Lögberg - 29.06.1916, Qupperneq 8
8
LOGBERG, FIMTUDAGINN 29. JÚNl 1916.
The Swan Manufacturing Go.
býr til hinar velþektu súgræmur „Swan
Weather Strips“. Gerir við allskonar hús-
gögn. Leysir af hendi ýmiskonar trésmíð-
ar. Sérstök athygli veitt flugnavírsgluggum
hurðum og sólbirgjum (Verandas).
Vinnustofa að 676 Sargent Ave. Tals. S. 494
HALLDOR METHUSALEMS
ASal mánaðarfundur “Jóns Sig-
urðssonar félagsins verður haldinn
1 John M. King skólanum (sam-
komusalnum) á þriðjudagskveldið 4.
júlí 1916, kl. 8 stundvíslega. All-
ar félagskonur eru alvarlega ámint-
ar run að mæta og koma á réttum
tíma.
Or bænum
Skjaldborgarkirkja hefir nýlega
verið máluð og prýdd að innan, eru
þar allir bitar málaðir með marm-
aralit og gerð og öll kirkjan prýdd
þannig að hún er eins og nýtt hús.
19. Júní lézt í Minnesota Ingi-
björg Austdal, systir séra Jóhanns
Þorkelssonar dómkirkjuprests í
Reykjavík. Hún var fjörgömul
kona, ekkja Þorsteins Austmanns.
Sveinn Björnsson læknir kom
hingað aftur á föstudaginn sunnan
frá Toronto; hann varþar að taka
læknispróf er heimild veitir til þess
að stunda lækningar í öllu Canada-
ríki.
Jón Árnason læknaskólastúdent
kom til bæjarins á laugardaginn
norðan frá Vestfold, þar sem hann
er að kenna. Hann fór þangað út
aftur á sunnudaginn.
Wynyard Advance getur þess að
skeyti hafi komiS frá GuSmundi
FriSjónssyni þar sem hann kveSst
ekki geta komiS því við að koma
vestur í sumar.
Ámi Sveinsson frá Argyle kom
til bæjarins í vikunni sem leiS, og
dvaldi hér nokkra daga. Hann
kom inn á skrifstofu Lögbergs og
bar þar margt á góma. Ámi er einn
þeirra manna sem getur kapprætt
mál af alefli, en haldið áfram að
vera kunningi þess er hann kapp-
j-æSir við. ÞaS er list sem fáir
kunna en öllum er nauðsynleg.
Ritstjóra Lögbergs hefir veriS
sent bréf til SigurSar skósmiðs
ÞórSarsonar og hann beðinn að
koma því til skila. Oss hefir verið
sagt aS ÞórSarson eigi heima í
Blaine, Wash. og var því bréfið
sent þangað. Komi það ekki til
s'kila er SigurSur beðinn að skrifa
Jóni Jónssyni hreppstjóra á Haf-
steinsstöðum í Húnavatnssýslu á
Islandi. Bréfið var frá honum og
er efni þess tilkynning um arf sem
SigurSur á heima á Islandi.
Þ. Þ. Þorsteinsson skáld hefir
nýlega lokið við að mála mynd,
sem hann hefir ort sjálfur. Hug-
myndin er sem hér segir: Lands-
lagiS sem myndin sýnir er á vatns-
bakka, svipaS þvi sem er í Nýja
íslandi sumstaSar. Stóreflis skóg-
ur með fögrum trjám. Til og frá
standa stórir trjástofnar þar sem
trén sjálf hafa veriS höggvin; úti
í skóginum sést hrörlegur bjálka-
kofi, en skamt þar frá er nýtt hús,
stórt og vandaö. Bryggja sést sem
liggur út í vatnið og bátur á floti
við hana, en tvö skip á vatninu.
Himininn er skýjaður og loftið ekki
bjart. — Gamall maður hvítur fyr-
ir hærum situr á einum trjástofnin-
um, heldur utan um pipu sína með
annari hendi en á hattinum í hinni.
Hann horfir fram undan sér og
hugsar auðsjáanlega fast; enda ber
myndin þaö meS sér þegar betur
er aðgætt, því svo sterkar eru hugs-
anir hans aS hann sér ísland—ætt-
jörðu sína—birtast í skýjunum.
Þetta gefur það til kvnna um hvaS
maöurinn hafi veriö að hugsa.
