Lögberg - 13.11.1930, Side 4

Lögberg - 13.11.1930, Side 4
Bls. 4. LÖGBERG. FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER 1930. ILögberg Gefið út hvem fimtudag af THE COLUMBIA PRESS, LTD., Cor. Sargent Ave. og Toronto St. Winnipeg, Manitoba. Talsímar: 86 327 og 86 328 Einar P. Jónsson, Editor Utanáskrift blaðsins: ; The Columbia Press, Ltd., Box 3172 Winnipeg, Man. ; Utanáskrift ritstjórans: ; Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man. Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram. The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Ave, Winnipeg, Manitoba. . ....................................... Afstaða Þýzkalands ---------------------------------------—+ Eftir fregnum frá Þýzkalandi að dæma, er svo að sjá, sem núverandi stjóm Þjóðverja sé staðiáðin í að leggja alt hugsanlegt kapp á það, að komast að nýjum samningum um greiðslu stríðsskaðabótanna, 0g þá helzt að fá gjaldfrest á afborgunum höfuðstóls um ákveðíð tímabil, gegn árlegri borgun umsaminna vaxta. Á þessu stigi málsins, er vitanlega örðugt um það að segja, hve byrvænlega kann að blása fyrir Þjóð- verjum í þessu tilliti; að minsta kosti mun á- stæðulítið að vænta nokkurrar vemlegrar til- látssemi af liálfu Frakka, þar sem hefndarhug- urinn einn virðist ráða lofum og lögum. Alt öðru máli er að gegna með þjóðir eins og Breta, scm ávalt era fúsar til sanngjarnra og sæmilegra miðlunartilrauna. Þótt rosasamt hafi verið á ríkisþingi Þjóðverja upp á síðkastið, einkum og sérílagi viðvíkjandi fjáraiálunum, þá bendir þó sitthvað í þá átt, að meiri festu sé að verða vart í meðferð utanríkismálanna, og má slíkt teljast til bóta. Frá Berlín berast þau tíðindi um þess- ar mundir, að telja megi nokkum veginn víst, að sendisveit sú, er fyrir Þjóðverja hönd mætir á undirbúningsfundi þeim, er þjóðbandalagið inn- an skamms kveður til, í sambandi við takmark- anir vígvama, muni krefjast þess, að boðað verði til alþjóða móts næsta ár með það fyrir augum, að hrinda málinu áleiðis. Afstaða Frakka til vopnatakmörkunar máls- ins, hefir fram að þessu verið sú, að volilaust væri með öllu um takmarkanir landhers, fyr en ráðið hefði verið til lykta tilraimunum um tak- markanir vígvama á sjó. Ýmsir af mætustu stjórnmálamönnum Þjóðverja líta svo á, og það sennilega með fullum rétti, að hér sé aðeins um fyrirslátt að ræða af hálfu Frakka, með það fyr- ir augum, að hindra takmarkanir hers og flota um ófyrirsjáanlegan tíma; aðrir tjást á hinn bóginn eigi með öllu vonlausir um það, að takast megi að opna svo augu franskra stjómarvalda á nauðsyn málsins, að vænta megi nokkurs á- rangurs. Ekki er það ljóst á þessu stigi málsins, hvaða afstöðu Bretar kunna að taka gagnvart þessum nýju uppástungum Þjóðverja, þótt ganga megi sennilega út frá því sem gefnu, að skoðanimar verði næsta skiftar; þó mun einlægni MacDonald stjómarinnar við friðarhugmyndina og vopna- takmörkunar málið, undir engum kringumstæð- um verða dregin í efa. Sumar þær þjóðir, er að hinni væntanlegu vopnatakmörkunarstefnu standa, svo sem Frakkar, líta vafalaust svo á, að innheimta skaðabótafjárins frá Þjóðverjum, eigi að sitja fyrir öllu öðra; hitt sé minna um vert, hvort takmarkanir vígvama dragist árinu lengur eða skemur; þó er hér um afar háskalega kórvillu að ræða, er fyr en síðar hlýtur að koma hlutað- eigandi þjóðum í kdll. Úrslitum þingkosninganna þýzku, var mjög misjafnlega tekið út um heim; ýmsum virtist standa stuggur af hinum óvæntu sigurvinning- um hins nýstofnaða Fascista flokks, undir for- ustu Hitlers, en aðrir töldu slíkt góðsvita. Af brezkum