Lögberg


Lögberg - 03.05.1917, Qupperneq 1

Lögberg - 03.05.1917, Qupperneq 1
SPIERS-PARNELL BAKING CO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta verð sem verið getur. REYNIÐ Þ Á! TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG 30. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FÍMTUDAGINN 3. MAÍ 1917 NÚMER 17 ALVARLEGT VERK- FALL 1 MANITOBA 600 talsíma-starfsmenn hætta vinnu, 46,852 símar starflausir í fylkinu, 20,000 í Winnipeg. Hudson og Johnson miðla málum. Á mánudaginn hættu allir síma- starfsmenn í fylkinu störfum sínum sökum þess atS þeir höföu fariö fram á meiri kauphækkun en hlutaöeig- endur vildu veita. Stjómin hafSi boöið at5 hækka kaup, en ekki eins tnikið og krafist var; hún hafSi einn- ig Itoðið að leggja málið í gerð, en því var neitað. Símastarfsfólkið afsagði að gera nokkra frekari samninga við Watson yfirumsjónarmann talsimanna, en það var viljugt að ræða mál sín við Hud- son dómsmálastjóra og Thos. H. Johnson verkamálaráðherra. Þar hefir fátt gerst, sem markvert geti talist síðan i vikunni sem leið. Bandamenn hafa unnið á nokkuð að ”estan, en annars eru allar fréttir óljósar. Jafnaðarmenn á Rússlandi og á Þýzkalandi eru i' óða önn að reyna að koma á friði; ef ekki milli allra striðsþjóðanna, þá á milli Rússa, Þjóðverja og Austurríkismanna. Sagt er að Holweg Þýzkalandsráð- herra ætli að koma fram með nýja friðarskilmála í dag. Fleiri skipum hefir verið sökt að undanfömu en nokkru sinni fyr og mannfallið hefir verið afskaplegt. Sœrðir í stríðinu. Þlessa íslendinga höfum vér séð talda særða i stríðinu: 1. B. Magnússon frá Piney. 2. Conrad Haraldsonf ?) 3. P. G. Thompson, Ginili. 4. Gunnar Rikharðson (son séra Ríkharðar Torfasonar í Reykja- vík á íslandiý. 5: H. W. Jóhannson frá 644 Simcoe stræti, Winnipeg. 6. Alexander Davidson frá Baldur. 7. S. Davidson, Winnipegf ?J 8. John Mitchell, Winnipeg (stjúp- sonur Brynjólfs Árnasonar í 223. deildinnij. !). Guðnason, Baldur, Man. Fóru með 223. herdeildinni. Úr Big Point bygð, Wild Oak P. O., Manitoba, eru þessir tveir ungtt rnenn fyrir nokkru gengnir í herinn. 1. Jóhann Arnór Bjarnason Thompson, fæddur 12. janúar 1899, að Wild Oak, Man. Foreldrar hans eru: Bjarni Tómasson, Ingimunds- sonar frá Efstadal í Laugardal í Arnessýsltt og kona hans Anna 'ó hannsdóttir frá Húsabakka í Skaga- fjarðarsýslu, búandi hjón í Big Point bygð. 2. Edward Jóhannsson Josephson, fæddur 9. ágúst 1898, í Winnipeg. — Foreldrar hans eru: Jóhann Tósefs- son, Helgasonar, ættaður af Eanga- nesi i Norður-Múlasýslu og kona hans Viola að nafni, af enskum ætt- úm. Búandi hjón t Big Point bygð. Báðir þessir menn gengu í 223. herdeildina. Til Islands. Hluthafar í Eimskipafélagi íslands eru hér með ámyntir um að senda urnboð sín til herra Árna Eggertsson- ar að 766 Victor St., Winnipeg eins fijótt og þeim er það mögulegt, svo að hann geti tekið þau með sér þegar hann fer til íslands um miðjan þenn- an mánuð til þess að mæta á ársfundi félagsins og að sinna öðrum stjórn- störfum þess þár. L()g félagsins heimila málsvömm vestur íslenzkra hluthafa er mæta á fundinum, að greiða atkvæði á hluta fé Vestur-Islendinga. Það væri þvi ilt afspurnar ef málsvarinn kæmi þar frant með að eins nokkurn hluta þeirra umboða sem hann að réttu ætti þar að fara með. Hlutasölunefnd