Lögberg - 28.02.1924, Síða 1

Lögberg - 28.02.1924, Síða 1
Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON AthugiC nýja staöinn. KENNEDY 8LDG. 317 Portage Ave. Mót Eaton 35. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 28. FEBRÚAR 1924 NÚMER 9 Helztu heims-fréttir -** Caaada gefa kost á sér við íhöndfarandi forseta útnefningar. Til þess er hann þó ófáanlegur, og kveðst gera munu alt, er í hans valdi standi til þess að styðja að út- nefningu og kosningu 'William MoAdoos. Charles B. Warren frá Detroit, hefir verið skipaður sendiihenra Bandaríkjanna í Mexico. Sjö stúdentar við háskólann í Missouri, fjórir piltar og iþrjár stúlkur, hafa verið reknir úr skóla fyrir drykkjuskap. Tvö egg fundust nýlega í South Dakota, sem sérfræðingar segja að muni vera frá tuttugu og fimm til sextíu miljón ára gömul. Hef- ir þeim nú verið komið fyrir í Field nátturugripasafninu. Samkvæmt síðustu fregnum, eru ýmsir helztu menn Republicana flokksins önnum kafnir við það, að reyna að sanna og telja þjóð- inni trú um, að o'líuhneykslið al- ræmda, sé í raun og veru að kenna Josephus Daniels, flotamála ráðgjafa í stjórnartíð Woodrow Wilsons. — Eins og nú standa sakir, eru litlar líkur til, að slík- ar tilraunir muni bera mikinn á- rangur. Samkvæmt nýútkominni skýrslu frá Metropolitan lífsábyrgðár-fé- laginu í New York, hafa sex þús- und og fjögur hundruð manneskj- ur beðið bana í Bandaríkjunum síðastliðna tólf mánuði af elds- voða. Hinn 26. iþ.m. lézt í New York, rithöfundurinn George Randolph Chester, 54 ára að aldri. Hann var fæddur í borginni Cincinnati í Ohio rikinu. Hann lætur eftir ig ekkju og tvo sonu. Einna víð- kunnastur mun hann .vera fyrir Wallingford sögurnar. Bretland. Þótt hafnapþjóna verkfallinu á Bretlandi sé ekki formlega lok- ið, er búist við að samningar muni takast þá og þegar er báðir aðilj- ar megi vel við una. Vinnuveit- endur hafa gengið inn á að hækka kaup þjóna sinna, sem svarar tveim shillings á viku, og nemur sú hækkun tveim þriðju þeirrar launaviðbótar, er hafnarþjónar fóru fram á. Hið nýja MacDon- ald ráðuneyti hefir gengið afar- röggsamlega fram í því, að reyna að binda sem fyrst enda á verk- fall þetta. Með það fyrir augm að ráða að einhverju leyti 'bót á atvinnuleysi því hinu mikla, er svo mjög iþreng ir að bresku þjóðinni um þessar mundir, hefir MacDonald stjórn- in ákveðið að byggja 7 ný her- skip. Fjárveiting til fyrirtækisjns var samþykt með'mkilu afli at- kvæða í þinginu. Nokkrir úr stjóirnarflokknum (verkamannáfl.) greiddu ekki atkvæði, en tveir voru á móti. Fanst þei'm iherskipa viðbót þessi, ekki í sem bestu samræmi við stefnuskrá flokks- ins. Harry Cerman hefir verið kos- inn forseti hinna sameinuðu bndafélaga á Englandi. Hefir hann unnið að samtökum meðal bænda síðastliðin 20 ár . Sá einkennilegi og jafnframt sorglegi atburður vildi til Ihinn losna úr herþjónustu og Ihefði því gripið til þessa örþrifaráðs í þeim tilgangi, að láta reka sig úr þjónustu flotans. Verlcamenn, sem voru nýlega að höggva í klett einn mikinn, nálægt Plymoutih á Englandi, komu niður í litla, einkennilega grafhvelfing, sem í var lítil lík- kista ger af blýi. Þar innan í var örsmá trékista, er hafði inni að halda fuglsbein og nokkra írska