áhrifamönnum, þeim, er opin- berlega létu í ljós álit sitt um úrslit kosninganna þýzku, vöktu ummæli Kothermere lávarðar hvað mesta eftirtekt; virtist hann fagna mjög yfir fylgi hinnar nýju í'lascistahreifingar, og sjá í því trausta vamarmúra gegn útbreiðslu Com- múnista hugmyndarinnar á Þýzkalandi. Koth- ennere lávarður er einn í tölu þeirra stjóm- málamanna brezkra, er líklegt telja, að gagnger endurskoðun Yersala-samninganna, og þar af leiðandi skaðabótamálsins líka, gæti haft margt gott í för með sér,—meðal annars trygt friðar- hugsjóninni greiðari götu. Engar þær ráðstafanir, sem á hefndarhug hvíla, fá nokkru sinni til góðs leitt, hvort heldur stílaðar era gagnva-rt Þjöðveirjniti eða öðrum þjóðum. Bandaríkja kosningarnar ---------------------------------------* Þriðjudaginn þann 4. yfirstandandi mánað- ar, fóru fram kosningar til þjóðþingsins í Wash- ington; græddist Demokrata flokknum það mik- ið fylgi, að styrkur hans í báðum málstofunum kemur að jöfnu við þingflokk Republicana. Og þá tekið er tillit til þess, að í flokki þeirra síðar- nefndu, er að finna menn í báðum málstofunum, sem andvígir eru núverandi stjórn, má fullyrða að veldi hennar í löggjafarefnum sé í þann veg- inn að verða lokið. Orsakirnar að hinum stórfengilega ósigri Republicana í nýafstöðnum kosningum, era vafalaust margþættar, þó megin orsökin sé vænt- anlega sú, hve hart hefir verið í ári meðal verka- manna, bænda og búalýð.s, sunnan landamær- anna. Þegar þannig er ástatt, sýpur venjuleg- ast sú stjóm, er að völdum situr, af því seyðið; þannig var því farið við síðustu sambandskosn- ingar hér í landi, og hliðstæð hefir nú útkoman 01 ðið syðra, að því undanskildu, að hið pólitíska stundaglas forsetans var, samkvæmt stjórnar- skrá landsins, enn eigi runnið út. Þegar flokkur Republicana komtil valda fyr- ir tveimur áram, undir forustu Mr. Hoovers, hét hann Bandaríkja þjóðinni gulli og grænum skóg- um; alt hugsanlegt milli himins og jarðar átti að vernda, svo sem iðnaðinn, verkamanninn og bóndann, að ógleymdri vínbannslöggjöfinni; at- vinnuleysið átti að verða óþekt stærð, og læknis- lyfið átti að vera aukin tollvernd. Ekki verður Mr. Hoover sakaður um það, að hafa brugðist kjósendum sínum tollmúranum viðvíkjandi, því hans fyrsta verk var það, eftir í “Hvíta húsið” kom, að hækka vemdartolla á flestum fram- leiðslutegundum, og það svo gífurlega, að um beina útilokun á vöru-innflutningi frá hinum ýmsu þjóðum, var að ræða. En hver hefir svo afleiðingin orðið! Um það leyti er Mr. Hoover kom til valda fyrir tveimur áram, nam tala atvinnulausra í Bandaríkjum, nokkuð á aðra miljón; nú ganga þar frekar fjórar miljónir manna og’ kvenna auðum Höndum, jafnframt því, sem deyfðin í landbúnaði og iðnaði er tilfinnanlegri en nokkra sinni fyr. Og nú verður ekki lengur ónógri toll- vernd um kent, hvernig komið er með nágranna þjóð vora syðra; einhverju öðra verður að bera við. 1 síðustu forsetakosningum hét Mr. Hoover því að halda verndarhendi yfir vínbanns- löggjöf þjóðar sinnar, og var þá alt annað en myrkur í máli. En núna fyrir skemstu læt- ur hann það viðgangast, óátalið að því er bezt verður séð, að bragga megi til “ heimanotkun- ar” áfengi á hverju einasta heimili innan tak- marka Bandaríkja þjóðarinnar; hneyksli sem þetta, hlaut að koma honum sjálfum og flokki hans í koll, og sú varð líka reyndin á í nýaf- stöðnum kosningum. Svo hefir hátollafarganið og heimabraggun- in leikið Republicana flokkínn hart, að litla von mun hann þurfa að gera sér um sigur við næstu forseta kosningar. Horfur Demokrata hafa sjaldan verið eins