Lögberg - 15.05.1930, Page 8
Bla. 8.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. MAl 1930.
tt*&s**Jbk* .• w
■■zamzmm
Betra haframjöl og betra postulín í
hinum nýju “Double-Sealed” pökkum
Robin Hood
Rðpid Oats
Silver Tea
Úr bœnum
■+
Dr. B. J. Brandson fór vestur
til Baldur, Man., um síðustu
helgi í lækniserindum. Hann kom!
heim aftur á mánudaginn.
-Séra Jóhann Bjarnason messar
væntanlega í Piney næsta sunnu-
dag, þ. 18. þ.m., kl. 2 e. h. Að
kveldinu er fyrirhuguð ensk
messa, á þeim tíma, sem þar í
bygð er venjulegur. Allir vel-
komnir.
Guðsþjónusta boðast hér með í
Lögbergs og Konkordíu söfnuð-
um í kirkju Lögbergs safnaðar
sd. þ. 18. þ. m. og þann 25. í kirkju
Kongordíu safnaðar; tekið til kl.
2 e. h. á báðurn stöðum. S.S.C.
Sunnudaginn 25. maí fer fram
ferming og altarisganga í Árdals-
söifnuði í Árborg. Mes3an byrjar
siundvíslega kl. 2 e. h. Fólk er
\insamlega beðið að veita athygli
breytingu á deginum, við það sem
áður var auglýst í kirkjunni.
Barnastúkan “Æskan”, byrjaði
fyrsta fund sinn með átta með-
límum á síðastliðnum ársfjórð-
ungi. Við ársfjórðungslok taldi
fcún tuttugu meðlimi og í byrjun
þessa ársfjórðungs 10. maín, voru
meðlimirnir orðnir tuttugu og
fimm. Hefir því hópurinn þre-
faldast og heldur meira. —
Skemtilegt væri, að börnin
kæmu á fundi stöðugt, kl. 3 til 4.
Vér skulum láta fara vel um þau
og kenna þeim ekkert ánnað en
það, sem er gott, nefnilega: (1)
Að drekka ekki áfengi; (2) að
brúka ekki tóbak; (3) að tala
ekki ljótt, blóta ekki; (4)i að
spila ekki fjárhættuspil.
Vér álítum það fallegt og mjög
þarft, að halda sig frá öllu því,
sem hér er talið að ofan.
Það er er eftirtektarvert, eða
máske eg ætti að segja dálítið ein-
kennilegt, að fundina sækja bezt
börn kunningja minna, svo sem
Bjarnasons, Gíslasons og Sædals,
og svo Guðrún Stefánsson. Öll
þessi börn kunna íslenzkuna og
flest þeirra kunna hana ágætlega
og eru svo ágæt börn. Auðvitað
eru öll börn það, ef farið er rétt
að þvi sem gera þarf.
Á síðasta fundi setti stórgæzlu-
maður ungtemplara eftirfylgjandi
meðlimi í embættj:
4Æ. T.: Guðrún Stefánsson.
F.Æ.T.: Fríða Gíslason.
V.T.: Sigga Gíslason.
Kap.: Lára Bjarnason.
Dr.: Matthildur Bjarnason.
A. D.: Margr. Einarsson.
Gjaldk.: Albert Holm.
Vörð.: Helga Holm.
Breði iSædal hafði verið kosinn
ritari og Alda Sædal fjármálarit.
en þau komu ekki á fund, svo að
fresta varð innsetningu þeirra.
Vér mælumst til þess, að for-
eldrar sendi börn sín á fundina.
J. E. (G.S.J.W.))
Þann 27. apríl s.l. héldu Aust-
firðinglar í Vancouver, B. iC.,
“Silver Tea” að heimili Mr. og
Mrs. Guðm. Anderson, þar sem
safnað var $20.00 til styrktar
kvennaskólanum á Hallormsstað.
Stóðu eftirfylgjandi fyrir sam-
sætinu:
Mrs. Guðm. Anderson.
Miss Mary K. Anderson.
* Mrs. Björg Gíslason.
