Lögberg - 19.06.1930, Blaðsíða 4

Lögberg - 19.06.1930, Blaðsíða 4
Bls. 4. LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. JÚNÍ 1980. Högtjerg Ghefið út hvem fimtndag af The Col- umbia Press, Ltd., Oor. Sargent Ave. og Toronto St., Winnipag, Man. Talsimar: 86 327 og 86 328 Einar P. Jónsson, Editor Utanáakrift blaCsins: The Columbia Press, Ltd., Box 3172 Winnipeg, Man. Utanáskrift ritstjórans: Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man. Verð $3.00 um ári5. Borgist fyrirfnun. The "Lösbertr" ls prlnted and pubUahed by The Columbia Pre«, Llmited, in the Columbia Buildlnc, (95 Sargrent Are, Winnipes, Manltoba. Joseph T. Thorson. Á fimtudagskveldið í vikunni sem leið, boð- uðu frjálslyndir kjósendur í Mið-Winnipeg- Winnipeg kjördaaninu hinu sýðra, til fundar á Fort Garry hótelinu, í því augnamiði að velja þingmannsefni, til þess að sækja fram undir fóna frjálslyndu stefnunnar við kosn ingar þær, er nú fara í hönd. Þingmaður kjör dæmisins yfir síðastliðið kjörtímabil, hafði verið hinn ágæti og mikils metni landi vor, hr. Josph T. Thorson, K.C. Gætti áhrifa hans á sambandsþinginu svo mjög síðastliðin fjögur árin, að flestum ber saman um það, að hann hafi vafalaust verið áhrifamesti þingmaður- inn frá Vesturfylkjunum, að undanteknum Mr. Dunning og forsætisróðgjafinn sjálfur, Andi sá, er á útnefningarfundinum ríkti, bar þess ljósan og ótvíræðan vott, hvers trausts og ólits Mr. Thorson nvtur meðal flokksbræðra sinna; ekki einnar einustu hjá- róma raddar varð vart; allir voru a eitt sáttir nm það, að svo drengilega hefði Mr. Thorson leyst störf sín af hendi í Ottawa, að ekki gæti komið til nokkurra mála, að breytt yrði til um þingmannsefni. Eftir skýra og skilmerkilega inngangs tölu, bar Mr. Clarence Keith lögmað- ur fram uppóstungu um það, að Mr. Thorson skyldi útnefndur á ný sem þingmansefni kjör- dæmisins; etuddi Mr. Harold Annis uppástung una, og var hún samþykt við dynjandi lófa- klapp í einu hljóði. Að útnefningu lokinni, bað forseti fundar- ins, Mr. Fred C. Hamilton, hljóðs Mr. Thor- son, og kvað þá enn á ný við langvint lófaklapp, ásamt háværum fagnaðarópum. Fyrir hönd frjálslyndra kvenna í kjördæminu, flutti Mrs. J. Fleming stutta, en skorinorða tölu, og full- vissaði Mr. Thorson um eindregið fylgi. Mr. Thorson var auðsjáanlega þreyttur, er á fundinn kom, sem sízt var að undra, eftir alt það feikna erfiði, er hann og að sjálfsögðu aðr- ir þingmenn höfðu á sig lagt síðustu vikurn ar, er þingið stóð yfir; þó gætti þreytumerkj- anna ekki lengi, eftir að þingmannsefni hóf mál sitt; talaði hann í fulla klukkustund, og óx ásmegin því meir, sem lengra leið á ræðuna. Minnumst vér vart að hafa áður heyrt jafn- snjalla, hvað þá snjallari pólitíska ræðu, en þessa, þrátt fyrir það, þótt ræðumaður kæmi þreyttur og óundirbúinn á fundinn. Með skírskotun til kosningaúrslitanna 1926, lét Mr. Thorson þess getið, að aldrei áður hefði hann orðið snortinn slíkri ómótstæðilegri fagn- aðarkend, sem þá, er það varð lýðum ljóst, að hann hefði gengið sigrandi af hólmi úr þeim sínum fyrsta pólitiska hildarleik; sér hefði fundist þeim mun meira til um þetta, sem víst var, að Mið-Winnipeg kjördæmið hið syðra, var eitt af allra