Lögberg - 21.08.1919, Page 8
Bls. 8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. ÁGÚST 1919,
ÁBYGGILEG
LJÓS-----------o g-------AFLGJAFI
Vér ábyrgjumst yður varanlega og óslitna
ÞJÓNUSTU
■
Vér æskjum virðingarfylst viðskifta jatnt fyrri VERK-
3M1ÐJUR sem HEIMILI. Tals. Main 9580. CONTRACT
DEPT. Umboðsmaður vor er reiðubúinn að finna yður að
rnáliog gifa yður kostnaðaráællun.
/
Winnipeg ElectricRailway Go.
GENERAL MANAGER
Hver skyldi detta í lukkupottinn?
QUARTER SECTION lands í einni beztu íslendingabygðinni
í Manitoba. Uppskera í héraðinu ávalt góð og land vel fallið
til griparæktar. Hús og gott vatnsból. Alt landið má rækta
horna á milli. —Ekran kostar $15 ef borgað er út 1 hönd.—
Heimkomnir hermenn, sem hafa landbúnað í hyggju, ættu
ekki að sitja af sér þetta ágæta tækifæri..
H. F. Johnston & Co.
310 Confederation Life Bldg.
Phone M. 5895 Winnipeg.
Úr borginni
Dugleg vinnukona óskast í vist
til Mrs. Gibb, 45 Purcell Ave.
Sra Runólfur Runólfsson mess-
ar í Skjaldborg naasta sunnudags-
kveld kl. 7. Allir velkomnir.
Mr. Jón Sigurðsson sveitarodd-
viti frá Víðir, Man., kom til borg-
arinnar í vikunni sem leið.
Mr. Sigurður Kristjánsson frá
Gimli, Man. kom til bæjarins
snöggva ferð í fyrri viku.
Mr. Fritz Erlendsson frá Nar-
xows P. O. Man. kom til bæjarins
i byrjun vikunnar. Hann var að
leita sér lækninga.
Mr. Sigurður Sigfússon, Oak-
ville P. O., Man., hefir nýlega ver-
ið kosinn sveitarstjóri í bygðarlagi
sínu.
O. T. Johnson hefir nú látið af
xitstjórn Heimskringlu, en Gunnl.
Tr. Jónsson fyrrum ritstj. blaðsins
tekið við.
Mr. og Mrs. H. Nordal frá
Leslie, Sask. komu til borgarinnar
ú miðvikudaginn í vikunni sem
leið. — pau ferðuðust í bifreið
Alla leið, og hafa heimsótt flestall-
ar íslendingabygðirnar 1 Manitoba
og létu hið bezta yfir förinni.
Á fimtudaginn 24. júlí voru
þau ungfrú Magnúsína Magnús-
son og Oli Hermann Hanneson,
bæði frá Isafold P. O., gefin sam-
an 5 igónaband af Dr. DuVal að
/39 Donald stræti sér í bæ. Að
,-athöfninni lokinni lögðu hin ungu
hjón af stað heimleiðis í bifreið.
Mr. Skúíi Sigfússon, þingrmaður
'fyrir St. Georges kjördæmið, kom
,til borgarinnar urft miðja fyrri
i verzlunarerindum. Mr.
'Sigfússon er sem betur fer orðinn
heill heilsu eftir byltuna sem hann
fékR fyrir nokkru, og getið hefir
verið áður um héjr í blaðinu.
Mrs. Guðrún Ásmundsson frá
Wynyard, Sask. kom til bæjarins
15. júlí s. 1. og var skorin upp þ.
24. s. m. við innvortis meinsemd af
Dr. B. J. Brandsyni. Uppskurður-
inn hepnaðist vel. Hún er nú
komin á fætur aftur og heilsast
svo vel að hún vonast eftir að geta
farið heim til sín í næsta mánuði.
Mr. og Mrs. Sigurður Christo-
pherson frá Crescent, B. C., ásamt
dóttur þeirra Veigu, komu til bæj-
arins í vikunni sem leið, til þess
að sjá fornar stöðvar og heilsa
upp á vini og vandamenn. pau
fóru til Argyle fyrir helgina, þar
•sem þau hjón bjuggu rausnarbúi
í mörg ár, og dvelja þar hjá syni
aínum um tíma.
Pann 7. þ. m. voru gefin saman
í hjónaband að Mountain, N. D., af
séra K. K. Ólafssyni þau Octavia
Thorwaldson, dóttir Mr. og Mrs.
