Lögberg - 23.05.1918, Qupperneq 1
SPIERS-PARNELL BAKING CO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem verið
getur. REYNIÐ ÞA!
TALSlMI: Garry 2346 - WINNIPEG
Þetta pláss er til sölu
Talsímið
Garry 416 eða 41T
31. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 23. MAÍ 1918
NUMER 21
FRAKKLAND
Vestur-vígstöðyarnar
Síðan blað vort kom út síðast
hefir ekkert stórkostlegt borið
við á vigstöðvunum. pjóðverjar
hafa iítið eða ekkert hafst að,
verið að kanna lið sitt, fylla
skörðin stóru og mörgu, sem í
það komu við áhlaupin sem þeir
gerðu í marz og apríl. En þeim
hefir ekki orðið rótt samt, þvi
sameinaði herinn hefir gjört
fjölda mörg smá áhlaup á víg-
girðingar þeirra, einkum fyrir
austan og norðan bæinn Lecore
fyrir norðan Lys í norður Frakk-
landi, og vestur frá Kemmel, þar
sem fjandmennirnir hafa verið
reknir tvær mílur til baka, og eru
það einkum Frakkar, sem þessi
ahlaup hafa gjört, og hafa þeir
allstaðar unnið á. Einnig hafa
Ástralíumenn látið nokkuð til
sín taka og unnið á nálægt
Amiens.
Uppihaldslaus stórskotahríð
er nú svo að segja dag og nótt á
ýmsum svæðum á vesturvíg-
stöðvunum, og þykir það vera
forboði þess að stórkostleg at-
laga sé þar í vændum frá hendi
Pjóðverja.
BRETLAND
Svifferja yfir Englands sundið.
Síðan í febrúar síðastl. hafa
Bretar notað svifferju til þess að
flytja hermenn á milli Bretlands
og Frakklands. Áður notuðu
þeir skip, oð urðu talsverðar taf-
ir við að ferma og afferma skip-
4n. Nú er þessu breytt,
lestirnar fara nú rakleitt út
á 3vifferjuna, og hermennirn-
ir sitja í vögnum sínum þar til
beir koma _L höfuðborgirnar á
Frakklandi.
Pessar svifferjur, sem flytja
h.eiilar járnbrautalestir, eru taís-
vert notaðar í Bandaríkjunum.
Einna stórkostlegust er ferjan
sem gengur á milli Key West og
Havana. Ekki eru þær heldur
óþektar í Evrópu, því milli ítalíu
og Sikileyjar hefir ein gengið all-
lengi og einnig -er ein slík ferja
á Baikalvalninu í Síberíu, og er
einn hlekkur í Síberíu jámbraut-
arkerfinu.
Hin síðasta árás pjóðverja
með 'ioftbátum sínum á London,
var einhver sú skæðasta sem þeir
hafa gert. 30 loftskip heimsóttu
Breta og voru 5 þeirra skotin
niður. Skemdir urðu miklar á
íveruhúsum.
Bretar hafa nýlega tekið lög-
taki stórt gufuskip sem tilheyrði
Rússlandi og sem var 1 Montreal
í viðbót við 12 önnur tekin upp
i skuld, sem Rússar eru í við þá,
en sem Bolsheviki stjómin neit-
aði að borga, þegar hún komst
til valda. Hin teknu skip eru til
samans 130,000 ismálestir.
CANADA
Á fyrsta fjárhagsárinu lánaði
bændalánsdeild Manitoba fylkis
út $1,366,500.00 og nú lánar
þessi deild til bænda um $150,000
til þess að auka framleiðsluna,
sem allra mest.
Verzlun Canada var $3,000,-
000 minni í síðastliðnum apríl-
mánuði, heldur en hún var í apríl
1917. öll verzlun Canada fyrir
fyrsta mánuðinn á þessu yfir-
standandi f járhagsári var $151,-
318,149. í fyrra var verzlunin á
sama tíma $154,320,035.
Innfluttar vörur til Canada
síðastliðinn apríl vom að undan-
teknu mintuðu og ómintuðu gulli
og silfri $78,623,941. Útfluttu-
vörumar voru $71,161,652. f
fyrra voru aðfluttu vörumar
fyrir sama tíma $86,809,809,
en iþær innfluttu $$65,145,449.
