Lögberg


Lögberg - 27.08.1931, Qupperneq 2

Lögberg - 27.08.1931, Qupperneq 2
Bls. 2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 27. ÁGírST 1931. — Xögtierg Gefið út hvem fimtudag af THE COLUMBIA PRESS, LTD., Cor. Sargent Ave. og Toronto St. Winnipeg, Manitoba. Talsímár: 86 327 og 86 328 Einar P. Jónsson, Editor Utanáskrift blaðsins: The Columbia Press, Ltd., Box 3172 Winnipeg, Man. ' Utanáskrift ritstjórans: Editor Logberg, Box 3172, Winnipeg, Man. Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram. The "Lögberg" is printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. Fylkiskosningar í Quebec Síðastliðinn mánudag, fóru fram almennar kosn- ingar til fylkisþingsins í Quebec; lauk þeim með glæsilegum silgri fyrir frjálslyndu stefnuna og stjórn þá, er íarið hefir þar með völdin í síðastlið- in níu ár, Frjálslyndi flokkurinn hefir setnð að völdum í Quebec fylki í þrjátíu og fjögur ár; var misjöfnu fyrir spáð um úrslit kosninganna; báðir flokkar höfðu frambjóðendur í hverju einasta kjördæmi, en alls eru kjördæmin níutíu talsins. Ekki var um að villast, að kosningar þessar væri með kappi sóttar af báðum hliðum; munu ihaldsmenn, undir forustu Camillien Houde, boagarstjóra í Montreal, þó eink- um hafa lagt sig í framkróka um fylgisöflun. Að loknum leik, urðu úrslitin samt sem áður þau, að frjálslyndi flokkurinn vann sjötíu og níu þingsæti, en íhaldsmenn ellefu; féll foringi þeirra í valinnn, ásamt herskörum sínum því nær öllum. Svo fór um sjóferð þá. Alls græddust frjálslynda flokknum . fimm þinlgsæti frá því, sem áður var. Tíðrætt er mönnum um þær ástæður, er til ’grundvaliar muni hafa legið fyrir hrakförum íhaldsmanna í þessum eftirminnilegu kosningum, og virðist vitanlega ekki öllum á sama veg. Þó er svo að sjá, sem mikill meiri hluti muni hallast að þei,rri skoðun, að hátollafargan Mr. Bennetts, sem íhalds- menn hömpuðu mjög á lofti, og alfe átti að lækna, hafi fremur átt í því drjúgan þátt, að veikja fylgi þeirra en auka. í síðustu sambandskosningum, unnu íhaldsmenn, eins og kunnugt er, þó nokkuð á í Quebec; töldu forkólfar þeirra í fylkismálefnum þetta góðs vita, og hugðu gott til glóðarinnar, er til fylkiskosninga kæmi; sár hafa vonbrigðin vafalaust orðið, er ljósfe varð, að aðeins ellefu, segi og skrifa ellefu, björguðust heilir á húfi úr hinum pólitiska eldsvoða. Frjálslyndi flokkurinn fer með völd í Quebec, að minsta kosti næstu fjögur til fimm árin, o!g er það vel; hagur fylkisins stendur með meiri blóma um þessar mundir, en jafnvel nokkru sinni fyr, þrátt fyrir það þó óáran sverfi mjög að flestum fylkjunum hinum. Og þegar alt gengur vel, er ástæðulaust að breyta til. Stjórnmálin brezku Þau tíðindi hafa nýverið gerst, að verkamanna- ráðuneytið brezka, undir forustu Ramsay MacDon- alds, hefir látið af völdum, en í stað þess tekið við til bráðabirgða samsteypustjórn, skipuð helztu mönnum flokkanna allra þriggja. Mr. MacDonald hefir samt sem áður forstjórn hins nýja ráðuneytis á hendi. Ástæðurnar fyrir þessum snög'gu sfejórnarskift- um, eru vitanlega á fleiri en einn veg; þó mun megin-ástæðan hafa verið sú, að þjóðin horfði fram á tekjuhalla, er áætlaður var um sex hundruð milj- ónir dala; um aðferðina