðinni, og
þriðja að Poplar Park er kallaður
var “Poplar Park” söfnuður. Séra
Olson lét mikið af góðum viðtökum
hjá fólki þar nyrðra.
“Ester drotning”, söngleikurinn
fagri sem hér var fluttur í fyrra í
Skjaldborg og Fyrstu lút. kirkju,
verður sunginn í Skjaldborgar
kirkju á þriðjudaginn 27. þ.m. kl.
8 e. h. Fer þetta fram undir um-
sjón söngflokks safnaðarins með
fiðstoð annara söngkrafta. Sigríð
ur Friðriksson leikur á hljóðfæri
en Davíð Jónasson stjórnar söngn
um. Hluttakendur:
Ester drotning—ungfrú E. Thor
waldson.
Ahasverus konungur — Páll Bardal
Haman—B. Metusalems
Zeresh—ungfrú H. Hermann
Mordicais—A. W. Albert
Systir Mordicais—ungfr. O. Oliver
Persnesk konungsdóttir—ungfr. M
Anderson
Prestaöldungur—Th. Clemens.
Það er óþarft að mæla með þess
um söngleik. Þeir sem heyrðu
hann i fyrra munu ljúka upp einum
munni um það að betri skemtun
bjóðist sjaldan hér í bæ, ekki ein
ungis að því er efnið snertir, sem
hlotið hefir viðurkenningu hver
vetna, heldur einnig er meðferðin
ágæt hjá því fólki sem þátt tekur
söngnum. Kirkjuþingsgestir ættu
að nota þetta tækifæri til þess að
sjá og heyra þennan ágæta og fagra
leik. Aðgangur 35 cent.
Lögbergi hefir verið sent kvæði
á ensku, sem prentað er í ensku
blaði v'estur á Kyrrahafsströnd og
hefir ritstjórinn verið beðinn að
þýða það. Kvæðið er um Vilhjálm
Stefánsson er eftir John O’Keeve.
Það hefði verið ljúft verk að þýða
þetta kvæði undir venjulegum
kringumstæðum, því það er bæði
fagurt og kjarnyrt, en nú sem stend-
ur þorum vér ekki að þýða það né
birta.
Embættismenn í stúkunni Heklu
eru þeir sem hér segir: Æ.T. Guð-
mundur Gíslason, V.T. húsfrú G.
Gíslason, R., H. Gíslason; F.R., B.
M. Long; G., Johann Vigfússoíi,
V., G. Long; U.V., Egill Erlends-
son; K., ungfrú G. Patrik; D., hús'-
frú G. Búason; A.D., ? ?; A.R.,
Árni Sigurðsson; Umb., Hreiðar
Skaftfeld.
í síðasta blaði var skýrt frá því
að Kristján Guðmundur Sigurðsson
frá Selkirk hefði særst í stríðinu 3.
þ.m. Nú er komið skeyti um það
að Allan bróðir hans særðist einnig
þann 5. Þeir eru báðir á sjúkra-
húsi og koma af þeim greinilegri
fréttir síðar.
Ef ykkur fýsir að eignast myndir
af mönnum eða stöðum fallega mál-
aðar, þá vitið þið hvar þær fást.
Þ. Þ. Þorsteinsson málar myndir
af hverju sem þið óskið. Jóns Sig-
urðssonar félaginu var gefin mynd,
máluð eftir hann, og má nærri geta
að ekki hefir þar átt að velja af
verri endanum. Myndin var af
Jóni Sigurðssyni.
Tómas Ásbjörnsson og Karolína
kona hans frá Mikley voru á ferð
í bænum í vikunni sem leið. Karó-
lina var að leita sér lækninga, hefir
verið veik í mörg ár. Tómas sagð
góða líðan þar i eyjunni.
Johann Johnson (Sigurðsson)
systursonur Ólafíu Jóhannsdóttur
Kristjaníu á bréf á skrífstofu
Lögbergs.
Frétt kom frá Gimli á þriðju-
daginn um það að fundist hefði lik
Þorvarðar sál. Pálmasonar frá
Lóni, sem druknaði síðastliðið
haust ásamt öðrum manni. Séra
Carl J. Olson var hér staddur og
brá við tafarlaust norður til þess
að jarða líkið.