Skattgildar vörur innfluttar í
apríl 1918 voru $44,593,023, en
skattfríar $34,030,918. Yfir
sama tímabil síðastl. ár voru
innfíuttar $44,786,638 virði af
skattekyldum vömm, en $42,-
021,171 af skattfríum. Skattur
innheiantaður síðastl. mánuð
$13,837,227. f fyrra var hann
$13,875,485.
útfluttar landbúnaðarafurðir
hafa verið miklu meiri í aprfl í
ár en þær voru í fyrra. f apríl
1918 vom þær $30,216,948, en í
apríl 1917 að eins $11,443,161.
En aftur var mismunúrinn á út-
fluttum verksmiðju iðnaði frá
Canada í apríl 1918 og í apríl
1917 mjög mikill. f apríl 1918
var flutt út af þeim vamingi að
eins $23,693,925, en í apríl 1917
$40,859,646.
BANDARIKIN
Carl Rodeger, sem einnig hef-
ir gengið undir nöfnunum Karl
Schrojers og Lieut. Commander
X, og sem haldið er að sé aðal-
njósnari pjóðverja 1 Bandaríkj-
unum hefir verið tekinn fastur í
New York.
1,200 konur og karlar, flest
meðlimir I.W.W. voru tekin á
fundi í Detroit nýlega. Fólki
þessu var gefið það að sök að það
væri hlynt pjóðverjum.
Hermálaskrifari Bandaríkj-
anna, Baker, biður hermála-
nefnd Bandaríkjanna að veita
$13,000,000,000 til stríðs þarfa
á næsta fjárhagsári, biður um
samþykki nefndarinnar til þess
að vera búinn að safna her, sem
nemi 3,000,000 í júlí 1919, og enn
fremur fer hann fram á það að
nefndin veiti Wilson forseta fult
vald til þess að kalla út eins
marga menn og með þarf — gefa
honum fult vald í þeim málum.
Járnbrautarstjóri McAdoo hef-
ir nýlega gjört samninga um
smíði á 100,000 flutningvögnum,
sem eiga að kosta $300,000,000.
Hermálanefnd Bandaríkjanna
hefir gjört eftirfylgjandi ráð-
stafanir gagnvart stríðinu á
komandi ári: Tala hermanna sé
aukin upp í 3,100,000. 2,170,000
eiga að vera vígbúnir fyrsta júlí.
Fjármálaveitingar alls $15-
000,000,000 af þeirri upphæð eru
$13,000,000,000 sem ganga eiga
til herkostnaðar, og er hinum
ýmsu deildum úthlutað þannig:
Storskotaliðið. ..$2,000,000,000
Forðadeildin .... 5,000,000,000
Storskota byssur 5,000,000,000
Flugvéladeildin . . 1,250,000,000
Véladeildin . . . . 1,200,000,000
Mr. Wolf Goldsmith, sonur
hans Samúel, Miss Gertrude
Schofield og Julius Steiger hafa
verið tekin föst og eru kærð fyr-
ir að selja togleður á óleyfilegan
bátt til Buenos Aires, sem þaðan
var sent til pýzkalands.
Vopnabúr sem bandaríkja-
stjómin átti í Wankegan, 111.
brunnu nýlega. Skaðinn metinn
á $1,000,000.
Undirtektir undir þriðja “Li-
berty” lán Bandaríkjanna eru
með afbrygðum góðar, síðasta
frétt segir að hátt á fjórðu bilj.
sé komið inn.
Nýlega fengu Bretar $75 milj.
lán hjé Bandaríkjunum, gjörir
það upphæð lánsins, sem Bretar
hafa fengið frá Bandaríkjunum
síðan stríðið hófst $2,795,000,000
Alls hafa Bandaríkin lánað sam-
herjum sínum $5,363,850,000.
Ákveðið hefir verið að hækka
vöru- og fólksflutningsgjald á
járnbrautum í Bandaríkjunum.
Vöruflutningsgjald um 25%, en
fólksflutningsgjald um 20%, svo
hér eftir verður fólksflutnings-
gjaldið í Bandaríkjunum 3c. á
hverja mílu, áður var það 2i/o
cent á míluna. Tekjuauki áætl-
aður við þessa hækkun vera
$900,000,000, áætlað er að einn
þriðji eða $300,000,000 af því
gangi til verkamanna járnbraut-
anna í launahækkun.
Fyrrum forseti Bandaríkj-
anna, Charles W. Fairbank, er
sagður hættulega veikur.