til þess að ráða bót á þeim vandræðum, er af slíkum tekjuhalla óhjákvæmi- lega leiddi, ef þá á annað borð yrði úr því bætt, gat stjórnin undir engum 'kringumstæðum orðið sammála; Mr. MacDonald, og fjármálaráðgjafi hans, Mr. Snowden, töldu lækkun útgjalda á öllum svið- um, einu hugsanlegu leiðina út úr ógönlgunum, og héldu því jafnframfe eindregið fram, að lækka yrði að nokkru hinn fasta styrk til atvinnulausra í land- inu, þótt slíkt yrði vitaskuld ekki gert sársauka- laust; inn á slíkt var utanríkisráðgjafinn, Mr. Hend- erson ófáanlegur til að ganga, og fylgdu honum að málum nokkrir samverkamenn hans í ráðuneyt- inu. Og er sýnt var, að engu varð um þokað, tók Mr. MacDonald það feil bragðs, að kveðja ti] fundar við sig leiðandi menn hinna flokkanna beggja, og ráðgast við þá um úrlausn mála; árangurinn varð sá, sem þegar hefir verið getið, að bráðabirgða- stjórn var mynduð, og veitir Mr. MacDonald henni forustu. Um þær mundir, sem þetta er í letur fært, er enn ekki með fullu ljóst, hvernig stjórnin verði skipuð; þó er víst að meðal þeirra, sem í henni eiga sæti, má telja Mr. Stanley Baldwin, leiðtoga íhalds- flokksins 0g fyrrum sto’órnarformann; enn fremur af hálfu þess flokks, Sir Samuel Hoare, Neville Chamberlain og einir sjö aðrir. Fyrir hönd frjálslynda flokksins, tekur sæti í hinni nýju stjórn, Sir Herbert Samuel, 0g ekki ólíklega ein- hverjir þrír aðrir. Mr. Lloyd Georlge hefir átfe við nokkra vanheilsu að stríða undanfarandi; var þess farið á leit við hann, að hann tæki að sér ráðgjafa- stöðu; mælt er, að hann sé í nokkrum afturbata; en hitfe er talið fremur ólíklegt, að hann taki sæti í þessari bráðabirgðastjórn, jafnvel þó til heilsu kæmist í náinni framtíð. Auk forsætisráðgjafans, Mr. MacDonalds, munu af hálfu verkamanna flokksins eiga sæti í stjórn- inni, Mr. Snowden, Mr. Thomas, Sankey lávarður og ef til vill einhverjir fleiri. Atburðir þeir, sem nú hafa nefndir verið, gerð- ust tiltölulega með skjótum hætti; það var ekki fyr en fyrsfeu dagana í yfirstandandi mánuði, að hljóð- bært fór að verða um hinn gífurlega, yfirvofandi tekjuhalla. O’g nú eru, til bráðabirgða að minsta kosti, allar pólitiskar landamerkjalínur úr sögunni. Þannig er það ávalt með brezku þjóðina, þegar mikið liggur við. Andrumsloftið Dagrenning og sólaruppkoma eru falleg orð, og hjá öllum þeim íslendingum, sem fullorðnir komu að heiman, rís upp og vaknar stöðugt einhver huggandi og gleðjandi endurminning í hverfe skifti, sem þessi orð berast í tal. Þeir eru enn þá margir til hér vestanmegin Atlantshafsins, sem reyndu það, að vera komnir lengst upp í heiðardrög við dag- renning og upp á heiðarbrún við sólaruppkomu. Þeir eru enn þá margir til, sem af eigin reynslu þekkja það ástand, sem ferðahug- ur veldur á vetrardögum, þegar ekki á að setjast upp í kar eða eimreið, né heldur sitja á hesti, þegar á að treysfea þeim eigin rpsklega fótaburðf, sem, flytur mann yfir daginn 30 til 40 ensk- ar mílur úr stað, þó aldrei sé stigið meir en þrjú fet fram i senn. Fjölda margar íslenzku heiðarnar norðanlands, eru 8 til 10 danskar mílur bæja á milli.