Myndin flytur heila sögu, þar sem
þöglar raddir seiöa hugi íslenzkra
áhorfenda inn i helgidóm liSinna
viöburða. Þessi mynd ætti að ná
mikilli hylli. — KvæSiS “Minn-
ingar”, sem hér birtast eftir Þ.Þ.Þ
er í samræmi viS myndina.
Eg hefi nú nægar byrgSir af
“granite” legsteinunum “góðu”
stööugt við hendina handa öllum,
sem þurfa. Svo nú ætla eg að biðja
þá, sem hafa veriS aö biðja mig um
legsteina, og þá, sem ætla að fá sér
legsteina í sumar, aS finna mig sem
fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist aS
gera eins vel og aörir, ef ekki betur.
Yðar einlægur.
A. S. Bardal.
SYRPA
2. hefti af 4. árgangi er komiö út og
er verið að senda þaS kaupendunum
INNIHALD:
MaSurinn með öriö á enninu. Saga
eftir J. Magnús BJarnason. — Fram-
farir hermannsins; meö myndum.
1 Rauöahafinu. Saga. — Til Suöur-
heimskautsins. Feröasaga Scotts
kafteins. — Islenzkar þjóösegnir:
Hlaupa-Mangi; eftir F. Hjálmarsson.
Vinnuharka; eftir S. M. Long. —
Andspænis dauöanum. Saga. — Eig-
inleikar manns og konu til hjúskapar.
— Ofsóknir. Saga frá dögum Krist-
jáns V.; eftlr Kristófer Janson. —
þaö var þessi hundur! Gamansaga
eftir Mark Twain.
Til minnis:
Umsát um Verdun fyrir 1000 árum.
— Jötnaborg fundin I grend viÖ fæö-
ingarstaö Herkúlesar. — Tviburar. —
Fyrsta silfurbrúökaup. — Bátar fyrir
tveim þúsund árurrt. — Skiftaréttur
inn tvö kerti. — Fingurneglumar. —
Tala þjóöverja.
Heft'iö kostar 30 cents. Arg. $1.00.
Olafur S. Thorgeirsson,
678 Sherbrooke St., 'Winnipeg.
Thor Jenson trésmiður frá Wyn-
yard kom til bæjarins 25 júní og
fer vestur þangaö aftur á morgun.
Hann segir nóga vinnu þar vestra;
fjöldi manna er aö byggja hús úti
í sveitum og er þar mesti trésmióa-
skortur. Nú ætlar Jenson aö byrja
á aö byggja svenska kirkju skamt
fyrir austan Kandahar.
BlaSiS “Edinborg Tribune” get-
ur þess að húsfrú H. H. Reykjalín
frá Mountain og Anna dóttir henn-
ar séu aS leggja af stað suður til
Chicago með einhverjum Dr
Jlurgess; blaðið segir enn fremur
að þær mæögur ætli frá Chicago til
Lily Dale i New York og hugsi sér
>aS dvelja þar sumarlangt.
Séra SigurSur Ólafsson frá
Blaine dvelur hér í bænum; hann
,sat á kirkjuþingi og prédikaði
Fyrstu Iút. kirkjunni á sunnudaginn
Séra Sigurður er mælskur maður
og gáfulegur, enda á hann ekki
langt að sækja það; þar sem þeir
eru bræðrasynir séra Ólafur Ólafs
son fríkirkjuprestur og hann. —
Hann verður hér eystra um mán
aðartíma og starfar fyrir kirkju
félagiS.
Lilja Einarsson frá Mary Hill
kom til bæjarins nýlega aS finna
dóttur sína. Á meðan hún dvaldi
hér vildi það slys til aö hún datt
ofan háan stiga og meiddist mikiS;
öxlin fór úr liði og auk þess marS-
ist hún bæSi á andliti og víöar.
Hún var flutt á hospítaliS og var
þar um tíma þungt haldin, en er nú
á góöum batavegi.
Guöbjörg SuðfjörS frá Church-
bridge er hér í bænum um þessar
mundir. LíÖan manna er góS þar
vestur frá, eftir þvi sem hún sagði
og lítur vel út bæSi meS grassprettu
og kornuppskeru, þótt rigningar
hafi verið nokkuö miklar.
Ágúst BreiSfjörS frá Clarkleigh
og kona hans eru stödd hér í bæ.
BreiSfjörð var í þeim erindum að
reyna að selja land sem hann á,
en gekk þaö ekki greitt.
