Lögberg - 15.05.1930, Page 1
43. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 15. MAÍ 1930
NÚMER 20
Frá Islandi
Reykjavík, 22. apríl 1930.
Séra Ólafur Briem, prestur að
Stóra-Núpi, andaðist í morgun á
Landakotsspítala. Hann veiktist
snögglega í embættisferð á Skeið-
um nóttina eftir Pálmasunnudag,
en þann dag hafði hann embætt-
að á Ólafsvöllum. Daginn eftir
var hann við barnapróf á Skeið-
unum, en þyngdi sóttin og lagðist
rúmfastur á Húsatóftum. Var
hann þá fluttur hingað fárveikur
á laugardagskvöldið var, en bana-
meinið, sem mun hafa vepð botn-
langabólga, hafði þá grafið svo
um sig, að ekki varð við ráðið.
Séra ólafur heitinn var fædd-
ur 5. október 1875, sonur séra
Valdimars Briem vígslubiskups.
Hann tók stúdentspróf 1897 og
embættispróf árið 1900. Kvæntist
sama ár eftirlifandi konu sinni,
Ratrínu Helgadóttur frá Birt-
ingaholti, og gerðist aðstoðar-
prestur hjá föður sínum og tók
við embætti hans er hann sagði
af sér prestskap árið 1918. Séra
ólafur var og vinsæll af söfnuð-
•um sínum.
Ámundi Ámundason, fiskimað-
ur, andaðist hér í bænum síðast-
liðna sunnudagsnótt. Hann var
mjög hniginn að aldri. Ámundi
heitinn var hinn mesti mætis-
maður og hugljúfi allra, sem
nokkur kynni höfðu af honum.
Með honum er í val fallinn einn
hinna gömlu og góðu borgara
þessa bæjar. — Vísir.
Reykjayík, 17. apríl 1930.
Ólafur Halldórsson konferens-
ráð, fyrrum skrifstofustjóri ís-
lenzku stjórnarráðsskriftsofunnar
í Kaupmannahöfp, andaðist í
gær.
Hann var fæddur 15. maí 1855,
sonur hins þjóðkunna merkis-
manns séra Halldórs próf. Jóns-
sonar að Hofi. ólafur Halldórs-
son lauk stúdentsprófi í Reykja-
vík 1877 og síðar lagaprófi við
háskólann í Kaupmannahöfn. Ár-
ið 1889 varð hann skrifstofustjóri
í íslands-deild dómsmálaráðu-
neytisins danska og gegndi því
starfi til 1904, er hann varð for-
stjóri fyrir skrifstofu Stjórnar-
ráðs íslands í Kaupmannahöfn.
Því embætti gegndi hann til 1909,
er hann varð að láta af störfum
sakir heilsubrests.
iÓ. H. var stórgáfaður maður,
eins og hann átti kyn til, og fróð-
ur um margt. Hann hefir ritað
töluvert um lögfræðileg efni í er-
lend tímarit, einkum forn lög ís-
lenzk. — Mörg síðustu ár æfinn-
ar var hann svo þrotinn að heilsu
að hann gat engum störfum sint.
—Vísir.
Akureyri, 10. apríl 1930.
Kauptaxti Verkamannafél. Ak-
ureyrar, gildandi óbreyttur frá 1.
maí 1930 til jafnlengdar 1931,
hefir nýlega verið birtur. Dagkaup
almennrar vinnu er 1.25 kr. á klst.
en nætur- og eftirvinnukaup 1.40
kr., dagkaup í skipavinnu 1.40, en
eftirvinnu 2.10., og fyrir helgi-
dagavinnu 3.00 kr. á klst. Reikn-
ast helgidagavinna frá kl. 6 á
laugardagskvöld til kl. 12 á
sunnudagskvöld. — Dagur.
Úr S.-Þingeyjarsýslu, 31. marz.