bjartar og nú era þær; ætti það því engum að koma á óvart, þótt næsti forseti Bandaríkjanna verði Demokrat, og þá ekki ósennilega Franklin Roosevelt, núverandi ríkisstjóri í New York, sá maðurinn úr Demokrata flokknum, er hvað glæsilegastan vann sigurinn í síðustu kosning- um. —"—------------—-— --------------------------------—■——-—■+ Hvað er samvinna? *---------------------------------------* “Samvinnuhreyfingin er,” segir Henry J. May, ritari Intemational Co-operative Alliance, “fyrst af öllu hagfræðilegt kerfi, er hrinda vill í framkvæmd ákveðnum hagfræðilegum hug- sjónum; kerfi, sem það hefir að markmiði, að inna af hendi fylztu þjónustu í þarfir allra stétta jafnt; kerfi, er stuðla vill að efldum sið- ferðisþroska og vinna að heill meðlima sinna, jafnt einstaklingsins sem fjöldans, hvort heldur sem er í persónulegum, eða viðskiftalegum skiln- ingi, með fullkomnari aðferðum, en þeim, sem við hafa gengist í ríki samkepninnar, þar sem baráttan snýst aðallega um persónuhagnaðinn. 1 einu orði sagt, þá stefnir samvinnuhreyfingin eigi einungis að velferð sinna eigin meðlima, heldur allra stétta jafnt.” 1 þessum fáu orðum hér að ofan skilgreinir einn allra víðskygnasti samvinnufræðingur nú- lifandi, kjama og tilgang samvinnunnar. Með dálítilli gaumgæfni, getur hver einasti sam- vinnumaður, þroskað hverja þessa hugmynd út af fyrir sig og samræmt hana hinum ýmsu grein- um samvinnufyrirtækja þeirra, sem hann eink- um og sérílagi er riðinn við. Samvinnuhreyfing- in er hagfræðislegs eðlis, og þarafleiðandi verð- ur að framfylgja henni á strang-hagfræðilegum grandvelli. Starfræksla hennar vprður ávalt að vera í fyísta samræmi við þær meginreglur við- skiftalífsins, er hagkvæmilegastar þykja; það er þessi hreyfing, er það hefir að markmiði, að veita skjó!4tæðingum sínum sem allra fullkomn- .r.v- ... , mmm .. . • '•mMÞmmmimmmrmmmim. m . . . , .... asta þjónustu og krefjast aðeins sanngjarnrar endurgreiðslu í staðinn. 1 stuttu máli þá verður starfræksla samvinnufyrirtækjanna að vera slík, að sérhver meðlimur þeirra fái það í dollurum og centum, er honum með réttu ber. En til þess að þeim fagra tilgangi verði náð, er þörf á vit- urlegri framkvæmdarstjórn, nákvæmu eftirliti og strangri ráðvendni af hálfu þeirra allra, er 1 hlut eiga að máli. Með þessu, sem nú hefir verið nefnt, er síð- ur en svo að upp séu taldir allir kostir samvinn- unnar, því þeir era enn fleiri en svo; á hinum hagfræðilega grandvelli hennar hvílir, eins og Mr. May kemst að orði, skipulagsbundið kerfi lýðþjónustu og bræðralags. Samvinnustefnan er þó engan veginn einskorðuð við hina hag- fræðilegu hlið þjóðlífsins; hún er lífsspeki, átta- viti til lieilbrigðs lífernis, hagkvæmileg aðferð til afkomu, grandvölluð á kristilegum hugsjón- um. Samvinnustefnan heyjir baráttu fyrir vel- ferð mannkynsins í heild. Samkvæmt fyrirkomulaginu gamla, það er að segja fyrirkomulagi hinnar ströngu samkepni, er markmið sérhvers þess, er að iðnaði eða við- skiftum gefur sig, að safna fé .sjálfum sér til handa. Samkepnin knýr hann til þess að kaupa eins ódýrt og selja eins dýrt, og honum framast er unt; og takist honum, án þess því sé athygli veitt, að klípa utan úr vigt vörannar, eða losna við gamla og lélega vöru, sem stundum á sér stað, verður liagnaður hans þeim mun meiri. Arðvænleg-ur árangur á sviði samkepninnar, er oft fenginn á kostnað annara. Þegar um samvinnustefnu er að ræða, er þessu á alt annan veg farið. Hópur manna, hvort heldur fámennur eða f jölmennur, er stofn- ar, segjurn, samlag neytenda, eða þeirra, er vör- una nota, hefir hvorki