Eimskipafélagsins biður því alla þá hluthafa, sem ennþá ekki hafa sent umboð sín að gera það »ú tafarlaust. Winnipeg 1. maí 1917 B. L. Baldwinson, ritari. Ásv’aldur Guðjónsson frá Riverton yar á ferð í bænum; kom á mánudag- mn og fór heim aftur í gær. Engir símar störfuðu á þriðjudags- morguninn. Undir hádegið varð það þó að samningum að fólkið tók aft- ur til starfa til bráðabyrgða. Á að rannsaka málið af 5 manna nefnd og því að vera lokið í þessum mánuði. Stjórnin samdi um að lægsta kaup í Winnipeg skyldi v'era $40.00 á mánuði og $35.00 úti í bygð- um. Málinu á að ráða til lykta af nefnd, þar sem stjórnin tilnefni tvo og símafólkið tvo og þeir f.jórir komi sér saman um oddamann. — Er von- andi að þetta mál verði farsællega til lykta leitt; enda engar líkur til ann- ars. Einar Jónsson kemur vestur. Símskeyti frá Reykjavík til New York 25. apríl, segir frá því að Einar Jónsson listamaður fari af stað þang- að núna um mánaðarmótin með skip- inu “Escondido”. Eins og getið er um á öðrum stað í blaðinu er stytta hans af Þorleifi Karlsefni komin til Philadelphia. Hefir Einari v'erið boðið að koma þangað og vera þar heiðursgestur stimarlangt. Hann á að sjá um að koma styttunni fyrir á þann hátt, sem honum þykir bezt við eiga. Nefnd frá “American Scandinavian Foundation ætlar að taka á móti Ein- ari, þegar hann kemur til New York. Islendingar ættu að bjóða honum til Wininpeg. Hreinsunarvika. Bæjarstjórnin og heilbrigðisráðið liefir ákveðið að hreinsa allan bæinn Byrjaði það starf á mánudaginn. Þetta er það, sem fólkið þarf að at- huga: að láta alt rusl, sem er rakt eða llautt í blikk-könnur eða fötu; alt þurt rusl í trékassa með loki eða tunnur; að binda blöð og bækur í knippi; að láta ösku svo utarlega að hún náist og láta ekkert saman við hana; að brenna alt annað, sem hægt er. Að tína saman alt rusl af auðum svæðum, sem vera kunna hjá húsum þeirra. Muniff eftir aff hreinsa alt, sem fyrst og scm bczt. Látinn á fslandi er fyrverandi alþingismaður Skag- firðinga Friðrik Stefánsson 76 ára að aldri; fæddur 30. ágúst 1840. Hann andaðist að Svaðastöðum í Skaga- firði 9. marz, hjá Pálma Símonar- syni tengdasyni sínum. Friðrik var faður Fr. Stephenson yfirprentara Lögbergs og Mrs. S. Jóhannsson að Elfros P. O., Sask. -------~~--------\ Ull frá fslandi. Landi vor Emil W. Christjánsson í New York hefir sent Lögbergi úr- klippu úr “New York World” frá 25. apríl, þar sem frá því er sagt að farið sé að flytja vestur uíl frá íslandi. Segir blaðið að í febrúar mánuði hafi 4,300 pund af ull icomið frá íslandi til New Ýork. Kröfur bænda. T. A. Crerar formaður kornrækt- armanna flutti ræðu í Montreal 2L apríl. Sagði hann þar að bændur Vesturfylkjanna hefðu ákveðið að krefjast afnáms alls verndartolls við næstu kosningar. Þeir heimta frjálsa verzlun við Bretland, tolllaus kol og tolllausar vistir frá Bandaríkj- unum og til þeirra, og beina skatta til þess að greiða með herkostnaðinn. Þessi maður lýsti því yfir að af- námi tollanna yrði framfylgt meíð miklu afli því 50,000 bændur væru í félagi því, sem hann væri fulltrúi iyrir; 10,000 í Manitoba, 25,000 i Saskatchewan og 15,000 í Alberta. Crerar flutti þessa ræðu á fundi framsóknarmanna og tóku þeir henni ineö miklu lófaklappi. Stjórnin tekur kornhlöður. Davenpart baron hefir slegið