IRLAND
Mikil tíðindi og ill.
Á mánudagsmorguninn fluttu
dagblöðin hér í Winnipeg fyrstu
fregnirnar af stórkostlegu sam-
særi, sem verið var að brugga
á írlandi. — Eftir fréttunum að
dæma hafa hinir svo nefndu Sinn
Feiners, alræmdir uppvöðslu-
seggir verið að reyna að koma á
einhverskonar Ieynisambandi við
pjóðverja, að því er fjármál
snertir, og er sagt að auk þess
muni hafa verið í aðsígi tilraun-
ir, til þess að hjálpa pjóðverjum
í því að skjóta liði á land. En
hvort sem þessar sakir eru á-
byggilegar eða eigi, þá er hitt þó
víst, að verulega alvarlegar hafa
tiltektirnar verið, þar sem stjóm
in hefir látið taka fasta ekki
færri en 600 af forkólfum þessa
st j órnmálaf lokks.
Á meðal þeirra, sem í varðhald
hafa verið hneptir, má tölja alla
núverandi þingmenn flokksins,
og hina og aðra háttstandandi
embættismenn, er haft hafa á
hendi trúnaðarstörf í þarfir þjóð-
arinnar, svo áratugum skiftir.
Foringi Nationalistanna, Mr.
John Dillon, sá er við tók af Red-
mond, hefir hvorki mætt í þing-
inu né heldur nokkrir af fylgis-
mönnum hans um all-langa hríð,
heldur virðist svo sem hann á-
samt stuðningsmönnum sínum,
hafi gengið í bandalag við Sinn
Feiners flokkinn, til þess að
vinna á móti herskyldumálinu,
hvað sem öllu öðru liði.
petta írska tiltæki setur svart
an blett á sögu þjóðarinnar, og
getur sjálfsagt hefnt sín grimmi-
lega í framtíðinni.
pjóðin var rétt að segja að því
komin að fá það, sem hún lengi
hefir verið að berjast fyrir —
sjálfstjórn í öllum sínum málum.
Frumvax’pið var á leiðinni, vant-
aði að eins herzlumuninn. En
svo kom ógæfan, eins og skúr úr
heiðríku lofti. Skammsýnir,
politískir ofstopamenn, sýnast
að hafa verið á leiðinni með það.
að svíkja alríkið og ganga í lið
með óvinunum, þegar verst
gengdi, þegar það var að heyja-
mannréttinda baráttu þegna
sinna og allrar veraldarinnar,upp
á líf og dauða. —
Hvað verður nú um heimastjórn
írlands ?
pað ætlar að rætast á frum
máltækið gamla, um íslenzku
þjóðina, með því að skifta á
nöfnum landanna: að ógæfu fr-
lands verður alt að vopni.
hveiti heldur en reglugjörðin á-
kveður tilkynni það hið bráðasta
Hin breytingin er í því
innifalin að mönnum er gefið
leyfi til þess að halda hveitisekk
ef á honum er tekið, þó hann sé
þyngri en 25 pund.
Ekki hægt við að gjöra.
Umkvartanir hafa oss borist
út af því, að menn sem í bæinn
koma utan af landi,hafi verið
hart leiknir af lögreglu bæjarins,
— að það hafi komið fyrir að
menn hafi verið teknir og settir
í varðhald, án þess að hafa
nokkuð til saka unnið, annað en
það að líta of unglega út.
Á því stendur svo, að lögregl-
unni hefir verið falið að leita
uppi þá menn, hér í bænum, sem
á herskyldu aldri eru, og ekki
hafa gefið sig fram til herþjón-
ustu, og hefir hún auðsjáanlega
haldið að svo væri ástatt fyrir
þessum löndum, eða landa vor-
um sem tekinn var.
En við þessu verður ekki vel
gjört fyr en hin almenna skrá-
setning fer fram, sem væntan-
lega verður í næsta mánuði. pá
mun öllum þeim, sem undan eru
þegnir herþjónustu gefið merki,
eða viðurkenning, sem þeir geta
sýnt. í millitíðinni gætu þeir
menn, sem til bæjarins þurfa að
koma og eru innan þessa aldur-
takmarks; haft með sér einhver
skilríki, sem sýna hverjir þeir
eru, og hvar þeir eiga heima.
samhug sinn með sambands-
þjóðunum, og hrópað ámaðaróp
fyrir Wilson forseta, Lloyd
George og Clemenqeau.
pjóðverjar ræna og rupla öllu
ætilegu hver sem því verður við-
komið, og láta greipar sópa um
híbýli manna — taka seinasta bit
ann frá munni bama og kvenna.