fjölmennustu kjördæmum landsins. Orðið kvað Mr. Thorson hafa þess var, að ýmsir hefðu talið sig óvinveittan verka- lýðnum; þessu kvað hann samt alt á annan veg farið, því kröftum sínum öllum hefði hann, að béztu vitund, beitt heildinni allri jafnt í hag, án tillits til sérskoðana eða mismunandi stétta. í sambandi við fjárhag þjóðarinnar, benti Mr. Thorson réttilega á það, hve auðvelt hefðí verið að afla lánsfjár meðan á stríðinu .stóð, er þjóðin öll hefði staðið stjóminni að baki, sem einn maður. Fram hjá hinu yrði samt ekki auðveldlega gengið, að stjórn sú, er á þeim tímum hefði gengið röggsamlegast fram í því, að taka til láns, hefði engan veginn sýnt af sér hliðstæða rögg, er til þess kom, að endurgreiða eitthvað af slíkum lánum. Að því er King- stjómina áhrærði, væri þar nokkuð öðru máli að gegna; hún hefði verið, og væri enn fram á þenna dag, önnum kafin við greiðslu þeirra' skulda, er fyrirrennarar hennar í embætti hefðu stofnað til, sem flbezt mætti af því sjá, að á tímabili því, er hún hefði setið við völd, hefði grynt verið á þjóðskuldinni um tvö hundruð og fimtíu miljónir, eða sem svarar tíunda hluta þjóðskuldarinnar. Engin önnur stjórn í þessu landi, hefði nokkra sinni afkast að nándamærri öðra eins þrekvirki; lét ræðu- maður þess jafnframt getið, að engin einasta önnur þjóð í heimi, hefði á sama tímabili kom- ist í hálfkvisti við þjóðina canadisku, hvað greiðslu þjóðskulda áhrærði. Með tilliti til stefnuskrár-atriða þeirra, er stjórnin hefði lagt fyrir kjósendur í kosning- unum 1926, sagði ræðumaður, að ekki yrði um það vilzt, að hvert einasta þeirra hefði verið nákvæmlega uppfylt. Mintist hann jafnframt á álit Duncan-nefndarinnar, er. falið var að rannsaka til hlítar, aðstæður Strandfylkjanna; nú hefði öllum tilögum þeirrar néfndar verið hrundið í framkvæmd, hlutaðeigandi' fylkjum til varanlegra hagsbóta; stjórnin hefði enn fremur heitið1 því, að ljúka lagningu Hudsons- flóa brautarinnar; nú væri því verki lokið, og með því hefði ræzt einn af elztu draumum Vesturlandsins. Það væri einnig núverandi stjórn að þakka, að bundinn væri endi á hið langvinna þjark um endurheimt náttúrufríð- inda Sléttufylkjanna. Þá væri það einnig af- rek núverandi stjórnar, að ellistyrkslögin hefðu náð fram að ganga, þau lög, er um þessar mund- ir yfir fjörutíu þúsundir gamalmenna nytu góðs af. Væri nú svo komið, að fimm fylki hefðu þegar gert sér gott af þeirri löggjöf, og myndi þess ekki langt að bíða, að hin fylkin fetuðu í fótspor þeirra. 1 sambandi við launakjör heimkominna her- manna, benti Mr. Thorson á þá ómótmælanlegu staðreynd, að svo miklar umbætur hefðu gerðar verið á því sviði, að svo mætti heita, að mál það horfði nú alt öðru vísi við; breytingar þær, er gerðar hefðu verið á síðasta þingi, stefndu allar í mannúðaráttina, með hagsmuni allra heimkominna hermanna jafnt fyrir augum. Árið 1926, sagði Mr. Thorson að eftirlaun heimkominna hermanna vorra, hefðu hlaupið " upp á tuttugu og átta þúsundir dala, en í fyrra hefði upphæðin komist upp í fjörtutíu og tvær miljónir. Þessu til viðbótar sagði Mr. Thor son, að sérstakar ráðstafanir hefðu verið gerð- ar þeim mönnum viðvíkjandi, er elzt hefðu um ár fram, og ekki væru