—Fyrst eftir nýár var dæmafá
ótíð hér norður frá, eins og víðar
á landinu, um það leyti. Máttu
heita samfeldar hríðar í þrjár
vikur, svo að varla var farandi
milli bæja. Setti þá niður fönn
mikla, og var jarðbann orðið í
flestum sveitum. Þann 19. janú-
ar gerði norðvestan stórhríð með
mikilli veðurhæð, en eftir það tók
að birta, og gerði þá sunnanátt,
heiðríkjur og frost. Blyetti þó
svo í snjónum, að það kom hið
bezta færi. Fóru menn þá held-
ur á stjá með hesta og sleða, því
eigi varð bifreiðum við komið, og
hafa þær 1 ítið verið notaðar í
vetur. Sunnanátt hélzt það sem
eftir var af janúar og febrúar-
mánuð út. Voru oftast nær frost,
en þiðnaði þó svo annað veifið,
að upp kom sæmileg jörð fyrir fé.
Fýrstu dagana jí marz var góð'
hláka og hiti mikill suma dagana,
svo að snjórinn rann sundur. Var
þá orðið autt víða í bygðum. En
fljótlega kom norðanátt og hríð-
ar og frost mikil. Voru aftaka
grimmar stórhríðar hér um 18.—
21. marz, og kyngdi þá niður snjó
víðast hvar og gerði jarðlaust,
enda fréttist þá, að hafísinn væri
ekki langt undan landi, því að
bann sæist frá Grímsey.
Seint í febrúarmán. lézt bónd-
inn Sigmundur í Árbót
'Hann vaí- orðinn all-voskinn
að aldri, en hafði verið heilsu-
hraustur þar til í sumar sem leið
að hann kendi lasleika, er ágerð-
ist svo, að hann varð að leita
læknis. Taldi hann það vera
krabbamein, sem að honum gengi,
og ráðlagði honum að fara suður
til Reykjavíkur til uppskurðar.
Var það framkvæmt, en bar ekki
árangur. Sigmundur heitinn var
dugnaðarmaður til verka. Bætti
hann ábúðarjörð sín’a mikið, eink-
um með sléttum og girðingum. Og
bæ sinn hýsti hann upp að mestu
eða öllu leyti. Kona hans het Jó-
hanna Þorsteinsdóttir og er dáin
fyrir nokkuð löngu síðan. Börn
þeirra eru þessi: Aðalsteinn, fyr-
verandi skólastjóri á Eyrarbakka
Arnór, sem hefir búið á hálfri
jörðinni i nokkur ár móti föður
sínum, og Jóhanna, gift Guðm.
Friðbjarnarsyni í Skál í Köldu-
kinn.
Þá er líka dáin ekkjan ólína
Sigurpálsdóttir frá Klömbrum.
Lézt hún á heimili Páls sonar síns
á Akureyri, úr mjög svæsinni
lungnabólgu. Þau hjón, Jón Þórð-
arson og Ólína bjuggu lengi
rausnarbúi í Klömbrum í Aðal-
dal, en það var lítið og lélegt kot,
er þau tóku við því. En við frá-
íall Jóns heit. mátti það teljast
höfuðból, svo hafði hann bætt
jörðina með túnsléttum, bygging-
um og vatnsveitum. Er það mörg-
um vel kunnugt, því að um það
hefir áður verið ritað. ólína heit-
in var mesta myndarkosa, og
mjög vinsæl af öllum, sem hana
þektu. 'Börn .þeirra hjóna voru
þessi: Guðný, kona Karls Sigur-
jónssonar söðlasmiðs á Akureyri
(dó rétt nýlega úr sömu veiki og
móðir hennar); Soffía, kona Kr.
Helgasonar í Haganesi við Mý-
vatn; Óskar, býr nú á föðurleifð
sinni, Klömbrum, kvæntur Hildi
Baldvinsdóttur frá Nesi; Páll,
kvæntur og búsettur á Akureyri;
Ingibjörg, þjáðist lengi af berkl-
um og dó loks úr þeim á heimili
foreldra sinna; Málfríður, mjög
fríð og myndarleg stúlka, dó á
bezta skeiði úr sömu veiki og
seystir hennar, og Sveinbjörg,
giftist dönskum manni, sem nú er
látinn. Dvelur Sveinbjörg í Vest-
urheimi.
