Lögberg - 01.05.1919, Page 3

Lögberg - 01.05.1919, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. MAÍ 1919 3 Vane og Nina EFTIR Charles Garvice “Það verður að eins að íþyo það,” sagði Mannering glaðlega. “Það jafnar sig líklega.” Hún þvoði sárið með skjálfandi höndum. ‘ ‘ Mér — mér þykir svo vænt um að þér drápuð hann ekki, enda þótt — enda þó eg eitt augnablik . óskaði næstum---------en hvað þér hljótið að vera sterkur!” stamaði hún út úr sér með lágri rödd. “Eg vissi ekki að þér liorfðuð á okkur”, sagði Mannering ásakandi. “Bg sagði yður að loka dyrunum”. “Já, eg gerði það líka, — en eg gægðist út um rifurnar ’ sagði hún ihóglát. Gamli læknirinn kom nú inn í kofann. Ilann var lotinn og veiklulegur; en á þessu augnabliki bar á allmikilli æsingu hjá honum, sem kom honum til að líta liraustlegar út held- ur en tilfellið var. “Nína, livar er hr. Mannering? En þér eruð þá þarna”, sagði hann og leit til þeirra undir loðnu, livítu augábrúnunum. “En, livað er að ?” spurði hann skyndilega alhnikið óró- legur. Nína leit upp. “Hr. Mannering er særður, pabbi. Skipverjarnir vi'ldu stela kassanum, og—og—” “Hvað Iþá? Já, það liefir enga þýðingu”, greip hann frani í fyrir 'lienni óþolinmóður. Lofaðu mér að komast að”. Hann rannsakaði sárið. “Það er ekki hættulegt. Láttu mig fá léreftsdruslu. Ríf þú dálítið af skyrtuerminni—hverts vegna börðust þið í raun og veru? Á þ'essum tímum, þegar menn þurfa á öllum kröftum og geðró að halda? Mannering og Fleming”, bætti hann við, meðan hann með æfðum fingrum hreinsaði sárið og batt um það, “eg hefi gert markverða uppgötv- nn. Komdu með nál, Nína”. Hún fann örygg- isnál og ætlaði að fá honum hana. “Nældu henni hérna í”. Mjúku, köldu fingurnir 'hennar, snertu blíðlega og með meðaumkun við særða hand- leggmlm. “Nú er það gott. Þér verðið brátt heil- brigður aiftur. Sá næsti. Hvað er þetta — eg liélt eg væri í sjúkrahúsinu. Lítið þér á. Man- nering”. Hann sneri sér að kas'sanum, sem þau not- uðu fyrir borð, tók upp úr vösum sínum það sem í þeirn var og lét á hann. “Lítið þið á þetta”, sagði liann æstur. “Vitið þið 'hvað þetta er? Bíðið við — lokið þið dyrunum fyrst”. Nína lokaði dyrunum og kom svo aftur til þeirra, um leið og hún paeð leynd leit til særða mannsins. “Takið þið einn þeirra og rannsakið hann”, hvíslaði læknirinn ákafur. Mannering tók ósjálfrátt einn af steinun- r.m.. Hann hugsaði um sjómennina og um það, hve lengi honum mundi takast að stjórna þeim. “Nú”, sagði læknirinn óþolinmóður. Hann var rauður í andliti af geðshræringu, og stórir svitadropar sátu á lirukkótta enninu. • “Þeir líta út eins og algengir steinar”, sagði Mannering undrandi. Læknirinn fnæsti mikillátllega og óþo'lin- rnóður. “ Algengir steinar! Það er gull^ þeim — gull, heyrið þér það. Þey!” Hann leit kvíðandi til dyranna. “Það er gull. Við erum rík—ríkari en nokkurt ykkar hefir hugmynd um. Eg fann þá í dalnum milli lrálsanna í suð- vestur liéðan. Það eru ógrynni gulls þar niður frá, skal eg segja ykkur”. Hann leit blóðhlaupnum augunum sínum frá einum til annaris í æstu skapi. FJeming og