Lögberg - 24.01.1918, Page 3

Lögberg - 24.01.1918, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. JANÚAR 1918 3 Dœtur Oakburns lávarðar. Eftir MRS. HENRY WOOD. Fvrsti kafli. En að fylg-.ja tízkunni er all-dýrt og leiðir af sér sérstakar afleiðingar að því er útgjöld snertir. Klæðnaður og vagnar kosta allmikið. Laura, jafn umhyggjulaus og hún var, pantaði stundum hvoru tveggja þegar henni datt það í hug, og Carlton fór að muna eftir því að þetta þurfti að borga. Hann elskaði konu sína innilega, og gat enn þá ekki fengið sig til að segja henni nokkur aðvarandi orð um að vera sparsamari; en hann skrifaði föður sínum og bað hann um peninga. Ekki um ákveðna upphæð einu sinni; hann bað hann um að veita sér árlega tiltekna upphæð, um leið og hann benti hon- um á að kona sín væri dóttir jarls, og þar af leið- andi væri dýrara að búa saman við hana á’ viðeig- andi hátt, heldur en konu af almennum ættum. Carlton vonaðist eftir svari á hverjum degi. Hann hafði af eintómri skyldurækni skrifað föður sínum og sagt honum frá giftingu sinni; hann hafði skrifað honum aftur einu sinni eftir það; en gamli maðurinn hefir eflaust verið411a uppalinn, því hann sendi honum ekki eina einustu hamingju- ósk til endurgjalds. Hann hafði alls ekki svarað bréfunum. En Carlton beið vongóður eftir svari þriðja bréfsins. Hann þurfti heldur ekki að bíða lengi. pegar hann stóð þarna við gluggann, sá hann póstinn koma og ganga inn um hliðið, um leið og hann leit- aði að bréfi í böglinum, sem hann hélt á. Tvisvar á dag voru bréfin, sem komu frá London borin um bæinn — morgna og kvöld. Eftir allmikinn bar- daga við hina voldugu póstmeistarastjórn, hepn- aðist South Wennock að fá þessa tilslökun við byrjun ársins. Carlton hraðaði sér svo mikið ofan, að hann var búinn að opna götudyrnar þegar póst- urinn ætlaði að fara að hringja bjöllunni. Bréfið var frá föður hans, það sá hann á ut- anáskriftinni; pósturinn hafði snúið sér við, gengið burt og var komin út fyrir hliðið þegar Carlton mundi eftir nokkuru, sem hann vildi spyrja um, kallaði á hann og gekk til hans, meðan hann talaði. “Rodney, thafið þér spurt yður fyrir viðvíkj- andi hinum ranga reikning, sem mér var sendur fyrir fáum dögum ?” “Við höfum orðið að skrifa um það til borgar- innar, hr., það var ekki pósthúsinu hérna að kenna”, svaraði maðurinn. “Svarið því viðvík,,- andi kemur líklega hingað á morgun”. “Já, eg borga hann ekki ’. “Eðlilega ekki, hr. pví ef það er rangur reikningur, þá taka þeir har.n aftur". Læknirinn var farinn að athuga bréfið, þegar nann heyrði vagnskrölt; hann gekk út um hliðið par eð hann hélt að þetta gæti verið kona hans, sem kæmi akandi. pað var nú samt ekki. En í vagninum sátu tvær konur, sem Oarlton þekti, og l.ann heilsaði þeim um leið og þær óku framhjá. Á næsta aygnabliki kom umsjónarmaðurinn Med- ler; hann gekk hratt með löngum skrefum. jpó hann hefði verið að elta strokinn þjóf, hefði h-.nr. naumúast getað gengið harðara. J?egar hann sá Carlton, gaf hann honum bendingu og fór að nlaupa. “Hvað er nú?” tautaði læknirinn hátt við sjálfan sig, og rödd hans lét í ljós óafvitandi æs- ing. “Hafa þeir ekki fengið nóg af því málefni enn þá?” Carlton átti við