Lögberg - 02.09.1937, Page 4
4
LÖGBEJRG, FIMTUDAGINN 2. SEiPTEMBER, 1937
Högtierg
GefiS út hvern íimtudag af
THS COLXJMBIA PRESS LIMITED
695 Sargent Avenue
Winnipeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVE.
WINNIPEG, MAN.
J _______
VerO »3.00 um árið — Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and published by The
Columbla Press, Limited, 695 Sargent Avenue,
Winnipeg, Manitoba
PHONE 86 327
)
Avarpsorð
flutt á Islendingadaginn að Hnausa 31. júli.
1937.
af Joseph Wavrykow, þingmanni Gimlí kjörd.
Herrar mínir og frúr!
Eg er forgöngunefndinni innilega þakk-
látur fyrir að liafa veitt mér kost á að vera
hér viðstaddur í dag; þenna sögulega og mik-
ilvæga þjóðminningardag yðar. Það er meira
en algengt ánægjue'fni fyrir mig, að vera við-
staddur á þessum hátíðisdegi, þar sem minst
verður hinna mörgu og miklu sigra. er forfeð-
ur yðar unnu í þágu frelsis og mannréttinda;
þér eruð í dag að sýna minningu þeirra verð-
skuldaða viðurkenningu; þjóðhetjanna, sem
vöktu þjóðina af dtala og ruddu braut hennar
að marki sjálfstjórnar og sjálfstæðis. Þessi
minningarhátíð styðst við mikílvæg,söguleg
verðmæti. Sagnfræðin og sagan hafa dregið
það fram í dagsljósið, hve hamingja forfeðra
yðar var öldungis óhugsanleg, nema því að-
eins, að þeir nyti frelsis og fengi hrist af sér
hverskonar kúgunarhlekki. Það liggur enda
í augum upþi, að engin þjóð fái notið sín.
nema hún búi við sjálfstjórn.
Það er íhugunarvert, hve hörð og þrálát
sú barátta var, er þér háðuð í heimalandi yð'ar
unz yfir lauk; að fullveldinu fengnu, urðu
framfarir risavaxnar og örar á flestum svið-
um mannlegra athafna. 1 þessu landi engu
síður en heima fyrir, hefir fróðleiksástin ein-
kent öll yðar störf; ástin á ljóðum og fræði-
mannlegum iðkunum.
Þessi þjóðhátíð yðar hefir því meiri þýð-
ingu, sem hinar og þessar sérstefnur skjóta
víða upp kolli, er til f jörráða stofna við frelsi
einstaklingsins. Enda má svo segja sem það
sjálfsforræði, er forfeður yðar börðust fyrir,
leiki nú á skjálfi vítt um heim. Þetta stafar
einkum og sérílagi frá fjárhagslegum ástæð-
um, bæði heima fyrir og út á við, er blásið
hafa einræðisstefnunni byr í segl; undir
hrammi slíkrar stefnu hverfur alt það, er á
raunverulegt mannfrelsi minnir. Engin þjóð
er með ölllu laus við þær ógnir, er frá einræð-
isstefnunni s'tafa. Hér í Canada má glögt sjá
fingraför hennar; einkum í vissum héruðum
austanlands.
Eigi oss að auðnast að bjarga við heims-
menningunni, verðum vér fyrst og seinast að
bjarga lýðræðinu í heiminum.—
Eitt sérstaklega mikilvægt atriði í sam-
bandi við stofnþjóð yðar og föðurland, ber á
öllum tímum að taka til greina. Þó þjóð
yðar sé sú fámennasta í Norðurálfunni, þá
héfir menningartillag hennar í Vestur-Can-
ada verið harla fjölþætt og mikilvægt. Enda
stendur í rauninni heimurinn allur í þakkar-
skuld við Island og íslenzku þjóðina, fyrir
mikilsverðan menningarskerf, lagðan fram í
þjónustu vísindalegrar sjálfstjórnar.
Þér hafið lagt fram mörg og mikilvæg
verðmæti til andlegrar og efnalegrar þróun-
ar L þessu landi. Ýmsir af yður hafa vakið á
sér athygli sakir framúrskarandi herdóms.
Tveir synir þessa fylkis af íslenzkum stofni,
hafa hlotið Rhodes námsstyrkinn. Á stjórn-
málasviðinu hefir áhrifa yðar einnig mikil-
lega gætt. Einn af ættbræðrum yðar gegndi
hinu virðulega dómsmálaráðherraembætti í
stjórn þessa fylkis. Þér hafið vakið á yður
athygli og skarað fram úr í vísindum, ljóðum
og landkönnun, eins og afrek Vilhjúlms Stef-
ánssonar svo afdráttarlaust sanna.
