Lögberg - 19.10.1933, Blaðsíða 1
46. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 19. CCT. 1933
NÚMER 42
Mynd þessi er af Rt. Hon. R. B. Bennett, forsætisráðgjafa CanT
ada, þar sem hann er a'Ö kveSja Mr. William Benidickson, forseta
stúdentasambands Manitoba háskólans, að aflokinni ræðu þeirri,
er hann flutti fyrir stúdentum. Mr. Benidickson, er íslenzkur i
aSra ætt, sonur Mr. Kristjáns Benediktssonar aS 311 Baltimore
Road hér í borginni.
Ur bænum
Viðsjár í Norðurálfunni
Vopnatakmörkunarstefnan í Geneva, hefir sig’lt skipi
sínu í strand, að minsta kosti í bráðina. Krafa Þjóðverja
um jafnrétti í vígbúnaði fékk ekki byr. Hafa þeir nú
kvat't heim þaðan fulltrúa sína og hótað að segja sig úr
Þjóðabandalaginu.
Hitler ríkiskanzlari hefir efnt til nýrra kosninga, er
fram fara þann 12. nóvember næstkomandi. Utanríkis-
ráðgjafi Þjóðverja skellir skuldinni á Breta og Frakka
út af því í hvert óefni sé komið, en lýkur lofsorði á miðl-
unartilraunir ítalíu og Bandaríkjanna.
Uppvíst hefir orðið um Nazista samsau'i í Austur-
ríki, er í þá átt gekk, að lirinda núverandi stjórn af stóli.
ATHYGL,I skal hér meÖ dregin
aÖ auglýsingunni, sem nú birtist hér
í blaðinu, um fyrirlestur þann Um
íslenzkt þjóðlíf, er Dr. Björn B.
Jónsson -flytur í Fyrstu lútersku
kirkju á þriðjudagskvöldið þann 24.
þessa mánaðar. Umtalsefnið er oss
Vestur-íslendingum kærkomið, og
um meðferð þarf heldur ekki að ef-
ast, þar sem jafn snjall og glögg-
skygn maður á í hlut, sem Dr. Björn
er. Verður þarna þvi um óvenjulegt
tækifæri að ræða, til þess að afla
sér þekkingar á nútímalífi hinnar
íslenzku þjóðar.
Auk fyrirlestursins, skemta með
söng og hljóofæraslætti þeir Paul
bæjarfulltrúi Bardal og Frank
Thorolfson, pianokennari.
Að samkomuhaldi þessu stendur
karlaklúbbur Fyrstu lútersku kirkju.
Samkoma sú, er júnior Ladies’
Aid Fyrstu lútersku kirkju efndi til
í samkomusal kirkjunnar, þann 11.
þ. m., í tilefni af þakkarhátíðinni,
var afarfjölsótt og fór hið bezta
fram. Samkomunni stýrði prestur
safnaðarins, Dr. Björn B. Jónsson.
Máltíð sú, er félag þetta reiddi
fram var hin ágætasta, og skemti-
skrá góð. Með einsöng skemti Mrs.
D. G. Edmond, en með fiðluspili
Miss Pearl Pálmason og tókst henni
snildarlega meðferð hlutverka sinna.
Mrs. B. H. Olson og Miss Snjólaug
Sigurðsson, léku meðspilin. Rev.
Kerr, prestur Augustine kirkjunnar
flutti langt og fróðlegt erindi um
Cape Breton, og sýndi fjölda mynda
af staðháttum og atvinnuvegum á
þessari einkennilegu ey.
Messur í Gimli prestakalli sunnu-
daginn þ. 29. október eru fyrirhug-
aðar sem hér segir: Morgunmessa
í gamalmennaheimilinu Betel kl.
9.30 f. h. í kirkju Árnessafnaðar
síðdegis messa, kl. 2 e. h., og kvöld-
messa í kirkju Gimli safnaðar, kl.
7 e. h.— Séra Jóhann Bjarnason
prédikar. Til þess er mælst, að fólk
f jölmenni.—
Meðlimir Fyrsta lúterska safn-
aSar eru beðnir að hafa það hugfast
að fjárhagsár safnaðarins endar 31.
október, og eru menn vinsamlega
beðnir um að koma tillögum sínum
til fulltrúanna við fyrsta tækifæri.