hið ógæfulega mál viðvíkj- andi dauða konunnar í Palace Street. Medler hafði ekki gengið betur með rannsókn þessa, held- ur en fyrirrennara hans, og hann hafði verið neyddur til að yfirgefa það um stund, sem óvið- ráðanlegt málefni. pað var heitur dagur, því sumarið var komið, og umsjónarmaðurinn, sem vár nokkuð feitur maður, tók ofan hattinn og þurkaði enni sitt, þegar hann kom til Carltons. “Við viljum fegnir biðja yður að gera svo vel, hr. Carlton, að rannsaka vesalings konu, sem er orðin brjáluð, þannig að þér getið gefið oss hinar nauðsynlegu sannanir, og John Grey skrifar undir þær með yður”,sagði umsjónarmaðurinn, sem tal- aði fremur ruglingslega sökum flýtirsins sem á honum ar. “Við getum ekki látið flytj hana fyr en við fáum þær. J?að er kona járnsmiðsins á leiðinni til Great Wennock”. “J?að er svo”, sagði læknirinn. “Hvað hefir orsakað brjálsemi hennar?” “Gömul meiðsli, heyri eg sagt. Hr. Grey sagði mér, að fyrir nokkrum árum síðan hefði ovð- 16 að loka hana inni. Að minsta kosti er hún mjög •eðisgengin nú. pér ætlið þá að líta til hennar einhverntíma í kveld, svo að við getum flutt hana þangað, sem hún er óhult, strax á morgun? Eg sagði við einn af þjónum mínum, áður en eg fór rá stöðinni, að hann skyldi fara og segja yður þetta; en nú hefi eg sjálfur talað við yður. En hvað veðrið er gott”. Já, það er ágætt. Við, munum fá nægar hey- birgðir ef svona viðrar”. Pað er satt, hr. Carlton, það mál virðist ætla að gabba okkur alvarlega”, sagði umsjónarmaður- inn aftur, þegar hann var tarinn af stað en nam nú staðar. “Hvaða mál?” spurði Carlton. “Með tilliti til frú Crane. Eg er hræddur um að það verði eitt af þeim afbrotum, sem aldrei verður ljóst hver framkvmt hefir — það hafa komið fyrir nokkur slík tilfelli. Ástæðan er sú, að þegar slíkir viðburðir eru ekki nógu vel rann- sakaðir um leið og þeir eiga sér stað, þá er oftast gagnslítið að eiga við þau mál seinna; þess hefi eg oft orðið var”. “J?ér eruð þá líklega hættir við það”. “Já, eg er hættur við það. pað sýnist gagns- laust að vera að grúska við það. J?að mun raunar að vissu leyti verða opið til þess, að taka á móti nýungum sem það snerta, og þá erum við reiðu- búnir til að rannsaka það á ný. pað getur skeð að það komi enn þá til rannsóknar hr.” Carlton kinkaði kolli samþykkjandi, og um- sjónarmaðurinn þaut af stað eins hratt og fætur hans gátu borið hann, í öðru erindi, hvert sem það hefir verið. Carlton gekk inn í húsið og inn í borðstofuna og opnaði þar bréfið. Svart ský leið yfir svip hans um leið og hann las það. Við skul- um gægjast yfir öxlina á honum. “Kæri Lewis! — Eg skal vera þér þakklátur, ef þú hættir að ónáða mig með fleiri betlarabréf- um. pú veizt að eg hefi aldrei getað liðið þau. Eg réði þér til að gifta þig, segir þú, — það er satt; en eg réði þér ekki til að giftast aðalmanns dóttur, og eg hefi aldrei álitið þig nógu heimskan til þess. J?essi ólíku hjónabönd flytja með sér hundrað óánægjur af ýmsri tegund, eins og þú munt verða var við; en það snertir að eins ykkur hjónin. pað er alls ekki áform mitt að gefa þér fleiri peninga, og hvort eg á að skilja þér eftir nokkuð af þeim þegar eg dey, er undir sjálfum þér komið. Eg er