Lögberg - 04.12.1924, Blaðsíða 1
Pað eru ekki tveir inánuðir tii júla, svo þér ættað
vissulega að fara að liugsa um að láta taka mynd
af yður til að senda heim.
W. W. MOBSON
TEKUR GÓÐAR MYNDIR AÐ 317 PORTAGE AVE.
ÖllllCf 0.
66
PROVINCF
THEATRE ^
Pessa viku
Doué” Fairbanks i “Americano”
CHXS. CHAPUN i leikflUfn “COUGHTIH X CXBXHET’’
Næstu viku:
Tom Mix in “Oh, You Tony”
35. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 4. DESEMBER 1924
NÚMER 49
Helztu heims-fréttir
Canada
Bæjarstjórnair'kosningar í Wln-
nipeg ,fóru fram föstudaginn Ihinn
28. fyrra mánaðar. Urðu úrslitin
þau. að Col. R. H. Webb gekk sigr-
andi af ihólmi, með 4,700 atkvæða-
meirihluta umfram keppinaut sinn,
núverandi horgarstjóra S. J. Farm-
er, og tekur því við borgarstjóra-
embættinu um áramótin. í hinum
einstöku kjördeildum, náðu alllr
núverandi bæjarfulltrúar, er i
kjöri voru, endurkosningu, en (þeir
eru þessir:
1. Kjördeild. >—
Leeoh,
Pulford,
Shore
2. Kjördeild. —
MicKerchar,
Simpkin,
Boyd,
3. Kjördeild.—
Mc Lean,
Heaps,
Simpson.
;Skólaráðsmenn í annari og
þriðju kjördeild voru kosnir gagn-
sóknarlaust. En í fyrstu kjördeild
voru þeir Bulman og Harstone
endurkosniir. —
Samsetning ibæjarstjórnarinnar
verður því óíbreytt frá því, sem nú
er, að undanteknum borgarstjór-
anum.
* * *
Ágóði af stjórnarvínsölunni í
British Oolumlbia, fyrir sex mán-
uðina, er enduðu 30. sept. síðast-
liðinn, nam $1,279, 246.
* * •
Hafa þrír þeirra dæmdir verið í
sex mánaða fangelsi, en einn var
látinn laus gegn skilorðsbundnum
dómi.
* * *
Útfluttar vörur frá Canada yfir
tólf mánuðina, sem enduðu 31. okt.
síðastliðinn, umfram innfluttar
vörur námu $258,000,000. Námu
útfluttu vörurnar $1,076,000,000.
* * *
Nýlátinn er J. H. Chamber, for-
,seti Paulin Chamibers, verksmiðju-
félagsins hér í borginni, 78 ára að
aldri, einn af mest virtu iðnfröm-
uðurn Vesturlandsins.
* * *
Jbúatalan hér í landi hefir auk-
ist um nálega hálfa miljón, frá
því er síðasta manntal var tekið
1921.. 1 öllum fylkjunum, að und-
anskildu Prince Edward Island,
hefir fólki fjölgað til muna. Er
íbúatalan nú undir árslokin 1924,
metin 9,226,740. Hér fylgja á eftir
samanburðarkýrslur yfir fólks-
fjölda hinna ýmsu fylkja á árunum
1924 og 1921 1924. 1921
P. E. I. 87.000 88,615
Nova Scotia 533,000 523,837
New Brunsw. 399,400 387,876
Quebec 2,480,000' 2,361,999
Ontario 3,062,000 2,933,662
Manitoba 647,000 610,118
Sask. 815,000 757,510
Alberta 637,000 588,454
Brit. Ool. 553,000 524,582
Yukon 4,550 4,157
N. W. T. 8,490 0 7,988
R. J. Swain hefir verið endur-
kosinn til borgarstjóra í St. Bone-
face.
* * *
Hon. €. R. Mitchell, fyrrum
fjármá'laráðgjafi Stewart-stjórnar-
innar í Al'berta, hefir á fjölmennu
þingi í Calgary, verið kjörinn leið-
togi frjálslynda flokksins þar í
fylkinu. Er Mr. Mitchell hinn mestl
áhrifamaður og er talinn líklegur
til að leiða flokk sinn til vegs og
valda, áður en langt um líður.
* * •
Frgnir frá Toronto’ hinn 27. f.
m. láta þess getið, að líklegt sé að
Hon. Roibert Rogers muni bjóða
sig fram í Suður-Toronto, við
næstu sambandskosningar.
