Lögberg - 28.08.1930, Blaðsíða 2

Lögberg - 28.08.1930, Blaðsíða 2
Bls. 2 LÖGBEKG, FIMTUDAGINN 28. ÁGÚST 1930. Veálan af ströndinni Félagslif meðal íslendinga á Kyrrahafsströndinni, virðist hafa verið hið f jörugasta, bæði í vor og sumar, eftir fregnum þaðan að dæma. Islendingadagur, eða öllu heldur minningardagur í tilefni af þúsund ára af- mæli hins íslenzka Alþingis, var haldinn að Silver Lake, og sóttu þann mannfagnað hart-nær níu hundruð manns. Lestrarfélagið “Vestri” i Seattle, efndi til skemti- fundar þann 4. júní síðastliðinn, er sérstaklega var helgaður Alþingisafmælinu, og var hann næsta fjöl- sóttur. Stofnað hafði verið til ljóða-samkepni meðal Islendinga á ströndinni í tilefni af þjóðhátið islenzka ríkisins. Þrenn verðlaun voru veitt, en alls komu til framboðs fimm kvæði, er hér fara á eftir: Til Islands (I júní 1930.) Þig hefir margur dáð í drauma-sýn — Og' dvalið sæll í riki þinna Braga. • I fjarlægð elskað fornu hrjóstrin þín, Sem frumleik snildar tengd er öll þln saga. Og margur hjá 'þér fullnægingu fann, Er fró og líknsemd einverunnar seiða. — — Það virtist þroska meiri’ 0g betri mann, Að minnast við þitt fjalla-loftið heiða. En nú ber annað ennþá stærra við, En aðdáun hjá þeim, er hugsa’ í ljóðum. — Því nú er spurt: — ‘hvar finst í fornum sið, Hiftfyrsta, spor til lýðstjórnar hjá þjóðum?’ Það lyptist tjald — og Lögberg þitt er sýnt, Og Lögsögn tJlfljóts heilluð fram á sviðið! Og stjórnsemin og vitið, vegsemd krýnd, Svo varpar gneistum foma goða-liðið! Það leiftrar víðar enn um Þingvöll þinn, ílr Þorgeir boðar kristna trú með lögum! — En aðrar þjóðir beittu brandinn sinn, Svo bergmálið er guðlaust, frá þeim dögum Og eflaust mun það lýsa lengi bjart, Er lézt þú banna hólmgöngur með lögum. —Á dögum Hrafns og Gunnlaugs varð þess vart, Að vitrir goðar réðu þínum högum. Og eins — að stvtta útlegð einstaks manns, Sem ógæfan og heiftin banna friðinn. Það örlar þar á kendir l^ærliekans. — —Menn komust við—þó Grettir væri liðinn Já, það er glæst um gamla Þingvöll enn! Nú ganga þar um Sögu-vígðar slóðir, Af umheim kjörnir, konungbornir menn — Þeir kynnast þér — og verða sögu-fróðir! Svo gakk þú örugg, móðir, móti þeim! Og mundu — þú ert einnig rík og tignuð! 0g þú munt rómuð enn, um allan heim, Þá önnur voldug ríki verða hnignuð. JaJcobína, Johnson. ísland (Tileinkað Islandi og Islenzku þjóðinni á þús- und ára afmæli Alþingis, 29. júní 1930.) Langt í fjarlægð, fyrir tíu öldum, frumherjar sér numið höfðu land. Land, sem gyrtu höf nieð hrönnum köldum. og Hávamálin kváðu æ við sand; land, sem rétti himni hvíta tinda og kysti vorsins glæsta morgunsól, og landsins dísir blómvönd gjörðu binda úr blómum, sem þar uxu’ í dal og hól. Og þetta land var ísland okkar kæra. Og áar vorir frægu stóðu þar á vellinum við vatnið Öxár tæra; vitrir höfðu stefnt til fundar þar. Að byggja land með lögum þótti sæma; lýðveldið var hvítvoðungur enn; til að sækja “sök”, og verja og dæma sína ætíð völdu beztu menn. Og þing var sett und himinboga heiðum, og handsöl voru i>æði traust og mörg. Frelsisgyðjan lék á austur-leiðum lög, sem endur-kváðu stuðla-björg. Nú voru fyrstu frelsis-þættir snúnir framtíðinni, og allra þjóða hag. Tíminn hefir geymt þær guða-rúnir, sem göfugmennin ristu oss þann dag. Þjóðin mín, með þrótt og sterkan vilja, þúsund ára staðist hefir próf. Iturmennin ávalt virtust skilja,, og enginn þeirra pund í jörðu