Jón ÞorSarson, eirfn af frum-
byggjum Argyle bygðar andaðist í
Glenboro 17. júní; banamein hans
var heilablóöfall. Jón sál. var 72
ára að aldri og lætur eftir sig ekkju.
Hann var jarSaður af séra Friðrik
Hallgrímssyni 19. júni. Hans
verður nánar getið síðar.
Söngleikurinn í Skjaldborg
(“Ester drotning”), sem fram fór
á þriöjudagskveldiS tókst frábær-
lega vel. HúsiS var svo að segja
troðfult og söngflokkurinn var enn
þá stærri en áður. Um þennan fagra
söngleik var ítarlega skrifað í Lög-
bergi í vetur og þýðir því ekki að
minnast hans' frekar að þessu sinni.
Þó má geta þess aö hann hefir al-
drei veriö eins vel sunginn þegar
vér höfum heyrt, og í þetta skifti.
ÞaS var auSséð að fólk var djúpt
snortið af áhrifum söngs og tóna
samfara hátiðlegu efni og ágætum
samtökum, sem vofu ávextir langra
og nákvæmra æfinga.
Þau Jón Jónasson og Jónína
Bjarnason, bæði til heimilis
Winnipeg, voru gefin saman
hjónaband af séra Rúnólfi Mar-
teinssyni að 493 Lipton St., þriðju-
daginn 20. júní.
21. þ.m. lézt í Selkirk Jón Sölva-
son úr bólueitrun í fæti. Hann
var jarðsunginn af séra N. S. Thor-
lákssyni 25. þ.m.
21. þ. m. voru þau Stephan
Thompson og Dorothy Johnson,
bæði til heimilis i Winnipeg, gefin
saman í hjónaband af séra B. B.
Johnson.
Filippus Jónsson og kona hans
frá Grunnavatnsbygð IögSu af staö
héðan vestur til Vatnabygöa í gær.
Filippus hefir setiö hér á kirkju-
þingi og ætlar vestur til Mozart að
finna Stefán bróður sinn og Jón
kaupmann Ólafsson á Leslie. Þau
hjónin búast við að dvelja vestra i
kring um þriggja vikna tima.
Fimtudaginn, 22. júní voru þau
Hugh Robert, St. Clair Clark, og
Clara Marín Oddson, bæði frá
Winnipeg, gefin saman í hjónabanc
af séra Rúnólfi Marteinssyni að
493 Lipton St.
Mánudaginn 26. júní voru þau
Einar Helgi Olson frá Vita, Man.
og Emma Christine Olson frá Cari-
bou, Minnesota, gefin saman
hjónaband af séra Rúnólfi Mar-
teinssyni að 493 Lipton St.
Þ'essi ungmenni voru fermd i
Bellingham, Wash. á Trinitatis-
sunnudag: Sigríður Lilja Arnheið
ur Goodman, Guðbjörg Augústína
Goodman, Ingimundur Ellert
Hjaltalin.
Gunnar Bjömsson þingmaður
og ritstjóri frá Minnesota hefir ver-
ið hér í bænum aö undanfömu.
Kom hann hingaS til þess að sitja
kirkjuþing.
Séra H. J. Leó flytur fyrirlestur
á Heklufundi á morgun (föstud.).
ÓskaS eftir að allir Goodtemplarar
mæti.
Walter Thorsteinsson frá Gard-
ar var á ferS hér í bænum í vikunni
sem leiS aS finna kunningja sína.
Sökum rigninga var skemtun
þeirri sem Jóns Sigurðssonar fé-
lagið haföi fyrirhugaö á laugardag-
inn frestaS, og hefir enn ekki verið
ákveöiö hvenær þaö veröi.
Bjarni Magnússon frá Mary Hill
kom til bæjarins eftir helgina og
dvelur hér enn. Hann kvað góða
líSan þar ytra; bleytur eru afar
miklar og vegir slæmir, en gras
vöxtur í langbezta lagi. Sandflug-
an segir Bjarni að sé þar illa þokk-
aður gestur og mikið af henni í
sumar.
Ólafur Vopni og Mina dóttir
hans eru nýlega komin vestan frá
Wynyard. Var vopni aS heim-
sækja þar tengdason sinn Hannes
Kristjánsson og konu hans.