Elis Thorwaldson kaupmanns á
Mountain og Einar A. Brandson,
sonur Jóns bónda Brandssonar á
Gardar og konu hans Margrétar,
sem dáin er fyrir 19 árum. —
Lögberg óskar til lukku. v
Símskeyti frá Árna Eggertssyni,
dagsett 11. þ. m., kom til Árna
sonar hans hér í bænum á mánu-
daginn var. Var skeytið sent frá
Gullfoss þegar hann var að fara
fram hjá Cape Race. Mr. Eggert-
3on segir í því að Gullfoss hafi
farið frá Reykjavík 9. þ. m. og að
10 farþegar frá fslandi séu með
honum, og að öllum líði vel. —
Enn fremur getur hann þess, að
þeir sem hugsi sér að fara héðan
með Gullfoss heim til íslands með
þessari ferð, ættu að vera reiðu-
búnir að leggja af stað frá Winni-
peg hvenær sem er eftir þann 22.
þ. m. Nánara um það hvenær að
menn þurfi að leggja af stað seg-
ist Mr. Eggertsson síma, undir
eins og hann komi til New York.
En í öðru skeyti frá umboðsmanni
félagsins í New York, Mr. Jóni
Guðbrandssyni, er þess getið að
Gullfoss muni fara frá New York
aftur þann 29. þ. m.
Lawn Social verður haldið í
garðinum við hús H. P. Tergesen
á Gimli á þriðjudagskveldið kem-
ur kl. 8. Verður þar margt til
skemtana, svo sem söngur, ræðu-
böld o. fl. — Ágóðanum verður
varið til styrktar lúterska söfnuð-
inum á Gimli. Munið eftir að
fjölmenna.
Mr. Stefán Ó. Eiríksson frá
Oakville, Man., kom til bæjarins
í vikunni sem leið, úr skemtiferð
vestan frá Kyrrahafsströnd.
Mr. Guðmundur Ólafsson frá
Tantallon kom til bæjarins á
mánudaginn. Hann er einn þeirra,
aem ætla að leggja af stað heim
til íslands með Gullfossi um næstu
mánaðamót.
Minneota Mascot flytur lát
Arngríms Hjörleifssonar. Hann
lézt á Frakklandi í febrúar 1918,
var þar í herþjónustu. — Arngrím-
ur var fæddur í Winnipeg í júlí
1893 og var sonur Mr. og Mrs.
Magnúsar Hjörleifséonar, en
WONDERLAN
THEATRE U
Miðvikudag og fimtudag
HALE HAMILTON
í æfintýraleiknum
Thafs Good”
Föstudag og laugardag
HAROLD LOCKWOOD
í
‘The Great Romance”
Harold at his best
Mánudag og þriðjudag
CHARLIE CHAPLIN
í
“Sunnyside”
ATVINNA
ÍFjórir menn geta nú þegar
fengið vinnu við þreskingu
x nálægt Wynyard. Gott kaup.
| Finnið Árna Thorlacius, 378 1
! Maryland St., Winnipeg.
j____________________________í
fluttist ungur til Minneota og ólst
þar upp hjá Mr. og Mrs. A. John-
son.
Almennur fundur.
Ákveðið hefir verið að kveðja til
almenns íslendingafundar á föstu-
dagskveldið kemur, þann 22. þ. m.,
kl. 7:30 í Skjaldborgarkirkjunni.
Fuijdarefnið er það, að ráðgast
um að fá einhvern hæfan lslending
til þess að sækja um bæjarráðs-
mannsstöðu í þriðju kjördeildinni
—Ward 3, við næstu bæjarstjórn-
arkosningar. — Telja má víst að
fundurinn verði ' fjölsóttur, því
málefnið varðar allan íslenzkan
almenning í borginni.
Aðstoðarnefnd skóla-
ráðs
Jóns Bjarnasonar skóla.
Eg birti hér nöfn þeirra, sem
hafa verið kvaddir í aðstoðarnefnd
skólaráðsins. Eg varð, því miður,
of seint fyrir til þess að koma
þeim í kirkjuþingstíðindin, en
vona samt að það spilli ekki neitt
fyrir málefninu. Sumir þeir, sem
hér eru nefndir, eru sjálfboðar í
þessu starfi; en það voru ekki
sjálfboðar frá öllum söfnuðum,
og varð eg því að taka til minna
ráða með að tilpefna mennina.
