Lögberg - 09.10.1930, Page 4
Bls. 4.
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 9. OKTÓBER 1930.
^ögtierg
Gefið út hvern fimtudag af
TUE COLUMBIA PRE8S, LTD.,
Cor. Sargent Ave. og Toronto St.
Winnipeg, Manitoba.
Talsímar: 86 327 og 86 328
Einar P. Jónsson, Editor
^ Utanáskrift blaðsins:
The Columbia Press, Ltd., Box 3172
Wrnnipeg, Man.
Utanáskrift ritstjórans:
Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man.
Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram.
The “Lögberg” is printed and published by
The Coiumhia Press, Limited,
695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba.
+ Blinda Skáldið
Svo máttug og margþætt er andleg útsýn
ýmsra manna, að hvorki elli, né heldur hula jarð-
neskrar blindu, vi.ðist þar truflun valda að
nokkrum verulegum mun. Fer þeim svo jafnan,
sem bjartsýnir eru 0g trúaðir á lífið. —
Staddur er hér með oss í borginni um þessar
mundir, skáldið og vitmaðurinn Friðrik Guð-
mundsson, sá, er til margra ára hefir búið búi
sínu í grend við þorpið Mozart í Saskatehewan
fylki; maður, sem þrátt fyrir önn og ys hins
hversdagslega lífs, hefir vafalaust, þegar aðrir
sváfu, vakað um ljósar óttu skeið og hlúð að
skilningstré sínu við frjófgandi hjúphugun ljóðs
0 g listar.
h yrir sérhvað það, sem einhvers verulegs er
um vert, verða mennimir að leggja mikið í söl-
urnar, 0g þá ekki hvað sízt einyrkinn, er afla vill
sér varanJegs þekkingarforða, en fárra á frí-
stunda ráð frá venjulegum skyldustörfum. Að
afla sér fræðslu þegar aðrir sváfu, hefir verið
eitt af megin einkennum þeirra, er lengst hafa
náð í íslenzkri sveitamenning,, beggja megin
hafsins.
Friðrik skáld Guðmundsson, er nú í þann veg-
inn að verða sjötugur að aldri; hærri aldri en
það, hafa vitanlega margir náð, án þess að láta
verulegan bilbug á sér finna. En þegar tekið er
tillit til þess, að nú hefir hann verið blindur í
freklega sex ár, er annað ekki unt en fyllast að-
dáunar yfir eljunni og alúðinni, er hann hefir
lagt við hugðarmál sín, þrátt fyrir hina örðugu
aðstöðu, sem sjónleysinu að sjálfsögðu er sam-
fara.
ÍViðrik Guðmundsson er enn síyrkjandi; það
eru líka fleiri. Hitt er meira um vert, að hann
yrkir djúphugsuð, frumleg ljóð, er verulegt gildi
hafa. Að gróði sé að ljóðum, sem þeim, er nú
birtast á framsíðu þessa blaðs, verður tæpast
efað. Það er aldrei til um of af viturlegum og
vel sögðum ljóðum, en ávalt margfaldlega of
mikið af sálarlausu rímhrasli.
Jafn andlega heilskygn maður, sem Friðrik
Guðmundsson, situr aldrei í myrkri. Þökk fyrir
ljóðin!
*——-----------------------------------—+
Hlýleg Ummæli í Garð
Islands
-----------------------------------------+
Meðal þeirra mörgu, er heimsóttu Island í
sumar í tileíni af þúsund óra afmæli Alþingis,
og látið hafa hlýleg orð sér af munni falla í garð
lands og þjóðar, má nefna dómsmálaráðgjafa
Manitoba fylkis. Hon. W. J. Major; hefir hann
við ýms tækifæri minst Islands hér í borginni, og
ávalt og allstaðar sama góðviljans orðið vart.
A fimtudaginn þann 2. yfirstandandi mán-
aðar flutti Mr. Major erindi um Island og ís-
lenzku þjóðina í Rotary félagi Winnipeg-borgar
fyrir miklu fjölmenni, og fara hér á eftir nokkur
sýnishorn úr ræðu hans.
