Lögberg - 23.05.1918, Síða 4

Lögberg - 23.05.1918, Síða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 23. MAí 1918 »5S Bjartsýni og bölsýni. Aldrei er náttúran eins fögur, og þegar loftið er bjart og heiðskýrt, og sólin sendir yl- geisla sína yfir láð og lög, vermandi og lífgandi alt sem lifað getur. Og aldrei er hún heldur eins döpur, og þegar þoku-skýin fylla loftið og byrgja útsjónina. Skýin, sem að vísu geta haft að geyma daggarperlur blómanna, en aftur á móti geta haft í sér fólgin haglél vetrarins og storraa eyðileggingarinnar. Því þráum vér allir sumarið í náttúrunni, að þá vekur sólin, — sumarsólin bjarta og hlýja, alla náttúruna til nýs lífs, nýs þroska, nýrra verka. Þannig höfum vér lært að hugsa um sum- artíðina í náttúrunni,—þannig höfum vér lært að þekkja náttúrulögin. En hafa menn veitt því eftirtekt, að í lífi mannanna eru líka árstíðaskifti? Hafa menn hugsað um það, að sumarið í lífi mannanna er bjartsýnið, og að bölsýnið er veturinn. Það er bjartsýnið, sem kemur æskumann- inum til þess að líta björtum vonaraugum á lífið, sem vekur honum lífsgleði og lífsþrótt, sem ekkert fær bugað, nema bölsýnin ein. Það er bjartsýnið, sem gefur hverri ein- ustu fagurri hugsjón lífsins byr undir báða vængi; en það er bölsýnið, sein amar. Það er bjartsýnið, sem gefur mönnunum þrótt til þess, að berjast á móti og yfirstíga torfærur lífsins, — gjörir lífið sjálft svo bjart að skuggamyndir þess skríða saman, og myndu alveg hverfa, ef að bölsýnismennimir væru ekki altaf að kasta skuggum sínum, og hreyta hinum járnköldu éljum inn á brautir mannanna. Allstaðar, þar sem fagurt og þróttmikið líf er, þar ríkir bjartsýnið með von sína, bendandi áfram og upp á við, með kraftana ólamaða til þess að fylgja henni. — Með lífsgleðina fölskva- lausa, til þess að njóta lífsins gæða, eins og þau geta verið, og í rauninni eru, þegar blæja böl- sýnisins ekki skyggir á þau, eða breiðir sig yfir þau, eins og köld og nístandi vetrar þoka. Hugsum okkur, að skuggamyndir lífsins yrðu allar bjartar. Hugsum okkur, að það ljóta og svarta í hugsun mannanna hyrfi. Hugsum okkur að öll nístandi kulda-yrðin, sem vér hreytum hver að öðrum, væru vermd og upplýst af sól bjartsýninnar. Hugsum okkur að lífsgleðin og bjartsýnið fengju að fylla hugi þeirra, sem daprir eru; hjörtu þeirra, sem sorgin bugar, og næði að skína inn í líf þeirra, sem bölsýnið þjakar. Hví- lík breyting mundi það ekki verða á mannlífinu! Mundi það þá ekki verða bjartara, hreinna og sterkara, en það er nú? Látum oss leggja rækt við bjartsýnið. Það er hið ágætasta veganesti mannanna í lífinu á öllum tímum og undir öllum kringumstæðum. En ekki sízt nú, þar sem böl mannanna er meira og þyngra en orð fá lýst. Ef til vill finst mönnum það vera út í hött, og ef til vill ófyrirgefanlegt, að tala nú um bjartsýni, þegar heimurinn er fullur af angist og neyð. En svo er þó ekki. Það,.hvernig nú er komið í heiminum, sýnir einmitt hryggi- lega ljóst, hvar lendir, þegar að ísa-þoka böls og bölsýnis, fær að vef ja sig utan um hugsjónir og sálarlíf mannanna, svo að þangað komist ekki inn geislar mannúðar eða bjartsýnis. Það er einmitt þá, sem þarf að tala bjartsýnishug- sjónirnar inn í líf allra manna. Það er einmitt þá, þegar sorgin blý-þung og dimm eins og nótt- in, grúfir yfir bygðum manna, sökum þess að bjartsýnin hefir verið fótum troðin, og lífsgleð- in særð holundar sári, að þörf