orðinn alveg frískur aftur og er heilsubetri en eg hefi verið í mörg ár. London í júní 1848. pinn einlægur J. Carlton”. Carlton kreisti bréfið saman í hendi ðinni. Hann vissi hvað bendingin um arfinn þýddi — að ef hann bæði aftur um peninga, myndi hann ekki erfa eitt cent. “Hann hefir alt af verið slæmur faðir við mig ” hrópaði hann æstur, slæmur og grimmur f aðir!” -) Á þessu augnabliki sá hann hinn leigða vagn konu sinnar við dyrnar. Hann smokkaði bréfinu í einn af vösum sínum, og hraðaði sér út. “Eg verð að reyna að komast af eins vel og eg get”, hugsaði hann, “en hún skal ekki líða baga við það. Laura, elskan mín, eg hélt að þú værir hlaup- in á burt”, sagði hann, þegar hún stökk fimlega niður úr vagninum geislandi af ánægju og sá bros hans. “Hvar heldur þú að eg hafi verið, Lewis?” “Á fimtíu stöðum”. “pað hefi eg líka verið”. svaraði hún hlæjandi “En eg á að eins við einn af þessum stöðum. ó, þú getur aldrei getið þess. Eg hefi verið á mínu gamla heimili, Cedar Lodge. Eg var í heimsókn á “Bakkanum”, og þegar eg ók til baka aftur, datt mér í hug að koma inn í gamla húsið okkar og líta á það. Stúlkan, sem lítur eftir'því, þekti mig ekki; hún áleit að eg væri einhver kona sem vildi leigja húsið. Eg sá að það var vinnukonan, sem þau réðu í vist hjá sér eftir að eg fór að heiman; hún á að gæta hússins þangað til einhver leigir það. par er einkennileg blöndun af húsmunum; allir gömlu stólamir og borðin standa á sama stað og þau voru, en nú er fáeinum nýjum húsmunum bætt við til að gera alt myndarlegra. Hugsaðu þér, Lewis, stúlkan gaf mér bréfspjald með árit- un jarlins af Oakbum í London og sagði að eg gæti skrifað þangað eða snúið mér til hr. Fischer hér í bænum, hvort sem mér líkaði betur”. Laura hló glaðlega þegar hún sagði frá þessu. Hún var komin inn í borðstofuna ásamt Carlton og leysti hvítu hattböndin sín. Hann brosti líka og engin merki vonbrigðanna, sem hann hafði orð- ið fyrir, sáust á andjiti hans; það eru fá andlit, sem eiga jafn hægt með að dylja geðshræringar og andlit Carltons, hvort heldur það var gleði eða sorg. “Mig furðar það, að jarlinn skuli reyna að leigja húsið með húsmununum”, sagði hann. “Mig hefir furðað á því alt af síðan eg sá auglýs- inguna um það”. “Pabbi tók húsið til leigu fyrir langan tíma”, sagði Laura. “Eg býst við að hann hafi ekki get- að sagt því upp þó hann vildi. Lewis, hvað heldur þú svo að eg hafi gert enn fremur? — pegið skyndilegt heimboð í kvöld”. “Hvar?” “Hjá hinni önugu, gömlu frú Newberry. En hún hefir frænkur sínar hjá sér, þær eru svo und- ur aðlaðandi, og eg lofaði að koma undir eins og við höfðum neytt dagverðar. pað koma tíu eða tólf gestir aðrir, boðnir á sama skyndilega hátt, og við eigum að leika málsháttaleik. Verður þú samf erða ?” “Eg fylgi þér þangað og sæki þig aftur í kvöld. En eg þarf að vitja sjúklinga þetta kveld”. Laura heyrði naumast svarið. Hégómagirnd hennar hafði ekki rýmað, og hún hraðaði sér með ákafa miklum til búningsklefa síns, hugsandi um það, hvaða klæðnað hún ætti að bera þetta kveld. Um leið og hún kastaði hattinum sínum á legubekkinn, sem hún hafði haldið á, og lét sjalið detta af öxlum sínum, opnaði hún kommóðuna sína og