Wynyard Advance segir frá þvi
aö R. A. Westdal, A. J. ísfeld og
Albert ísfeld, Ingi Guöjóns'son,
Geir Bogason og B. Goodman hafi
nýlega farið til Fort George, B.C.,
til þess að taka rétt á heimilisjörö-
um.
Gjafir til “Betel”.
Vigfús Anderson Minneota $ 25.00
Sigurg. Stefánsson, Selkirk 10.00
Kvenf. “Undina”, afhent af
B. Thordarson, Gimli
Thorl. Bjömson, Hensel ..
Mrs. P. Johnson, Thingvalla
Ónefnd kona í Brandon ..
Jón Jónsson.............. 10.00
Kvenfél. “Tilraun”, Thing-
valla nýlendu..........
GuSrún G. Johnson, Gimli
Olaf Perry...............
Halldóra Olson, Reston ..
B.L.Baldwinsson, Wpg ..
MeS innilegu þakklæti
endanna. Fyrir hönd nefndarinnar.
J. Jóhannesson,
675 McDermot Ave., Winnipeg.
Iþróttir á íslendinga-
deginum
Listi af íþróttum [Sports] sem þreytt verða á Is-
lendingadaginn undir reglum A. A. U, of C.
STANDARD EVENTS FOR POINTS
1. 100 yard Dash.
2. One Mile Run.
3. Running Broad Jump.
4. Putting 16 lb. Shot.
5. Low Hurdles. 120 yd.
6. 220 yard Run.
7. Hop, Step and Jump.
8. Half Mile Run.
9. Running High Jump.
10. Discus.
11. Standing Broad Jump.
12. Pole Vault.
13. Five Mile Run.
14. Mile Run.
15. Icelandic Wrestling
(for belt).
Þessi ‘'»ports“ eru fyrir alla Islendirga. Medalíur gefnar eins og
áður. Sá sem hæðtta vinninga fær tekureinnig Hanson bikarínn stóra
ryrirárið. Glímur verða al-íslenzkar undir glímureglum íþróttafélags
Islands. Þátttakendur geta fengið eyðublöð hjá undirskrifuðum, einn-
ig Hjá H. Axford, 223. Kerdeild; Capt. J. B. Skaptason, 108. herdeild;
Lieut. Leifur Oddson; 197. herdeild. Eyðublöðin verða að vera útfylt
á vanalegan hátt og komin i hendur ritara íþróttanefndarinnar fyrir 15.
Júlí næstk. ásamt 25c fyrir hverja íþrótt sem þátttakandi vill keppa um
Einnig verða vanaleg hlaup fyrir drengi og stúlkur, karla og konur.
Góð verðlaun gefin.
LADIES BASEBALL
Stúlkur I Spyrjið hann Arinbjörn | Bardal um Ladies Ðaseball.
Hann gefur ykkur allar upplýsingar.
KAÐAL-TOG
á milli hermanna og borgara, 7 á hlið. Hverjir ætli hafi betut?
Allar frekari upplýsingar gefur
S. D. B. STEPHANSON
Ritari Iþrótta-nefnda innar
729 SHERBR00KE ST., P.O.Box 3171, WINNIPEG
Séra H. Sigmar fer vestur ann-
aö kveld. Hann prédikar á sunnu-
daginn á Leslie, Kristnesi og ElfroS,
Bjöm Þóröarson prestaskóla
sveinn frá Minneapolis hefir verið
hér i bœnum um tíma. Hann geng-
ur á prestaskóla þar syöra og hefir
jafnframt því söfnuð skamt frá
bænum. Kveöst hann lítið hafa
haft saman viö Islendinga að sælda
um langan tíma og vera orðinn all-
ryögaður í málinu; en eftir þann
vikutíma sem hann dvaldi hér
kvaðst hann finna á sér mikinn
mun í þá átt. í Minneapolis em
nú um 150 manns og sagði hann að
þeim liði yfirleitt vel, eftir því sem
hann bezt vissi. Björn er ættaður
frá Hallson í Norður Dakota, ung-
ur maður og efArllgur.
PANTAGES
10.00
5.00
5.00
5.00
11.00
5.00
5.00
5.00
635.00
til gef-
Grein frá Halldóri Hermanns-
syni bókaverði barst blaðinu í gær;
hún birtist í næsta blaði.
“A night in the Park” heitir leik-
ur sem þar verður sýndur næstu
viku, er það söngleikur.
“Melody six” er annað atriði sem
ætti að draga fólk að leikhúsinu,
þar syngja sex stúlkur ágætlega.