er að minna menn á hana. Látum pss þá sí og æ hafa ljósu hliðar lífs- ins fyrir augum vorum, og líka á þessum rauna tímum. Verkfallið. Það heldur enn áfram og fer vaxandi. Með þeim sem fyrst gjörðu verkfall hefir nú tekið í strenginn, félag stúlknanna, sem vinna við tal- síma bæjarins og slökkviliðsmennirnir, og hafa mörg önnur félög ákveðið að gjöra verkfall, ef ekki takist samningar bráðlega. Og er útlit fvrir, eins og nú standa sakir, að öll verka- mannafélög bæjarins muni komast í þetta verk- fall, og ef til vill, já, meira segja er mjög lík- legt, ef ekki verður bót ráðin á þessu, að þá breiðist verkfall þetta út, yfir alt þetta land, og að alt lendi hér í heljar greipum áður en menn vita af. Þetta verkfall, eins og öll önnur verkföll, er í fylzta máta sorglegt — sorglegt fyrir þá, sem líða fyrir það. Þetta verkfall, eins og öll önnur verkföll, er tap — tap fyrir verkamenn- ina, sem látið hafa af vinnunni, tap fyrir at- vinnuvegina, sem þeir unnu við, og tap fyrir þjóðfélagsheildina. Hvernig stendur þá á því, að þetta þarf að koma fyrir? Hvernig stendur á því, að þetta skuli koma fyrir, einmitt nú, þegar þetta mann- félag er í dauðans hættu statt, og þessi þjóð er að berjast fyrir tilverurétti sínum upp á líf og dauða. Það er af því, að sjóndeildarhringur, bæði verkamannanna og vinnuveitendanna er of þröngur. Af því að þeir hugsa meira um sinn persónulega hag á þessum yfirstandandi tímum, heldur en um framtíðarhag þessarar þjóðar. Af því að fórnar tilfinningin hjá báðum er ó- skýrari, heldur en þæginda kröfur hins daglega lífs. Fjarri sé það oss þó, að vilja neita verka- mönnum eða nokkrum manni um daglegar nauð- synjar — um sómasamlega lífsframfærslu fyrir sig og sína; því það væri að neita mönnum um tilverurétt. Þjóðfélagið þarf að veita borgur- um sínum þann rétt, ekki með hangandi hendi— ekki með nauðung, heldur af frjálsum vilja og með einlægni, að svo miklu leyti sem það getur. En í þessu ttlfelli/ hefir þetta ekki verið gjört — hefir ekkl tekist, af því að hugsunar- háttur beggja málsaðila hefir verið beiskju blandinn. Það bróðurþel, sem þarf að liggja til grundvallar, þegar um svona mál er að ræða, hefir ekki verið til staðar. Það hefir borið meira á beiskju hjá báðum þessum málsaðilum, \*ér mættum segja öllum þessum málsaðilum, en á bróðurkærleik. Og svo hafa þeir menn, og líka þau málgögn, sem málið hafa tekið til með- ferðar, blásið að ófriðareldinum, í staðinn fyrir að reyna að slökkva hann — hafa æst tilfinning- ar manna á báðar hliðar, og er slíkt ekki aðeins illa farið, heldur beinlínis illa gjört. Þessi eldur, sem nú brennur hér í Winni- peg, er nógu ljótur og nógu illkynjaður, þótt menn leiki sér ekki að því að æsa hann. Væri ekki nær, að reyna til þess að slökkva hann — er ekki sjálfsagt að reyna að slökkva hann, áður en hann læsir sig um alt landið? Er það ekki blátt áfram sjálfsagt fyrir bæjarstjómina og þessa verkamenn hennar, að koma saman og reyna að jafna þessar sakir—reyna að komast að niðurstöðu, sem báðir málspartar geta unað við. Jú, vissulega, og það án tafar; því óhætt er að fullyrða að í þessu máli sé potturinn brotinn hjá báðum, — eins og nú er komið, er það eina ráðið. Að láta þetta halda áfram eins og það er nú, og eins og áhorfist, er brjálæði. Um rétt manna til þess að gjöra þetta uppi- stand, hefir verið deilt og má kannske deila, því það má deila um alt, þegar menn