En þrátt fyrir annir og sigurvinningar
yðar í þessu landi, hafði þér ekki gleymt sögu-
legum uppruna yðar; heldur miklu fremur
það gagnstæða. Það er fullrar íhugunar
vert, að þrátt fyrir það þó Islendingar séu nú
alment taldir meðal beztu borgara hinnar
canadisku þjóðar, þá eru þeir engu síður stolt-
ir af þjóðerni sínu og leggja mikið í sölurnar
til þess að halda því við. Fyrir þetta njóta
þeir að sjálfsögðu aukinnar virðingar innan
þjóðfélagsins, því víst er um það, að canadiskt
þjóðlíf verður fjölbreyttara og auðugra af
andlegum verðmætum, ef hinir ýmsu og mis-
munandi þjóðflokkar, eða þjóðflokkabrot,
halda vörð um þjóðernisleg sérkenni sín, og
leggja þau á borð með sér ef svo mætti að orði
kveða.
Það er dásamlegt og mikilvægt, að vera
fæddur canadiskur maður, og þau af oss sem
hér érum fædd, viðurkennum fúslega þau for-
réttindi og þann heiður. En forréttindi ís-
■ lenzku frumherjanna voru ef til vill ennþá
meiri; þeir voru fæddir á Islandi. en helguðu
svo iþetta dásamlega land sér og niðjum sín-
um; þessir menn og þessar konur áttu tvenna
erfðasjóðu, sem þeir eru öfundsverðir af; að
minsta kosti af öðrum; þeir búa að þjóðernis-
legum söguminjum stofnþjóðar sinnar; hrika-
dýrð náttúrunnar; blæbrigðum hinna hrjúfu
fjalla og djúpu dala; fegurst af ölLu verður
þó sagan sjálf; saga göfugrar fortíðar, sem
geymst hefir öld af öld í þeim fræðiritum, sem
vér öll unnum og Sögur nefnast; þessir menn
eiga dýrmæta fjérsjóðti í heimalandi sínu;
þeir eiga nú orðið jafnframt því verðmæt
erfðagull eftir fimtíu til sextíu ára dvöl í
hinu nýja kjörlandi sínu; þeir hafa upplifað
margt og orðið sjónarvottar að risavöxnum
framförum í hinu nýja umhverfi; þeir minn-
ast landnámsbaráttunnar, og hinna margvís-
legu ávaxta, sem þeir nú njóta; þeir hafa það
á meðvitundinni, að þeir hafi átt sinn giftu-
drjúga þátt í myndun og mótun hins cana-
diska þjóðfélags; eigi aðeins stjórnarfarslega
og siðferðislega, heldur og samfélagslega
líka. Það er dásamlegt í eðli sínu og út af
fyrir sig, að vera hluthafi í þeim tvennum
erfðaverðmætum, sem eg hefi hér stuttlega
vikið að.
Hátíðahöldin í dag eru helguð minningu
hins liðna; er það í alla staði viðeigandi. En
jafnframt því sem vér heiðrum minningalönd-
in, beinum vér sjónum vorum til framtíðar-
innar. Oss er það Ijóst, að eins og sakir
standa. er viðhorfið drungalegt og ógnandi.
Oss er það jafnframt ljóst, að þér, synir og
dætur frumherjanna íslenzku, munuð ganga
til móts við komandi tíð djarflega og með
fullu hugrekki. Ef þér hafið sama trúnaðar-
traustið og feður yðar; sama heildarskilning-
inn á tilgangi lífsins og þeir höfðu; sama heita
hjartalagið, og sama göfuga hugarfarið, náið
þér óumflýjanlega fullu haldi á blysi því, er
lýsti þeim veg, og látið það lýsa leið yðar til
yztu takmarka.— (Þýtt úr ensku).
Áhyggjuefni
Um hverja einustu helgi í -sumar hafa
orðið fleiri og færri bílslys á þjóðvegum
Manitobafylkis, sem haft hafa í för með sér
dauða og meiðsl; og nú um síðustu helgina
létu sex borgarar þessa fylkis líf sitt af fyr-
greindum orsökum . Hlýtur þetta að verða
hugsandi mönnum þungt áhyggjuefni, og er
þess að vænta, að þessi óvinafagnaðnr leiði
til frekari varúðar, en við hefir gengist að
undanfömu.
Bifreiðin er yndislegt samgöngutæki. En
sé þannig með hana farið, að hún snúist upp
í helreið, fer gamanið að sjálfisögðu að grána.
