Lögberg - 14.07.1932, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FImiGDAGINN 14. JÚLÍ 1932.
Bls. 3.
Sólskin
Sérstök deild í blaðinu
Fyrir börn og unglinga
VORIÐ.
Bjargar vonin blíð,
blessuð vorsins 'tíð!
Kom þú sæl! Þig sendi guð af hæðum.
Vík þú vetri braut.
Verm þú foldar skaut.
Krýn þú lífið sönnum sumargæðum.—Br.J.
LITLI KROPPINBAKUR.
Eftir Henri Conti.
Það var nærri komið kveld. Gráu skugg-
arnir voru smám saman að lengjast, en
stjömurnar blikuðu eins og einhver ósýnileg
risahönd hefði stráð út gulleningum. Loft-
blærinn var unaðslega mildur. Undir trjá-
röðinni með fram Marceari-srtæti voru tveir
ungir elskendur á gangi. Þau ganga hlið við
lilið, leiðast, ganga ofur hægt tala brosandi,
með viðkvæmnis-glampa í augum sér og
blíðmæli á vörum.
Læknirinn nafnfrægi, Claude Oharlin, stóð
á loftsvölunum á húsi sínu, studdist við oln-
boga og mændi á eftir þessum ungu elskend-
um. En fljótt verður hann hugsi og angur-
vær ,eins og sýn þessi taki á bann. Hann
bítur saman vörunum og augun eru döpur og
dreymandi í rökkurskímnni. Ó, aldrei hefir
hann þekt. þennan barnslega, ákafa fögnuð
ástarinnar! Aldrei hefir ástmey gengið við
hlið honum, því hinn nafnfrægi Claude Char-
lin er náttúrunni til smánar; hann er dverg-
vaxinn kroppinbakur..
Líf hans var fyrst stöðugt píslarvætti, svo
hvíldarlaust erfiði. 1 fæðingarþorpi sínu var
hann eins konar óhamingjubarn. Fæðing
hans kostaði móður hans lífð. Hann var
veimiltítulegur, — vanþrifa úrhrak bræðra
sinna, sem atyrtu ba.nn og misþyrmdu hon-
um. Það var eins og daggardropi félli á
hjarta hans, svo glaður varð hann, daginn,
er presturinn, sem tekið hafði að sér að menta
hann, lét hann vita, að prófið hefði hepnast
og að liann hefði verið tekinn inn í skólann
sem nýsveinn. Vesalings einmana dreng-
hnokkinn fyltist svo barnslegum fögnuði, að
bann hélt, að í skóla myndi einstæðingsskap-
ur hans hætta. Hann ímyndaði sér, að liann
myndi eignast einhvem lagsbróður og lifa
nýju lífi, þegar einhver væri til að taka þátt í
sorg lians og gleði. Þessi unaðslega tilhugsun
var bóla, sem braát um leið og grimmúðugur
veruleiki skólalífsins birtist honum. Skóla-
bræður hans voru auðugir piltar, sterkir, vel
vaxnir drengir, og hann vesalings - strák-
hnokki, bóndasnáði með kryppu í baki, sem
allir gerðu sér að skyldu að setjast á. Hve
oft litli nýsveinninn grét í rúminu sínu í
svefnskálanum, — lá á grúfu, og bældi vitin
niður í koddann, til að kæfa. gráthljóðið. Hve
mikið hann myndi bafa gefið á þessum ó-
skaplegu einstæðingsdögum til þess að eiga
móður, — að fá að hvíla í faðm hennar, taka
í bönd lienni, heyra blíðmálu röddina hennar
bera fram nafnið hans — nafnið hans, sem
nú hafði orðið að víkja fyrir auknefninu
“dvergur ” og hrópað var eftir honum af
skólabræðrum og götustrákum.
Loks var skólakvölunum lokið, eftir níu ár.
Claude var nálega tvítugur!