Inflúenza hefir gengið hér víða
í vetur, var hún fyrst í Húsavík í
haust og fram eftir vetrinum, en
fluttist svo þaðan upp í sveitirn-
ar. Hafa sumir legið með 40 stiga
hita í nokkra daga, og aðrir hafa
fengið önnur veikindi upp úr
henni, svo sem brjóstimnubólgu
o. fl.
I |
Nýlega lézt ung stúlka í Sýr-
nesi í Aðaldal, sem legið hafði
meiri hluta vetrar og fékk inflú-
ensuna fyrst, en talið var að
berklar hefðu líka 'verið þar að
verki. Hún hét Sigurlaug Her-
nitsdóttir.
Frystihús og sláturhús ætlar
Kaupfélag Þingeyinga að láta
reisa í Húsavík í sumar komandi.
Þykjir mönnum i saltkjötsmarkað-
urinn óviss, og þar að auki er
mikil þörf fyrir frystihús í Húsa-
vík, því að það sem fyrir er, er
orðið of lítið og fullnægir alls
ekki þörfum manna í þorpinu.
Þá hefir mikið verið rætt um
ráðgert að hafist yrði handa um
verkið í vor. — Vísir.
Frá Þórshöfn, 10. apríl 1930.
Bændanámsskeið var nýlega
haldið á Þórshöfn, að tilhlutan
Búnaðarfélags óslands. Voru þar
mættir fyrir hönd Búnaðarfélags-
ins þeir Helgi Hannesson jarð'-
ræktarmaður og Jón H. Þorbergs-
son bóndi, og fyrir hönd Ræktun-
arfélag Norðurlands ólafur Jóns-
Færri Innflytjendur
Frá 1. apríl 1929 til 31. marz
1930, komu 163,228 innflytjendur
til Canada, en það er 4,434 færra
en á næstu tólf mánuðum á und-
an. Af þessum innflytjendum
eru 64,082 frá Bretlandi, 30,727
frá Bandaríkjunum, 30,332 frá
Norður-dSvrópulöndunum, 38,147
af þrjátíu og þremur öðrum
þjóðflokkum. Fleiri innflytjend-
ur komu frá Bretlandi, Banda-
ríkjunum og Norður-Evrópu, en
færri frá öllum öðrum lönudum.
Á þessum tólf mánuðum hafa
komið 29,830 Canadamenn frá
Bandaríkjunum, sem fluzt höfðu
þangað, með þeim ásetningi að
setjast þar að.
Hefir ríkt í 20 ár
Hinn 6. þ.m. hafði George V.
Bretakonungur ríkt í full tuttugu
ár. Var þess víða minist í hans
víðlenda riki og bárust konung-
inum þann dag mikill fjöldi sam-
fagnaðarskeyta, þar á meðal eitt
frá King forsætisráðherra í
Canada.
Mikill eldsvoði
Um fyrri helgi varð afar mik-
ill eldsvoði í bænum Nashua, N.
H. Er talið að þar hafi brunn-
ið um 260 heimili og fólkið, sem
I, 900. Sex hundruð manna hafa
þar er nú heimil’3laust, er um
líka mist atvinnu sína, í svipinn
at minsta kosti, því nokkrar verk-
smiðjur brunnu líka. Er skaðinn
raetinn $4,000,000.
son framkvæmdarstjðri, og lo!ks
Sigurður Jónsson frá Arnar-
vatni.
Námsskeiðið stóð yfir í þrjá
daga og var allvel sótt. Líkaði
héraðsmönnum vel að hlýða á er-
indi hinna góðu gesta, en almenn-
asta aðdáun vakti fyrirlestur, sem
Sigurður Jónsson flutti um al-
þýðufræðslu.
