Lögberg - 28.08.1930, Side 1
PHONE: 86 311
Seven Lines
43. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 28. AGUST 1930
NUMER 33
Ferðapistlar
Eftir séra Rúnólf Marteinsson.
(framh.)
í síðasta blaði mintist eg á tvær
ferðir mínar til Norður-Dakota á
þessu sumri. Þó á eg eftir nokk-
uð ósagt um hina síðari þeirra.
Vil eg aðallega segja frá því,
Fvernig fólkið reyndist mér. —
Tímann, sem við dvoldum á Moun-
tain, áttum við að nokkru leyti
heima hjá Mr. o!g Mrs. M. F. Björn-
son og að nokkru leyti hjá séra
Haraldi og Mrs. Sigmar. Örlæti
og alúð veittust okkur í ríkulegum
mæli á báðum þessum heimilum.
Tmsir aðrir buðu okkur heim til
máltíðar eða annara góðgjörða,
bæðij í Mountainbygðinni og ann-
ars staðar. Það var yndisegt* að
koma til þeirra allra.
Miðvikudalginn 23. júlí, átti eg,
ásamt sóknarprestinum, samtals-
fund með safnaðarfulltrúum úr
prestakallinu. Þrátt fyrir annir,
var fundurinn vel sóttur. Eg lagði
skólamálið fyrir all-ítailega. Vel
var hlustað og málið síðar mynd-
arlega rætt, með mikilli alvöru,
dálítið sundurleitum skoðunum,
en að mestu leyti af vinarhug til
skólamálsilis. Einn bróðir lét
þess getið, að það meiddi sig hve-
nær sem hann yrði þess var, að
það andaði kalt að skólanum.
Honum þótti af hjarta vænt um
skólann fyrir þá reynslu, sem
hann hafði af honum. Eg vona,
að við höfum allir færst nær hver
öðrum við þétta samtal.
Það, sem þessir góðu bræður
o!g allir aðrir leiðtogar vestur-
íslenzkrar kristni, þurfa að muna,
er það, að alt, sem lifir, þarfnast
fæðu á reglubundnum tíma. Skatt-
ur er borgaður á hverju einasta
ári, presturinn þarf kaup sitt á
hverju einasta ári? Alt, sem lif-
ir, þarf sit afskamtað uppeldi
reglulega. Skólinn er engin und-
antekning. Hann þarf reglu-
bundnar, ábyggilelgar, fastar tekj-
ur á hverju einasta ári. “Alt fari
fram siðsamlega og með reglu,”
segir postulinn. Þetta á alveg
eins heima um fjármálin, eins og
um guðsþjónusturnar. Andinn
í re!glu þeirri, sem Páll postuli gaf
Korintumönnum (1. Kor. 16:2):
“Iívern fyrsta dag vikunnar skal
hver yðar taka frá heima hjá sér
og safna í sjóð, eftir því sem efni
leyfa,” er sígildur. Engin fjár-
mál geta nokkurn tíma verið í
lagi, þar -sem reglusemi skortir.
Bræður, gefið okkur Iífsviðurværi
á hverju ári.
Á föstudagskvöldið (25. júlí),
var samkoma haldin í Eyford
Hall.i Nókkrar endurminningar,
sem eg á sjálfur, standa í sam-
bandi við það hús. Á þeim árum,
þegar eg var skólakennari í Norð-
ur-Dakota-bygðinni íslenzku, á ár-
unum 1892—7, stofnaði eg ung-
mennafólag í Eyford-bygðinni.
Það lifði ekki mörg ár, en þar var
um tíma mikið líf og fjör. Meðal
annars bygði það þetta samkomu-
hús. Var það reist, með leyfi
safnaðarins, rétt fyrir norðan
kirkjuna. Síðar var það selt
kvenfélagi bygðarinnar og flutt
um hálf.mílu norðar og þar stend-
ur það. Ýmsir hinna gömlu vina
minna, skólabarna fyrverandi og
annara, voru nú þarna komin gam-
an, þótt eg fyndi til þess, að suma
vantaði, sem þó voru í bygðinni.