# * #
Aukakosningar til Sambands-
þingsins, fór fram í Temiscouta
kjördæminu í Quebec hinn 1. þ. m.
Tveir frambjóðendur voru i kjöri,
báðir fylgjandi frjálslyndu stefn-
unni. Jean Francois Poulliot, óháð-
ur liberal, sigraði með 3000 at-
kvæða meirihluta, umfram gagn-
sækjanda sinn, Dr. E. A. Parrot.
* # *
Hinn nýútnefndi dómsmáiaráð-
gjafi fylkisstjórnarinnar í New
Brunswick, Hon. Ivan C. Rand,
beið ósigur í aukakosningunni, er
fram fór í ibænum Moncton, síð-
astliðinn mánudag, fyrir fram-
bjóðanda íhaldsflokksins E. A.
Reilly, K. C. Hlaut hinn síðar-
nefndi 84C' atkæða meirihluta.
Rev. Adelarde Delorme, prestur
í Montreal, sá er sýknaður var ný-
lega af þeirri ákæru, að hafa myrt
hálfbróður sinn Raoul til fjár,
hefir nú fengið að nýju öll sín
fyrri borgararéttindi.
* * #
Harry Tatarniuk. sá er sakaður
vær um að hafa myrt frænku sína
(Katie Symöh^syn 791, Manitoba
Ave., hinn 8. maí síðastliðinn hefir
verið fundinn sekur og dæmdur til
að hengjast þann 25. febrúar næst-
komandi.
* * *
‘Pussyfoot'’ Johnson, bindindis-
frömuðurinn nafnkunni, sem ný-
kominn er úr fyrirlestraför um
Noirðurálfuna, flutti tvær ræður
í Crace kirkjunni hér í borginni
síðastliðinn sunnudag um skað-
semi áfengra drykkja. Var kirkj-
an troðfull í bæði skiftin og góð-
ur rómur gerður að máli ræðu-
manns.
* * *
George W. Hyndman, hefir ný-
lega verið skipaður aðstoðarfjár-
málaráðgjafi sambandsstjórnar-
innar í Ottawa. Hefir ihann verið
í þjónustu fjármálaráðuneytisins
síðastliðin tuttugu ífr.
• • •
Fullyrt er að Rt. Hon. W. S.
Fielding fjármálaráðgjafi Mac
Kenzie King stjórnarinnar, muni
'láta af embætti, áður en næsta
þing kemur saman. Er mælt að
heilsu hans fari stöðugt hnignandi.
* * *
Petrcy Moggey, nítján ára að
aldri, sá er skaut á leynilögreglu-
mennina Frayne og Batho, við
Commerce bankann á mótum Log-
an og Main hér í borginni á önd-
verðu yfirstandandi ári og særði
þá til muna, hefir verið dæmdur
til tíu ára fangelsisvistar.
* * *
Fjórir af embættismðnnum
Homebankans, hafa verið fundlr
sekir um glæpsamlega vanrækslu
í starfi sínu og að hafa sent fjár-
málaráðuneytinu villandi skýrslur
um hag téðrar peningastofnunar.
------o------
Bandaríkin.
Þjóðþingið í Washington kom
saman síðastliðinn mánudag. Ein
fyrsta þingsályktunartillagan, er
neðri málstofan tók til meðferðar
var sú, að sameinað þing skyldi
heiðra minningu Wilson’s heitins
forseta hinn 15. þ. m. Flutnings-
maður tillögunnar var Garret,
þingmaður Demokrata flokksins
frá Tennessee og hlaut hún sam-
þykki í einu hljóði.
* * *
John Philip Hill, neðri mál-
stofu þingmaður frá Marylapd, sá
er á öndverðu síðastliðnu sumri
var kærður fyrir að ihafa brotið
Volstead lögin með iþví að 'búa til
áfengt vín á heimili sínu, hefir
verið fundinn sýkn saka.
* * #
Fé það, er Pólland skuldar
Bandaríkjunum nemur $178,560,
000. Hefir Coolidge stjórnin nú
samið um endurgreiðslu þess fjár
á svipuðum grundvelli og gert var
í fyrra við Bretland.
+• * •
Coolidge forseti befir skipað
John van A. Mac Murray frá New
Jersey, aðstoðar utanríkisráðherra.
* # #
Þingmenn Republicana flokks-
ins, Ihafa samþykt að banna þeim
Lafollette, Brockhart, Ladd og
Frazier aðgang að flokksfundum
í framtíðinni. Er þetta í raun og
veru hið sama og gera þá flokks-
ræka.