“ Viðskiftadeyfð yfirstandandi tíðar,” sagði
Mr. Major, “má í rauninni kallast heimsböl, að
því leyti sem hún nær til flestra þjóða heims; þó
hefir hún enn ekki skotið rótum á fslandi, þar
sem atvinnuleysi er að heita má með öllu óþekt. ’ ’
“Reykjavík, sem er höfuðborg landsins, svip-
ar mjög til borga af svipaðri stærð hér í landi,”
sagði dómsmálaráðgjafinn; “í borginni eru á-
gætir skólar, skrautlegar sölubúðir, ásamt veg-
legum opinberum byggingum. 1 ríki bókment-
anna, hvort sem um bundið, eða óbundið mál er
að ræða, eru þrekvirki íslenzku þjóðarinnar slík,
að hún hefir gilda ástæðu til metnaðar; áhrif
hennar í þjónustu hins góða hafa breiðst út um
víða veröld.”
“Um þessar mundir telur fsland um hundrað
og fimm þúsundir íbúa. Óhæít er að fullyrða, að
eigi fyrirfinnist með þjóðinni allri ein einasta
fullorðin og andlega heilbrigð manneskja, er
ekki kunni lestur og skrift, og um það leyti er
eg dvaldi á íslandi, munu þar ekki hafa verið
meira en fjórar til fimm atvinnulausar mann-
eskjur.”
Mjög fór Mr. Major fögrum orðum um dýrð
íslenzkrar náttúru, iðgræn engi og tíguleg risa-
f jöll. Kvað hann svip landsins glögglega simpl-
aðan á skapgerð þjóðarinnar, er yfir hvíldi hug-
blær hetjulundar og glæsimensku.
íslendingar hafa eighast ákveðinn talsmann
þar sem Mr. Major er, og ber þeim að meta það
að makleikum.
Brautryðjandi Genginn
Grafarveg
•»—-------------------------------------
Látinn er nýlega í bænum Neepawa hér í
fylkinu, Alexander, Dunlop, ritstjóri vikublaðs-
ins Neepawa Press, gáfaður ágætismaður, er
mjög hefir komið við sögu þessa fylkis, síðustu
þrjótíu og fimm til fjörutíu árin.
Mr. Dunlop nam prentiðn á unga aldri og
starfaði um hiíð við blaðið Manitoba í’ree Press.
Ríkt mun það snemma hafa verið í eðli hans, að
spila á eigin spýtur, og með það fyrir augum,
réðst hann félítill í að flytja til Neepawa og
stofna þar vikublað; lánaðist honum fyrirtækið
svo vel, að innan tiltölulega fárra ára, var blað
hans talið eitt fallegasta og fróðlegasta, viku-
blaðið, sem gefið var út vestan vatnanna miklu.
Fór saman hjá Mr. Dunlop glögg innsýn í mál-
efni þau, er hann tók til meðferðar og þróttur í
fiamsetningu, sem þá, er bezt getur. Það var
regluleg unun að lesa margar ritgerðir lians;
þær voru venjulegast stuttar, en hittu líka þeim
mun betur í mark.
1 stjórnmálabaráttu þessa lands, gekk enginn
þess gruflandi, hvar Mr. Dunlop stóð í skoðana-
legu tilliti; hann var ávalt að hitta framarla í
fylkingum þeirra, er frjólslynda flokkinn fyltu,
og hlífði hann sér þá alla jafna lítt. Maður
saknaði ávalt einhvers mikils á fundum og
flokksþingnm frjálslyndu stefnunnar, ef Mr.
Dunlop vantaði í hópinn. Hann var maður
snyrtilega máli farinn; þó var það ekki mælskan,
er mest hreif hugi manna, heldur fyrst og fremst
dómgreind hans 0g einlægni. Maðurinn var með
öðrum orðum allw, þar sem hann var séður.
Margir úr hópi íslendinga vestan hafs,
þeirra, er frjálslyndu stefnunni fylgdu að mál-
um, munu minnast Mr. Dunlops með hlýhug og
aðdáun; þeir áttu margir með honum samleið,
einkum þegar kosningar voru í aðsigi og mikið
stóð til, því þá var hann ávalt fyrsti maður á
vettvang.
Með Alexander Dunlop, er til grafar gehginn
einn af hinum prúðu og nytsömu brautryðjend-
um þessa lands, er fórnuðu til þess langri æfi, að
gera garðinn frægan.
-----------------------*
Arngrímskvöld
Frá því var skýrt í síðasta blaði, að staddur
væri hér í borginni um þessar mundir, hr. Am-
grímur söngvaii Valagils, kominn fyrir skömmu
frá íslandi, og var þess þá jafnframt getið, að
hann hefði ákveðið, að efna til söngsamkomu
meðal þjóðbræðra sinna; var samkoman haldin
í Sambandskirkjunni síðastliðið mánudagskvöld
við sæmilega aðsókn, þótt vel hefði mátt betur
vera, því svo gerði söngvarinn viðfangsefnum
sínum góð skil.