ástæðu né tilhneigingu til þess að selja lélega vöra eða klípa utan úr vigtinni, með því að þar er aðeins um innbyrðis sölu að ræða meðal hlutaðeigenda sjálfra. Slík- ir menn geta undir engur kringumstæðum freist- ast til þess að selja við okurverði, með því að þeir era jafnframt sjálfir kaupendur vörannar. Megin tilgangur þeirra hlýtur að vera sá, að komast að sem hagkvæmilegustum innkaups- kjörum, komast yfir þá vörana, sem bezt er við þeirra hæfi og útbýta henni meðal félaga með sem allra minstum tilkostnaði, án óþarfra milli- liða eða óþarfra útgjalda. Samvinnustefnan, eða samvinnan, gerir engan einn mann auðugan, í fjárhagslegum skilningi; þeim ágóða eða til- svarandi ágóða, er fellur hinum fáu í skaut sam- kvæmt keppi-fyrirkomulaginu gamla, er jafnað niður á milli þeirra manna, er samlags stofnan- irnar mynda,' þannig að skifting auðsins verður eins réttlát og jöfn og framast má verða. Ef allar'framleiðslustofnanir væra samlags eða samvinnustofnanir, yrði árangurinn sá, að hvorki yrði um ofursöfnun auðs né átakan- lega örbirgð að ræða; skifting auðsins yrði jafnari 0g bilið á milli lífkþæginda einstakling- anna hvergi nærri eins tilfinnanlegt og við hefir gengist áður. Sú er hugsjón þeirra, er víðskygnastir hafa verið á sviði samvinnunnar, að menn og konur af öllum þjóðum og stéttum, það er að segja mannkynið í heild, fái búið að sínu í friði; að hver styðji annan eftir því sem kraftar leyfa. Hugsjónatakmarkið, er stefna ber að í sam- bandi við kaup 0g sölu framleiðslunnar gegnum farveg hinna ýmsu samlagsstofnana, kann enn að sýnast ærið langt fram undan; þó stefna að því allar mannlegar athafnir engu að síður. Yafalaust verður brautin nokkuð hrjúf með köflum 0g sumum jafnvel ofurefli að ná til endi- marka hennar; samt verður förinni aldrei lint fyr en yfir lýkur. Það skal verða hlutverk framsýnna manna og kvenna, að ganga svo frá undirstöðu hinna ýmsu samlagsstofnana að jafnvægi þeirra fái engin öfl raskað; að svo verði glæsilegur þroskaferill hverrar slíkrar stofnunar um sig, að í jarðvegi hennar spretti fleiri og fleiri stofnanir, er allar stefni að sama marki með eldlegum áhuga og trausti á gullöld framtíðarinnar. Þá mun heill faðma bóndans bæ 0g dagbjart um víða veröld. Megin inntak greinar þessarar, er tekið úr tímariti hveitisamlagsins í Manitoba. +•------------------—-------------------♦ Vegalengdar gætir ekki 4—■-----------------------------—-------+ Þann 30. október síðastliðinn var veizla mik- il haldin í Lundúnum, til heiðurs við þá virðu- legu fulltrúa, er samveldisstéfnuna sátu; var það “League of Nation Society,” er til mann- fagnaðarins hafði boðað. Þrjár ræður vora flutt- ar við þetta tækifæri. Ræðumenn vora prinsinn af Wales, Mr. Thomas, nýlenduráðgjafi Breta og hinn canadíski forsætisráðgjafi, Mr. R. B. Bennett. Svo hafði verið í haginn búið, að ræðunum öllum skyldi víðvarpað. Vér urðum þeirrar á- nægju aðnjótandi, að vera staddir á heimili hér í borginni, er víðvarpstæki hafði, og hlusta á ræður þessara þriggja mikilsmetnu manna, og virtist oss þær hver annari betri; allar þrangn- ar af áhuga fyrir friðarmálefnum mannkynsins. Svo skýrt og skilmerkilega heyrðust ræður þessar allar, að engu líkara var en talað væri frá næsta húsi. Svo er víðvarpið komið á hátt stig, að í vissum skihiingi er það í raun og veru búið að nema vegaléngdina úr aögunni. Nunnan Eftir Gottfried Keller. [Höfundur bessarar sögu, Gott- fried Keller (1819—1890), er tal- inn standa í fremstu röð þýzkra skáldsagnahöfunda. Hann lalgði ungur stund á máalarist, en brátt hneigðist hugur hans