Lögberg - 18.12.1919, Qupperneq 1

Lögberg - 18.12.1919, Qupperneq 1
I JOLABLAD 191 32. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 18. DESFMBER 1919 NÚMER 51 Eftir Dr. JÓN BJARNASON--Fluttur að Gimli 1877. DAG er gleðihátíð kristinna manna, j því í dag minnast þeir þess, að syndur- | unum er frejeari fæddur, guðs son,' 1 I drottinn Jesús Kristur. í dag eru all- lllHMIilllllllié. , * , ir, sem heyra eða lesa jolaevangehum vort, kvaiddir til að l'agna og vera glaðir yfir því, að guð hafi orðið maður, tekið upp á sig syndabyrði Adams barna og losað kynslóð vora við reiði hins réttláta um alla eitlífð. í dag hljómar himnesk rödd í eyrum vorum, um leið og vér minnumst bamsins nýfædda í Betlehem, þar sem það liggur í jötunm, sem segir, að vér skulum ekki óttast, því í dag sé oss fæddur frelsari, frelsari frá synd og sorg, þjáningum og dauða, eymd og örvænting, og að þetta mikla fagnaðarefni muni veitast öllu fólki. f dag fáum vér að heyra, að kristnir menn eru ekki kallaðir til þess aðeins að sýta og gráta, ekki til þess að skoða heim þennan, þennan vorn jarð- neska bústað, að eins sem eymdar dal, aðsetur myrkra, mótlætis og von'eysis, ekki til þess að ganga með sífeldan ótta í hjartanu fyrir örlög- um sínum bæði hérna og hinum megin grafar- innar, heldur þvert á móti til að fagna og ganga lofsyngjandi gegn um lífið, hrósandi sigri yfir því himneska ljósi, sem á fæðingarstund Jesú Krists uipprann heiminum, yfir þeim friði á jörðu og guðs velþóknan yfir mönnunum, sem hinar himnesku hersveitir lofuðu guð fyrir á hinni fyrstu kristilegu jólanóttu. f dag fagna allir kristnir menn, sem annars halda nokkra sérstaka jólahátíð, hinum nýfædda frelsara. Mitt í eymd sinni og óláni sakir syndarinnar lofsyugja kristin böm trúarinnar víðsvegar um heiminn drotni í dag fyrir frið þann, sem Jesús flutti öllu fólki frá föðumum á himnum. Vér, sem hér höfum safnast saman, skulum líka reyna að vera með að lofsyngja lausnar- anum á þessum degi, því sé annars trúin í hjört- um vorum, þá hljótum einnig vér, hversu margt og mikið, sem annars kann að vera að hér hjá oss, að finna til þess, að Jesú fæðjng er oss sannarlegt, já óendanlegt gleðiefni. Honum.til dýrðar skulum vér þá hafa yfir þennan fagra jólasálm: “'Hin fegursta rósin er fundin, og fagnaðar-sæl komin stundin, v er frelsarinn fæddist á jörðu; hann fanst meðal þymanna hörðu.” Vér lesum í guðspjallinu, að á fæðingar- nóttu Jesú Krists hafi engill drottins birst fjár- hirðumnum, sem vöktu yfir hjörð sinni rétt fyrir utan Betlehem, og sagt við þá: óttist ekki, því eg flyt yður mikinn fögnuð, sem veit- ast mun öllu fólki, því í dag er yður frelsari fæddur. Orsökin til þess að hjarðmenn þessir urðu hræddir, var sú, að birta drottins ljómaði í kring um þá. Heimurinn fékk hér himneskt tákn, merki þess, að mannkynsins endurfæð- ingarstund var komin, merki þess, að sól rétt- lætisins væri fyrir fult og fast tekin til að skína á jörðina. Postulinn Páll fékk viðlíka tákn á smni endurfæðingar-stund, á því augnabliki, þegar Jesús Kristur fæddist í sálu hans. Hann var á leiðinni til Damaskus, þegar skyndilega leiftraði ljós af himni yfir hann. Hann féll til jarðar, heyrði rödd drottins, hætti að spyma móti broddunum og trúði. Hvortveggja at- ' burður er fyrirmyndan þess Ijóss, þeirrar himn- esku birtu, sem Ijómar inn i sálu hvers þess manns, sem fær Krist inn í hjarta sitt. Án Jesú Krists er heimurinn í myrkri, og sama er að segja um hverja einstaka sál, sem ekki nær að endurfæðast fyrir trúna á hið kristilega