smápeninga, er sagðir eru að hafa verið slegnir 1822. Munu minjar þessar því vera yfir hundrað ára j gamlar. Sir D. Probin fjárráðamaður Alexöndru drotningar síðan 1919, hélt nýlega níutíu og eins ára af- mæli sitt. Ga'mli maðurinn er enn við bestu iheilsu, og starfar á skrifstofu sinni fimm til sex klukkustundir hvern einasta dag. Maður einn lá nýlega fyrir dáuðans dyrum á sjúkrahúsi nokkru í Lundúnaborg. Læknar höfðú tilkynt honum að hann ætti ekki eftir ólifað nema fáeina daga. Sjúklingurinn kvaðst eiga yngsta son sinn i Ástralíu og bað læknana að símrita honum samstundis og biðja hann að koma. Var þetta gert Bað hann um að mega hafa sjó- kort við rúmið, svo hánn gæti kvnt sér þær leiðir, er sonur hans sigldi eftir. Sex vikur liðu þangað ':il son- urinn lenti á Englandi og sérlhvern dag hafði hinn aðfra'mkomni mað- ur litið á kortið, til þess að sann- færa sig um hvar sonur sinn væri niðurkominn í þann og þann svip- inn. Náði sonurinn fjórum klukku- stundum áður til sjúkrahússins, en faðir hans gaf upp andann .Segja I læknar, að það 'hafi aðeins verið í hinn óbifandi viljakraftur, er hélt | sjúklingnum svona lengi á lífi. H^aðgnœfa. Sérfræðinganefnd sú, er set.ið hefir á rökstólum undanfairanrii til þess að rannsaka fjárhags á- stand pýskalands, Ihefir nú lokið starfi og verða tillögur hennar gerðar heyrinkunnar einhvern hinna næstu daga. óljósar Evi’- ópufregnir segja að nefndin muni j leggja til að Frakkar kveðji þeg- i ar heim alt sitt setulið í Ruhr- | héruðunum og að stofnaður verði næga tryggingu í gulÞ’ Búist er nýr þjóðbanki í pýzkalandi, með I við að skaðahætur þær, er Þjóð- j verjum voru dæmdar að greiða, : verði lækkaðar til muna og að j þeim verði veittur alllangur gjald- i frestur, gegn því, að þeir borgi vexti af skuldinni. Fregnir frá Riga láta þess get- ið að Kharkow héruðunum standi yf in alvarleg uppreist gegn sovietstjórninni rússnesku. ítalska stjórnin hefir opinber- lega viðurkent sovietstjórnina á Rússlandi og gert við hana nýja verslunarsamninga. Eftir síðustu fregnum frá Mexico að dæ'ma, er svo að sjá, sem liðsveitum Obregon stjórnar- innar, hafi í hvíventa veitt betur jen uppreistarhersveitum þeim, er Huerta veitir forystu. f námunda við Cordoba á Spáni hafa nýlega fundist mannahein ,sem sagt er að muni vera yfir 22. þ. m. ao tvo born piltur og fimmtíu þúsund ára gömul. stúlka, steyptust niður af turnij Westminister dómkirkjunnar, úr Fregnir frá Aþenuborg hi 300 feta hæð og mörðust «vo á 'Þ- m- þess að Kaf< Stofnaður í fyrri vikunni hér í borginni var félagsskapur, er það verkefni Ihefir með höndum, að reyna fram fullnaðarverk á Hudsonsflóa brautinni. Félags- skapur þessi nefnist “On to the Bay”. Heiðursforseti var kosinn Hon. Joihn Bracken, istjórnarfor- maður í Canada, forseti til bráða- byrgðar C. F. Gray, fyrrum borg- arstjóri í Winnipeg. Aðrir í famkva'mdarstjórninni eru Jrvin C. Nelson, George H. Green, Sam- uel Caldwell, John Stevens og senator Watson. Þrjúhundruð námamenn að Mountain Park, Alberta hafa gert verkfall. Hafa þeir krafist þe,ss, að forstjóri námanna verði rek- inn úr stöðu sinni fyrir þá sök, að hann hafi viðhaft ósæmilegan munnsöfnuð við einn af ná'ma- mönnum. Sir Henry Thornton forseti