Tíðarfar frá áramótum til mán-
aðamótanna mars-apríl var slæmt,
aðeins einu sinni stuttur bati á
því tímabili. Undanfarna daga
'hafa verið hlákur, og er víðast
hvar komin nokkur jörð, en afar-
mikill snjór er eön á heiðunum.
Heilsufar 'hefir verið fremur gott
í Þistilfirði og á Lanagnesi, en á
Strönd hefir gengið afar slæmt
kvef og einnig verið hettusótt á
tveimur bæjum.
Hrognkelsaveiði er byrjuð við
Langanes og gengur sumstaðar vel
t. d. hefir Sigurður Jónsson í Heið-
arþöfn fengið alt að 300 hrogn-
kelsi á dag, en aftur hefir lítið
veiðst frá Þórshöfn enn.
Um tuttugu útselir hafa verið
skotnir frá Þórshöfn undanfarna
daga, og hafa þeir vegið alt að 400
pundum.
Refir hafa verið skotnir með
minna móti í vetur á Langanesi.
Þó hafa þeir Jóhann og Daníel
Gunnlaugssynir á Eiði skotið eina
tíu refi, og þar af skutu þeir fjóra
á einum degi; þykir það rösklega
að verið.
Á nýafstöðnum aðalfundi Bún-
aðarsambands Norður- Þingeyjar-
sýslu, var ákveðið að sambandið
keypti dráttarvél, sem á að koma
* •
til Þórshafnar innan skamms og
starfa á Langanesi og í Þistilfirði
í sumar, en innan Axarf jarðarheið-
ar næsta sumar, og sVo sitt sumar-
ið hvoru megin heiðar eftir það,
ef sambandið lætur sér nægja
eina vél.
Á Esju síðast fluttist alfarinn
með fjölskyldu sína til Reykja-
víkur frá Gunnólfsvík, Gunnar
Oddsson. Einnig flytur sig til
Reykjavíkur með vorinu Jón Sig-
urðsson frá Saurbæ og fjölskylda
hans. En að Saurbæ á Strönd
flytur aftur Einar Hjartarson frá
Hallgilsstöðu á Langanesi. Frá
Yítra-tLóni á Langanesi flytja
feðgarnir Ari Jóhannesson og Jó-
hannes Jóhannesson; Ari, til
Þórshafnar með fjölskyldu sína,
en Jóhann til sonar síns, sra Þor-
steins 1 Vatnsfirði, en í Ytra-Lón
flyzt aftur Jón Jónsson frá
Fagranesi í Lóni. — Vísir.
Verður loftslagið kald-
ara á Norðurlöndum ?
Einn fremsti veðurfræðingur
Svía, Axel Wallén, lýsti nýlega á
fundi vísindamanna í ósló, hvern-
ig veður.farið yrði framvegis að
sínu áliti á Norðurlö^dum. Hann
kvað loftslagið mundu fara yfir-
leitt kólnandi, en halda þó áfram
um langan tíma líkt og hið nú-
verandi loftslag í Stokkhólmi,
hlýir vetur og köld sumur. Það
eru að vísu ekki miklar líkur til
að aftur fari að koma ísöld yfir
Norðurlönd, en hreytingin mun
þó heldur verða til hins lakara.
Að öllum líkindum heldur lofts-
lagið áfram nokkurn tíma að
jafnast, þannig, að hlýrra verður
á vetrum, en kaldara á sumrum.
Það.var um 1700 sem fyrst var
byrjað á því á Norðurlöndum, að
gera reglulegar veðurathuganir.
í Frá þeim tíma hefir jafnaðarhiti
ársins breyzt lítið, en haldið jafnt
og þétt áfram í sömu átt, að vet-
ur urðu hlýrri, en sumur kaldari.
Síðustu árin hefir þó veðurlag
verið einkennilegra en áður, og
hefir það valdið sérfræðingum
nokkurra heilabrota. — Um alla
Skandinavíu hafa vorin verið
kaldari en nokkurn tíma áður.