fataklefann, og fór að líta eftir sam- kvæmnisklæðnaðinum. Hún var mjög áköf, og þar eð henni þótti afarvænt um skemtanir, kom hver óvænt skemtan henni í æsing. “Eg ætla að vera í perlugráa silkikjólnum\ sagði hún við sjálfa sig. “pað ætti að vera nægi- legur sorgarbúningur, ef eg læt setja svört bönd á kniplingsermarnar. Sarah verður að sjá um að það sé gert. Hvar eru þær ?” pessi orð “hvar eru þær ?” áttú við þær ermar sem nýlega voru nefndar, reglulega ermar, sem frú Chesney hafði átt. Laura dróg út eina kom- móðuskúffuna, þar sem kniplingarnir hennar og línið var geymt, og leitaði í henni með litlu fjör- ugu fingrunum sínum. “Hvað hefir nú Sarah gert af þeim?” sagði hún, þegar hún fann ekki ermarnar. “Hún er eins kærulaus og hún getur verið. Ef ermarnar eru nú týndar------” Laura þagnaði og þaut að bjöllustrengnum og hringdi svo hart að ómaði um alt húsið. Laura hafði erft óþolinmæði föður síns, og þeman kom hlaupandi upp; hún vissi að húsmóðir sín þoldi enga töf með að fá skipanir sínar framkvæmdar. Stúlkan hafði verið ráðin sem stofustúlka, en hús- móðir hennar lét hana hjálpa sér með alt er hún áleit sig þurfa hjálpar við. Sarah kom inn og sá kommóðuskýiffumar standa opnar, kjóla og knipl- inga liggjandi á víð og dreif í mikilli óreglu, og húsmóðirina bíðandi eftir sér mjög æsta að útliti. . .■ “Hvar em kniplingaermamar mínar?” “Kniplingaermamar, lafði?” endurtók Sarah í mjög efasömum róm, eins og hún vissi naumast hvaða knipplingermar þetta váeri. Að minsta kosti skildi lafði Laura orð hennar og róm á þann hátt”. “Fallegu ermamar úr Skrautsaumuðum knipl- ingum, sem mamma átti”, sagði Laura reið og óþolinmóð. “Eg hefi sagt þér hve mikils virði þær eru, og eg hefi sagt þér að vera athugul og varkár qjeð að næla þér í kjólana mína. Nú veizt þú hvað eg meina”. “Já, nú man eg eftir þeim, lafði”, svaraði Sarah. “pær eru í kommóðunni”. “Nei, en þar eru þær ekki”. “En þær hljóta að vera þar, lafði”, sagði stúlkan þrjózkulega; því hún var jafn geðrík og bráðlát og húsmóðir hennar. “Eg hefi aldrei geymt kniplinga yðar annarstaðar en þar”. “Findu þá þá”, svaraði Laura. Stúlkan gekk að kommóðunni og tók upp hverja flíkina á fætur annari hægt og með var- kámi; alt of seinlega fyrir óþolinmæði lafði Lauru. “Farðu frá, Sarah; þú verður ekki búin fyrir dagverð, ef þú gaufar svona”. Og um leið og hún tók í skúffuna kipti hún henni út og hvolfdi úr henni á gólfdúkinn. Blaðapappírinn, sem lá á botrii skúffunnar, féll á gólfið ásamt flíkunum. “Láttu nú fötin upp í skúffuna aftur”, sagði Laura, “og þú kemst brátt að því hvort eg hefi sagt þér sannleikann eða ekki um ermamar”. Sarah bældi niður í sér reiðina; hún mátti ekki láta bera á henni ef hún vildi fá að vera kyr í vistinni. Hún greip blaðapappíririn, hristi hann með ákafa miklum, sem annaðhvort mátti álíta, sem kappsamlega umhyggju fyrir starfinu, eða sem reiði, hvora tegundina húsmóðir hennar kaus, var hún sjálfráð um, svo laut hún niður til að taka upp kniplingana. Lafði Laura stóð við hljjð henn- ar og horfði á hana, um leið og hún var viss um sigur sinn en vandræði Söruh, að því er ermamar snerti. “Nú, eru ermamar þama?” spurði hún, þegar að eins voru fáar flíkur eftir