ev- angelíum. En hvernig verkar nú þetta ljós, sem tók til að skína fyrir fult og fast i heimin- um með holdtekju guðs sonar? Hver áhrif hefir birta kristindómsins á hjarta mannsins? það sjáum vér fyrst á hjarðmönnunum. Um þá segir guðspjallamaðurinn, að þeir hafi orðið næsta hræddir; og hin fyrsta verkun, sem hið himneska ljós Jesú Krists hafði á postulann Pál, var að hann datt til jarðar. En undir eins og hann fékk ráðrúm til að gefa drotni hjarta sitt, hafði sjálfur ákvarðað sig til trúarinnar, reis hann upp og barðist hugrakkur fyrir frels- ara sinn og með frelsara sínuirn þaðan í frá. Eins tekur engill drottins brátt allan óttann úr hjarta hjarðmannanna. óttist ekki, segir hann, því í dag er yður frelsari fæddur, og eftir það fóru þeir í skyndi inn í bæinn til að sjá at- burð þann, sem guð hafði kunngjört þeim, fundu Maríu og Jósef og bamið liggjanda í jöt- unni, sneru síðan aftur og lofuðu guð. Kristur getur ekki fæðst í hjarta mannsins, nema fyrir iðrun og trú. Fyrst þarf það að ganga upp fyrir manni, að hann sé þræll syndarinnar. Mað- ur þarf að verða “næsta hræddur”, skelfast af andlegu ástandi sínu; maður þarf að falla til jarðar eins og postulinn PáU, hníga niður undir syndabyrði sinni, líta sjálfan sig í sinni eymd um leið og drottinn himnanna stendur frammi fyrir manni í sinni dýrð. petta er iðrunin, en það, sem skapar í oss andá iðrunarinnar, er lög- mál drottins. pegar lögmálið var útgefið á Sínaí-fjalli forðum, þá fylgdu þar með reiðar- þruuiur og eldingar. Alt fjallið lék á reiði- skjálfi. pessi umbrot í náttúrunni, sem sam- fara voru opinberan lögmálsins, eru með réttu að skoða sem fyrirmyndan þeirrar hugarhrær- ingar, þess ótta og skelfingar,er þetta sama lög- mál verður að verka í manninum, áður en hann getur haft gagn af fagnaðarboðskapnum um endurlausnarverkið. Sá getur ekki glaðst af Jesú Kristi, sem ekki hefir áður fundið til sorg- ar yfir því að vera hjálparlaus, fundið til ótta yfir því að vera einmana, mist alla trú á mátt og megin sinnar eigin náttúru. Sá getur ekki lofað guð fyrir það að mega vera í himnaríki, eður með öðrum orðum heyra lausnaranum Jesú Kristi til, sem ekki hefir reynt, að það er sárt, að standa fyrir utan dyrnar. Sá getur ekki fundið til fagnaðar yfir því að frelsari sé fæddur, sem ekki hefir haft neina sorg yfir sínu andlega ástandi. Eins og lögmálið þarf að ganga á undan evangelíinu, eins verður iðr- unin að ganga á undan trúnni. Heilbrigðir þurfa ekki læknis við , heidur þeir, sem sjúkir eru. Meira að segja: hinn gamli maður í oss þarf að særast til ólífis, ef hinn nýi, Jeeús Kristur, á að geta fæðst og lífi haldið í sálum vorum. pessi sami sannleikur gildir og með tilliti til mannkynsins yfir höfuð. Heiminum gat ekki fæðst frelsari, gat ekki haft neitt gagn af guðdóndegu endurlausnarverki, fyr en hann hafði fundið til þess, fyr en hann sjálfur hafði áþreifanlega sýnt það og sannað, að hann gat enga björg sér veitt í andlegu tilliti. Saga hinna mentuðu heiðingja í fornöld fyrir fæð- ingu Jesú Krists, Grikkja og Rómverja, sann- færði þá og síðan allan heiminn um að mann- kynið hefir engan mátt til að losa sig úr þræl- dómi og eymd hinnar almennu spil'ingar, því sð þess meir sem mentun og íþróttir blómguð- tst hjá þessum þjóðum, þess meir óx guðleysið ♦g siðaspillingin og þess huggunarlausari varð dmenningur á tíma neyðarinnar, sorgarinnar cg dauðans. Og því aumara sem fólksins á- stand varð, því meira fann það til þarfarinnar é hjálp'af hæðum. Hjápin kom líka þegar nest lá á. Á stjórnarárum