Vorið 1923 hafði lægstan meðal-
hita, sem nokkurn tíma hefir ver-
ið mældur, og “sumarmánuðirnir”
I 1928 voru lítið betri. Á sama hátt
hafa vetur farið hitnandi, og líkst
æ minna norrænum vetrum.
Desember og janúarmánuður í
ár hafa þannig haft hæstan með-
alhita af öllum árum, síðan farið
var að gera veðuratíhuganir á
Norðurlöndum. Hefir hitinn ver-
ið fimm stigum fyrir ofan meðal-
hita. Næst þessum vetri gengur
veturinn 1924—25, sem einnig
var óeðlilega heitur.
Um orsakir breytinga þessara
vita menn ekki, og er af þeim á-
stæðum ómögulegt að segja neitt
með vissu um framtíðina. — Enski
veðurfræðingurinn ÍSimpson hef-
ir sett fram skoðun ’um þetta, sem
ef til vill verður hægt að gera
einhverja spádóma! eftir. Eftir
skoðun hans eiga þessar breyt-
ingar rót sína að írekja til út-
geislana sólarinnar,1 sem eru háð-
ar löngum, tímabilsbundnum
bieytingum, en þær hafi aftur á
móti í för með sér breytingar á
lcftslagi jarðar. Hámark þess-
ara tímabila hefir í för með sér
aukna úrkomu, snjó og ís í norð-
lægum löndum, en regn í tempr-
uðum beltum. Eftir þessari kenn-
ingu ætti tímabil vort að vera há-
stig, þannig að sólgeislunin hafi
verið að aukast, síðan um 1700,
og ættum við þá- að vera staddir á
timabili, sem væri mitt á milli
ísalda. Með þessu móti verður
því loftslagið eins og í úthafs-
löndum, vetur hlýrri, en sumur
tempruð. Haust og vor verða á
þennan hátt fremur köld. Þannig
er það nú, og verður þetta vænt-
anlega svo í langan tíma. — Lesb.
Lægra verö á te
Samkvæmt fjárlögunum, sem nú
eru fyrir þinginu í Ottawa, er
tollur afnuminn af öllu te, sem
ræktað er og kemur frá brezkum
löndum. Hefir þetta nú þegar
haft áhrif á teverð hér í Canada
og nú er te selt í ýmsum búðum í
Winnipeg fyrir þeim mun lægra
verð, sem tollinum nemur. Te-
tollurinn hefir hingað til verið 7
cents á pundið af brezku te, en 10
cents af öllu öðru te. Þetta hef-
ir talsvert rnikla þýðingu fyrir
Canada, því árið sem leið var inn-
flutt 39,425,000 pund, sem kost-
uðu $11,752,000 . Nálega helm-
ingurinn af öllu þessu te kom frá
brezkum löndum.
T. D. Robinson dáinn
Hann andaðist hinn 4. þ. m. ná-
lega níutíu og tveggja ára að
aldri. Kom til Winnipeg 1888, o£
hefir verið hér jafnan síðan; hef-
ir alt af stundað kola- og viðar-
sölu. Atorkumaður mikill og vel
metinn.
Nýtt lárviðarskáld
John Masefield heitir sá, sem
nú hefir verið gerður að lárvið-
arskáldi Englands. Hann er hálf-
sextugur að aldri, fæddur í Liv-
erpool, en varð sjómaður á ung-
um aldri og fór víða. Margt ann-
að fékst hann við á yngri árum
og um tíma var hann í Banda-
rikjunum og flæktist þar víða, en
ekki græddi hann fé. Eftir að
hann kom aftur til Englands, fór
að rætast úr fyrir honum, og
skáldverk hans að fá meiri og
meiri viðurkenningu. Heimili hans
er í grend við Axford, og lifir
hann þar mjög kyrlátu lífi. Helztu
skáldverk hans eru: “The Ever-
lasting Mercy”, “The Widow in
the Bye - Streta’, “Phillip the
King’” “The Faithful”, “Dauge”
og “Sard Marker”.