Séra H. J. Leo prédikar næsta
sunnudag í Skjaldborg kl. 7. e.h.
Kirkjuþingsgestir sérstaklega vel-
komnir.
Munið eftir miðssumarsamsæt-
inu í Skuld. Þar verður glatt á
hjalla og góð skemtun auk veitinga
sem þar fara fram. Allir Good-
templarar ættu að vera þar við-
staddir.
Lukka Gunnlaugsson, ekkja
Gunnlaugs Bjarnasonar fyrrum
bónda í Argyle bygð andaðist á
hvitasunnudag að 700 Victor St. í
Winnipeg. — Synir hennar Björn
og Kristján tóku líkið vestur til
Baldur fyrra þriðjudag, þar sem
hún var jarðsungin af séra Friðrik
Hallgrímssyni. Hin látna var 66
ára gömul, hún lét eftir sig tvo of
annefndá syni og eina dóttur Þor-
björgu Edwards í Winnipeg.
Guðmundur Mýrdal frá Clark-
Ieigh kom til bæjarins fyrra þriðju-
dag og fór heim aftur á föstudag-
inn. Sagði fátt frétta en góða líð-
an.
Ásmundur P. Jóhannsson kom
vestan úr Vatnabygðum fyrir helg-
jna sem leið; hafði hann ferðast
þar um í fjársöfnun fyrir Eim-
skipafélagið. Lét hann mikið af
bygðinni og viðtökunum, en sér-
staklega þó af árangri ferðarinnar.
Hann safnaði þar á fám dögum
12,000 kr. fyrir félagið.
Kirkjuþing hefst í dag ffimtud.)
í Fyrstu lút. kirkjunni og stendur
yfir svo að segja í heila viku. Gest-
ir á það streyma að úr öllum áttum
og er búist við að það verði mjög
fjölment. Fyrirlestrar verða þar
fluttir og opinberir málfundir, þar
sem öllum er frjálst að tala. Sam-
söngurinn sem haldinn verður i
kirkjunni á meðan þingið stendur
yfir er auglýstur í blaðinu og hon-
um ætti fólk ekki að gleyma.
Ökumanna verkfallið í Winni-
peg verður alvarlegra með degi
hverjum. 14. þ.m. gengu 200 verk-
fallsmenn í einum hópi eftir götum
bæjarins með alls konar fána og
voðir með árituðum klögunum og
kvörtunum. Hófu þeir göngu sína
frá verkamannastöðvunum og héldu
niður að Princess stræti og þaðan
til Portage Ave. og eftir Aðalstræti.
Á göngu sinni í takt við skrefin
kölluðu þeir í sífellu: “Erum við
vonlitlir? Nei!” Á einni voðinni
sem þeir báru á hárri stöng voru
rituð orðin: “Vér viljum fá $2.50
á dag, verkfallsféndum eru borgað-
ir $3.00 á dag og fæði.”
Gangan fór fram reglulega og
friðsamlega. Á fundi sem ökumenn
héldu 15. þ.m. samþyktu þeir yfir-
lýsingu til stjórnarinnar þar sem
frá því var skýrt að líf manan í
bænum væri í hættu, sökum þess að
þeir menn væru látnir fara með
hesta, sem ekki kynnu með að fara.
Ýms önnur verkamanna félög
leggja fram fé þessum verkfalls-
mönnum til styrktar og er talið Iík-
legt að þeir geti haldið máli sínu
til streytu þangað til sigur vinst.
Íþróttír á íslendinga-
deginum
Listi af íþróttum [Sports] sem þreytt verða
lendingadaginn undir reglum A. A. U, of C.
STANDARD EVENTS FOR POINTS
á Is-
1. 100 yard Dash.
2. One Mile Run.
3. Running Broad Jump.
4. Putting 16 lb. Shot.
5. Low Hurdles. 120 yd.
6. 220 yard Run.
7. Hop, Step and Jump.
8. !Half Mile Run.
