Lögberg - 22.11.1934, Side 5

Lögberg - 22.11.1934, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. NÓYEMBElR, 1934. 5 —:-- “Sigurinn er venja hans.” Til borgarstjóra greiðið atkvæði með Bæjarfulltrúa Merkið þannig gagnvart nafni hans Kristniboðið og börnin Lesendur Ljósberans og einstöku barnafélög, hafa óskað eftir sér- stöku verkefni á meðal barnanna í Kína. Mig langar nú til aS lýsa því, sem viÖ þegar höfum komið í fram- kvæmd, en- sem mundi vera ógert að mestu leyti hefðu ekki fáein ís- lenzk börn neitað sér oft og einatt um sælgæti og skemtanir, af því þau elskuðu málefni Jesú Krists og létu aurana sína ganga til þess. Áður fyr, þegar við höfðum barnaskóla og i sambandi við þá barnaheimili, þótti okkur ánægju- legast að gefa með barni. En nú er okkur, sem erum útlendingar í þessu landi, bannað að kenna börnum, svo við urðum að segja upp öllum kenn- urunum og senda börnin frá okkur. Svo nú heyra ekki kínversk börn Jesú nafn nefnt í skólunum. En okkur hefir ekki verið bannað að hafa sunnudagaskóla. Fyrir pen- inga þessara góðu batyia á fslandi, höfum við keypt “ljósgeisla” og stórar sunnudagaskóla myndir frá Ameríku, og nú hefir okkur tekist að stofna sjö sunnudagaskóla. Kristnir Kínverjar hafa fengið hjá okkur æfingu’ i að kenna í sunnu- dagaskólunum, svo kensla fellur ekki niður sumar né vetur allan árs- ins hring. Af þeim börnum, sem ganga í sunnudagsskóla hér, er meiri hlutinn frá heiðnum heimil- um ; og svo fara foreldri sumra þess. ara barna að koma smám saman á samkomur okkar og guðsþjónustur. í vetur höfum við byrjað sér- staka deild fyrir fullorðna í sunnu- dagaskólunum, fólk, sem kom sjálf- krafa og sem við þessvegna urðum að gera eitthvað fyrir. Þannig hef- ir þetta blessast alt, og áhrifanna gætir víða. Á síðastliðnu sumri var haldið trúarbragðanámskeið fyrir börn hér á aðalstöðinni. 115 börn sóttu þettta námskeið, en okkur skorti húsakynni til að taka á móti fleir- um. Þetta námskeið stóð í mánuð, og voru allir hrifnir yfir hve vel það hefði lánast. Auðvitað voru sunnudagaskólabörnin duglegust og áhugasömustu nemendurnir þarna. —Á hinum stöðunum sex, þar sem við höfum sunnudagaskóla, er fyrir löngu búið að biðja um að fá svona námskeið haldið næsta sumar. Nú geta kínversku söfnuðirnir okkar stofnað^ barnaskóla, ef þeir hafa getu og nægan áhuga. En nú er fátt fólk og fátækt í flestum söfnuðunum; það þarf mikla pen- inga til að launa kennara og stofna skóla. Krisifniboðsfélagið útvegar húsnæði ókeypis; sömuleiðis erum við hjálplegir með að útvega kristna kennara, en við höfum enga peninga til þessara nota. Þó hefir nú tekist að stofna einn stúlknaskólla, með því að íslenzk börn borga tvo þriðju af launum kenslukonunnar. Um 20 stúlkur ganga í þenna skóla; engin þeirra hefir gengið í skóla áður; og það er íslenzkum börnum algjörlega að þakka, að þessum litlu kínversku systrum þeirra, gefst tækifæri til að læra að