þjóðeignakerfisins — Canadian National Railways, telur það vera lífsskilyrði fyrir fjárhagslegum viðgangi þess, að það verði með engu móti gert að pólitísku'm fót- bolta. G. B. Jöhnston þingmaður frjálslynda flokksins í Saskatche- wan fylkisþinginu fyrir Melfart kjördæmið, hefir horið fram þings ályktunar tillögu er skorar á sambandsstjórnina að 'hlutast til um að Hudsonsflóa brautinni verði lokið eins fljótt og fra'mast má verða. Hon. W. H. Price, fjármála- ráðgjafi Fergusons stjórnarinnar í Ontario lýsti yfir því í fjárlaga- ræðu sinni síðastliðinn þriðjulag, að tekjuhallinn á fjárlögunum að þessu sinni næmi fimtán milj- ónu'm dala. Kvað hann bruðlun og fyrirhyggjuleysi Drury stjórn- arinnar, megi að mestu leyti kenna um það, hve fjár'hagur fylk- isins væri illa kominn. Búist er við að fylkisþinginu í Manitoba muni verða slitið hinn 20. ‘mars næstkomandi. Jolhn Bodiuk sá, er kærður var fyrir að hafa myrt John Kulyuk hinn 6. okt. síðastliðinn að Stuart burn, Man., var sýknaður af. á- kæru þeirri hinn 21. þ.m. Hinn 21. þ. m. um hábjartan dag réðust grímuklæddir, vopnað- ir illræði-smenn á K. Anderson forstjóra Fairview útibús Imper. ial bankans í Vancouver og sendi- mann hans W. Bramwell og námu á brott ’með sér $132,000. Hvorir- tveggja aðiljar voru í bifreið, er atburð þennan bar að höndum. Þess hefir verið getið til, að þjóf- arnir muni hafa komið frá Seattle þótt ósannað sé það enn að vísu. Eignir þær, er járnbrautarkong- uu’inn, Sir WiHiam Mackenzie, lét eftír sig, nema rúmurn tveimur miljónum dala. Josepih Sámson hefir verið end- urkosinn borgarstjóri í Quebec, með 733 atkvæðum umfram Dr. Martin, bæjarfulltrúa. Er þetta þriðja Iborgarstjóra kosningin, sem hann hefir unnið. Fregnir f,rá Calgary láta þess getið, að líklegt sé, að allir kola- námamenn í Alberta fylki muni gera verkfall seinni part kom- anda isumars, er núgildandi launasamningar renni út. Er full- yrt, að eigenduir námanna hafi á- kveðið að lækka kaup þjóna sinna og muni undir engum kringum- stæðum fáanlegir til þess, að end* urnýja áamningana í því formi, se'm þeir nú eru. •Stjórnin í British Columbia er í þann veginn að senda unvboðs- mann til Englands í þeim tilgangi, að fá sem flesta brezka innflytj- endur inn í fylkið. Sakamáls rannsókn er nú hafin #egn lögreglumönnum þeim í Moose Jaw, sem áður var getið l'm, að teknir hefðu verið fastir °g kærðir um stórkostlegan þjófnað. Alexander Dawson, dómari í Manitoba, hefir farið þess á leit v'ð stjórnina, að fá hvíld frá dómarastörfum um hríð. Hann er nú hálf áttræður að aldri og hef- ir gegnt dómarastöðu síðan 19C7. Opinberar skýrslur sýna, að hveitiuppskeran í Manitoba síð- astliðið haust, nam 30,804,000 mæla. Hon. W. T. Nickle, dómsmála- ráðgjafi Ferguson stjórnarinnar í Ontario, hefir lagt fram í þing- inu frumvarp til undirbúnings hinni væntanlegu atkvæðagreiðslu um vínsölumálið þar í fylkinu. Sambandsstjórnin hefir ákveð- ið, að skipa nefnd manna, í þeim tilgangi, að rannsaka allan hag Home bankans á árunum 1915-16 og 1918. Eigi hefir enn frézt hverjir muni eiga sæti í nefnd- inni. Frumvarp Bracken stjórnarinn- ar um hlutfallskosningu í ein- mennis kjördæmum, þar sem fleiri en tvö þingmannsefni eru í kjöri, hefir verið samþykt