Lögberg - 10.07.1919, Page 2
Bls. 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 10. JÚLI 1919
SAUÐFJÁRRŒKT í SASKATCHEWAN.
Gefið út að tilhlutan
Landbúnaðardeildar Saskatchewan stjómarinnar.
Fengitíðin.
Undirbúningur. — Áður en fengitíðin byrjar, er
nauðsynlegt að skoða hrútana vandlega, því um þær
mundir er sérstaklega áríðandi, að þeir séu vel í þrif-
um. Gæta skal þess vel að fætur hrútanna séu í góðu
ásigkomulagi. Eins er áríðandi að viðhafa við þá
"clipping out” aðferðina, engu síður en við ær. Skal
hrúturinn þá tekinn upp og látinn sitja, á meðan klipt
er burt ullin í kringum sinina. —
Stundum eru kindur svo loðnar í framan að þær
fá ekki notið fullrar sjónar, og er þá nauðsynlegt að
klippa ullina í burtu, svo þær geti óhindrað litið í
kringum sig.
Mjög gott er einnig talið um fengitíðina, að gefa
kindum dálítið af laxersalti, sem svarar fjórum til sex
únzum handa hverri skepnu.
Fjárhúsin þurfa að vera hlý og þur, er það þó eink-
um áriðandi í samþandi við ærnar, og þurfa þær einnig
að hafa nóg að éta, þegar innistaða er, því skaðlegt
getur verið að hleypa hungruðum ám á beit.
pess er einnig vert að gæta að ær geta ekki mjólk-
að sæmilega nema því aðeins, að þær hafi nóg að
drekka. „
Affarasælla er það alment fyrir fjárbændur, að
ærnar beri eigi of snemma. — Meðgöngutíminn er fimm
mánuðir í öllum algengum tilfellum.
Ær, sem lembgast í byrjun desembermánaðar, eru
því fyllilega nógu snemmbærar. — Ær, sem bera mjög
snemma, beiða venjulega fyrri partinn í september, og
má þá halda þeim ef vill, þær bera þá aftur í febrúar-
mánuði.
Aðferðir við tilhleypingar. — Ærnar skulu hafðar
i húsi eða girðingu á næturnar og skal hrútnum hleypt
til þeirra að kveldinu. pær sem beiða, hafa að öllu fór-
fallalausu fengið fyrir næsta morgun. En þegar ær-
hópnum er slept út, skal skilja hrútinn frá þeim, og
hafa hann á kyrlátum, skuggasælum stað á daginn.
Fullþroska hrútur gagnast frá fjörutíu til fimtíu
ám, en lambhrútur frá tuttugu og fimm til fjörutíu.
Ær, sem fengið hafa þurfa að vera merktar, og er
auðveldasti vegurinn sá, að bera “keel” á brjóst hrúts-
ins. — Keel er litað duft, sem leysa skal upp í vatni
óg er síðan smurið á brjóst hrútsins, milli framfótanna,
og merkir hrúturinn ærnar þá ósjálfrátt. Litblöndu
þessa skal bera á hrútinn daglega, og bæta þess að lit-
smyrslin nái eigi of hátt, því ef svo færi gætu ær auð-
vcldlega markast án þess að hafa lembgast. Smurning
þessi skal þánnig vera, að hún sjáist eigi á hrútnum,
þegar hann stendur í réttum stellingum. — Gott ráð
er einnig að skifta um litblöndu þessa aðra hvora viku,
því af því má oftast marka hvort ær hafa beitt upp
eða lembgst að nýju.
Fóður. — Fóðra skal vel bæði ær og hrúta um
fengitímann. Hafrar, eða bran og hafrar til samans,
ásamt góðu sléttuheyi, er ákjósanlegt fóður; einnig
smári og alfalfa, þar sem slíkar tegundir eru fáanlegar.