Það er líklega enn tilfellið, að
svo fyrnast ástir sem fundir. Eg
held það sé satt, að einu sinni naut
eg ákaflega hlýrra vinsemda í
þessari bygð, og til er þar trygð
til mín enn, sérstaklega meðal
þeirra, sem gengu á skóla til mín,
soralaus eins o!g hreinasta gull.
Kvenfélaginu þakka eg af hjarta
fyrir það að lána húsið fyrir sam-
homuna algjörlega frítt og sömu-
leiðis að leggja til og bera fram
ágætar veitingar, þrátt fyrir hita
annir.
Vill nú ekki þetta ágæta og vin-
gjarnlega kvenfélag gjöra enn
betur: hafa það fyrir fasta reglu
að halda eina samkomu á ári til
arðs fyrir skólann. Má vera, að
öll hin kvenfélögin feti þá í þess
fótspor.
Heyrt hefi eg raddir, þó eg
voni, að þær heyrist aldrei í Norð-
ur-iDakota, að þetta sé ekki gott
málefni, sem við erum að berjast
fyrir. Jæja, það er þrent, sem við
kennum: (1 kristindómur, (2)
íslenzka (3) námsgreinir, þær sem
eru fyrirskipaðar af mentamála-
deild og háskóla Manitoba-fylkis.
Hvað af þessu skyldi vera ógöf-
ugt?
Jæja, eg má til að halda áfram,
annars verða þessir ferðapistlar
lsngtum of langir.
Ekki varð eg var við Norður-
Dakota skáldið, K. N., í þessari
ferð, nema á sunnudagsskólahá-
tíðnni að Mountain, og hrökk hon-
um ekki spaugsyrði af vörum. Eg
var þó þyrstur í að heyra eitthvað
af snilli-yrðum þeim, sem hann
er svo auðugur af.
■Sunnudaginn, 27. júlí, var eg
með séra Haraldi.á þremur guðs-
þjónustustöðum, prédikaði alls-
staðar og mintist allsstaðar á
skólann. Auk þess skruppum við
í skógargildi, sem sunnuda'gsskóli
Garðarsafnaðar, eða öllu heldur
kvenfélagið hélt fyrir söfnuðinn
og sunnudagsskólann, “í glitfögr-
um, laufgrænum lundi”, norðan-
vert við Garðar-bæ. Er mér sagt,
"að kvenfélagið ei!gi þenna skemtt-
stað. Þar var mikið af gleði og
góðgjörðum.
Á einn guðgsþjónustustaðinn vil
eg lítilsháttar minnast, Eyford-
kirkju, eða kirkju Þingvallasafn-
aðar. Hann er nú eini söfnuður-
inn í þessum íslenzku býgðum,
sem enn stendur fyrir utan hið
lúterska kirkjufélag. Út af þess-
ari kirkju spunnust hörmuleg mala-
ferli. Eg gat ekki annað en minst
þeirra, er eg kom þarna; en það
var fleira, sem streymdi um hug-
ann. Eg átti einu sinni mjög
fagnaðarríkt starf í þessari
kirkju. Eg stýrði þar sunnudags-
skóla, er eg var alþýðukennari
þar í bygðinni. Þar átti eg hina
inndælustu samverkamenn. Ein-
hvern veginn fanst mér sjálfsagt,
að þegar eg kæmi aftur í þessa
kirkju, væri elg að koma hemi til
gamalla kunningja, en eg hafði
gleymt því, að nú voru liðin 33,
heill mannsaldur, síðan eg( var
þar síðast. Hvar voru gömlu kunn-
ingjarnir? Flestir dánir, sumir
lasburða, svo þeir komust ekki.
í hópi hinna eldri kunningja voru
aðeins ein hjón, Mr. og Mrs. Krist-
ján Kristjánsson, sem þarna voru
viðstödd. Mér þótti undur vænt
um að sjá þau, og mér þótti und-
ur vænt um að sjá þar sumt af
fyrverandi skólabörnum mínum,
en eg saknaði margra.