stjórnar haldi á allar kornhlöður á Bretlandseyjum frá 30. apríl. Do- venpart er aðalumsjónarmaður mat- vörukaupa og á að sjá um útbýting vista. Talið er víst að fyrst um sinr. verði þeir látnir stjórna hlöðunum, ?cm áttu þær með stjórnareftirliti. Snjór og frost. Um 25; apríl féll mikill snjór víða í Vestur Canada og sumstaðar í Bandarikjunum. í Brandon féll 8 þumlunga snjór og í Argyle enn þá meiri. I sumum pörtum Minnesota féll einnig mikill snjór og víðar í Bandaríkjunum. Rúþenar láta til sín taka. Þær fréttir berast frá Rúþenum hér í landi að þeir telji of rnjög þröngvað kostum sínum og annara svonefndra útlendinga og hafi þeir hér eftir ákveðið að koma sér áfram eftir megni gegn allri mótstöðu. 1 þessu skyni ætla þeir að reyna að koma 7 mönnum á þing við næstu kosningar. Dugandi drengir. Prestur hér í bænum sem Henry Aitkinson heitir í Meþódista kirkj- unni á Maryland St. flutti ræðu ný- lega, þar sem hann hélt því fram að blaðadrengir hér í bænum hefðu of mikið af peningum undir höndum; legðu því í vana sinn fjárhættuspil og aðra óreglu. Stakk hann upp á því að bannað væri piltum yngri en 18 ára að selja blöð, en blaðasalan v'æri höfð að atvinnu fyrir héim- komna hermenn. Strákar undu illa þessari ræðu; héldu þeir tafarlaust fund og lýstu því yfir að þetta væru öfgar og rang- færslur hjá prestinum. Sá heitir Júlíus Livick sent er formaður blaöa- drengja deildarinnar, en Sam Rose varaformaður. Þeir segja að blaðadrengir vinni sér inn $4.00 á viku að meðaltali og fjöldamargir þeirra noti peninga sína til þess að koma sér áfram gegn um skóla. Ef drengjum innan 18 ára yrði bannað að selja blöð, yrðu marg- ir þeirra að hætta skólanámi; með því að blaðasala er eina vinna, s^m hægt er að fá, sem ekki komi í bága við skólanámstundir; þeir selja blöð - in að mOrgninum, áður en skóli byrj- ar og að kveldinu, þegar hann er úti. Er sagt að drengirnir hafi haldið hverja ræðuna á fætur,annari og gef- ið prestinum góð svör og gild. Stjónarskifti á Spáni. De Romanones greifi stjórnarfor- maður á Spáni og ráðgjafar hans sögðu af sér nýlega vegna stefnu- mismunar manna í sambandi við stríðið og ósamlyndis út úr þv'í. Sá heitir Mamel Garcia Prieto greifi, sem tekið hefir við forsætisráðherra- stöðu. Hefir hann verið atkvæða • mikill stjórnmálamaður áður. Krefjast atkvæðisréttar. Japanar þeir, sem heima eiga í British Columbia hafa fengið Sir Charles Hibbert Tupper til þess að bera upp við Brewster stjórnarfor- tnann kröfur þeirra um atkvæðisrétt. Með Tupper verður fulltrúanefnd frá Japunum sjálfum. Segjast þeir ekk': hætta fyr en þetta verði veitt. Ritfrelsi í Bandaríkjunum. Frumv’arp kom upp urn það í Washington þinginu að . takmarka vitfrelsi meðan á stríðinu stæði. Urðu um það miklar umræður og f?kk það afarharða mótstöðu. Kváðu menn það vera eitt grundvallar atriði stjórnarskrárinnar að menn hefðtt fult málfrelsi og ritfrelsi í öllum rnálum og því væri ekki hægt að raska með neinni bráðabyrgða sam- þykt. Blaðamenn ríkjanna komu einnig saman á þing og mótmæltu eindregið t.ikmörkun á ritfrelsi, sem gagn- stæðri og ósamrýmanlegri stjórnar- skrá landsins. Herdeild haldið. 