til ritstarfa, og 35 ára gamall birti hann skáld- söguna “Der grune Heinrich”, en fyrir bók bessa hlaut hann mikla frægð. Hann hefir ritað allmarlg- ar skáldsögur, bar á meðal noklcr- ar smásögur. Sagan, sem hér birt- ist í íslenzkri bÝðingu, er úr smá- sðgusafninu “Sieben Legenden’’ (Sjö helgisagnir), sem kom út í fyrsta sinni árið 1924.1 “Ó að e'g hefði vængi eins og dúfan, þá skldi eg fljúga hart og finna hvíldarstað. Sálm. 50, 7. Á fjalli einu stóð klaustur, og var þaðan víðsýni mikið, en klausturmúrarnir blikuðu svo, að birtu bar af víða um landið. Inn- an veggja bessara var fjöldi kvenna, fríðra kvenna og ófríðra,' en allar þjónuðu þær drotni í ströngum klausturaga, o'g hinni helgu mey, móður sinni. Sú, sem fegurst var af nunnun-, um, hét Beatrix og gegndi djákna-: störfum í klaustrinu. Há og tígu- le!g gekk hún með göfgi og trú- mensku að störfum sínum við alt-j ari og í kór, leit eftir skrúðhúsi og hringdi klukkunni áður en roð-| aði af degi og þegar kvöldstjarn-1 an kom upp. En þess á milli horfði hún oft tárvotum augum út í bláan fjarsk-: ann, yfir lífkvik héruðin umhverf- is. Þar sá hún blika á branda, heyrði veiðiriddara þeyta lúðra sína í skóginum og hljómsterk köll mannanna, en brjóst hennar svall af útþrá. iLoks bar þessi þrá hana ofurý liði, o!g eina mánabjarta júnínótt fór hún á fætur, setti upp nýja og sterka skó og gekk ferðbúin fram fyrir altarið. “Eg hefi þjónað þér dyggilega í mörg ár,” mælti hún við hina helgu mey, “en nú tekur þú við lyklunum, því e!g afber ekki lengur eldinn, sem brennur í hjarta mér.” Að svo mæltu lagði hún lyklakippuna á altarið og hvarf á braut úr klaustrinu. Hún gekk niður fjallið, þar sem djúp kyrðin ríkti, og hélt svo áfram, unz hún kom á krossgötu inni í eikarskógi. Var hún þá í vafa um, hvaða leið skyldi halda og setist við lind eina. Var þar gerð steinþró yfr lindinni o!g brekkur hjá til þæginda fyrir ferðamenn,' sem leið áttu þarna um. Þar sat| hún, unz sólin kom upp, og dijgg- in féll og fól hana í úða. En þegar sólin kom upp fyrir trjátoppana og varpaði fyrstu geislum sínum á skógarstíginn, sá hún 1 geislaflóðinu göfugan ridd- ara koma ríðandi með alvæpni einsamlan eftir stígnum. Nunn-j an starði á hann augunum fögru, og fylgdist eins vel og unt varj með hverri hreyfingu þessarar, tígulegu myndar, en hafði svo hljótt um sig, að riddarinn hefði ekki komið auga á hana, ef lind- arniðurinn hefði ekki náð eyrum hans og leiðbeint augum hans. En nú beygði hann út af veginum, steig af baki, og gaf hestinum að drekka. Um leið heilsaði hann nunnunni með lotningu. Riddar- inn var krossfari og nú á heim- leið einsamall eftir langa burtu- veru, því hann hafði mist alla liðsmenn sína. Enda þótt alt látbragð riddar- ans bæri vott um djúpa lotning, hafði hann ekki augun af Beatrix hinni fögru, 0g endurgalt hún augnaráð hermannsins með því að virða hann gaumgæfile'ga fyrir sér, enda hafði þegar birzt henni þama meira en lítið af þeim heimi, sem hún hafði mest þráð í kyrþey. En svo varð hún skyndi- lega feimin 0g leit niður fyrir sig. Loks spurði riddarinn, hvert hún ætlaði 0g hvort hann gæti ekki gert neitt fyrir hana. Hún rank- aði við sér, er hún heyrði hina hljómmiklu rödd hans. Hún leit aftur á hann, og heilluð af augna- ráði hans játaði hún, að hún hefði flúið úr klaustrinu, til þess að sjáj sig um í heiminum, en að nú væri hún strax orðin hrædd og vissi ekki hvað hún ætti til bragðs að taka. Þá hló riddarinn af öllu hjarta og lét sér hvergi bregða, heldur bauðst til að fylgja nunnunni a réttan veg, ef hún vildi aðeins fara eftir þeim ráðum, sem