Séra Jóhann Bjarnason messar
væntanlega í kirkju Mikleyjarsafrr-
aðar næsta sunnudag, þ. 22. okt., kl.
2 e. h.—Fólk þar er rnint á aö láta
sem flesta á Mikley vita um þetta
og að fjölmenna við messuna.
Undirbúningnum að kveðjuhljóm-
leikum Brynjólfs Þorlákssonar skil-
ar vel áfram. Verður ekkert það
látið ógert, er auka má á blæbrigði
þeirra. Skýrt verður nánar frá allri
tilhögun í næsta blaði.
Mr. Gunnlaugur Thorvardson,
Mr. J. Leo Samson og Miss Sam-
son frá Akra, N. Dak., voru stödd í
borginni um síðustu helgi.
The Falcon Athletic Club Gym-
nasium is now open every Monday
night at 8.00 p.m. at the I.O.G.T.
Hall, Sargent Ave. All prospective
juvenile, junior and senior hockey
players are invited to attend.
Hátíð á Mountain
Þriðjudaginn 10. okt., að kveldi,
var merkileg hátíð haldin í sam-
komuhúsinu á Mountain. Var það
fimtíu ára afmæli kvenfélagsins á
Mountain, sem og var að því er eg
bezt veit afmæli fyrsta félagsins er
stofnað var af íslenzkum konum í
Ameriku. Enn eru á lífi 9 af stofn-
endum félagsins. Var þeim öllum
boðiö að vera heiðursgestir á sam-
komunni. Auk þess bauð kvenfé-
lagið elzta núlifandi syni eða dóttur
hvers stofnenda, sem látinn er, að
vera heiðursgestur félagsins þar.
Nokkrum fleirum, sem sérstaklega
komu við sögu félagsins og bygðar-
innar fyrri árin, var einnig sérstak-
lega boðið, þar á meðal séra H. B.
Thorgrimsen og frú hans, því hann
var prestur í bygðinni þá er félagið
var stofnað.
Af þeim er boðið var að vera þar
heiðursgestir, gátu þó engir utan-
bygðar sótt mótið nema séra H. B.
Thorgrimsen. En. flestir hér úr
bygðinni íslenzku í Pembinasveit
komu, nema þeir, sem ekki voru til
þess nógu heilsusterkir. Ekki nema
tvær úr hópi stofnenda, gátu sótt
mótið, þær Svanfríður Kristjáns-
son og Kristín Kráksson.
Samkoman byrjaði með þvi að
öllum var veittur kveldverður, og
hófst máltíðin um kl. 6.30. Munu
nærfelt 400 manns hafa sótt mótið,
svo það tók talsvert lengi að veita
öllum sem aö garði komu, og pró-
gram byrjaði því ekki fyr en kl.
nærri 10 e. h., utan þess að hin unga
hljóðfærasveit hér á Mountain spil-
aði lengi með aðstoð Miss Corneliu
Olafson, meðan á máltíðinni stóð.
Séra H. Sigmar var forsetí sam-
komunnar og setti hana með sálma-
söng og bæn. Flutti hann siðan inn-
gangserindi þar sem hann mintist
hins ágæta starfs frumherjanna og
hvatti kynslóðina, sem nú er uppi,
að starfa af sama dugnaði, sama
kærleik og sömu trú sem hinar
merku konur er stofnuöu félag þetta
í fyrndinni. Las hann nöfn stofn-
endanna, og fyrstu fundargerð fé-
lagsins. Bað hann svo alla að rísa
úr sætum hægt og hljóðlega til þess
að heiðra minning stofnendanna
Ræður voru fluttar af séra H. B.
Thorgrimsen, Kristbjörgu Krist-
jánsson, Sesselíu Eyolfson og J. J.
Myres. Einsöngva sungu þau séra
H. B. Thorgrimsen og Mrs. 'B.
Miss Anna Gríinsson, A.T.C.M.