Kimberlay og Arnold og Karl
Emmy og Harry Coleman, verða
einnig á leiksviðinu næstu viku, og
vita þeir það sem þá þekkja að bet-
ur er farið en heima setið þegar á
það fólk er hlustað og horft.
Frá Islandi.
gæzluvarðhaldi í vetur. Krefst hann
30,000 kr. skaðabóta.
Bærinn Ýtra-Krossanes í Eyja-
firði brann nýlega til kaldra kola.
Brann þar og stór hænsahjörð.
“Austri” segir að á Reyðarfirði
eigi að stofna 4—5 verzlanir í sum-
ar og jafn mörg hús eða fleiri verði
bygð þar. Sama blað segir einnig
að 5—6 steinhús verði bygð á Eski-
firði og rafmagnsstöðin stækkuð til
muna.
Bréf kom á þriðjudaginn frá Jó-
hanni Magnússyni frá 688 Home
stræti. Hann særðist nýlega eins
og frá var sagt í Lögbergi siðast.
Bréfið segir furðanlega góða líðan
hans. Hann særðist á handlegg,
öxl og kinn, en sárin eru að gfóa.
Hann liggur á hospítali í Bristol á
Englandi. Bróðir hans er nýlega
farinn til Frakklands á vigvöllinn.
Oss þykir fyrir því að þeir skuli
vera að hnippast á Árni Sveinsson
og Jónas Þorbergsson. Oss þykir
vænt um Argylebygð fyrir margra
hluta sakir og mennirnir eru báðir
góðkunningjar vorir. Er vonandi
að þeir miðli svo með sér málum
að ekki verði óvinátta úr eða mis-
skilningur, eins og oft vill verða.
Lausn frá prestsskap hefir feng-
ið séra Jakob Björnsson í Saurbæ
í Eyjafjarðarsýslu; hefir hann ver-
ið þjónandi prestur í 54 ár.
Harðindi mikil voru á Norður-
Jandi í vor óg útlit fyrir heyskort
og skepnufelli. Var flutt heilmik-
ið þangað af fóðri frá Suðurlandi.
En svo kom bráður bati svo góður
að slíks eru tæpast dæmi og er nú
öndvegistíð um land alt og hlaðafli
þar að auki. Mátti batinn ekki
seinna koma því illa leit út.
Allvíða hafa mislingar stungið
sér niður hér í vor, og allskæðir
sumstaðar. Sömuleiðis skarlatsótt
á stöku stöðum.
Ingibjörg Lund átti að vera und-
ir þakkarávarpinu siðast, en ekki
Lindal.
Séra H, J. Leo prédikar í Skjald-
borgarkirkju á sunnudaginn kl. 7.
Pétur læknir Bogason er orðinn
aðstoðarlæknir við heilsuhælið
Vejle í Danmörku.
Verið er að prenta öll ljóðmæli
Hannesar Hafsteins; verður það
bók þrefalt stærri að minsta kosti
en gamla útgáfan. Hannes er eitt
allra vinsælasta, kjammesta og
bjartsýnasta skáld sem Island ehfir
átt.
Tilboð.
Islenzkum foreldrum á Gimli er
boðið að senda börn sín á aldrinum
7 til 14 ára í íslenzku kirkjuna
lútersku til þess að fá tilsögn og
æfingu í undirstöðu atriðum krist-
innar trúar á hverjum morgni
(nema sunnudaga) frá kl. 9 til 10.
Þetta nær til allra íslenzkra barna
á nefndu aldursskeiði. Þau for-
eldri sem vilja sinna þessu eru beð-
in að láta börnin koma með banda-
lags söngvana íslenzku. Þein fást
hjá mér fyrir 25 cent. Að öðru
leyti er þetta öllum þátttakendum
kostnaðarlaust. Þau böm sem vilja
þiggja tilboð þetta eru beðin að
koma á fund til samtals laugardag-
inn 1. júlí á ofangreindum stað og
tíma.
Guðm. P. Thordarson.
KENNARA vantar fyrir Geysir
skóla nr. 776, fyrir sjö mánuði.
Kenslutimabil frá 1. okt. 1916 til
30 júní 1917* Tilboðum er tilgreina
kaup, æfingu og mentastig, verður
veitt móttaka af undirrituðum til
10. ágúst 1916.
Th. J. Pálsson, Sec. Treas
Árborg, Man.