óhugur Bæheimsmanna gegn
hinum takmarkalausa yfirgangi
pjóðverja, hefir magnast svo
mjög í seinni tíð, að sagt er að
þeir reyni heldur nú orðið að
brenna matvælin en láta þau
verða þjóðverjum að bráð.
Stórkostlegt verkfall í Winnipeg.
ITALIA
ítalía hefir sent 250,000 her-
inenn til vesturvígstöðvanna.
Slavar og Sekkar hafa sent
um 16,000 menn til þess að berj-
ast með ítölum, á móti Austur-
ríkismönnum.
Fréttir frá ítalíu segja viðbún-
að mikinn áf hálfu Austurríkis-
manna á suður vígstöðvunum,
Karl Austurríkis keisari kvað
vera kominn þangað með sínu
föruneyti, og ætla menn að stór-
orusta sé þar í aðsígi.
Um síSastliöna helgi geröu Austur-
ríki'smenn hvert áhlaupiö eftir ann-
aö á vígstöðvar ítaliumanna í fjöll-
unum vestur viö Bienta, en ítalir tóku
mannlega á móti og ráku óvinina af
höndum sér og tóku allmargt fanga.
Á aðfaranótt sunnudagsins geröu
Aii'sturrikismenn atlögu mikla í Sotto
Castello héraðinu, en þar fengu þeir
útreið þaðan af verri, og mistu í at-
rennu þeirri 11 loftför. Svo litur út,
sem Italíumönnum veiti alment betur,
i viðskift.um við Austurríkismenn, upp
á síðkastið.
Rússland.
VERKFALLI MÓTMÆLT.
Verkamanna samlm :d Ameríku
mótmælir samhygðar-verkfalli.
. All-ískyggilegt verkfall stend-
ur yfir í borginni um þessar
mundir; hafa fullar 10 þúsundir
manns hætt vinnu þegar síðast
fréttist og útlít fyrir að fleiri
bætist í hópinn. Á meðal þeirra,
sem lagt hafa niður vinnu má
telja starfsmenn raftækja, öku-
menn, vatnsveitumenn, slökkvi-
liðsmenn, talsíma-stúlkur, verka
menn á verkstæðum hinna ýmsu
járnbrautafélaga, og vélastjórar
Auk þess taka þátt í verkfallinu
starfsmenn strætisvagnafélags-
ins, um eitt þúsund að tölu.
Fjöldi fólks mun hafa orðið að
ganga langar leiðir til vinnu
sinnar í gærmorgun, því þá hófst
verkfall strætisvagna þjónanna.
var þó mikið gert til þess að
bæta úr samgönguleysinu, með
því að einstakir menn og vei*zl-
unarfólög léðu bifreiðar sínar til
almenningsnota, án endurgjalds.
Er gizkað á að T. Eatons félagið
eitt út af fyrir sig, hafi lagt fram
1000 bifreiðir, mannaðar til fólks
flutnings.
Verzlunarfundur
Norðurlanda 1917.
Mr. Marsden G. Scott forseti
alþjóða - prentara sambandins,
sendi út eftirfylgjandi yfirlýs-
ingu á þriðjudagskveldið:
> “Framkvæmdarnefnd alþjóða
prentara sambandsins, hefir al-
drei viðurkent og mun ekki við-
urkenna að meðlimir No. 191,
skuli taka þátt í samhygðar-verk
falli (Sympathetic Strike). pessi
ályktun gildir í eitt skifti fyrir
öll, og verða því engir fulltrúar
sendir af vorri hálfu til Winni-
peg í því skyni að rannsaka mál-
ið þar.
Ameríska verkmannasamband-
ið hefir hvað eftir annað mót-
mælt samhygðar-verkfalls að-
ferðinni, og hið sama hefir al-
þjóða samband prentara einnig
gert, og ef að því meðlimir No.
191, fyrirskipa ólöglegt verkfall,
þá mótmælir framkvæmdarnefnd
in þeirri aðferð tafarlaust”.
\rerz 1 unar£undur Noröurlanrla var
haldinn í Stokkhólmi þann 14. og 15.
september f. á. Fór fundurinn fram
í hátíöasal efrimálstofu rikisþingsins.