— í ferðamanninum býr sá áhugi, sem líður engan svefn seinni part nætur, dg engin vinalæti við koddann eða brjóstgæði við heil- brigðan, hraustan líkama. Ferða- maðurinn er kominn á fætur löngu fyrir dag, klæðist og plaggar sig hlýtfe og létt af mikl- um áhuga, borðar alt sem lystin leyfir, 0g gleymir þó ékki að stinga svolitlum bita í vasa sinn til upplyftingar, ef þolið kynni að linast, þegar á ‘daginn líður. INærgætnin er heldur aldrei ut- an dyra á slíkum augnablikum; íslenzku konurnar vita líka únd- ur vel hvað við á, og láta sína aðstoð aldrei vanta, leggja sig þá heldur úfe af aftur stundar- korn, þegar heiðargöngumaðurinn er lagður af stað og þangað til dagrenningin tekur svertuna af rúðunni. Það er stór furða, hve mikils fagnaðar og hugrekkis konan nýtur við svona tækifæri af dagrenningunni 0g sólarupp- komunni, þó hún sitji heima og þó ferðamaðurinn sé henni ekki vandabundinn. Það er mannúð- arandinn í landinu, sem veldur þfirri meðvifeund, að bróðurlund- in aðstoði ferðamanninn, og að heimilinuj undir heiðinni hlotn- ist gæfa af því, að ferðamannin- um sé hugsuð fararheill, og ó- gæfuboði, ef hann hendir slys. Víða hagar svo til, að ferðamað- urinn sfeendur nokkurn veginn jafnt að vigi frá tveimur eða þremur næstu bæjum undir heið- inni, en iþá 'er ávalt spurt eftir því, þegar velja skal um gisti- stað: Hvernig er að komast það- an á morgnana? Undir fjallveg- um er það fylginautur gestrisn- innar, að hjálpa mönnum til að komast snemma af stað á morgn- ana, og er þá sagt, að ferðamað- urinn eigi daginn fyrir sér, og felst í því sama ðrylggið eins 0g að hafa vaðið fyrir neðan sig. Enn þá eitt þýðingarmikið at- riði er í endurminningunni að- fylgjandi dagrenningunni, en það er andrúmsloftið. Mikið meira var um það talað og meiri á- herzla á það lögð í mínu ung- dæmi, en hvað nú er í afhaldi, að njóta andrúmsloftsins í sem fullkomnustum mæli snemma á morgnana, en varast útivist sem allra mest á kvöldin. t ákveðnum tilgangi hefi ég mint á daferenninguna, sem er auðvitað ekkert annað en fyrir-, boði sólaruppkomunnar. Dagrenningin er einkum fögur og áhrifamikil fyrir fullvissuna, sem henni er samfara um sólar- uppkomuna. Hún verður okkur ósjálfrátt undirsfeaða hógværrar gleði, nýrra vona og aflmeiri vilja; hún verður okkur einmana á löngum fjallvegi dagrenning umhugsunar, og við förum að finna til þess að hún er takmörk- uð, jafnvel sólaruppkoman sjálf í allri sinni dýrð, bendir þó á nótt- ina og kuldann, en leiðir jafn- framt til umhugsunar um það híbýli, þá vistarveru í allsherjar tiiverunni) þar sem dagurinn á miðstöð ljóssins í öllum áttum, þar sem aldrei skyggir að og aldrei þarf að bíða eftir dagrenn- ingu, leiðir til þeirrar hugsunar, sem hvetur manninn til að gera grein fyrir því fegursta 0g full- komnasta, því vísdómsfulla o'g máttuga, svo það verði manni smám saman að eftirlöngun, hjartanlegbi, til guðsdýrðar- þekkingar, svo er allsherjar sólin vermir 0g þroskar þá þrá með manninum, þá verður það smám- saman meðvaxinn eiginleiki, sem býr í björtum og fögrum sjón- deildarhring, og sækist ekki eftir neinu lakara. Þar sem guðsdýrð- arþráin er skýr, þar er alt kring- stætt, sem í manni býr. Það er lífsandans holla and- rúmsloffe, sem er dagrenningunni samfara, að hugsa til dagseturs æfi sinnar, fjallveginn á enda, um ljósið og