líklegir til að geta feng ið vinnu. Ekki kvaðst Mr. Thorson vera í nokkrum minsta vafa um það, að canadiska þjóðin þyrfti fyrst og fremst á alþjóða góðvild og vináttu að halda; hin efnalega velfarnan hennar væri að mestu leyti komin undir útfluttum og inn- fluttum vörum. ‘ ‘ Góðvild er nauðsynleg en alþjóða vinátta er lífsnauðsynleg,” sagði Mr. Thorson. Þá fór ræðumaður nokkrum orðum um vín- smyglunarmálið, og ráðstafanir þær, er stjórn og þing hefði gert til þess að binda enda á þann ófagnað; sæmd þjóðarinnar hefði verið í veði, og þess vegna þefði stjótmin skorist í leikinn og knúð fram löggjöf, er óheimilaði með öllu flutning áfengra drykkja héðan úr landi og suður til Bandaríkjanna. Eitt af þeim mörgu og mikilvægu málum, er kjósendum bæri að skera úr við ko.sningar þær, er nú færu í hönd, taldi Mr. Thorson vera það, hver ætti að fara með umboð fyrir Canada hönd, á fjárhagsstefnu þeirri, sem ákveðið hefði verið að haldin skyldi í Lundúnum í næstkomandi septembermánuði, hvort slíkt umboð skyldi falið afturhaldsliðinu, er stemma vildi stigu fyrir öllum vöru-innflutningi hing- að til lands, eða núverandi stjóra, er leitaðist við með öllum hugsanlegum ráðum, að auka viðskifti sín innan vébanda hins brezka veldis. Benti ræðumaður á það, að hvert einasta ríki, er seldi vörur til útflutnings, yrði jafnframt að vera við því búið, að kaupa inn vörur í stað- inn. Að því er hveitimarkaðinn áhrærði, og örð- ugleika þá, sem canadiska þjóðin hefði átt við að etja í sambandi við sölu hveitis, bepti Mr. Thorson á, að ástæðan væri aðallega fólgin í því, hve framleiðslan í Argentínu, Rússlandi, Þýzkalandi og Frakklandi, hefði aukist feyki- lega hin síðari árin. “Eitt af þýðingarmestu viðfangsefnum Mnnar canadisku þjóðar, er það, að útvega markað fyrir hveitiframleiðsl- una,” sagði Mr. Thofson, um leið og hann jafnframt benti á, að Bretland hið mikla væri fyrir flestra hluta sakir líklegasti viðskiftavin- urinn á þessu sviði. Undarlega -kvað Mr. Thorson sér koma það fyrir, að afturhaldsmenn bæru stjórainni það á brýn, að fjárlaga frumvarp Mr. Dunning?s, bœri í rauninni á sér flest íhalds einkenni. “Ef svo væri,” sagði Mr. Thorson, “því í dauðanum greiddi þá íhaldsflokkurinn á þingi atkvæði á móti frumvarpinu, og öllum þeim nýmælum, er það hafði til brunns að bera?” Eftir að Mr. Thorson hafði lokið máli sínu. dundu við langvinn fagnaðaróp á ný, og ósk- uðu fundarmenn honum svo góðrar giftu í kosningahríðinni. — Þott nokkuð hafi að visu áður verið skýrt frá störfum Mr. Thorsons á þingi hér í blað inu, þá þykir hlýða, íslenzkum kjósendum hans til frekari málsglöggvunar, að birt sé saman .dregið heildaryfirlit yfir afskifti hans af hin- um ýmsu málum, þau fjögur árin, er hann hef- ir setið á þingi. A þinginu 1927, flutti Mr. Thorson ræðu um ellistyrksmálið, jafnframt því sem hann lagði til, áð lögleiddur skyldi lífeyrir handa blindu fólki. Einnig tjáði hann sig hlyntan tryggingu gegn atvinnuleysi. Það var einnig Mr. Thor- son, er frumkvæði átti að því, að fram skyldi fara endurmat hermanna jarða; það var einn- ig Mr. Thorson, er sama veturinn á þingi, hvatti til þess. að' gerðar skyldu ráð- stafanir, er til þess leiddu, að Canada