9. Running High Jump.
10. Discus.
11. Standing Broad Jump.
12. Pole Vault.
13. Five Mile Run.
14. Ya Mile Run.
15. Icelandic Wrestling
(íov belt).
Þessi "»porti" eru fyiir alla Islendinga. Medallur gefnar eins og
áður. Sá sem hæðsta vinninga fser tekureinnig Hanson bikarínn stóra
ryrirárið. Glímur verða al-íslenzkar undir glímureglum iþróttaféiags
Islands. Þátttakendur geta fengið eyðublöð hjá undirskrifuðum, einn-
ig hjá vissum mönnum 1223., 197. og 108. herdeildunum, sem aiðar
verður auglýst. Þessi eyðublöð verða að vera útfylt á vanalegan hátt
og komin í bendur ritara íþróttanefndarinnar fyrir 15. Júlí næstk., ásamt
25c fyjir hverja íþrótt sem þátttakandi vill keppa um.
Einnig verða vanaleg hlaup fyrir drengi og stúlkur, karla og konur.
Góð verðlaun gefin.
LADIES BASEBALL
Stúlkur! Spyrjið hann Arinbjörn Bardal um Ladies Baseball.
Hann gefur ykkur allar upplýsingar.
KAÐAL-TOG
á milli hermanna og borgara, 7 á hlið. Hverjir ætli hafi betut?
Allar frekari upplýsingar gefur
S. D. B. STEPHANSON
Ritari Ibrótta-nefnda innar
729 SHERBROOKE ST., P.O.Box 3171, WINNIPEG
Eftir fríið byrja leikirnir aftur
31. júlí og verður því búið að safna
nýjum kröftum.
Þeir sem vit hafa á leikjum munu
ljúka upp einum munni um það að
það sem nú er boðið stendur engu
öðru að baki er sýnt hefir verið.
Úr bygðum
íslendinga.
Prá Arborg.
Þorsteinn Jóhannsson, bóndi ná-
lægt Árborg, ættaður frá Torfa-
stöðum í Miðfirði í Húnavatns'-
sýslu, andaðist að heimili sínu, eftir
langt sjúkdómsstríð, þ. io. þ. m.
Mun hafa verið nálægt 47 ára gam-
all. Lætur eftir sig konu, Soffíu
Jónasdóttur, og fimm börn, það
elzta 16 ára aiLaldri, það yngsta
á öðru ári. Þorsteinn var mesti
vaskleika maður. reglumaður og
drengur góður. Var nýlega búinn
að kaupa jörðina sem hann bjó á,
og hefði vafalaust orðið góður
bóndi ef honum hefði enzt aldur til
að búa í haginn fyrir sig og sína.
Þykir nágrönnum, bygðarbúum og
vinum hans skarð vera fyrir skildi
og raunalegt að hann skyldi þurfa
að hverfa af sjónarsviðinu svona
snemma. Krabbamein, innvortis,
sem stöðugt ágerðist, varð Þorsteini
að bana. Bar hann sjúkdómskross-
inn með frábærri stillingu og karl-
mensku. Jarðarför hans fór fram
þann 13. þ. m. Séra Jóhann Bjama-
son jarðsöng. Þorsteinn heyrði til
Árdalssöfnuði. Fjöldi vina úr söfn-
uðinum og bygðinni fylgdi honum
til grafar.
Geysissöfnuður hefir kosið þá
Jón Skúlason og Jósef Guttormsson
til að mæta á næsta kirkjuþingi.
Til vara voru kosnir Sigurður
Friðfinnsson og Gunnl. Oddson.
Velferðarnefndin.
Hún gaf út skýrslu sína fyrir
maímánuð nýlega. Hafði hún
rannsakað 327 heimili sem styrks
höfðu beiðst og var 84 veittur
styrkur vegna heilsubrests, 74
ekkjum sem enga fyrirvinnu höfðu
15 gamalmennum sem engan áttu
að; 18 heimilum þar sem maðurinn
var fjarverandi; 12 þar sem mað-
urinn hafði enga atvinnu getað
fengið, og 4 þar sem kaup var of
látt til þess að geta lifað af því.