Þannig er lífið sífeldum breyt-
ingum háð. Enginn veitir þeim
straum viðnám. Og allir verða að
sætta sig við þetta. 1 bili finnur
maður til saknaðar, en skynsemin
bannar manni að láta þetta
varpa skugga á lífið. Við verðum
að líta á nútíðina og leita þar
eftir því góða og finna þar gleði-
efnið.
Eitt af því tagi vil eg nú nefna.
Hefi eg áður vikið að því í sam-
bandi við Garðar-kirkju, en það
er vaxandi eining fólksins. Á nú-
verandi prestur, séra Haraldur
Sigmar, óefað góðan og mikinn
þátt í því. Allsstaðar í bygðinni
varð eg var við mikinn hlýleika til
hans. Það, að hann er fenginn
til að þjóna þessum söfnuði, sem
þó er utan kirkjufélagsins, er ein
sönnun vinsælda hans. En eg vil
líka nefna ryrirrennara hans til
þessa máls, þá séra Kristinn K.
Ólafsson og séra Pál Sigurðsson.
Hinn fyrnefndi stóð að visu í
stríðinu þar, þegar loginn var
heitastur, en löngu áður en hann
fór, var hann búinn að vinna
margt, sem studdi að því, að hugir
flokkanna færðust aftur nær hvor
öðrum, og séra Páll gjörði sitt
ítrasta til þess, að sameining
kæmist á. Þegar eg hugsa um
þann blíða blæ einingar, sem aft-
ur hefir farið um bygðina eftir
alt stormviðrið, túlka eg tilfinn-
ingar mínar með orðum eins ný-
árssálmsins:
“guði sé lof, því að grædd urðu I
sár,
Guði sé lof, því að dögg urðu tár;!
alt breytist f blessun um síðir.”j
Þriðju Dakota-ferðina fór eg til
Pembina, sunnudaginn 10. ág.
Fararskjóta, þ. e. að segja bíl,1
lagði til Dr. Ólafur Björnson í
Winnipeg, en með í förinni var
einnig hr. Bjarni Finnson, lengi
starfsmaður Lögerbgs. Veður var
gott, brautir ágætar, félagarnir
ákjósanlegir. Eftir nokkurra
klukkutíma dvöl í Pembina var
haldið heim aftur. Stýrði ólafur
læknir bílnum á suðurleið, en
Bjarni á norðuijeið. Eru þeir báð-
ir ágætir bílstjórar; enda gekk
alt eins og í sögu báðar leiðir.
.Pembina kemur töluvert við
sögu Vestur-íslendinga. Þar var
líklega fyrsti dvalarstaður þeirra
í Norður-Dakota, og áningarstað-
ur var þar lengi fyrir ferðamenn
upp í bygðirnar íslenzku vestar í
“county”inu. Lengi vel voru
nokkrir íslenzkir bændur búsettir
þar skamt frá og all-stór hópur
íslendinga búsettur í bænum
sjálfum. Var þar mikill kraftur
í sunnudagskóla og söfnuði lengri
! vel. Nú eru bændurnir allir flutt-
ir burtu og fáment af íslendingum
í bænum. Samt er þar enn söfn-
uður, þótt mjög fámennur sé, en
söfnuður, sem rækir allar skyld-
ur mjög vel við kirkjufélagið og
annast mál sín öll með myndar-
skap. Kirkjan er enn í sæmilegu
standi, með þeim áhöldum, sem
nauðsynleg eru til guðsþjónustu.
Margar endurminningar fólksins
eru tengdar við þessa kirkju. Hún
er í raun og veru helgur staður
vegna dýrmætra endurminninga
fyrir fólkið, sem í söfnuðinum er,
og líklega flest af því, sem ekki
er enn innritað í söfnuðinn. Von.
andi slær hópurinn sér allur sam-
an til viðhalds söfnuði og kirkju.
)lNiðurl. næst.)
Allir endurkosnir gagn-
* sóknarlaust
Á þriðjudaginn í þessari viku
fóru fram endurkosningar hinna
nýju ráðherra í Canada. Var Ben-j
nett forsætisráðherra endurkosinn'
gagnsóknarlaust og sömuleiðis
fjórtán af ráðherrum hans. Er þá
aðeins eftir að endurkjósa einn
af hinum nýju ráðherrum, og fer
útnefning hans frar hinn 2.
september. Það er 'Hon.E. N.