hefði rétt til að fyrirbyggja áfrýjanir til hæzta rétt ar Breta, sem og til þess, að breyta stjómar- skrá sinni eftir því sem þörf krefði. Er á þing kom veturinn 1928, og stjórnar* boðskapurinn lá til umræðu, fylgdi Mr. Thor- son því fram af kappi miklu, að Manitobafylki fengi endurheimt náttúrufríðindi sínj auk þess sem hann fékk hrundið í framkvæmd vissum breytingum á námulögunum, þannig, að hægra yrði um vik með að nytfæra náma-auðlegð fylk- isins. Það var einnig Mr. Thorson, er fyrstur allra þingmanna vakti máls á því, hve afar- áríðandi það væri, að lögð yrði jámbraut, er stytti eins og framast mætti verða leiðina frá Winnipeg til Hudsonsflóa brautarinnar, og það var einnig Mr. Thorson, er kom því til leiðar, að numin voru úr gildi þau ákvæði innflutn- ingslaganna, er lögleidd voru á þinginu 1919 og í sambandi stóðu við verkfallið mikla í Win- nipeg það ár. En í þeim ákvæðum var falið misrétti, er Mr. Thorson taldi óviðunandi með öllu að héldist í framtíðinni. Á þessu sama þingi, bar Mr. Thorson fram frumvarp til laga, er fram á það fór, að póstþjónum þeim, er í verkfallinu mikla tóku þátt og teknir voru síð- ar til baka, skyldu greidd sömu laun og öðrum ■starfsbræðrum þeirra, þrátt fyrir hluttöku þeirra í verkfallinu. Benti hann jafnframt á það í því sambandi, að stjórain ætti að ganga á undan, og skapa fagurt fordæmi, sem vinnu- veitandi. Ekki náði mál þetta framgangi í það skiftið, en með því var lagður grundvöll- urinn að þeirri réttarbót, er þingið næsta á eft- ir veitti áminstum póstþjónum. Um afstöðu Canada út á við, flutti Mr. Thorson áhrifamikla ræðu á þinginu 1928; var ræðan birt hér í blaðinu í íslenzkri þýðingu, og mun lesendum vorum þarafleiðandi kunnugt innihald hennar. Á þinginu 1929 flutti Mr. Thorson afar- snjalla ræðu um friðarmál mannkynsins, og Kellogg-sáttmálann. Var sú ræða enn fremur birt hér í blaðinu. Um afstöðu Mr. Thorson’s til Sjö-systra- málsins, er almenningi að sjálfsögðu vel kunn- ugt; kom hann þar fram sem eindreginn tals- maður þjóðnýtingarstefnunnar, og varði mál sitt af frábærri fimi og viljafestu. Á því sama þingi íkom enn til umræðu liður sá í fjárlögun um, er fram á það fór, að bætt skyldu launa- kjör þeirra póstþjóna, er í verkfallinu mikla í Winnipeg tóku þátt, en teknir voru aftur í stjórnarþjónustu. Flutti Mr. Thorson við það tækifæri aðalræðuna, og gekk fram í því manna bezt, að réttarbætur þær, sem um var að ræða, yrði veittar. Niðurstaðan varð sú, að liður þessi var samþyktur, og hlaut Mr. Thorson alþjóðarlof fyrir afskifti sín af málinu. Enn fylgdi Mr. Thorson því fast fram á sama þing- inu, að lögð skyldi ný járabrautarálma frá Winnipeg til Hudsonsflóa brautarinnar, og fékk loforð um það frá ráðgjafa jámbrautar- málanna, að rannsókn skyldi látin verða fara fram málinu viðvíkjandi. Á síðasta þingi lét Mr. Thorson mikið til sín taka og tók þátt í umræðum um flest þau mikil- vægustu mál, er fyrir lágu, svo sem um launa- kjör heimkominna hermanna, hjónaskilnaðar- málið, og málið um lífvænleg launakjör stjóm- arþjóna og átta stunda vinnutíma. 