Bretar neita kröfum
Egypta
Nefnd manna frá Egyptalandi,
með Nahas Pasha stjórnarfor-
formann sem fyrirliða, hefir að
undanförnu verið í London, í
þeim tilgangi að semja við brezku
stjórnina um samband Egypta-
lands við brezka ríkið. Má nú
syo heita, að Egyptar séu alger-
lega sjálfstæð þjóð, enda féll alt
í ljúfa löð milli Breta og Egypta
hvað mál Egyptalands snerti. En
þeir gerðu einnig þær kröfur, að
fá yfirráð yfir Soudan, eða að
minsta kosti til jafns við Breta.
Að þessari kröfu sá brezka stjórn-
:'n sér ekki fært að ganga og varð
því ekki að samningum í þetta
sinn, og eru fulltrúarnir frá
Egyptalandi farnir heimleiðis.
Fréttir frá London herma, að
nokkur hluti brezku stjórnarinn-
ar hafi viljað ganga að kröfum
Egypta, en þá hafi Lloyd George
tilkynt MacDonald forsætisráð-
herra, að ef það yrði gert, þá
gengi hann og sinn flokkur í lið
með íhaldsflokknum til að fella
stjórnina við fyrsta tækifæri.
Háskólabyggingarn-
ar í Manitoba
Gert er ráð fyrir, að byrja nú
mjög bráðlega á hinum fyrirhug-
uðu háskólabyggingum. Eins og
kunnugt er, var afráðið að
byggja hinn nýja háskóla þar sem
búnaðarskólinn er, eða þar rét<
hjá, og í sambandi við hann. Hef-
ir fylkisstjórnin veitt til þess
eina miljón dollara, en sagt er að
háskólaráðið muni verja einni
miljón og fimm hundruð þúsund
doll. til bygginganna á þessu ári.
Nokkur hluti þessa fjár mun þó
ætlaður til umbóta á gömlu há-
skólabyggingunum, sem notaðar
verða að nokkru leyti fyrst um
sinn. Þegar byrjað verður á
þessu verki, sem líkindi eru til að
verði nú áður langt um líður, gef-
ur það mörgum handverksmönn-
um og algengum verkamönnum
mikla atvinnu.
Ihaldsmenn vinna
aukakosningar
í West Fulham kjördæfinu á
Englandi fóru fram aukakosn-
ét
ingar hinn 6. þ. m. Þingmaður
kjördæmisins, er tilheyrir verka-
manna flokknum, hafði sagt af
sér. Fóru þessar kosningar þann-
ig, að þingmannsefni íhalds-
flokksins, Sir Gyril Cobb, var kos-
inn með nálega 300 atkvæða
meiri hluta. Við síðustu almenn-
ar kosningar hafði verkamanna-
flokkurinn 2,200 meirihluta.
Friðþjófur Nansen látinn
Hann andaðist í Oslo hinn 13.
þ. m., 68 ára að aldri, fæddur 10.
október 1861. Dr. Nansen er fyr-
ir löngu heimfrægur maður, fyrst
og .fremst fyrir heimskautaferðir
sínar en einnig sem vísindamað-
ur, rithöfundur, stjórnmálamað-
ur og mannúðarmaður. Vann hann
afar mikið að því, að bæta úr
hungursneyðinni eftir stríðið,
sérstaklega á Rússlandi. Á Nor-
egur 'hér á bak að sjá einum af
sínum frægu sonum.
Miklir jarðskjálftar
1 vikunni sem leið gengu af-
skaplegir jarðskjálftar í Burma
í Indlandi. Sérstaklega eru það
bæirnir Rangoon og Pegu, sem
orðið hafa fyrir miklu tjóni, og
voru þeir báðir að miklu leyti
eyðilagðir af flóðöldum, sem yfir
þá gengu. Er sagt, að í jarð-
skjálftum þessum muni hafa far-
ist um þúsund manns.