Það er skemst frá að segja, að hr. Arngrím-
ur Valagils á yfir að ráða styrkri og sérlega blæ-
fagurri baritone-rödd, er nýtur sín þó, að vorri
hyggju, alla jafna betur á liáum tónum en þeim
lágu. 1 blæbrigðum raddarinnar, kemur í hvar-
vetna fram næm túlkun á sérkennum viðfangs-
efnanna, ásamt viðkvæmum innileik lijartans,
sem undir slær. Enginn nema sá, sem sjálfur
leggur líf og sál í sönginn, getur vænst hins
þráða bergmáls.
Söngskrá sú, er lir. Valagils bauð áheyrend-
um sínum upp á, var næsta fjölbreytt; voru þar
lög eftir íslenzka, ítalska, þýzka, danska og
norska sönglagaliöfunda. Það lagið, er hreif oss
einna mest, var “Svanurinn,” eftir Edward
Grieg; var meðferð söngvarans á því slík, að
unun var á að heyra. Raddmagn hans virtist
oss þó njóta sín bezt í síðasta laginu á söng-
skráimi, Aríunni eftir Verdi; slíkt söngverk
syngur enginn, svo vel sé, nema sá, sem vald
hefir.
Tvö lög söng hr. Valagils, eftir vestur-ís-
lenzka tónskáldið, hr. Björgvin Guðmundsson,
‘ ‘ Kvöldbæn, ” 0g “ Dauðsmannssundið. ’ ’ Tókst
honum vel til um meðferð laganna beggja, þó
einkum á hinu síðarnefnda, að því er oss fanst.
Þeir, sem einhverra orsaka vegna, fengu eigi
komið því við, að heyra hr. Valagils syngja þetta
áminsta kvöld, ættu ekki að sitja sig úr færi, ef
hann efnir til söngskemtunar á ný hér í borginni,
sem vér drögum ekki í efa að hann geri. Hr.
Ragnar H. Ragnar píanókennari, lék undir við
einsönginn.
1 dómi, sem birtist í blaðinu Manitoba
Free Press á þriðjudagsmorguninn, eftir
Miss Lillian Scart, söngdómara þess blaðs, er
komist meðal annars þannig að orði um rödd og
meðferð söngvarans, á hinum ýmsu viðfangs-
efnum: Ungiir söngvari, með óvenju aðlaðandi,
ómljúfa og styrka rödd, lét til sín heyra í Sam-
bandskirkjunni í gærkveldi; á söngskránni voru
ítölsk, íslenzk og önnur Norðurlanda sönglög.
Söngvarinn var Arngrímur Valagils; aðsókn var
sæmileg, og fylgdi fólk söngvaranum eftir með
góðri athvgli. Hugarafstaða áheyrenda til
söngvarans, fékk fylstu fullnægingu í “Svanin-
um” eftir Grieg, er söngvarinn varð að endur-
taka; tókst honum miklu betur til í síðara skift-
ið. Einnig naut hann sín vel í lögunum eftir A.
Baker Gröndahl og Ture Rangstrom; lágu þau
vel við rödd hans. Svo var margt vert aðdáun-
ar í hinni greinaglöggu meðferð hans á þeim lög-
um, að það bætti upp að all-miklu leyti það, sem
ábótavant var hjá honuni í meðferð laganna eftir
Lotti og Handel, er á undan voru á söng-
skránni.”
Adolf Hitler
Fáir munu þeir vera, er meira umtal liafa
\ vakið með Norðurálfu þjóðunum um þessar
mundir, en leiðtogi Fascista flokksins þýzka,
Adolf Hitler, er svo gekk rösklega fram í síðustu
kosningum, að flokki hans græddist á annað
hundi að þingsæta. Er því nú ærið alment spáð,
að svo geti auðveldlega farið, að þess verði eigi
sérlega langt að bíða að þessi ungi æfintýramað-
ur skipi hliðstæða stöðu á Þýzkalandi við þá, er
Mussolini skipar á Italíu.