1 umræðunum um atvinnuleysismálið, tók Mr. Thorson einnig drjúgan þátt; lagði hann til, að komið yrði á fót ábyrgðarkerfi til trygg- ingar gegn atvinnuleysi, með þeim hætti, að vinnuveittandi vinnuþiggjandi og ríkið sjálft, legði fé f sjóð að jöfnum hlutföllum; hvatti hann til samvinnu milli sambandsstjóraar og stjórna hinna einstöku fylkja í þessu sambandi. 1 ræðu þeirri, er Mr. Thorson flutti í sam- bandi við fjárlagafrumvarpið, lagði hann á það sérstaka áherzlu, hve mikið yrði unnið á með rýmkunum þeim á forgöngutollinum brezka, er frumvarpið gerði ráð fyrir; benti hann á það um leið, hve stórvægilega þýðingu það hefði fyrir framtíð hinnar canadisku þjóðar, að afla markaðs fyrir hið canadiska hveiti; menn mættu ekki missa sjónar á því, sagði Mr. Thorson, að svo fremi að þjóðin geti til þess ætlast, að Bretar kaupi af henni hveiti, verður hún jafnframt að gera sér þess Ijósa grein, að henni beri til þess siðferðisleg skylda, að kaupa af Bretum í staðinn. Kvaðst Mr. Thorson líta svo á, að fjárlagafrumvarpið væri talandi góð- .viljavottur í garð þeirra þjóða, er viljugar væri til þess að verzla við Canada. í sambandi við stjómskipulega afstöðu hinnar canadisku þjóðar, lét Mr. Thorson í Ijós ánægju sína yfir störfum nefndar þeirrar, er á rökstólum sat í Lundúnum árið sem leið, og trygði Canada fullkomið jafnrétti í öllum lög- gjafarefnum við Bretland. Að því er viðkom aukinni tollvernd á stáli, lét Mr. Thorson þess getið, að hann væri því mótfallinn, að slíku yrði í framkvæmd hrund- ið, nema því aðeins, að áður yrði hlutast til um endurbætt vinnuskilyrði þeirra manna, er í stálverksmiðjum störfuðu. A síðast þingi átti Mr. Thorson sæti í nefnd þeirri, er um endurbætur á launakjörum heim- komina hermanna fjallaði, og gat sér þar hinn bezta orðstír. Varð árangurinn af starfi þeirrar nefndar sá, að meiri jöfnuður hefir náðst launakjörum heimkomitnna hermanna viðvíkjandi, en áður viðgekst, auk þess sem ný fyrirmæli voru sett , -er að því hníga, að veita sérstaka umönnun aldurhnignum hermönnum, sem lífið hefir leikið sárast og enga eiga að. Þá átti Mr. Thorson einnig sæti í nefnd þeirri, er víðvarpsmálið hafði með höndum. Nefnd sú lauk ekki starfi 0g verða úrslit málsins því að bíða næsta þings. A síðasta þingi átti Mr. Thorson sinn drjúga þátt í því, að Canadastjórn ákvað að senda fulltrúa á Alþingishátíðina, auk þess sem hún myndi, að erindrekum afturkomnum hingað til lands, heiðra íslenzku þjóðina að einhverju leyti frekar á viðeigandi hátt. Þótt hér hafi að vísu verið farið fljótt yfir sögu, þá hyggjum vér þó engu að síður, að ís- lenzkum kjósendum í kjördæmi Mr. Thorsons, veitist nokkru léttara að átta sig á starfsemi hans á þingi, eftir en áður. Að starfsemi Mr. Phorsons á þingi, hafi verið næsta marg- breytileg, verður eigi um vilst. Maðurinn er afkastamaður með afbrigðum, glöggur og víðsýnn hsefileikamað- ur, er ekki vill vamm sitt vita í neinu. Mannúðar og mannrétt- indastefnan á ötulan talsmann á þingi, þar sem Mr. Thorson er. Mr. Thorson hefir komið fram sjálfum sér og þjóðflokki vorum til hinnar mestu sæmdar, og það ætti að vera oss öllum metnaðar- mál, að stuðla að kosningasigri hans þann tuttugasta og áttunda júlí næstkomandi. Verum sam- taka, — hérna er hendin! Canada framtíðarlandið Engi og bithagi. Hið ágæta engi og bithagi, sem