Þessi unga súlka er dóttir þeira
Mr. og Mrs. Guðmundur Grímsson
að Mozurt, Sask. Lauk hún i vor
sem leið kennaraprófi í píanóspili
með lofsamlegum vitnisburði við
Toronto Conservatory of Music.
Nám sitt stundaði Miss Grímsson
hjá frú Björgu Tsfeld.
Johnson, svo voru og sungnir nokkr- |
ir söngvar af öllum. K. N. Júlíus |
flutti kvæði, einnig las forseti kvæði
eftir séra N. S. Thorláksson, er
hann hafði sent félaginu; hafði hon-
um, ásamt frú hans, verið boðið að
vera heiðursgestur á samkomunni,
en sökum fjarlægðar gátu þau ekki
komið. Mörg kveðjuskeyti frá þeim
er hafði verið boðið að koma, v«ru
einnig lesin.
Er prógramið var að enda var of-
inn inn í það nokkur aukaþáttur,
sem var þess efnis að óska séra H.
B. Thorgrimsen lukku og blessunar
í sambandi við áttræðisafmæli hans.
Talaði þá forseti samkomunnar
nokkur orð til hans og einnig þeir
Tryggvi Anderson og Thos. Hall-
dórsson. Líka talaði þá dómari G.
Grímson nokkur orð. Hafði hann
borið að garði er samkoman var
byrjuð*. Voru séra Hans afhentar
minningargjafir af forsetanum, frá
ýmsum vinum innan safnaðá bygð-
arinnar. Þakkaði hann með stuttri
ræðu. Var svo sungið af öllum:
“Allir heilir unz vér sjáumst næst.”
Síðan var samkomunni slitið með
þjóösöngvunum Eldgamla ísafold
og My Country ’Tis of Thee.
Fanst öllum viðstöddum þetta
hafa verið merkisviðburður mjög
ánægjulegur og hrífandi og var
starfs hinna dyggu.og duglegu land-
námskvenna að verðugu loflega
minst, og Þórdísar sál. Björnson,
sem gekst fyrir stofnun kvenfélags-
ins, og allra stofnenda þess sérstak-
lega minst. Þóttu ræðurnar og
kvæðin og söngvarnir takast ágæt-
lega, og vopu þó ekki síst lofaðar
ræður þeirra tveggja kvenna er töl-
uðu að þessu sinni. Þótti það líka
vel eiga við að þær tóku til máls á
þessari samkomu.
Mun viðburður þessi lengi geym-
ast í minningu fólksins.
H. S.
Hærri vinnulaun
William Green, forseti verka-
manna sambandsins ameríska, tjáist
þess fullviss, að laun verkamanna i
Bandaríkjunum, verði hækkuð til
muna áður en langt um líður. Ber
hann fyrir sig ummæli verkamála-
ráðgjafa Roosevelt-stjórnarinnar,
Miss Perkins, á nýafstöðnu ársþingi
sambandsins, er í þá átt hnigu, að
stjórnin teldi ákvæðin um lágtnark
vinnulauna í hinum nýju viðreisnar-
lögum, hvergi nærri fullnægjandi,
þó með þeim væri að visu stigið
stórt spor í rétta átt.
\
Hon. J. D. Stewart ládnn
Á þriðjudaginn þann 10. þ. m.,
lézt að heimili sínu i Charlottetown,
Hon. James David Stewart, forsæt-
isráðgjafi á Prince Edward Island,
fimtiu og niu ára að aldri. Hafði
hann átt við strangan sjúkdóm að
stríða um alllangt skeið.
Mr. Stewart, setn leiðtogi ihalds-
flokksins, gegndi tvisvar sinnum for-
sætisráðgjafaembætti á Prince Ed-
ward Island. Tók hann fyrst við
völdum í septembermánuði öndverð-
um, árið 1923, en í kosningum 1927
beið flokkur hans átakanlegan ósig-
ur. En um sumariö 1931 urðu í-
haldsmenn ofan á í kosningum, og
var Mr. Stewart þá kjörinn til for-
sætisráðgjafa tignar. Mr. Stewart
þótti í hvívetna góður maður og
gegn, bæði sem stjórnmálamaður, og
þá ekki síður sem lögfræðingur.