Mannering litu alvarlega 'hvor á annan hugsandi: “Hann er brjálaður”. “Ógrynni gulls, segi eg — óvanalega auð- velt. að ná því. Og það er okkar eign alt saman. Við eigum margar miljónir, máske biljónir, segi cg ykkur. Ó, hvað hitinn er mikill”. Hann strauk Irendinni um ennið og hné niður á sæti við hlið borðsins. , Nína studdi hendinni huggandi á öxl hans. ‘ ‘ Þú ert þreyttur, pabbi, — þú þarft nú að hvíla þig—” ‘ ‘ Hvíla mig — rugl! Þú talar eins og barn. Þú skilur ekki hvað þetta þýðir, Nína. Okkur er fleygt á land í ódáinsakur, og við skiftum auðnum á milli okkar. 1 raun réttri tiTheyrir auðurinn yður, Mannering, því án vðar liefði enginn stigið fæti á land hér. Það er ósegjan- lega. mikið af gulli. Munið það. Nína — eg erv svo þyrstur. Eg ,liefi verið svo lengi úti í sól- skininu í dag. Gefðu mér vatn — vatn”. Hann átti erfitt með að draga andann. Andlitið var náfölt og afmyndað. Mannering hljóp út og sótti dólítið af vatni, og þegar gamli maðurinn var búinn að drekka dálítið af því, jafnaði hann sig ofurlítið. “Farið þið nú”, sagði Nína 'lágt. “Eg skal koma honum til að leggjast út af, og þá getur hann máske so’fnað. Eg vona að liann verði betri á morgun”. Ilún rétti Mannering hendina, og þegar hann tók hana, tautaði hún: “Góða nótt — og innilegt þakklæti”. “Góða, mlnnist þér ekki á það, ungfrú Nína”, sagði ’hann. “Haldið þér að noklcuð sé hæft í uppgötv- an læknisins?” spurði Fleming hikandi, þegar þeir urðu samferða til kofa síns. Mannering ypti öxlum. “Eg veit það ekki. Það getur vel skeð að það sé satt. Menn finna gull á svo mörgum ein- kennilegum stöðum. En okkur hefði verið meira gagn að því, að hann hefði fundið bansdi- tré — eða tré, sem hefði veitt okkur klæðnað t. d. Gullið getum við ekki einu sinni etið ’ ’. Fleming hóstaði voðalega. “Það er þó satt. Mannering, þetta ætti að vera lærdómsgrein fyrir einn af okkur, sem eyðum lífi voru til að safna gagnslausum auð. Eg vildi að einhverjir af miljónerum okkar liefði orðið fyrir því sama og við”. Hann hóstaði aftur. “Farið þér nú inn og reynið að sofna dá- lítið”, sagði Mannering. “Og þér? Þér ætlið eflaust líka að hvíla yður í nótt, Mannering?” ‘ * Og já. Eg ætla að einS að ganga um kring fvrst”. Fleming gekk imi í kofann og fleygði sér á rúmið; hann var mjög þreyttur eftir æsing binna síðustu stunda. Þegar Mannering var viss um að félagi hans svaf, gekk liann til kofa Vernons og lagðist niður fyrir utan dyrnar með skambyssuna í hendi sinni. Þó hann 'hefði afráðið að sofna ekki, hlýtur hann að hafa fallið í mók, en vaknaði við hljóð Nínu. “Hr. Mannering----------pabbi”. Hann var staðinn upp á sama augnabliki og fylgdi lienni inn í kofann. En hann gat ekkert gert, læknirinn var dáinn. Æsingin yfir uppgötvaninni, sem hami hatfði gert, rétt á eftir að hafa legið veikur af liitaveiki, gerði enda á lífi hans með lijarta- flogi. Ungá stúlkan stóð við hlið hins fram- liðna með þur augu; hún lokaði tár sín inni í hinum sorgþi’ungna liuga. Mannering gat ekk- ert sagt, en flýtti sér að sækja Flettning. Hann mætti honum, þegar hann kom frá fjöruborðinu, hóstandi