fyr á árum fóðraði þúsundir vís- unda, antelópa, elk- og moosedýra, er enn hér að finna. Þar sem ekki er næg beit handa búfé, þar sá menn alfalfa, smára, timothy, reyrgrasi, eða einhverjum öðrum fóðurgrasstegundum; þó er þess- um tegundum fremur sáð til vetr- arfóðurs í Vesturfylkjunum, eink- um í Manitoba, heldur en til bit- haga. Einnig er, maís sáð hér allmikið til vetrarfóðurs handa nautgripum. Þegar engjar í Vestur - Canada eru slegnar senmma, er grasið af þeim mjög kjarngott, og gefur lítið eða ekkert eftir ræktuðu fóðri, ef það næst óhrakið. Þær tegundir, sem bezt hafa reynst af ræktuðu) góðri í Vesturfylkjunum, er alfalfa, rúggras og broomgras, hvort heldur að þeim tegundum er blandað saman eða að þær eru gefnar hver út af fyrir sig. En ef sáð er þar til bithaga, þá er affalfa og broomgras haldbeztu tegundirnar. Áburður. Aðal einkenni jarðvegsins í Saskatchewan og í Sléttufylkjun- um öllum, er það, hve ríkur hann ; er af köfnunarefni og jurtaleif- um. Og það er einmitt það, sem gefur kornberjum frjóefni og varanleik. Þess vegna þurfa bændur ekki á tilbúnum áburði að halda. En ekki dugar fyrir bændu|r að rækta korn á landinu sínu ár frá ári, án þess að hvíla Iandið, eða að breyta um sáðteg- undir, því við það líður hann margfaldan skaða. Til þess að varðveita frjómagn landsins, þarf korn- og nautgripa- rækt að haldast í hendur, og verð- ur það þýðingarmikla atriði aldr- ei of vel brýnt fyrir mönnum, ef þeir vilja að vel fari. Hin hörðu vetrarfrost og hið þurra loftslag eru öfl til vernd- unar frjósemi jarðvegsins. Þau losa allan jurtagróðujr í klaka- böndum sínum, frá vetrarnóttum til sumarmála. Enn fremur varn- ar hið reglubundna regnfall sum- arsins því, að jarðvegurinn missi gróðrarltraftsins af of miklum þurki. Það hefir ávalt sannast, að þar sem framleiðsla hefir far- ið þverrandi, þá er það því að kenna, að landinu hefir verið misboðið — að bændurnir hafa annað hvort ekki^ hirt ujm að breyta til um útsæði, eða á neinn hátt að vernda gróðrarkraftinn. Eldiviður og vatn. Linkol eru aðal eldiviðarforði manna í -Saskatchewan, og eru í meir en þriðjung aldar hafa Dodd’s Kidney Pills verið viður- kendar rétta meðalið við bakverk, gigt, þvagteppu og mörgum fleiri sjúkdómum. Fást hjá öllum lyf- sölum, fyrir 50c. askjan, eða sex öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The Dodds Medicine Co., Ltd.. Toronto, ef borgun fylgir. stórkostlegar linkolanámur í suð- austur hluta fylkisins. Einnig hefir Dominion stjórnin í félagi við fylkisstjórnirnar í Saskatche- wan og Manitoba, ráðist í að búa til hnullunga úr kolamylsnu, sem er pressuð með vélum ásamt lím- efni til að halda mylsnunni sam- an, og hefir það reynst ágætt elsdneyti, ekki að eins heima fyrir, heldur líklegt til þess að verða ágæt markaðsvara. Kolum þessum má líka brenna eins og þau koma úr námunum, allvíða, og grafa menn nokkur fet ofan í jörðina og taka þar það sem þeir þurfa meg í það og það skiftið. Rangfœrslur um Grænlandssögu. Sambandið milli Grænlands og íslands, eins og það mun skoðast nú alment meðal fræðimanna úti um heim, getur naumlega táknast öðru vísi en þokukend hugsýn, sem árastarf krefðist til að gera mönnum augljósa. 