Ef einhverjir ekki sjá sér fært að
takast þennan starfa á hendur, vil
eg biðja þá að láta mig vita hið
fyrsta, en bezt væri þá að hver
slíkur benti á annan í sinn stað.
Minnesota.
1 St. Páls s.: Vigfús Anderson,
Minneota.
Vesturheims s.: Sigurbjörn Hof-
teig, Cottonwood.
Lincoln s.: P. V. Peterson, Ivanhoe
North Dakota.
Pembina s.: G. V. Leifur, Pembina
Grafton s.: Mrs. S. Sivertson,
Grafton.
Lúters s.: Stephan Eyjólfsson,
Edinburg; Jón K. Ólafsson,
Garðar.
Víkur s.: P. J. Skjöld, Mountain.
Fjallas.: ólafur Einarsson og
Th. J. Thorleifsson, Milton.
Hallson s.: Daníel Jónsson og
Guðbrandur Erlendsson, Hall-
son.
Péturs s. :Ásgeir J. Sturlaugsson,
Backoo.
Melanktons s.: S. S. Einarsson og
W. S. Hillman, Bantry.
Manitoba.
í Fyrsta lút. söfn., Winnipeg: Mrs.
Hansína Olson.
Skjaldborgar s.: Thorbjörn Tóm-
asson, Winnipeg.
Selkirk s.: Thórður Bjarnason og
Jón J. Ingjaldsson, Selkirk.
Víðiness.: Magnús Hjörleifsson,
Winnipeg Beach.
Gimli s.: Sveinn Björnsson, Gimli.
Árnes s.: Bjarni Pétursson, Árnes.
Breiðuvíkurs.: Gestur Guðmundé-
son, Icelandic River.
Mikleyjars.: Kristján Tómasson,
Hecla.
Bræðra s.: Mrs. Guðrún Briem,
Riverton.
Geysis s.: Eiríkur Bárðarson, Bif-
röst, og Sigurður Friðfinnsson,
Geysir.
Árdals s.: Mrs. Hólmfríður Ingj-
aldsson, Framnes, og Mrs. Guð-
rún Reykdal, Árborg.
Víðir s.: Magnús Jónasson, Víðir.
Frelsiss.: Kristján Helgason og
Sigurdur Antoniusson, Baldur.
Fríkirkju s.: Jón P. Frederickson
og Albert Oliver, Brú.
Immanúels s. (Baldur): Jósef
Daviðsson og Mrs. Björg John-
son, Baldur.
Lundar s.: Séra Jón Jónsson og
Sveinn Jónsson, Lundar.
Grunnavatns s.: Philip Johnson,
Stony Hill, og Lárus E. Thor-
leifsson, Otto, Man.
Jóns Bjarnasonar s.: Jóhannes
Jónsson, Dog Creek.
Betaniu s.: Mrs. Margrét Sigfús-
son, Oak View.
Betels.: ólafur ThorlaciUs, Dolly
Bay.
Sálmabók kirkjg-
félagsins
Nýkomin frá bókbindaranum.
Verð póstfrítt:—
í skrautb., gylt í sniðum $3.00
í skrautb., India pappír 3.00
í bezta morocco bandi.... 2.50
í bezta skrautbandi .... 1.75
Sendið pantanir til
J. J. VOPNI
Box 3144 Winnipeg, Man.
Skálholtss.: Árni Björnsson.
Hólars.: Gísli Johnson, The Nar-
rows.
Herðubreiðar s.: Ágúst Eyjólfsson,
Langruth.
Strandar s.: Jóhannes Baldvins-
son, Beckville.
Trinitatis s.: Ólafur G. Johnson,
ísafold.
Furudals s.: B. G. Thorwaldson,
Piney.
Brandon s.: ólafur ólafsson,
Brandon.
Jóhannesar s.: Jón Halldórsson,
Sinclair.
Swan Rivers.: A. J. Vopni, Har-
lington.
Poplar Park s.: Gestur Jóhatíns-
son, Poplar Park.
Winnipegosis s.:
Odda s.:
Saskatchewan.
Lögbergs s.: Gísli Egilsson, Lög-
berg.
Konkordia s.: Jón Gíslasori, Bred-
enbury.
pingvalla nýlendu s.: Sigurður
Jónsson, Churchbridge.