máttinn og lífið, sem náttúran vitnar um 0g okkar eig- in dómgreind er leyft að sxilja, og verða að skilja og verða hlut- takandi í. Heiði næst á háum stað, hugsjónirnar berast að, tfjallablærinn fæðir það, feikna öfl í huga spyrnast. Það er hið hreina, holla loft dag- renningarinnar á vðginum yfir 1 heiðina, þar sem heimshyggjan skyggir sízt á. Eins fyrir því þó við nú séum í Canada, þá erum við öll framar og aftar á heiðarvegi æfidagsins, og höfum fleiri og færri endurminn- ingar meðferðis og höfum meira og minna hagnýtt þá lærdóma, sem dagrenningin og sólaruppkoman frambuðu, höfum meira og minna þroskast og tileinkað okkur af þeirri miklu fegurð og skýru bend- ingum, sem þessir dýrðlegu við- burðir vitna um. Við höfum spurst fyrir og reynt að skilja það sjálf-, hvar sé tryggast að leggja af stað, og vel farnast okkur, ef við leggj- um upp frá Nazaret, ef fegurð hinnar daglegu sólaruppkomu hef- ir sannfærfr okkur og þroskað svo skilning okkar, að við fulltreystum dýrðlegustu uppkomunni á þessari jörð, sólaruppkomunni á veginum upp»frá Nazaret. Heima á íslandi sr metramál vegarins höggvið á steina meðfram brautinni, svo að ferðamanninum skuli vera auðvelt að sjá hvað á- vinst. Á velginum upp frá Naza- ret er þessu nokkuð öðruvísi var- ið. Þar eru vegarmerkin eða metramálið alt af ljósum gert, þeim Ijósum, sem eru öllu blá- grýti þolnari og óafmáanlegri, gerð af ljósum, sem á næstliðnum 1930 árum hafa aldrei dofnað eða orðið slökt af fellibyljum né flóð- um skilningsleysisins, léfetúðar og sjálfbyrgingsháttum a'ldavenj- uunar. Ljósin standa báða vegu við velginn. og heita hvert sínu nafni, svo ekki er um að villast, enda hægurinn hjá að afla sér upplýsinlga um merkin, því nýja testamentið leggur öllum, sem vilja, þær í té. Enda bera þau sjálf heiti sitt í geislastöfum frá sólaruppkomunni. Eg get aðeins bent á, hvað þau fyrsfeu bera með sér, t. d.: Eg ákæri þig ekki. Á því skulu mennirnir þekkja, að þið séum mínir lærisveinar, að þér elskist innbyrðis. Það sem þér viljið að mennirnir geri yður, það skuluð þér og þeim g.era, o. s. frv. — Ljósin eru þess eðlis, að þau ekki einungis upplýsa veginn, heldur og einnig ferða- manninn sjálfan innbyrðis, kenna honum að þekkja sjálfan sig, öll- um þeim sem vilja. Þess utan 'brenna þau rykið á veginum og hreinsa og vermá andrúmsloftið, og það er eins og það stafi gleði- andi örvggisáhrif af Ijósunum, menn finna aldrei til lúa og eru undur ánægðir með vegalengdina. Og það er nú undrunarefni. hvað allir þroskast að skilningi á þess- um vegi, já, allir, og seinasta Ijósið er mér sagt að þýði þetta: Faðir, eg þakka þér. að það er smælingjum oninberað; sem vitr- ignum er hulið. Er það ekki dá- samlegt? Það er eins og allir verði þess aðnjótandi. Fr. Guðmundsson. ÁRNl SIGURDSSON. Fæddur 16. Apr. 1839 á Fagradal í Breiðdal, dáinn 7. Apr. 1931, hjá syni sínum Þórði að Mozart, Sask. \ Bjart er á Breiðdals vegi. Björt er á túni og fjöllum ársól á Apríldegi, yfir þeim fögru völlum. Birtuna gefur blindum, barngóður lífsins andi. Auðgast að úrvalsmyndum útsjón á dýrðarlandi. Hugur til hæða sækinn, hækkar á æfidögum. Almáttar endast tækin, eilífðar þroskalögum. Gen!ginn á gildum boða, gröfin fjötrana