SVAR TIL Á. SVEINSSONAR
(Framh. frá 5. ibls.J.
NOTIÐ ROYAL CROWN SÁPU; hún er bezt. Safnið Royal
Crown miðum og nöfnum. Eignist fallega nytsama muni kostnaðar-
laust.
Ef þú ert ekki þegar byrjaður að safna miðum, þá byrjaðu
tafarlaust. Þú verður forviða á því hversu fljótt þú getur safnað
nógu miklu til þess að afla ágæts hlutar. Einhvers sem mikils er
virði.
Royal Crown munir em úr bezta efni. Þeir em valdir með
mikilli varfærni. Þeir eru margs konar; eitthvað sem v'el kemur sér
fyrir alla. NAIÐ 1 NÝJA VERÐLISTANN OKKAR. Það
kostar ekkert nema aðeins að biðja um hann. Ef þú sendir bréf
eða póstspjald, þá færðu hann með næsta pósti og borgað undir hann.
Allir munir sem eru auglýstir eða sýndir fyrir fyrsta maí 1916
eru nú teknir af listanum.
Þegar þú velur einhvern hlut, þá vertu viss um að velja eftir
nýja listanum. Áritan:
THE ROYAL CROWN SOAPS
Limited
PREMIUM DEPARTMENT - WINNIPEG, MAN.
ttorsk-Ameriska Linan
Ný og fullkomin nútlSar gufu-
skip til póstflutninga og farþega
frá New York beina lei8 tll Nor-
egs, þannig;
"Kristianafjord” 16. Jflli.
“Bergensfjord”, 6. Agúst.
“Kristiansfjord” 26. Ágúst.
“Bergensfjord" 16. Sept.
“Kristianiafjord” 7. Okt.
“Bergensfjord” 28. Okt.
Gufuskipin koma fyrst tll Bergen
i Noregi og eru ferC'lr til |slands
þægilegar þaSan.
Farþegar geta fariB eftir Balti-
more og Ohio Járibrautlnni frá
Chlcago til New York, og þannig
er tækifæri aC dvelja i Washing-
ton án aukagjalds.
Leaitið upplýsinga Am fargjald
og annat! hjá
HOBE & CO., G.N.W.A.
123 S. 3rd Street, Minneapolis, eða
H. S. BARDAL,
892 Sherbrooke Street, Winnipeg.
H. EMERY,
hornl Notre Dame og Gertie Bls.
TALS. GARRY 48
ÆtllB þér aB flytja yBur? BJf
yBur er ant um aB húsbúnaBur
yBar skemmlst ekki 1 flutningn-
um, þá finniB oss. Vér leggjum
sérstaklega stund á þá IBnaBar-
grein og ábyrgjumst aB þér rerB-
18 ánægB. Kol og viBur selt
lsegsta verBi.
Baggage and Express
Lœrið símritun
LæriB símritun; járnbrautar og
verzlunarmönnum kent. Verk-
leg kensla. Engar námsdelldir.
Einstaklings kensla. SkrifiB eft-
ir boBsriti. Dept. “G”, Western
Schools, Telegraphy and Rail-
roading, 607 Builders’ Kxcliange,
Winnipeg. Nýir umsjónarmenn.
öll bindindisfélög í landinu eru
að senda harðort vanþóknar- og
hótunarbréf til Hudsonflóa félags-
ins fyrir tiltæki þeirra gagnvart
vinbannslögunum. Ensku Good-
templarastúkurnar hé!r í fylkinu, ís-
lenzku stúkurnar Skuld og Hekla 1 með
hafa sent slík bréf, og Stórstúkan
.sendir væntanlega eitt. Siðbóta-
félagið gerði það sama. Tilgangur-
inn er sá að allar Goodtemplara-
stúkur og öll bindindisfélög sendi
sitt bréfið hvert til þess aö félagið
sjái að almenn óánægja hafi risið1
upp gegn þvi.
Guðmundur Eggerz sýslumaður,
bróðir Sigurðar fyrverandi ráðherra
hefir sagt af sér sökum ósættis við
ráðherra út af því að stjómin
ónýtti dóm eða úrskurð er Guð-
mundur hafði felt.
Guðmundur E. Guðmundsson er
nú byrjaður að vinna í kolanám-
unni með 20 manns til að byrja
Sólveig ekkja Sigfúsar sál Ey-
mundssonar var sjötug 26. maí og
var henni haldið fjölment samsæti
við það tækifæri.