vilja. En óneitanlega virðist vera mótsögn í því, að senda hermenn vora til þess að berjast fyrir frelsis- hugsjónum vorum, en veita svo málum fjand- mannanna lið heima fyrir. Gildi sönglistarinnar. Dr. Anna Howard Shaw, ein af frægustu konum Bandaríkjanna, er um undanfarin ár hefir staðið mjög framarlega í kvenréttinda baráttunni, á meðal þjóðar sinnar, og skipar forsæti í landvarnarnefnd kvenna (Council of National Defence), fer mjög fögrum orðum um gildi sönglistarinnar á yfirstandandi hættutím- um: ‘ ‘ Samfélagslífið og þjóðræknis-starfsemin gætu ekki beðið nokkurt stærra tjón en það, ef að tilsögn í sönglist og söngraddarnotkun félli r.iður. Vald það, sem sönglistin hefir á þjóðfélag- ið á tímum hörmunganna, er óútreiknanlegt. Vér getum sungið oss frjáls, ef allar aðrar leiðir lokast. — Hermenn vorir, þreyttir og þjakaðir, syngja á eyðimerkur-göngunni, þjóðsöngva sína til við- halds hugrekkinu, og voninni. — En hvort mundum eigi vér, sem heima sitj- um, þarfnast sömu uppörvunarinnar, til þess að geta leyst af hendi vom skerf, í því að vinna stríðið? Hefir sönglistin sama gildi fyrir oss, sjálf, eins og hún hefir á hugi hermanna vorra á orustuvöllum Norðurálfunnar ? Eg vildi óska að hver einasti bær, hver einasta borg, hefði einhverskonar sönglistar-miðstöð, þar sem fólk gæti komið saman á degi hverjum, þótt eigi væri nema stutta stund, til sameiginlegra söng- iðkana. 1 öllum barna og unglingaskólum, ætti söng- náminu að vera skipað á bekk með hinum allra göfugustu þjóðræknisskyldum. Sönglistin hefir ómælanlegt ménningar- gildi!” Thor Lange 1850—1915 Norræna langspilsins blíðhreimur blíðasti blundar í grafþöglum kór, — kliðmjúku ljóðanna svanurinn síðasti syngjandi’ á blávegu fór. Ómurinn dulrænn frá austrænu heiðunum, andaði’ á strengleiknum hans, vorhlýr, sem blær yfir laufgrónum leiðunum, léttur sem blómálfa dans. Ljóðperlur sléttunnar látlausu bamanna las hann og þjóð sinni gaf, — greyptar í ljóðgull hans, lengst upp til ljóma þær norður um haf. [stjamanna Alt af í hreinleika skærara, skærara skína þær glöggvar eg sá. Alt af varð skáldið mér kærara, kærara, — kærast í minning og þrá. Bjart er um aðalsmann andans á þinginu útvaldra snillinga ljóðs.--- Angurvær þröstur í íslenzku ljmginu árnar þér framliðnum góðs! Guðm. Guðmundsson. Bréf frá fyrverandi Rússakeisara Menn liafa mjög efast um það, hvort að Nikulás fyrverandi Rússakeisari hafi verið samherjum sínum einlægur, eða hvort hann hafi verið í leynilegu sambandi við Þjóðverja. Bréf það, sem hér fer á eftir frá keisaranum til Poincare forseta, virðist taka af öll tvímæli í því efni. Bréf þetta var skrifað upa vorið 1916 og hljóðar svo: “Kæri háttvirti vinur! Nú þegar samband Frakklands og Rússlands er nánara en það hefir nokkru sinni áður verið, í baráttunni, þar sem þau standa hlið við hlið ásamt samherjum sínum, þá hefir það verið mér hin mesta ánægja að taka á móti sendimönnum Frakk- lands. Mér þótti vænt um að hafa tækifæri til þess að kynnast M. Viviani á ný, sem eg hafði þá ánægju að kynnast er við hittumst síðast, og dettur mér í hug samtal okkar þá, sem var að vinna að framförum landa okkar af alúð og einlægni. Við vissum þá ekki, að fjandmenn- irnir voru að búa sig undir þetta stríð—vissum þá ekki, að þeir mundu hrinda Evrópu lit í blóðugt stríð, í von um að geta orðið yfirdrotn- arar heimsins. Mér var einnig hin mesta ánægja í því að kynnast