við 2. umræðu. Með frumvarpinu greiddu at- kvæði allir bændafl. þing'menn- irnir að undan .skildum Yakimis- hack frá Emerson, svo og þing- menn frjálslynda flokksins. Aft- urhaldsmenn og verka’manna- flokksmenn, greiddu atkvæði á móti firumvarpinu. Ferguson stjórnin í Ontario hefir ákveðið að skipa konung- lega rannsóknanefnd til þess að rannsaka allar gerðir Dury stjórn- arinnar þau áirin, sem hún sat að völdu'm og veitti málefnum fylk- isins forystu. Er mælt að stórkost- legur fjárdráttur ihafi átt sér stað í sambandi við leigu og sölu á fylkislöndum. Bandaríkin. Þrír af leiðandi senatorum Republicana flokksins, þeir Lodge Pepper og Boráh hafa krafisit þess af Goolidge forseta að hann víki Daugherty 'dómsmálaráð- gjafa úr embætti sökum afskifta hans af Teapot Dome olíuhneyksl- inu. Forseti þverneitar að verða við ikröfum þeirra. Svo magnað ósamlyndi hefir risið upp innan vébanda Republicana utan þings og innan út af máli þessu, að menn eru þegar farnir að spá þvi að Goolidge muni ekki ná útnefn- ingu og að flokkuirinn muni hrynja ðins og spilaborg við næstu kosningar. Senator Robinson, Demokrat frá Arkansas, lýsti yfir því í þingræðu hinn 22. iþ. m. að Cool- idge forseti hefði í politískum skilningi undirskrifað sinn eigin dauðadóm, er hann hefði tekið upp á sig þá þungu ábyrgð, að halda hlífsskildi yfiir Daugherty dómsmála ráðgjafa, þrátt fyrir skýlausa kröfu senatsins, um að hann yrði látinn segja af sér. Professor J. W. Crabtree í Chi- cago, lýsti yfir því í ræðu þar í borginni, að eitthvað hlyti að vera bogið við hugsunarhátt Banda- .ríkjaþjóðarinnar um þessar mund- ir, þar sem sjá mætti af hagfræði- skýrlum, að þjóðin verði til skóla- halds og mentamála yfirleitt að eins $1,500,000,000 á ári, en eyddi á sama tímabili $2,111,000,000 fyr- ir tóbak og $1,800,000,000 fyrir brjóstsykur, gosdrykki og ísirjóma. Aukið herlið hefir verið sent til Herrin, 111., þar sem blóðugur bar- dagi hefir staðið yfir 'milli vín- smyglara og eftirlitsmanna bann- laganna. Samkvæmt nýútkonum skýrsl- um, hefir Bandaríkjaþjóðin veitt til líknarstarfsinsi á Rússlandi rúmar fimtíu og átta. miljónir dala. Fjárlaganefnd neðri málstof- unnar leggur til, að $271,942,867 verði veitt til flotamálanna á næstkomandi fjárhagsári. Orð leikur á, að akuryrkjumála- ráðgjafi Bandaríkjanna, Mr. Wal- lace, muni hafa í hyggju að segja af sér embætti, áður en langt um Hður. Kvað hann vera fremui’ heilsuveill upp á síðkastið. Senator Walsh, Demokrat, frá Montana, hefir fengið ógrynni af áskorunum víðsvegar að, um að strætinu, að ekkert viðlit var að þekkja þau. Á eftir fylgdi kona, líiklega móðir barnanna, og var lík hennar einnig með öllu óþekkjan- legt. Lögreglan tók samstundis að rannsaka þenna hörmulega atburð, en var engu nær þegar síðast fréttist. Jafnvel kirkju- verðirnir kváðu sig öldungis óaf- vitandi um það, með hverjum hætti að kona þessi og börn hefðu komist upp í turninn, né heldur á hvaða tíma. Undirforingi einn í ibreska sjó- hernum var nýlega á ferð í spor- vagni í bænum Chatham. l’ng og falleg stúlka sat við hlið han.i. Skar hann af henni hárfléttu og stakk í vasa sinn. Stúlkan varð þess skjótt áskynja hvað á seiði var, og lét handsa'ma sökudólginn. Eftir að