Bjami Marteinsson, bróðir séra
Rúnólfs, verður þingmaður Breiðu-
víkursafnaðar á í hönd farandi
kirkjuþingi.
pantages
“A Night in the Park” heitir
söngleikur sem þar fer fram þessa
viku. Er það fjögra persóna söng-
leikur, undur fagur.
“When Caesar Sees Her” heitir
annar leikur, sem þar verður, og í
honum taka þátt Leonard Anderson
og félag hans; um það þarf engum
orðum að fara; hann er svo vel
jektur.
Auk þessa verða þar íþróttasýn-
ingar, hreifimyndir og fleira.
DOMINION
Þetta verður seinasta vikan sem
leikið verður á Dominion fyrir
sumarfríið. Vegna þess hversu
svalt hefir verið byrjaði fríið ekki
eins snemma og vant var. Þéssa
síðustu viku verður sérlega vandað
að öllu leyti. Það verður nokkurs
konar kveðjuvika fyrir vini vora.
þ.m. voru þeir Andrés Reykdal og
Tryggvi Ingjaldsson kosnir til að
mæta sem fulltrúar safnaðarms á
kirkjuþingi. Varamenn voru kosn-
ir Stefán Guðmundsson og Jón
Hornfjörð.
Frá Wild Oak.
Sunnudaginn 21. maí kvaddi séra
Bjarni Þórarinsson söfnuð sinn
hér. Þá messaði hann fyrir fjöl-
menni miklu, staðfesti ellefu börn
og tók þau til altaris, og skírði 4
börn. Guðsþjónustar. var hin há-
tíðlegasta.
Skilnaðarræðan, með stuttri bæn
á eftir, var hin áhrifamesta og mjög
hjartnæm.
Dr. Guðm. Finnbogason kom
hingað út og hélt fyrirlestur að
Herðibreið 2. júní. Með honum
var Árni Eggertsson. Sú gesta-
koma hingað i bygð var mér mjög
kærkomin.
Svo var Sveini Úlfssyni Dana-
konungi lýst: “Hann hefir alla þá
kosti sem góðan höfðingja mega
prýða.”
Um Dr. Guðmund Finnbogason
virðist mér mega segja: Hann hef-
ir alla þá kosti, sem góðan ræðu-
mann mega prýða. Mun hvorug
þessi lýsing vera oflof.
H. Daníelsson.
Heilbrigðisráðið í Winnipeg.
Skýrsla þess fyrir maí mánuð var
gefin út 15. þ.m. Þar sést það að
9,112 pund af mat höfðu verið
dæmd óæt og eyðilögð, af því voru
nálega 5000 pund ávextir. $10,479
hafði það kostað bæinn að flytja
burt rusl og óhreinindi, 2,213 Pott
um (quarts) af mjólk hafði verið
útbýtt til fátækra og 1,443 börn
höfðu verið bólusett á mán. Fleiri
dauðsföll höfðu verið í mánuðinum
en nokkru sinni um langan aldur
áður.
500,000 manna |TerkfaIi
Um hálf miljón járnbrautar-
starfsmanna i Bandaríkjunum ætla
að greiða atkvæði um það í næsta
mánuði að gera verkfall ef þeir fá
ekki kröfum sínum framgengt um
8 klukkutíma vinnu og þriðjungi
hærra kaup fyrir yfirtíma.
Magnús Matthíasson (Jochums-
sonar)J fer alfarinn heim til ís-
lands í dag.
íslendingadagsnefndin hefir feng
ið bréf frá G. Kamban. Hann kem-
ur og flytur ræðu á hátíðinni. Séra
J. A. Sigurðsson yrkir kvæði, Jór-
Á fundi Árdalssafnaðar þann 14. unni Hinriksson í Churchbridge
hefir verið boðið að koma og mæla
fyrir minni Manitoba og Mrs.
Johnson að Lundar að yrkja kvæði.
Kaðaldráttur verður milli hermanna
og borgara, knattleikur inni fyrir
kvenfólk. Hnappur búinn til með
mynd af Vilhjálmi Stefánssyni. —
Meira næst.