gróf. Þeir stóðu’ verði’ um niflheims vetrar nætur; á náströnd þrauta bitrust drukku full; en ‘ ‘ Múspellsheimur ” annars var þeim sætur, er sólin breytti öllu’ í lýsigull. Við, sem hér frá vestur-ströndu mænum vonar-augum heim til þín í dag, og í okkar hjartans barna-bænum biðjum guð, þér snúist alt í hag. Munið, bræður. minnist, systur góðar, að menning treystir veizla-'böndin sterk. Við erum hér sem þingmenn vorrar þjóðar, það er okkar heilagt skyldu-verk. Við, sem búum langt frá okkar landi, með lýð, sem á sér afreksverkin flest; vér getum, samkvæmt okkar stöðu’ og standi, stundað margt, sem okkur líkar bezt. Enviljirðu’ láta víðsýn augað hrífa, — viljirðu’ gleyma böli, dauða og synd — lát þinn hug og sál á vængjum svífa um sumar-nótt á íslands fjalla-tind. A sævar-strönd mér svífa ljóða af munni; sonar-kveðja, er hjartað eitt til bjó, til landsins, sem að ungur fyrst ég unni, er æsku-vonin gullinhörpu sló. Heim! ó, heim! nú halla tekur degi. Eg hefi ’ ei gleymt þér, kæra feðra-storð. Við sólarlag míns lífs — þá höfuð hneigi, eg helga þér mín fyrstu og síðstu spor. Þorsteinn Borgfjörð. Fóátbræðra minning Bjartur sumarhiminn heiður, Heilladagsins lyftir brún. PTiðarkyrð um hjörð og hreiður, Hafið, vengi, skóg og tún. Sólin geisla sína breiðir —Syngja fuglar þakkargjörð— Yfir landið, af því leiðir Áframhald af lífi á jörð. Fagnar minning, stund og staður Stofnun, þúsund árum fjær. Framsýnandi ’ er frægðarmaður; í’yrir land sitt rétti nær. Fyrst með lögum land skal byggja — Lagði ’ann til um réttarhald, Ríkisheild að tengja og tryggja. Takmarkið var þjóðarvald. TJlfljótur, með sæmd og sóma, Setti Islands ríkisþing. Þjóðin lærði lög og dóma, Lögréttuna alt í kring. Þá varð gleði ’ og líf í landi — Lifir ætíð þessi dygð. Norrænn fylkti frelsisandi Framkvæmdum um víða bygð. Þingvöliur, í helgi hjúpi, Hjartastaður Islands varð. Alþing, mót hjá dular djúpi, Drjúgan gefur sagna arð. Því skal ekki Geitskór gleymast. Göfugt er hans verk og ráð, Alla tíð sem á að geymast Ættjarðar í söguþráð. Gnðum sínum gaf hann launin —Gott er þess að minnast enn—, Þverra skyldi þjóðar raunin, Þapnig vildi’ að breytt umenn. Eignist þjóðin ótal slíka —Eftirdæmin, mest er þörf— Syni góða, Grími líka, Göfug til að vinna störf. Fyrstn þing m(>ð frægð og heiður, P’rjálsu landi er virðing mest, Fóstbræðra, sem orð og eiður, Afleiðing af manndáð bezt. Söguþjóð skal afrek inna Ætíð, góðir vættir spá. Menn og fljóð, sem vaka og vinna, Virðing þjóða allra ná. Jón Magnússon. I. “Nú fylkja frændur liði.” Nú fylkja frændur liði fram á Vínlands strönd og hestum ránar hrinda úr höfn og leysa bönd. Og heim á undan halda hugar-skeytin fljót. Ungir 0g aldnir sækja Islands gleðimót. Eftir aldir tíu Island lítur hátt, með frægð og f jöri nýju, sem færir andans mátt. Og enn á Alþing ríða afkomendur Njáls, með ást til eldri tíða og afl hins forna máls. II. Á Þingvöllum, sumarið 1930. Hér, á þessum helga reit, hefst vor forna saga; hér hin glæsta hetju-sveit hjömum beitti laga; hér var ættlands ástin heit um unga frelsis-daga. Hér vora menn 0g málin dæmd og margur sekur fundinn, og mörg var hetja’ af fróni flæmd, fjötrum Iaga bundin. Þeir vörðu frelsi, fjör og sæmd, þótt flest væru lokuð sundin. Hér var það, sem Héðinn gekk hraustur milli búða; með fullhugum, á fremsta bekk, vér finnum kappann prúða. Auðna sumum aldrei fékk a.fl og gæfu-skrúða. Hér var