1 því skyni að gera almennu áliti þessa máls auðveldara um yfirlit, vildi eg nefna þrjár aðal ástæður, sem valda svo mjög hugtakavillum í hinu heimsmerka efni, en hér skal að eins drepið á. Fyrsta orsökin til þess er sú, að enginn réttnefndur vísindamað- ur hefir tekist fyrir hendur að ákveða réttarstöðu Grænlands frá rótum og til vorra eigin tíma. Jafnvel öll hin fjölmörgu, stór- fenglegu rit og framkvæmdir, sem safnast hafa fyrir undir svoköll- uðu stjórnarkerfi Grænlands, frá landnámi Islendinga þar vestra, til þessa dags, hafa að mestu ver- ið rangfærð í aðalatriðum. Þann- ig er meginhluti óhlutdrægra les- enda víðsvegar um heim hafa ekki getað áttað sig, eða felt rökstudda dóma. Hin önnur höfuðhindrun gegn því, að sannleikur og réttsýni megi njóta sín um þetta stór- vægilega rannsóknarefni, er stranda- og hafnabann Dana, sem þeir halda enn uppi af alefli og á þann hátt, að undrum sætir að þeim skuli líðast slíkt, jafnvel enn þá á vorum eigin dögum. En með þeim hætti hefir þeim tekist að dylja fjölmargt, sem ekki hefðí staðið dagsljósið og siðaðar þjóð- ir mundu aldrei hafa þola. Hin þriðja grundvallarástæða þeirrar blindni, sem dulið hefir jörðina þess, hvert athæfi í raun og veru hefir ráðið um land og þjóð Skrælingjanna, er það, að svo hefir borið til, að íslenzkur maður við háskólann íslenzka flytur þá kenning, þvert ofan í ýmsar fjolmargar yfirlýsingar erlendra fræðimanna, fyr og síð- ar, að Grænland hafi aldrei verið nýlenda Islands. Með því að hér er ekki rúm í örstuttri blaðagrein til þess að rifja upp, né gefa yfirlit yfir það, sem skipulega hefir verið skrifað áður um framangreint efni, leyfi eg mér hér með að vænta þess að mega geta þessa málefnis aftur bráðlega í því skyni, að nokkuð mætti skýra mál- efnið nánar og taka dýpra í streng í ýmsum meginefnum Grænlands- málsins. Einar Benediktsson. Fyrir nokkru fæddist í Olmuetz í Tjekkislóvokíu barn, sem hafði fjóra fætur, fjórar hendur, tvö andlit á einu höfði og tvö hjörtu. Það lifði að eins í klukkutíma. Líkami þess er geymdur í læknis- fræðisafninu í Olmuetz. Garðrækt. Flest af blómum þeim og jarð- eplum, sem vaxa í görðum fólks í Evrópu; þar sem loftið er tempr- að, vaxa líka í Vestur-Ganada, svo sem raspber, jarðber, kúren- ur, bláber og margar fleiri teg- undir, nema í hinum norðlægustu héruðum. Kartöflu uppskera er mikil, og fá menn oft meira en 148 bushel af ekru, þó 1 sama blettinn sé sáð ár eftir ár; hefir sú uppskera oft numið 170 busihelum af hverri ekru á ári. Garðarnir gjöra oft- ast betur en fullnægja þörfum bændanna með garðávexti. Það er oft afgangur til sölu og úr- gangur, sem er ágætt fuglafóður. Garðar, þar sem bæði ávextir og fleira er ræktað, ættu að vera í sambandi við hvert einasta býli bænda í VesturGanada, og einn- ig munu bændu|r komast að raun um, að trjáplöntur í kring um heimili, margborga sig, og fást trjáplö/ntur til1 þejirra þarfa ó- keypis frá fyrirmyndarbúinu í Indian Head, í Saskatcheawn. — Einnig sér stjómin um, að æfðir skiógfræðingay frá iþeim búum veiti mönnum tilsög nmeð skóg- ræktina, og segja þeim hvaða trjátegundir séu hentugastar fyr- ir þetta eða hitt plássið. —

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.