214. herdeildin, sem nýlega fór frá Saskatoon undir forustu J. H. Hearn, var sett föst í Ottawa vegna þess að hún hafði skuldað $6,000—$8,000. Hllum herforingjum er haldið þangað til málið hefir verið rannsakað, en vera má að deildin fái að halda áfram undir forustu annara. Afnám dauðadóma. Þingmaður i Ottawa, sem Robert Pickerdike heitir bar fram frumvarp tim afnám dauðadóma i Canada. Arthur Meghen dómsmálastjóri neit- aði leyfis um að láta frumvarpið korna fyrir frumvarpsnefnd þingsins og hafði hann það að ástæðu að þingið væri móti afnámi dauðadóma sem stæði. Pickerdike mælti vel og röggsam- lega fyrir frumvarpinu; kvað hann Rússa hafa afnumið dauðahegningu og kvað það vanvirðu Canada að vera langt á eftir þeirri þjóð i lagabótum. “Það er kominn tími til” sagði hann, “að hætt sé að minsta kosti að hengja konur og börn í Canada. Artlnir Meghen dómsmálastjóri talaði á móti afnárni dauðadóma; Sir Wilfrid Laurier sagði að dauða hegning ætti að minsta kosti hvorki að ná til unglinga né kvenna. William Pugsley og G. P. Graham atkvæða- i iklir liberalar voru eindregið með : fr.ámi dauðadóma. en Frank Oliver og George H. Bradbury frá Selkirk ákafir á móti. Hvort sem þess verður langt eða skamt að bíða, þá er jtað víst héðan af, að dauðadómar verða afnuntdir. 40 skipum sökt á einni viku. Vikuna sem endaði 25. april höfðu Þjóðverjar sökt yfir 40 skipum frá Englendingum, sent hvert um sig var 1,600 smálestir og þar yfir og mörgum minni skipum auk þess. Hafði aldrei verið sökt eins mörgunt á einni viku áður síðan stríðið hófst. ókyrð í Rússlandi. Ekki er fullkomin kyrð á Rúss- landi enn þá. Bændurnir sem um langan aldur hafa verið undirokaðir iáta til sín taka, sumstaðar svo að ekkert verður viðiLðÍð- Þeir hafa farið svo langt í sumum héruðum að þeir hafa slegið hendi sinni yfir land eignir auðmanna og rekið þá á brott með harðri hendi af óðulum sein þeir hafa haldið mann fram af manni Sumstaðar hafa hermennirnir slegist í leik með bændum og rekið landeigendur brott með vopnum hafi l'.oir ekki flúið mótstöðulaust. Á öðrum stöðunr hefir aftur á móti íarið öðruvísi, sérstaklega í grend við Odessa þar hafa menn gert upp- reistn* móti þeirri bráðabyrgða stjórn sem nú er í landinu og kveða stjórnr arbyltinguna alla gerða með rangind- um og ósanngirni. Ýfir höfuð að tala er máli þjóðarinnar svo komið sem stendur að alt, er í mesta óefni en vonandi er að frain iir því rætist. Einkennilegir brunar. í bænum Eric í Pennsylvania í Bandaríkjunum brann afar stór korn hlaða 24. apríl, fórust þar 200,000 rnælar hveitis . og mikið af öðrum korntegundum, sem geymdar voru handa bandamönnum. Tapið er talið $600,000 því kornhlaaaðan brann til kaldrakola. Það einkennilega í þessu sambandi er að félag eitt, sem“Great Lake Traust Corporalinn” heitir átti þrjár stórar kornhlöður og eru þær allar brunnar, hinar brunnu báðar fyrir rúmu ári. Skúraskin. Orkt undir nafni porsteins porsteinssonar til foreldra hans, þá er fall hans fréttist. La.g: Eg heyrSi Jesú himneskt orS. Eg heyrði lands míns hjálparköll, og heiman skjótt mig bjó; um reginhöf og risafjöll , eg ruddist fram, — og dó. Eg unni frelsi öllu meir, og ungum skildist mér, að enginn sá til einskis deyr, sem andans merki ber. Og ljúft er mér að liggja nár, því leyst er hlutverk mitt, og fjöldi niðja í fjölmörg ár mér frelsi þakkar sitt. Svo æfin frá mér trautt var tæld, þótt týndist næstum öll, því líf eru’ ekki í lengdum mæld í lífsins miklu