NOTIÐ ROYAL CROWN SÁPU; hún er bezt. Safnið Royal
Crown miðum og nöfnum. Eignist fallega nytsama muni kostnaðar-
laust.
Ef þú ert ekki þegar byrjaður að safna miðum, þá byrjaðu
tafarlaust. Þú verður forviða á því hversu fljótt þú getur safnað
nógu miklu til þess að afla ágæts hlutar. Einhvers sem mikils er
virði.
Royal Crown munir eru úr bezta efni. Þeir eru valdir með
mikilli varfærni. Þeir eru margs konar; eitthvað sem vel kemur sér
fyrir alla. NÁIÐ 1 NÝJA VERÐLISTANN OKKAR. Það
kostar ekkert nema aðeins að biðja um hann, Ef þú sendir bréf
eða póstspjald, þá færðu hann með næsta pósti og borgað undir hann.
Allir munir sem eru auglýstir eða sýndir fyrir fyrsta maí 1916
eru nú teknir af listanum.
'Þegar þú velur einhvern hlut, þá v'ertu viss um að velja eftir
nýja listanum. Áritan:
THE ROYAL CROWN SOAPS
Limited
PREMIUM DEPARTMENT - WINNIPEG, MAN.
Eimskipafélag Jslands
Frá Wynyard, Sask.:
Leo Halldórsson.........— 50.00
Paul Bjarnason..........kr. 500.00
Hallgrlmur S. Axdal . . . . — 100.00
G. S. Guðmundsson . . . . — 200.00
Halldór Johnson.........— 100.00
Jónas Johnson............— 100.00
Sigurrós T. Bjarnason ... — 26.00
E. B. Tryggvason Bjarnason — 25.00
Theodór P. Eyjólfsson .... — 100.00
Sigurjón Axdal..........— 50.00
S. S. Axdal..............— 25.00
Olafur Pétursson.........— 50.00
Magnús O. Magnússon ... — 100.00
Olafur Stephenson........— 100.00
Geir Christjánson........— 50.00
Ch. W. Christjánson . . .. — 50.00
Sigrfður A. Christjánson .. — 50.00 1
Halldóra K. Christjánsson — 50.001
BJörg S. Christjánsson . . — 50.00
John Búason.............— 60.00
Hannes Kristjánsson . . . . — 100.00
Waldimar Kristjánsson . . — 100.00
J. M. Melsted ...........— 100.00
Bogi Bjarnason..........— 76.00
Arthur Bjamason..........— 50.00
Fred Thorfinnsson........— 50.00
Kristján Johnson..........— 25.00
Slgurður Sölvason.........— 60.00
Mrs. Helga Vestdal.......— 26.00
Stefán Johnson...........— 100.00
C. B. Johnson............— 100.00
Norsk-Ameriska Linan
Ný og fullkomin nútíBar gufu-
skip til póstflutninga og farþega
frá New York beina leiS til Nor-
egs, þannig:
"Krlstianafjord” 15. Júll.
"Bergensfjord”, 5. Agúst.
“Kristiansfjord” 26. Ágúst.
"Bergensfjord” 16. Sept.
"Kristianiafjord” 7. Okt.
“Bergensfjord” 28. Okt.
Gufuskipin koma fyrst til Bergen
I Noregi og eru ferSir til |slands
þægilegar þaBan.
Farþegar geta fariB eftir Balti-
more og Ohio járibrautinni frá
Chicago til New York, og þannig
er taekifæri a8 dvelja I Washlng-
ton án aukagjalds.
LealtiS upplýsinga um íargjald
og annaB hjá
HOBE & CO„ G.N.W.A.
123 S. 3rd Strect, Minneapolit, eða
H. S. BARDAL,
892 Sherbrooke Street, Winnipeg.
C. H. DIXON,
Lögfrœðingur, Notary Public
Lánar peninga, Rentar hús,
Innheimtir skuldir
265 Portage Ave.
TalsM 1734 Winnipeg
H. EMERY,
homl Notre Dame og Gertie sts.
TAIjS. GABUY 48
ÆtliS þér aC flytja ytiur? Ef
yCur er ant um a8 húsbúnaður
ytSar skemmist ekki I flutningn-
um, þá finni8 oss. Vér leggjum
sérstaklega stund á þá tSnaðar-
greln og ábyrgjumst aC þér verfS-
18 ánæg8. Kol og vi8ur selt
lægsta verSi.