það, sem Gerður góð! Gunnar leit í fyrstu; hér var það, sem fögur fljóð frægar hetjur kystu; hér hið aldna Alþing stóð og auðnu-dísir gistu. Hér var margur mælsku-snjall, sem málin sóttu’ og vörðu. Sumir líktust Síðu-Hall og sverðin slíðra gjörðu; en öðrum heift í huga svall 0g hefnd ei spara gjörðu. Vér grillum löngu-gengna tíð gegn um sögu spjöldin, og sjáum glæstan goða lýð glíma um stjómarvöldin; ef að þurfti út í stríð, aflið veitti fjöldinn. Og feður merkið festu hátt fyrir þúsund árum. Böðla konungs brutu’ í smátt, þótt brandur stæði í sárum; reyndu að stefna í rétta átt, röskir á tímans bárum. Garðars-hólmi enn þá á afar-hrausta niðja, með höfðings-svip og bjarta brá, þeir bratta vegi ryðja. Þeim hefir staðið heilög hjá hamingjunnar gyðja. Kappa móðir kosta-rík, með kalið hold og brunnið; heilla vætt í hól og vík hafa hjá þér unnið, og í dag er engin slík, sem í er meira spunnið. Vermi guð vort gamla land með geislum morgun-sólar, og blessi æ vort bernsku-land, þó bili valda stólar. Og ávalt standi um okkar land andans sjónar hólar. J. J. Miðdal. Fjallkonan 1930 I. Móðir, ég á mynd af þér, Milda, hreina, bjarta; Guðs af fingri gjörð hún er, Grafin á mitt hjarta. II. Þetta dýra Drottins ár Dýru Fjallkonunnar, Verður hennar vöxtur hár, Og virktir þjóðum kunnar. Þolgóð beið í þúsund ár. Þolinmæðin réði. Hennar barna hópur smár, Nú hoppar upp af gleði! F. R. Johnson. Vökudraumur “Ertu vakandi, góði?” “Já, ég er vakandi” “Hló ég, eða talaði ég nokkuð upp úr svefnimjaj^” “Nei. hví spyrðu að því?” “Af því mig dreymdi hann Briem minn svo skýrt.” “Átt þú hann?” “Nei, — en hann hugsar eflaust meira til mín en þú.” “Nú, hverni'g stendur á því?” “Af því mig dreymir hann svo langt um oftar, en mig dreymir þig.” “En þú máske, góða mín, hugs- ar alt of mikið um mig; það er sagt, að mann dreymi sízt það, sem maður hugsar mest um.” “Það getur nú skeð, en e'g hugsa oft um þig, góði minn, og það æf- inlega vel.” “Lofaðu mér nú að fara að sofa; eg hefi ekkert sofnað enn, og svaf ekki vel í fyrri nótt,” sagði hann. “Þú átt einlægt svo bágt með svefn, elskan mín,” bætti hún við. Farðu eins og Briem. Hann hefir endaskifti.” “Hvernig hefir hann enda- skifti?” spurði maður hennar. “Hann segir, að þegar hann eigi bágt með að sofna, þá hafi hann endaskifti.” “Hvernig endaskifti?” spurði maður hennar. “Endaskifti á rúminu,” mælti hún. “Nú, hann er þá ekki eins halt- ur, eins og hann haltrar, ef að hann getur tekið upp heilt rúm og snúið því við.” “Nei, hann snýr ekki rúminu við; hann hefir bara höfuðið þar sem fæturnir eru vanir að vera, en fæturna, þar sem höfuðið á að vera; skilurðu nú, góði minn ” “En hvaða Briem ert þú að tala um?” “Um Jakob Briem,” mælti hún. “Því kallarðu hann þá ekki það, sem hann var skírður: Jakob?” “Já, þú veizt nú það, góði minn, hvað fólk yfirleitt er orðið latt; það tekur einsatkvæðisorðin fram yfir tveggja atkvæðaorð, eða hvað, sem þar er fram yfir. Svo á það líka að vera kurteisi, og er, eins og þú veizt, tízka hjá öllum þjóð- um. Briem kendi mér líka mál- fræði, og þar hina ýmsu parta ræðunnar.” “Mig skal ekki kynja, þó að þú sért vel að þér,” sagði maður henn- ar enn fremur. “Þú þarft ekki að skopast að því, góði minn. Eg hefi honum mikið gott að þakka, og margt sagði hanp. mér fallegt og gott, þegar ég var lítil.” “Nú, kendi hún mamma þín þér ekki neitt gott?” “Mikil ósköp! Jú, hún kendi mér