Yafalaust koma fyrir slys á þjóðvegum
þessa fylkis, sem og annarsstaðar, er eigi var
unt að fyrirbyggja; þau eru þó að jafnaði til-
tölulega fá; hin eru fleiri, sem af hreinu og
beinu kæruleysi orsakast, glannaskap og þar
fram eftir götunum. Út yfir alt tekur þó það,
er slysin stafa frá áhrifum áfengra drykkja
eða ölæði. Því miður virðist sú tegund bíl-
slysa mjög vera að fara í vöxt. Sjálfskapar-
vítin eru verst. Ölvaðir bílstjórar ættu að
vera óalandi öllum bjargráðum. Almennings-
álitið sættir sig ekki við það lengur, að sak-
lausum þorgurum sé slátrað á kostnað nautna-
sýkinnar dag eftir dag og viku eftir viku.
ANDREW MELLON
Fyrverandi sendiherra Bandaríkjarma í
London. og fjármálaráðherra ú ráðuneytum
þeirra Hardings, Coolidge og Hoovers, lézt
að heimili dóttur sinnar, Mrs. David Bruce í
Southampton. N.Y., á fimtudaginn þann 26.
þ. m., tæpra áttatíu og fjögra ára að aldri;
hann var ekki aðeins einn áf auðugustu mönn-
um þjóðar sinnar, heldur meðal auðugustu
manna í heimi. Mr. Mellon var um langt
skeið einna mestur áhrifamaður innan vé-
banda Republicana flokksins; var það um
hann sagt, að þó hann ekki hefði jafnaðar-
lega mikið um sig, þá hefði hann ráð undir rifi
hverju, er til þess kom, að afla flokki sínum
fyigis.
Árið 1924 var gerð tilraun til þess að
hrekja Mr. Mellon úr ráðherrasessi, er mis-
tókst með öllu. 1 *
BiðjiÖ matsalann um Clover Leaf
Pink Salmon. Clover Leaf er úr-
vals fæða, sem kostar tiltölulega
mjög lítið. Gerið yður far um að
framreiða Clover Leaf eins oft og
þér getið. Ljúffengt með afbrigð-
um.
Tveir norskir vísinda-
menn rannsaka hveri
á lslandi
Tveir norskir vísindamenn Tom
F. W. Barth prófessor frá Osló og
Odd Dahl verðfræðingur frá Björg-
vin eru komnir ihingað fyrir nokkr-
um dögum til þess að rannsaka hér
hveri og hverasvæði. Kona Odds
Dahl er með manni sínum. Þau hafa
flutningabíl til ferðalaga og tjald-
búnað.
Blaðið hafði tal af vísindamönn-
um þessum á mánudaginn. Þá
voru þeir hér í bænum. Síðan fóru
þeir norður í land.
Tom F. W. Barth er prófessor i
jarðfræði við háskólann í Osló, og
er bergfræði sérgrein hans. En Odd
Dahl er verkfræðingur við rann-
sóknarstofu Chr. Michelsen í
Björgvin. Er rannsóknarstofa þessi
rekin af erfðafé hins fræga stjórn-
málamanns. Fæst hún við læknis-
fræðilegar, eðlisfræðilegar og stærð-
fræðilegar rannsóknir.
Hin ameríska Carnegie-stofnun
kostar rannsóknaför þessa. Forráða-
menn þeirrar stofnunar ákváðu fyr-
ir þrem árum síðan, að láta fram
fara vísindalegar rannsóknir á helztu
hverasvæðum í heimi. En það eru:
Yellowstone Park í Ameríku, á Nýja
Sjálandi og hér á Islandi.
(Þegar sú ákvörðun var tekin,
voru þessir tveir norsku vísinda-
menn starfandi á rannsóknarstofum
stofnunarinnar í Washington. —
Hverarannsóknir þessar byrjuðu
fyrst í Ameríku og á Nýja-Sjálandi.
Bárth prófessor kom hingað snögga
ferð|til að athuga hveri sumarið
1934. En rannsóknir þær sem þeir
félagar eiga að gera hér í sumar, eiga
að vera í sambandi við rannsóknir
þær, sem gerðar eru á hinum tveim-
ur stöðunum.
Hægt að finna hvar upptökin eru.
—Hvað getið þér sagt í stuttu
máli um þessar rannsóknir yðar,
spyrjum vér Barth prófessor.
Prófessorinn er sýnilega mjög
orðvar maður. og vill ekki mikið
um þær segja á þessu stigi tnálsins.
Þetta er aðeins í byrjun, segir
hann. Við ihöfum ekki farið nema
um hverasvæði Hengilsins og Ölf-
ussins, og fengið hið versta veður
við athuganir okkar.