* * *
Samúel Gompers hefir verið
endurkosinn forseti hinna sam-
einuðu verkamannafélaga í Banda-
ríkjunum, American Federation
of Labor. Er þetta í fertugasta og
fjórða skiftið, að hann hefir kos-
inn verið til þeirrar stöðu. Mr.
Gompers er nú kominn nokkuð &
áttræðisaldur.
Bretland.
Rt. Hon. Stanley Baldwin, for-
sætisráðgjafi Breta, 'hefir auglýst
til sölu bústað sinn í Lundúnum,
er kostaði $90,000, fyrir minna en
hálfvirði.
# * #
Nýr viðskiftasamninguir milli
Breta og Þjóðverja, er í þann veg-
inn að vera undirskrifaður.
* # *
Ekkjudrotning Alexandra, varð
áttræð ihinn 1. þ. m.. 1 afmælis-
fagnaðinum tóku þátt, auk bresku
konungshjónanna, prinsinn af
Wales og krónprins Norðmanna.
• • •
Dt. Hon. Winston Spencer
Churchill, fjármálaráðgjafi Bald-
wimstjórnarinnar, hefir lýst yfir
því, að enginn tekjuíhalli muni
verða á bresku fjárlðgunum að
þessu sinni.
* * *
Nýlátinn er í Lundúnum, Sir
William Allison Dýke Acland, einn
af nafnkunnustu sjóliðsforingjum
Breta, sjötíu og sjð ára að aldri.
* # *
Nýlega hrundu saman kolanám-
ur skamt frá Cardiff, og biðu þrjá-
tíu manns þar bana.
# * *
Leiðtogar frjálslynda flokksins
á Bretlandi eru þegar teknir að
búa sig undir næstu kosningar,
þótt litlar líkur séu til að þær fari
fram fyr en að fimm árum liðnum.
Hafa þeir þegar áikveðið að hafa
að minsta kosti fimm hundruð
frambjóðendur til taks 0g freista
gæfunnar við hverja einustu auka-
kosningu.
------o-------
Hvaðanœfa.
Eftir síðustu fregnum að dæma,
er svo að sjá, sem samkomulag
hafi náðst milli Breta og Egypta í
deilu þeirri, er upp kom milli þess-
ara tveggja aðilja út af morðinu a
Sir Lee Stack, landstjóra í Sudan.
* # *
Svo róstusamt varð nýlega í
Mexico þinginu að þingmenn skift-
ust á skotum. í orrahríð þeirri
særðist til muna leiðtogi verka-
mannaflokksins, Luis N. Marones.
* * *
Mannskæð plága hefir geysað
undanfarandi í Trimalgiri hérað-
inu á Indlandi, er þegar hefir or-
saikað dauða fjögur þúsund manns.
* * *
Þingið á ítalíu, befir nýlega
iýst trausti á Mussölini stjórnar-
formanni með 315 atkvæðum gegn
6.
* * *
iSvenska vísinda samkundan, hef-
ir tekið að sér útgáfu á stjðrnu-
fræðisritum eftir Bengt Stroem-
grens, 16 ára ungling. Er hann
sagður að vera yngstur stjðrnu-
spekingur í heimi.
Aukakosningin í West
Hastings.
Það er engan veginn óhugsandi,
að aukákosnýjg sú, sem nýlega er
um garð gengin í West Hastings,
geti orðið að merkisatburði í stjórn-
málasögu hinnar canadisku þjóð-
ar. Allflestar aukakosningar geta
skoðast sem smá-pólitiskur við-
burður, en stundum geta þær þó
haft mikla þýðingu og víðtæk á-
hrif. Má í því sambandi benda á
Arthabaska kosninguna 1877, auka*
kosningarar í Quebec 1895, er voru
ótviræður fyrirboði hins mikla sig-
urs frjálslynda flokksins áriö eftir.
Sama má segja um Arthabaska
kosninguna 1910, er leiddi 1 ljós hið
aukna fylgi Henry’s Bourassa og,
og Medicine Hat kosninguna 121,
er svo augljóslega bar vitni um
binn vaxandi mátt bændasamtak-
anna i Vesturlandinu. Kosningin
í West Hastings, er að engu leyti
ómerkari en þessar hinar, sem nú
hefir verið bent á og hlýtur að hafa
afar-víðtæk áhrif á framtíð íhalds-
flokksins og foringja hans, Arthur
Meighen.