hlýtur. Mildinnar morgunroða margþjáða augað nýtur. Hugprúða hjartað tekið. Háleita vakið næmið. Þakka þér fyrir þrekið, þakka þér fagra dæmið. Ellin legst holds að herðum, haggast ei andans kraftur. Þó sé ég seinni á ferðum, við sjáumst bráðum aftur. Leiðist þeim búnir bíða, bezt eru sætin heima. Hugurinn horfir víða, himnarnir Ijósin geyma. Þú grær á sælla sviði, sólríka dagsins hlynur. Lif í guðs faðmi’ og friði, framliðni, kæri vinur. Fr., Guðmundsson. ÞAKKARORÐ, Við, synir og tengdadóttir Guð- rúnar sál. Antóníusdóttur ísberg, vottum öllum vinum og ættingj- um nær og fjær, hjarfrans þakk- ir fyrir hluttekning og aðstoð í sorg og missi okkar. En einkum fvrir alt. það góða og innilega, sem • í té hinni framliðnu. Biðjum við alla, sem hlut eiga að máli, að taka þessi orð sem til sín töluð persónulelga og þiggja okkar innilegasta þakklæti. Baldur, Man., 18. ág. 1931. Björgvin T. ísberg. Kristbjörg ísberg. Antóníus T. ísberg. Ferðalagjí Kína í engu menningarlandi eru ferðalög meiri erfiðleikum bund- in en í Kína. Til þess eru þrenn- ar ástæður einkanlega: Illir veg- ir, úrelt og ófullkomin farartæki og óeirðir. öllu þessu venst mað- ur. En ofan á alt þetta bætist, að á öllum langferðum verður maður að hafa með sér sængur- futnað. Minstu og algengustu “húsdýrin” í Kína eiga auðvitað sök á því; en þeim venst úi)lend- ur maður aldrei. Skömmu fyrir síðustu mánaða- mót fluttum við hjónin til Laoho- kow. Mar*gsinnis erum við búin að ferðast hér á milli Cengchow og Laohokow, en sjaldan án þess að eitthvað sögulegt hafi komið fyrir. Fyrstu endurminningar mínar, frá þeim ferðalögum, eru auðvit- að bundnar við sjálfa brúðkaups- ferðina. Það var haustið 1926. Eg var þá í Tengchow, en unnustan í Laohokow, og þar átfei brúðkaup- ið að standa. Uxaklaufir og múl- asnahófar og mannafætur, hafa rutt veginn á milli þessara tveggja staða að mestu leyti. Nú höfðu gengið sífeldar rigningar. Vegurinn var ófær, enda er hann allur gjörður úr mold, svo að hvesgi sést sandkorn eða stein- vala. — Brúðkaupsdagurinn rann upp bjartur og fagur. Veizlugest- irnir voru komnir. En ekki hefði neinum komið á óvart, þótfe brúð- guminn hefði ekki komið. Hann kom þó um síðir. Engar venju- legar torfærur hindra mann, sem er í slíkum erindagerðum! Það fór ver fyrir félaga mín- um, sem gifti si!g í Laohokow nokkru áður: Alt var reiðubúið. Brúðurin sat með slæðu og mýrtu- krans tímunum saman og—beið. Gestirnir urðu óþreyjufullir. Rétt- irnir kólnuðu og stóðu óhreyfð- ir á borðunum til kvölds. En piesturinn kom ekki. Hann kom ekki fyr en daginn eftir! Árið 1926 fóru bílar öðru hvoru á milli Laohokow og Tengchow. — Nú fanst okkur óviðfeldið að leggja af sfeað í brúðkaupsferð á venjulegum^ kínverskum uxa- vagni. Vildum við ekki taka ann- að farartæki en góðan bíl, sem færi á 3 klukkustundum þessa sömu leið, sem uxarnir komust naumast á tveimur dögum. Dramb er falli næst. Á hverj- um de!gi fóru uxavagnar til Teng- chow. En við biðum. í tvær vik- ur biðum við eftir þvi að vegur- inn yrði bílfær. — Því meiri var gleðin, er við ókum úr hlaði með 60 mílna hraða. Uiíavagnarnir eiga fult í fangi með að koma sér úr vegi. Bíllinn stöðvaðist skyndilega. Það var í fyrsta