Lögberg - 09.06.1921, Side 6
Bie. 6
*
LÖGBERG, FIMTUÐAGINN,
9. JÚNÍ, 1921.
! PERCY
og
HARRIET
Eftir frú Georgia Sheldon.
“Við sátum og vorum að tala um yður, ein-
mitt núna,” sagði hún glaðlega. “Lítið þér
á Helenu hve frískleg hún er. Ungi læknirinn
okkar, sem hlynti að Helenu í gær, er nýfarinn,
hann sagði að hún yrði jafngóð að fáum dög-
um liðnum.”
Frúin sagði þetta aðallega til 'þess, að Hel-
en fengi tíma til að jafna sig. Hún leit nú upp
hrsandi og sagði, um leið og hún rétti homim
hendi sína: “Það er afar leiðinlegt að þurfa
að sitja inni í þessu góða veðri. Eg þrái að
geta riðið mér til skemtunar á þeim jarpa.”
“ Eg vona að þér getið j>að bráðlega,” sagði
lávarðurinn og þrýsti hendi hennar innilega.
“Sá jarpi er í liesthúsinu og þarfnast hreyf-
ingar, og eg þrái mína vanalegu fylgdarmey.
Mér lá við að biðja Bellu að vera með mér í
morgun.”
“Ó, þér megið ómögulega vekja slíkar hug-
sjónir hjá henni,” sagði frúin. “Hún er nógu
trylt án þeirra. Eg yrði hrædd um hana á
baki þess jarpa.”
“Eg var líka hræddur um aðþér vilduð það
ekki, og þess vegna hætti eg við það,” sagði lá-
varðurinn hlægjandi. “En satt að segja þarf
unga stirlkan eitthvað til að skemta sér við.
Hún á enga jafnaldra hér, svo það er eðlilegt
að hújj villist inn á ranga braut, þegar hún er
ein á ferð. Hún verður gð finna upp á ýmsu
til að stytta tímann með, svo hún losni við að fá
heimþrá, á meðan við skemtum okkur eftir eig-
in vild.”
“Bella var yngsta dóttir frúarinnar, gáfuð,
fjörug, dálítið sérlynd, á fimtánda árinu. Hún
var eldri systir sinni til ama, með hreinskilna,
sannleikselska eðli sínu, sem alt af rakst á Hel-
enar lævísu og hræsni^blönduðu stefnur. Hún
hikaði aldrei rfð að segja meiningu sína við
hvert tækifæri. Og að hún gat oft lesið í
huga hennar, var ekki viðfeldið fyrir ungu
stúikuna Móðir hennar fanst hún stundum
allerfið, þar eð hún vissi ekki livað hún átti að
gera við hana, og koma henni fyrir í fæðisskóla,
en jafnframt sá hún. að hegðun hennar á þessum
aldri var henni ekki hentug.
Þann tíma se mhún var í Osterby Park, var
þar engin jafnaldra hennar. og hún vissi oft
ekki hvemig hún átti að eýða tímanum. Þeg-
ar hún var með Sir Nelson Hartvell, var hún
alt af kurteis og glöð, því hjá lionum fann hún
andlegan skyldleika. Hún var sannfærð um að
hann var sannleikselskur og göfugur, og revndi
gera henni dvölina þar eins skemtilega og hann
gat, án þess að neitt 'ljótt lægi á 'bak við.
Þegar hann fann að eiuhverju eða áminti
hana, tók hún því alt af á réttan hátt, því hún
vissi að hann vildi sér vel.
“Hún ætti að læra eitthvað ákveðið á hverj-
um degi,” svaraði frúin orðum Nelsons. “Eg
hefi að hálfu leyt löngun til að auglýsa eftir
ungum kvenkennara, sem jafnframt gæti verið
henni til skemtunar og annast hana.”
“Eg held það sé gott áform, frú,” svaraði
ungi maðurinn. “Eg er viss um að Bella
þarfnast starfsemi eins mikið og félagsskapar.”
“Þér segið satt. Þökk fyrir að þér styð-
jið þessn hugsun. Eg ska'l auglýsa í dag,”
sagði frúin ákveðin.
Lávarður Nelson fór nú að tala við Helen.
Litlu síðar voru þau að áforma skemtiferð, einn
af fyrstu dögum næstu viku.