Rhodes, fiskiveiða ráðherra og1
þingmaður fyrir Richmond West,j
N. S. Ekki er búist við, að neinn1
sæki á móti honum. Tveir af ráð-
berrunum, Sir George Perley og
Hon. J. A. Macdonald, hafa ekki
sérstakar stjórnardeildir yfir að
ráða, svo þeir þurfi ekki að leita
endurkosninga. Er nú ekkert því
Cil fyrirstöðu, að aukaþingið,, sem
tíl stendur að haldið verði í sept
ember, sé kallað saman.
Læknaþingið
Hið mikla læknafélag, The Brit-
ish Medical Association, heldur
ársþing sitt í Winnipeg þessa dag-
ana, eins og áður hefir verið get-
ið um hér í blaðinu, að til stæði.
Er það vafalaust hið fjölmennasta
þing, sem nokkurn tíma hefir
haldið verið í Winnipeg, og fjöl-
mennasta og tilkomumesta þingj
vísindamanna, sem haldið hefir j
verið í Canada. Eru hér samanj
komnir læknar frá öllum hlutum'
brezka ríkisins og einnig frá
Bandaríkjunum, þar á meðal
margir hinna allra frægustu brezku
lækna.
Var læknaþingið sett á þriðju-
dagsmorguninn og bauð þá Brack-
en forsætisháðherra læknana vel-
komna til Manitoba og Webb borg-
arstjóri bauð þá velkomna til
Winnipeg borgar, og forseti fé-
lagsins, Dr. W. Harvey Smith,
flutti sína forsetaræðu. Fór þessi
athöfn fram í Winter Club bygg-
ingunni, og var mjög hátíðleg
guðsþjónusta haldin framan við
þinghúsið og voru þar, auk lækn-
anna, margar þúsundir Winnipeg-
búa saman komnir. Guðsþjónúst-
unni stýrði Matheson erkibiskup.
Princess Patricia hljómfærasveit-
in lék á hljóðfæri og söngflokkur
Holy Trinity kirkjunnar söng. —
Konur voru þar í þjóðbúningum
sínum, frá íslandi, Noregi, Sví-
þjóð, Danmörkp, Póllandi og enn
fleiri löndum, og munu margir af
læknunum ekki hafa séð þá bún-
inga áður. Um kveldið hafði fylk-
isstjórinn boð mikið fyrir lækn-
ana og marga borgarbúa.
Hveitisamlagið
Það hefir í þetta sinn staðið ó-
vanalega lengi á því fyrir hveiti-'
samlaginu, að ákveða þá upphæð,
er Samlagsbændur skyldu fá, sem
fyrstu niðuriborgun fyrir þessa árs
uppskeru. En nú hefir þetta ver-;
ið gerð og fyrsta niðurborgun verið
ákveðin 60 cents á hveitimælir-
inn. Er hér, eins og vanalega,
átt við No. 1 Northern í Ft. Wil-
liam. öll árin, sem hveitisamlag-
ið hefir verið starfandi, hefir
þessi fyrsta niðurborgun verið
81.00, nema 85c. árið 1928. Mun-
urinn er því stórkostlegur, eða 25—
40 cents. Niðurborgun á lakara
hveiti og öðrum korntegundum, er
tilsvarandi hveitiverðinu. Er sagt
að hveitisamlagið hafi gert marg-
ar tilraunir í þá átt, að hafa nið-i
urborgunina nokkuð hærri, eða
70 cents, en i^fuTvarmi hafi veriðj
ófáanlegir til a’O leggja fram
nægilegt fé til þess. Bendir það ó-
neitanlega í þá átt, að ekki er bú-
ist við nema mjög lágu verði á
hveiti þetta árið.
Hungursneyð í Afríku
Frétt frá Brussels segir, að
íjörutíu þúsund svertin'gjar í hin-j
um belgíska hluta af Congo, hafij
fallið nú að undanförnu af vista-i
skorti. Er Claes biskup borinn fyr-;
ir þessari fregn, en hann er aðali
trúboði Belgíumanna í þeim hluta
Afríku, sem Belgíu tilheyrir síð- j
an eftir stríðið, en tilheyrði áður
Þýzkalandi. Á þessi hungursneyði
sér stað vegna afskaplegra þurka.