og álútur. “Mannering”, sagði hann í örvilnunar- róm, “þeir----— þeir eru farnir”. “Hverjir?” spurði Mannering dauflega. “Skipverjarnir — allir saman. Þeir hafa tekið bátinn og eru farnir”. Mannering kinkaði 'koilli dimmur á svip. ‘ ‘ Það er þeim lfkt. Fyrst báturinn er far- inn, megum við sleppa allri von um að losna héðan líka. Bg hefi líka slæma nýung; — Vernon læknir er dauður. Farið þér til kofans, Fleming; hún þarfnast yðar”. Fleming dró andann afarhratt og gekk til kofans án þess að segja meira. Mannering stóð á sjávarbakkanum og og liorfði xít á liafið. Með bátnum var þeirra síðasta von um að losna þaðan horfin. Hann sjáilfur, Fleming og Nína voru nú einu íbúar þessarar eyðilegu eyju. Ilonum sýndist sjór- inn hæðast að sér með valdi sínu — var það ekki eins og hann tautaði: “Eg er húsbóndinn, þií ert þrællinn. Eg hlæ að þér og öllum ])ínum erfið'leikum; minn vilji er lög. Eg hefi fleytt ykkur hingað til lifandi dauða. Hann verður ekki umflúinn”. ITve lengi hann stóð þar og starði á bár- urnar, vissi hann ekki. Hann vaknaði aftur til lífsins og krafa þess, þegar Fleming kom.til hans og sagði: “Er nokkur skófla t-il, Manne- ring?” Mannetfing kinkaði kolli, fann skófluna, og svo grófu þeir gröfina. Að því búnu gengu þeir til kofans og báru dána manninn til graf- arinnar. Nína .fylgdi þeim niðurlút, og stóð óhreyf- anleg á meðan Fleming framkvæmdi greftrun- arreglurnar. ftvo gekk hún jafn niðurlút og áður til kofans. Nú átti þessi foreldralausa unga stúlka að eins þessa tvo menn fyrir fé- lagsbræður. Fleming talaði nokkur huggandi opð til hennar, sem Qiún hlustaði á með þakklátri auð- mýkt. Að áliðnum degi skildi hann við hana og fann Mannering við dyrnar á kofa þeirra. Hinn veiki, uggi prestur, var fölur og þreytu- legur, og gat naumást talað ifyrir hósta. “Hvernig líður henni?”'spurði Mannering. v “Eg veit ekki vel, hvað eg á að segja. Þetta er voðalegur viðburður fvrir liana, vesa- lings stúilkuna. Og — Mannering — mér hefir komið t.il hugar—að eg ætti að tala vúð yður”. “Taliðþér”, sagði Mannering utan við sig. Fleming settist á bólið sitt, og átti erfitt með að draga andann. ‘ ‘ Eg verð að gera skvldu mína, góði vinur. Læknirinn er dáinn, og eg lield að ekki líði lang- ur tími þangað til eg fer líka”. “Talið þér ékki þannig, maður”. “Já, það er nú saint þannig, því ver. Eg hefi a'ldrei verið heilsuliraustur, og alt ]>etta, sem fyrir okkur hefir komið núna undanfarið, hefir lamað krafta mína. Ef eg dey núna, Mannering, — þá verðið þér og ungfrú Vernon tvö ein eftir”. Hann þagnaði um stund, því lióstinn ætlaði að kæfa hann. “Já, það er tilfellið”, sagði Mannering. Fletning leit til hans sorgþrungnum augum. “Einsömul — þér og hún. Mannering, liennar vegna og vðar líka verðið þið--grun- ar yður ekki hvað eg á við? Þið verðið að gift- ast, góði vinur”. Mannering starði á hann, eins og hann gkildi ekki orð hans. Svo varð svipur hans all- a'stur og alvarlegur. “Gifta okkur!” sagði hann hissa. “Já, gifta ykkur”, sagði Pleming ofur liægt. III. KAPITULI. Mannering hné niður á kistu og starði