Saga West Hastings kjördæmis-
ins, hefir fram að þessu verið ein-
lit, kjósendurnir höfðu ávalt fylgt
sama flokknum, íhaldsflokknum, að
málum. Ástæðurnar, sem til kosn-
ingarinnar leiddu, og niðurstaðan,
eins og hún varð, getur haft alvar-
legri afleiðingar fyrir Mr. Meig-
hen og flokk hans, en margir kunna
að gera sér í hugarlund. Flokkur
getur verið óheppinn og sætt slys-
um, en þegar hann fellur sjálfur í
þá gröf, er hann bjó óvinum sín-
um, og gerir það meira að segja
um hábjartan daginn, þá getur tæp-
ast hjá J)ví farið, að einhverjum
verði á að brosa. Og þaö er ann-
að en gaman fyrir alvarlega hugs-
andi stjómmálamann, að láta hlæja
að sér í allra áheyrn. En að öllu
athuguðu, hafa slysfarir Mr. Meig-
hens í West Hastings, oröið að ein-
um þeim átakanlegasta skrípaleik,
sem þekst hefir í Canada til margra
ára. Æfintýrið verður því spaugi-
legra, sem lengur er um þaS hugs-
að, — og þó er það þess eðlis, að
Mr. Meighen getur tæpast gengið
þegjandi fram hjá því.
Samkvæmt pólitiskum venjum og
fordæmum, er næsta örðugt aS
átta sig á úrslitum þessarar nýaf-
stöðnu aukakosningar í West Hast-
ings. Frá stofnun fylkjasambands-
ins, hefir það ávalt sent íhalds-
menn á þing, og það með stórkost-
legum meiri hluta atkvæða.
Á síðasta þingi reyndi íhalds-
flokkurinn að koma fram ábyrgð á
hendur verkamála ráögjafanum,
Mr. Murdock, fyrir það, að hann
hefði dregið út af Home bankanum
fjárupphæð nokkra, skömmu áöur!
en peninga stofnun sú varð gjald-
þrota. Varð Mr. Porter, þáver-
andi þingmaður West Hastings
kjördæmisins, til að bera fram á-
kærurnar í þessu sambandi. Kvaðst
hann mundu segja af sér þing-
mensku, og leita álits kjósenda sinna
á ný, ef þingið sýknaöi ráögjaf-
ann. Úrslitin urðu þau, að eftir
að sérstök þingnefnd haföi ná-
kvæmlega rannsakað ákærurnar og
lagt fram álit sitt, er fór fram á al-
geröa sýknun, þá félst þingið á til-
lögur nefndarinnar, með hátt á
annað hundrað atkvæða, gegn rúm-
lega fjörutíu. ‘Eins og málinu þá
var komið, var ekki um annað að
gera fyrir Mr. Porter, en standa
við orö sín, og leggja niður þing-
mensku. Að sjálfsögðu valdi í-
haldsflokkurinn Mr. Porter til at-
lögunnar, fyrir þá megin ástæðu,
aö kjördæmi hans hafði verið einn
tryggasti vertnireitur afturhalds-
stefnunnar í stjórnmálum í sextíu
ár. Leiðandi mönnum flokksins
mun ekki einu sinni hafa komið til
hugar, að stjórnin hefði nægilqgt
áræði til þess, ai5 reyna aö fá mann
úr sínum flokki kosinn, eins og á-
statt var. En alt fór ööru vísi en
ætlaS var. Stjórnin brást vel við
hólmgöngu áskoraninni og fram-
bjóðandi frjálslynda flokksins, Mr.
Hanna, var kosinn með nokkuð á
fimta hundrað atkvæða umfram
keppinaut sinn, Mr. Porter, er
haldið hafði kjördæmi sínu í fjórð-
ung aldar og vafalaust hefir haldið
að hann gæti gert til æfiloka.
Það er fullyrt, aft málsvarar
frjálslynda flokksins hafi i téðri
aukakosningu, að eins haldið að
kjósendum orsök þeirri, er til kosn-
ingarinnar leiddi og látið öll önnur
ágreiningsmál liggja í þagnargildi.
Þeir hafi að eins farið þess á leit
við kjósendur, að þeir sýndu mál-
stað verkamálaráðgjafans samúö og
settu sig í hans spor, að því er
snerti fjárupphæð þá, er hann dró
út úr bankanum, það eina fé, er
hann með sparsemi hafði dregið
saman, og dregið út á löglegan hátt.