Höfðu fulltrúastofnanir verzlunar-
stéttarinnar \ hverju landi fyrir sig
kosiö sérstaka fulltrúa til þess aö
mæta á fundinum. Danir og Norö-
menn sendu hvorir um sig 25 full-
trúa á fundinn, en fyrir hönd Svia
mættu 23 fulltrúar. Fundarstjóri var
kosinn bankastjóri Wallenberg frá
Stokkhólmi, en varafundarstjórar Alf
Bjercke stórkaupmaöur frá Kris-
tjaniu og bankastjóri C. C. Clausen
frá Kaupmannahöfn.
Fyrsta máliö á dagskrá var sam-
vinna milli Norðurlanda í verslun og
viSskiftum. Inngangsfyrirlestra um
máliö héldu þeir prófessorarnir Heck-
scher /sænskur). Morgenstierne
(norskur) og þjóöþingsmaöur Scho-
velin (danskur). Voru allir ræöu-
mennirnir sammála um það, aö mjög
æskilegt væri aö nánari samvinna i
atvinnumálum ætti sér staö milli
landanna. Prófessor Morgenstierne
lét í ljósi, aö þar sem aðeins væru ó-
fullkotnin gögn fvrir hendi. þá vildi
hann aö eigi væri fariö lengra en aö
rannsaka hvaöa fyrirkomulag yrði
heppilegast á væntanlegri samvinnu
og sambandi. Hann benti á hina af-
armiklu þýöingu, sem þaö mundi hafa
fyrir iönaö Noröurlanda, aö hann
fengi sameiginlegan markaö, meö um
11 milj. manns (þ. e. samanlögö íbúa-
tala Danmerkur, Noregs og Svíþjóö-
ar). Hann áleit ennfremur, aö ef
ekki yröi úr beinu tollsambandi, þá
mundu núverandi verzlunarsamning-
ar ríkjanna valda erfiöleikum. Próf.
Heckscher var hlyntur tollivilnunum
rnilli landanna, en áleit aö hvert ríki
fvrir sig yröi aö luia þannig um sig,
aö þaö gæti hagað verzlun sinni eftir
vild. Pjóðþingsmaöur Schovelin
áleit tollsamband bráönauösynlegt.
Hann geröi ráð fyrir aö eftir ófrið-
inn mundi alt Bretaveldi mynda meö
sér tollsamband, og ráðstafanir í svip-
aöa átt myndti veröa ofan á hjá mið-
veldunum. Þess vegna væri um aö
gera fyrir Norðurlönd að standa fast
saman. en ekki eyöa kröftunum i ó-
þarfa innbyrðis samkepni. Út af
málinu var samþykt ályktun á þessa
leiö: “Með þaö fyrir augum, hvílíka
erfiöleika og hættur framtíöin kann
aö bera í skauti sínu fyrir verzlun og
viöskifti Norð.urlanda, þá er þaö álit
verzlunarfundarins að þaö sé einkar
áríöandi, að stjórnarvöld landanna
láti fara fram rannsókn á því, hvaöa
leiðir eru færar til þess, meö innbyrð-
is samvinnu, aö styrkja verzlunarað-
stööu landanna út á við. ÞaÖ er enn-
fremur álit fundarins, aö jafnhliöa
þvi að safnað sé og unnið úr skýrsl-
um um innbyrðis v’erzlunarviöskifti
Noröurlanda, á sama hátt og áöur
hefir veriö gert. skuli einnig, meö
þetta fyrir augum, fara fram ítarleg
rannsókn í hverjtl1 landi fyrir sig.
Við rannsókn þessa ber fyrst og
fremst aö notfæra sér þá praktisku
sérþekkingu á sviöi viðskiftalífsins,
er náð veröur til. Undir árangrinum
af rannsóknum þessum er það komið
hverjar frekari aögerðir veröa í
málinu.”
Annað mál á dagskrá var aukin
sameiginlcg löggjöf fyrir Norðurlönd
á sviði verslunarréttarins. 1 íundar-
ályktun þeirri er gerð var um málið,
var sérstaklega bent á, að æskileg
væri sameiginleg endurskoðun á 1 sjó-
lögunum, einkum í því skyni að kom-
iö sé á hentugum reglum um ábvrgð á
flutningsvörum.