höll. Ó, mamrna’ og pabbi, minnist þess, að mörg er þyngri raun, en líta auðan sonar sess, ef sæmd er dauðans laun. Guðmundur Stefánsson. Stríðið. Herdeild á mánuði. J. T. Jones yfirlæknir er nýkomin úr stríðinu, segir hann að ef ekki gangi betur en nú eigi sér stað rneð liðsöfnun þá verði enginn her til í haust. Af hverjum 20,000 manna her- flokki segir hann að J4 eða 15,000 falli frá á ári. Canada hafi nú fimm shka herflokka eða 100,000 hermenn alls og verði því 75,000 fallnir frá af þeim að ári liðnu. Til þess að halda við hverjum einstökum herflokki með 20,000 manns þyrfti um eina deild á mánuði að minsta kosti, þetta segir liann að Canada verði að gera og megi ganga miklu betur en nú til þess að það takist. Að svifta útlendinga atkvæði. Verið er að ræða um ný atkvæðis- lög í Ottawa. Afturhaldsblöðin í Austur Canada hvetja til þess að all- ir þeir borgarar landsins sem séu af þýzku eða austurrísku bergi brotnir séu sviftir atkvæðisrétti. Sérstaklega hvetja þau til þess að þessir borgar- ar Vesturfylkjanna: Manitoba, Al- berta og Saskatchewan séu ekki látn- ir njóta atkvæðisréttar. Blaðið To- ronto Telegram flytur langa grein um þetta efni 21. apríl. Kemst það meða! annars svo að orði: “Það hefir sannast síðan stríðið hófst að 108,410 manns frá Austur- ríki og Þýzkalandi sem heima eiga í Manitoba, Saskatchewan og Alberta hafa ekki viljað verða borgarar hér í landi í orðsins fylstu merkingu. Það ranglæti að leyfa kjósendum af þýzku óg austurísku bergi brotnum að greiða að meðaltali 1,000 atkvæði í 43 kjördæmum í þessum fylkjum er svo ljóst að ekki þarf skýringar. At- kvæði þessara þjóða ráða kostningum að minsta kosti í 30. af 43 þessara kjördæma. Spurningin um það hv'að verði um Sir Wilfrid Laurier ef 45,000 Þjóð- verjum og Aústurríkismönnum er ekki leyft að greiða atkvæði í þessum vesturfylkjum og senda 30 fulltrtía á sambandsþing sem séu á móti stjórn inni, hún liggur oss í léttu rúmi.” Fleiri blöð en Telegram taka í sama strenginn og þegar hermanna- félagið sem mest barðist gegn Dixon sá þessar athugásemdir sendi það tafarlaust áskorun til stjórnarinnir að krefjast þess að atkvæði yrði tek- in af þessum “útlendingum.” Jón Helgi Grímsson. Bœjarfréttir. Útsalan, sem auglýst er í kirkju Fyrsta lút. safnaðar þriðjudaginn 15. þ. m. ætti að verða vel sótt. Þar verður fjöldi eigulegra muna með gjafverði, eftir gæðum. Um að gera að koma nógu snemma. Margir draga það til hins síðasta að sækja slíkar útsölur og koma því ekki fyr er búið að velja úr alt það bezta. John Einarsson bróðir William Einarssonar frá Wynyard útskrifað- ist nýlega, sem dýralæknir frá skóla í Chicago. Mrs. W. Frederickson frá Baldur kom hingað til bæjarins 23. apríl og var skorin upp nokkru síðar á sjúkra- húsinu. Með henni kom Teenie dótt- ir hennar. Þau hjón Sveinn Oddson prentari á Wynyard og Margrét kona hans urðu fyrir þeirri sorg að missa átta ára gamlan pilt mjög efniJegan úr skarlatsótt í vikunni sem leið. Munið eftir að sækja barnasam- komuna í kveld (fimtud.J i Skjald- bórg. Hún verður skemtileg og fjöl- breytt. Halli kaupmaðgr Björnsson „frá Riverton var á ferð hér í bænum á þriðjudaginn í v'erzlunarerindum. Mrs. Kr. Hannesson héðan úr bæn- um fór vestur til Wynyard á sunnu- daginn, til þess að vera við jarðar- för piltsins, sem