forarpollinum. Uxavagnarnir ná okkur aftur. Og þeir fara fram hjá, hver á fætur öðrum. Við mokum aur og erum forugir og sveittir. Litlu Ford- vélinni veittist erfitt að burðast með 14-manna kassabákn. Með aðstoð brúðhjónanna, kemst bíll- ipn loksins upp úr forinni. Og nú er ekið sleitulaust. Eftir nokkrar mínútur nálgumst við næsta forarpollji ökumaðurinn setur upp geisihraða. En “litli Ford” flýgur þó hvorki né hopp- ar; svo sekkur hann affeur niður í aurinn, upp á miðjar síður. Ekki man ég nú hvað oft þetta endurtók sig ,en það stóð eitt- hvað í hlutfalli við tölu forar- pollanna. Svo fór, að farþegunum þótti sér nóg boðið. Gjörðu þeir nú al- ment verkfall og varð bílstjórinn að leigja uxa til að draga bílinn upp úr síðustu forarpollunum! Vorum við þá samdóma um að miklu skárra hefði verið að ferð- ast þetta á venjulegum kínversk- um uxavagni. Og bílarnir hafa haft vit á að skammast sín. Þéir hurfu ger- samletga á þessu sama ári, og á þessum vegum hefir ekki spurzt til þeirra síðan. Tilgangur þessara lína er þó fyrst og fremst sá, að segja ykk- ur frá þessu síðasta ferðalagi okkar á milli Tengchow og Lao- hokow. Með konu og börn fýsti mig ekki að vera nætur sakir neins- staðar á þessari leið. Leigðum við því vagna, sem múlösnum var beitt fyrir og samnin'garnir stóðu og féllu með því, að við kæmumst alla leið til Laohokow um kvöldið. Honan er eitt af þétfebýlustu og frjósömustu héruðum landsins, en hverskonar umbætur, svo sem vegagerð og annað því líkt, eiga þó hvergi lengra í land. Fátækt, vanþekking og óeirðir eiga öllu fremur sök á því, en fastheldni við fornar venjur. • Á þessum degi mæfetum við mörg hundruð hjólbörum, hlöðn- um með allskonar varningi, burð- armönnum ,, í tugatali, f jölda af vögnum, stórri úlfaldalest og ótal mönnum fótgangandi. Umferðin var reyndar óvenju- lega mikil, vegna þess, að fyrir nokkrum dögum höfðu ræningjar gjört vart við sig, o'g stöðvaðist þá öll umferð skyndilega. En nú hafði varðlið nokkurra þorpa kom- ist að samningum við ræningj- ana, og var þá eins og stýfla brísti: umferðin hófst á ný með meiri straumþunga en áður. Á löngum kafla meðfram veginum stóðu varðsveitir ræningjanna. Kröfðu þeir nokkurs fjár af öll- um, sem fóru fram hjá, en gerðu mönnum annars engan miska. — Þeir veittu okkur undanþágu, án þess að nokkur býggist við því eða færi þess á leit, buðu okkur góðgerðir og sýndu okkur óvenju- mikla kurteisi. Flestir þessara manna báru öll einkenni ræfils- legasta óþokkalýðs. Þegar við nálguðumst Laoho- kow í hálfrökkri um kvöldið, kom fyrir atvik, sem við seint gleym- um. Við urðum að hafa hraðann á, til þess að komast til bæjarins áð- ur en virkishliðunum var lokað. En kapp er bezt með forsjá: Á mjórri steinbrú skamt frá bænum, féll annað vagnhjólið upp að öxl niður í glufu á milli steinanna. Eg sat fremst með litla drenginn okkar í fanginu; var eins og okk- ur hefði verið kastað með heljar- afli út fyrir brúna, en hún er þrigigja mannhæða há. Konan mín sat inni í vagninum með yngsta barnið; sá hún ófarir okkar. En af því að hún hélt, að vagnhjólið væri fyrir utan brúarbrúnina, bjóst hún við því, að vagninn ylti út fyrir og ofan á okkur. Við feðg- arnir lentum í aur og 'bleytu og varð hvorugum