fram undan sér. “Ilafið þér aldrei hugsað um það, — aldrei athugað þá stöðu, sem hún verður stödd í, ef eg skyldi deyja, og þér og hún verðið einsömul liér?” spurði Fleming með liásri rödd. Mannering hristi höfuðið. “Nei; yður finst máske að eg sé sjálfselskur og eftirtekta- laus, en —” “Nei, nei”, greip Fleming fram í með ákafa. Þér liafið liáft svo afarmikið að liugsa um. Það er mesta furða að þér skylduð ekki gefast upp fyrir löngu síðan, þegar maður hugs- ar um alt það, sem þér hafið átt við að stríða. En, eins og þér vitið, þá hefir engin ábyrgð hvílt á mínum veiku herðum, svo eg hefi haft tírna til að hugsa. Auk þessa er eg prestur, og það er því skylda mín að hugsa um og fyrir ykkur bæði. Það hefir búið í mér uppihaldslaust, síðan mig fór að gruna, að læknirinn mundi deyja, og eg .vissi líka að eg átti ekki langan tíma eftir að lifa”. “Eg vona þess innilega, að yður geti batn- að ennþá”, sagði Mannering hlýlega, en Flem- ing hristi liöfuðið. ‘ ‘ Við skulum ekki eyða tímanum til að tala um það”,sagði hann rólegur. “Mínir dagar eru taldir, eg finn það. Og hugsið svo um það, hve hjálparlaust ásigkomulag ungu stúlkunnar veður, Mannering. Við skuium íhuga það al- varlega —” “Það getur skeð að skip sjái merkið — log- ann uppi á fjallinu — nær sem helst”, tautaði Mannering. “ Já, ef það ættti sér stað áður en eg dey, þá væri alt í góðu lagi; en það er eins víst að það komi ekki fyrir. Og ef hingað kæmi skip, eftir að eg er farinn, og fyndi vkkur tvö hérna, og tæki vkkur með sér; hvernig myndi hún þá /era stödd? Þér vitið þetta mjög vel sem heimsmað- ur, Mannering. Hún stæði verjulaus gagnvart liinni opinberu skoðun, sem ávalt er tilbúin að níða og isvívirða, hlífir engu og sýnir enga með- aumkun.’” “Eg veit það”, sagði Mannering lágt. “En ef þið væruð gift, þá hefði enginn neitt að «egja. Jatfnvel hinn versti baknagari vogaði ekki að kasta fvrsta steininum. Þér hikið lík- lega ekki Mannering? Hvers vegna ættuð þér líka að gera það í raun og veru? Hún er ung, falleg og góð — Hin blíðasta og göfugasta—” Mannering þaut á fætur , en hné svo niður á sætið aftur. “Já, það er hún”, sagði hann. “En eg? Þér þekkið mig ekki að neinu leyti. Þér stingið upp á þvá, að þessi fallega, göfuga, unga stúlka skuli giftast manni, sem þér vitið ekkert hvern- ig liefir hegðað sér á liðinni æfi. Eg er fátækur. Og eg get, ef til vill, verið slæmur maður — úrkast-----” Fleming' liristi höfuðið óg sagði með áherzlu: ‘ ‘ Fátækur eruð þér máske, en þér eruð alls ekki lítils verður maður. Þér gleymið því, að við liöfum ávalt verið saman á allri ferðinni, að eg liefi búið saman við yður hérna á eyjunni, og þar af leiðandi liaft tækifæri til að kynnast liæfileikum yðar enn betur.” “Hjónabandið mundi ekki vera löglegt”, sagði Mannering. “Jú, það held eg. Eg er ekki eins fróður mn hjónalbandslögin og eg ætti að vera, en eg er næstum alveg sannfærður um það, samt sem áður. Og þó þið væruð ekki fyllilega gift sam- kvæmt borgaralegum lögum, þá væruð þið það sarnt, samkvæmt hinum ’siðferðislegu. Og ef \kkur yrði bjargað, þá gætuð þið