Eigi skal gefa ám um fengitímann meira en sem
svarar þrem fjórðu punds af korni, hverri um sig, og
hrút skal eigi gefa meira en pund, eða hálft annað, ef
stór er. — Skal yfirleitt kornskerfurinn miðast við
stærð og ásigkomulag skepnunnar. Bæði ær og hrút-
ar þurfa að hafa nægan aðgang að vatni og salti, og er
áríðandi að vatnið sé vel hreint.
Meðferð á lembdum ám að vetrarlagi. — Á þessu
atriði er byrjendum í sauðfjárrækt langhættast við að
flaska. peim hættir til að gera ærnar of feitar, en
feitar ær eiga sjaldan hraust lömb, og þess vegna þarf
að varast slíkt ásigkomulag eins vandlega og frekast
verður auðið.
Offita stendur oftast nær í beinu sambandi við
hreyfingarleysi. — Gott er að gefa ám, sem allra mest
af léttri fæðu, sem byggir upp og styrkir vöðvana og
beinin, og eftir að hrúturinn hefir verið tekinn frá þeim,
ætti ekki að gefa þeim neitt korn, nema þær séu því
gelgjulegri, fyr en komið er fram í marz; má þá byrja
á að gefa þeim dálítinn skerf af korni. petta gildir
einkum um ær, sem koma frá hinum stærri hjarðbúum,
þær eru yfirleitt óvanar við kornfóður, og þarf því allr-
ar varúðar að gæta í sambandi við fóðrun þeirra. pví
má heldur eigi gleyma að þær voru vanar við ótakmark-
aða hreyfingu, og þarfnast slíkrar hreyfingar daglega,
ef þær eiga að geta eignast heilbrigð lömb. Með hreyf-
ingu er hér átt við sjálfræði, ekki að þær séu hund-
beittar og altaf á hlaupum, heldur að þær geti farið
>óhindrað um landið, sem þeim er beitt á. — Lembdar
ær skuíu eigi minna svæði hafa til umráða, en sem
svarar 12—15 ferhyrningsfetum, því mikil þrengsli geta
oft valdið hættulegum lambadauða. Mátulegt fóður fyr-
ir holdgranna á ætti að vera hálft pund af höfrum og
brani til samans, ásamt frá tveimur til fjórum pund-
um af léttmeltu fóðri svo sem rófum og káli og svipaður
skerfur af grófari fæðu. — Lím eða kvoðukent fóður er
mjög sÆaðlegt lembdum ám. — Lembdar ær þurfa að
hafa góðan aðbúnað, þær mega hvorki vera eltar né
hundbeittar, eða gerðar hræddar, éí þær eiga að verða
áfcatasamar eiganda sínum.
Einn grimmur og illa vaninn hundur getur valdið
meira tjóni< sauðfjárhjörðinni á einum degi, én gætinn
og góður fjármaður getur kipt í lag á heilu ári.
Ær, sem aldar hafa verið upp á stóru fjárbúi hafa
auðvitað vanist hundum, en þá ber líka að taka það til
greina, að slíkir hundar eru venjulega vel tamdir, en
lembdar ær eru of viðkvæmar, til þess að rétt sé að
nota þær til æfingar fyrir ótamda hunda.
Fjárhús. — Afaráríðandi er að ærhúsin séu í góðu
lag», bæði nægilega rúmgóð, björt og loftgóð. pað
hefir stundum því miður brunnið við, að fjárhúsin hafa
eigi verið eins vel hreinsuð og Skyldi. Ekkert er skað-
legra fyrir sauðfjárræktina, en að láta kindur standa
og liggja í votum húsum. Nægilegt af þurru strái þarf
að vera í krónum á hverri nóttu, og skift um á hverjum
sólarhring jafnóðum og óhreinkast.