Flugsamgöngur
Unnið er að þvi, að innan tveggja
ára verði búið að koma á reglu-
bundnum farþegaflugferðum milli
London og Siam, Hong-Kong,
Shanghai og Tokio. Undirbúningi
undir reglubundnar farþegaflug-
ferðir milli Bretlands og Ástralíu er
langt komið. Þær eiga að hefjast í
mars 1934. Indlands-endastöð á
flugleiðinni milli Bretlands og Ind-
lands er Kalkútta, en í lok þessa
mánaðar verður flugleiðin lengd til
Rangoon. I árslok verður búið að
koma á reglubundnum farþega flug-
ferðum frá London til Singapore.
Því næst tekur ástralska stjórnin að
sér flugferðirnar frá Singapore til
Port Darwin og Sidney. Flugvélar
þær, sem notaðar verða, geta flutt
20 farþega og flogið með 135 km.
hraða á klst. með alls 23 þús. punda
þunga.
íslenzkt drenglyndi
Mér voru sagðar fréttir nýlega,
sem eg tel þess verðar að þeirra sé
getið opinberlega. Eins og kunnugt
er, fara fram aukakosningar í Mac-
kenzie kjördæminu í Saskatchewan
næsta mánudag. Þar sækja fjórir
menn um kosningu, og er einn þeirra
Stubbs fyrverandi dómari, sem
mörgum Islendingum er að góðu
kunnur. I þessu kjördæmi er f jöldi
íslenzkra kjósenda.
Stubbs var nýlega sviftur embætti
af afturhaldsstjórninni í Ottawa.
W. L. McKenzie King, leiðtogi
frjálslynda flokksins lýsti því yfir
fyrir skömmu að hann væri alger-
lega andstæður þeirri aðferð, sem
til þess hefði verið beitt.
Öllum fréttum ber saman urn það
að nálega allir íslenzkir kjósendur í
kjördæminu séu með Stubbs.
Fréttirnar, sem eg átti við eru
þær að landi vor Jósef lögmaður
Thorson, K.C., hafi verið beðinn að
fara vestur i þeim erindum að reyna
að telja landanum hughvarf og snúa
honum frá Stubbs. En Thorson
neitaði. Sýndi hann með þessu svo
mikið drenglyndi og sjálfstæði að
íslendingar mega vera stoltir af.
Baráttan hefir verið svo grimmi-
leg og svo óhrein á móti Stubbs í
þessum kosningum að tæpast munu
dæmi til annars eins.
Það er öllum kunnugt hversu
hæfur og dugandi þingmaður
Stubbs er líklegur til að verða
og það ofurkapp, sem lagt er á að
fella hann, sýnir bezt hversu illa
auðvaldi og afturhaldi er við það að
fá hann á þing.
Þökk og heiður sé Thorson fyrir
drenglyndið. Vonandi að enginn
Islendingur finnist né fáist inn í
eltingaleikinn á móti Stubbs.
Sig. Júl. Jóhanncsson.
Voice of the Night
, Solveig Paulson.
Out in the woods at night time,
With the stars hanging bright and high,
I stirred in my sleep and listened
To the voice of the night’s low cry.
Mournful and mild and tender,
It came on a stirring breeze
And whispered among the bushes
And lifted through the trees.
“Hush, little creatures, and rest,
Husli, little hirds and fawn,
Rest in the dusky shadows,
You are safe till the break of dawn.
“You are safe from dogs and hunters,
IYom the cruel greed of men,
Rest now in the quiet darkness,
For morning brings fear again.”
I gazed at the twinkling heavens
And pondered the Maker’s plan,
I11 giving the fate of His creatures
Into the hands of man.
I pondered until I knew
With a knowledge sure and meek
That strength was only meant to be
Protection for the weak.
Úr tímaritinu “Our Dumb Animals,” Boston,
í október, 1933
MR. PAUL BARDAL
leitar endurkosningar í 2. kjördeild í bæjarstjórnina í Winnipeg.
íslendingar! styðjið hann til kosninga þegar þar að kemur.