á gólfinu, svo að enginn efi gat átt sér stað um það, að þær voru J>ar ekki. “Lafði, alt sem eg get sagt er, að eg hefi hvorki snert né séð ermamar. Eg man eftir þeim, það er satt; en eg get ekki munað nær þér notuðu þær síðast, eða við hvaða kjól það var. Ef eg hefði tekið þær úr kjólnum, eftir að þær voru notaðar, þá hefði eg látið þær hér og hvergi annarstaðar’*. “Dettur þér í hug að eg hafi týnt þeim af handleggjum mínum?” sagði Laura reið. Sarah sagbi að sér dytti það ekki í hug; en hún leit svo út sem hana langaði til að segja eitt- hvað, og það ekki af beztu eða viðfeldnustu teg- undinni. pegar hún greip seinustu flíkina af gólfinu — það var svartur kniplings herðafetill — sá lafði Laura eitthvað sem líktist snepil af sendi- bréfi er legið hafði undir fötunum. Hún greip hann með miklu meiri óþolinmæði heldur en Sarah hafði tekið fetilinn. Rithöndin, sem var vel glögg, vakti forVitni hennar og undrun. Hún gleymdi ermunum, hún gleymdi reiði sinni við Söruh, hún gleymdi skemtaninni fyrir- huguðu og æ/singunni, eða réttara, ein æsingin breyttist í aðra, og hún settist niður með bréf- snepilinn í hendinni. pað var byrjun á bréfi, skrifað, að því er Laura hélt til Jönu systur hennar, og var dagsett í London hinn 28. febrúar síðastliðinn. Neðri hluti bréfsins var rifinn af því, en endirinn á hinni hliðinni var kyr. Laura þekti rithöndina eins vel og sína eigin; það var rithönd Clarice systur hennar. “Eg hélt að Jana gæti ekki verið jafn lymsk!” sagði hún loksins. “Að fullvissa mig um, eins og hún gerði, að Clarice hefði ekki skrifað sér síðan á nýjársdag. Hvaða ástæðu gat hún haft til þess ?” Laura sat í þungum hugsunum með bréf- snepilinn í hendlnni. Jafn ómerkilegt og þetta atvik var, olli það henni samt mikilla vandræða; hin fáu orð bréfsins ollu henni vandræða; aðferð Jönu, að neita því, að hafa heyrt frá henni hið minsta, olli henni vandræða. Hún hafði alt af álitið systur sína sannsögla. “Fólk má hiklaust búast við því, að brögð þess verði uppgötvuð”, sagði hún hlæjandi að sín- um eigin orðum. “Jana hefir ekki vitað að þessi bréfsnepill fylgdist með fötunum mínum þegar hún raðaði þéim saman til að senda þau. En eg skal geyma þennan bréfsnepil til að sannfæra hana”. pegar hún sneri sér við og gekk að hallborð- inu sínu, kom Sarah á móti henni með týndu erm- arnar í hendi sinni. “Ég fann þær vafðar inn í bómullarfóðraða silkikjólinn yðar í djúpu skúffunni”, sagði þern- an eins þrjózkulega og hún vogaði að tala. “Eg hefi ekki látið þær þar”. Laura mundi nú alt í einu eftir því, að hún hafði sjálf látið þær þar einn daginn þegar hún þurfti að flýta sér, og ,hún var nógu eðallynd til að kannast við það. Hún sýndi nú Söruh hvar hún ætti að láta nokkra svarta borða og tylla þeim, sneri sér svo aftur að skrifborði sínu. J?eg- ar Sarah fór út, heyrðist fótatak Carltons í stig- anum. Laura kastaði bréfsneplinum í hallborðið sitt og læsti því svo aftur áður en hann gat komið inn; en hann gekk að eins inn í samkomusalinn. Tilfinning, sem Laura hafði aldrei gert sér það ómak að gera grein fyrir, en sem eflaust staf- aði af drambi, hafðj bægt henni frá að minnast nokkru sinni á Clarice systur sína við mann sinn. Að