12. Kapítuli.
“Ung stúlka, átján eða nátján ára, sem
hefir lokið námi sínu, óskast sem kennari og fé-
lagssystir ungrar stúlku á fimtánda árinu. Hún
verður að hafa góð meðmæli, bæði fyrir dugn-
að og lundarfar. Hún kemur annaðhvort
sjálf eða skrifar til nr. 4, Hyde Park Comer,
London, einhvern daginn í síðustu viku júní-
mánaðar milli tólf og tvö.
Þetta var auglýsingin sem Harriet Gays
vaYð litið á í blaðinu um miðjan júní.
“Eg held að þetta eigi vel við mig.” sagði
hún við sjál£g sig.
Hún las auglýsinguna aftur, og sat svo
lengi þegjandi og hugsaði.
“Eg ætla að gea það,” sagði hún að síð-
ustu, klipti svo auglýsinguna úr blaðinu og
stakk henni í vasa sinn.
Að tveim vikum liðnum átti hún að taka
burtfararpróf úr skólanum, sem hún hafði
stundað nám í um mörg ár.
Hún hafði oft spurt sjálfa sig: “Hvað á
eg að gera þegar námstími minn endarl”
Hún mundi að Percy hefði sagt að hann
skyldi veita henni heimili, og að þau skyldu búa
saman. Hún hafði glatt sig yfir þessu til-
vonandi ásigkomulagi, en nú voru skoðanir henn
ar orðnar breyttar. Hún var farin að skilja
að þetta mátti ekki eiga sér stað.
Hún hafði altaf kallað sig systir Percy og
talað um hann sem bróðir við skólasystur sínar.
Hún hafði líka alt af farið að ráðum hans. Alt
öðruvísi var ástatt með Percy. Eftir því sem
órin liðu og Harriet varð eldri og fegurri, var
hann glaður yfir því að hún var ekki í ætt við
hann. Hann fann nefnilega að hann elskaði
hana, og ásetti sér að giftast henni, þegar hún
hefði lokið námi sínu.
1 byrjun síðasta skólaárs hennar, heimsótti
hann hana til þess að dvelja hjá henni tvær eða
þrjár stundir. Hann hafði með sér lítið
yndislegt úr, sem hann vissi að hún þráði.
Harriet var yfirburða glöð yfir gjöfinni,
lagði hendur sínar á axlir hans og kysti hann.
“Þú ert sá bezti bróðir sem til er í heim-
inum,” sagði hún glöð.
Hann roðnaði og í augum hans var von-
brigða svpiur og hrygð.
Orð hennar vöktu hjá honum þá kveljandi
hræðslu, að hún gæti aldrei elskað hann nema
sem bróðii'.
Hann fjarlægðist hana ofurlítið ósjálfrátt.
“En, Harriet, eg er, eins og því veizt, ekki
sannur bróðir þinn,” sagði hann dauflega.
Hún varð skelkuð yfir því, hvernið hann
sagði þetta; gleði hennar hvarf og roðinn úr
kinnum hennar líka.
Hafði hún gert nokkuð sem var óviðeig-
andi? Áleit hann það rangt, að framkoma
bennar var svo frjálsleg.
Hún vissi að hann var ekki bróðir hennar
í raun og veru. En hann var henni svo góð-
ur, að hún elskaði hann sem slíkan, og hún var
sannfærð um, að eugin systir elskaði bróður
sinn heitar en hún elskaði Percy. Ogþví mátti
hún þá ekki láta þessa elsku í ljósi?”
En svo fékk hún nýjan taugaskjálfta, verri
en hinn fyrri. Henni datt nýtt í hug.
Elskaði hún Percy, að eins sem systir?
Var þessi sterka ást hennar til hans, ekki annað
en ættartilfinning.?
Nei, hún var mklu heitari og innilegri. Þeg-
ar hún varð þessa vör, kvaldi sú hugsun hana,
að hún hefði látið þetta í Ijósi óafvitandi, og
að Percy hefði álitið það nauðsynlegt að ásaka
hana.
En sjálfsálit hennar bannaði henni að láta
þetta hugsanastríð koma í ljós . Andlit hennar
blóðroðnaði og fölnaði svo, meðan hún með ró-
legum og auðmjúkum svip sagði: “Eg veit það,
Percy; en þú hefr alt af verið mér svo góður,
að eg hefi ekki getað skoðað þig á annan hótt
en sem bróður.’