lesa, skrifa og reikna. En ef til vill verða þær þó þakklátastar fyrir að hafa lært að syngja um Jesús og biðja til hans, sem er barnavinurinn mesti. —í íslenzku blaði var einhver guðleysingi að hæðast að sunnu- dagaskólunum okkar, og gerði narr að börnunum, sem senda aura sína til Kína. Það skulum við ekki taka okkur nærri, heldur vorkenna þeim, sem ekki eru betur viti bornir. Menn hneiksluðust á Jesú sjálfum og gramdist við börnin þegar þau fögnuðu Jesú og hrópuðu : Hósanna Davíðs syni! En Jesús tók svari barnanna og ávítaði þá fyrir skiln- ingsleysi. Þegar Jesús sagði: Látið börnin koma til mín og bannið þeim það eigi! þá átti hann ekki aðeins við börn á Gyðingalandi, heldur einnig íslenzk börn, og kínversk og japönsk börn,—já, öll börn í víðri veröld. Því að slíkra er himnaríki. Með kærri kveðju. Ólafur Ólafsson, trúboði. Hæð yfir sjávarmál. Það er margvíslegt sem stærðfræðingarnir hafa fengist við að reikna út. M. a. hafa þeir reiknað það út, að ef yfir- borð jarðar, sem ekki er undir sjó, væri sléttað og gert jafnhátt, þá yrði hæð hverrar álfu yfir sjáfar- flöt eins og hér segir: Evrópa 300 m., Ástralía 360 m., Suður-Amerika 5^0 ni., Afríka 670 m., Norður- Ameríka 730 m., og Asía hæzt, um 940 m. » Greiðið atkvœði með FRED H. OAVIDSON fyrrum borgarstjóra sem bœjaríulltrúa fyrir 2. kjördeild Merkið við nafn hans v-í u kt* ■ * V, * » yt HALLDÓR ÁRNASON Fæddur io. maí, 1845 — Dáinn 19. júli 1934 Þann 19. júlí s. 1. andaðist öldungurinn Halldór Árnason að heimili sínu í Glenboro, Manitoba, eftir allangan lasleik, en rúmfastur var hann ekki lengi. Hann var fæddur að Krossa- stöðum í Hörgárdal í Eyjafjarðarsýslu 10. maí 1845, sonur hjónanna Árna Kristjánssonar og Margrétar Halldórsdóttur. Halldór ólst upp hjá foreldrum sínum og vandist snemma yinnu og sjálfstæðishugsun. Tuttugu og tveggja ára gekk hann að eiga Jóhönnu Sigurlaugu Jónsdóttur og bjuggu þau þar í Hörg- árdalnum um sextán ára bil, unz 1883, að þau fluttust búferl- um til Ameríku. Námu þau staðar fyrst i nýlendu íslendinga í Norður Dakota, nálægt Garðar. Vann Halldór þar fyrir sér og sínum á ýmsan hátt, unz eftir sjö ár að honum þótti full- reynt að hann gæti eignarjörð fengið í þeirri bygð, og flutti því til Argyle í Manitoba í Canada, og keypti þar bújörð; Rættist nú smátt og smátt það, sem hann hafði lengi þráð áÖ sitja sína eigin óðalsjörð, enda báru hér ávöxt andlegir og líkamlegir kraftar örvaðir af sjálfstæðisþrá; verður því líís- saga hans í þessari bygð sú, að byrja með tvær hendur tómar en starfa svo með hyggju og forsjálni að efri árunum þyrfti ekki að vera eytt í skugga fátæktar. Myndi mörgum án efa finnast seint koma tækifærið til sjálfstæðis er full fjörutíu og fimm ár voru gengin af æfinni, en Halldór var ungur lengi, og jafnan reiðubúinn að grípa tækifærin. I tuttugu og sex ár bjuggu þau á bújörð þessari og reyndist Halldór sannur bú- höldur í hvívetna. Árið 