eðlisfari þóttafull og drambsöm, aðal-eðlisein- kunnir Chesney fjölskyldunnar, hafði hún ekki getað fengið sig til að segja honum: “Eg á syst- ur, sem er einhverstaðar úti í heiminum sem kennari”. pegar þau — hún og Carlton — færi aftur að umgangast fjölskyldu hennar, sem hún áleit að seinna mundi koma fyrir, og að Carlton yrði þess þá var að ein systirin væri enn til, sem hann hefði hvorki séð né heyrt getið um, myndi verða auðvelt að segja: “ó, Clarice var fjarver- andi meðan pabbi var í South Wennock”. J?að væri ekki rétt að segja að lafði Laura hefði ákveð- MÁ VERA að þér hafi aldrei komið til hugar að þaö að kaupa eldspýtur væri verk sem útheimti varúð og þekk- ingu i þeim efnum. En svo er nú samt. J?að er áríðandi að þú kaupir engar aðrar eldspýtur en EDDYS EFNAFRÆÐISLEGA SJÁLFSLÖKKVANDI “HLJóÐLAUSAR 500” Eddyspýturnar, sem engin glóð er eftir af. Eddy er sá eini, sem býr þessar eldspýtur til í Canada og hefir hverri einustu eldspýtu verið difið ofan í efnafræðisblöndu, sem alveg tryggir það að ekki lifi í viðnum eftir að slökt er. Gáið að orðunum “Efnafræðislega sjálfslökkvandi, hljóðlausar 500” á eldspýtnastokknum. Við andlátsfregn vinar mrns KRISTJÁNS HELGA KRISTJÁNSSONAR Mér barst sú fregn, þú værir vinur farinn úr veröld til að fá þér betri stað, því nýjan bústað byggir andaskarinn við betri kjör en hérna, eg veit það, og eg kem seinna beint af hólmi barinn, þá býst eg við þú leiðir mig í hlað. Mig hrygði minna að heyra Jm rarst dáinn, fyrst heilsa þín var þrotinn, vinur minn. Nú rætist hjá þér heilög hugar-spáin, að haldist líf J>ó bili líkaminn, og máttug guðleg mannsins innri þráin hún með þér fylgist inn í himininn. pú varst hetja, hreinn og frjáls í lundu, og hreinhjartaðir munu Drottinn sjá. pú vanst með dyggð og manndóms styrkri mundu og meiri laun þeir hljóta guði hjá, r sem sannleiks takmark sitt hið æðsta fundu og svikust aldrei réttu máli frá. Jeg heiti á guð að hugga vini þína — með helgri trú, um lífsins undra mátt. Hann láti heimi ljós sitt kærleiks skína og líkni sérstakt þeim sem eiga bágt, hann birtir öllum sanna miskun sína, Við sjáum hana í gegnum stórt og smátt. pað skilja vini mílna mergð og margt sem heftir fund, þú hélzt í þína hinstu ferð, en hér eg bíð um stund. En aldrei greina orðin tóm hvað ann þér hugur minn, því legg eg tárvot ljóða-blóm á legstað vinur þinn. Sigurður Jóhannsson. ið þetta áform af ásettu ráði með tilliti til ókomna tímans; hún gerði það ekki; en henni datt þetta í hug skyndilega. Hún talaði þess vegna aldrei um Clarice systur sína, og Carlton hafði ekki hina minstu hugmynd um, að hún nokkru sinni hefði átt systur með þessu nafni. Laura áleit að Clarice væri komin heim aftur fyrir löngu síðan, og þegar hún las í “Moming Post” eða öðm blaði, sem flutti nýungar um æðri stétta fólk, varð hún stundum undrandi yfir því að sjá ekki nafn Car- iee.