Adolf Hitler, er aðeins fertugur að aldri,
maður, sem ekki' lætur sér alt fyrir brjósti
brenna. Þegnrétti sínum í Austurríki fyrirgerði
Hitler, með því að innritast í her Þjóðverja; var
liann um eitt skeið næsta handgenginn Luden-
dorff herforingja, þótt samband þeirra yrði ekki
endingargott. Iiitler var um hríð eindreginn
talsmaður Communista hreifingarinnar, og var
fyrir þá sök dæmdur í fimm ára fanglsi; þó var
honum veitt frelsi eftir tæpa árs fangavist. Nú er
komið annað hljóð í strokkinn; nú er Hitler einn
sá ákveðnasti málsvari hervalds og auðsöfnunar,
sem hugsast getur. Hvoit hann er ákveðinn
keisarasinni, eða ekki, er að mestu enn á huldu;
þó halda því margir fram, að slíkt muni hann
láta sér í léttu rúmi liggja; aðal mar.kmið hans
sé það, að ná alræðisvaldi í sínar hendur, til þess
að geta náð sér enn betur niðri á sínum fyrri
flokksbræðrum, communistunum. Þó er mælt
að í kosningunum hafi hann með eldmóði sínum
og orðkvngi, sært til fylgis við sig hópa manna
úr öllum flokkum og stéttum.
•i--—-----------------------+
Eimreiðin
+------------—--------------+
Nýlega hefir oss borist í hendur 3. hefti Eim-
reiðarinnar, xxxxvi ár, fjölbreytt og skemtilegt
aflestrar. Innihaldið er sem hér segir:
Jón Magnússon: A Þingvöllum 1930. (kvæði)
Kristinn E. Anderson: Þýzk skáld. 1. Thomas
Mann (með myndum).
Oddur Oddsson: Flakk.
Guðmundur Friðjónsson: Sæunn á Berg-
þórshvoli (kvæði).
Martin Anderson Nexö: Jan Umb.
M. Júl. Magnús: Framfarir og horfur (með
myndum).
Gottfried Keller: Nunnan (saga).
Stefán Einarsson: Eugene O’NeiIl (með
mvndum).
Thomas Coulson: Rauða danzmærin (sönn
saga frá ófriðarárunum) framh.
Guðmundur Böðvarsson: Kvæði.
Ritdóma flytur heftið að þessu sinni, eftir
A. J. og Sv. S.
Einna skemtilegust rítgerð í þessu hefti Eim-
íeiðarinnar, virðist oss sú um Bandaríkja rit-
höfundinn Eugene O’Neill, eftir Dr. Stefán Ein-
arsson, háskólakennara í Baltimore, — ítarleg
greinargerð í iirýðilégri framsetningu, á sér-
kennum og bókmentastarfsemi þessa merka,
ameríska leikritaskálds. Þá hefir og ritgerð
Kristins E. Andréssonar um Thomas Mann, mik-
inn og margvíslegan fróðleik að geyma. Er hér
um að ræða fyrsta kafla ritgerðaflokks um
þýzk skáld, sem höf. er að semja. Þess er getið
í inngangi ritgerðarinnar, að næsti kafli verði
um Gerhart Hauptmann.
“Kvæði Jóns Magnússonar “A Þingvöllum
1930,” er prýðisfallegt, eins og reýndar flest,
sem frá penna hans kemur; má vafalaust skipa
honum á bekk með hinum allra fremstu íslenzk-
um nútíðarskáldum. Ljóð Guðmundar Frið-
jónssonar um Sæunn'i á Bergþórshvoli, sver sig
óneitanlega í ættina, þótt tæpast verði það talið
til hinna mergjaðri kvæða þess einkennilega og
þróttmikla höfundar. :
Prýðileg er ritgerð Odds Oddssonar,
‘ * Flakk, ’ ’ lýsing á hugsanalífi og háttum íslenzks
flökkulýðs á öldinni, sem leið. Er þar brugðið
upp lifandi ljósmyndum af þessari sérstæðu
förumannastétt íslenzku þjóðarinnar. Nú er
hún liðin undir lok.