Gæta verður þess vel, að ferskt loft sé ætíð í fjár-
húsum. — pökin þurfa ávalt að vera þur og sömuleiðis
vcggir, og verði fjármaðurinn þess var að ærnar hafi
fengið kvefrensli úr nösunum, þarf hann að viðhafa því
meiri nærgætni hvað viðvíkur aðstreymi góðs lofts og
hálmbyngnum á gólfinu. Uiti í fjárhúsunum á veturna
í fylki þessu, skal vera frá 35—40 stig á Fahr. mæli, og
enginn gufuraki skyldi sjást á fjárhúsunum á morgn-
ana, þegar féð er látið út.
pað sem mest ríður á í sambandi við hirðing sauð-
fjár að vetrinum er það, að húsin séu svo vel bygð, að
um þau geti enginn súgur komist, að fénaðurinn geti
ávalt verið skraufþur á fótum og ull. — Salt þarf einnig
að vera í fjárhúsunum og óþrjótandi forði af hreinu,
fersku vatni. Verði ærnar af einhverjum ástæðum
mjög óhreinar á fóturfum, er rétt að þvo af þeim með
volgu vatni.
Góð aðferð við vetnarhirðingu er sú, að gefa ánum
í garðann á morgnana eigi meira hey en það, að þær
hafi étið upp innan klukkustundar.
Undireins eftir miðdagsverðartíma, skal brynna
ánum, ef þær eigi hafa haft aðgang að vatni áður, og
skal þá gefa þeim hafraskerfinn úti, en hér um bil
klukkan þrjú eða fjögur skal gefa þeim “root feed”, en
því næst er gott að láta dálítið af hafrastrái eða heyi
í jötuna. Gæta verður þess að ærnar éti upp alt, sem
þeim er gefið, áður en liðnar eru tvær eða þrjár klukku-
stundir frá gjöfinni. — Með magrar ær, sem þarfnast
kornfóðurs skal þannig farið, að þeim skal gefið bran
eða heilir hafrar ásamt dálitlu áf heyi undireins á
morgnana.
Ef að hafrastrá er notað til kindafóðurs á annað
borð, er bezt að gefa það á kveldin ásamt dálitlu af
“root feed”. Sé hin síðarnefnda tegund ekki til, ætti
hver bóndi að búa sig betur undir, og hafa nægilegt af
benni næsta ár. Bran er að líkindum bezta fóðrið,
ásamt svolitlu af flax seed, sem hægt er að fá í staðinn
fyrir roots, en eigi má gefa meira af því hverri kind,
en svo sem tvær únzur tvisvar eða þrisvar á viku.
Hirðing ullar. — Áríðandi er að ullinni á skepnun-
um sé haldið eins hreinni og frekast er kostur yfir vetr-
artímann. Menn verða að gæta þess að láta fóðrið ekki
lenda í ullinni eins og stundum á sér stað, og garðarnir
verða að vera þannig bygðir, að kindurnar geti ekki
með neinu móti komist alveg undir garðaböndin meðan
Iþær eru að éta. Dálítið af mylsnu og dufti hlýtur ávalt
að festast í ullinni, en með góðu eftirlæti og hreinlæti,
þarf það ekki að verða til tjóns, sem nokkru nemur.
Sauðburður.
pegar sauðburðurinn nálgast, þarf fjármaðurinn
sérstaklega að vera á verði. Annar endi fjárhússins að
minsta kosti, eða einhver sú bygging, sem út úr því
kann að liggja, þarf að vera vel þur og hrein með nægi-
legu strái á gólfinu. Sé fjárskýlið eitt óskift gýmald,
má taka fjalvið og festa við vegginn annarsvegar og
búa til krubbu, sem verður eins og sj;afurinn L í lag-
inu. par geta ærnar verið nokkurn veginn aðskildar
meðan á burðinum stendur.
pegar lambið er nýfætt, er gott ráð að strá dálitlu
af brani á skrokk þess, þá þornar það flj'ótar og örfar
móðurina betur til þess að kara.
Eftir að liðnar eru frá átján til tuttugu og fjórar
klukkustundir frá því að ærin bar, skal hún mjólkuð
vandlega.
Gæta verður þess að nýbæran ásamt lambi sínu sé
fráskilin aðalhjörðinni, að minsta kosti í þrjá daga eftir
tourðinn, það er að segja þangað til lambið er farið að
geta veitt sér svolitla björg.