Baggage and Exprces
Lœrið símritun
Lærið slmritun; járnbrautar og
verzlunarmönnum kent. Verk-
leg kensla. Engar námsdeildir.
Einstaklings kensla. SkrifiS eft-
ir boSsriti. Dept. “G”, Westera
Sehools, Telegraphy and Rail-
roading, 607 iíuiltlers' Excliange,
Winnipeg. Nýir umsjónarmenn.
Málverk.
Handmálaðar
1 i t my nd i r
[“Pastel” og olíumálverk] af
mönnum og landslagi
býr tilog selur með sanngjörnu verði.
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson,
732 McGee St. Tals. G. 4997
John Hallson................—
Páll Johnson................—
Jónas P. Eyjólfsson . . . . —
Júllus Bjarnason............—
Steingrímur Thorsteinsson —
Mrs. J. Melste8.............—
Séra Jakob Kristinsson . . —
V. B. Hallgrímsson . . . . —
ASalsteinn Bergmann . . —
BJarni Bergmann.............—
Thorhallur Bergmann . . —
Sigurjón Sveinsson . . . . —
J. C. Halldórsson...........—
Sig. J. Axdal...............—
Alfred Guðjónsson...........—
S. B. Johnson........... . —
John Brynjólfsson . . . . —
Brynjólfur Johnson . . . . —
H. B. Johnson...............—
Olafur Hall.................—
Sigtryggur Goodman . . . . —
Th. Bardal..................—
Mrs. Halldóra Gislason . . —
Björgvin GuSnason . . . . —
Hannes S. Anderson . . . . —
Tryggvi Halldórsson . . . . —
Skúli GuSmundsson . . . . —
Thorbjörg Gufimundsdóttir —
Lára E. Gu8mundsdóttir . —
Kristmundur Gu8mundsson —
Oli Halldórsson.............—
Pétur Thorsteinsson . . . . —
W. B. Benson...............—
Miss Ingibj. Hóslasdóttir —
G. G. Goodman...............—
Sigfinnur Finnsson . . . . —
Magnús Einarsson . . .. —
S. Th. Hallgrimsson .... —
F. S. Finnsson..............—
Steingrimur Thorsteinsson —
B. L. Bjarnason.............—
J. F. Bjarnason.............—
Stephan Goodman . . . . —
Sigurbjörn M. Kristjánsson —
FrlBrik BJarnason .. . . —
P. H. Thorlaclus............—
E. E. Grandy................—
Frá Kandahar, Sask.:
J. G. Stephenson............—
ValgerSur Stephenson . . . . —
Sigurbjörn B. GuSnason
100.00
50.00
100.00
50.00
100.00
25.00
100.00
100.00
100.00
100.00
100.00
100.00
100.00
50.00
25.00
100.00
25.00
50.00
50.00
200.00
60.00
100.00
50.00
25.00
100.00
100.00
25.00
25.00
25.00
25.00
400.00
100.00
50.00
100.00
100.00
100.00
50.00
100.00
100.00
50.00
50.00
50.00
60.00
25.00
50.00
50.00
100.00
SAFETY
Öryggishnífar
skerptir
RAZO
Ef þér er ant um að fá góða
brýnslu, þá höfum við sérstaklega
gott tækifæri að brýna fyrir þig
rakhnífa og skæri. “Gilett’s” ör-
yggisblöð eru endurbrýnd og “Dup-
lex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein-
föld blöð 25c. tylftina. Ef rakhníf-
ur þinn bítur ekki, þá láttu okkur
sýna þér hversu auðvelt það er að
raka þegar vér höfum endurbrýnt
blöðin. — Einföld blöð einnig lög-
uð og bætt. — Einnig brýnum við
skæri fyrir lOc.—75c.
Thi Razor 8 Shear Sharpening Co.
4 rPui^cr\ Elxchange Grinding Dpt.