1916, þá sjötíu og eins árs að aldri, brá hann búi og settust nú hin öldnu hjón að í þorpinu Glenboro.. Þar, í kyrþey, liðu síðustu ár beggja. Kona Halldórs andaðist 23. apríl 1927, og eftir það beið hann lausnarinnar, þó þolin- móður. Nú vildi hann ekki flytja sig framar, nóg var flutt um æfina, og sú er tryggust hafði reynst í ölluum nær 50 ára skeið var horfin heim. Dóttur sinnar, Nönnu (Mrs. B. Sigurd- son) hafði hann séð á bak 1916, en Margrét (Mrs. H. H. Johnson) reyndist honum ástrík og fómfús dóttir til hins síðasta. Halldór var drengur góður, heill og heilsteyptur, trygglynd- ur og vinfastur. Orðheldni hafði hann tamið sér, en trúði ekki á skriffinsku skjalaþjóna; vildi helzt ekkert við manninn eiga, ef drenglund hans var ekki treystandi. Hann var fórnfús faðir og tilfinninganæmur gagnvart þeim er fátækt sótti að. Hafði sjálfur reynt hve harðhent lífið var. Hann var karl- menni að'burðum, mikill að vallarsýn, kjarkgóður og vonríkur, enda fékk ekki elli eða erfiði bugað hann, fyr en nær níu tugum ára var komið. Halldór sómir sér vel í hópi þeirra Islendinga, sem með kjarki, þrautseigju og bjargfastri trú á sigur, nema lönd alla sína æfi. Jarðarför Halldórs fór fram 20. júli 1934, og var lagður til hvíldar í Grundar grafreit. Orð St. G. Steph. anssonar mega vel merkja líf hans: Alt líf verður gegnt meðan hugur og hönd og hjarta er fært til að vinna. og gröfin er ljúf fyrir geiglausa önd og gott er að deyja til sinna. B. H. F. (Blöðin Norðanlands beðin að birta þessa æfiminning). Víkurkirkja Eins og getið hefir verið í Mbl. var hin nýja kirkja í Vík í Mýrdal vígð síðastl. sunnudag (14. okt.). Var þetta viðburður i kirkjumála- lífi þar eystra og einnig að ýmsu leyti i kirkjubyggingasögu þjóðar- innar. Kirkja þessi er bygð úr steini og stendur á svonefndu Skeri við Vík. urkauptún, háttgnæfandi á fögrum stað. Er hún nú fullgerð og er meðal veglegustu kirkjuhúsa i hér- uðum utan aðalkaupstaðanna hér á landi. Bygging kirkjunnar hefir staðið yfir i 4 ár (byrjaði 1931) og hefir yfirsmiður verið Matthías f Einarsson húsasmiður frá Þóris- holti. Að öllu er húsið hið vandað- asta, bæði að utan og innan; rúm- ast þar í sæti 200 manns að minsta kosti. Kirkjan er raflýst og einnig er rafhitunartækjum komið fyrir í henni. Uppkomin kostar kirkjan, með því öllu, er til hennar heyrir, ekki minna en 30 þús. kr. í Vík hefir eigi áður verið kirkju- hús, og myndaðist hinn nýi Víkur-, söfnuður fyrir nokkrum árum, með því að hinn gamli Reynissöfnuður i Mýrdal skiftist í tvent og varð Vík- urkauptún — með hinni fornu Höfðabrekkusókn, þar sem kirkja lagðist niður—kirkjusókn fyrir sig. Hjá þessum nýja söfnitði glæddist nú einstakur áhugi fyrir kirkju- byggingu á þessurn stað, og vildu margir, að því er segja má, alt til þess vinna, að hún kæmist upp sent fyrst og yrði sem reisulegust. Til kostnaðarins var tekið að láni alls kr. 10.000 eða þriðjungur