‘ Einmitt þenna'dag hafði hún séð nöfn hinna umtöluðu sem vitjendur blómasýningar: “Jarl- inn af Oakboum og lafðirnar Jana og Lucy Ches- ney”, en þar var engin lafði Clarice. “Pabbi og Jana hegna henni fyrir að hafa tekið að sér kenn- arastarf, og hafa ekki viljað hafa hana með sér til þessara skemtana”, hugsaði Laura. Hún verðskuldar það. J?að var mjög ósanngjarnt á- form af Clarice að ráðast í þetta”. Frá íslandi. Reykjavík 5. des. 1917.. . Settur sýslumaður í Árnes- sýslu frá 29. f. m. er Bogi Brynj- ólfsson yfirréttarmálaflutnings- maður á eigin ábyrgð. Guðm. Eggerz sýslumaður er nú hér í Rvík við fossanefndarstörf. — Séra Jóhannes L. Jóhannesson á Kvennabrekku hefir fengið lausn frá embætti og sezt að hér í Rvík við orðabókarstörf með dr. Bimi Bjamasyni, en þeir eiga að halda áfram verki Jóns heitins ólafssonar. — Séra Sig- urgeir Sigurðsson, settur prestur á ísafirði, er einn umsækjandi um það prestakall. Einar Helgason garðyrkju- fræðingur hefir að undanfömu ferðast um nágrennið, eftir til- mælum atvinnubótanefndarinn- ar, til þess að rannsaka skilyrði fyrir kartöflurækt í stórum stíl. Bezt líst honum á Brautarholt á Kjalamesi og Garðskaga til þess Á báðum þeim stöðum eru skill yrði til mikillar kartöfluræktun- ar. Á báðum stöðunum er send- in jörð og þang og þari í fjörun- um í kring. Á hvorum staðnum fyrir sig mætti fá 50 dagsláttna land, eða meira, til þessarar rækt unar, og væri það svæði ræktað kæmu þaðan 2000 tunnur af kartöflum. Veitti ekki af báð- um þessum stöðum til þess að fullnægja þörfinni, og nægði ekki þótt báðir væru teknir. Tæki nú landið annanhvorn staðinn, gæti komið til mála að bærínn tæki hinn. Hafís varð við Horn er björg- unarskipið “Geir” fór þar um á norðurleið seint í síðastl. viku. fórst róðrarbátur úr Garðinum, er 3 menn vom á, kollsigldi á heimleið. Einn maðurinn komst af, var bjargað af báti, sem var skamt frá, en tveir druknuðu: porsteinn ívarsson og pórður pórðarson. í sama stórviðrinu fórst vél- bátur frá ísafirði, sem “Ingi” hét, undan Stigahlíð, en fnann- skaði mun ekki hafa orðið þar. Umsóknir um styrk til skálda og listamanna eiga að vera komn ar til stjómarráðsins fyrir 1. janúar næstk. 12,000 kr .verður úthlutað. » Gigtveiki. Fullkoniin lMximalækning-. Vorið 1883 fékk eg mjög illkynja*! vö*«va bólgu og gigt, eg þjft.S*ist stöCC ugt I þrjú ár. eins og þeir vita bezt. sem slíkan sjökdóm hafa. Eg reyndi hvert me*a*lið ft fætur öðru, og hvem læknirinn eftir annan, en batinn var ftvalt skammvinnur. Eoksins nftði eg 1 meððali* sem dugði, og slððan hefi eg aldrei orðið var við þennan ófögnuð. Eg rftðlagði fjölda af vinum mlnum að nota þennan læknisdóm, og allir lækn- uðuðst & svipstundu. Eftir að þö hefir notað meðalið, muntu viðuðrkenna það hið eina óyggjandi við gigt. í»ö getur sent einn dollar ef þö vilt. en þö skalt vlta, að við kærum okkur ekki um pen- ingana, nema þö sért fullkomlega ft- nægður. Annað væri rangt. — I>ví að þjftst lengur, * þegar ftreiðanleg læknia- hjftlp fæst kostnaðarlaust ? Dragðu það ekki á langinn. Skrifaðu strax í dag. MAKK H. JACKSON No. 458 D Gumey Bldg., Syracuse, N.T. Mr. Jackson er ftreiðanlegur. Ofan- ritað vottorð satt. -- ..... Williams & Lee Reiðhjól og bifhjóla stykki og á- höld. Allskonar viögerriir. Bifreiðar skoöariar og endurnýjað- ar. Skautar skerptir og búnir til eftir tnáli. Alt verk gert með sann- gjörnu veröi. f stórviðrinu í síðastl. viku 764 Sherbrooke St. Horni Hotre Dame

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.