þau Oddsons hjónin mistd. Hún dvelur þar í viku. Lítil fjölskylda getur fengið þrjú góð herbergi; gott hús og rúmmikið að 838 McDermott Ave. Mrs. Margrét Lindal og Þuríður dóttir hennar, sem rnn tíma hafa dvalið í Portage La Prairie eru nú fluttar í bæinn að 624 Toronto St. Mrs. Philip Johnson, Stoney Hill, hefir gefið Jóns Sigurðssonar félag- inu $2.25 og tvenna sokka og Mrs. H. O. Hallson frá SiWer Bay $3.00. Rjörn Crawford í Winnipegosis hefir safnað og sent félaginu $40.25 verða nöfn þeirra gefenda birt síðar. Stefán bóndi Danielsson frá Otto kom til bæjarins á þriðjudaginn í verzlunarerindum. Kuldi þar úti og alt seint, en góð liðan efnalega. Svæsnir mislingar hafa gengið þar um tíma. Lesið auglýsinguna um Macs leik- húsið. Landi vor Guðm. Christie virðist gera sér far um að hafa mjög uppbyggileg atriði í boði. Leikhúsin eru eins og blöðin, sé þeim samvizku- santlega og vel stjórnað geta þau orðið til ttppbyggingar og mentunar, auk þess er skemtunin sem þau veita. Þetta virðist Christie hafa fyrir aug- mn og skilja mörgunt bettir. Björn Stefánsson og Lúðvík Krist- jánsson frá Westfold komu hingað fyrra þriðjudag og fóru heimleiðis aftur á fimtudaginn. Einar Einarsson frá Auðnuni við Gimli og Tryggvi Jónasson frá Gimli voru hér á ferð í vikunni sem leið. Mrs. V. Hallson lézt 24. marz 1915, en ekki 24. maí, eins og áðttr var sagt. Helgi Hallson lagði af stað ti! Englands 24. apríl með “Skógar- manna JForesters) deildinni. Helgi er vel þektur meðal íslendinga, ve! gefinn ti) lífs og sálar og bezti dreng- ur. “Mutual” lífsábyrgðarfélagið hefir sett Halldór J. Eggertsson yfirum- boðsmann fyrir norður og vestur hluta Manitoba. Samkvæmt skvrslu félagsins hefir það haft afar mikla umsetningu fyrsta ársfjórðung þessa árs; 110% meiri en á santa tíma árið sem leið. t Rauðakrossfélagið hefir Helgi Bjarnason frá Narrows sent T. E. Tþorsteinssyni $5.00 og í Belgíusjóð- ínn $5.00. Fyrir þetta er þakkað. Mrs. Sigurfinna Caine lagði af stað í gær suður til Grafton til móð- ur sinnar. Systir hennar er að út- skrifast um þessar mundir frá há- skólanum i Grafton; hún heitir Sig- urlaug Benediktson. Vilberg Grítnsson. Jón Helgi er fæddur 1. febr. 1891. Vilberg 11. júní 1897, báðir 1 Gardar- bygð í CVorður Dakota. Foreldrar þeirra eVu Daníel 'Grímsson, Stein- ólfssonar 'bóndai á Grímsstöðum í Reykholtsdal og konu hans Guðrúnar Þóröardóttur Jónssonar prests á Qrund í Lundareykjadal. Móðir þeirra, kona Daníels, er Sigríður Þorsteinsdóttir, Jónssonar frá Auðn- unt á Vatnleysuströnd og konu hans Ingibjargar Halldórsdóttur, Þórðar- sonar prests á Lundi. Til Ameríku komu þau sumarið 1885 og settust að í Gardar-bygð, N.D. Til Vatnabygða í C'anada komu þau vorið 1906 og tóku land 2J4 mílu vestur af Elfros og hafa búið þar síðan. Halldór J. Eggertson er nýkominn norðan frá Riverton. Var hann þar ' tveggja vikna tíma t lífsábyrgðar- erindum og lætur Vel yfir ferðinni. Jóns Sigurðssonar félagið þakkar fyrir eftirfylgjandi gjafir: Frá Mrs. Oddleifsson, Geysi, $5; frá Miss Thorey Olafson, Wpg ffyrir Belgíu- sjóðinn) $5; frá kvenfélaginu í Ár- borg, þrenna sokka, |og hefir það félag því als gefið 60 pör sokkar; frá Mrs. Guðrúnu Einarsdóttur Goodman tvennir sokkar; frá Mrs. Ingimundi Sigurðssyni, Lundar, Man., þrennii sokkar; frá