Þó get eg nefnt eitt atriði í at-
hugunum okkar, sem- getur haft
mikla þýðingu fyrir rannsóknir á
hverasvæðunum og upptökum jarð-
hitans.
Eg hefi veitt því eftirtekt að
sýrustig hveravatnsins er æði mis-
munandi. Sumt er allsúrt, aftur
annað óvirkt og enn annað alkaliskt.
Mér virðist þetta fara eftir þeirri
reglu, að þeim mun nær, sem hverinn
eða hinar heitu uppsprettur eru frá
aðalupptökunum, þeim mun súrara
er vatnið, en alkaliskt það, sám
lengst er frá jarðhitaupptökunum.
Hvort hér er um algilda reglu að
ræða, get eg vitanlega ekki sagt. En
ef svo reynist, þá verður auðveldara
en áður að átta sigá upptökum jarð-
hitans og jarðfræði hverasvæðanna.
Hin jarðfræðilegu upptök jarð-
hitans i Ölíusinu, tel eg vera í
Henglinum. Þar eru jarð'hræringar
tíðar, eins og við vitum.
Þar er hveravatnið súrt. Eftir
því sem lengra dregur austur eftir
verður hveravatnið minna og minna
súrt. Og austur í Hveragerði og
við Reyki í Ölfusti er það orðið
alkaliskt.
Hugmynd mín er þessi: Eftir því
sem hið upprunalega hveravatn fer
lengri leið neðanjarðar áður en það
kemst upp á yfirborðið, eftir því
lækkar sýrustig þess.
Hveravatn myndast í jörðinni
—Er þá svo að skilja, að hvera-
vatn sé yfirleitt upprunalegt vatn,
myndað í jörðu, og hafi aldrei komið
á yfirborðið?
—Vísindamenn hafa þráttað um
það, hvort svo væri eða ekki. Sumir
hafa haldið þvi fram, að alt hvera-
vatn væri nýtt, myndað í jörðu, þar
sem frumefni vatnsefnis súrefni og
vatnsefni hafi skilyrði til þess að
sameinast í vatnsgufu, er síðar þétt-
ist í vatn. er gufan kólnar. En aðr-
ir hafa þvertekið fyrir að þetta gæti
átt sér stað, og haldið því fram, að
hveravatn væri ekkert nema yfir-
borðsvatn, sem sigið hafi niður i heit
jarðlög.
Eg býst við, að í þessu efni, sem
svo víðar, þegar vísindamenn deila
sín á milli, sé sannleikurinn mitt á
milli. Hveravatn sé yfirleitt sam-
bland af hvorttveggja, nýmynduðu
vatni og yfirborðsvatni.
Hitasvœðin fylgja jarðsprungunum.
Menn eru á þeirri skoðun hér, að
innbyrðis afistaða hverasvæðanna sé
háð aðalsprungustefnunum, þannig
að hverasvæðin séu í röðum sem eru
með sömu stefnu og sprungurstefn-
urnar hér sunnanlands, frá norð-
austri til suðvesturs, en norðanlands
frá norðri til suðurs. Teljið þér að
þetta sé á rökum bygt ?
Mér sýnist enginn vafi leika á þvi.
Hverasvæðið hérna í Mosfellssveit-
inni er eftir þessari kenningu í sama
sprungukerfi og Krýsuvíkurhver-
irnir. Með því að rannsaka sýru-
stig vatnsins í hverum þessa kerfis
ætti, samkvæmt tilgátu minni að
vera hægt að sjó hvar aðalupptökin
eru.
Annars tel eg, heldur Barth pró-
fessor, að það gæti haft mjög mikla
praktiska þýðingu fyrir ykkur Is-
lendinga að láta fara fram nákvæma
jarðfræðirannsókn á hverasvæðun-
um, með það fyrir augum að fá söm
gleggsta hugmynd um hvar eru
mestar líkur til þess að ná sem
mestum jarðhita upp á yfirborðið
með sem minstri fyrirhöfn.
Þegar menn byrja að bora eftir
olíu í Almeríku, vissu menn lítið hvar
mest væri olíuvon. En nú hafa jarð-
fræðingar <fyrir löngu leyst þann
vanda með rannsóknum sínum, svo
menn geta séð fyrir hvar haganleg-
ast er að bora.
Vænta mætti svipaðs árangurs
hér, viðvíkjandi jarðhita og hvera-
vatni.
Vafalaust heilsubœtandi efni.
En hvað getið þér sagt mér um
efnainnihald og ásigkoimulag hvera-
vatnsins? Þið rannsakið það. Er
ekki svo?
Jú. Við tökum mikið af vatninu
til efnagreiningar. En minst af því
er hægt að efna greina fyr en siðar
meir.