aðeins. hinn hlutann, tvo þriðjunga, eða eigi tninna en kr. 20,000 lögðu einstakl- ingar í söfnuðinum til úr sinum vasa, bæði í peningum og vinnu (sem gjafir og áheit), og félags- skapur á staðnum, svo sem Spari- sjóðurinn í Vík, Kvenfélagið og rafveitan studdi fyrirtækið að stór- um mun (jafnvel burtfluttir Mýr- dælir hafa lagt dálitinn skerf til kirkjunnar eða muna i hana). í kirkjuna er komið nýtt orgel, fengið frá Svíþjóð, og er það hið vandaðasta. Örgahistastarfinu þjónar nú Sigurjón Kjartansson kaúpfélagsstjóri. — Prýðileg ný altaristafla er og til fengin, máluð af Brynjólfi Þórðarsyni listmálara. Áhuginn og fórnfýsin, ágætt og fágætt samstarf án alls flokkadrátt- ar, hefir einkent alt þetta verk frá byrjun,—og fyrir þær sakir hefir það haft farsællegan enda. Fyrir framkvæmdum öllum hafa staðið nokkrir áhugamenn í kaup- túfiinu, kjö‘rn|r af safnaðarfund- um, og skipuðu þeir kirkjunefnd, er svo hét, sem sé þessir; Gísli Sveinsson sýslumaður (f ormaður nefndarinnar), Einar Erlendsson bókari hjá Kaupfélagi Skaftfellinga (sem einnig er oddviti sóknarnefnd- ar), Ólafur J. Halldórsson kaup- maður (sem nú er látinn), Ólafur Tónsson bókari hjá verzl. Halld. Jónssonar, allir í Vík, og Þorst. Einarsson óðalsbóndi á Höfða- brekku.—Les. Mbl. 21. okt. Greiðið atkvæði með W.H. Milton sem skólaráðsmanni fyrir 2. kjördeild Greiðið honum forgangsatkvæði 1 Kriátján Ólafsson Fæddur 15. ágúst 1857 Dáinn 19. ágúst 1934. Nokkrir stærstu skipaskurðir í heiminum eru þessir: Súez-skurð- urinn ca. 161 km., Rielar-skurður- inn ca. 98,14 km., Panama-skurð- urinn ca. 80,50 km., Ellee-skurður- inn ca. 65,97 km-> Manchester- skurðurinn ca. 56,31 km., Welland- skurðurinn ca. 41,83 km., og Am- sterdam-skurðurinn ca. 26,55 l<m- Láglendi. Evrópa er láglendasta heimsálfan. 57% af yfirborði henn- ar er undir 200 metra hæð yfir sjáfarmál. Næst kemur Suður- Ameríka með 43%, Ástralía með 36%, Norður-Ameríka með 33%, Asfa með 26%. og Afríka rekur lestina með 15%., , Tíminn gerist stórhöggur í hóp frumherjanna vestur-íslenzku, mán- aðarlega; jafnvel vikulega, falla í valinn menn og konur," sem mestan og beztan þátt áttu í að leggja þann grunn, sem þetta þjóðfélagsbrot okkar Vestur-lslendinga stendur á, —menn, sem áttu sjálfstæði og drenglyndið íslenzka í ríkum mæli, menn, sem vildu heldur fara alls á mis, en gerast ölmusu þiggjendur, menn, sem elskuðu svo friðinn, að þeir vildu heldur bíða órétt og skaða, en skerða friðinn, menn hverra orð, eða jafnvel ádráttur til loforða, var ábyggilegri heldur en skrifaðir og vottfejtir samningar eru nú. Já, þeim fækkar óðum þessum sönnu íslendingum. Einn þessara sönnu íslendinga var Kristján Ólafsson, fæddur að Hjalla i Reykjadal í Suður-Þing- eyjarsýslu á íslandi, þann 15. ágúst 1857. Foreldrar hans voru Ólafur Ólafsson og Rannveig kona hans, sem lengi bjuggu þar, og þar ólst Kristján upp til fullorðinsára; hann giftist á íslandi