yfirheyrslunni var lokið í réttinum, var undirforinginn dæmdur í +uttugu daga fangelsi. Fyrir réttinu'm bar hann það fram, að hann hefði hvað ofan í annað reynt árangurslaust að i daris stjórnin sé fallin og að Communistar og aðrir gerbylft- inga'menn séu að taka við völdum og ‘hafi lýst yfir því, að héðan í frá skuli Grikkland vera lýðveldi. Stjórn Tyrklands hefir ákveðið að taka í þiónustu sína 1200 sér- fræðinga fyrir næsta ár, þar á meðal nokkra frá Bandaríkjur.um til þess að leiðbeina þjóðinni hvað viðvíkur landbúnaðarmálum og fjármálum. líland og Nýja Sjáland. í blaði, sem borist Ihefir hingað frá Nýja Sjálandi í Eyjálfunni, er sagt frá fyrirlestri, sem pró- fessor Arnold Wall hafi haldið þar í félagi einu í haust. Segir að fyrirlesturinn hafi verið mjög óvenjulegs efnis og athyglisverð- ur. En fyrirlestrarefnið var “ís- lenzkt dagblað” og sagði fyrirles- arinn þar frá einu Morgunblaði, sem hann hafði í höndum, rakti efni þess o.s.frv. og sagði um leið frá ýmsu um íslenzka tungu og menningu. Segir í - blaðinu, að fyrirlesturinn hafi þótt mjög skemtilegur og fróðlegur og er sagt þar allmikið frá efni 'hans. Einna merkast þótti mönnum að heyra u'm málið og það, að hér væri enn þá töluð sama tungan og fluzt hefði til Englands á 9. öld og hefði lítið breyzt eða blandast og til væru miklar og merkar 'bókmentir á þessu máli bæði að fornu og nýju, og gætu íslendingar eins auðveldlega lesið hinar elztu bókmentir sínar og þeir læsu blöðin frá í dag, þó sumt í þeim bókmentum væri • kannske þúsund ára gamalt. í sambandi við kvæðisstúf, sem stóð í þessu blaði, talaði prófessorinn einnig um hið sérkennilega form á íslenzkum ljóðum, ljóðstafasetn- inguna, sem hvergi vœri nú ann- arsstaðar tíðkanleg. Einnig tal- aði hann um nokkur atriði í at- vinnu- og mentalífi þjóðarinnar, . í sambandi við ýmsar greinar 1 blaðinu um þau efni. T. D. mint- ist hanil á stúdentagarðinn. At- vinnulíf hér sagði hann að mundi að ,ýmsu leyti vera svipað og á Nýja-Sjálandi. pá talaði hann einnig um auglýsingarnar i blað- inu, þar sem af þeim mætti oft marka ýmislegt um þjóðina, hvað hún hefði á boðstólum og hvað hún girntist. pað, sem annars dró ekki sizt að sér athygli þarna var það, að ein aðalgreinin í blað-! inu var einmitt um einrj hinn helzta rithöfund í Nýja-Sjálandi, prófessor Macmillan Brown, eft- ir dr. Helga Péturs, en þeir hafa átt í bréfaskiftum, aðallega um draumakenningar dr. H. P., sem víða er nú veitt all'mikil eftirtekt erlendis. Prófessor Wall kvað vera vel að sér í íslenzku og mentamaður í á- liti hjá þjóð sinni. í fundarlok var honum þakkað mikið fyrir erindið og þess óskað, að hanr vildi segja eitthvað meira frá ís- landi. “Og eftir þessu yfirliti um íslenzka blaðið að dæma”, sagði einn ræðumaðúrinn að síðustu, og þótti skemtilega sagt, “er be"- sýnilega betra að lesa önnur blöð en okkar eigin.”'—Lögrétta. Þrjú kvæði. Galla-gripir. Þú veizt, að ihatrið veldur falli og veltir þér um botnlaus höf’— á ástinni er einnig galli: oft hún reynist hefndargjöf. Þó huggunar í hatri leitir, hjarta þínu blæðir inst— oft verða ástar eldar heitir að ösku, þegar varir minst. R. J. Davíðsson. Til J. Schram. Þótt árin fjölgi, ung er sál, enn hin forna brennur glóðin; vel þú kant að stilla stál og stuðlar mörgum betur Ijóðin. Lát þitt hljóma hróðrar mál, svo ’hugarblóminn sölni miður, ei í dróma engdu sál, illa dóma kveddu niður. pó skýin þjóti þar og hér, þess skal litið minst í ljóðum. Eg það veit að Iðunn þér eplum hefir ’miðlað góðum. R. J. Davíðsson. Dœmið ekki. Við Dardanellasund.