Á það var einnig 'bent, að sannað
væri, aS kærumar á hendur Mr.
Murdock, hlyti að hafa verið
sprottnar af pólitiskum hvötum.
íhaldsmenn á hinn bóginn mintust
varla með einu orði á það megin-
mál, er orsakaði aukakosninguna,
heldur hömpuðu ágæti verndartoll-
anna og hugðu það nægja mundu
til J)ess að Mr. Porter yrði kosinn
með rniklu afli atkvæða. Það er
engan veginn óliklegt, að kjósend-
ur á sínum tima, kunni að leggja
nokkrar alvarlegar spurningar fyr-
ir Mr. Meighen og floksbræður
hans í sambandi við J)átttökuna í
fyrnefndri aukako9ningu. Meig-
hen virðist einhvern veginn hafa
haft það á heilanum. að slagorðið
*nn verndartolla og meiri verndar-
tolla mundi við þessa síðustu kosn-
ingu og væntanlega við næstu al-
mennar kosningar, hafa sömu á-
hrifin og 1878 og 1911. Til þess
að reyna að auka fytgi sitt í Mið-
Canada, hefir hann varpað Vestur-
landinu, eða kjósendum þess, til
síðu og tilfinnanlega veikt traust
sitt í Strandfylkjunum ,og jafnvel
þar sem verndartollamúrarnir hafa
verið hvað sterkastir, er nú farið
að móta fyrir skörðum. Verndar-
tolla hrópið brást í St. Antoine i
september og auk J)ess núna fyrir
fáurn dögum í West Hastings.
Bæði þessi kjördæmi höfðu þó ját-
ast undir tollvemdunarstefnuna
1878.
Geti Mr. Meighen ekki haldið
kjördæmum, sem fylgt hafa flokk:
hans að málum frá stofnun fylkja-
sambandsins, hvernig í dauðanum
getur hann þá ætlast til, að vinna
þau sjötíu þingsæti, sem bænda-
flokkurinn ræður yfir, Kvað þá
heldur meira?
Úrslitin í St. Antoine og West
Hastings, ættu að færa Mr. Meig-
hen heim sanninn um það, að hug-
mynd hans um vaxandi fylgi í
Austur-Canada, hafi verið fremur
draumórakend. Mr. Meighen hefir
engum öðrum en sjálfum sér um
að kenna, ef hinn þráláti vemdar-
tolla boðskapur hans verður hon-
um að falli, og hvað munu íhalds-
sveitirnar þá segja og gjöra við
foringja sinn? Afstaða Mr. Meig-
hens til flokks sins, er engan veg-
inn tengd traustum böndum, eins
og sakiu standa, og slysfarir hans
hinar síðustu í West Hastings,
gætu auðveldlega gefið óvinum
hans innan vébanda íhaldsflokksins
byr undir báða vængi í þeim til-
gangi að hrifsa af honum foringja-
stöðuna.
—Lausl. þýtt úr Man. Free Press
-------------o.-----
Konur í Bandaríkja-
pólitík.
Við síðustu Bandaríkjakosningar
hafa konur látið meira til sín taka
en nokkru sinni áður í sögu þjóð-
arinnar og verið -kosnar í allra
hæstu embætti suntra ríkja. Eyrsti
kven-ríkisstjórinn innan takmarka
Bandaríþjanna, er Mrs. Nellie T.
Ross, sú er kosin var 4. nóvember
síðastliðinn til ríkisstjóra í Wyo-
ming og verið svarin inn í em-
■bættið nú þegar. Skal hún gegna
því þann tíma, sem eftir var af
kjörtímabili manns hennar. Mrs.
Miriam A. Ferguson, hið nýja rík-
isstjóraefni í Texas, tekur ekki við
emhætti fyr en 1. janúar. Kosn-
ingahitinn í Texas var margfalt
meiri en í > Wyoming og er sigur
Mrs. Ferguson því i rauninni tals-
vert meiri, en sigur Mrs. Ross,
enda hin fyrnefnda kosin til heils
kjörtímabils, en Mrs. Rss tæp-
lega til hálfs.
I sambandi við kosningar Mrs.
Ferguson, bendir blaðið Boston
Transcript á, að ríki það, er hún
innan skamms ráði yfir, sé talsvert
stærra ummáls en Frakkland, fimm
sinnum stærra en England, með á-
líka fólksfjölda og írland, og nátt-
úrúauðæfi sambærileg við Þýzka-
land, eða meira en það. Telur
nefnt blað Mrs. Ferguson því í
rauninni vera volduga æfintýra-
drotningu, ráðandi yfir afar-víð-
lendu ríki, með ótakmarkað vald.