Young samningarnir
ganga í gildi
Þeir hafa nú verið undirskrif-
aðir af hlutaðeigandi stjórnar-
völdum og eru þar með gegnir í
gildi. Samkvæmt þeim eru stríðs-
bæturnar, sem Þjóðverjum ber að
greiða sambandsþjóðunum, um
níu biljónir dala, en einu sinni
var ætlast til, að þeir greiddu um
tattugu og fimm biljónir dollara.
Tvisvar -hafa kröfurnar verið
færðar stórkostlega niður, því að
Ijóst hefir verið, að ekki var til
neins að miða kröfurnar við það
tjón, sem af stríðinu leiddi, held-
ur fyrst og fremst við gjaldþol
þjóðarinnar. Má nú gera ráð
fyrir, að öllu þrefi um stríðs-
skaðabæturnar sé nú nokkurn
veginn lokið, ef Þjóðverjar geta
staðið við að borga það, sem þeir
hafa samið um að borga hinum
þjóðunum í skaðabætur.
Biðja um bráða-
birgðahjálp
Á fundi, sem Svíar héldu í Win-
nipeg í vikunni sem leið, var á-
kveðið að síma stjórninni í Sví-
þjóð og biðja hana um að leggja
fram fimtán til tuttugu þúsund
dollara til hjálpar Svíum, sem
hér eru, en eru atvinnulausir og
hafa verið það í vetur, og hafa
því ekki nægilega peninga, sér og
sínum til framfærslu. H. P. A. I
Hermannson, konsúll Svía í Win-
nipeg, tók það fram á fundinum,
að þetta væri í fyrsta sinni í 45
ár, að til þessara ráða væri tekið
og kvaðst hann vilja taka það
skýrt fram, að hér væri ekki ver-
ið að fara fram á neitt gjafafé,
heldur bráðabirgða hjálp, sem
yrði aftur borguð að fullu. Hér
eru margir Svíar, sem fyrir
skömmu, eða fáum árum að
minsta kosti, eru komnir að heim-
an og munu það vera þeir aðal-
lega, sem hjálpar þurfa. Hverju
stjórnin í Svíþjóð svarar, er ó-
kunnugt enn.
Sannir íhaldsmenn
Fyrir skönrmu héldu í'haldsmenn
í Marqúette kjördæminu í Mani-
toba, fund til að útnefna þing-
mannsefni tfyrir sambandsþings-
ings 'kosningarnar, sem fram eiga
að fara í sumar. En það var ekki
alt, sem fundurinn gerði. Hann
samlþykti þar yfirlýsingu, sem
merkileg þykir í sinni röð, jafn-
vel þó hún komi frá íhaldsflokkn-
um: “Fundurinn lýsir yfir því,
að hann er mótfallinn tilraunum
King-stjórnarinnar í því, að breyta
um fána, breyta um þjóðsöng og
koma því til leiðar, að í stað þess
að konungurinn skipi landstjóra,
þá geri Canada-stjórn það.”
Manitobafylki
sextíu ára
Hinn 12. þ.m. voru liðin sextíu
ár síðan lög þau hlutu konung-
lega staðfestingu, er gerðu Mani-
toba eitt af fykjumrm í fylkja-
sambandi Canada. Voru þau lög
samþykt af sambandsþinginu og
staðfest af landsstjóranum . Hef-
ir það því við nokur rök að
styrðjast, að telja aldur Manito-
bafylkis frá 12. maí 1870. En ekki
þmu lögin til framkvæmda fyr
en 15. júlí, enda hefir sá dagur
verið valinn til að minnast há-
tíðlega sextíu ára afmælis fylk-
isins.
+■— -------------------—+
Ur bænum
----------------- ----b
Þeir herrar, Vilhjálmur Jónas-
son og Helgi Thorvaldson frá Oak
Point, Man., voru staddir í borg-
inni um miðja vikuna sem leið.
Sunnudaginn 18. maí messar
séra Sig. Ólafsson í Víðir kl. 2
e. h.; að kveldi sama dags kl. 8 í
Árborg.
Messur í Vatnabygðum 18. maí:
Foam Lake kl. 11 (Fast T.ime)|;
kl. 7.30 (á ensku). Allir boðnir
og velkomnir. Virðingarfylst —
Carl J. Ólson.