Hann langaði til að taka hana í faðm sinn
og segja henni, hve heitt hann elskaði hana, og
reyna að vekja hjá henni ást á sér.
En nei, hann áleit réttast að bíða með það,
þangað til að hún hefði lokið námi sínu, þá ætl-
aði hann að biðja hana að verða konu sína.
En sér óafvitandi hafði hann við þetta tæki-
færi gert misgrip, sem hann hefði viljað end-
urbæta með öllum eigum sínum. ef hann hefði
vitað það.
Þetta atvik féll Harriet afarilla. Áður
var hún gæfuríkt barn, en nú var hún þjáð
stúlka. Bardaginn sem hún háði við sjálfa sig,
varð orsök þess, að hún gat ekki tekið á móti
Percy í næsta skifti sem hann heimsótti hana.
Þegar þau fundust næst, varð hann mjög hnugg-
inn vfir því hve veikluleg hún var.
Hún var föl og þreytuleg, en róleg og fá-
orð.
Hann eignaði heylsuleysi hennar þessa um-
breyting.
Hún rétti honum hendi sína, en ekki varirn-
ar, eins og hún var vön, og þegar hann laut nið-
ur til að kyssa hana, þá snéri hún fölu kinninni
að honum.
Horium féll þett illa, en það gaf honum
engan grun um orsök breytinganna.
Hún fór svo að spyrja hann um starf hans
og líðan í Kingston, svo hann fékk engan tíma
til að tala um annað.
Hann var órólegur þegar hann fór, og ó-
róinn óx með tímanum.
“Þetta síðasta ár hefir vTerið þér erfitt
Harriett/’ sagði hann einu sinni. “Eg held
þú gefist upp.”
“Nei, Percy. Eg er alveg heilbrigð,” svar-
aði hún áköf. “Eg hefi mikinn áhuga á námi
mínu, og vona að fá góðan vitnisburð.”
“Eg er nú samt hiálfhræddur um þig,” sagði
hann. “Mér hefir fundist þú mjög breytt þessa
síðustu mánuði.”
Harriet varð mjög bilt við. Hún vildi ó-
mögulega að hann fengi að vita orsök breyting-
arinnar.
“Eg er máske orðin of gömul nú, til að
vera eins fjörug og eg var,” sagði hún hlægj-
andi.
“Eg skal vera glaður þegar alt er afstaðið
sagði hann, “þegar eg get fengið þig eingöngu
handa sjálfum mér. Þá skalt þú ríða þér til
hressingar og skemtunar á hVerjum degi, og þá
fáum við að sjá hvort fölnuðu rósirnar í kinn-
um þínum lifna ekki aftur. Hve mörg her-
bergi heldur þú að við þurfum kæra, Harriet?”
Hún blóðroðnaði við þessa spurningu.
‘ ‘ f*að vil eg ekki, og get heldur ekki hugsað um
fyr en eg hefi lokið skólanáminu.”
Hann gat ekki fengið neitt 'betur fullnægj-
andi svar hjá henni, íþó hann reyndi það nokkr-
um sinnum. Hann var mjög hryggur yfir
þeirri tilfinningu, að vita að hún fjarlægðist
hann meir og meir — að einhver hindrun var
á milli þeirra, sem hann var ekki fær um að fjar-
lægja.
Harriet hafði að sínu leyti ákveðið, að hún
,vildi ekki fara til Kingston og búa hjá Percy.
Hann var ekki bróðir hennar — það hafði hann
líka nýlega mint liana á — Hún átti enga kröfu
til að vænta neins af honum nema það sem góð-
vild hans vildi láta í té, og loforðið, sem hann
hafði gefið afa sínum, að annast um hana.
Megnið af eigum hennar eyddist við nám-
ið, og hún vildi ekki vera honum til byrðar.
Hún ætlaði að vinna fyrir sér.
Með þenna ásptning í huga sínum, /klipti
hún áðurnefndu auglýsinguna úr blaðinu, og ætl-
aði að sækja um stöðuna sem kennari og félags-
systir.
Þetta var djarflegt fyrirtæki, án þess að
leit ráða annara, en hún vissi að Percy yrði því
mótfallinn. Hún ætlaði að taka stöðuna, ef
hún fengi hana, og að því búnu gat hann ekki
hindrað það.