ísafoldars.: Christian Paulson,
Gerald.
Kristnes s.: J. S. Thorlacius.
Zíons s.: Sigurður Sigurbjörns-
son, Leslie.
Hallgríms s.: Halldór J. Stefáns-
son, Hólar.
Elfros s.: Helgi Pálsson, Elfros.
Sléttu s.: A. A. Johnson, Mozart.
Immanúelss.: Steingrímur John-
son og Thorbergur Halldórsson,
Wynyard.
Ágústínus s.: S. S. Hallgrímsson,
Kandahar.
Alberta.
Edmonton s.: Jón Johnson, Ed-
monton.
British Columbia.
Vancouvers.: Árni Frederickson,
Vancouver.
Crescent s.: Sig. Christopherson,
Crescent.
Washington.
þrenningar s.: Kolbeinn Sæmunds-
son, Point Roberts.
Blaine s.: Hjörtur Sigurðsson,
Blaine.
Hallgríms s.: Séra Jónas A. Sig-
urðsson.
Atvinna.
Reglusamur drengur, sem skrif-
ar góða hönd og er vel að sér í
reikningi getur fengið atvinnu við
bankastörf nú þegar. — Aldur frá
16—17 ára. — parna er tækifæri
fyrir góða framtíðaratvinnu. —
Semjið við
T. E. THORSTEINSON.
bankastj. Royal Bank of Canada.
Cor. William & Sherbrook.
Winnipeg, Man.
pann 6. þ. m. voru eftirfylgjandi
meðlimir Goodtemplarastúkunnar
Skuld settir inn í embætti fyrir
yfirstandandi ársfjórðung, af um-
boðsmanni stúkunnar Ásmundi P.
Jóhannssyni.
F.Æ.T.—Gunnl. P. Jóhannsson.
Æ.T.—Guðmundur Sigurjónsson.
V.T.—Sigurbjörg Benson.
D.—Helga Hallson.
A.Dr.—Mrs. Guðlaug Oddleifsson.
Ritari.—Guðjón Hjaltalín.
A.R.—Guðm. Á. Jóhannsson.
F.R.—Sigurður Oddleifsson.
Gjaldk.—Sofonias Thorkelsson.
Kap.—Ingibjörg Johannesson.
I.V.—Magnús Johnson.
U.V.Johannes Johanson.
Gæzluvörður ungtemplara er nú
Mrs. Cain og organleikari stúk-
unnar Mrs. ísfeld. Ritstjóri stúku-
blaðsins er Mrs. Karolína Dalman.
— Stúkan telur nú 190 meðlimi.
Heldur fundi sína hvert miðviku-
dagskveld í Goodtemplarahúsinu.
G.H.
Hlaupið undir bagga.
Fátækur fjölskyldumaður í Sel-
kirk, sem Magnús T. Johnson heit-
ir hefir. legið lengi á sjúkrahúsinu
i Selkirk, eftir alvarlegan upp-
skurð; hann er nú kominn heim, en
verður ekki fær til vinnu um lang-
an tíma. Heimilið er illa statt,
sem vænta má, þegar fyrirvinnan
fcregst, og ekkert annað á að
treysta, en veturinn kaldur og
vægðarlaus fer í hönd. íslenzku
blöðin veita móttöku því fé, sem
fólk kynni að vilja láta af hendi
rakna, eða senda má það beint til
Th. E. Thorsteinsonar banka-
stjóra, sem góðfúslega hefir lof-
ast til að taka við því. Er alvar-
lega mælst til að vel og drengilega
sé hlaupið undir bagga í þetta
skifti, því þörfin er brýn. —
Vinur.
NÝ BÓK
Brot af landnámssögu Nýja ís-
lands eftir porleif Jóakimsson
(Jackson)
er nú nýprentuð og komin á mark-
aðinn. Bókin er 100 blaðsíður, í
stóru broti, með þrjátíu og þrem-
ur myndum. Innihaldið er bæði
fróðlegt og skemtilegt, og dregur
fram marga hálfgleymda svipi úr
lífi frumbyggjanna, sem hljóta að
vekja athygli lesandans.
Bókin kostar $1.00. — Höfund-
urinn hefir ákveðið að ferðast við
fyrsta tækifæri um íslendinga-
bygðirnar til þess að selja bókina.
— Pöntunum veitt móttaka á
skrifstofu Lögbergs.