Báðar Jressar konur, sem nú hafa
nefndar verið, teljast til Demókrata-
flokksins. — Þá er þess vert að
geta, að kosningu til neðri mál-
slofunnar hlaut Mrs. Mary T. Nor-
ton, Demokrat frá New Jersey.
T-Iún bauð sig fram sem eindreg-
inn andstæðingur vínbannslaganna.
Kosning hennar er enn fremur
merkileg að því leyti, að hún er
fyrsta konan frá Austurríkjunum,
sem send hefir verið á þingið i
Washington. Eins 'og kunnugt er,
var Jeanette Rankin fyrsta konan,
er sæti átti á þingi þjóðarinnar. Var
hún frá Montana; Mrs. Wlinnifred
Mason Huck, frá Ulinois og Mrs.
Mae E. Nolan frá California.
Eina konan, sem hlotið hefir út-
nefning til Senatsins, var Mrs. Re-
becca Eelton, er útnefnd var af rík-
isstjóranum í Georgia, og átti hún
J)ar sæti í að eins fáar klukku-
stundir.
Með því að snúa oss atfur að
síðustu kosningum og úrslitum
J)eirra, kemur J)að í ljos, að til rík-
isritara i New York var kosin NTrs.
Florence E. S- Knapp. í Indiana-
ríkinu hlaut Mrs. Emma Eaton
White kosningu sem ritari við há-
yfirréttinn og í New Jersey, Con-
necticut, Massachusetts, Nebraska
og Ulinois, voru konur kosnar i há-
ar stöður . svo sem til ríkisþing-
mensku, Blaðið Philadelphia Re-
cord, telur kosningasigra þeirra
Mrs. Knapp i New York og Mrs.
Norton í New Jersey, einna þýð-
ingarmesta, er tekið sé tillit t:l
Jress, hve þessi tvö Austurríki, er
að jafnaði sé íhaldssöm og sein
til breytinga, hafi þarna i fram-
kvæmdinni skilyrðislaust viður-
kent hæfileika kvenna á sviði
stjórnmálanna. Segir hlaðið, að
héðan í frá verði nafnið “þing-
kona” engin nýjung og hætti að
vekja nokkra sérstaka athygli,
fremur en þingmannsnafnið.
Blaðið Milwaukee Journal er þeirr-
ar skoðunar, að svo fremi að þær
Mrs. Ferguson og Mrs. Ross reyn-
ist rikisstjórastöðunni vaxnar, þá'
muni það leiða til þess, að áhrif
kvenna á stjórnmál þjóðarinnar í
framtíðinni, verði æ víðtækari. —
Mr. O. L. Scott, fréttaritari Con-
solidated Press, kveðst sjá, sem af-
leiðing kosningasigurs þessara
tveggja kvenna til ríkisstjórastöð-
unnar, þann dag hafa færst miklu
nær, er svo geti farið, að kona taki
sæti sitt i Hvítahúsinu, sem for-
seti Bandaríkjaþjóðarinnar. Á það
er einnig bent, að af 29 forsetum,
hafi 14 áður gegnt ríkisstjóraem-
bætti.
Blaðið Birmingham JSTews tjáist
sannfært um, að frá náttúrunnar
hendi sé verkahringur kvenna fyrst
og síðast hundinn við heimilið, en
lætur þess þó jafnframt getið, að
svo margbreytilega æfingu fái kon-
ur yfirleitt, að því er heimilis-
stjórnina snertir, að ástæðulaust sé
að halda, að þær geti ekki reynst
vel í borgar eða ríkisstjóra em-
bættum. En blaðið Syracuse News
á örðugra með að átta sig á, að
sigur þeirra Mrs. Ferguson og Mrs.
Ross, sé í raun og veru nokkur
stjórnmálasigur fyrir amerískar
konur í heild sinni, er tekið sé fult
tillit til kringumstæðanna. Mrs.