Maður að nafni Erasmus Gísla-
son í Reykjavík hefir höfðaö
skaðabótamál á móti landsstjóminni
fyrir það aö honum var haldið í
hann telur mig í flokki þeirra
manna, sem hann telur grunn-
hygna níðinga. Hann ætlar að sýna
og sanna”, að þetta sé rangt, með
því að telja upp nokkra menn. En
hann gáir ekki að því, að allir, sem
hann telur upp, hafa verið og eru
afburðamenn um andlegt atgerfi
Það er því vægast sagt bamalegt,
að halda því fram, að það, sem um
1 þá má segja, megi einnig segja um
allan -þorra manna.
Hann ihefir heldur ekki vandað
sem bezt til þessara heimilda, því
það veit hann, að Kristján Jónsson
skáld var aldrei bóndi, heldur gekk
í skóla og dó mjög ungur. Matthí-
ar Jochumsson hefir víst lítið búið,
heldur verið pretsur, ritstjóri og um
fram alt eldheitur hugs'jónamaður,
skáld og ritíhöfundur.
Nú á eg því láni að fagna, að
standa ekki einn uppi með þessa
skoðun. Eg hefi hér í höndum ræðu
séra Björns B. Jónssonar, kirkju-
félagsforseta, sem hann hélt fyrir
minni Dr. Guðm. Finnbogasonar,
þar sem hann heldur fram nákvæm-
lega sömu skoðun. Honum farast
svo orð: “Og vænt þykir mér um
það, að andríki einkenni einnig
þjóðina. Eg bið, að hún glati því
pkki, þó nú komi hún út á heims-
torgið. Því miður glata þjóðirnar
og mennirnir einatt hugsjónum
þegar kemur út í starfslífið og sam-
kepnina um tímanlegu gæðin.
Þjóðin, sem vér búum hjá, er í
þeirri hættu að verða hugsjóna-fá-
Eg þykist allvel staddur, að hafa
^séra Björn með mér í þessu máli;
sökum þess fyrst, að hann er menta-
maður, en ekki hvað sízt sökum
þess, að Á. S. bendir á hann sem
þann mann, er sé sveitinni til sóma.
Sjálfsagt hefði Á. S. ekki viljandi
kallað hann grunnhygginn níðing
fyrir þessa sök; þess vegna mun séra
Björn fyrirgefa honum það eins og
eg geri.
Það sem eg ihefi áður sagt um
félagslífið, samkvæmislífið og and-
lega starfsemi í sveitinni þarf eg
ekki að endurtaka né rökstyðja, því
það Ihefir ekki verið hrakið. Eg)
hafði vonast eftir að Á. S. liðsintic
mér frekar í því máli, heldur en að
hann skildi orð mín á versta veg,
og legði mig síðan í einelti með
hrópyrðum og brigzlum. Hann sér
ekki annað á bak við þessa tilraun
mína heldur en illgirni og öfund
En orsökin er satt að segja önnur.
Mér er sveit þessi kærari en aðrir
blettir vestanhafs. Hefi eignast hér
mjög marga góða kunningja — og
þar á meðal Áma Sveinsson—og
nokkra ágæta vini. Eg hefi séð,
mér til gleði, að ungir sem gamlir
hafa fengið rikulegan ávöxt atorku
sinnar og iþess vegna var það ósk
min, að þeir legðu meiri rækt við
hugsjónamál, því þau göfga menn-
ina og brynja þá gegn margskonar
hœttum, sem þeir cru umkringdir í
siðferðislega sjúku þjóðfélagi.
Um hrakyrði Á. S. í minn garð
skal eg vera fáorður. Þó þau virð-
ist ómannúðleg, lít eg ekki á það,
sökum þess' hvernig þau eru til
komin. Eg fyrirgef þau fýslega.
Hann talar um vanþakklæti mitt
fyrir velgjörðir og þægindi, sem eg
hafi hér notið, og eg muni hafa
álitið óhætt, að svívirða fólk, sökum
þess, að eg þurfi ekki lengur að
njóta slíks hér. Þama fer hann
lengra en heiðarlegur maður ætti
að láta sér sæma, og gengur nær
mér, en hann hefir til siðferðislegt
leyfi. Vitaskuld stend eg í þakk-
lætisskuld við mjög marga, en Á.