Ágústusar keisara, æm í nafni Rómverja réði yfir öllum menta- bndum fornaldarinnar, var aðventu-tími mann- lynsins úti. Fjöldi heiðingja var þá orðinn lægilega undirbúinn til að geta séð sína eigin iynd. pá er tíminn kominn fyrir guð til að láta jós hins eilífa Orðs skína úr myrkri. pá er ími fyrir mannkynið til að beygja sig niður að Larninu í jötunni í Betlehem og leita þar friðar lyrir tíma og eilífð. pá er tími fyrir þjóðirnar dfiié°Vei ög'íunar^eiilstöku sálir meðai þeiri'a tií að veita kristindóminum viðtöku. Nú ljómar birta drottins ekki að eins umhverfis hjarð- mennina í bygðarlaginu við Betlehem, heldur og inn í ótal angistarfull hjörtu meðal æðri og lægri stétta — sem allar fundu jafnt til þarf- arinnar á guðdómlegri endurlausn—, og í allra þessara manna eyrum hljóma sömu orð og þau, er engillinn færði fjárhirðunum á fæðingar- nóttu drottins: Óttist ekki, því eg flyt yður mikinn fögnuð, er veitast mun öllu fólki, því í dag er yður frelæsari fæddur, sem er drottinn Kristur. pess má geta, að fjölda margir heið- ingjar höfðu þegar áður en kristindónruinn var þeim prédikaður, fullkomlega þekt til þunga lögmálsins á herðum fínum, því þótt ekki hefðu þeir lögmál það, sem drottinn gaf fsraelsmönn- um, var samvizka þeirra í mörgum tilfellum nægilegur typtunarmeistari til Krists, svo þeg- ar kristindómurinn er þeim fyrst boðaður, þurfa þeir engan undirbúning að hafa, heldur geta rakleiðis vai-pað sér í miskunnarfaðm hans, er sendur var til að endurleysa syndar- ana. pegar áður en drottinn Jesús hittir þá, eru þeir dottnir ti’ jarðar, svo hann þarf að einsv að reisa þá á fætur. Hefir birta drottins ekki oft ljómað inn í sálu þína, maður eða kona? Hefir ljós krist- indómsins ekki aftur og aftur ljómað umhverf- is þig? Hefir ekki himnesk rödd, rödd heilags anda í guðs orði, margoft sagt þér, að öllu fólki sé frelsari fæddur? Vissulega, hversu dauft sem ljós kristilegrar kirkju kann að hafa logað víða heima á fslandi á þessum síðustu tímum, þá er þó svo mikið víst, að öllum, sem hér eru. hlýtur að vera al-kunnugur fagnaðarboðskapur jólahátíðarinnar. En við hinu þykir mér hætt- ara, að margir geti ekki fundið til þess, að sér, sínu eigin hjarta, sé frelsari fæddur, af því að þeir þekkja ekki eða athuga ekki skilyrði fyrir því, að hver einstök sál geti haft not af komu Jesú Krists hingað í heiminn. Eg geng hér út frá minni eigin andlegu reynslu. Eg hefi oft ekki getað fundið frið í guði, ekki getað huggað mig við endurlausnarverk frelsarans. ekki getað glaðst í trúnni á J. Kr., af því að hjarta mitt hefir ekki getað fengið af sér að koma allslaust af öllu góðu, með ekkert annað en ófullkomleika sinn fram fyrir drottin. Mér hefir gleymst það, tilfinning mín hefir átt svo bágt með að trúa því, að enginn á erindi til Jesú með annað en synd sína og ranglæti, og að svo lengi sem maður býður Jesú nokkuð annað, fetur maður aldrei komist inn í himnaríki eða samfélag trú- aðra. Er ekki svona ástatt fyrir mörgum yð- ar, sem í dag leitist við að fagna fæðing Jesú Krists? Hafið þér nokkra virkilega gleði yfir því að yður sé fæddur frelsari ? Getið þér bú- ist við að fá gengið heim af þessum samfundi vorum lofandi guð eins og fjárhirðamir, þegar þeir höfðu með eigin augum séð að frelsarinn var virkiilega fædclur og alt var svo sem eng- illinn hafði kunngjört þeim? pað getið þér ekki, nema þér annað hvort áður en þér komuð hingað eða að minsta kosti áður en vér slítum gusþjónustufundi þessum hafið fengið augun upp ekki að eins fyrir því að þér eruð