Júfurmein. — Fjárhirðirinn þarf að hafa nánar
gætur bæði á ánni og lambinu fyrstu dagana eftir
burðinn; ef að ærin vill ekki láta sjúga sig, þarf að
taka hana til nákvæmrar skoðunar, einkum og sérílagi
þó júfrið, má oft með því móti koma í veg fyrir júfur-
mein, því dráttur í þeim efnum getur verið sérlega
hættulegur.
Fóðrun móður og lambs.
Eigi skal gefa lambá þreskt korn fyrstu tvo til
þrjá dagana eftir burðinn, nema því aðeins að hún sé
fremur máttfarin og lasburða. Eftir að lambið er orð-
ið það stórt, að geta tæmt júfur móður sinnar, er rétt
að gefa henni dálítið af hveitibrani, þó eigi mikið í
senn, heldur auka skamtinn ögn á hverjum degi. Gott
sléttuhey og hafrar með nægilegu af root feed, er yfir-
leitt hollasta fóðrið.. Roots eru nauðsynlegt fóður
handa lambám, og gettir slík tegund vaxið hvar sem
vera vill í öllu fylkinu, en hafa þarf góðan kjallara,
roothouse, eða gryfju til þess að geyma þá fóðurteg-
und í.
Lambaveiki. — Algengustu kvillar í lömbum stafa,
oftast frá meltingunni, og má þá oftast um kenna
óheppilegri fóðrun mæðranna, annaðhvort of þungri
fæðu, eða þá ofsnöggum fóðurskiftum. Hafi lamb verið
aðskilið frá móðurinni í lengri tíma, má eigi láta það
sjúga, er það hefir fundið hana aftur, fyr en búið er
að mjólka nokkuð niður úr henni áður.
Meltingarleysi má oftast lækna með því að draga
úr kornskamtinum um helming og sprauta inn í enda-
þarmijin svo sem hálfum kaffibolla af volgu vatni, með
glycerine saman við, vatn það þarf að hafa soðið. áður
en það er notað.
Augnasárindi. — Slíkur kvilli gerir oft vart við
sig í lömbum, og sé eigi reynt úr því að bæta í tæka tíð,
getur svo farið að lömbin geti orðið blind með öllu.
Meðalið, sem nota skal og reynst hefir nær óbrigð-
ult, er næsta einfalt. Leysa skal tjörusápu upp í volgu
vatni og þvo með því andlit. lambsins og láta tvo til
þrjá dropa falla inn í augað. Sé þetta gert með ná-
kvæmni, er batinn óbrigðull. Hvaða koltjörusápa sem
er, Cooper’s Fluid, Naptholeum, eða Zenoleum dugir
einnig vel.
Munnsárindi. — pau má einnig lækna með sömu
aðferð. Bursta skal vel þann hluta munnsins, sem sár
er, og þvo hann síðan með koltjörublöndu. Slík blanda
kemur oft að góðu haldi, þegar um er að ræða júfur-
mein í ám.
Rófustýfing. — Til þess að höggva rófu af lömbum,
þarf gott fjalhögg og egghvassan meitil. Sá, sem á
lambinu heldur í fangi sínu, leggur rófu þess á fjal-
borðið, sprettir á skinnið og flettir því upp, tekur þá
hinn maðurinn meitilinn í hönd ser og stýfir rófuna
af í liðamótum. — pegar rófan hefir verið stýfð af,
f<*.'r.r skinnið sa nan fyrir framan b inið >g grær þvi
miklu fljótar. Stundum er skinnið saumað saman, en
stundum bregður fjárhirðir glóandi rauðum meitli á
sárið og hættir þá strax að blæða.
Á hrútlömbum skal eftirskilið af rófunni sem svar-
ar þumlungi eða hálfum öðrum, en á gimbrum frá
tveimur til þremur þumlungum.
Rúning.
Rúningartími. — Hann skal standa frá 10. júní til
1. júlí.