Tvítugur! Þá er tími ástanna. En liann
átti ekki kost á öðru, vesalingur, en fáeinum
dagdraumum. Yndislegar voru þær flögr-
andi ummyndunarstundir, þegar einstæðing-
urinn varð að karlmanni, — kallaði hrnia
fram eins og með einhverjum töfrum, sá
hana með hálflokuðum augunum, fagra,
skáldlega, góða, eins og álfiadrotningu. Hann
lót draumin fá fult vald á sér og heit við-
kva'mis-bvlgja fylti huga hans. Yndislegt
var það, að verða þessa var, þó afturkast til-
finningarinnar yrði nokkuð sárt, þegar
draumurinn breyttist í veruleika.
En nú var langt síðan, er þessar sýnr,
þessi fiðrildi æskunnar höfðu flogið á braut.
Claude Cliarlin er nú fertugur; hann er al-
vörumaður og reynir ekki framar að leita
undanhalds frá veruleikanum inn í heim
sjónhverfinganna. Hann hefir vaðið út í
annríkið með öllum sínum hæfileikum og öll-
um sínum þrótti, eins og sumir nýir liðs-
menn vaða út á orustur í því skyni annað-
hvort að öðlast eilífa hvíld eða verða frægir
menn. Nú er kryplingurinn kominn út úr
orustunni með frægðina. Hann er orðinn
nafntogaður maður. Hann er orðinn stór-
mennið Charlin. Þegar hann fer um stræt-
in, heyrir hann nafn sitt nefnt með alvöru-
blæ og menn þagna við lítið ei'tt, þegar þeir
liafa nefnt hann, með þeim hætti er talað um
fræga menn.
Er öll hamingjan í þessu fólgin? Fáeinum
tilslökunum við metnaðarliug mannanna?
Vitaskuld hefir hann næma og innilega á-
nægju af starfi sínu, uppgötvunum sínum,
aðdáanlegum skýringum sínum, en stundum
er heilinn þreyttur. Það er Protevs-hugur-
inn einn, sem stöðugt fær fögnuð sinn endur-
nýjaðan. En eru kryplingar með nokkurt til-
finninga-tildur? Blessaður vertu, Claude
Charlin, þú ert orðinn mikill maður og það
ætti að vera þér nóg. Eini föguðurinn, sem
áhyggjufull sál þín getur veitt viðtöku, er sá,
að finna sjálfan sig lyftast upp einstöku sinn-
um, þegar ein hver móðirin itekur í hendina á
þér við rúmið barnsins hennar; þú liefir
bjiargað því úr dauðans greipum, — og hún_
kyssir á hendina á þér og þú finnur hlýjuna
aukast við það, að tár kemur á höndina. Blæði
hjarta þínu eins og í æsku, finnur þú ein-
hverja mikla auðn í huga þfnum — gott og vel,
þá lýkur þú upp þessum stóru bókum í ein-
hverju horni í bókhlöðu þinni og fer lað vinna.
Þetta varð úr draumunum og og svona leið
rökkrið.
II.
“Nei, læknir, eg hefi ekki hug til að segja
henni það. Gerið þér það fyrir mig, að segja
henni það sjáifur. Blessað bamið mitt!
Þér vitið það með vissu, alveg með vissu, að
hún verður alt áf fötluð? —”
“Því miður, eg veit það alveg með vissu,
frú mín góð. Eins og eg sagði ýður, er eng-
in hætta á, að nauðsVn beri til þess að taka
fótinn af. En þó ekki sé gert annað en það,
sem gera varð í gær, verður dóttir yðar æfin-
lega hölt.”
Þetta var áköf hugraun fyrir móðurina, en
hún stilti sig tafarlaust, fór með lækninum
og lét ekki á því bera, að henni væri neitt
órótt. -
“ Jæja, hvernig líður okkur þá í dag, ung-
frú góð,” sagði Claude. Málrómurinn var
föðurlegur, alvarlegur og örfandi, eins og
læknum og prestum er títt, þegar þeir tala
við sjúklinga.
“Mér líður bærilega rétt sem stendur, en
kvölin kom aftur í morgun og var æði-sár,”
madt* stúlkan. Hún reyndi að brosa ástúð-
lega, en hemii veitti það örðugt.
“Einmitt það! Nú skulum við sjá, hvern-
ig það hefst við,” sagði Claude og lyfti upp
jaðrinum rekkjuvoðinni. Hann fór þegar
'að losa umbúðirnar af vinstra fætinum með
mestu varúð og var lengi að skoða sárið,
hvesti á það augun, hnyklaði brýmar og not-
aði sárakannann. “Einmitt það!” sagði
liann alvarlega og hristi höfuðið.