—“J?ar liggja þúsundir ungra Vestur-íslendinga. peir féllu fyrir föður- landið, auðvitað ! !” — (Heimskringla 6. febr.) Þeir fáu, sem hugprúðir féllu þar, —um fleiri þúsund ei getið var—, þeir Röddinni hlýddu og ruddust gegn stormi; þeir fóru sem hetjur, þeir féllu 'með sæmd. Sú framkoma verður i sögunni dæmd, af öðrum eh Niðhögg, þeim nagandi ormi. O. T. Johnson. FAIKIES. I often think—it may seem passing strange— I often think that fairies roarn and range About the fields, the fields so wondrous fair; That fairies toil, and have a duty there. I think that nymphs and dryads, pixies, elves, Aré races fashioned somewhat like ourselves, That toil,^—as Nature with a cunning hand Has taught them—toil to beautify the land. What though unseen these little peop.le pass Their pleasant days amid the scented grass? We see not, know not, whence they yearly yeald Of all the varied splendor of the field. We know it not . . . But joy it is to know That tiny Beings tint the grasses so; And paint the violets blue with perfect art, Or mine the gold to make the lily’s iheart. I love to think, that ’mong the trees and flowers Are other beings, other worlds than ours; Another race, — an elemental Life — Unmarred by greed, by hate, and war and strife. A race, whose God is Beauty Undefiled, That loves the soul of Nature, vast and wild; That calls the elements on every hand To fertilize and .beautify the land. Perhaps ’tis but a fancy, passing strange, Yet do I love to think they roam and range About the brook nnd fields and flowered woods; These fairy-toilers — mystic brotherhoods. Christopher Johnson. óamtíningur. Eg hlýt að hyggja að: huga minn það löngum hrellir, einn hvað byggir, annar það óðara til grunna fellir. Eg hefi tekið eftir því: hver annars reynir brjóst að naga—, eitthvað sveimar óholt í andrúmslofti vorra daga. Langt í burtu er ljós og vor, lítill bjarmi á hæstu tindum, hvert við framtaks fetað spor, fjölga virðist skuggamyndum. R. J. Davíðsson. Ur bænum. iSéra Hans B. Thorgrímsen frá Grand Forks, Icom til bæjarins snögga ferð í vikunni. Nýlega er látin ein hinna vast- ur-íslenzku landnámskvenna, Petr- ólína Björg Pétursdóttir að nafni, Átti hún áður land og heimili í Montana-ríki syðra. Var hún 78 ára að aldri, er hún andaðist þriðjudaginn 5. febrúar síðastl. á heimili dóttur sinnar og tengda- sonar, Mr. og Mrs. S. Arngríms- son, við Elfros, Sask. Útförin fór fram þ. 12. s.m., með aðstoð séra Friðriks Friðrikssonar frá Wyn- yard, Sask. Næsti opni fundur deildarinnar Frón, verður haldinn um miðjan næsta mánuð, marz. Er þegar farið að efna til skemtiskrár, sem menn eru beðnir að líta eftir í næstu blöðum. Eitthvað nýtt verður þar ef til vill til smekk- bætis. “Happið” sjónleikur 1 einum þætti, eftir Pál Árdal, var sýndur eins og auglýst hafði verið, 1 Good Temp- lara húsinu á Sargent Ave., á fimtudagskvöldið var. Leikrit þetta er hið