látið gifta ykkur aftur í fyrstu höfninni, sem þið komið í, éða þegar þið komið til Englands aftur. Eg hefi yfirvegað ]>etta málefni frá öllum hliðum, og mér dyljast ekki vandræðin sem því fvlgja”. “En það getur verið að liún vilji ekki gift- ast mér”, sagði Mannering lágt, og horfði utan við sig út í bláinn. “Eg held liún samþykki það. Þér verðið að ispyrja hana — segja henni hvernig kringum- stæðurnar eru—” “Nei, nei”, Mannering stóð upp, gekk til dyra og sneri bakinu að Fleming. “Það get eg ekki. Eg er ekki fær um það. Eg mundi tala svo klaufalega, að liún neitaði mér hreint og beint. Að hugsa sér — að verða að segja ungri, saklausri stúlku, að eg noti hina vandræðalegu stöðu hennar mér til hagsmuna, og bindi hana aTilangt við mig, sem hún þekkir ekkert. Eg get ekki gert það — og eg vil það ekki heldur”. Fleming liallaði sér aftur á bak á koddann sinn, sem búinn var till úr þurru þangi, og byrgði augun með höndum sínum. “Eg >skil tilfinningar yðar, Mannering. Eg skal tala við liana. Eg skal skýra kringumstæð- urnar fyrir henni, og liún verður að gefa sam- , þykki sitt. Eg skal fara til hennar undir eins, meðan eg er fær um það. Viljið þér gera svo vel og hjálpa mér að standa up|>?” Mannering hjálpaði honum að standa upp og gaf honum nokkra dropa af imikilsverðri konjaksflösku, sem þeir liöfðu getað náð í og liaft með sér. “Þökk fyrir, — að eins fáeina dropa. Þökk fvrir, Mannering, — mér 'hefir ekki skjátlað í dómi miínum um aðalseigin yðar. Það var gott, að þér lilýdduð svo fljótlega. Flestir mundu hafa komið með mótsagnir — eða neitað bein- línis. Þeir mundu hafa hugsað um sjálfa sig en ekki um hana —mannorð hennar og frara- tíð”. “Revnið þér aðeins ekki að gera mig of dýrðlegan”, sagði Mannering. “Mér finst eg vera viss um að þér munið hrósa mér um of, og að eg 'Sé. heimskur, að lilýða yíjur. En — við höfum verið félagar, góðir félagar, og þegar þér farið að tala um samvizku og meginreglur, þá fell eg til lilýðni”. “Þér breytið eins og göfugmenni og lieið- arlegur maður”, sagði Fleming. Mannering leit til hans að Jiálfu leyti reið- ur. “Det.tur yður 'það ekki í hug, að þér berið of auikið traust ti'l mín? Hvernig getið þér vitað að eg er ekki nú þegar giftur?” Fleming brosti veiklulega. “Þá hefðuð þér sagt mér 'það um leið og eg bar upp uppástungu mína”, svaraði hann blátt áfram. Mannering næstum iþví stundi. “Það er ómögulegtað ráða við yður. Jæja, þér verðið l]>á að fara til Iiennar — segið þér henni-----segið þér henni—”, Mannering stamaði og hugsaði sig uih, svo bætti hann við: “ Segið þér henni að þetta sé yðar hugmynd, en ekki mín, munið þér það. Og að — þetta skuli ekki vera nein veruleg gifting”. Húðir og skinn! Hæsta verð fyrir: Vor-rottuskinn, Húðir, Ull, Seneca-rætur Sendið alt til vor. Þér getið átt von á réttu og hæSta verði og fljótri borgun. Skrifið eftir verðlista. B. LEVINSON & BROS. 281-3 Alexande*- Ave. WINNIPEG R. S. ROBINSON Stofnsett 11883 HöfaVttóll $250,000.00 Gærir Uli Kaiplr o« ulir RAW FURS Seneea rwtir útlbú: Seattle, Waih., Edmonton, Alta. Lo Pu, Man. Kenora, Ont