A snöggri breytingu, sem varð á rómlag-
inu, varð stúlkan þess áskynja, að slæm tíð-
indi væri á ferðinni; hún einblíndi á lækninn
með viðkvæmni og óróleik, er sýndi, að hún
þráði að komast að sannleikanum.
“Ójá, það er meir en lítið alvarlegt,” svar-
aði Charlin þessari þögulu spurning; liann
las út úr henni hugrekki og þolgæði.
“En, en —” stamaði stúlkan og varð alt í
einu náföl; “ þér ætlið ékki að taka liann af ?”
“Ónei, nei! En—”
“Eg verð líklega æfinlega hölt?”
Móðirin snökti, þar sem hún stóð við fóta-
gaflinn á rúminu. Stúlkan skildi; tár hneig
niður kinnar hennar.
“Aumingja Louise!” sagði móðirin, og
tók liönd barnsins og beygði sig niður til að
kyssa hana á ennið og dylja tárin.
“Vert þú ekki sorgbi'tin, móðir mín, eg
ætla að biðja þig þess! Ef eg vei’ð liölt, má
eg þess oftar til að grípa í bandlegginn á
þér og með því móti verð eg hjarta þínu
nær. ’ ’
Þetta var mælt af ósíngirni svo mikilli og
viðkvæmni, að Oharlin gat ekki annað en
komist við. Hve tilfinninganæm hún hlýtur
að vera, þessi stúlka, og hve göfugt lijarta-
lag hún má hafa, til að geta glejmit svona
eígin sorgum sínum og sýnt öðrum svo mik-
ið ástríki! Það varð djúp þögn fáein augna-
blik. Þessar tvær konur fengu engu orði kom-
ið upp og Charlin komst jafnvel í mikla
geðshræring. Hann sagði við móðurina um
íeið og hann stóð á fætur til að fara:
“Nú þarf mín ekki lengur við, frú mín
góð. Samt ætla eg með leyfi yðar að koma
við og við til þess að vita, hvemig þessari
ungu sitúlku líður.”
Móðirin misskildi hvað átt var við með
þessum orðum, stóð liikandi og óttaðist háa
skuldareikninginn, sem lieimsóknir hans
myndu hafa í för með sér; þá sagði liann:
“Eg bið um þessa greiðvikni einsogvin-
ur; eg hefi valdið nógum sársauka, eins og
læknir. ”
(Niðurl. næst.)
Þórarinn Stefánsson
frá Árnanesi, 4 Hornafirði, í Aust-
ur-Skaftafellssýslu. — Dáinn að
heimili sínu í Framnesbygð í
Nýja íslandi, þ. 29. júní 1932.
Þórarinn sál. Stefánsson var
fæddur í Hvammi, í Lóni, í Aust-
ur-Skaftafellssýslu, þ. 5. febrúar
1853. Foreldrar hans voru Stef-
án Jónsson og Anna Sigurðar-
dóttir, kona hans, þá búandi hjón
í Hvammi.
Til átta ára aldurs dvaldi Þór-
arinn hjá foreldrum sínum, en
var þá tekinn til fósturs af móð-
urbróður sínum!, Páli Þórarins-
syni, bónda í Árnanesi, og var
hann með honum til fullorðins-
aldurs.
Hálfbróðir Þórarins, og eldri
en hann, var Halldór Stefánsson,
faðir Jóns Hall í Winnipeg. Var
hann í mörg ár til heimilis hjá
Þórarni bróður sínum og andað-
ist þar fyrir tæpum tveim árum.
Alsystkini Þórarins voru Guð-
mundur, Margrét, Sigríður, Guð-
ný og Sigurður. Að eins eitt af
þeim, Si'gríður, kom vestur um
haf. Hún andaðist í Engey, í
grend við Mikley í Winnipeg-
vatni, fyrir mörgum árum. Hin
systkinin urðu öll eftir á íslandi.
Sigurður dó kornungur maður.