Ullarbinding. — Reifin skulu þannig saman sett,
að togið viti inn. Eigi skal festa reifin saman með
“binder twine”. Bændur, sem nota binder twine fá
,lægra verð fyrir ull sína. Sérstakan tvinna fyrir ull
má ávalt fá, og er bezta tegundin unnin úr pappír.
Ullarpökkun. — Fá má einnig sérstaka poka, sem
beinlínis eru ætlaðir til ullar pökkunar.
Böðun sauðfjár.
Böðun er eitt af nauðsynlegustu atriðunum í sam-
bandi við sauðfjárræktina, enda ætti sérhver bóndi að
hafa fullkomin baðáhöld við hendina.
Böðun ætti að fara fram að minsta kosti tvisvar á
ári. Fyrri böðunin ætti að fara fram hér um bil þrem
vikum eftir rúninguna; er rétt að baða lömbin einnig
um sama leyti, því ef nokkur lús eða önnur óværð, hefir
eftir verið skilin á ánum, má víst telja, að slíkur ófögn-
uður hafi einnig komist á lömbin. Fyrsta baðið skal
eigi innihalda eitur, heldur skal þá nota koltjöruteg-
undir, svo sem Zenoleum eða Cooper’s Fluid. —
Sumarfóður á ám og lömbum.
Bæði ær og lömb þurfa að hafa góðan haga á
sumrin, en sé þess eigi kostur, þarf að gefa þeim nægi-
legt af heyi, eða öðru velverkuðu fóðri, svo sem heilum
höfrum og brani, og skal gefa slíkt fóður til helminga.
Pað er afaráríðandi að lömb, einkum og sérílagi
þau, sem ætluð eru til kynbóta, fái eigi í sig neinn
kyrking. Dálítill kornskamtur á dag eykur þrótt lambs-
ins jafnt og þétt.
Eins og venja er til, eru lömbin vanin undan, þegar
þau eru þetta tíu til tólf vikna gömul. parf þá að gæta
hinnar stökustu varúðar við hvorttveggja. Séu lömbin
vanin undan alt í einu, þarf að láta ærnar vera á léttri
beit, og skyldu þær helzt eigi á beit vera lengur en
hálfan dag fyrst í stað—fyrstu tvo til þrjá ^agana, því
annars er hætt við ofmikilli mjólkuraðsókn í júfrin.
Góðar mjólkurær, þurfa að vera mjólkaðar að minsta
kosti tvisvar á dag.
Algengustu sauðfjársjúkdómar.
pað eru varla nokkur húsdýr, sem örðugra er að
eiga við í sjúkdómstilfellum en sauðfé, og engum dýr-
um hættara við sjúkdómum. Eina ráðið til þess að
hafa hrausta sauðfjárhjörð verður því það, að neyta
allra bragða til þess, að koma í veg fyrir sjúkdómana. —
Sé um innvortis sjúkdóma að ræða, ætti hlutaðeig-
andi fjárbóndi eða fjárhirðir, að ná í dýralækni, en sé
þess eigi kostur, að skrifa eins fljótt og unt er lýsingu
af sjúkdómnum, eins nákvæma og unt er að dæma eftir
ytri tilburðum hinnar sjúku skepnu, og senda lýsinguna
til The Dominion Health of Animal Branch eða The
Department of Agriculture, hvorttveggja í Regina.
Meltingarsjúkdómar. — pað er fyrir löngu sannað,
að meirihlutinn af meltingarsjúkdómum í sauðfé á rót
sína að rekja til ofmikils eða þó óviðeigandi fóðurs.
mjög lítið, og það eingöngu létta fæðu.
pess vegna er áríðandi að gefa sjúkum kindum aðeins
Uppþemba. — Slíkur sjúkdómur er mjög algengur
og orsakast af ofhleðslu í vömbinni; ólga kemst í alt
saman og þenur skepnuna út, og veldur oft dauða,
nema við sé gert í tæka tíð. — Lækna má slíkan kvilla
oftast með því að hella ofan í skepnuna, svo sem fjór-
um matskeiðum af linseed oil, ásamt einni teskeið af
ammoniavatni eða terpentínu.