Þriðja mál á dagskrá var þaö,
hvort Norðurlönd ættu, í löggjöf
sinni um cinkaleyfi til atvinmirekst-
urs, að veita livort öðru ívifnanir. 1
fundarályktun um málið var meöal
annars tekiö fram að æskilegt væri,
þegar um stórfyrirtæki er aö ræöa og
nægilegt fé fæst eigi til þess innan-
lands, aö þá sé reynt aö ná sem mestu
af fénu innan Norðurlanda.
Fjórða mál á dagskrá var endur-
skoöun á myntasambandi Norðurlanda
Um þaö mál urðu allmiklar umræöur
og í ályktun sinni lét fundurinn þaö
álit sitt í Ijósi aö myntasambandiö
hefði verið til mikils gagns fyrir t
Noröurlönd og að það bæri framvegis
aö byggja á sama grundvelli.
Ákveðiö var að næsti fulltrúafund-
ur skyldi haldinn í Kaupmannahöfn,
en fundartíminn var ekki fastákveð-
inn. )
—Verilunartíðindi
Verzlun Bandaríkjanna
1916-17
Komiloff mssneski hershöfð-
inginn nafnkunni, er sagður fall-
inn, hafði særst í orustu nálægt
Yekaterinodar, og dó úr þeim
5. þ. m.
Tyrkland.
Tyrkneskir hermenn í Litlu-
Asíu hafa gert upphlaup. Yfir
2,000 er talið að hafa tekið þátt
í því. Einnig eru margir þeirra
sem gæta hafnarbæjanna að
hlaupa undan merkjum Tyrkja.
Úr bænum.
Ráðherra Thos. H. Johnson, sem
staddur var suður i Bandaríkjum
þegar verkfallið hófst. er kominn til
baka.
Breyting á vistareglugjörðinni.
Sú breyting hefir verið gjörð
á ákvæði vistarstjórans að ef
bændur hafa á heimili sínu meira
hveiti en vistareglugjörðin á-
kveður, þá þurfi þeir ekki að
skila því aftur, heldur er þeim
uppálagt að tilkyrma kaupmanni
þeim, sem þeir keyptu hveitið af
hvað mikið þeir hafi undir hönd-
um, og ef þeir geta ekki náð til
þess kaupmanns, eða vita ekki
hvar hann er, þá eiga þeir að til-
kynna mylnueigandanum, þar
sem hveitið var malað, en nafn
hans eða mylnunnar er æfinlega
á pokunum, svo að hann eða kaup
maðurinn að vera búnir að til-
kynna vistastjóranum þetta,
ekki seinna en 15. júní næstk.
Er því áríðandi að íslenzkir bænd
ur, sem kynnu að hafa meira
Forstööumenn veitingahúsa hér í
bænum hafa beðið vistastjórann aö
gefa leyfi sitt til þess aö kv'eldverðar
tíma á matsöluhúsum bæjarins verði
breytt. Hinn vanalegi kveldveröar-
tími hér er frá kl. 6—9. Farið er
fram á aö hann verði frá kl. 5.30 til
8.30.
Lystiferð til Shoal Lake.
Á morgun, 24. maí, sem er helgi-
dagur, ætlar stjórn vatnsveitu borg-
arinnar aö láta járnbrautarlest ganga
til Shoal Lake. Allir þeir, sem vilja
sjá þetta mikla verk, sem bærinn er
aö láta gjöra, og eins hið fyrirhugaöa
vatnsból Winnipeg borgar, gefst kost-
ur á því á morgun.
Höi-mungarástand í Bæheimi.
MINNI
Eftir síðustu fregnum að
dæma frá Bæheimi, er ástandið
þar farið að verða lítt þolandi,
eins og tíðkast hefir, hvar sem
þýzkarinn hefir komið við bol-
magni sínu. Höfuðborgin Per-
gue, hefir verið sett í herkví af
Pjóðverjum því íbúar hennar
hafa opinberlega látið í ljósi
U
Kvennfélags Fyrsta lút. safn. í Winnipeg.
Flutt í kirkju safnaðarins 15. nóv. 1901.
Heiðruðu herrar og frúr,
vor háttvirti gestanna skari,
með íslenzkum óði og söng
yður vér heilsum í kvöld!
íslenzkan efst skal á bekk
í öndvegissætinu vera
hvar sem að “landamir” Ijóð
lesa hér samkomum á.