fyrri konu sinni, Rósalínu Einarsdóttur; þau fluttust vestur um haf árið 1884, og settust að í Argyle-bygð i Manitoba. Þar misti hann fyrri konu sína, og áður vorjr öll börn þeirra hjóna dáin. Og í Argyle giftist Kristján í annað sinn eftirlifandi ekkju Helgu Jo- sephsdóttur frá Þernumýri í Vest- ur-Hópi i Húnavatnssýslu. í Argyle bjuggu þau hjón all-mörg ár, en fluttu þaðan vestur á Kyrra- hafsströnd árið 1904, og settust að við Cresent, B.C. Þaðan fluttu þau til Blaine, Wash., árið 1922 og hafa þar átt heimili síðan; og þar dó Kristján þann 19. ágúst 1934, eftir langvarandi sjúkdóm, sem hann bar með sérstakri ró og stillingu, sem vænta mátti af þeim manni. Krist- ján var maður kristinn, og sýndi það frekar i verkum en orðum; mörgum mun hann hafa rétt hjálp- arhönd, sem þó fáir vissu um aðrir en þeir, sem nutu góðs af, þvi mað- urinn var svo skapi farinn, að hann vildi sizt láta nokkurn vita um þau mörgu ,góðverk, sem hann gerði sérstaklega til þeirra, sem bágt áttu, svo studdi hann líka málefni krist- indómsins oft ríflega. Kristján þar greindur vel, og fylgdist með öllu því, sem íslenzkt er, og hans mesta gleði var að vita að íslendingum vegnaði vel, bæði sem þjóð og einstaklingum. Þau hjón lásu mikið sameiginlega síð- ustu æfiár Kristjáns, og þó sérstak- lega Helga, þvi sjón hans var mjög farin undir það síðasta. Aðeins það bezta af íslenzkum fræðibókum var lesið, og svo tímaritin, og ræddu þau hjón mjög það sem lesið var, sín á milli, og fengu þannig skýran skilning á öllum hreyfingum þjóð- arinnar, bæði austan og vestan hafs. Bróðir Kristjáns var Gisli heit- inn Ólafsson, sem um margra ára skeið rak verzlun í Winnipeg, og margir Islendingar kannast við; önnur systkini hans voru dáin svo að engin náin skyldmenni lifa hann, I aðeins ekkjan er eftir, sem syrgir j nú eiginmann sinn og vin; ber þó ! sína byrði með hreysti og jafflaðar- geði. Hér er drengur góður til hvildar genginn, en minning hans mun lengi lifa og lengst hjá þeim, sem þektu hann bezt. A. D. ftalskir fornmcnjafrœðingar, sem verið hafa við fornmenjagröft í grísk-rómversku fornborginni Teb Tunis, skamt sunnan við Kairo í Egyptalandi, hafa rétt nýskeð fund- ið um 1 þúsund pergament-skjöl og handrit á grísku. Talið er að þau séu frá annari öld eftir Krist. Tíminn. BÚJARÐIR TIL SÖLU í Arborg bygðarlagi AUSTUR SE 17-22-3 SE 18-23-3 SW 9-23-2 RL 50-22-2 SE 15 and NW 9-23-2 NW 23-22-5 SW 21-23-2 NW i6-»2-3 NE 5-22-3 Pt. 28-22-3 NE 30-22-1 NE 35-22-1 SE 21-23-2 VESTUR NE 36-23-2 NE 27-24-1 SE 3-24-2 SE 24-24-1 NE 15-25-3 SW 36-23-2 SW 3-24-1 NW 12-25-2 NW. 35-23-2 NW 13-25-2 N % 36-24 and SW 3-25-3 sw 34-25-1 NW 28-25-2 NW 36-24-2 SW 30-23-1 ,NW 13-24-1 NE 14-25-2 í sambandi við verð og greiðsluskilmála skrifið til: The Manitoba Farm Loans Association 166 Portage Ave. East, Winnipeg I ” Vi » 1 • •• ' , ■ r'. ■ r ' i>P ,

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.