1 niðurlagi ritgerðar sinnar, kemst þessi
glöggi, alþýðlegi rithöfundur þannig að orði:
“Gamla flökkufólkið er farið og kemur aldrei
aftur. En það er nú samt svo, að bæði eg 0g
ef til vill fleiri eldri menn, sakna þessa fólks, og
minnast tilbreytinganna, sem komur þess urðu
valdandi, þar sem lítið var um gestakomu. Það
voru næstum eins og hátíðakvöld að hlusta á
fréttir þeirra og þjóðsögurnar, sem þeir kunnu
svo margar og sögðu svo vel, eins og þeir sjálfir
hefðu séð og lifað með því er sögutyar hljóðuðu
um. Flökkufólkið gamla hafði í rauninni meiri
og betri þýðingu fyrir þjóðina heldur en alment
hefir verið veitt eftirtekt. Það hélt uppi íslenzku
þjóðsögunum og var einskonar ómissandi sam-
göngutæki, bæði líkamlega og einkum þó and-
lega, á meðan alþýðan átti ekki kost á öðru betra.
Og það hvarf, þegar þess var eigi lengur
þörf.”
Útsölu Eimreiðarinnar hefir með höndum
hr. Arnljótur B. Olson, Gimli, Man.
Ur bænum
Mrs. G. Goodman, er nýflutt frá
587 Langside St., að 270 Good St.
Þeim Mr. og Mrs. Magnúsi Ein-
arsson 10% Sutherland Ave., hér í
borginni, var, haldið veglegt gull-
brúðkaupssamsæti síðastliðið þriöju-
dagskvöld. Nánari greinargerð síð-
ar.
Hr. Arngrímur Valagils, baritone
söngvari, efnir til söngskemtunar að
Árborg, Man. þann 13. þ. m. að
kveldi. Er vonandi að fólk fjöl-
menni, því þar á það’kost á sérlega
uppbyggilegri skemtun.
Hr. Ragnar H. Ragnar, pianó-
kennari hefir flutt kenslustofu sína
frá 558 Maryland til Ste. 4 Norman
Apts., gegnt Rose leikhúsinu.
í meir en þriðjung aldar hafa
Dodd’s Kidney Pills verið viður-
kendar rétta meðalið við bakverk,
gilgt, þvagteppu og mörgum fleiri
sjúkdómum. Fást hjá ðllum lyf-
sölum, fyrir 50c. askajn, eða sex
öskjur fyrir $2.50, eða beint frá
The Dodds Medicine Co., Ltd.,
Toronto, ef borgun fylgir.
Mr. Harold Brown, einn af nem-
endum hr. Gunnlaugs Eyríkssonar
píanókennara að Wynyard, Sask.,
h’aut við hljómlistarprófin í vor, sem
leið, hæzta einkunn þeirra allra í
iunior flokknum, er undir próf
gengu við Toronto Conservatory of
Music og fékk silfur-medalíu aö
launum. Kennari hans, Mr. Eyríks-
son er einn af nemendum Miss Eva
Clare, og er sérlega vel að sér í list
sinni og áhugasamur.
íslenzkir Stúdentar Skara
Fra m Ur
í íþróttasamkepni.
í íþrótta samkepni, sem háð var
hér í borginni í síðustu viku, og
sem fjöldi stúdenta tók þátt í
voru þrír íslendingar, sem skör-
uðu fram úr öðrum í vissum í-
þróttum. Það voru Miss Aldís
Thorlákson, Magnús Paulson ofe
Fred Fjeldsted, Þau stunda öll
læknisfræði og fyrir þeirra að-
gerðir vann læknaskólinn flest
verðlaun. Miss Thorlakson í Ja-
velin throw, Baseball throw og
Discus throw, Magnús Paulson
fyrir high and low hurdles, og
Fred Fjeldsted fyrir shot put
hammer throw og discus throw.
WONDERLAND.
Canadian Prosperity Week
11.—18 Okt.
Öllum þeim, sem leikhúsið sækja
þessa viku, gefst kostur á að vinna
sér inn verðmæt verðlaun. Fyrir
hvern aðgöngumiða, sem borgað
er fyrir, getur sá, sem miðann á,
einu sinni getið til um þyngd á
kolastykki, sem til sýnis er í leik-
húsinu. Sá sem rétt 'getur, eða
næst kemst, getur valið úr verð-
laununum, og svo hver af öðrum,
meðan verðlaunin endast. Hver
maður getur komið eins oft eins
og hann vill og getið einu sinni
fyrir hvern aðgöngumiða. Verð-
launin eru gefin af kaupmönnum
í nágrenni við leikhúsið, og eru
þeir hér taldir og sömuleiðis verð-
launin. Úrslitin verða kunngerð
á mánudagskveldið 20. okt.