Ungum sem öldnum er skömm
álfu þótt nýja þeir byggi,
feðranna túngu og trú
týna í erlendum glaum.
“ó þér unglinga fjöld
“og fslands fullorðnu synir”,
glatið ei gimsteini þeim
er gaf yður Snæland í arf.
Félagi erum við í,
sem ástundar kristið að vera,
eflandi alt sem er gott,
enn þótt í veikleika sé.
Lítið á alt það sem er
oss umhverfis kristnin að vinna
eldheitum áhuga með,
aldrei sem þverrar né dvín.
Andlegum býtir hún auð,
uppreisir kirkjur og skóla,
læknar sorgmæddra sár,
sáandi lífsfi-æi’ á jörð;
öldruðum uppbyggir hæli
og uppeldi kristilegt veitir
barni, sem engan á að
og aumingi er munaðarlaus;
sjúkrahús setur á stofn,
og sendir út menn til að boða
‘heiðingjum hnöttinn um kring
’ið heilaga guðdómsins orð.
Látum oss vera það Ijúft
að leggja fi-am skerf vorn og styrkja
einnig á ókomnri tíð
alt þetta blessunarstarf.
Verum því vakandi æ
og vinnandi meðan er dagur,
senn dettur svartnættið á
svo að ei starfað fær neinn.
Yður vér óskum alls góðs
og allir að heim til sín snúi
glaðir og hressir í hug
heimboð vort þiggjandi næst.
H. S. Blöndal.
Q
Fjárhagsárið 31. júlí 1916—
30. júní 1917 nam vöruinnflutn-
ingur og útflutningur Banda-
ríkjanna alls 8,953 milj. doll. par
af var innflutningurinn 2,659
milj. doll. og útflutningurinn
6,293 milj. doll. og silfur, fyrir 35
milj. doll. Að því er snertir sjálfa
vöruverzlunina, þá nam útflutn-
ingurinn 470 milj. doll. meiru en
innflutningurinn árið 1914, 1,094
milj. 1915, 2,135 milj 1916 og
loks 3,635 milj. 1917. Eins og
sést á þessu hefir mismunurinn
aukist stöðugt og allar líkur til
þess að árið 1918 muni mismun-
urinn aukast enn meir.
pegar miðað er við árið 1914,
þá hefir innflutningurinn vaxið
um 766 mflj. doll. par af stafa
477 milj. frá hrávöru til iðnaðar,
156 milj. frá hálfunnum vörum
og 115 milj. frá hálf eða heilunn-
um matvörum. Vöxturinn staf-
ar meira af hækkuðu verði en
auknu vörumagni. pannig jókst
baðmullar innflutningurinn úr
123 milj. pd. upp í 147 milj pd.
eða um 20%, en verðmagnið
hækkaði úr 19 mflj. doll. upp í
40 milj. doll. eða yfir 100%.
Sama máli er að gegna um út-
fluttu vörumar. Jafnvel þótt
vörumagn aðal-útflutningsvara
anna hafi aukist mjög mikið, þá
orsakast hækkun á verðupphæð-
inni einnig af hinni’ almennu
vöruverðhækkun. T. d. var hveiti
í maí 1914 98 cent, en 2.58 doll.
í maí 1917, og samsvarandi tölur
fyrir mais voru 76 cent 1914 og
1.52 doll. 1917.
—V erzlunartíðindi
Fermingarböm
í Fyrstu lút. kirkju á hvítasunnu
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
23.
24.
Stúlkur:
Aðalbjörg Stefanía Árnason
Elizabet Eggertína Sigur-
jónsson.
Gróa Sigríður Johnson.
Guðný Salóme Backman.
Jóhanna Sæunn Jóhannes-
son.
Jónína Aurora Bergmann.
Magnea Ágústa Einarsson.
Marion Ethel Elding.
Sylvia Lenore Hall.
puríður Lindal.
Drengir:
Alexander Amþór Johnson.
Ásgeir J. Jakobsson.
Carl Oscar Preece.
Conrad Edward Joseph.
Friðrik W. Magnússon.
John Wilfrid Swanson.
Jón Kristján Julíus.
Jörgen Johann Kröyer.
Jóhann Davíðsson.
Magnús Stephensen.
Sigurður P. J. Jakobsson.
Theodore Westman.
pórarinn Sigurður Melsted.
George Theodore O’Hara
(fermdur 5. maí).