Mrs. Svanborg Johnson.
Miss Helga J. Johnson.
Mr. eHrman Johnson.
Mrs. Sigríður Westman.
Mrs. Helga Wood.
Um 40 vinir voru saman komnir,
og var skemt sér með söng og
upplestri. Sigurður JÓhannsson
orti eftirfylgjandi kvæði
Réttið hlýjar hendur—
hugur fylgi máli,
meðan cnn við unnum
öllu, nema táli.
Brúið haf með hlýju
handartaki vina.
Sérstök samúð vakni
sorgir til að lina.
Æs'kudrauma dreymda—
drauma fyrstu vona —
landi sínu’ að Iifa;
lífið fór nú svona!
Vorið oftast vekur
vonir löngu dánar.
Blóm úr hugarheimi
hlýju meiri lánar.
Því skal systrum senda
sanna vorsins minning, —
lýsa upp líf með blómum,
lífga nýja kynning, —
mentun sanna meta
meira en útlent glingur;
leyna ekki lengur
lifir íslendingur.
Framtakssporið fyrsta
flestum örðugt reynist;
treinist vanans tjóður,
tápið sundur greinist.
Sækið fram til sigurs!
Seinast góður vilji
gengur heill af hólmi.
Hugsjón fjöldinn skilji.
Skíni mentaskóli
skær sem morgunstjarna —
minni mætra kvenna,
miðstöð héraðs barna.
Einstæð íslenzk menning
upp þar vaxa megi —
stilt, en djörf til dáða —
dreifa ljósi um vegi.
EALED TENDERS addressed to the un-
^ dersiffned. and endorsed “Tender for
Wharf Extension, Hnausa, Man.” will be re-
celved until 12 oclock noon (daylifcht sav-
in*), Thursday, Juno 5, 1930, for the con-
struction of an extension to the wharf, at
Hnausa, Selkirk District. Man.
Plans and form of contract can be
seen and specification and forms of tender
obtained at this Department, at the offices
of the Distrlct Engineer, Customs Buildlng,
Wfnnipegr, Man.; Builders Exchangre, 401
Notre Dame Investment Buildin^, Winnipeg-
Man., also at the Post Offices, Riverton,
Man., and Hnausa, Man.
Tenders will not be considered unless
made on printed forms supplied by the De-
partment and In accordanee with conditions
contained therein.
Each tender must be accompanied by an
acceptedd cheque on a chartered bank, pay-
able to the order of the Minister of Public
Works, equal to 10 per cent. of the amount
of the tender. Bonds of the Dominion of
Canada or bonds of the Canadian National
Railway Company will also be accepted as
security, or bonds and a cheque if required
to make up an odd amount.
Not^—Blue prints can be obtained at this
Department by depositing an accepted
cheque fftr the sum of $10.00, payable to the
ordcr of the Minister of Public Works, which
will be returned if the intending bidder sub-
mit a regular bid.
By order,
N. DE8JARDINS,
Secretary
Department of Public Works,
Ottawa, May 8, 1930.
Frú Thorstína Jackson Walt-
ers, erindsreki Cunard eimskipa-
félagsins, lagði af stað suður til
New York síðastliðinn þriðju
dagsmorgun.
:■ n
Bazar heldur kvenfélag Fyrsta
lút. safnaðar, í samkomusal kirkj-
unnar, á mánudaginn og þriðju-
aaginn, 19. og 20. þ.m. Útsalan
byrjar á mánudagskveldið um kl.
8 og stendur yfir fram eftir
kveldinu. Á þriðjudaginn stendur
útsalan yfir bæði scíðasti hluta
dagsins og að kveldinu. Það þarf
ekki að segja fólki í Winnipeg
margt um útsölur kvenfélagsins.
Allir vita að þar er æfinlega mik-
ið úrval af góðum og eigulegum
munum, með mjög sanngjörnu
verði. lEinnig verður þar kaffi-
sala eins og vanalega, og þar
verður einnig seldur brjóstsykur,
aldini og annað þess konar. Fólk
getur reitt sig á, að þessi útsala
mun sízt standa hinum fyrri út-
sölum kvenfélagsins að baki. —
Munið eftir tímanum: mánudags-
kveldið og seinni part dagsins á
þriðjudag og að kveldinu.