Ferguson hafi ekki haft aðra
stefnuskrá en þá, að hvítþvo nafn
manns síns, er af einhverjum á-
stæðum fékk á sig bletti í stjórnar-
tíð hans; en Mrs. Ross hafi ein-
göngu náð kosningu sökum þess,
hve maður hennar, sem lézt á miðju
ríkisstjóra tímabili, naut mikillar
lýðhylli. — Blaðið Cincinnati En-
quirer tekur af skarið og fullyrðir,
að hvorug þeirra, Mrs. Ferguson
eða Mrs. Ross, muni nokkru sinni
hafa framkvæmt annað upp á eigin
spýtur, en að búa upp rúm og ef
til vill baka skorpusteik. Fer blað-
ið ekki dult með þá skoðun sína,
að skattgreiðendur í Texas og
Wyoming, geti ef til vill áður en
langt um líður, komist að þeirri
niðurstöðu, að kosning þessara
tveggja -kvenna í ríkisstjóra-em-
bætti, hafi verið alt annað en ábata-
vænleg.
-------o------
Góð bók
Nei! Það er ekki skáldsaga ekki
ný ljóðabók, 'ekki bók, sem hægt
væri á neinn veg að telja til skemt-
unar, en hún hefir inni að halda
perlur þær, sem dýrmætastar eru
mannlegri tilveru, í bóklegu tilliti.
Þessi bók, sem um ræðir hér, er
Sunnudagsskólabókin nýja, gefin
út af lúterska kirkjufélaginu, til
sölu hjá Mr. Finni Johnson, bók-
sala á Sargent ave., og kostar 65C.
Bókin hefir inni að halda:
Fræðin, það er, boðorðin, trúar-
játninguna og sakramentin; úrvals
bihlíugreinar og nokkra sálma.
Auk þess hefir hún sunnudagsskóla-
form og nokkur úrvalsljóð úr ís-
lenzkum Mkmentum.
I þessu frelsisins landi, þar sem
hver og einn er sjálfráður hvernig
hann metur gott og ilt, eru ekkert
fáir af J)jóðarbroti voru, sem eru,
að því er séð verður, úti á andlega
vísu, af uppvaxandi lýð, þrátt fyrir
J)á góðu viðleitni lands og laga, að
ákveða æskuárin til veraldlegrar
fræðslu. Tilhliðrunarsemi þeirra,
er ráða, við “samvizkufrelsi” með-
bræðra sinna, hefir skilið stóran
hóp af uppvaxandi kynslóðinni eft-
ir úti í eyðimörk hirðuleysis og
heiðindóms.
Þjóðir þessarar jarðar eru eins
og blómin, að þær eru misjafnar að
lit og andlegri lögun, einn hefir
þetta, annar hitt. Það er mín skoð-
un, að kraftur sé einkenni íslenzkr-
ar þjóðar, yfirleitt talað. Hún er
sein að grípa og sein að sleppa. Þó
vér höfum játað kristna trú í meir
en 900 ár, er síður en svo, að hún
sé, yfirleitt talað, runnin oss í blóð
og merg. Og þegar oss var slept
hérna vestur á grænkuna —ja, þá
vildum við nú fyrst fara að dansa
—á andlega vísu. Ávöxturinn af
öllum þeim dansi er J)að, sem bent
er á hér að framan, andleg ringul-
reið og hirðuleysi á mörgum af
þeim, seml upp eru að vaxa nú.
Ef hvert íslenzkt heimili keypti
þessa litlu bók, væri fleiri frækorn-
um sáð til góðs, en hér verður
reiknað. Hún hefir það til síns á-
gætis, að vera einföld og óbrotin,
1 lítil yfirferðar ó§ — ódýr, en fræð-
ir þó manninn um þá hluti, sem
mest varðar og er barnssálinni auð-
veld til aðgöngu.
Að hún er sérstaklega gerð fyrir
sunnudagsskóla, gerir hvorki til né
frá fyrir heimilisbrúkun. Út um
sveitir er erfið aðstaða manna við
sunnudagsskólastarfið, sökum fjar-
lægðar og anna, að sjálfsögðu líka
sökum viljaleysis, en oft er hægt
um hönd, um helgar, að láta barn
læra vers eða ritningargrein, þó
ekki sé tími og kringumstæður til
að sparibúa fleiri eða færri, aka
langar leiðir og tefja þar. Á því
tímabili, sem til þess þarf, má í
flestum tilfellum læra margar lín-
ur..
Þessi áminsta bók—eða kver,
semrétt væri kannske að kalla það
sökum smæddar—, virðist vera
hentug til fermingar undirbúnings,
bæði tornæmum og þeim, sem hafa
mikið skólanám með höndum. Eg
veit til, að hún hefir verið notuð
sem ^lík af ágætum presti, og sjálf
hefi eg rekið mig á ágæti hennar
fyrir barnsins huga, eins og eg
benti á hér að framan.