M. Albert Thomas, skotfæraráðherra Frakklands, sem með sínum ágætu hæfileikum hefir gjört svo mikið fyrir oss og alla samherja vora. Mér hefir ávalt verið það mikið áhugamál, að samvinna milli þessara tveggja ríkja, Frakklands og Rússlands, geti verið hin bezta. En mér er það ekki sízt nú, þar sem vér höfum fastákveðið allir samherjar að skerast aldrei úr leik né leggja niður vopn, þar til vér gjörum það í sameiningu, eftir unninn sigur. Slíkt áform gjörir samvinnu vor á meðal enn þá nauðsynlegri, til þess að vér getum enn betur notið vorra sameiginlegu krafta í þarfir þeirrar hugsjónar. Og það er víst engum efa bundið, að hverri og einni af sambandsþjóðum vorum er það áhugamál, meira að segja eina áhugamálið, að leggja alt sitt fram, áhugamálinu eina til sigurs. Það er með þessum óbifanlega ásetningi að stjórn mín og herforingjar, hafa í sambandi við sendinefnd frönsku stjórnarinnar athugað á hvern hátt vér mættum verða samherjum vorum að sem mestu liði. Það er þess vegna von mín að M. Viviani og M. Thomas fari héðan saun- færðir um það, að hvað Rússlandi við kemur, þá verði ekkert sparað að málefni samherja vorra megi bera sigur úr býtum, og það sem fyrst. Mín heitasta ósk er sú að vér fá- um unnið fullkominn og farsælan sigur, sem allra fyrst. Og svo á eg aðeins eftir að láta í Ijósi aðdáun mína út af vörn frönsku hermann- anna við Verdun. Frakkar hafa þar enn einu sinni unnið sér, og sinni þjóð frægð, sem aldrei deyr. ’ ’ Bamafæðingum fækkar í Ungverjalandi, ___ • 1 ungverska þinginu gaf Lodovico Hallo þingmaður þessa skýrslu 16. janúar síðastl.: Aður en stríðið byrjaði fæddust árlega á Ungverjalandi 765,000 börn; árið 1914, sem var fyrsta stríðsárið, fækkaði barnafæðingum um 18,000. 1915 fæddust aðeins 481.000 börn, og eru það 284,000 færra en á friðartímum. 1916 fæddust 333,000, það er 432,000 færra en fyrir stríðið. Arið 1917 fa:ddust 328,000, og er þá afturförin orðin 438,000. Og hefir fólki þar því á þennan hátt fækkað um 1,172,866. Dauðs- föll, sem voru 34%, sjö næstu árin á undan stríðinu, voru komin upp í 48% 1915, og upp í 50% 1916. Þetta sýnir hve blóðtakan í Ungverjalandi <*r gífurleg, og hvað það fólk má líða fyrir valda fíkn Þjóðverja. Gefið út hvern Fimtudag af The Cel- umbia Ptess, Ltd.,|Cor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. TALSIMI: GAKRY 416 og 417 Jón J. Bfldfell, Editor J. J. Vopni, Business Manager Ijtanáskrift til blaðsin*: THE B01UMBIA PRESS, Ltd., Box 3172, Winniptg. Utaná*krift ritstjórans: EDIT0R L0CBERC, Box 3172 Winnipog, Ran. VERÐ BLAÐSINS: B2.00 um áriB. •^»»27 THEDOMINIONBANK | SIR EDMUND B. OSLER, W. D. MATTHEWS, | President. Vice-President. Hagsýni hjálpar til að vinna stríðið. j Byrjið sparisjóðs reikning og bætið við hann reglulega | Notre Dame Branch—YV. M. HAMII/TON, Manager. Selkirk Branch—F. J. MANNING, Manager. NORTHERN CROWN BANK Hófuðstóll löggiltur $6,000,000 HöfuSstólI greiddur $1,431,200 Varasjóðu......