skemtilegasta, fjör- ugt 'Og víða ágætlega smellið, og skemti fólk sér hið bezta. Per- sónurnar í leik þessum eru sjö: Hallur hreppstjóri, virðingargjarn búrakarl, og lék Hannes Jakobs- son hann, og fanst oss að leikur 'hans bera vott um, að hann þekti lítið til þeirrar stéttar“á íslandi að minsta kosti er hún ægilega aum, ef sú mynd, sem Hannes sýndi af henni, er sönn, því hann gjörði Hall að reglulegu fífli og virtist oss að hlutverk það vera misskilið frá upphafi til enda. Það má vissulega sýna sérhælinn heimshyggju hreppstjóra, án þess að gjöra hann að fífli. Menn ættu hvergi að leika sér að slíku, sízt á meðal útlendra þjóða, þar sem istétt heillar þjóðar og jafnvel ibjóðin sjálf getur orðið dæmd f.vrir framkomu manna. Dóttur hreppstjórans lék ungfrú Stefanía Sigurðsson heldur mynd- arlega, enda er stúlkan bráð- myndarleg sjálf og höfðingleg í allri framgöngu, en frekar erfitt að hugsa sér hana dóttur Halls hreppstjóra eins og hann var þar sýndur. Helga ráðsmann leikur Oskar Sigurðsson og gjörir hann að of- miklum ræfli. Maður, sem held- ur ráðsmannsstöðu hjá búhyggn- um manni, þótt hann sé gjörður grannvitur í aðra röndina, getur ekki verið ræfill. Móður Helga, Grímu, leikur Miss Eydal með mestu rausn og sýnir víða tilþrif, sem bera vott um góðan skilning og jafnvel leikmensku hæfileika. Slíkt hið sama er að segja um hinar stúlk- urnar, sem taka þátt í leiknum, þær ungfrú Bergþóru Sigurðsson og ungfrú Sveinsson. Þær leystu allar verkefni sín vel af hendi, töluðu skýrt og sýndu, að þær skildu hlutverk sin. Kennarann lék hr. Benedikt Ólafsson og gerði því hlutverki fremur góð skil. iMœlskusamkepni. Eins og auglýst hafði verið í blöðunum, fór mælskusamkepni Stúdentafélagsins fram þ. 18. þ.m. og tóku sex þátt í henni, þeir Heiðmar Björnsson, Hávarður Elíasson, Axel Vopnfjörð, Agnar Magnússon, Edward Thorláksson og Aðalbjörg Jo.hnson. Sam- kepninni var skift í tvær deildir, þá, sem ekki höfðu áður tékið þátt í silíkri samkepni og í þeirri deild voru fjórir hinir fyrst töldu; í hinni voru tvö þau síðastnefndu. 1 fyrri deildinni voru fyrstu verðlaun dæmd Agnari Magnús- syni, önnur Axel Vopnfjörð og þriðju Heiðmar Björnssyni. pau Aðalbjörg .Tohnson og Edward _ Thorláksson voru alveg jöfn, að dómi dómendanna. Sum af þeim erindum, er flutt voru, voru myndarleg, vel frá þeim gengið og vel flutt; aftur voru önnur, sem vart er hægt að segja það um, og mikið skorti á það hjá sumum, að framsetningin og málið væri eins og það hefði átt að vera, og er þar meitra um að kenna óvandvirkni ræðumanna sjálfra, en nokkurri nauðsyn. Ef fólk það, sem þátt tekur 1 slíkri samkepni, veit sig veikt í málinu, sem ekkert er að furða sig á, þá á það ekki að láta kylfu ráða kasti með það, ihvernig að því muni takast. þegar á hólmim kemur, heldur að leita til annara, sem betur kunna málið, svo þeir geti leiðrétt galla sína áður en þeir koma fram. Á þann hátt er von um framför, en engirar fram- farar von, ef menn eru kæring- •arlausir.' petta er ekki sagt af neinum kala til íslenzku stúdentanna, öss fanst að framkoma sumra þeirra, sem tóku þátt í mælsku- samkepni þessari, bera vott um afturför frá því sem verið hefir. /

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.