Stýflun. — pegar fé er tekið af grænum haganum
og gefið þurkað fóður, er langhættast við stýflun. Enda
er slíkur sjúkdómur algengastur að vetrarlaginu. Bezta
meðalið við því er laxersalt, svo sem fjórar til sex únz-
ur, leystar upp í köldu vatni, að viðbættri einni mat-
skeið af algengu matarsalti.
Diarrhoea. — punnlífi, eða niðurgangur, er sjald-
an mjög hættulegur sjúkdómur á sauðfé, og læknast
oftast fljótt, ef gætt er góðrar reglu við korngjöfina og
skepnunum veittur ávalt nægilega greiður aðgangur að
salti. Lömb, sem af slíku þjást, þurfa að fá daglega
inntöku: eina teskeið af linseed oil og fimm dropa af
engifers kjarna.
Að gefa inn. — pegar gefa skal kindum inn
fljótandi lyf, er gott að fylgja eftirgreindum leiðbein-
ir.gum: Meðalið skal látið I hálsmjóa flösku. Kindin
skal hnept inn í eitt fjárhús hornið. par skal hún tek-
in, en maður sá, er á meðalinu heldur, tekur með vinstri
hendinni undir neðri kjálka skepnunnar, reisir höfuð
kindarinnar dálítið upp, stingur stútnum í munnvik
hennar, og lætur renna ögn í einu; en gæta verður þess
vandlega að skepnunni svelgist ekki á, láta aldrei
renna meira úr flöskunni, en skepnan getur auðveldlega
kyngt niður.
COPENHAGEN
Munntóbak
Búið tilúr hin-
um beztu, elstu,
safa- mestu tó-
baks blöðum, er
ábyrgst að vera
algjörlega hreint
Hjá öllum tóbakssölum
Þetta er tóbaks-askjan sem
Kefir að innihalda Keimsin
bezta munntóbek
Umraœli Anders Howden
um tsland.
[Hér fer á eftir þýðing á grein,
er nýlega stóð í norska blaðinu
“Gule Tidende”, eftir prestinn og
skáldið Anders Hovden. Hann er
íslandsvinur mikill. Kannast
innborinna manna. pað er bæði
andleg og efnaleg hætta fyrir Is-
lendinga.
---------íslendingar eru fátæk-
ir af fjármunum, en auðugir af
anda og hugsjónum. Sögueyjan
hefir enn ekki þyrlast inn í hvirf-
ilbyl peningaleitarinnar, sem
hamlar andlegum vexti annara
menn óefað við hann hér, meðal
annars af ljóðmælum þeim, er; landa. Sagnfræði og skáldskapur
Matth. Jochumsson hefir þýtt ^eft- j Hfa jafn fersku lífi og fyrrum á
ir hann: “Bóndinn”. í þessari íslandi.
grein er ýmislegt, sem við hefð-1 En séu íslendingar efnalitlir,
um gott af að leggja okkur á
hjarta, þó þar sé aftur á móti
sumt, sem við getum ekki fallist
á, t. d. ummæli hans um fæðingar-
réttinn].
ísland hefir hlotið nafnið:
þa er landið auðugt. Og þjóðin
getur orðið auðug á óbrotinn hátt,
fái hún að eiga land sitt sjálf.
pað er fossaflið og rafmagnið,
| sem geyma auðinn. pað er gull
| framtíðarinnar. pess vegna er , a°um greitt banahöggið
MUstætt ríkL Mér finst, a« ÞaS | f*5ingarréttur Dana ,vo M,a heimsundur hefili verl5 ,eIt
hafi keypt það nafn of dýru verði legur íslandi. Danir geta laum-: einhverjum Englendingi fyrir fá-
í vasa sinn — fyrir lítið eða ekki
neitt, eins og komið var á daginn
hér í Nijregi. Áður en við áttuð-
um okkur að fullu, var mikið af
verðmætasta fossafli okkar komið
í erlendar hendur. Norðmaðurinn
var á leiðinni til þess að verða
verksmiðjuþræll erlendra manna.