$ 920,202 President.................Capt. WM. ROBINSON Vlce-President - * JOHN STOVED Slr D. C CAMERON, K.C.M.G. YV. R. BAWI.F E. F. HUTCÍn NGS, A. McTAVISH CAMPBEIrLi, GEO. FISHEB Allskonar bankastörf afgreidd. Vér byrjum reikninga vlB elnstakllnga eða félög og sanngjarnir skilmá.lar velttir. Avlsanir seldar tll hvaCa staðar sem er 4 Islandl. Sérstakur gaumur geflnn sparirjóðslnnlögum, sem byrja má meB 1 dollar. Rentur lagBar viB & hverjum • mAnuBum. T* E. THORSTEIN9SON, Ráðsmaður Co Williass Ave. og SKerbrooke St., Winnipeg, Man. Búpeningur í fardögum 1916. * Sauðfénaður Samkvæmt búnaðarskýrslunum fyrir árið 1916 var tala sauð- fénaðar í fardögum það ár rúml. 589 þús. Er það 33 þúsundum fleira heldur en vorið áður, en 4 þúsundum fleira heldur en vorið 1914. Fjölgun fénaðarins 1915—16 hefir því heldur meira en vegið upp á móti fækkuninni árið á undan (1914—15). En vorið 1913 var fénaðurinn talinn 635 þúsund, svo að 1913—14 hefir honum fækkað um 46 þús., en vorið 1913 náði sauðfénaður hæstri tölu. Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvemig sauðfénaðurinn skiftist vorið 1916 samanborið við vorið á undan. 1915 1916 Fjölgun Ær með lömbum............ 329,213 325,562 ~ 1% Geldar ær ................. 68,555 79,712 16— Sauðir og hrútar........... 54,749 44,177 -4-19— Gemlingar ................ 103,454 139,892 35— Sauðfénaður alls .... 555,971 589,343 6% Aðallega hefir gemlingunum fjölgað. Ærnar hafa líka fjölgað um 7 þúsund eða tæplega 2%, en óvenjulega margar af þeim hafa verið geldar (um k af öllum ánum). Aftur á móti hefir sauðum og hrútum fækkað töluvert. f eftirfarandi yfirliti má sjá fjölgun sauðfénaðarins í hverjum landsfjórðungi. 1915 1916 Fjölgun Suðurlandi ............... 145,110 161,005 11% Vesturland ................ 106,306 126,265 19-— Norðurland ................ 193,251 193,932 0— Austurland .................111,304 108,141 -4- 8— pað er aðeins á Vestur- og Suðurlandi, sem sauðfénu hefir verulega fjölgað. Á Norðurlandi hefir það hér um bil staðið í stað 0g heldur fækkað á Austurlandi. Nautgripir. f fardögum 1916 töldust nautgripir á öllu landino 26,176, en árið áður 24,732. Hefir þeim þá fjölgað um 1,444 eða um 6%. Af nautgripunum voru: 1915 1916 Fjölgun Kýr og kefldar kvígur ... . 18,271 18,186 0% Griðungar og geldneyti .. 911 765 -4-16— Veturgamall nautpeningur . 1,959 2,411 23— Kálfar 3,591 4,814 34— Nutpeningur alls ... . 24,732 26,176 6% Kálfum og veturgömlum nautgripum hefir fjölgað mikið. kýrnar hafa hér um bil staðið í stað, en griðungum og geldneyti hefir fækkað. f landsfjórðungunum var nautpeningstalan þessi: 1915 1916 Fjölgun Suðurland . 10,171 10,748 6% Vesturland . 5,284 6,112 16— Norðurland 6,641 6,596 -4- 1— Austurland 2,636 2,720 3— Á Vesturlandi hefir nautgripunum fjölgað tillölulega mest, en í Norðurlandi hefir þeim heldur fækkað. Hross. Hross voru í fardögum 19þ6 talin 49,146, og hafa þau aldrei áður verið svo mörg, mest tæp 49 þúsund árið 1905 og 1906. Vorið 1915 voru hrossin talin 46,618, svo að þeim hefir fjölgað árið 1915—16 um 2,528 eða um 5%. Eftir aldri skiftust þau þannig: 1915 1916 Fjölgun Fullorðin hross . 28,934 29,409 2% Tryppi . 13,300 15,339 15— Folöld 4,381 4,398 0— Hross alls ... . 46,618 49,146 5% Fjölgunin er langmest á tryppunum, enda voru folöldin með langflesta móti árið á undan. Folaldatalan er álíka mikil 1916, en fullorðnum hrossum hefir fjölgað dálítið. f landsfjórðungunum var hrossatalan svo sem hér segir: 1915 1916 Fjölgun Suðurland . 15,999 16,935 6% Vesturland 9,475 10,084 6— Norðurland . 17,486 18,331 5— Austurland 3,658 3,796 4— f öllum fjórðungum landsins hefir hrossunum fjölgað. Geitfé var í fardögum 1916 talið 1358. Árið á undan var það talið 1,127,. svo að því Hefir samkvæmt því fjölgað á árinu um 231 eða rúm- lega 20%. —Frón.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.