aumir, syndugir og vanmáttugir, heldur og fyrir því, að þér megið ekki bjóða drotni neitt annað en eymd yðar, synd og vanmátt. pér þurfið að nálgast drottin að eins með ranglæti yðar, að eins með það hjá sjálfum yður, sem veldur yður ótta og skelfingar. Ef þér viljið leita drottins sem frelsara yðar, ef þér eigið að geta fagnað yfir því að yður sé frelsari fæddur, þá má hug- ur yðar ekki festa sig við neitt annað hjá sjálf- um yður en það, sem þér þurfið að frelsast frá. pað sem kallað er dygð hjá þér eða mér, má ekki 'kdttta "til greina frammi fyrir frelsaranum. Drottinn Jesús er kominn í heim þennan til þess að guð verði alt í öllu. Ætlirðu sjálfur að byrja betrunar-verk þitt og að eins fá hjálp eða að- stoð hjá Jesú Kristi, þá kemstu enga leið. Jes- ús Kristur verður sjálfur að byr.ja og fullkomna viðreisn þinnar andlegu náttúru. Alt er ó- mögulegt, nema þú fallir tií jarðar með postul- anum Páli, og biðjir Jesúm að meðtaka þig að eins sem syndara. pá fyrst fær þú heyrt rödd engilsins: Óttast ekki, þér er frelsari fæddur. Ef eg ætti að svara upp á þá spuming, hvað mest stendur íslendingum fyrir þrifum, þá myndi eg segja: pað, að svo margir af þeim oftreysta mætti sínum og megin í sáluhjálpar- málum sínum, en þar á móti vantreysta mætti sínum í veraldlegu tilliti. Menn eru ónýtir í því að hjálpa sér sjálfir líkamanum til fram- færis, en finna sig alt of sjálfbjarga til að ann- ast sálu sína. Menn finna oft sárt til þarfar- innar á endurlausn eða frelsun úr líkamlegri neyð, úr jarðneskum bágindum, en miklu síður til þarfarinnar á endurlausn úr fjötrum synd- arinnar, endurlausn frá hinum andlegu bág- indum, endurlausn frá eilífum dauða. pað er merkilegt, að þótt þjóð vor hafi nálega alla sína æfi lifað á sannarlegum lögmáls-tíma, þá virð- ist almenningur varla neitt móttækilegri fyrir evangelíum Jesú Krists nú en fyrst þegar birta drottins ljómaði í landi voru. Gefi guð nú, að það, sem fólk þetta hefir gegn um gengið, síð- an það flutti úr sínum fomu átthögum, fái vak- ið löngun í mörgum hjörtum eftir endurlausn- ara frá synd og andlegum dauða.. Gefi guð, að birta drottins fái ljómað skært í kring um alla menn, karla og konur, í þessari nýlendu, svo þeir geti litið dýrð hins heilaga og réttláta, og um leið hræðst andlegt ástand sitt. pá mun ekki líða á löngu, að jóla-evangelíið verður hljóðbært hér hjá oss og menn í hverju hreysi heyra með sama fögnuði og hjarðmennimir forðum rödd engilsins: óttist ekki, — eg flyt yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllu fólki, því yður er frelsari fæddur. pá mun trúin a Jesúm Krist fyrir alvöru taka sér bústað i hjörtum manna, og almenningur mun þá finna til þess, að drottins friður er kominn ofan á jörðina og að velþóknan guðs hvílir yfir mann- kyninu. pá munu menn sannfærast um, að guð elskar syndarana og býður þeim alla sína bless- un í Jesú Kristi. Komið, komum allir til ljóssins, þess himn- eska ljóss, sem enn ljónuar frá barninu í Betle- hem með sömu birtu og á postula-tímabili kirkj- unnar. Verum með þeim heilaga skara, sem á vorri öld flýr til drottins miskunnar í Jesú Kristi og daglega leitar sálum sínum friðar í hans faðmi. Með frelsarann í hjartanu þarf enginn neitt að óttast. Menn fá þá hug og á- ræði til að rífa sig fram úr bágindum og basli þessa jarðneska lífs. Menn fá þá kjark til að bera sorgir og sjúkdóma. Menn hafa þá líf í dauðanum. Sá, sem trúir á Jesúm, óttast ekki, því hann veit að honum er frelsari fæddur.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.