Sama hættan, og jafnvel í enn
sitærri stíl, er þarna fyrir ísland.
Sjálft á það ekki auðmagn til
þess að notfæra sér~ fossaflið
strax. En Danir hafa peninga.
En eiga afkomendur norsku «yni minnismerki í Reykjavík, og
höfðingjanna, afkomendur Egils, héldi afhjúpunar-hátíð þar með
Gunnars að verða verksmiðjulýður æskulýð fslands. petta er nokk-
í sínu eigin landi, og þræla fyrir urs um vert að muna í framtíð-
útlenda auðmenn? pegar verk- inni! En steinninn er mállaus.
smiðjurnar taka að svarra og PaS þarfnast einhvers meira til að
súrra, þegar fslendingar eru stífla hinn erlenda straum. Bezta
vinnulýðurinn, þá er norska and- i stíflan mundi vera lýðháskóli, sem
i haldið gæti íslenzkum æskulýð
Mér dettur Geysir í hug! Ef vakandi fyrir þjóðerni sínu.
Lýðháskólinn hefir gert danska
bóndann fremstan allra bænda
beri að sama brunni með fossana.
Eg gisti eina nótt í Reykholti,
bæ Snorra Sturlusonar. Mér var' þeim skóla. ísland verður að
hefir hann og unnið ágætt verk;
bezti æskulýður vor kemur úr
Snorri Jónsson
Eins og getið var um í Lögbergi, sem út kom 3. apríl
síðastl., andaðist einn af hinum eldri landnámsmönnum í Nýja-
íslandi, Snorri Jónsson, að heimili sínu í Riverton (áður nefnt
“Lundur”) við íslendingafljót, Manitoba, þann 27. marz, 1919.
— Var líkið flutt til Snæbjörns, sonar hins látna, er býr um
5 mílur norðvestur af Árborg, og fór jarðarförin fram frá
heimili hans 2. apríl til grafreits Árdals-safnaðar, þar sem
Snorri sál. var jarðsettur samkvæmt eigin ráðstöfun. Séra
Jóhann Bjarnason flutti húskveðju á heimili Snæbjörns og hélt
ræðu yfir moldum hins látna. Jarðarförin var ein hin fjöl-
mennasta, er átt hefir sér stað til Árdals-safnaðar grafreits,
sem er l1/^ mílu vestur af Árborgar járnbrautarstöð.
Snorri sál. Jónsson var fæddur í Máfskoti í Reykjadal, í
fuður-pingeyjarsýslu, hinn 14. desember 1856, og var því á 63.
ári, er hann lézt. Foreldrar hans voru heiðurshjónin Jón Mar-
teinsson, frá Garði við Mývatn (d. 1873?) og Kristlaug Ólafs-
dóttir, frá Narfastöðum í Reykjadal. pau bjuggu fyrst nokkur
ár á áðurnefndu Máfskoti, en fluttu þaðan—og Snorri sál. með
þeim—vorið 1863 að Fjöllum í Kelduhverfi, í Suður-pingeyjar-
sýslu, og átti Snorri þar heimili stöðugt unz hann flutti til
Canada sumarið 1883, enda var hann hér kendur við “Fjöll”
(eða “Fjall”, eins og sumir nefndu það).