SAFETY TAXICAB CO.
LIMITED
Til taks dag og nótt. Sanngjamt
verö. Sími: 23 309.
Afgrreiðsla: Leland Hotel.
N. CHARACK, forstjðri.
Hljómleikar
KARLAKÓR ÍSLENDINGA í WINNIPEG
undir stjórn
BJÖRGVINS GUÐMUNDSSONAR
efnir til söngskemtunar að
' GIMLI
ÞRIÐJUDAGINN 20. MAÍ 1930
með aðstoð Mrs. Baldur Olson soprano; séra Ragnar
E. Kvaran baritone og Mr. Ragnar H. Ragnar
píanóleikara.
Byrjar stundvíslega kl. 8 að kveldinu.
INNGANGUR 50 cents.
Dans á eftir.
Lestrarsamkepni Fróns
Síðasti fundur deildarinnar
Frón í Winnipeg á þessu starfs-
ári, var haldinn í eifri sal Good-
templarahússins fimtudagskveldið
8. maí. Aðsókn var ekki eins góð
og verið hefði, ef veðrið hefði
verið hagstæðara.
Á fundi þessum fór fram hin
íyrirhugaða lestrar - samkepni
barna í íslenzku. Tóku 18 börn
af þeim, er notið hafa íslenzku-
kenslu Fróns í vetur, þátt í
benni. /
Var henni skift þannig niður,
eftir aldri, að í yngri deild voru
11 börn upp að 10 ára aldri, en í
þeirri eldri 7 börn frá 101—14 ára.
Veitti Frón fimm verðtaun í
yngri deild en fjögur í þeirri
eldri.
Dómarar voru: Dr. Sig Júl.
Jóhannesson, séra Benjamín
Kristjánsson og herra Ólafur
Eggertsson.
-
Úrskurður þeirra hljoðar þann-
ig, að í yngri deild vann Hall-
grímur Pétursson fyrstu verðl.,
Friðrik Kristjánsson önnur, Guð-
rún Stephensen og Guðrún Bjerr-
ing jafn réttháar til þriðju verð-
launa; Gladys Gillies fjórðu og
Lára Bjarnason fimtu Verðlaun.
í eldri edild vann Sesselja Bar
dal fyrstu verðl., Friðrik Bardal
önnur, Jónas Thorsteinsson þriðju
og Thelma Erickson fjórðu verð-
laun.
Öll komu börnin ágætlega fram,
að dæmi þeirra, er á hlýddu. —
Einnig var á skemtiskrá söngur
og aðrar skemtanir auk samkepn-
innar. Verður þessi kveldstund,
sem áður er sagt, hin síðasta að
sinni, af þeim mörgu gleði- og
nytsemdar stundum, er Frón hef-
ir veitt meðlimum sínum og öðr-
i:m, bæði á þessum vetri og öll þau
ár, sem það er búið að starfa. Er
það einlæg ósk vor, að félagið
megi rísa uipp að hausti eftir
sumarhvíldina með endurnýjuðum
starfskröftum, áhuga og þreki til
að vinna að þeim málum, sem það
hefir beitt sér fyrir á undanförn-
um árum, sem sé að beita sér
fyrir og kosta fræðslu barna í ísl.
tungu hér í Winnipeg, og þekk-
ingu á öllu því merka og goða í
fari þjóðar vorrar. Slík viðleitni
er af göfugum og óeigingjörnum
rótum runnin, og dálítið sýnis-
horn væntanlegs árangurs af
starfi Frónst, barst inn í sál og
meðvitund fólksins, sem hlustaði
á hljómskæru barnsraddirnar síð-
astliðið fimtudagskveld.
Ragnar Stefánsson.
Sigurðtir Jóhannsson.
Vandað stokkbelti úr silfri er
til sölu. Ritstj. vísar á.