Guðmundur og Guðný bæði látin
á íslandi. Margrét er enn á lífi,
að því er ættingjar hennar bezt
vita.
Ekkja Þórarins sál. Stefáns-
sonar er Steinunn Jónsdóttir, ætt-
uð úr öræfum, frábær myndar-
kona og dugnaðar. Þau giftust
árið 1887. Bjuggu þau hjón í sex
ár á íslandi, en fluttu svo vestur
um haf árið 1893.
Þau Þórarinn og Steinunn námu
land í ísafoldarbygð, fyrir norð-
an íslendingafljót, og bjuggu þar
fram yfir aldamót, eða þar til þau
og aðrir urðu að flýja þaðan sök-
um hækkunar Winnipegvatns, er
þá flæddi yfir öll lönd þar. Færðu
þau hjón þá bústað sinn vestur í
Framnesbygð, í 'Nlýja íslandi, eri
þá var sem óðast að byggjast.
Hafa þau búið þar jafnan síðan.
Börn þeirra Þórarins o!g Stein-
unnar eru þessi:
(1) Páll, ógiftur heima í föð-
urgarði. Hefir verið stoð og
stytta foreldra sinna á efri árum
þeirra, dugnaðar maður og ágæt-
is drengur.
(2) Vjlborg, kona Þorsteins
Einarssonar, í Winnipeg. Hann
er bróðir Stefáns Einarssonar, rit-
stjóra Hkr., og þeirra systkina.
(3) Guðjón, bóndi í Víðirbygð.
Á fyrir konu Guðrúnu dóttur Þór-
arins Kristjánssonar, fyrrum
bónda þar í bygð.
(4) Anna, hjúkrunarkona, ógift,
hefir verið ýmist við hjúkrunar-
störf í Winnipeg og víðar, eða þá
heima hjá foreldrum sínum.
(5) i Guðrún Lovísa. Hún er fóst-
urdóttir þeirra Mr. og Mrs. R.
Bergsson í Winnipeg.
(6) Stefán, heima 1 föðurgarði.
Fósturbörn þeirra Þórarins og
Steinunnar, eru Steinunn Guð-
mundsdóttir, kona Eymundar Dan-
íelssonar, bónda í Framnesbygð,
og Guðlaugur Kristjánsson, ungur
maður, er að þessu hefir að mestu
verið heima með fósturforeldr-
um sínum.
öll eru börn þeirra Þórarins o'g
Steinunnar ágætis fólk. Hafa
enda fengið afbragðs gott upp-
eldi. Sama má segja um fóstur-
börnin.
Þórarinn Stefánsson var maður
stór vexti og hefir víst á yngri
árum verið mikill þrekmaður og
dugnaðar. Um langt skeið á efri
árum sínum átti hann við heilsu-
lasleik að stríða, er ágerðist ár
frá ári í seinni tíð. Voru miklar
lækningatilraunir 'gerðar, en gekk
erfitt að fá nokkurn verulegan
bata. Umkvartanir heyrðust þó
ekki að jafnaði, og bar Þórarinn
sál. heilsulasleik sinn, er sífelt
varð alvarlegri, með hinni mestu
stilling og prýði.
Ekki er það ofsögum sagt, að
Þórarinn Stefánsson var hinn
mesti sæmdarmaður. Hann var
hið einstakasta valmenni. Frá-
bærlega prúður maður í allri
framgöngu og viðkynning. Kom
alstaðar fram til góðs. Andlits-
svipur hans var undur bjartur og
góðmannlegur. Bar hann það að,-
alsmerki hvar sem hann sázt. Gat
engum dulist, að þarna var krist-
inn sæmdarmaður, er bæði var
heill í trú sinni og háttum.
Um greind Þórarins og hvað
hann hafði lesið, vissu aðeins ör-
fáir menn, þeir sem voru honum
allra handgengnastir. Aðrir höfðu
ekki af því að segja.
Jarðarför Þórarins Stefánsson-
ar fór fram þ. 4. júlí, fyrst með
húskveðju á heimilinu og svo með
útfararathöfn í kirkju Árdals-
safnaðar. Fjöldi fólks þar við-
statt, auk ekkju hans, barna
þeirra, tengdafólks, ættingja og
nánustu vina.