Fréttin segir einnig , að margtj
fólk hafi flúið úr héruðum, £arj
sem hungursneyðin er mest, og
flutt sig í brezkar nýlendur, þai
sem ástandið er miklu betra.
Bílslys
Á þriðjudaginn rétt fyrir há-
degi, varð barn fyrir vöruflutn-
ingsbíl á Sargent Ave., rétt vestan
við ictorSt., og beið þegar bana.
Barnig var þriggja ára gamalt og
hét -Ethel Yonne Barnett og átti
heima að 618 Victor St. Sá bílinn
keyrði, heitir Joseph Paulin, að
129 Hart Ave. Ekki er haldið að
hér sé um neina óvarfærni af
hálfu ökumannsins að ræða.
Atvinnuleysið á Bretlandi
og annarsstaðar í Evrópu
Samkvæmt opinberum skýrslum.j
voru hinn 28. júlí 2,011,467 manna
atvinnlausir á Bretlandi, sem
kunnugt var um. Hefir tala
þeirra, sem atvinnulausir eru þar
í landi, aldrei verið eins há, eins
og hún er nú, síðan í júní 1921.
í sex löndum í Norðurálfunnni
voru um sama leyti taldir að vera
5,949,287 atvinnulausra manna.
Komhlaða brennur
Á miðvikudaginn í vikunni sem
leið, brann kornhlaða í St. Boni-
face. Var byggingin virt á sex-
tíu þús. dali og í henni voru um
55,000 mælar af byggi og 5,000
mælar af hveiti. Orsakir eldsins
eru ókunnar.
Bankarán
Tvö bankarán voru framin í
Canada í vikunni sem leið, annað
í Calgary, hitt í Montreal. í Cal-
gary náðu ræningjarnir $7,500, en
í Montreal $2,970. Bæði voru rán-
in framin um hábjartan dag og
á báðum stöðunum sluppu ræn-
ingjarnir og fóru sína leið í bíl-
um, svo enginn vissi hvað af þeim
varð.
Frá Seattle, Wash.
Herra ritstjóri Lögbergs!
Það er nú orðið .svo langt síðan,
að almennar fréttir hafa birzt héð-
an í íslenzkum blöðum, að ef ein-
hverjir í fjarlægðinni kynnu að
hafa gaman af að heyra eitthvað
af því, sem straumar tímans hafaj
f.lutt með sér hingað, til þessararj
norðunstrandar “Metropolis” í i
síðustu tíð, þá væri kannske ekkij
úr ve!gi, að senda blaði þínu
nokkrar línur, itil umgetningar
því helzta, ,sem komið hefir á
daginn síðan almennar fréttir sá-
ust héðan síðast, ef þú vildir ljá
þeim rúm í þínu heiðraða blaði.
Dettur mér þá fyrst í hug, —■
þrátt fyrir það, þó allir þekki veð-
ursældina hér við Sundið, — að
fara nokkrum orðum um tíðina,
því veturinn síðastliðni var svo
frárugðinn að verðlagi því, sem
vanalega gerist hér vestur við
hafið, — þótt á norðurströnd
Kyrrahafsins sé, sem má auðvit-
að búast við að sé kaldarai en suð-
urströndin, — að sá vetur verður
sjálf.sagt mörgum minnisstæður.