Tveimur árum áður en Snorri sál. flutti frá Islandi vestur
um haf (vorið 1881) giftist hann Kristjönu dóttur hjónanna
Sigurðar Eiríkssonar‘og Guðrúnar Erlendsdóttur, er um all-
mörg ár bjuggu á Ingjaldsstöðum í S. pingeyjarsýslu.
pau hjónin, Snorri sál. og kona hans, fluttu frá íslandi
til Canada sumarið 1883, komu til Nýja-íslands snemma í ágúst
og settust fyrst að í bæjarstæðinu Riverton við íslendingafljót,
sem er 3 mílur suðvestur frá mynni þess. En vorið 1886 nam
Snorri sál. land 3 mílur norður frá Riverton, syðst í svonefndri
ísafoldar-bygð. par lézt Kristjana, kona Snorra, 21. okt. 1899,
og 3 árum síðar, eða vorið 1902, flutti hann sig, með börn sín,
búferlum úr ísafoldar-bygð suðvestur í nýja bygð, er þá var
rétt að byrja og nefnist Árdals-bygð, og nam land þar sem Snæ-
björn sonur hans nú býr, um 5 mílur norðvestur frá Árborg.
par Kjó Snorri sál. þar til vorið 1914, að hann brá búi og flutti
sig til Riverton, bygði sér snoturt hús á sömu stöðvum og hann
fyrst settist að á, er hann kom til þessa lands, og dvaldi þar
unz hann lézt.
Snorri sál. lét eftir sig 4 börn, öll uppkomin og mann-
vænleg, og eru þau hér talin eftir aldri: Snæbjörn (giftur
Sigríði Jónsdóttur, ættaðri úr Dalasýslu) er býr á föðurleifð
sinni; Unnur, gift Jakobi Sigvaldasyni, er býr í svonefndri
Víðir-bygð, skamt norðvestur af Snæbirni; Njáll Kristján,
ógiftur, er býr á heimilisréttar-landi sínu, rétt austan við
Snæbjörn; og Erlendur, ógiftur, er nú í Canada-hernum, en mun
telja heimili sitt hjá systkinum sínum.
Snorri sál. var fremur hár maður vexti og svaraði sér vel,
ljós yfirlitum með blágrá augu — sór sig greinileg'a í íslenzk-
norrænar ættir. Hann var kjark- og dugnaðarmaður, sem
sýndi sig bezt í framkvæmdum hans sem nýbyggi — nam og
býgði upp tvö nýbýli. Hann var greindur vel, hygginn og vin-
fastur, og vel látinn af öllum, er kyntust honum að mun. —
Hér er því fallinn frá einn af hinum nýtustu frumbyggjum
Nýja-íslands.
S. J.
varnað svefns. Eg hugsaði um
hve mikið við Norðmenn höfum
Snorra og íslendingum að þakka.
það er eins og Sivle (norskt
skáld,
Snorra
‘,‘Me hadde glöymt baade far og
mor” o. s. frv.
— pá dreymdi mig, að norskur
æskulýður reisti Snorra Sturlu-
eignast lýðháskóla. Og æskulýð-
urinn norski verður að styrkja
það til þess. pað er fyrst og
fremst þaðan, sem hjálpin á að
1857 1904) kvað umjkoma. Vitanlega er mörgu bjarg-
með því að.heimila Dönum rétt að öllum gullnámum náttúrunnar. ar þúsundir króna! Bara að ekki Norðurálfunnar. Hér í Noregi
WHEN USING
WILSON’S
FLY PADS
READ DIRECTI0NS
CAREFULLY AND
F0LL0W THEM,
E
I'j'u miklu hctri en gomí flugnapapp-
írlnn. Hrelnni í Meðferð. Fæst
lijá lyfsölum os? inatvörusiilum.
inu að lyfta hér heima. Eitt slíkt
Grettistak er biblían á norsku. Og
margt fleira. En hvað um það —
norskur æskulýður verður ein-
hverntíma að þakka Islandi fyrir
öll andlegu auðæfin, sem við höf-
um fengið þaðan. En þau verð-
mæti borgast ekki í peningum.
En þeir geta sýnt hjartalagið.
Skólastjóra íslenzks lýðháskóla
höfum vér þar sem er Helgi Val-
The Wellington Grocery
Company
Corner Wellington & Victor
Phone Garry 2681
License No. 5-9103
Hefir beztu matvörur á boðstól-
um með sanngjörnu verði.
týsson. Mjög mikill hæfileikamað-
ur bæði í ræðu og riti.
—fsafold.
Hinum góða keim er að þakka