Tveir prestar þar viðstaddir,
séra Sigurður Ólafsson, heima-
prestur, og sá er línur þessar rit-
ar, er talaði í kirkjunni.
Minning hins látna, göfuga
manns, verður langlíf og öllum
kær, sem fengið höfðu að kynnast
honum um æfina.
Jóhann Bjarnason.
PROFCSSIONAL CARON
DR. B. J. BRANDSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone 21 834 — Office timar 2-3
Heimili 770 VICTOR ST.
Phone 27 122
Winnipeg, Manitoba
DR. L. A. SIGURDSON H. A. BERGMAN, K.C.
216-220 Medical Arts Bldg. íslenzkur lögfrœðingur
Phone 21834 Skrifstofa: Room 811 McArthur
Office tímar 2-4 Building, Portage Ave.
'Heimili: 104 HOME ST. Phone 72 409 P.O. Box 1656 PHONES 26 849 og 26 840
DR. O. B. BJORNSON Drs. H. R. & H. W.
216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834 — Office tímar 2-3 Heimili 764 VICTOR ST. Phone 27 586 Winnipeg, Manitoba TWEED Tannlæknar 406 TÖRONTO GENERAL TRUST BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth St. PHONE 26 545 WINNIPEG
DR. B. H. OLSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Dr. A. B. Ingimundson Tannlœknir
Phone 21 834 —Office timar 3-5 Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba 602 MEDICAL ARTS. BLDG. Simi 22 296 Heimilis 46 054
DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21834 DR. A. V. JOHNSON tslenzkur Tannlæknir
Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er að hitta kl. 10-12 f. h. of 2-5 e. h. 212 CURRY BLDG., WINNIPEG Gegnt pósthúsinu
Heimili: 373 RIVER AVE. Talsimi 4 2 691 Sími 23 742 Heimilis 33 328
W. J. LINDAL, K.C. og
BJORN STEFANSSON
Islenzkir lögfrœðingar
325 MAIN ST. (á ööru gólfi)
Talslmi 24 963
Hafa einnig skrifstofur aC Lundar
og Gimli og er þar að hitta fyrsta
miðvikudag i hverjum mánuði.
J. T. THORSON, K.C.
Islenzkur lögfræðingur
Skrifst. 411 PARIS BUILDING
Phone 24 471
J. RAGNAR JOHNSON
B.A., LL.B., LL.M. (Harv).
íslenzkur lögmaður
606 Electric Railway Chambers
Winnipeg, Canada
Simi 23 082 Heimasími 71 763
Dr. P. H. T. Thorlakson
205 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phones 21 213—21 144
Heimili 403 675
Winnípeg, Man.
A. S. BARDAL
848 SHERBROOKE ST.
Selur likkistur og annast um út-
farir. Allur útbönaður sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talsimi: 86 607
Heimilis talsimi 58 302
G. S. THORVALDSON
B.A, LL.B.
Lögfrœðingur
Skrifst.: 702 CONFEDERATION
LIFE BUILDING
Main St., gegnt City Hall
Phone 24 587
DR. A. BLONDAL 602 Medical Arts Building Stundar sérstaklega kvenna og barna sjúkdóma. Er að hitta frá kl. 10-12 f. h. og 3-5 e. h. Office Phone 22 296 Heimill: 806 VICTOR ST. Simi 28 180 A. C. JOHNSON 9 07 Confederation Life Bldg. Winnipeg Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyrgð og bif- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 24 263—Heimas. 33 328 E. G. Baldwinson, LL.B. tslenzkur lögfrœðingur 808 PARIS BLDG., WINNIPEG Residence Office Phone 24 206 Phone 89 991
Dr. S. J. Johannesson G. W. MAGNUSSON J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
stundar iækningar og yfirsetur Nuddlœknir 601 PARIS BLDG., WINNIPEG
Til viðtals kl. 11 f. h. til 4 e. h. 41 FURBY STREET Fasteignasalar. Leigja hús. Út-
og frá kl. 6-8 að kveldinu Phone 36137 vega peningalán og eldsábyrgð af
öllu tagi.
532 SHERBURN ST.-Sími 30 877 Símið og semjið um samtalstima Phone 26 349