Þeir, sem vefðlaunin hafa gef-
ið eru:
E. Nesbitt, Limited, Sargent og
Sherbrook, 1 Portable Gramaphone.
Woods Coal Co.., Ltd., Phone
45 262, 1 ton of Wild Fire Coal.
Roberts Drug Store, Sargent og
feherbrooke, 1 Compact Set.
NealS' Store, 593 Sargent Ave.,
1 Box of Apple.
The Royal Bank of Canada, Sas-
gent og Sherbrooke, 2 One Dollar
' feaving Account.
Joe Valente, 607 Sargent Ave.,
1 Pair of Slippers.
Sán Remo Fruit Store, 615 Sar-
gent Ave., 1 Box of Grapes.
G. F. Dixon, 591 Sargent Ave.,
Choice Leg of Lamb.
Hátíðarsagan
Heyrst hefir, að í ráði sé að
rita ítarlega frásögn um Alþing-
ishátíðina. Það er ekki nema gott
og blessað. En að hve miklu leyti
nauðsyn er á að gefa út ítarlega
frásögn um hátíðina, er mjög mik-
ið álitamál. — Þó er vel við eig-
andi að safna því öllu, sem sagt
verður um hátíðina, undirbúning
hennar og hvernig hún fór fram
í öllum atriðum smáum sem stór-
um. Auk þess sem hin nákvæma
frásögn hefir sögulegt gildi, þá
er og mjög hentugt fyrir eftir-
komendurna, að hafa greiðan að-
gang að allri þeirri reynslu. sem
nú fékst, svo hægt verði að not-
færa sér hana þegar að því kem-
ur, fyr eða síðar, að efna til svip-
aðra hátíðahalda, þar sem búast
má við, að mikið fjölmenni verði
samankomið. Skýrsla sú, sem gera
þarf um hátíðina, má ekki vera
einskorðuð við álit, vitneskju og
reynslu eins manns. Enginn einn
maður hefir nokkra verulega hug-
mynd um alt, sem gerðist hina
viðburðaríku daga á Þingvöllum.
Hátíðarsagan verður að byggjast
á frásögn eða skýrslugerð fjölda
margra manna, m. a. þeirra, sem
eitthvað fengust við undirbúning
hátíðarinnar, eða einhverja um-
sjón eða stjórn höfðu á hendi, og
segi hver frá sínu sviði. Það sem
ekki verður prentað af því, sem
þannig fæst skráð, verður að sjálf-
sögðu geymt handa eftirkomend-
unum. —
En nú er löngu liðin sú tíð, að
menn geri sig ánægða með orðin
tóm, þegar lýsa skal einhverjum
atburðum. Myndir verða að fylgja.
Að hve miklu leyti Alþingishátíð-
arnefndin hefir verið sér úti um
myndir af hátíðinni, er blaðinu
ekki kunnugt. En hitt er víst, að
sægur er til af myndum, og eru
þær á víð og dreif meðal manna.
Meðan eigi er lengra frá liðið
en nú er, ætti að vera hægt að ná
til velflestra innlendra manna. Kin-
faldasta ráðið til þess væri að
efna til sýningar á Ijósmyndum
frá hátíðinni. Ef eitthvað værl
af verðlaunum á tvennan hátt, fyr-
ir beztu myndaflokkana og beztar
stakar myndir, myndu margir
seilast til verðlaunanna, og koma
fram með það, sem þeir hafa. Og
jafnframt mætti geta þess, að
nefndinni væri þökk á því, að sem
mest yrði sent á sýninguna.
Kostnaður við sýningu þessa yrðí
enginn, því inngangseyrir myndi
jafna hann. Og húsrúm er við
hendina, sýningarskálinn í kirkju-
stræti. — Mgbl.
Karlakór íslendinga
í Winnipeg
undir umsjón Björgvins Guðmundssonar
efnir til samsöngs að Gimli
Fimtudaginn þann 16. þ. m.
með aðstoð
PAUL BARDAL, baritone,
PÁLMA PÁLMASON, fiðluleikara,
RAGNARS H. RAGlNAR, píanista.
Aðgangur 50 cent. Byrjar kl. 8.30 e. h.
DANS Á EFTIR
Arngrímur Valagils
ISLENZKUR BARITONE
heldur söngsamkomu
13. þ. m. að Árborg, Man.
Ragnar H. Ragnar píanisti aðstoðar.
Aðgangur 50c. Byrjar kl. 8.30 e. h.