LISTI
yfir innkomnar gjafir fyrir piano
það, sem keypt hefir verið af ís-
lendingum fyrir Ward B., Tuxedo
Hospital, Winnipeg.
Áður auglýst .......... $405.30
Frá Wynyard, Sask.:
V. B. Hallgrímsson ...... $1.00
G. A. Goodman............. 1.00
S. Sigurdson ............. 1.00
C. B. Johnson ............ 1.00
S. B. Johnson ............ 1.00
Sveinn Oddson ............ 1.00
Jónas P. Eyjólfsson ...... 1.00
O. Stefánsson ........... 1..00
F. Bjarnason ............. 1.00
Ónefndur ................. 1.00
B. A. Einarson........... 1..00
Thordur Axdal ............ 2.00
Frá Elfros, Sask.
A. Kristinson ........... $1.00
J. J. Sturlaugson ........ 2.00
John Peterson ............ 1.00
G. F. Gíslason........... 1..00
J. H. Goodmundson ........ 2.00
H. B. Einarson............ 1.00
O. O. Johannson .......... 2.00
B. T. Bjarnason .......... 2.00
L. Bjarnason ............. 1.00
Karl Kjernested, Oak View 0.30
Frá Ashern, Man.:
T. J. Clemens ............ 1.00
G. Arnason .......’....... 1.00
B. Methusalemson ......... 1.00
G. Péturson .............. 2.00
Gísli Johnson ............ 1.00
Gustaf Kernested ......... 1.00
B. Jónasson .............. 1.00
G. Sigurdson ............. 0.50
Frá Winnipeg:
Arngrímur Johnson ....... $2.00
Mrs. G. Goodman ........... 2.00
J. G. S. Sigbjörnsson ..... 0.25
G. H. Sigbjörnsson ........ 0.25
J. L. Sigbjörnsson ........ 0.25
Samtals.......$444.85
T. E. Thorsteinson.
Wonderland.
Myndirnar á Wonderland þessa
viku, verða margfalt betri en
nokkru sinni áður, þótt oft hafi
verið úr mörgu góðu að velja. Á
miðviku og fimtudag gefst mönn-
um kostur á að sjá leikinn “The
Great Romance”, og leikur Harold
Lockwood aðalhlutverkið. Einnig
geta menn skemt sér við að horfa
á Charlie Chaplin í hinum stór-
fræga leik “Sunny Side” og Harry
Carey í “Riders of Vengeance”.
Einnig hefir Viola Dana með
höndum aðalhlutverkið. Loks má
nefna leikinn “The Code of the
Yukon”. Næstu viku koma fram
á sjónarsviðið Priscilla Dean,
May Allison, Anita Stewart og
Monroe Salisbury.
Orpheum.
Skemtiskráin á Orpheum vikuna
sem byrjar 25. ágúst, verður alveg
einstök í sinni röð. par syngja
meðal annars Carl Jarn, einhver
allra frægasti tenorsöngvari hjá
Metropolitan Operafélaginu í
New York, og Covent Garden frá
London. Auk þess verða sýnd
allra nýjustu fyrirbrigði í dans-
listinni, sem marga mun fýsa að
kynnast. Einnig verðq þarna til
staðar frægir belgiskir leikarar,
synir og dætur, hinnar ógleyman-
legu hetjuþjóðar, er svo óviðjafn-
anlegan kjark sýndi í stríðinu
mikla.
parna er svo fjölbreytt skemti-
skrá, að slíkt mun næsta sjaldgæft
1 þessari borg.
pess er hér með óskað, að Guð-
mundur Anderson, áður að 879
Sherburn St., komist í samband
við mig það fyrsta. Eg hefi pen-
inga handa honum.
E. G. TRICK.
504 Mclntyre Block, Winnipeg.
Sími M. 3040.
HEILSUBÓT
án uppskurðar eða lyfja.
Ertu þjáður af höfuðverk eða
uppþembingi? Er nokkurt ólag á
lifrinni, nýrunum, eða innýflun-
um yfirleitt?
Finnið:
Dr. Martha Belle Flaming
Chiroproctor,
402 Bank of Nova Scotia.
Viðtalstími frá kl. 10:30—1
og 3—6, nema á laugardögum.
Þegar þér þarfnist
Prentunar
Þá lítið inn eðaskrifið til
The Columbia Press
Limited 4
I
sem mun fullnægja þörfum yðar.