S. verður ekki kvaddur til að hlut-
ast til um það, hvemig eg ræki þá
þakklætisskyldu. Hér hefir hann
hagað sér eins og reiður drengur,
sem hugsar mest um það, að berja
og berja, en minna um hitt, hvort
höggin komi á réttan stað.
Árni Sveinsson er, eins og mönn-
um er kunnugt, einn af öndvegis-
höldum vestur-íslenzkra bænda.
Hann er einn af þeim fáu, sem eru
tvent i senn, afkastamiklir búmenn
og andríkis hugsjónamenn. Hér
eftir sem hingað til verður því
virðing min fyrir honum óskert og
aðdáun, sökum hæfileika hans,
þreks hans og fyrirmensku.
Jónas Þorbergsson.
SAFETY
Öryggishnífar
skerptir
RAZO
Ef þér er ant um að fá góða
brýnslu, þá höfum við sérstaklega
gott tækifæri að brýna fyrir þig
rakhnífa og skæri. “Gilett’s’’ ör-
yggisblöð eru endurbrýnd og “D*q>-
lex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein-
föld blöð 25c. tylftina. Ef rakhtóf-
ur þinn bítur ekki, þá láttu okknr
sýna þér hversu auðvelt það er að
raka þegar vér höfum endurbrýnt
blöðin. — Einföld blöð einnig lög-
uð og bætt. — Einnig brýnum við
skæri fyrir lOc.—75c.
The Razor & Bhear Sharpening Co.
4.614 Biiilder* Exchange Grinding Dpt.
333i PortageAre., Winnipeg
Mölpokar
Mölpokar eru þægilegastir til þess aS
vernda föt frá því að mölur grandi heim.
Þeir hafa það fram yfir annað sem til þesá
er notað að verjast möl að fötin taka ekki
sterka lykt af þeim þannig að þau þurfi að
viðrast áður en þau verði Oiúkuð. Ekki
þarf annað en láta fötin i pokann og binda
fyrir og Uggja hann svo afsfðis til geymslu
Mölpokar eru mismunandi stórir. Vér höf-
um tilallar stærðir. Komi og skoðið.
WHALEYS LYFJAB0Ð
Phon* She'br. 268 og 1130
Horni Sargent Ave. og Agnes St.
Ef eitthvað gengur að úrinu
þínu þá er þér langbezt að aendjt
það til hans G. Thomas. Haua er
í Bardals byggingunni og þú métt
trúa þvi að úrín kasta eflibeigB-
um í höndunum á honum.
Málverk.
Handmálaðar
1 i t my nd i r
[“Pastel” og olíumálverk] af
mönnum og landslagi
býr tilog selur með sanngýörnu verði.
Þorsteian Þ. Þorsteinsson,
732 McGe* 8«. Tals. G. 4997
Tilboð óskast
til að plægja 35 til 50 ekrur á \ section af
landi sem er 6 mílur fyrir vestan Gimli.
Borgun út i hönd þegar verkinu er lokið.
Tilboðum veitt móttaka af undirrituðum.
M. KATZ,
91 Lusted St.,
Winnipex
Merkileg uppfunding
Margt verður það sem upp verð-
ur fundið sem afleiðing af stríðinu.
Hörmungarnar framleiða altaf
krafta. “Neyðin kennir naktri
konu aS spinna” sannast þar.
Þegar bannaöur var innflutning-
ur á baðmull til Þýzkalands voru
Þjóðverjar í vandræðum með um-
búðir og vöf á særða menn, því þau
eru búin til úr baðmull. En þeir
tæk þrátt fyrir auðæfi sín-------”jfundu það 'þá upp að búa til vöf
ur vissri mosategund. Er hún mjög
svipuð kletta mosa á Islandi, eftir
því sem henni er lýst. Þetta hefir
hepnast svo vel að vöf sem úr mos-
anum eru búin til reynast miklu
betur en hin sem baðmull er í. Þau
eru betri til þess að stöðva blóðrás
og halda í sér meiri raka en hin.
Baðmullar vöf halda sex sinnum
þunga sínum af raka, en mosavöfin
tíu sinnum. Baðmullar vöfin þorna
líka mjög seint en mosavöfin til-
tölulega fljótt; eitt er það líka sem
gerir baðmullarvöf óþægileg, það
er það að þræöir eða hár úr þeim
geta tollað niðri í opnum sárum
og veldur það sársauka, en ekkert
þess konar á sér stað með mosa-
vöfin.