Messuauglýsingar fyrir teunnu-
dagana 18. og 25. maí frá séra H.
Sigmar. — 18. maí messa í Brown,
Man., kl. 3 e. h. — 25. maí: messa
í Akra samkomuhúsinu á ensku
kl. 11 f.h. Messa á Mountain kl.
3 e.h. og Messa á Gardar gl. 8 að
kveldi. — Fólk er beðið að að-
gæta breytingar, er varð að gera
þann 25. maí: Messan á Akra
verður að vera kl. 11 f.h., en ekki
að kveldinu, og þess vegna kvöld-
messa að þessu sinni á Gardar.
—; Allir velkomnir.
Mrs. H. T. Halverson frá East-
end, Sask., sem dvalið hefir um
þriggja vikna tíma í Selkirk og á
Gimli, ásamt móður sinni, Mrs.
Th. Jónasson, lagði af stað heim-
leiðis Iþann 7. þ. m. Kom Mrs.
Halverson í þeim erindum, að
vitja lasburða föður síns og taka
hann með sér vestur, en því mið-
ur er hann ekki ferðafær sem
stendur. Mrs. Jónasson dvelur í
Selkirk um óákveðinn tíma og er
utanáskrift hennnar Box 298,
Selkirk, Man.
Stúkan Hekla hefir nú á að
skipa 200 meðlimum, og heldur
meira en það, og eru 130 af þeim
skuldlausir. Það er all-gott, þvi
margir hinir skulda aðeins fyrir
einn ársfjórðung. — Vér embætt-
ismennirnir mælumst til, að með-
limir stúkunnar, sem eiga heima
í Winnipegborg, borgi nú sem
fyrst gjöld sín, svo vér getum
auglýst í lok þessa mánaðar, að
skuldlausir séu 150 af 200 með-
um. Eg tel víst, að meðlimir
verði við bón vorri, embættis-
mannanna. örfáir þeirra, sem
utanbæjar eru, skulda. Flestir
kunna vel við sig í stúkunni
Heklu. — Vér mælumst líka til
þess, að Skuldar meðlimir sæki
fundi vora. Oss líður vel, þegar
vér sjáum þá fjölmenna. á fund-
um vorum.
J. Eiríkson.
SöngskemtuM á Gimli
Lögberg vill vinsamlega draga
athygli fólks að auglýsingu Karla-
kórs íslendinga í Winnipeg, er
birtist^ þessu blaði, um samkomu
þá, er þeir stofna til að Gimli
þriðjud. 20. þ. m. Mun óhætt að
treysta því, að fólk í Nýja íslandi
muni iiota tækifærið og fjöl-
mcnna á hljómleik þenna. Tón-
skáldið Björgvin Guðmundsson
stjórnar flokknum og munu það
vera næg meðmæli til allra, sem
geta og vilja koma. Karlakórið
hafði í vetur samkomu í Winni-
peg og hlaut einróma lof beggja
íslenzku blaðanna og blaðsins
Free iPress. Síðan hefir kórið æft
sig kappsamlega og æft mörg ný
lög og telur nú yfir 40 meðlimi.
Syngur það öll lögin á íslenzku,
þar á meðal hina gullfallegu út-
setningu Björgvins af “Lorelie”,
“Kveldklukkan” eftir Björgvin,
“Birtir yfir breiðum” og “Úr þeli
þráð að spinna”, “Buldi við brest-
ur” og mörg fleiri lög. Mun þetta
vera í fyrsta sinn, er íslendingum
í Nýja íslandi gefst kostur á að
heyra flokk undir stjórn Björg-
vins Guðmundssonar. Einnig hef-
ir kórið fengið Mrs. Baldur Olson
til að syngja sólólög og Ragnar H.
Ragnar til að leika á píanó á milli
þess er kórið syngur. Er því
söngskráin bæði fjölbreytt og
vönduð. Á eftir verður dansað.