Haustið alt síðastliðna, var ó-
vanalega þurt og -sólríkt fram í
desembermán., en þá fóru að koma
skúrir við og við, og rigndi tals-
vert mikið seinni part þess mán-
aðar, en spm hætti og breyttist
aftur til þurviðra með áramótun-
um. En þá þótti ekki taka betra
við; janúarmán. var mestallur sá
frostamesti mánuður, sem menn
muna hér; þrjár vikur samfleytt
þann mánuð, hélzt frostið um 14
gráður á Fahr. að meðaltali, sem
er langvinnári frostakafli, en eg
hefi lifað í síðastl. 23 ár. En sól
og vindur úr ýmsum áttum fylgdu
daglega þessum kuldum. Strax
með febrúar breyttist þó aftur
til mildara veðurs, en talsverður
loftkuldi hélzt lengst af alla vor
mánuðina. — Sem merki þess, að
lítið rigndi hér við Puget Sound,
(Sundin, sem við köllum), s. 1. vet-
ur, þornuðnu svo upp ár og læk-
ir, sem komu frá fjöllunum, að
til vandræða horfði um nokkurn
tíma, sökum vatnsskorts, sérstak-
lega við atvinnurekstur borgar-
innar; mörg verkstæði, myllur og
margt fleira, hættu að vinna um
lengri eða skemmri tíma, þegar
alt fraus eða þornaði upp. Bænda-
lýður hér fyrir norðan Seattle
(um 100 mílur) varð svo hart
leikinn um tíma, að brunnar
margra þeirra þornuðu alveg, svo
þeir urðu að aka vatni handa
gripum sínum frá þeim, sem
vant höfðu, sem var.la nokkurs'
staðar var til, annað en seitlur ij
brunnum á stöku stöðum, ogj
hefði vatnsneyð sú haldist 2—3
vikum lengur en hún gerði, þá
hefði farið enn ver. En sem bet-
ur fór, lagaðist þetta með vor-
mánuðunum, þá fóru að koma
þéttir skúrir og gnægð af vatni
var komin innan fárra vikna, svo
gras og annar jarðargróður varð
í allgóðu lagi. Þó varð heytekjan
hjá sumum heldur rýr, og kendu
menn það frostum og þurkum á
berri jörð- s. 1. vetur, því aldrei
féll snjór hér norður undan all-
an veturinn, sem heitið gat; héldu
því margir, að vorið yrði í votara
lagi, en regnfallið þá náði varla
meðaltali. — Um miðjan júní fór
loftið algerlelga að hlýna, svo
jafnvel heitustu dagarnlr, sem
komið hafa hér enn í sumar, voru
þá; steig hitinn þá hæst 90 gr.;
seinni part júlímán. komu einnig
nokkrir heitir* dagak, en jafn
heitast hefir þó orðið í þessum
mánuði, það sem af honum er;
hefir þó 'hitinn sjaldan stigið yf-
ir 80 gr., en það þykir nú mjög
heitt hér vestur við hafið. öll
jörð er því þur o!g skrælnuð nú
sem ekki hefir fengið vatn á sig,
því mjög lítið hefir rignt í síðastl.
tvo mánuði.
Enginn skyldi Iþó kvarta undan
tíðinni hér, því hún er of lofsverð
til þess, þegar maður, reiknar
hana út til jafna?ar. Kyrðin og
hægviðrin, sem hér eru til jafnað-
ar, með tempruðum hita o!g kulda
árið um kring, frítt fyrir öllum
loftstraumum rafmagnsins, sem
Eftirköstin
Síðan stríðinu lauk 1918, hafa
geras vo tilfinnanlegan skaða ár-
lega á lífi og eignum manna í
sumum öðrum hlutum þessa meg-
inlands; slík óveður þekkjast ekki Bretar borgað tU Hfsframfærslu
, . , . ,, . , . . - , i hermanna og aðstandenda þeirra
her, efga her ekki heima a þess- *
■ , . .. , - . . „ fjárupphæð, sem nemur fjórum bil-
ari kyrru strond. Þessum kostum ’ ■
jónum og fimm hundruð þúsundm
dollara, sem er meira fé, en öll
ríkisskuldin fyrir -stríðið. Nú
stm stendur er kostnaðurinn Við
er hætt við að sumir gleymi, þeg-,
ar þeir eru að kvarta undan tíð-'
inni hér vestur frá.
Þá er nú víst mál komið að
skifta um efni, til þess að tala þetta hér um bil fimtíu og þrjár
ekki alt af um veðrið einlgöngu.
Heilsa og líðan meðal landa al-
ment, er á heldur góðu stigi eftir
miljónir sterlingspunda á ári, eða
nokkuð meira en ein miljón á viku.