meinfe, af þessari miklu byltu. Við náðum háttum í Laohokow um kvöldið, og vorum glöð í huga og Guði þakklát. Þe!gar þetta er skrifað, hafa ræningjar enn á ný stöðvað alla umferð á Tengchow veginum. Ræningjarnir eru nú svo fjöl- mennir, að varðlið þorpanna og nokkur hundruð manna úr ríkis- hernum, hafa ekki getað veitt viðnám. iFyrri uppskerutími þessa árs er í nánd. En á óeirðarsvæðun- um í Honan horfir tál mikilla vandræða. Síðastliðið ár lá fjöldi jarða algjörlega í eyði, en flestir 'gátu þó sáð vetrarhveitinu. Nú lítur út fyrir, að ræningjarnir gjöreyði þessari einu lífsbjörg þúsunda manna. Við erum kristniboðsvinum þakklát fyrir gjafir “til nauð- staddra manna i Kína”. 1 vor hjálpuðum við á annað hundrað manns um matbjörg. En á slík- um vandræðatímum er eins og sérhver tilraun til að hjálpa op- inberi að eins vanmátt manna og getuleysi. Og því kvíðum við .mest, er við hverfum til Teng- chow að hausti, að horfa upp á öll þessi bágindi — en aðgerðar- laus. .t. Laohokow, Hupeh, China. 100. maí 1931. Ólafur ólafsson. —Bjarmi. Athygli Eg hefi fengið bréf frá Shelvin- Clarke Company, Fort Frances, Ont., sem tilkynnir mér dauða Björns Bjarnasonar, líklega ætt- aðs úr Fáskrúðsfirði. Hafði hann dáið af slysi 4. febrúar s.l. í Flanders, Ont. Bréfið getur um, að í Winnipeg muni vera kona, sem sé ættingi hans eða að ein- hverju leyti vensluð honum. —■ Vill nú sú hin sama gera svo vel og hafa tal af mér; eða hver sá annar, sem kynni að hafa þekt þennan dána mann. A. C. Johnson, Danish Consul. Helnótt Húmskuggar — höfug er nótt, hálf-máni veður í skýjum. Grjótlagðar götur eg treð, grámúrutm stórborgar hjá. Annar var ágúst í dag! Annála-skáldin að kveða. Skrítið var — skáldunum brást skýring á komandi nótt. Heimsbörnin sigrar oft svefn, sælt er þá urnvefja.st myrkri. Dauða manns bróðurhönd býr byr — unz að lífsaflið þver. Lífið er líðandi stund — líðandi til þess að deyja! Dauðinn er drotnari alls, dauðanum lífið er háð. Sofa und sandi og mold sókndjarfir víkinga niðjar. Endur fyr glímdu við grjót, götu sér ruddu í skóg. Næðisrík náttmyrkurs hönd nöfn þeirra og afreksverk hylur. Þannig er “feðranna frægð 'fallin í gleymsku og dá.” 'Vestur um holskeflur hafs hingað í draumsælda ríki, sigldu þeir, feðumir, fyr, fullhugar sannir að dáð. Bjuggu að þroskun 0g þrótt; þúsund ár kjarnaríkt skópu reynslu-bil — þjóðtungan þá þýð eins og ljúfraddir vors. Nýbygðin vestræna var veglegust nýbygð á jörðu. Framhald hins forn-helga alls, fóstrað hjá íslenzkri þjóð. Ungir við ólumst við mátt íslenzkra sagna og ljóða. Stigum fram, strengdum því heit Stefnufast sigla þau mið. Gæfu og atgerfi oft ófús er samleið í heimi. Islendinugseðlið er breytt, ættartrygð varpað á bál. Ungþjóðin annað mál kýs, íslenzkan förlast og glatast. Margur, sem mentaður telst, mál hans er verra en dautt. Þannig frá Gizur og Geir, Gunnari, Njáli 0g Snorra, hrakin er helfararleið, hollmenning norræn — og frónsk! Saga nú grafin og gleymd. Geggjun 0g verzlunaræði útrýma ljóðum 0g list, ljós þau að eilífu slökt. Annar var ágúst í dag! Annála-skáldin að kveða. Skrítið var — skáldunum brást skýring á komandi nótt. O. T. Johnson.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.