Mrs. Freeman, Vestfold, tvennir sokkar. Ágóði af “Iðjuleys- ingjunum” var áður talinn $6, en átti að vera $6.90. Ársþing í félaginu “Dætur Breta- veldis” hér í Manitoba hefir verið haldið hér í bænum að undanförnu. Það var merkilegt þing að mörgu leyti. Ein íslenzk kona var kosin þar í framkvæmdarnefnd, Mrs. J. Carson. Hún hefir góðfúslega lofað Lögbergi fréttum af þinginu. Á. P. Jóhannsson fór norður til Ár- borg og Riverton og fleiri staða í Nýja Islandi fyrra þriðjudag og kom aftur á laugardaginn. Vegir farnir að þorna þar nyðra, en þó býsna blautir enn. Guðmundur Sólmundarson frá Gimli kom hingað til bæjarins með föður sinn veikan í vikunni sem leið. Dr. Brandson skar hann upp nýlega og líður honum vel. Þau hjónin S. Freeman sem lengi hafaJbúið hér í Winnipeg og í grend- inni, en eru nú flutt til Fairford urðu íyrir þeirri sorg að missa son sinn Harald á þriðja ári 13. april s. I. Sigurfinna Caine hefir afhent rit- stióra Lögbergs $5.00 í peningum, sem er sá hluti af ágóða samkomunnar sem haldin var hér í Winnipeg er Mrs. Caine tók á móti. Hún seldi aðgöngumiða fyrir $5.00 og tók á móti $1.00 frá Mrs önnu Ólafsson, en 4>orgaði $1.00 fyrir seðlaprentun. Afganginn af aðgöngumiðunum af- henti hún ritstj. Lögbergs. Konan sem hlut á að máli er biðin að nálgast peningana. Kristján Sveinn Þorsteinsson og kona hans, frá Gimli, voru hér á ferð í vikunni sem leið. Erlendur Guðmundsson, sem stund- aði nám við verzlunarskóla hér í vet- ur, er nýfluttur til Mozart, Sask. Skeyti kom frá Englandi 1. maí til Mr. og Mrs. O. Freeman að 711 Pacific Ave., þess efnis, að sonur þeirra Ólafur, sem særðist á Frakk- Iandi 16. apríl, væri kominn til Eng- Iands á Canadian Military Hospital, Beachborough Park, Shomcliffe.. Einar Magnússon frá Hnausuir. kom til bæjarins á þriðjudaginn snögga ferð ásamt konu sinni. Jóhann Norman frá Winnipegosis kom hingað til bæjarins á þriðjtidag- inn og verður hér nokkra daga. J. Th. Pálsson, Ilowardville, kont fil bæjarins á mánudaginn og fór heimleiðis aftur í gær. Hann var á ferð í verzlunarerindpm. Hann segir kulda og klaka. Vatnið á is eins og á vetrardegi, en partur af fljótinu auður. Mrs. S. Johnson og Mundi Krist- jánsson frá Mountain komu hing^ð 7. apríl til þess að vera við jarðár- för systur sinnar Mrs. Hnappdal. BITAR Móðirin hafði Iokiö við að lesa “Sól- skin” fyrir börnin sín áður en þau sofnuðtt: ‘Mamma, lestu lka “Sól- skinið í Heimskringlu’, sagði svolít- ill stelpuhnokki. — “Það er ekkert “Sólskin” i Heimskringlu, barnið mitt", svaraði móðirin. Hvernig ætli standi á því að toll- urinn af hveitinu var afnuminn á stjórnarfundi í Ottawa, en ekki á þingi, sem þó var að koma saman ? — Ástæður liggja til alls. Bæjarstjómin hefir keypt $3,200 bifreið handa bæjarstjóranum. — "Gefið mér þeir hefðu hest, hefði eg verið ríkur” sagði K.n. Heimskringla er áð læra smátt og smátt. þó hægt fari. Fyrst tók hún það eftir Lögbergi að hafa breiða og myndarlega ritstjórnardálka. ' Fyrir skömmu byrjaði hún á barnabálki eins og Lögberg og síðast byrjaði l’ún á viðskiftabálki. Lögbergi er ánægja að því að sjá áhrif sín á Heimskringlu: Það hefir frézt að Magnús frá Miðhúsum sé útnefndtir fréttaritari í Litla-Rússlandi. Lieut. Frans Thonias. ("Sjá augl. á öðmm staðj.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.