Henni var erfitt að framkvæma þetta síð-
ustu viku júnímánaðar, því þá átti hún að ljúka
burtfararprófinu, bæði skriflega og munnlega.
En hún ákvað að gera það í byrjun vikunnar,
svo að hún yrði Iaus við það.
Hún bað því aðal umsjónarkonu skólans að
gefa sér vitnisburð, og varð, einni stundu síðar,
glöð yfir því, að fá yfirburða góð meðmæli frá
lienni — frá' Havley — sem hrósaði og mælti
með henni í öllu tilliti.
Með þenna ágæta vitnisburði fór hún út
kl. tólf, og lét aka með sig til Hyde Park Corner,
þar sté hún ofan úr vagninum fyrir framan
stórt og fallegt hús, með skjaldarmerki yfir
dyrunum.
Hún hringdi dyrabjöllunni.
Þjónn í einkennisbúningi opnaði dyrnar, og
fylgdi henni í gegnum sniotran dyragang inn í
líti ðherbergi, þar sem hann bað hana að setj-
ast og bíða.
Hún settist og horfði á fallegu húsmunina
í kring um sig.
“Það væri gaman að búa í slíkum stað, ef
maður ætti þetta sjálfur,” hugsaði hún.
Lítilli stundu síðar kom fallega kiædd þjón-
ustustúlka inn til hennar, og sagði brosandi :
“Frúin vill að þér komið upp á loft.”
Harriet fylgdi stúlkunni upp á loft og inn
í herbergi þar sem hátt var undir þak.
Þar fann hún tvær stúlkur, önnur um sex-
tugsaldur, en fjörleg og fríð. Hún var sjá-
anlega af heldra fólki og tígulega.
Þar var líka ung stiilka — fjörleg, lítil
huldumeyja með ljósan hörundslit, glettuleg og
glaðleg augu með hreinskilinn og heiðarlegan-
svip, sem féll strax Harriet vel í geð.
“Eruð þér ungfrú Gay?” spurði sú eldri.
“Já, frú.”
“Og þér eruð líklega komnar sem svar við
auglýsingunni um kvenkennara og félagssystur?
Þér eruð snemma á ferð með beiðni yðar að
mér finst.”
Harriet roðnaði dálítið við þessi orð.
“Orsökin til þess að eg kem svona snemma
er sú, að seinna fæ eg mjög annríkt með burt-
fararpróf mitt,” svaraði hún róleg.
,V‘Þér hafið líklega vitnisburð með yður?”
spurði frú Stewart og athugaði ungu stúlkuna
nákvæmlega.
Harriet tók umslag úr handtöskunni sinni,
og rétti henni það.
“Þetta er mjög góður vitnisbui’ður,” sagði
frúin, þegar hún hafði lesið hann. “Hann
segir að þér séuð mjög liprar við dráttlist og
hjóðfærasöng. Og það þykir mér vænt um.
Þú mátt búast við að dvelja tvær eða þrjár
stundir á dag við pianóið Bella.”
Bella gretti sig kýmnilega og yfti öxlum.
Hvernig hún gerði þetta, gladdi Harriet
mikið. Augu hennar urðu glettuleg og bros
lék um varirnar.
Bella hló hátt, kerti hnakkann og sagði
glaðlega: “Eg vona að þér séuð ekki alt of
kröfuharðar. Ef þér komið til okkar, þá er
ftað nefnilega eg, sem er hinn óþolandi nem-
andi, er þér eigið að stjóma.”
Bros sem Iíktist hlýjum sólargeisla, leið
yfiran dlit Harrietts. ‘Hún skildi strax að
hún yrði góð vina þessarar hreinskilnu og frjáls
legu ungu stúlku.
En áður en hún fékk tíma til að svara,
sagði frúin ásakandi: “kröfuhörð! Slík orð
eiga ekki við unga stúlku Bella. Þxi verðtir
að nóta siðfágaðri orð. Viljið þér ekki leika
ofurlítið á píanoið fyrir okkur, ungfrú Gay? Eg
er sjálf mjög söngelsk, og get þar af leiðandi
dæmt um söng,” sagði hún og leit á píanoið.
Harriet roðnaði.
Hún var ekki hrædd við að leika fyrir fólk,
en það var eitthvað í hinni skipandi framkomu
hennar, sem Harriet líkaði ekki.