Af þessari feikna fjárupphæð,
vonum. Atvinnutimar hér í borg- ganga nokkuð yfir fimm milwnir
inni hafa að sönnu verið með'111 fyrverandi hermanna, sem
daufara móti, alt þetta ár, og enda1 heima ei»a 1 Canada Banda'
síðustu mánuði s. 1. árs. Mun hið riiíjunum-
sama kveða við víða annars stað-í
ar, í þessu “gósen landi” nú, Voðaverk
hvað sem því veldur. Sem við var
að búast, þrengdi atvinnuskortur-
inn. talsvert að verkalýðnum síð-
astliðinn vetur, handverksmönn-
um sem öðrum, er ekki höfðu
fastastöðu neina, því með minna
móti var gert í bor'ginni af al-
mennri vinnu, um lengri tíma. —
Talsvert hefir þó raknað úr þessu
þessa síðustu mánuði, þó tímarn-
ir geti ekki kallast góðir hér enn.
Stóreignamenn borgarinnar, og}
ýms ríkisfélög, virðaist þó ekki
I Ungur maður, Emery Frennette,
réðist aðfaranótt þriðjudags þess-
i arar viku, inn í fólksflutningslest
! skamt frá Fort Francis, skaut tvo
l innflutninga umboðsmenn frá
Bandarikjum til dauðs og rændi
I peningum þeim, sem fimm af
starfsmönnum þeim, er á lestinni
unnu, höfðu meðferðis. Að þessu
búnu fór hann aftur út úr lest-
inni, en ekki liðu nema fáar
til hann
ólífi? af
eltu hann
o!g náðu honum áður en hann
komst langt burtu. Maður þessi
hafði verið tekinn fastur á laug-
ard^ginn í vikunni sem leið og
hafði hann handjárn um annan
úlnliðinn, þegar hann vann þetta
voðaverk. Alt til þessa tíma er
sagt, að hann hafi hagað sér vel.
Lítur því út fyrir að eithvert æði
hafi Igripið hann alt í einu.
klukkustundir þangað
var sjálfur særður til
tapa trú á uppgangi Seattlebor-g- lögreglumönnum) sem
ar, því hver stórbyggingin á fæt-
ur annari þýtur upp, þó þeim
smærri sé haldið til baka nú að^
talsverðum mun ^riðj það sem
vant er. Flestir vona, að það
lagist þó með haustinu.
Margir landar í þessum bæ, eruj
svo hepnir, að hafa fasta stöðu'
cða atvinnu árið um kring, og
þeim er öllum betur farið; en
hinir, sem verða að leita sér lífs-
brauðs, verða að sæta því sem að
höndum ber, hvort þeir fá nokkuð
eða ekkert að gera.
Félagslíf meðal landa, heflr
látið ilítið á sér bera yfir sumar-
mánuðina ,eftir venju, því flest
félög taka sér þá hvíld. Síðastl.
vor og vetur, hafði það verið með
allmiklu fjöri, hefi eg heyrt; eg
var þá ekki hér í borginni, og get
því ekki lýst því nánar. Með næsta
mánuði mun það vakna á ný. Þá
fara öll félög aftur á stúfana með
endurnýjuðum kröftum eftir sum-
ardvalann, og sum með nýjum
starfskröftum, eins og safnaðarfé-
lagið, sem séra Kristinn K. Ólaf-
son kemur til bráðum, til að vekja
af löngum svefni; því eins og
mörgum er kunnugt, hefir Hall-
grímssöfn. í Seattle verið prest-
laus að mestu síðan á nýári sið-
astl. vetur, er séra Kolbeinn Sæ-
mundsson sagði honum upp þjón-
ustu. — Hefir séra Kristinn nú
tekið að sér þjónustu þess safn-
aðar framvegis og er væntanleg-
ur hingað til hans með byrjun
næsta mánaðar.
Veiðiskapur í Cauada
Dr. H. F. Lewis, einn af em-
bættismönnum innanríkis ráðu-
neytisins í Ottawa, segir að veiði
villidýra í Canada og fiskiveiðar,
sem þó eru ekki stundaðar sem
atvinnugrein, auki viðskiftin í
landinu um hér um bil fjörutíu og
fimm miljónir dala. Skinnin af
villidýrunum, sem veidd eru, eru
vafalaust aðal atriðið. En hér er
lika meðtalið skotfæri og önnur á-
höld til veiðiskapar, ferðakostnað-
ur og rftargt og margt fleira. Dr.