Eitt er enn ágæti þessarar bókar,
en J)að er, að hvaða barn sem les
hana, getur ekki hjá því farið, að
því fari eitthvað fram i íslenzkri
tungu við lesturinn, því hún er öll
á íslenzku. .
íslenzkar konur! Látið ekki
glepja ykkur sjónir, þegar til þess
kemur að velja lífakkeri barna
ykkar. Mýrarljósin eru allrei nema
“fosfórus”, hversu glatt sem þau
geta brugðið fyrir. Sólarljósið er
það ljós, sem Guð skapaði til að
lýsa líkamlegri veru vorri, og Jesús
Kristur er það eina ljós, sem lýst
getur vorri andlegu verú. Virðið
því og haldið trygð við alt það, er
fræðir hörn ykkar um hann, sem
mestan kærleika hefir oss í té látið.
Rannv. K. G. Sigbjörnsson.
------o------
Walker leikhúsið
Leikhúsin eiga ekki lítinn þátt í
að mynda og móta hugunarhátt
manna og er því stórmikið undlr
því komið hve heilhrigður lista-
smekkur þeirra er, sem þeim veita
forstöðu.
Maður sá, sem veitir aðal-leik-
húsi Winnipeg-borgar forstöðu,
Mr. C. P. Walker ehfir sett sér
það markmið að sýna ekkert í slnu
leikhúsi annað en það ibesta og
heilbrigðasta sem völ er á og þá
viðleitni hans, ættu þeir sem leik-
húsin sækja, að meta með því að
sækja þangað., honum til styrktar
i sinni góðu viðleitni og sjálfum
sér til upbyggingar og skemtunar.
Þessa viku alla er Fiske O’ Hare,
sem nafnkunnur er orðinn um alt
land fyrir snild sína með flokk
sinn, að sýna leik, er heitir “The
Big Mogul” á Walker léikhúsinu.
Leikur sá er tekinn úr verslunar-
lífi Bandaríkjaþjóðarinnar og er
svo efnisríkur og skemtilegur að
hann heldur áhorfendunum fðst-
um frá byrjun til enda. Maður,
sem unnið hefir að því að setja
vatnsleiðslu í hús, erfir $7,000,000
fyrir góðverk er hann vinnur á
umkomulitlum manni, er átti 'hluta-
bréf í gull og og koparnámum, sem
hann hélt að væru einskis virði,
en sem Peter Quinn Quill (avo heit
ir aðal persónan í leiknum) seldi
fyrir 7,000,000. Óþokkar ná ollum
þessum peningum út úr Quill með
hrekkjum.
Allar persónumar í leiknum
leysa hlutverk sín prýðis vel af
hendi, en sérstaklega þó O’ Hare,
sem meðal annars syngur írska
kýmnissöngva, sem eru í einum
þættinum, af sérstakri list, sem
ihöfðu svo mikil áhrif á fólkið að
það kallaði hann fram hvað eftir
annað með dynjandi lófaklappi.
Þeir sem ,hafa efni á að njóta heil-
brigðrar og skemtilegrar kveld-
stundar utan heimila sinna, geta
ekki gert ibetur, en sjá Fiske O’
Hare í “The Big Mogul” á Walker
leikhúsinu. Hann verður þar alla
þessa viku.
------o------
Cr bænum.
Mr. Hjörtur Pálsson frá Lund-
ar, Man., var staddur í borginni í
fyrri viku, ásamt konu sinnl.
Komu þau til að vera við útför
móður Hjartar, Sigurbjargar Páls-
son, er fram fór í Selkirk, síðast-
liðinn fimtudag.
Mr. Sveinn Björnson, kaupmað-
ur frá Gimli, Man., kom til borg-
arinnar síðastliðinn þriðjudag I
verslunarerindum.
------o-------
“Bræðrakvöld” verður Ihaldið í
G. T. St. Heklu; núna n. k. föstu-
dag þann 5. þ. m. St. Skuld og al'lir
G. T. Velkomnir.
------0-------
í næstu viku kemur á markaðinn
stór ljóðabók eftir Magnús skáld
Markússon, eitthvað um 280 blað-
síður. Er það úrval úr Ijóðum höf-
undarins. Til útjrfáfunnar hefir
verið vandað hið allra Ibesta og
má því ganga út frá iþví sem gefnu
að þar verði um einkar hentuga
jólagjöf að ræða.