Hertogafrúin hafði setið þegjandi og at-
ugað Harriet, -síðan hún lá)m inn. Hún sá
undir ein's að hún var siðmentuð stúlka, j)ó að
hún leitaði sér að stöðu. Hún fékk undir eins
samhygð til hennar og dáðist að henni.
Nú stóð hún upp og sagði með vingjarn-
íegu brosi. “ Yður finst máske erfitt að leika
lög án nótna, og þar með á yður ókunnugt pía-
nó. Eg hefi stórt safn af nótriaheftum hér.
Komið þér og veljið eitthvað, sem þér viljið
leika fyrir okkur.”
Hún gekk með Harriet að píanóinu og rétti
henni fáein nótnahefti, sem hún tók við, leit
þakklátlega til hennar og sagði lágt: “Þökk
fyrir,” og fór svo að fletta blöðum heftanna.
Hún þekti næstum öll lögin, og sagði við
hertogafrúna, að hún skyldi leika það sem hún
vidi.
Gamla konan lagði tvö hefti á nótnahilluna
með huggandi brosi.
Harriet settist við pianoið og lék ágætlega
og rétt.
Bella gekk til hennar áður en hún var hálfn-
uð með lagið, og horfði undrandi á lipru fing-
urna.
“Ef eg gæti lært að leika eins vel og þetta,
þá er eg fús til að æfa mig margar stundir dag-
lega, ’’ sagði hún þegar Harriet var búin. ‘ * En
það er svo voðalega þreytandi að sitja stundum
saman og æfa sig, og telja hvíldarlaust einn.
tveir, 'þrír.”
“ Yður líkar þá ekki að telja,” sagði Harri-
et brosandi. ’ ’
“Nei, egþoliþað ekki.”
“Un til þess að verða lipur við að leika á
píanó, er nauðsynlegt að telja.
“Er nokkuð annað sem þér viljið að eg
leiki?” spurði hún hertogafrúna.
“ Já, hérna er eitt lag, sem mér þykir mjög
vænt um,” svarði hún. “Það heitir Smala-
drengurinn.”
Hún lét það á nótnahilluna, og fór svo til
sætis síns við hlið frú Stewart.
“Farið þér að riáðum,” mínum sagði hún
lágt vð hana, “ráðið þér þessa ungu stúlku.
Hún er einmitt sú félagssystir sem Bella þarfn-
ast.”
13. Kapítuli.
Harriet lék þetta fagra, stutta lag með
mikilli tilfinningu — eins og hugsunin í því væri
hennar eigin.
•• 1* k* thnbur, fjaiviður af öllum
vorubirgoir tegundum, geirettur og aU-
konar aðrir strikaðir tigiar, hurðir og gluggar.
Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð giaðir
a*ð sýna þó ekkert sé keypt.
The Empire Sash & Door Co.
-------------- Limlted----—-------
HENRY AVE. EAST ■ WINNIPBG
Eftirspxgrn eftir æfðum mönnum.
Menn, sem vita. Menn, sem framkvæma. Aldrei áður hefir
verið slík eftirspurn eftir sérfræðingum.
Aðferðir vorar eru Practical Shop Methods að eins, og spara
'hinn langa tíma, sem oft gengur ekki í annað en lítilsverðan
undirhúning; hjá oss læra menn svo fljótt, að þeir fá sama sem
undir eins gott kaup. Vér kennum yður að eins praktiskar að-
ferðir, svo þér getið byrjað fyrir yðar eigin reikning nær sem er.
Merkið X við reitinn framan við þá iðngreinina, sem þér eruð
bezt fallinn fyrir og munum vér þá senda yður skrá vora og
lýsingu á skólanum.
Vér bjóðum yður að koma og skoða
GARBUTT MOTOR SCHOOL, LIMITED
Room 3, Calgary — Alberta
I----í I----1
Motor Metíhanics | | Tractor Mechanica
----1 I----1
Oxy Welding | | Vulcanizing
----1 I----1
i Battery | | Car Owners
----1 !---1
Ignition, Starting and Lighting
----1 I---1
Regular Course | | Short Course
____l I---1
Hertogafrúin þakkaði henni innilega, þeg-
ar hún stóð upp frá píanóinu.
“Þér eruð mjög sönghneigðar,” sagði hún
með aðdáandi augnatilliti til hins svipfagra
andlits Harriets.