Miss Gerða Christopherson, sem
nýlega gekk undir uppskurð á
Almenna spítalanum hér í borg-
inni, er nú á góðum batavegi og
býst við að komast af spítalanum
bráðlega.
MEIR EN NÓG AF
HEITU VATNI
Fyrir
aðeins
$1.00
niðurborgun.
Afganginn
með hægum
borgunar-
skilyrðum.
Er settur í
hún yðar
Rafmagns-
HEITAVATNS GEYMIR
SIMI 848 132
WuinípcöHijdro,
55-59 tlf PRINCESSST.
100 herbergi,
með eða án baðs.
Sanngjarnt
verð.
SEYM0UR H0TEL
Slml: 28 411
Björt og rúmgóð setustofa.
Market og King- Street.
C. G. HUTCHISON, edgandi.
Winnipeg, Manitoba.
Eina hótelið er leigir herbergi
fyrir $1.00 á dag.—Húsið eldtrygt
sem bezt má verða. — Alt með
Norðurálfusniði.
CLLB IIOTEL
(Gustafson og Wood)
652 Main St., Winnipeg.
Phone: 25 738. Skamt norCan við
C.P.R. stöðina. Reynið oss.
MANIT0BA H0TEL
Gegnt City Hall
ALT SAMAN ENDURFÁGAÐ
Heitt og kalt vatn. Herbergl frá
$1.00 og hsekkandi
Rúmgóð setustofu.
LACEY og SERYTUK, Eigendur
Hjónavígsla
Síðastliðið laugardagskvöld voru
gefin saman í hjónaband í Fyrstu
lútersku kirkju, Lurence Chester
Parmenter, og Jónína Magdalena
Thorbergson. Var kirkjan full af
fólki og athöfnin stórkostlega 'há-
tíðleg. Prestur safnaðarins, dr.
Björn B. Jónsson, framkvæmdi
vígsluna. Söngflokur safnaðains,
sá hinn yngri, klæddur hvítum
kyrtlum, söng mjög fagran sálm, á
undan athöfninni, en að athöfn lok-
inni söng söngstjóri sjálfur, hr.
Páll Bardal, einsöng, mjög meist-
aralega. Söngflokk þessum hefir
biúðurin heyrt til all-lengi.
Að lokinnj athöfninni í kirkjunni
var hin ánægjulegasta veizla hald-
ín að heimili Friðriks banka-
stjóra Thordarsonár og frú
Normu, konu hans. Er banka-
stjórafrúin systir brúðurinnar.
V’ar þar margt saman komið
frændfólks og vina og skemti sér
hið bezta.
Framtíðar heimili brúðhjónanna
verður í Vermont í Bandaríkjum.
Painting and Decorating
CONTRACTORS
Alt, sem lýtur að því að prýða
híbýli manna, utan sem innan:
Paperhanging, Graining,
Marbling
Óteljandi tegundir af nýjustu
inanhúss skrautmálning.
Phone 24 065
L. MATTHEWS og A. SÆDAL
ROSE
Sargent and Arlington
THUR. FRI. SAT., This Week
“The Man
I Love”
with
Henry Bryne, Riohard Arlin,
Jack Okie, Harry Green.
MON. TUES. WED. Next Week
Ruth Chatterson
m
“Charming
Sinners”
with
Clive Brook, William Powel,
Mary Nolan.
Lág Fargjöld
Eftir nokkrar vikur njótið þér
máske hinnar mikilifenglegu nátt-
úrufegurðar Klettafjallanna, eða
þér verðið á Kyrrahafsströnd-
inni, í Alaska, Vesturströnd Van-
couver eyju, Austur Canada, eða
jafnvel erlendis.
FARIÐ VlÐA OG SJÁIÐ MARGT
Kyrrahafs ströndin Austur Canada
UM pRJÁR LEIÐIR AÐ VELJA
GEGN UM FJÖLLIN. HVER
ÖNNUR FALLEGRI
Viðstaða á helstu stöðum
Engar dýrar aukaferðir nauðsyn-
legar. Gistihús meðfram brautun-
um, á fegurstu stöðunum.