Atvinna fyrir
Drengi og Stúlkur
Pa8 er all-mlkill skortur ft
skrifstofufölki 1 WinnipeB um
þessar mundir.
HundruB pllta og stúlkna þarf
til þesa atS fullnæKja þörfum
Lærið & SUCCESS BUSIKESS
COLIiEGE — hlnum alþekta 4-
reiBanlega skðla. A slBustu tðlf
mánuBum hefBum vér getaS séB
583 Stenographers, Bookkeepers
Typists og Comtometer plltum
og stúlkum fyrlr atvinnu. Hvers
vegna leita 90 per cent tll okkar
þegar skrifstofu hjálp vantar?
Hversvegna fáum vér miklu
fleiri nemendur, heldur en allir
verzlunarskðlar i Manitoba til
Ísamans? Hversvdgna sækir efni-
legast fðlkiB úr íylkjum Canada
og úr Bandaríkjunum til Success
skðlans? AuBvitaB vegna þess
I aB kenslan er fullkomin og 4-
I byggileg. MeB þvl aB hafa þrlsv-
| ar sinnum elns marga kennara
og allir hinir verzlunarskólarn-
lr, þá. getum vér vettt nemendum
rneiri nákvæmnl.—Success skðl-
inn er hinn einl er heflr fyrlr
kennara, ex-court reporter, og
chartered acountant sem gefur
sig allan viB starfinu. og auk
þess fyrverandi embættismann
mentamáladeildar Manitobafylk-
ts. Vér útskrifum lang-flesta
nemendur og höfum flesta gull-
medallumenn, og vér sjáum eigi
elnungis vorum nemendum fyrir
atvinnu, heldur einftig mörgum,
er hinir skðlarnir hafa vanrækt.
Vér höfum 1 gangi 150 typwrit-
ers, fleiri heldur en allir hlnlr
skðlarnir til samans hafa; auk
þess Comptometers, samlagning-
arvélar o. s. frv. — HeilbrigBis-
málanefnd Winnlpeg borgar hef
ir lokiS lofsorBi á húsakynni vor.
Enda eru herbergln björt, stðr
og loftgðB, og aldrel of fylt, eins
og vlSa sést I hinum smærri skðl
um. SækiS um lnngöngu vlB
fyrstu hentugleika—kensla hvort
sem vera vill 4 daginn, eBa aB |
kveldtnu. MunlB þaB aB þér mun- !
( uð vinna yfiur vel áfram, og öBl- I
| ast forréttindi og viBurkenningu I
| ef þér sæklS verzlunarþekking !
I yBar á i
SUCCESSÍ
Business College Limited |
Cor. Portage Ave. & Edmonton |
(Belnt á mðti Boyd Block) j
. TALSlMI M. 1664—1665. í
Allan Línan.
StöSugar siglingar á milli I
Canada og Bretlands, meB
nýjum 15,000 smál. skipum
“Melita” og '‘Minnefosa”, er
smíBuS voru 1918. — SemjiB ]
um fyrirfram borgaBa far-
seBla strax, til þess þér getiB I
náB til frænda yBar og vina, |
sem fyrst. — VerB frá Bret-
landi og til Winnipeg J81.25. ]
Frekari upplýsingar hjá
H. S. BARDAL,
892 Sherbrook Street
Winnlpeg, Man.
|The London and New York
Tailoring Co.
paulæfðir klæðskerar á
! karla og kvenna f atnað. Sér- i
j fræðingar í loðfata gerð. Loð-
(föt geymd yfir sumartímann'.
| Verkstofa:
1842 Sherbrooke St., Winnipeg.
Phone Garry 2338.
Auglýsið
í Lögbergi
það bórgar sig
» .... /
The Wellington Grocery
Company
Corner Wellington & Victor
Phone Garry 2681
License No. 5-9103
Hefir beztu matvörur á boðstól-
um með sanngjömu verði.
Lögberg er ódýrasta
blaðið, kaupið það.
peir sem kynnu að koma til
borgarinna nú um þetssar mundir
ættu að lieimsækja okkur viðvík-
andi Iegsteinum. — Við fengum
3 vagnhlöss frá Bandaríkjunum
núna í vikunni sem leið og verð-
i/r því mikið að velja úr fyrst um
sinn.
A. S. Bardal,
843 Sherbrookf St- Winnipeg.