“Nær getið þér svo komið til okkar ungfrú
Gay?” spurði frú Stewart, sem nií var viðfeldu-
ari í framkomu, þar eð hún var farin að fá gott
álit á Harriet.
“Eg get komið á fimtudaginn,” sagði Harr-
iet róleg.
“Er yður andstætt að yfirgefa London og
dvelja við sjóinn í ‘þrjá eða fjóra mánuði?”
spurði frú Stewart.
“Nei, síður en svo. Eg edska sjóinn,”
svraraði Harriet glaðlega.
Hún skoðaði sjóinn, sem gamlan vin, þar eð
hún hafði dvalið svo lengi á eyjunni ásamt
Percy og afa hans.
“ Það er ágætt, ’ ’ sagði frúin ánægð. ‘ ‘ Við
höfum nefnilega leigt hús í Berighton, þar sem
við verðxun þangað til seinast í septemiber, og
við hugsum okkur að fara þangað hinn fyrsta
júlí. Getið þér verið tilbúnar að fara með
okkur þá?”
“Já, það get eg,” svaraði hún. Eu hún
fölnaði dáliítið við hugsunina um, að fara svo
iangt burtu frá Perey.
Hún vissi að þá fékk hún ekki tækifæri
til að sjá hann alt sumarið.
En samt hélt hún fast við þann ásetning
sinn, að vinna fyrir tilveru sinni og vera hon-
um ekki ti'l byrði.
“Gott,” sagði frú Stewart ánægð. “Eg
held við getum látið það vera samning, að þér
komið til okkar — það er að segja,” bætti húu
við, um leið og hún leit rannsakandi augum á
hana, ‘ ‘ ef þér eruð ánægðar með launin, sem
eg býð yður. Fyrsta árið verða það 50 pund,
og frítt hús og fæði. Þegar árið er liðið, og
okkur kemur saman um að halda áfram þessum
samning, semjum við að nýju um launin.”
“Eg vil að þér verðið kennari dóttur minn-
ar, og einnig félagssystir hennar í frítímunum.
Eg vil að þér kennið henni fjórar stundir fyrir
hádegi, og æfið hana við píanóið tvær stund-
ir fyrir hádegi,. Hinn hluta dagsins getið þið
gert hvað sem þið viljið. Viljið þér taka
stöðuna með þessum skilyrðum?”
Harriet sagði frúnni með vel völdum orð-
um, að hún væri fús til þess.
“Nú, jæja þá er þetta afráðið,” sagði frú-
in. Fyrsti júlí er á mánudaginn. Við för-
um af stað til Brighton kl. níu, og eg^skal senda
vagn eftir vður kl. átta.”
Frúin stóð upp um leið og húu sagði þetta,
sem var bending um, að hún hefði ekki meira að
segja. Hún ætlaði að kalla á þjón til að fylgja
Harriet ofan, en Bel'la hindraði það með því að
segja: “Levfbu mér að fara ofan með ung-
frú Gay, mamma.”
“Já, velkomið ef iþ úvilt,” svaraði móðir
hennar og hneigði sig svo í kveðjuskyni til
Harriet.
Hún gekk svo til hertogfrúarnnar, til þess
að kveðja hana kurteislega, og þessi tigna kona
brosti til hennar móðurleg, sem vakti hlýan
vináttuhug hjá Harriet.
“Vertu sæl, góða barn,” sagði bún vin-
gjarnlega. “Þér kunnið eflaust vel við yður
í Brigbt'on. Það er einn hinna viðfeldnustu
sumardvalar staða í heiminum.”
Harriet leit á hana þakklátum augum og
gekk kyrlát út úr herberginu.
“Eg er sannfærð um, að eg muni kunna vel
við yður, ungfrú Gay,” sagði Bella, þegar
dyrnar Iokuðust á eftir þeim, um leið og bún
lagði hndlegg sinn alúðlega á Harriets. “Þér
eruð ekki hið minsta drambsöm e*ða mikillát,
sem eg ímynda mér að enskar hefðarkonur séu.
Eg ímynda mér jafnvel að yður þyki vænt um
skemtanir með köflum,” sgði hún. með gletnis-
legu augntilliti.
Harriet hló og þrýsti vinsamlega litlu
hendinni.
“Þökk fyrir ungfrú Bella,” sagði hún.