sannarlega margt gott. En hún hafði nóg að gjöra með pabba, að gjöra hann eins góðan, eins og ég hefi á sama hátt að gjöra við þig, elskan mín.” “Já, það er auðheyrt, að þig hefir dreymt Briem; þú ert svo ansi roggin, það gjörir málfræð- in! En hvað sagði hann að væri gott ráð til að fara að sofa, ann- að en að hafa endaskifti?” “Hann sagði, að það væri bezta ráðið, næst því að vaka þangað til að maður sofnaði.” “Jæja, lengi gáfaður, karlinn; og nú skulum við vaka, þangað til við sofnum. Og góða nótt, elsk- an mín!” sagði maður hennar í hlýjum og svæfandi málrómi. Svo komu þeir líðandi á léttum vængjum: engill friðarins og eng- ill svefnsins, og struku drifhvítum og mjúkum höndum yfir ásjónur þessara vina og ferðafélaga á brautinni alkunnu, sem að kölluð er æfibraut, og sem svo mörgum reynist erfið yfirferðar. Gimli, 20. ágúst 1930. J. Briem. Lífsspeki Clemenceaus 'Clemenceau er sífelt mikið um- talaður og umþráttaður maður, engu síður eftir að hann dó en áður. Því valda ekki einungis stjórnarstörf hans, sem voru á- hrifamikil, en einnig rit þau, sem frá honum komu og hefir Lögrétta áður sagt frá þeim ritstörfum hans, sem um stríðið fjalla sér- staklega og deilum hans við Foch. En hann skrifaði einnig annað stórt rit, sem er heimspekilegs efnis of heitir “Að kvöldi hugsun- arinnar” (Au Soir de la Pensée), og gerir hann þar grein fyrir heimsskoðun sinni og lífsskoðun. Þar segir hann m. a. Það sem er, er. Og eg er af þessu sem er. Eg er ögn einhvers- staðar í einhverju breytilegu. Að því er til annara atvika í alheim- inum kemur, þá auðnast mér að geta fundið til og vitað um það af þeim, sem við mig kemur og að HALLDÓR JOHNSON frá Hólum í Hjaltadal í Skaga- firði. síðast til heimilis í Win- nipeg, dó á Almenna sjúkrahús- inu hér í borg miðvikudaginn 11. júní síðastliðinn. Hann var fæddur að Hólum 14. ág. 1865. Faðir hans var Jón Benedikts- son Vigfússonar. Var afi hans elngi prófastur á Hólum. Móðir Halldórs var Sigríður Halldórs- dóttir Bjarnasonar, en sá Hall- dór var lengi prófastur að Sauðanesi. Hann ólst upp með foreldrum sínum. Fyrstu 16 árin var hann á Hólum. Þá flutti fjölskyldan að Hofi í sömu sveit. Eftir tvö ár þar misti hann móður sína. Þremur árum síðar, árið 1887, flutti faðirinn ásamt sonum sín- um fjórum frá íslandi. Settust átti Halldór heimili síðan. Hinn 14. júní 1890 kvænt- þeir fyrst að í Winnipeg, og hér ist hann Sigurlaugu Jóhanns- dóttur frá Holtastöðum í Langadal í Húnavatnssýslu. Þau eignuðust 5 börn. Fjögur þeirra dóu mjög ung og þrjú með stuttu millibili. Einn son- ur lifir, Jónas Georg, kvæntur Laufeyju Johnson, og eiga þau heima í Winnipeg. Skömmu eftir að Halldór kvæntist, komst hann að stöð- ugri vinnu, sem hirðingamaður við Manitoba College, og var hann við það starf J.1 ár. Þá tók hann samskonar starf við •Dufferin skólann í Winnipeg, og síðar við fjölhýsi eitt í borginni. Síðastliðinn vetur dvaldi hann að mestu norður við Riverton, en kom heim með vorinu. Fluttu þau hjónin að 511 Victor stræti. Hann var bilaður á heilsu um langt skeið, ein 25 ár. Hann lá stundum þungar legur. Hann þjáðist af hjartasjúkdómi. — Tvent var það, sem hjálpaði honum í þessum erfiðleikum, annað það, að hann sjálfur hafði mikið viljaþrek, og hitt það, að hann átti örugga með- hjálp, þar sem konan hans var. Hún hjúkraði honum í öllum veikindum hans, og var honum stoð og stytta í hvívetna. Síð- asta legan