Alaska
Sjáið hið dularfulla
Norðurland. Farið
neð hinum mikilfeng-
legu Princess skipum.
Frá V a n c'o u v e r,
báðar leiðir
FARBRÉF MÁ FÁ UM STÓR-
VÖTNIN
Með því að borga $10.00 meir fyrir
rúm og máltíðir
'________
Þrjár lestir daglega
The
De Luxe Trans-Canada Limited
The Imperial The Dominion
West Coast Vancourer Island
Hringferð um sögu-
rlka og fagra staði.
Frá Vietoria, báðar
leiðir
LÁG FARGJÖLD
Gildir til 31. okt., 1930
22. maí til 30 sept. til
BANDARlKJANNA
Fáið allar upplýsingar hjá umboðsmönnum Can. Pacific fél.
CANADIAN PACIFIC
Hafið með yður Canadian Pacific Travellers Cheques. peir gilda alstaðar.
GARRICK
LAST SHOWING THURSDAY
H.B Warneriu “The FURIES”
STARTING FRIDAY
Passed General
“SWELLHEAD”
ALL-TALKING with IAIVIES GLEASON
JOHNNY WALKERy iVIARION SHILLING
MATINEE 25c EVENINGS 4Qc
270 Mftln St.
WinnlpeH
100 Pinder Block
Saskatoon
401 Lancaster Bldft.
Calgary
10053 Jasper At«.
Edmonton
622 W. HastlnftaSt
Vancouver
36 Wellington St.
Weat
Toronto
22 St. Sacrament
Street
Montreal
Elzta e imskipasamband
við Canada
1840—1930
Nú er tíminn til að annast um
farar-útbúnað bræðra, systra, eig-
in-kvenna, barna, foreldra, ást-
meyja og unnusta á gamla land-
inu, er flytja ætla til Canada.
Cunard línan hefir hlotið frægð
fyrir ágætt fæði, fljótar ferðir og
sanngjarnt verð.
Vér höfum skrifstofur í öllum
löndum Norðurálfunnar, er greiða
jaifnt fyrir einstaklingum sem
fjölskyldum. Vér sendum pen-
inga fyrir yður til Norðurálfunn-
ar fyrir sanngjörn ómakslaun.
Ef þér heimsækið gamla land-
ið, þurfið þér ^vegabréf, sem og
endurkomu skírteini. Vér hjálp-
um yður til að koma þessu í kring.
Skrifið oss á móðurmáli yðar í
sambandi við upplýsingar, er yð-
ur verða í té látnar kostnaðar-
laust.
..JMMiÆ)
nadian Service
ATLANTSHAFS
GUFUSKIPA-FARSEDLAR
TIL
GAMLA LANDSINS
0G ÞAÐAN AFTUR
Hafið þér frændfólk á gamla |
landina sem langar að kom- ^
ast til Canada . . . ■
CANADIAN NATIONAL
Umboðsmenn
gera allar ráðstafanir
Sérstakir Vöruflutningar
til Selkirk
Komið í veg myrir óþarfa höndlun á vörum, sem
þér sendið til Selkirk.
Vörurnar teknar/ í' (Vöriíhúsi Jrðar og fluttar
sama dag.
Gjaldið er 20 cents fyrir hver hundrað pund, en
þó aldrei minna en 25 cents.
Sérstakt verð fyrir fult bílhlass.
Símið 842 347 eða 842 348 og þá kemur flutn-
ingsbíllinn.
WIHMIPEG ELECTRIC
COHP&HY
“Your Guarantee of Good Service’
Business Education
Pays
especially
“SUCCESS”
TRAINING
Scientifically directed individual instruction and a
high standard of thoroughness have resulted in our
Placement Department annually receiving more than
2,700 calls — a record unequalled in Canada. Write
for free prospectus of courses.
ANNUAL ENROLLMENT
OVER 2000 STUDENTS
The
SUCCESS
BUSINESS COLLEGE Limited
Portage Avenue at Edmonton Street
WINNIPEG