hanq gæfi henni. Hann skýrði henni frá því, að kastali sinn væri ekki nema dagleið í burtu, þar gæti hún ðrugg búið sig undir frekari í meir en þriðjung aldar hafa Dodd’s Kidney Pills verið viður- kendar rétta meðalið við bakverk, gigt, þvagteppu og mörgum fleiri sjúkdómum. Fást hjá öllum lyf- sölum, fyrir 50c. askajn, eða sex öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The Dodds Medicine Co., Ltd., Toronto, ef borgun fylgir. framkvæmdir, og haldið svo, þeg- ar hún hefði hugsað sig betur um, áfram ferð sinni út í heiminn, ef hún vildi. Hún svaraði engu, en sýndi heldur engan mótþróa, þótt hún titraði lítið eitt, þegar riddarinn lyfti henni á bak hestinum. Svo sveiflaði hann sér einnig á bak og þeyþti fagnandi um engi og skóga, með nunnuna fagurrjóða í fanginu. Tvö til þrjú hundruð fyrstu hestlengdirnar sat hún upprétt o'g starði fálát út í bláinn, en um leið þrýsti hún höndum að brjósti sér til að sefa hjartsláttinn. Brátt lét hún þó fallast að brjósti riddarans stálklædda, svo andlit hennar blasti við honum, og tók viðnámslaust á móti kossum hans. En eftir að aðrar þrjú hundruð hestlengdír voru farnar, endur- galt hún kossa hans jafnákaft eins og hún hefði aldrei hringt klausturklukku. í þessum kring- umstæðum sáu þau ekkert af hér- aðinu fagra umhverfis, því að nunnan, sem hafði áður þráð svo mjög að sjá sig um í veröldinni, lokaði nú augunum fyrir henni og gerði sig ánægða með ekki stærri hluta af henni en einn hestur gat borið á bakinu. Riddarinn Wonnebold hugsaði varla heldur til hallar feðra sinna fyr en turna hennar bar við loft í tunglsljósinu. En það var hljótt umhverfis kastalann og enn hljóð- ara innan veggja hans, o'g hvergi sáust kyndlar kveiktir. ÍPoreldr- ar Wonnebolds voru dánir og alt þjónustuliðið horfið á braut nema einn f jörgamall kastalavörður, sem loks opnaði kastalahliðið með miklum erfiðismunum, eftir að riddarinn hafði lengi knúið dyrn- ar. Stóð öldungurinn nú steini lostinn með Ijósker í hendi og var nærri liðið yfir hann af gléði yfir að sjá riddarann aftur heim kominn heilan á húfi. Þrátt fyr- ir elli sína og einstæðingsskap, hafði öldungurinn haldið vel við herbergjum kastalans, og sérstak- lega hafði hann ástundað að halda herbergji hins unga hús- bónda síns alt af vel til reiðu, svo að riddarinn gæti gengið þangað til hvíldar undir eins og hvenær sem hann kæmi heim úr ferðalagi sínu. Þarna dvaldi nú Beatrix hjá honum og svalaði þrá sinni. Þeim kom ekki framar til hugar að skilja. Wonnebold opnaði dragkistur móður sinnar. Beatrix klæddist skrautlegum búningum go skreytti sig gifsteinum hinnar dánu, og svo lifðu þau fyrir líð- andi stund í gleði og glaumi án þess þó að riddarinn veitti henni titla þá og réttindi, sem eiginkonu ber. Unnustinn leit á hana sem ambátt sína, og hún krafðist einskis betra að svo komnu. En einu sinni kom barón einn með föruneyti sínu til kastalans, sem nú hafði aftur verið fullskip- aður þjónustuliði, og var veizla gerð honum til heiðurs. Er á leið veizluna tóku menn að kasta teningum, og var hallareigandinn svo heppinn í spilinu, að hann, í gleðivímunni yfir gengi sínu og trú sinni á það, lagði undir dýr- mætustu eigina, að sjálfs hans sögn, sem hann átti, Beatrix hina fögru, eins og hún var, með öllum hinum mörgu og dýru gimstein- um, er hún bar, en í móti lagði baróninn kastala einn — gamalt og eyðilegt fjallasetur, — sem hann átti. Beatrix hafði horft á spilið með ánægju, en nú fölnaði hún upp og ekki að ástæðulausu, því að nú var teningunum kastað og kom

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.