var stutt. Hann veiktist af lungnabólgu, og er honum þyngdi, var hann flutt- ur á sjúkrahúsið og þar dó hann eftir fárra daga legu. Halldór var vel meðalmaður á hæð, snar í öllum hreyfingum og um eitt skeið talinn með betri glímumönnum. Hann var snyrtimenni í allri framkomu og lofaður og virtur af þeim, sem hann þjónaði. Að eðlisfari var hann skapstór maður, en stilti vel skapsmuni sína. Hann var bókhneigður og skýr mað- ur eins og hann átti kyn til. FUGL Á KVISTI. Litli fugl, sem kvakar uppi’ á kvisti, kominn hingað suðurlöndum frá, sendur jafnt og sumardagur fyrsti sólskinsbarni mjúkum vængjum á. Litli fugl, þú segir margar sögur; suðurlöndin eru björt og hlý, blómin þeirra bæði stór og fögur; byrgja þar ei nokkur kuldaský. Litli vinur, segðu fleira’ að sunnan syngja fuglar skærar þar en hér? gera blómin guð þar betur kunnan? grét þar ekkert barn, sem mætti þér ? Þaðan burt mér finst ég aldrei færi; fanst þér ekki suðrið töfra þig? Til hvers varstu’ að koma hingað kæri? komstu bara til að gleðja mig? Sig. Júl. Jóh. Hann var í raun og veru hvers manns hulgljúfi alla æfi. Þeg- ar hann var drengur heima á Hólum, þótti öllum, sem þektu hann, vænt um hann, og vin- sældir hans héldust æfina út. Hann var frábærlega trúr yf- ir hverju því verki, sem honum var efngið í hendur. Ráðvendni hans, samvizkusemi og trú- menska, áunnu honum traust hvar sem menn áttu kost á að kynnast honum. Hann var trúr mönnum og trúr Guði. Hann hélt fast við þau dýrmætu óðul kristinnar trúar, sem honum höfðu verið gefín í æsku og la!gði rækt við þau eins og hann leitaðist við að vera trúr yfir öllu því góða, sem lífið veitti ‘honum. Auk ekkju og sonar, sem get- ið hefir verið, lifa hann tveir bræður, Benedikt að Riverton, og Gunnar að Westbourne. Hann var jarðsunginn af séra Rúnólfi Marteinssyni frá út- fararstofu Bardals, laugardag- inn 14. júní. Eins og ljóssins skæra skrúða skrýðist himins tæra lind, eins mér lýsir ljúft til dauða lífið þitt og fyrirmynd. Halldór Johnson. Æfitíðir enda skjótt, ástvinirnir falla, b,ak við dimma dauðans nótt daigur faðmar alla. Þó oss finnist sorgin sár^ sæt er von í hjarta: drottinn géfur eilíf ár unaðs-fundi bjarta. Traustur gekstu tímans braut trúr í raun og verki, sælt er eftir þunga þraut þannig halda merki. Fylgd þín lýsti farin ár festu, dygð og vilja, þessi minning þerrar tár, þegar1 ve'gir skilja. Heimsins glys með tár og tál tök ei hjá þér festi, þitt var, glöð og göfug sál, gullið veganesti. Ást til þín og virðing vann vinar þelið bjarta. Norænn ættar-eldur brann ' inst í þínu hjarta. Æfin þó sé völt og veik, vegur láns, og nauða, ást og trygð í lífsins leik lifir stríð og dauða. Burt með húm og harm við gröf, hjarta styrkir trúin, eilíf vist um æðri höf oss er síðar búin. —í nafni Mrs. S. Johnson, eig- inkonu hins látna. M. Markússon. geta hugsað og ályktað svo að eg geti mýkt nokkuð þjáningar mín- ar og náunga minna með því að geta látið þá öðlast augnabliks- hamingju endur og eins, ef þeir eru sjálfir verðir þess að höndla hana. Sannmentaður maður hef- ir á öllum tímum og í öllum lönd- um verið sá, sem kunni að sigrast á sjálfum sér og gat þannig skip- að sjálfum sér að fórna ávalt meiru og meiru af sjálfum ser því hlutverki, sem er honum of- urefli, en væntir samt einskis annars af guði og mönnum, en að mega gera einmitt þetta.”—Lögr.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.