333J Portage Are., Winnipeg
Mölpokar
Mölpokar eru þægilegastir til þess að
verndaföt frá þvt a8 mölur grandi þeim.
Þeir hafa það fram yfir annað sem til þess
er notað að verjast möl að fötin taka ekki
sterka lykt af þeim þannig að þau þurfi að
viðrast áður en þau verði brúkuð. Ekki
þarf annað en láta fötin i pokann og binda
fyrir og leggja hann svo afsiðis til geymslu
Mölpokar eru mismunandi stórir. Vér höf-
um til allar stærðir. Komiðog skoðið.
WHALEYS LYFJABÚÐ
Phone Sheebr. 258 og 1130
Horni Sargent Ave. og Agnes St.
250.00
250.00
100.00
Jón J. Sander .. I.......— 50.00
Sveinn GuSni J. Sander
Björn Jósefsson.......
Jóhann B. Jósefsson . .
J. T. Frederickson . . .
J. B. Johnson.........
Torfi Steinsson.......
J. B. Dalman.............— 100.00
K. B. Dalman.............— 100.00
S. A. Gu8nason.......
S. J. Sveinbjörnsson . .
Baldur Benediktsson .
Tryggvi Halldórsson . .
Eiríkur Helgason . . .
L. H. J. Laxdal . . . .
SigurSur Magnússon . .
— 100.00
— 300.00
— 300.00
— 200.00
— 500.00
— 500.00
200.00
— 100.00
— 250.00
— 100.00
— 150.00
Ef eitthvað gengur að úrinu
þínu þá er þér langbezt aS senda
það til hans G. Thomas. Haun tst
í Bardals byggingunni og þú
trúa því a5 úrin kasta eúibelgB-
um í höndunum á honum.
ÓKEYPIS FAR TIL ÍSLANDS
Jói Björnsson.............— 100.00
Stéingrlmur Johnson
Hákon Kristjánsson
GuSni Johnson...........— 50.00
Eggert Björnsson
Finny J. Sander.............— 100.00
Frá Dafoe, Sask.:
Jens E. Laxdal..............— 50.00
Thorlakur Jónasson .
Miss Petrea Jónasson
Egill Jensson' Laxdal .
Jakob Helgason..............— 100.00
Sigurjón Narfason...........— 100.00
Eglll Johnson...............— 100.00
A. J. Reykdal.........
Bjarni J. Oiafsson . . .
Frá Elfros, Sask.:
S. Guímundsson .
Frá Winn'fpeg, Man
Mágnús Magnússon . .
France Krlstjánsson . .
M. J. Johnson
— 50.00
— 50.00
— 100.00
500.00
— 100.00
Samtals
kr. 11,925
T. E. Thorsteinson, féh.
New Ýork, 17. júní 1916.
Nú eru staddir hér í borginni
tveir Norðmenn, Capt. Höie og
Capt. Maurrey, og eru þeir að
kaupa skip til sildveiða við ísland.
Hafa þeir keypt þrjú eimskip og
tvær skonnortur, sem eiga að leggja
af stað héðan til Siglufjarðar inn-
an tveggja vikna tíma.
Eimskip þessi hafa verið ríkra
5°’®® manna listiskip, eru frá 3—400 tonn
að stærð, og hafa þeir borgað um
40 þús. dollara fyrir hvert þeirra.
öll þessi skip eru hlaðin hér með
síldartunnum, sem þeir fylla hér
með kolum og salti, og nota tunnur
þessar sjálfsagt fyrir síld þegar
heim kemur.
Fryggvi Jóakimsson.
Aths.s — Herra Jóakimsson
skrifar ritstjóra Lögbergs bréf með
þessari frétt og segir frá því að ís-
lendingar sem vilji fara heim, geti
fengið frítt far gegn því að vinna á
skipunum, en þeir verði að senda
skeyti um það ekki síðar en að
kveldi hins 21. þ.m. (í gærkveld),
en bréfið kom ekki fyr en þann 21.
Tíminn var því of stuttur; en vel
er þes'si leiðbeining þegin af Jóa-
kimsson og sýnir vakandi áhuga.
— Ritstj.
100.00
100.00
100.00
100.00
100.00
100.00