i. S. A. »2.00 No. 1 Mjö* stðr Vor Rotta ______ No. 1 Meðal Vor Rotta ...... No. 1 MJÖgr stðr Vetrar Rotta No. 1 MJögr atór Haust Rotta ... Smærri ogr lakari tegrundir hlutfallslegra lægrri. Rfttifi ekki mekn eftlrapurn er mlkil. Ver borgum óvanalega hatt vertS fyrir Flsher ogr Marten Nautshutfir 15—16c. HutSir af ungrum nautum .20 Kalfsk .30 SENDID BEINT TIL isr HEAD °aF»ÍiM57r«Im AT™sV«.WIN",ris ?2.50 »1.50 *1.90 M.50 No. 1 S'tor Vor Rotta No. 1 MJögr atórt $10 HA Svart Mlnk .... 1 No. 1 MJögf stór $00 Fin Ulfa ........ No. 1 Mjögr stór $on nn Vanales Ulfa Ánœgðir Viðskiftamenn eru mín Beztu Meðmæli. Hundruð af þeim eru reiðubúnir að staðfesta að verk mitt er sama sem sársaukalaust og verðið dæmalaust sann- gjarnt. Með því að hafa þetta hugfast munu menn sannfærast um að það er óhætt að koma til mín, þegar tennur þeirra eru í ólagi. . Dr. C. C. JEFFREY, „Hinn verfacrni tannlæknir" Cor. Logan Ave. o£ Main Street, Winnipeg '17 ■ 1 ■ .." ' — 1 1 -J TIL. ATHUGUNAR 500 menn vantar undir eins til þess aS lœra atS stiörna bifreiBum og gasvélum — Tractors á Hemphills Motorskölanum 1 Winnipeg, Saskatoon, Edmonton, Calgary, Lethbridge, Vancouver, B. C. og Port- land Oregon. Nú er herskylda 1 Canada og fjölda margir Canadamenn, sem stjörnuðu bifreiöum og gas-tractors, hafa þegar oröiC aB fara I berþjön- ustu eBa eru þá á förum. Nú er ttml til þess fyrir yöur aC lœra göBa iön og taka eina af þeim stööum, sem þarf aö fylla og fá t laun frá $ 80—200 um mánuölnn. — paö tekur ekki nema fáeinar vikur fyrlr yöur, aÖ læra þessar atvinnugreinar og stööurnar biöa yöar, sem vél- fræöingar, bifreiöastjörar, og vélmeistarar á skipum. Námiö stendur yfir í 6 vikur. Verkfæri frt. Og atvlnnuskrlf- stofa vor annast um aö tryggja yöur stööurnar atS enduöu námt. SlálÖ ekki á frest heldur byrjiö undir eins. Veröskrá send ökeypls. KomiÖ til skólaútibús þess, sem næst yÖur er. HemphUls Motor Schools, 220 Pactfic Ave, VVinnipeg. útibú t Beglna, Saskatoon, Edmonton, Lethbridge, Calgary, Vancouver, B. C. og Portland Oregon. * • •• 1 • timbur, fjalviður af öllum Wyjar VOrubirgðir tegundum, geirettur og alt- konar aðrir strikaðir tiglar, Kurðir og gluggar. Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð glaðir að sýna þó ©kkert sé keypt. i The Empire Sash & Door Co. --------------- Limitvd-------------- HENRY AVE. EAST - WINNIPEG Nefnið Lögberg þegar þér verzlið við þá eða þau félög sem auglýsa í blaðinu L VIÐSKIFTABÆKUR (COUNTER BOOUS Hérna er tækifœri sem borgar sig að athnga! Samkvæmt verzlunar-löggjöf landsins, þurfa kaupmenn að nota viðskiftabækur, (Counter Books) Vér höfum nú tekið að oss EINKAUMBOÐSSÖLU á VIÐSKIFTABÓKUM fyrir alla Vestur-Canada. Og er þetta einmitt sú tegúndin sem yður vanhagar um. Það er beinn peninga sparnaður fyrir íslenzka Mat- vöru- og Álnavöru-kaupmenn að panta viðskifta- bækur »ínar hjá oss. SITJIÐ VIÐ ÞANN ELDINN, SEM BEZT BRENNU.L SENDIÐ PONTUN YBAR STRAX! TIL ®(je Columfjta $reðö LIMiTED Cor. Sherbrooke & William, Winnipeú Tals. Garry 4J1G--417

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.