Lewis segir, að villidýrin í Can-
ada séu biljón dala virði.
Vilja komast heim
Konsúlar margra þjóða í Mont-
real segja, að margt fólk komi dag-
lega til sín og vilji fá vegabréf til
þeirra landa, sem það kom frá.
Sumt af því fólki er fyrir skömmu
komið til Canada, en aðrir eru Can-
ada borgarar. Flest af þessu fólki
hefir litla eða enga peninga og
“* . ~~ , , , , . 1 vill fá hjálp til að komast til
Tveir aðkomuprestar íslenzkir i
i_'_ - i___j__: smna heimalanda, vegna þess að
þeir geti ekki fengið hér atvinnu.
Sumt hefir þar á móti töluverða
peninga, en heldur að ódýrara sé
að lifa í þeim löndum, þar sem
það var áður.
eru staddir hér í borginni. séra
Carl J. Olson frá Wynyard, Sask.,
og séra N. Stgr. Thorláksson, á
heimleið frá Japan, hvar hann
hefir dvalið um árlangt hjá syni
sínum, séra Oktovíusi, sem rekur
trúboð þar. Kom séra Steingrím-
ur hingað ásamt frú sinni og syni
þeirra, séra Octavíusi, um 7. þ.m.
Hafa gömlu hjónin dvalið hér í
borg og í Tacoma síðan þau komu,
hjá vinum og ættingjum, en bú-
ast við að leggja af stað héðan
til heimkynna sinna 3 N. Dakota
laust fyrir næstu mánaðamót. —
Séra Octvaíus hafði hér litla við-
dvöl, þegar hann kom af skips-
fjöl, fór þvínær strax suðaustur
til Baltimore, Md., á trúboðafund,
sem haldinn var þar um miðjan
þenna mántið. Leggur hann aft-
ur af stað héðan til starfs síns í
Japan, með haustinu. — Séra
Steingrímur og kona hans, frú
Eirikka, eru bæði hress í anda og
líður vel hér á milli ættingja og
gamalla vina að austan. Þau
leggja þá öll saman af stað til
N.-Dak. í híl, sem Prof. Eastvold
á. Prof. Eastvold er kennari við
háskólann í Minot, og þarf að
hráa sér tii stöðu sinnar þar um
mánaðamótin. Bæði eru þau hjón
viðfeldin og alúðleg í viðmóti og
bæði vel sönghneigð, hún organ-
leikari og hann sön'gmaður góður.
Séra Steingrímur prédikaði hér á
ensku, yfir því nær fullu húsi, í
Hallgrímskirkju, síðastl. sunnu-
dag. Norskur prestur, Rev. Haa-
vik, aðstoðgaði hann við þá em.
bættisfærslu, en Prof. Eastvold
söng einsöng við undirspil frú
Eastvold. Ræða gamla mannsins
var hin áheyrilegasta, flutt af
krafti o!g sannfæring, eins og
honum er ávalt svo ’innanbrjósts
áttu því láni að fa'gna, er þau að gera, þegar hann flytur boð-
komu til Seattle, að mæta hér
dóttur sinni og tengdasyni, Prof.
j og Mrs. Eastvold frá Minot, N.-
Dak., er bæði hafa verið hér á
sumarskólanum U. of W., og tek-
ið sér bústað nálægt skólanum,
hvar foreldrarnir halda sig að
mestu hjá þeim, þar til að skólinn
hættir þann 28. þ. m., og þau
skapinn til mannanna úr hinni
heilögu bók. — Séra Steingrímur
lagði niður prestskap fyrir rúm-
lega þremur árum síðan, eins og
mörgum er kunnugt, eftir um eða
yfir 40 ára prestsþjónustu hjá
lút. kirkjunni, mestan hluta tím-
ans í Canada. Mikill o!g góður á-
(Tramh á bls. 8)