Eitt mjög einkennilegt eðlisfræði-
legt fyrirbrigði fundum við í hver
austur í Ölfusi. En það er bezt að
félagi minn Dahl segi frá því.
Dahl verkfræðingur segir svo frá:
Uppi í fjalli fyrir ofan Reykja-
kot í Ölfusi er hver einn, sem heitir
“Spýtir.” Hann gýs sífelt. En ein-
um 100 metrum norðar er hver einn
lygn, sem eg veit ekki nafn á.
Þar fundum við fyrirbrigði sem
eg tel alveg einstætt og óþekt. Yfir-
'hitað vatn uppi í yfirborði hvera
skálarinnar. Skálin er um 2 metra
að þvermáli, ekki nema 70 senti-
metra djúp. En hér og þar í vatns-
yfirborðinu er vatnið ioi° Celsius
heitt. Hver þessi erum 100 metra
yfir sjávarmál. Svo suðustigið er
þar heldur neðan við ioo°. En af
einhverjum ástæðum breytist vatnið
þarna ekki strax í gufu, þó það sé
yfir ioo°.
Þetta alveg óeðlilega ástand vatns-
ins er vitaskuld i óstöðugu jafn-
vægi. Með því að hrófla við hinu
yfirhitaða vatni, t. d. með því að
snerta vatnsflötinn með spýtu, þá alt
i einu breytist vatnið í gufu eins og
við sprengingu.
Talað er um, að hverirnir hljóti
að geta orðið heilsubrunnar. Hver
er skoðun yðar í því ?
Það verður vitaskuld ekki okkar
hlutverk að skera úr því. Það
verða læknarnir að gera. En við
rannsökum og efnagreinum vatn
margra hvera. Eg fyrir mitt leyti
get ekki séð annað, en allar líkur séu
fyrir því að heilsubætandi efni séu
í íslenzkum ihrveruim, eins og fullyrt
er að þau séu t. d. í hveravolgrunum
suður í Tékkóslóvakíu.
Hvé lengi búist þið við að vera
hér við rannsóknir að þessu sinni?
Við förum með Lyru, segir Barth
prófessor þ. 26. ágúst. Nú er ferð-
inni heitið norður til Mývatns. Við
ætlum að reyna að rannsaka hverina
á svæðinu frá Námafjalli og alla
leið ihelzt suður í Öskju.
Ýfirleitt verð eg að segja það,
heldur hann áfram, að eftir því sem
eg sé meira af hverasvæðum ykkar,
eftir þvi sannfærist eg betur og bet-
ur um hve mikið og margvíslegt
gagn þið getið af þekn haft.
Hvernig líkar ykkur að aka á bíl-
vegunum héma;
Vegirnir eru ekki verri en við er
að búast. Annars er Dahl vanur
því sem verra er. Hann hefir farið
í bíl eftir vegleysum um þvera og
endilanga Persíu.
Var það í vísindaerindum ?
Að sumu leyti, segir Dahl, og að
sumu leyti fór eg þá ferð að gamni
mínu.—Morgunbl. 4. ágúst.
Jóns Bjarnasonar skóli
Hið 25. starfsár er nú í aðsigi.
Síðastliðið ár var farsælt: nemendur
77, fjárhagur eftir vonum, og árang-
ur í heild sæmilegur.
Tvö bréf eru birt hér sem sýna
hvernig þeir líta á skólann, sem hafa
reynt hann. Hið fyrra frá móður
námSmeyjar í 12. bekk, en hitt er
frá annari námsmey í saima bekk.
“B” Cambridge, Apts.,
Winnipeg, May 27-’37
Dear Mr. Marteinsson,
The enclosed $5.00 completes the
instalments towards Thorag’s fees,
ADVÖRUN
Til þeirra allra, sem hafa í hyggju, eða
eru að brugga það, að flytja til
Winnipeg og komast á
atvinnuleysis styrk
1. Borgin hefir þegar mikinn fjölda atvinnu-
lausra manna, er hér eiga lögheimili, og fúsir
eru til hvaða vinnu sem er, ef fyrir hendi væri.
2. Enginn styrkur verður framvegis veittur f jöl-
skyldum eða einstaklingum, sem nú eru í Win-
nipeg, og ekki eiga þar lögheimili.
3. Enginn styrkur verður veittur fjölskyldum
eða einstaklingum, sem til Winnipeg koma frá
birtingu þessarar yfirlýsingar.
Samkvæmt fyrirskipun,
CITY OF WINNIPEG UNEMPLOYMENT
RELIEF COMMITTEE
24. ágúst, 1937.